- Hefur þú áhuga á að leiðsegja ferðafólki?
- Langar þig í nám sem getur nýst þér upp í háskólagráðu í ferðamálafræði?
- Viltu stunda nám með sveigjanlegu námsfyrirkomulagi?
- Vilt þú efla leiðsagnarhæfni þína?
Leiðsögunám - áfangastaðurinn Ísland er hannað með það í huga að veita nemendum ítarlega og faglega þjálfun í leiðsögn um Ísland. Námið hentar öllum þeim sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Námið er metið til 30 ECTS eininga sem er hægt að nýta upp í BS nám í ferðamálafræði hjá HÍ.
Endurmenntun HÍ sér alfarið um framkvæmd námsins og eingöngu er tekið við umsóknum í námið á vef Endurmenntunar.
Kostnaður
Nemendur í leiðsögunámi við Endurmenntun greiða ekki skráningargjald við Háskóla Íslands heldur námsgjöld til Endurmenntunar HÍ. Námsgjöld nemenda við Endurmenntun HÍ standa straum af öllum kostnaði við námið.
Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf.
Umsækjendur um grunnnám þurfa að sýna fram á færni í íslensku sem er að lágmarki á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum.
Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku.
Ljúka þarf 30 einingum. Skipulagt sem eins árs nám. Ljúka þarf öllum námskeiðum (sjá lista), þ.m.t. námsferð innanlands.
Haustmisseri
- Leiðsögumaðurinn
- Íslenskt nútímasamfélag
- Íslandssaga
- Íslensk menning
Vormisseri
- Náttúra Íslands
- Ferðaþjónusta og umhverfi
- Áfangastaðurinn Ísland
- Verklegt nám
- Námið er kennt hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
- Líf- og umhverfisvísindadeild
Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu grunnnám
Skref fyrir skref