- Hefur þú áhuga á vísindum og rannsóknum?
- Langar þig að geta rökrætt og túlkað niðurstöður rannsókna?
- Viltu dýpka þekkingu þína á völdu fræðasviði líf- og læknavísinda?
- Langar þig að auka færni þína í rannsóknastörfum?
- Viltu efla þig vísindalegum vinnubrögðum?
MS nám í líf- og læknavísindum felur í sér þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og meginhluti námsins felst í vinnu við eigið rannsóknarverkefni og skrif lokaritgerðar sem byggir á rannsókninni.
Samsetning náms
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára eða hlutanám til allt að fjögurra ára.
Námið skiptist í:
- Námskeið, 30 - 60 einingar
- Meistaraverkefni, 60 - 90 einingar
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku og ensku.
Námið er kennt í staðnámi.
Meginmarkmið
Að námi loknu á nemandi að geta:
- hannað, skipulagt, þróað og framkvæmt mælingar og tilraunir á sínu sérsviði, að teknu tilliti til þeirra takmarkana sem ráðast af tækni, reglum, öryggi og siðareglum
- með sjálfstæðum og faglegum hætti skilgreint rannsóknaviðfangsefni, sett fram rannsóknaspurningar og tilgátur
- þróað með sér nauðsynlega námshæfni, gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð til að geta tekist á við frekara nám, viðhaldið þekkingu sinni og aukið við hana
Annað
Námsgráðan veitir nemanda rétt á að sækja um doktorsnám.
BS próf frá Háskóla Íslands, eða sambærilegt próf, sem að jafnaði var lokið með einkunn 6,5 eða hærri.
Ljúka þarf 120 einingum fyrir MS próf, 60 einingum á hverju ári. Skylt er að skila 30 einingum í námskeiðum en má vera allt að 60 einingum af 120 einingum.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Leiðbeinandi/leiðbeinandi kennari við HÍ
- Prófskírteini/námsyfirlit
Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Óháð námsári
- Haust
- Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 1
- Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 2
- Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 3
- Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 4
- Verkefni til meistaraprófs
- Aðferðir í greiningu kjarnsýra og lífupplýsingafræðileg greining
- Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur
- Líftölfræði I
- Ekki kennt á misserinuTilraunadýranámskeið FELASA A/B/D
- Ekki kennt á misserinuMeinalíffræði - hvernig sjúkdómar verða til - áhrif erfða og umhverfis
- Hagnýt lífupplýsingafræði
- Vor
- Almenn tölfræði fyrir meistara- og doktorsnema
- Verkefni til meistaraprófs
- Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur
- Ekki kennt á misserinuStofnfrumur og frumusérhæfing
- Aðferðir í ónæmisfræði
- Líffræði krabbameina
- Ónæmisfræði, grundvallarviðfangsefni
- Sameindaerfðafræði
- Frumulíffræði II
Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 1 (LÆK106F)
Námskeiðið er kennt í fjórum hlutum, sjá yfirlit hér að neðan. Hver hluti er 2ECTS einingar. Nemendur eru hvattir til að velja þá hluta sem henta best þeirra markmiðum. Meistaranemar skulu að lágmarki ljúka þremur hlutum (6ECTS) en doktorsnemar að lágmarki tveimur hlutum (4ECTS).
Hver hluti inniheldur fjóra fyrirlestra / umræðutíma ásamt verkefnum. Kennsla fer að mestu fram á ensku.
Hluti 1 (LÆK106F, 2ECTS)
- Skrif og lestur vísindagreina. Kynningar á ráðstefnum.
- Heimildaleit og utanumhald heimilda.
- Almennt um vísindalega aðferð.
- Hvernig á að setja upp rannsóknarverkefni.
Hluti 2 (LÆK0ALF, 2ECTS)
- Vísindaheimspeki.
- Vísindasiðfræði.
- Vísindi, samfélag og fjölmiðlar.
- Óheiðarleiki í vísindum.
Hluti 3 (LÆK0AMF, 2ECTS)
- Meðhöndlun gagna og gagnaöryggi.
- Styrkumsóknir.
- Leyfisumsóknir (rannsóknir á mönnum).
- Dýratilraunir.
Hluti 4 (LÆK0ANF, 2ECTS)
- Gerð ferilsskrár.
- Verkefnastjórnun.
- Gerð áætlunar fyrir næsta ár.
- Samband nemenda og leiðbeinenda.
Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 2 (LÆK0ALF)

Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 3 (LÆK0AMF)

Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 4 (LÆK0ANF)

Verkefni til meistaraprófs (LÆK441L)
Nám til meistaraprófs í læknadeild er 120 eininga framhaldsnám að loknu B.S. prófi frá Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi. Frestur til að sækja um innritun til meistaraprófs í læknadeild rennur út 15. apríl, fyrir skráningu á haustmisseri, og 15. október, fyrir skráningu á vormisseri. Umsækjandi sækir um innritun með leiðbeinanda sínum sem þarf að jafnaði að vera kennari í læknadeild. Umsóknum skal skilað til skrifstofu læknadeildar.
Aðferðir í greiningu kjarnsýra og lífupplýsingafræðileg greining (LÆK108F)
Í námskeiðinu verður ítarlega farið yfir mismunandi aðferðir í raðgreiningum og aðferðir til greiningar á lífupplýsingagögnum sem úr þeim fást, með áherslu á umritunar- og erfðamengjagreiningu. Nemendur munu læra um grundvallaratriði og hagnýta verkferla fyrir RNA-raðgreiningu, hvernig á að finna erfðabreytileika, að túlka gögn úr umframerfðamengjum og fá verklega reynslu í greiningu á gagnasettum úr háhraðaraðgreingu með nýjustu reikniaðferðum. Einnig verður farið yfir hvernig raðgreiningargögn eru notuð við klínískar greiningar. Sömuleiðis verður farið yfir greiningu safnerfðamengja og samsetningu erfðamengja úr safnerfðamengjagögnum.
Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur (LYF110G)
Farið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.
Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.
Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.
Líftölfræði I (LÝÐ105F)
Inngangur að hagnýtri líftölfræði í lífvísindum. Yfirlit er gefið yfir tegundir breyta; flokkabreytur, strjálar og samfelldar talnabreytur. Lýsandi tölfræði; lýsistærðir og myndræn framsetning gagna. Fræðilegar líkindadreifingar; tvíkostadreifing, Poisson dreifing og normaldreifing. Skilgreiningar á slembiúrtaki og þýði. Dreifingar lýsistærða. Notkun á öryggisbilum og tilgátuprófum. Samanburður á meðalgildi hópa (samfelldar mælingar). Tölfræðipróf fyrir tíðnitöflur (flokkabreytur). Einföld og lógistísk aðhvarfsgreining og ROC greining. Lifunargreining með aðferð Kaplan Meier og Cox. Í fyrirlestrum og dæmatímunum verður notast við tölfræðiforritið R og RStudio umhverfið.
Tilraunadýranámskeið FELASA A/B/D (LÆK0AHF)
Námskeiðið er á vegum Læknadeildar Háskóla Íslands og er haldið úti af Kaupmannahafnarháskóla en það er rekið í samstarfi Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum, Lífvísindaseturs, Matvælastofnunar og ArcticLAS.
Aðrar upplýsingar:
Grunnkröfur eru framhaldsnám til MSc eða PhD prófs í lífvísindum og grunnmenntun sem felur í sér lífeðlisfræði og líffærafræði. Einnig er æskilegt að nemendur hafi þekkingu á atferlisfræði og/eða lyfjafræði.
Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem vinna með tilraunadýr í sínum rannsóknum. Samkvæmt viðurkenndum hugmyndum og kröfum um dýravelferð er þess krafist að aðilar sem taka þátt í verklegum æfingum á tilraunadýrum muni nýta sér þá þjálfun í vinnu með tilraunadýr.
Fjöldatakmarkanir eru vegna verklegra æfinga en þátttakendur eru teknir inn í 5 manna hópum, að hámarki 15 manns.
Námskeiðinu lýkur með munnlegu prófi sem fer fram á fjarfundi gegnum netið milli hvers þátttakanda og kennara námskeiðsins við Kaupmannahafnarháskóla.
Til að öðlast FELASA A/B/D réttindi þarf bæði að standast prófið og verklega hluta námskeiðsins. Réttindin eru samkvæmt ESB tilskipun 2010/63/EU, grein 23.2. og fela í sér að viðkomandi geti skipulagt, borið ábyrgð á og framkvæmt leyfisskyldar tilraunir á dýrum.
Fræðilegur hluti námskeiðsins felst aðallega í rafrænum aðgangi að kennsluefni Kaupmannahafnarháskóla þar sem eru fyrirlestrar, myndbönd og sjálfspróf í efni námskeiðsins. Einnig er gefinn kostur á reglulegum málstofum á netinu þar sem nemendur geta átt samræður við kennara. Fyrirlestrar um íslenska löggjöf um notkun dýra í vísindaskyni eru haldnir á vegum Matvælastofnunar í kennslustofu HÍ.
Verklegi hluti námskeiðsins er haldinn hjá ArcticLAS, Krókhálsi 5d, 110 Reykjavík.
Meinalíffræði - hvernig sjúkdómar verða til - áhrif erfða og umhverfis (LÆK015F)
Í námskeiðinu er fjallað um hvaða líffræðilegar breytingar liggja að baki sjúklegu ástandi og hvaða þátt erfðir og/eða umhverfi eiga þar í. Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað nemendum í framhaldsnámi í læknadeild sem ekki hafa lesið læknisfræði. Fyrirlesarar flytja yfirlitserindi um valið efni innan þess efnisflokks sem nefndur er og velja síðan eina nýlega vísindagrein um skylt efni sem nemandi er fenginn til að kynna og gagnrýna. Greinum um hvert umfjöllunarefni er dreift til nemenda í upphafi námskeiðsins svo að allir geti komið undirbúnir og tekið þátt í umræðum.
Form: Tíu skipti, tvöfaldir tímar, fyrirlestur í fyrri tímanum og kynning nemanda á viðeigandi tímaritsgrein í þeim seinni.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Hagnýt lífupplýsingafræði (LEI106F)
Hagnýt lífupplýsingafræði er verklegt námskeið í lífupplýsingafræði fyrir nemendur í framhaldsnámi líf- og læknavísindi. Nemendur læra að finna, greina og túlka sameindagögn (erfðamengi, erfðabreytileika, genatjáningu og byggingu prótína) með opinberum gagnagrunnum og endurtakanlegum vinnubókum (notebooks) sem keyra í vafra, án þess að kunna forritun fyrir. Áhersla er lögð á gögn sem eru rannsóknartengd, t.d. sameindalíffræðileg gögn: hvað gögnin þýða, hvernig nútímatól (þar á meðal gervigreindarlíkön) búa til spár sínar, og hvernig á að leggja gagnrýnið mat á þær niðurstöður. Námskeiðið byggir á hópverkefni þar sem nemendur greina líffræðilega spurningu og kynna niðurstöður sínar með kynningu og skriflegri skýrslu.
Almenn tölfræði fyrir meistara- og doktorsnema (LÆK101F)
Skyldunámskeið. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að almennri þekkingu og færni meistara- og doktorsnema í aðferðum vísinda. Farið er í lýsandi tölfræði, áhrifstölur, áreiðanleika og réttmæti, ályktunartölfræði, algengustu tölfræðipróf bæði stikabundin og óstikabundin og fjölþátta aðhvarfsgreiningar. Þá er nemendum kynnt tölfræðiúrvinnsla í tölvum í verklegum tímum.
Verkefni til meistaraprófs (LÆK441L)
Nám til meistaraprófs í læknadeild er 120 eininga framhaldsnám að loknu B.S. prófi frá Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi. Frestur til að sækja um innritun til meistaraprófs í læknadeild rennur út 15. apríl, fyrir skráningu á haustmisseri, og 15. október, fyrir skráningu á vormisseri. Umsækjandi sækir um innritun með leiðbeinanda sínum sem þarf að jafnaði að vera kennari í læknadeild. Umsóknum skal skilað til skrifstofu læknadeildar.
Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur (LYF207M)
Farið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.
Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.
Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.
Stofnfrumur og frumusérhæfing (LÆK028F)
Í námskeiðinu verður lögð áhersla á að kynna rannsóknir á hinum ýmsu gerðum stofnfruma, einkum með tilliti til frumusérhæfingar. Fjallað verður um vefjasérhæfðar stofnfrumur t.d. stofnfrumur í beinmerg, húð og í brjóstkirtli. Mikil áhersla verður lögð á stofnfrumur úr fósturvísum músa og manna og athugað hvernig unnt er að stýra sérhæfingu þeirra. Ræddir verða möguleikar á nýtingu stofnfruma til lækninga og einnig verður komið inn á siðfræði í tengslum við notkun fósturvísa til rannsókna.
Fjallað verður um valin efni á ofangreindu sviði í hvert skipti og verður ein vísindagrein rædd í þaula í hvert sinn. Kennarar munu halda erindi um almennan vísindalegan bakgrunn vísindagreinarinnar eða fræðasviðsins. Nemendur munu síðan kynna innihald einnar vísindagreinar hver. Ágætt er að hafa í huga eftirfarandi fjögur atriði við uppbyggingu fyrirlestrar: 1. Byrjið fyrirlesturinn á inngangi sem gefur áheyrendum almennar upplýsingar um efnið og aðdraganda þeirrar rannsóknar sem greinin fjallar um. 2. Gerið grein fyrir helstu markmiðum rannsóknarinnar og nefnið eða lýsið rannsóknaraðferðum í stórum dráttum. 3. Lýsið helstu tilraunum og niðurstöðum þeirra með því að sýna glærur úr greininni sjálfri. Útskýrið niðurstöðurnar. Markmiðið er að skilja hvernig tilraunin er hönnuð til þess að svara ákveðnum spurningum eða ná ákveðnum árangri. 4. Takið í stuttu máli saman heildarniðurstöður rannsóknarinnar og hvernig þær falla að fyrri hugmyndum um það fyrirbæri sem verið er að rannsaka. 5. Fjallið um galla tilraunarinnar og ræðið hvernig unnt væri að ná sama marki með öðrum aðferðum. Fjallið einnig um líkleg/eðlileg næstu spurningar/skref. Að lokum fer fram umræða um efnið. Að auki verða nemendur að velja nokkrar greinar um stofnfrumur á sínu áhugasviði og skrifa stutta ritgerð á ensku um efnið (4-6 bls.). Í lok námskeiðs verður stutt fyrirlestraröð og eiga nemendur að kynna sitt ritgerðarefni (7-10 mínútur).
Aðferðir í ónæmisfræði (LÆK071F)
Námskeiðið er ætlað nemendum í meistara og doktorsnámi í ónæmisfræði, frumu- og sameinalíffræði, lífefnafræði, lyfjafræði eða skyldum greinum. Í námskeiðinu verður farið yfir helstu aðferðir sem notaðar eru við rannsóknir á ónæmiskerfinu og starfsemi þess, s.s. mótefnagreinar (RIA, ELISA, gelútfellingar, mótefnaútfellingar, immunoadsorption, mótefnaþrykk), frumueinangrun (þéttnistigull/síun, viðloðun, FACS og MACS), virknipróf (frumufjölgun, T-frumuvirknipróf, B-frumuvirknipróf, átfrumupróf), boðefnamælingar (ELISPOT, ELISA, CBA, Luminex) og vefjalitanir (undirbúningur vefja, flúrskinslitun, ensímlitun).
Kennsla fer fram í formi yfirlitsfyrirlestra (3 x 3) og verklegra æfinga (3 x 8) sem verða haldnar á laugardögum eða þriðjudegi, miðvikudegi og fimmtudegi milli kl. 16-21.
Fyrirlestrar og leiðbeiningar í verklegu fara fram á ensku ef þess er þörf.
Líffræði krabbameina (LÆK092F)
Í námskeiðinu verður fjallað um hvaða líffræðilegar breytingar leiða til myndunar krabbameina og einkenna þau. Fyrirlesarar gefa yfirlitserindi um valið efni innan þess efnisflokks sem nefndur er og velja síðan eina nýlega vísindagrein um skylt efni sem nemandi er fenginn til að kynna og gagnrýna. Greinum um efnið verður dreift til nemenda í upphafi námskeiðs svo allir geti komið undirbúnir og tekið þátt í umræðum.
Efni fyrirlestra: Inngangur, krabbameinsvaldar, æxlisgen og æxlisbæligen, TP53, atburðarás krabbameinsmyndunar, forstig krabbameina, krabbameinsstofnfrumur, dýralíkön, litningaóstöðugleiki, genaóstöðugleiki, þróun krabbameina, sviperfðir/epigenetics.
Kennslutímar: Námskeiðið mun verða haldið sem 12 tveggja stunda tímar, fyrirlestur í fyrri tímanum og kynning nemanda á viðeigandi tímaritsgrein í þeim seinni.
Ónæmisfræði, grundvallarviðfangsefni (LÆK093F)
Námskeiðið er ætlað nemendum í meistara og doktorsnámi í ónæmisfræði, frumu- og sameindalíffræði, lífefnafræði, lyfjafræði eða skyldum greinum. Námskeiðið er skylda fyrir nemendur í meistara- og doktorsnámi í ónæmisfræðikjarna. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á að kynna rannsóknir í ónæmisfræði og þá einkum m.t.t. nýjunga í grunnvísindum. Einnig verða kynntar rannsóknir í klínískri ónæmisfræði, s.s. ofnæmi, sjálfsofnæmi, krabbamein, ónæmisbilunum og líffæraflutningum, meingerð og nýjungum í meðferðarmöguleikum svo og rannsóknir og nýjungar í fyrirbyggjandi ónæmisaðgerðum, s.s. bólusetningum, og ýmsum meðferðarúrræðum, s.s. beinmergsskipti, afnæmingar, meðferðir með einstofna mótefnum og ónæmisbælandi / ónæmisstýrandi lyfjum. Í hverjum tíma mun kennari gefa yfirlit yfir ákveðið efni ónæmisfræðinnar og síðan verður farið saman yfir grein(ar) þar sem einn nemandi sér um kynningu hverrar greinar sem allir nemendur taka þátt í að ræða.
Sameindaerfðafræði (LÍF644M)
Fyrirlestrar: Sameindagrunnur lífsins (efnatengi, lífefni, bygging stórsameinda DNA, RNA og próteina). Erfðamengi dreifkjörnunga og heilkjörnunga. Skipulag erfðaefnisins, litningar, litni og litnisagnir. Stjórn DNA eftirmyndunar og frumuhringsins. DNA eftirmyndun. Aðskilnaður litninga og frumuskipting. Umritun. Stjórn umritunar. Verkun RNA sameinda. Þýðing mRNA í prótein. Stjórnkerfi þýðingar. Hlutverk RNA sameinda í stjórn genatjáningar. Prótein-umbreytingar og umferðarstjórn innan frumna. DNA skemmdir, varðstöðvar og DNA viðgerðir. Endurröðun og viðgerðir á tvíþátta DNA brotum. Stökklar og staðbundin endurröðun. Helstu aðferðir sameindalíffræðinnar og tilraunalífverur.
Umræðutímar: Nemendur hafa framsögu um og ræða valdar rannsóknagreinar og skila inn útdrætti úr greininni.
Verklegar æfingar: Unnið verður að verkefni í sameindaerfðafræði sem tengist rannsóknum kennara og býður upp á notkun helstu aðferða sameindaerfðafræðinnar svo sem genaferjun, DNA mögnun og raðgreiningu, ummyndun og einangrun plasmíða, skerðikortlagningu, og rafdrátt bæði kjarnsýra og próteina.
Próf: Verklegt 10%, umræðufundir og skrifleg verkefni 15%, skriflegt próf 75%.
Frumulíffræði II (LÍF614M)
Áherslan er á rannsóknagreinar. Nýlegar rannsóknir á ýmsum sérsviðum frumulíffræði verða til umfjöllunar og er það breytilegt hverju sinni. Fyrir hvern fyrirlestur eru lagðar mest fram þrjár greinar.
Hver nemandi hefur framsögu um eina nýlega rannsóknargrein þar sem ítarlega er gert grein fyrir aðferðum og niðurstöðum. Nemandinn skrifar ritgerð um rannsóknargreinina og ræðir túlkun niðurstaðna á gagnrýninn hátt.
Dæmi um sérsvið sem hefur verið fjallað um: Náttúrulegt ónæmi, príon, pontin og reptin próteinin, skautun þekjufruma, þroskun loftæða, gagnagreining á genatjáningargögnum, sjálfsát, uppruni kjarnans.
- Haust
- LÆK106FAlmenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 1Bundið valnámskeið2Bundið valnámskeið háð skilyrðum2 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Námskeiðið er kennt í fjórum hlutum, sjá yfirlit hér að neðan. Hver hluti er 2ECTS einingar. Nemendur eru hvattir til að velja þá hluta sem henta best þeirra markmiðum. Meistaranemar skulu að lágmarki ljúka þremur hlutum (6ECTS) en doktorsnemar að lágmarki tveimur hlutum (4ECTS).
Hver hluti inniheldur fjóra fyrirlestra / umræðutíma ásamt verkefnum. Kennsla fer að mestu fram á ensku.
Hluti 1 (LÆK106F, 2ECTS)
- Skrif og lestur vísindagreina. Kynningar á ráðstefnum.
- Heimildaleit og utanumhald heimilda.
- Almennt um vísindalega aðferð.
- Hvernig á að setja upp rannsóknarverkefni.
Hluti 2 (LÆK0ALF, 2ECTS)
- Vísindaheimspeki.
- Vísindasiðfræði.
- Vísindi, samfélag og fjölmiðlar.
- Óheiðarleiki í vísindum.
Hluti 3 (LÆK0AMF, 2ECTS)
- Meðhöndlun gagna og gagnaöryggi.
- Styrkumsóknir.
- Leyfisumsóknir (rannsóknir á mönnum).
- Dýratilraunir.
Hluti 4 (LÆK0ANF, 2ECTS)
- Gerð ferilsskrár.
- Verkefnastjórnun.
- Gerð áætlunar fyrir næsta ár.
- Samband nemenda og leiðbeinenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt í lotu ILÆK0ALFAlmenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 2Bundið valnámskeið2Bundið valnámskeið háð skilyrðum2 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er kennt í fjórum hlutum, sjá yfirlit hér að neðan. Hver hluti er 2ECTS einingar. Nemendur eru hvattir til að velja þá hluta sem henta best þeirra markmiðum. Meistaranemar skulu að lágmarki ljúka þremur hlutum (6ECTS) en doktorsnemar að lágmarki tveimur hlutum (4ECTS).
Hver hluti inniheldur fjóra fyrirlestra / umræðutíma ásamt verkefnum. Kennsla fer að mestu fram á ensku.
Hluti 1 (LÆK106F, 2ECTS)
- Skrif og lestur vísindagreina. Kynningar á ráðstefnum.
- Heimildaleit og utanumhald heimilda.
- Almennt um vísindalega aðferð.
- Hvernig á að setja upp rannsóknarverkefni.
Hluti 2 (LÆK0ALF, 2ECTS)
- Vísindaheimspeki.
- Vísindasiðfræði.
- Vísindi, samfélag og fjölmiðlar.
- Óheiðarleiki í vísindum.
Hluti 3 (LÆK0AMF, 2ECTS)
- Meðhöndlun gagna og gagnaöryggi.
- Styrkumsóknir.
- Leyfisumsóknir (rannsóknir á mönnum).
- Dýratilraunir.
Hluti 4 (LÆK0ANF, 2ECTS)
- Gerð ferilsskrár.
- Verkefnastjórnun.
- Gerð áætlunar fyrir næsta ár.
- Samband nemenda og leiðbeinenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt í lotu IILÆK0AMFAlmenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 3Bundið valnámskeið2Bundið valnámskeið háð skilyrðum2 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er kennt í fjórum hlutum, sjá yfirlit hér að neðan. Hver hluti er 2ECTS einingar. Nemendur eru hvattir til að velja þá hluta sem henta best þeirra markmiðum. Meistaranemar skulu að lágmarki ljúka þremur hlutum (6ECTS) en doktorsnemar að lágmarki tveimur hlutum (4ECTS).
Hver hluti inniheldur fjóra fyrirlestra / umræðutíma ásamt verkefnum. Kennsla fer að mestu fram á ensku.
Hluti 1 (LÆK106F, 2ECTS)
- Skrif og lestur vísindagreina. Kynningar á ráðstefnum.
- Heimildaleit og utanumhald heimilda.
- Almennt um vísindalega aðferð.
- Hvernig á að setja upp rannsóknarverkefni.
Hluti 2 (LÆK0ALF, 2ECTS)
- Vísindaheimspeki.
- Vísindasiðfræði.
- Vísindi, samfélag og fjölmiðlar.
- Óheiðarleiki í vísindum.
Hluti 3 (LÆK0AMF, 2ECTS)
- Meðhöndlun gagna og gagnaöryggi.
- Styrkumsóknir.
- Leyfisumsóknir (rannsóknir á mönnum).
- Dýratilraunir.
Hluti 4 (LÆK0ANF, 2ECTS)
- Gerð ferilsskrár.
- Verkefnastjórnun.
- Gerð áætlunar fyrir næsta ár.
- Samband nemenda og leiðbeinenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt í lotu IIILÆK0ANFAlmenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 4Bundið valnámskeið2Bundið valnámskeið háð skilyrðum2 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er kennt í fjórum hlutum, sjá yfirlit hér að neðan. Hver hluti er 2ECTS einingar. Nemendur eru hvattir til að velja þá hluta sem henta best þeirra markmiðum. Meistaranemar skulu að lágmarki ljúka þremur hlutum (6ECTS) en doktorsnemar að lágmarki tveimur hlutum (4ECTS).
Hver hluti inniheldur fjóra fyrirlestra / umræðutíma ásamt verkefnum. Kennsla fer að mestu fram á ensku.
Hluti 1 (LÆK106F, 2ECTS)
- Skrif og lestur vísindagreina. Kynningar á ráðstefnum.
- Heimildaleit og utanumhald heimilda.
- Almennt um vísindalega aðferð.
- Hvernig á að setja upp rannsóknarverkefni.
Hluti 2 (LÆK0ALF, 2ECTS)
- Vísindaheimspeki.
- Vísindasiðfræði.
- Vísindi, samfélag og fjölmiðlar.
- Óheiðarleiki í vísindum.
Hluti 3 (LÆK0AMF, 2ECTS)
- Meðhöndlun gagna og gagnaöryggi.
- Styrkumsóknir.
- Leyfisumsóknir (rannsóknir á mönnum).
- Dýratilraunir.
Hluti 4 (LÆK0ANF, 2ECTS)
- Gerð ferilsskrár.
- Verkefnastjórnun.
- Gerð áætlunar fyrir næsta ár.
- Samband nemenda og leiðbeinenda.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeið kennt í lotu IVNámskeiðslýsingNám til meistaraprófs í læknadeild er 120 eininga framhaldsnám að loknu B.S. prófi frá Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi. Frestur til að sækja um innritun til meistaraprófs í læknadeild rennur út 15. apríl, fyrir skráningu á haustmisseri, og 15. október, fyrir skráningu á vormisseri. Umsækjandi sækir um innritun með leiðbeinanda sínum sem þarf að jafnaði að vera kennari í læknadeild. Umsóknum skal skilað til skrifstofu læknadeildar.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarLÆK108FAðferðir í greiningu kjarnsýra og lífupplýsingafræðileg greiningValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður ítarlega farið yfir mismunandi aðferðir í raðgreiningum og aðferðir til greiningar á lífupplýsingagögnum sem úr þeim fást, með áherslu á umritunar- og erfðamengjagreiningu. Nemendur munu læra um grundvallaratriði og hagnýta verkferla fyrir RNA-raðgreiningu, hvernig á að finna erfðabreytileika, að túlka gögn úr umframerfðamengjum og fá verklega reynslu í greiningu á gagnasettum úr háhraðaraðgreingu með nýjustu reikniaðferðum. Einnig verður farið yfir hvernig raðgreiningargögn eru notuð við klínískar greiningar. Sömuleiðis verður farið yfir greiningu safnerfðamengja og samsetningu erfðamengja úr safnerfðamengjagögnum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFarið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.
Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.
Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingInngangur að hagnýtri líftölfræði í lífvísindum. Yfirlit er gefið yfir tegundir breyta; flokkabreytur, strjálar og samfelldar talnabreytur. Lýsandi tölfræði; lýsistærðir og myndræn framsetning gagna. Fræðilegar líkindadreifingar; tvíkostadreifing, Poisson dreifing og normaldreifing. Skilgreiningar á slembiúrtaki og þýði. Dreifingar lýsistærða. Notkun á öryggisbilum og tilgátuprófum. Samanburður á meðalgildi hópa (samfelldar mælingar). Tölfræðipróf fyrir tíðnitöflur (flokkabreytur). Einföld og lógistísk aðhvarfsgreining og ROC greining. Lifunargreining með aðferð Kaplan Meier og Cox. Í fyrirlestrum og dæmatímunum verður notast við tölfræðiforritið R og RStudio umhverfið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuLÆK0AHFTilraunadýranámskeið FELASA A/B/DValnámskeið8Valnámskeið á námsleiðinni8 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er á vegum Læknadeildar Háskóla Íslands og er haldið úti af Kaupmannahafnarháskóla en það er rekið í samstarfi Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum, Lífvísindaseturs, Matvælastofnunar og ArcticLAS.
Aðrar upplýsingar:
Grunnkröfur eru framhaldsnám til MSc eða PhD prófs í lífvísindum og grunnmenntun sem felur í sér lífeðlisfræði og líffærafræði. Einnig er æskilegt að nemendur hafi þekkingu á atferlisfræði og/eða lyfjafræði.
Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem vinna með tilraunadýr í sínum rannsóknum. Samkvæmt viðurkenndum hugmyndum og kröfum um dýravelferð er þess krafist að aðilar sem taka þátt í verklegum æfingum á tilraunadýrum muni nýta sér þá þjálfun í vinnu með tilraunadýr.
Fjöldatakmarkanir eru vegna verklegra æfinga en þátttakendur eru teknir inn í 5 manna hópum, að hámarki 15 manns.
Námskeiðinu lýkur með munnlegu prófi sem fer fram á fjarfundi gegnum netið milli hvers þátttakanda og kennara námskeiðsins við Kaupmannahafnarháskóla.
Til að öðlast FELASA A/B/D réttindi þarf bæði að standast prófið og verklega hluta námskeiðsins. Réttindin eru samkvæmt ESB tilskipun 2010/63/EU, grein 23.2. og fela í sér að viðkomandi geti skipulagt, borið ábyrgð á og framkvæmt leyfisskyldar tilraunir á dýrum.
Fræðilegur hluti námskeiðsins felst aðallega í rafrænum aðgangi að kennsluefni Kaupmannahafnarháskóla þar sem eru fyrirlestrar, myndbönd og sjálfspróf í efni námskeiðsins. Einnig er gefinn kostur á reglulegum málstofum á netinu þar sem nemendur geta átt samræður við kennara. Fyrirlestrar um íslenska löggjöf um notkun dýra í vísindaskyni eru haldnir á vegum Matvælastofnunar í kennslustofu HÍ.
Verklegi hluti námskeiðsins er haldinn hjá ArcticLAS, Krókhálsi 5d, 110 Reykjavík.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuLÆK015FMeinalíffræði - hvernig sjúkdómar verða til - áhrif erfða og umhverfisValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um hvaða líffræðilegar breytingar liggja að baki sjúklegu ástandi og hvaða þátt erfðir og/eða umhverfi eiga þar í. Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað nemendum í framhaldsnámi í læknadeild sem ekki hafa lesið læknisfræði. Fyrirlesarar flytja yfirlitserindi um valið efni innan þess efnisflokks sem nefndur er og velja síðan eina nýlega vísindagrein um skylt efni sem nemandi er fenginn til að kynna og gagnrýna. Greinum um hvert umfjöllunarefni er dreift til nemenda í upphafi námskeiðsins svo að allir geti komið undirbúnir og tekið þátt í umræðum.
Form: Tíu skipti, tvöfaldir tímar, fyrirlestur í fyrri tímanum og kynning nemanda á viðeigandi tímaritsgrein í þeim seinni.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingHagnýt lífupplýsingafræði er verklegt námskeið í lífupplýsingafræði fyrir nemendur í framhaldsnámi líf- og læknavísindi. Nemendur læra að finna, greina og túlka sameindagögn (erfðamengi, erfðabreytileika, genatjáningu og byggingu prótína) með opinberum gagnagrunnum og endurtakanlegum vinnubókum (notebooks) sem keyra í vafra, án þess að kunna forritun fyrir. Áhersla er lögð á gögn sem eru rannsóknartengd, t.d. sameindalíffræðileg gögn: hvað gögnin þýða, hvernig nútímatól (þar á meðal gervigreindarlíkön) búa til spár sínar, og hvernig á að leggja gagnrýnið mat á þær niðurstöður. Námskeiðið byggir á hópverkefni þar sem nemendur greina líffræðilega spurningu og kynna niðurstöður sínar með kynningu og skriflegri skýrslu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
LÆK101FAlmenn tölfræði fyrir meistara- og doktorsnemaSkyldunámskeið6Skyldunámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingSkyldunámskeið. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að almennri þekkingu og færni meistara- og doktorsnema í aðferðum vísinda. Farið er í lýsandi tölfræði, áhrifstölur, áreiðanleika og réttmæti, ályktunartölfræði, algengustu tölfræðipróf bæði stikabundin og óstikabundin og fjölþátta aðhvarfsgreiningar. Þá er nemendum kynnt tölfræðiúrvinnsla í tölvum í verklegum tímum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNám til meistaraprófs í læknadeild er 120 eininga framhaldsnám að loknu B.S. prófi frá Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi. Frestur til að sækja um innritun til meistaraprófs í læknadeild rennur út 15. apríl, fyrir skráningu á haustmisseri, og 15. október, fyrir skráningu á vormisseri. Umsækjandi sækir um innritun með leiðbeinanda sínum sem þarf að jafnaði að vera kennari í læknadeild. Umsóknum skal skilað til skrifstofu læknadeildar.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingFarið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.
Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.
Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuLÆK028FStofnfrumur og frumusérhæfingValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður lögð áhersla á að kynna rannsóknir á hinum ýmsu gerðum stofnfruma, einkum með tilliti til frumusérhæfingar. Fjallað verður um vefjasérhæfðar stofnfrumur t.d. stofnfrumur í beinmerg, húð og í brjóstkirtli. Mikil áhersla verður lögð á stofnfrumur úr fósturvísum músa og manna og athugað hvernig unnt er að stýra sérhæfingu þeirra. Ræddir verða möguleikar á nýtingu stofnfruma til lækninga og einnig verður komið inn á siðfræði í tengslum við notkun fósturvísa til rannsókna.
Fjallað verður um valin efni á ofangreindu sviði í hvert skipti og verður ein vísindagrein rædd í þaula í hvert sinn. Kennarar munu halda erindi um almennan vísindalegan bakgrunn vísindagreinarinnar eða fræðasviðsins. Nemendur munu síðan kynna innihald einnar vísindagreinar hver. Ágætt er að hafa í huga eftirfarandi fjögur atriði við uppbyggingu fyrirlestrar: 1. Byrjið fyrirlesturinn á inngangi sem gefur áheyrendum almennar upplýsingar um efnið og aðdraganda þeirrar rannsóknar sem greinin fjallar um. 2. Gerið grein fyrir helstu markmiðum rannsóknarinnar og nefnið eða lýsið rannsóknaraðferðum í stórum dráttum. 3. Lýsið helstu tilraunum og niðurstöðum þeirra með því að sýna glærur úr greininni sjálfri. Útskýrið niðurstöðurnar. Markmiðið er að skilja hvernig tilraunin er hönnuð til þess að svara ákveðnum spurningum eða ná ákveðnum árangri. 4. Takið í stuttu máli saman heildarniðurstöður rannsóknarinnar og hvernig þær falla að fyrri hugmyndum um það fyrirbæri sem verið er að rannsaka. 5. Fjallið um galla tilraunarinnar og ræðið hvernig unnt væri að ná sama marki með öðrum aðferðum. Fjallið einnig um líkleg/eðlileg næstu spurningar/skref. Að lokum fer fram umræða um efnið. Að auki verða nemendur að velja nokkrar greinar um stofnfrumur á sínu áhugasviði og skrifa stutta ritgerð á ensku um efnið (4-6 bls.). Í lok námskeiðs verður stutt fyrirlestraröð og eiga nemendur að kynna sitt ritgerðarefni (7-10 mínútur).
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið er ætlað nemendum í meistara og doktorsnámi í ónæmisfræði, frumu- og sameinalíffræði, lífefnafræði, lyfjafræði eða skyldum greinum. Í námskeiðinu verður farið yfir helstu aðferðir sem notaðar eru við rannsóknir á ónæmiskerfinu og starfsemi þess, s.s. mótefnagreinar (RIA, ELISA, gelútfellingar, mótefnaútfellingar, immunoadsorption, mótefnaþrykk), frumueinangrun (þéttnistigull/síun, viðloðun, FACS og MACS), virknipróf (frumufjölgun, T-frumuvirknipróf, B-frumuvirknipróf, átfrumupróf), boðefnamælingar (ELISPOT, ELISA, CBA, Luminex) og vefjalitanir (undirbúningur vefja, flúrskinslitun, ensímlitun).
Kennsla fer fram í formi yfirlitsfyrirlestra (3 x 3) og verklegra æfinga (3 x 8) sem verða haldnar á laugardögum eða þriðjudegi, miðvikudegi og fimmtudegi milli kl. 16-21.
Fyrirlestrar og leiðbeiningar í verklegu fara fram á ensku ef þess er þörf.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um hvaða líffræðilegar breytingar leiða til myndunar krabbameina og einkenna þau. Fyrirlesarar gefa yfirlitserindi um valið efni innan þess efnisflokks sem nefndur er og velja síðan eina nýlega vísindagrein um skylt efni sem nemandi er fenginn til að kynna og gagnrýna. Greinum um efnið verður dreift til nemenda í upphafi námskeiðs svo allir geti komið undirbúnir og tekið þátt í umræðum.
Efni fyrirlestra: Inngangur, krabbameinsvaldar, æxlisgen og æxlisbæligen, TP53, atburðarás krabbameinsmyndunar, forstig krabbameina, krabbameinsstofnfrumur, dýralíkön, litningaóstöðugleiki, genaóstöðugleiki, þróun krabbameina, sviperfðir/epigenetics.
Kennslutímar: Námskeiðið mun verða haldið sem 12 tveggja stunda tímar, fyrirlestur í fyrri tímanum og kynning nemanda á viðeigandi tímaritsgrein í þeim seinni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið er ætlað nemendum í meistara og doktorsnámi í ónæmisfræði, frumu- og sameindalíffræði, lífefnafræði, lyfjafræði eða skyldum greinum. Námskeiðið er skylda fyrir nemendur í meistara- og doktorsnámi í ónæmisfræðikjarna. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á að kynna rannsóknir í ónæmisfræði og þá einkum m.t.t. nýjunga í grunnvísindum. Einnig verða kynntar rannsóknir í klínískri ónæmisfræði, s.s. ofnæmi, sjálfsofnæmi, krabbamein, ónæmisbilunum og líffæraflutningum, meingerð og nýjungum í meðferðarmöguleikum svo og rannsóknir og nýjungar í fyrirbyggjandi ónæmisaðgerðum, s.s. bólusetningum, og ýmsum meðferðarúrræðum, s.s. beinmergsskipti, afnæmingar, meðferðir með einstofna mótefnum og ónæmisbælandi / ónæmisstýrandi lyfjum. Í hverjum tíma mun kennari gefa yfirlit yfir ákveðið efni ónæmisfræðinnar og síðan verður farið saman yfir grein(ar) þar sem einn nemandi sér um kynningu hverrar greinar sem allir nemendur taka þátt í að ræða.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFyrirlestrar: Sameindagrunnur lífsins (efnatengi, lífefni, bygging stórsameinda DNA, RNA og próteina). Erfðamengi dreifkjörnunga og heilkjörnunga. Skipulag erfðaefnisins, litningar, litni og litnisagnir. Stjórn DNA eftirmyndunar og frumuhringsins. DNA eftirmyndun. Aðskilnaður litninga og frumuskipting. Umritun. Stjórn umritunar. Verkun RNA sameinda. Þýðing mRNA í prótein. Stjórnkerfi þýðingar. Hlutverk RNA sameinda í stjórn genatjáningar. Prótein-umbreytingar og umferðarstjórn innan frumna. DNA skemmdir, varðstöðvar og DNA viðgerðir. Endurröðun og viðgerðir á tvíþátta DNA brotum. Stökklar og staðbundin endurröðun. Helstu aðferðir sameindalíffræðinnar og tilraunalífverur.
Umræðutímar: Nemendur hafa framsögu um og ræða valdar rannsóknagreinar og skila inn útdrætti úr greininni.
Verklegar æfingar: Unnið verður að verkefni í sameindaerfðafræði sem tengist rannsóknum kennara og býður upp á notkun helstu aðferða sameindaerfðafræðinnar svo sem genaferjun, DNA mögnun og raðgreiningu, ummyndun og einangrun plasmíða, skerðikortlagningu, og rafdrátt bæði kjarnsýra og próteina.
Próf: Verklegt 10%, umræðufundir og skrifleg verkefni 15%, skriflegt próf 75%.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÁherslan er á rannsóknagreinar. Nýlegar rannsóknir á ýmsum sérsviðum frumulíffræði verða til umfjöllunar og er það breytilegt hverju sinni. Fyrir hvern fyrirlestur eru lagðar mest fram þrjár greinar.
Hver nemandi hefur framsögu um eina nýlega rannsóknargrein þar sem ítarlega er gert grein fyrir aðferðum og niðurstöðum. Nemandinn skrifar ritgerð um rannsóknargreinina og ræðir túlkun niðurstaðna á gagnrýninn hátt.
Dæmi um sérsvið sem hefur verið fjallað um: Náttúrulegt ónæmi, príon, pontin og reptin próteinin, skautun þekjufruma, þroskun loftæða, gagnagreining á genatjáningargögnum, sjálfsát, uppruni kjarnans.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Frekari upplýsingar Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Heilbrigðismenntun veitir aðgang að fjölbreyttum störfum um allan heim.
Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:
- Rannsóknir
- Nýsköpun og þróun
- Sérfræðiráðgjöf
- Kennslu
Listinn er ekki tæmandi
Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum
Umsagnir nemenda
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.Gagnlegt efni Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu framhaldsnám
Skref fyrir skref
Hafðu samband Skrifstofa læknadeildarVirka daga 9:00 – 15:00Almenn þjónustaVið bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.
Deila