Meistarapróf (MS) í líftölfræði eða skyldum greinum á stigi 6.2 með a.m.k. 30 ECTS lokaverkefni og fyrstu einkunn, 7,25. Heimilt er að veita undanþágu þeim umsækjendum sem hafa lokið 90-120 ECTS meistaraprófi á stigi 6.1 með lokaverkefni undir 30 ECTS, hafi þeir í umsókn sinni gert grein fyrir rannsóknarreynslu, sem fastanefnd metur sem ígildi 30 ECTS lokaverkefnis.
Umsækjendur þurfa einnig að hafa lokið eftirfarandi eða sambærilegum námskeiðum:
STÆ104G Stærðfræðigreining I
STÆ107G Línuleg algebra
STÆ203G Líkindareikningur og tölfræði
LÝÐ202F Verklag í vísindum
LÝÐ107F eða LÝÐ003M Faraldsfræði
LÝÐ105F eða LÝÐ004M Líftölfræði I
LÝÐ301F Klínísk spálíkön.
Í sérstökum tilfellum getur stjórn námsins, í samráði við doktorsnámsnefnd hlutaðeigandi fræðasviðs, heimilað umsækjanda að leggja inn umsókn áður en skilyrði um námskeið er að fullu uppfyllt, og ljúka völdum námskeiðum á fyrsta ári námsins.
Staðfestingu á enskukunnáttu er krafist sé íslenska ekki fyrsta tungumál umsækjanda.
Ljúka þarf 180-240 einingum sem skiptast eftir bakgrunni nemanda: 180 einingar rannsóknaverkefni og 60 einingar í skyldu- og valnámskeið.
- CV
- Research proposal
- Reference 1, Name and email
- Reference 2, Name and email
- Supervisor/supervising teacher at the University of Iceland
- Certified copies of diplomas and transcripts
- Copy of grant or scholarship application and/or confirmation, if applicable
- Proof of English proficiency
Further information on supporting documents can be found here.
Please use the form below for your application and follow the instructions closely.