""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækurnar eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

Markmið læknanámsins
Að skila íslensku samfélagi læknum sem geta veitt hágæða heilbrigðisþjónustu innan lands sem utan með framúrskarandi kennslu og nýsköpun í rannsóknum. Námið elur af sér fyrirmyndar lækna sem starfa saman að því að ástunda félagslega ábyrgar lækningar grundvallaðar á vísindum.

Sýn læknanámsins
Læknanám við Háskóla Íslands stefnir að því að verða öðrum læknaskólum fyrirmynd ásamt því að hafa jákvæð áhrif á heilsu og velferð íslensks samfélags með menntun og rannsóknum.

Markmið kennslu í læknisfræði er að brautskrá læknakandídata með góða undirbúningsmenntun fyrir hvert það framhaldsnám er þeir óska, hvort sem það er sérhæfing í sérgreinum læknisfræðinnar, vísindarannsóknir eða hvoru tveggja.

  • Ert þú með BS nám í læknisfræði og hyggst stunda lækningar í framtíðinni?
  • Hefur þú hug á að afla þér frekari þekkingar og þjálfunar í læknavísindum?

Áhersla

Í þriggja ára kandídatsnámi í læknisfræði er lögð áhersla á að flétta saman grunngreinar (BS) og klíníska þjálfun, en þessi þrjú ár einkennast nær eingöngu af námi og þjálfun í klínískum fögum.

Nemendur eru búnir undir stigvaxandi ábyrgð og sjálfstæða ákvarðanatöku undir handleiðslu og á ábyrgð sérfræðilækna.  

Lögð er áhersla á fjölfaglega samvinnu, teymisvinnu í námi og starfi, stjórnun, fagmennsku og siðfræði. 

Uppbygging náms

Námið er 180 einingar og er skipulagt sem fullt nám til þriggja ára.

Námið skiptist í:

Fyrsta ár:

  • Lyflæknisfræði
  • Skurðlæknisfræði
  • Myndgreining
  • Háls-, nef- og eyrnasjúkdómafræði
  • Klínísk lífefnafræði

Annað ár:

  • Augnsjúkdómafræði
  • Barnalæknisfræði
  • Erfðalæknisfræði
  • Fæðinga- og kvensjúkdómafræði
  • Geðlæknisfræði
  • Húð- og kynsjúkdómafræði
  • Taugasjúkdómafræði

Þriðja ár:

  • Fyrirbyggjandi læknisfræði
  • Upplýsingatækni í heilbrigðisvísindum
  • Réttarlæknisfræði
  • Klínísk eiturefnafræði
  • Endurhæfingarfræði
  • Bráðalæknisfræði
  • Stjórnun og gæðamál
  • Krabbameinslæknisfræði-verkleg
  • Svæfinga- og gjörgæslulækningar
  • Heimilislæknisfræði
  • Lyfjafyrirmæli, atvikaskráningu og rafræna sjúkraskrá
  • Verklegt klínískt nám
  • Valnámskeið
  • CCSE-próf

Nemendur þurfa að ljúka öllum prófum hvers árs, áður en nám hefst á næsta námsári.

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku og flestar kennslubækur eru á ensku.

Verkleg kennsla/klínísk þjálfun fer fram á sjúkradeildum og heilsugæslustöðvum en auk þess í formi fyrirlestra, umræðufunda, í færnibúðum og með herminámi

Full mætingaskylda er á klíníska námskeiðinu auk þess sem nemendur taka vaktir á kvöldin og um helgar.

Meginmarkmið

Við útskrift skulu læknakandídatar búa yfir nýjustu þekkingu í læknisfræði. Hafa tileinkað sér fagmannlega afstöðu til starfs síns og sjúklinga sinna. Hafa öðlast færni til að hagnýta þekkingu sína til hagsbóta fyrir skjólstæðinga sína.

Nemendur skulu geta tekist á við frekari þjálfun sem læknar og/eða vísindamenn með skipulagðri leiðbeiningu og eftirliti með frekara framhaldsnám í huga.

Annað

Námið og sérnámsgrunnur í kjölfar þess veita réttindi til að hefja ýmiskonar sérnám í læknisfræði auk annars framhaldsnáms, það er meistara- eða doktorsnám.

BS próf í læknisfræði frá Læknadeild Háskóla Íslands.

Ef fjöldi nemenda í BS-námi í læknisfræði við Háskóla Íslands, sem ætlar að hefja kandidatsnám í læknisfræði, er lægri en ákveðið var við inntöku í BS-námið þremur árum fyrr, er deildinni heimilt ef svig­rúm leyfir að taka inn nemendur í kandídatsnámið í læknisfræði sem lokið hafa samsvar­andi [BS-gráðu] frá öðrum háskóla.

Sjá 102. grein í reglum fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009

Ljúka þarf 180e fyrir kandídatspróf, til viðbótar þeim 180e sem ljúka þarf til BS prófs í læknisfræði, eða 60e á hverju ári (sjá jafnframt lýsingu BS náms). Skipulag miðast við að nemendur hefji nám á haustmisseri að loknu BS prófi í læknisfræði frá læknadeild Háskóla Íslands. Stúdent skal hafa lokið öllum prófum hvers árs, áður en hann hefur nám á næsta námsári. Kennslu er hagað þannig að unnt er að ljúka námi á þrem árum en heildarnámstími má ekki vera lengri en fjögur ár.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Heilsársnámskeið
Myndgreining (LÆK207F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er yfir eðlisfræði myndgreiningar, geislavarnir, almenn hugtök læknisfræðilegrar myndgreiningar, myndgreiningaraðferðir (röntgenrannsóknir, tölvusneiðmyndarannsóknir, ómun, ísótóparannsóknir og segulómun) og notkun skuggaefnis. Farið er yfir m.a. myndgreiningu á taugakerfi, brjóst- og kviðarholi, stoðkerfi og æðum. Einnig verður hugað að inngripsröntgen. 

Verkleg kennsla: Fer fram á röntgendeild Landspítala og í Orkuhúsinu. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Heilsársnámskeið
Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur IV (LÆK208F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald af samskiptafræði og sálfræði á 1-3 ári í BS í læknisfræði. Megináherslan verður á samskiptatól eins og SBAR sem má nota til að auka öryggi sjúklinga og bæta teymisvinnu. Kennt verður á einum degi og árganginum skipt í minni hópa og fer kennsla fram sem hermikennsla og umræður í minni hópum um valin efni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Klínísk lífefnafræði (LÆK105F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er grunnkennsla í notkun lífefnafræðilegra, sameindaerfðafræðilegra og frumulíffræðilegra hugtaka og aðferða til skilnings og mats á heilsu manna og sjúkdómum.

Efni fyrirlestra: Almenn klínísk lífefnafræði, sérhæfð lífefnafræði einstakra sjúkdóma og líffærakerfa. Hagnýt atriði varðandi samskipti lækna við klínískar rannsóknastofur. Vaxtarbroddar í sameindalæknisfræði. Lausnaleitarnám. Heimsókn á rannsóknastofu í klínískri lífefnafræði á 2. námsári.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Lyflæknisfræði, fræðileg (LÆK109F, LÆK110F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
13 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í lyflæknisfræði skiptist í tvo hluta, klínískan hluta og fræðilegan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma. Próf í lyflæknisfræði verða tvö, skriflegt próf og klínískt stöðvapróf. 

Kennsla í fræðilega hluta námsins felst í fyrirlestrum samkvæmt fyrirlestraskrá, umræðufundum í tengslum við hinn verklega þátt námsins og lestri kennslubóka og tímaritsgreina í lyflæknisfræði. Fjallað er um helstu sjúkdóma sem lyflæknisfræðin og undirgreinar hennar fjalla um með áherslu á útbreiðslu þeirra, orsakir, meinalífeðlisfræði, klíníska mynd, sjúkdómsferil, greiningu og meðferð. 

Forstöðumenn undirsérgreina í lyflæknisfræði, þ.e.a.s. í blóðsjúkdómafræði, efnaskipta-, innkirtla- og efnaskiptasjúkdómafræði, gigtsjúkdómafræði, hjartasjúkdómafræði, krabbameinslækningum, lungnasjúkdómafræði, meltingarsjúkdómafræði, nýrnasjúkdómafræði, ofnæmis- og ónæmisfræði, smitsjúkdómafræði og öldrunarsjúkdómafræði, gera námsmarkmiðslýsingar sem beinast annars vegar að þekkingaratriðum sem nemendur þarf að kunna góð skil á (I) og þekkingaratriðum sem nemendur þurfa að kunna nokkur skil á (II). 

Forstöðumaður lyflæknisfræði er Einar Stefán Björnsson. Umsjón með námi á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur Gunnar Þór Gunnarsson, dósent. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Lyflæknisfræði, klínísk (LÆK109F, LÆK110F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
13 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í lyflæknisfræði skiptist í tvo hluta, klínískan hluta og fræðilegan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma.

Kennsla í klíníska hluta námsins felst í umræðum við og skoðun á sjúklingum, umræðufundum í tengslum við hinn verklega þátt námsins. Fjallað er mest um algenga sjúkdóma og þá sem eru hugsanlega hættulegir.  Áhersla er á að meta hina klínísku mynd, sjúkdómsferil, greiningu og meðferð.

Undirsérgreinar lyflæknisfræði eru: blóðsjúkdómafræði, innkirtla- og efnaskiptafræði, gigtsjúkdómafræði, hjartasjúkdómafræði, krabbameinsfræði, lungnasjúkdómafræði, meltingarsjúkdómafræði, nýrnasjúkdómafræði, ofnæmis og ónæmisfræði, smitsjúkdómafræði, öldrunarsjúkdómafræði og almennar lyflækningar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Skurðlæknisfræði, fræðileg (LÆK111F, LÆK112F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
13 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í skurðlæknisfræði skiptist í fræðilegan og klínískan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma.

Fræðilega kennslan byggir á fyrirlestrum samkvæmt kennsluáætlun og lestri bóka eða greina en tekur einnig til umræðufunda í tengslum við verklega námið. Kennslan er í höndum skurðlækna á Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri sem flestir eru einnig kennarar við læknadeild HÍ.

Fræðilega kennslan tekur til eftirfarandi sérgreina skurðlæknisfræðinnar: Kviðarholsskurðlækninga, hjarta- og lungnaskurðlækninga, þvagfæraskurðlækninga, brjóstaskurðlækninga, æðaskurðlækninga, lýtalækninga, heila- og taugaskurðlækninga og bæklunarskurðlækninga. Lögð er sérstök áhersla á faraldsfræði, orsakir, greiningu, rannsóknir og meðferð sjúkdóma sem heyra undir skurðlækningar. Jafnframt er móttaka, greining og meðferð slasaðra kennd.

Umsjónakennarar fræðigreina í skurðlæknisfræði, gera námsmarkmiðslýsingar þar sem fram kemur hvað nemendur þurfa að kunna góð skil á (I) og hvað nemendur þurfa að kunna nokkur skil á (II).

Umsjónarkennari er Páll Helgi Möller. Umsjón með námi á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur Helgi Þór Leifsson. Forstöðumaður bráðalæknisfræðinnar er Hjalti Már Björnsson.

Undirsérgreinar skurðlæknisfræðinnar og umsjónakennarar þeirra eru kviðarholsskurðlækningar (Páll Helgi Möller prófessor), hjarta- og lungnaskurðlækningar (Tómas Guðbjartsson prófessor), þvagfæraskurðlækningar (Sigurður Guðjónsson dósent), brjóstaskurðlækningar (Þórhildur Halldórsdóttir aðjúnkt), æðaskurðlækningar (Bergrós Kristín Jóhannesdóttir aðjúnkt), lýtalækningar (Þórir Jökull Auðólfsson lektor), heila- og taugaskurðlækningar (Steen Magnús Friðriksson aðjúnkt) og bæklunarskurðlækningar (Þorkell Snæbjörnsson dósent og Þorvaldur Ingvarsson prófessor).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Skurðlæknisfræði, klínísk (LÆK111F, LÆK112F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
13 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í skurðlæknisfræði skiptist í tvo hluta, fræðilegan hluta og klínískan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma. 

Kennsla í klíníska hluta námsins felst í þátttöku og umræðum á starfsstöðvum ségreina (göngudeild, dagdeild, legudeild, bráðamóttöku og skurðdeild) skurðlæknisfræðinnar þar sem fram fer meðal annars móttaka, greining og meðferð sjúklinga. Þá mæta nemar á þverfaglega teymisfundi þar sem það á við.  

Í verknámi er lagt upp með að nemendur læri að beita þeirri þekkingu sem þeir hafa aflað sér í fræðilega hluta námsins. Þeir eiga að ná færni í ákveðnum inngripum og fá tækifæri til að æfa samskipti við sjúklinga, aðstandendur og annað heilbrigðisstarfsfólk og að vinna í teymi. Ætlast er til að nemar í verknámi sýni af sér fagmennsku og umgangist alla með virðingu. 

Kennsla fer fram með margvíslegum hætti eins og umræðum milli nemenda og sérfræðinga á hinum ýmsu starfstöðvum, umræðufundum þar sem nemar kynna sér sjúkling og kynna fyrir samnemendum, kennslustofugang með kennara, færnibúðum og sjúklingahermingu. Í færnibúðum er lögð áhersla á líkamsskoðun með afbrigðileika og handbragð og/eða inngrip. Í sjúklingahermingu er æft að taka á móti sjúklingi, setja í gang fyrstu meðferð og fyrstu uppvinnslu auk teymisvinnu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Háls- nef- og eyrnasjúkdómafræði (LÆK113F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkleg kennsla: Kennt er á göngudeild háls- nef og eyrnadeildar LSH Fossvogi sem er á 3. hæð (B3). Verklega kennslan stendur yfir alla önnina. Nemendur verða 2-3 saman, í eina viku í senn (sjá nánar stundaskrá). Læknanemum er kennd háls-, nef- og eyrnaskoðun ásamt beitingu algengustu tækja til sjúkdómsgreiningar og meðhöndlunar. Sjúkdómstilfelli verða kynnt eftir því sem tök eru á hverju sinni, bæði á legudeild, göngudeild og skurðstofu.

Fræðileg kennsla: Beitt er aðferðum vendikennslu í þessu námskeiði. Fyrirlestrar um tiltekin efni verða aðgengileg í Canvas og ætlast er til að nemendur séu búnir að fara yfir þá áður en þeir koma í tíma. Í tímunum verður farið yfir efnið vandamálamiðað til að undirbúa nemandann sem best fyrir að takast á við þessi vandamál á bráðamóttöku og heilsugæslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Lyflæknisfræði, fræðileg (LÆK202F, LÆK203F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
13 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í lyflæknisfræði skiptist í tvo hluta, klínískan hluta og fræðilegan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma. Próf í lyflæknisfræði verða tvö, skriflegt próf og klínískt stöðvapróf. 

Kennsla í fræðilega hluta námsins felst í fyrirlestrum samkvæmt fyrirlestraskrá, umræðufundum í tengslum við hinn verklega þátt námsins og lestri kennslubóka og tímaritsgreina í lyflæknisfræði. Fjallað er um helstu sjúkdóma sem lyflæknisfræðin og undirgreinar hennar fjalla um með áherslu á útbreiðslu þeirra, orsakir, meinalífeðlisfræði, klíníska mynd, sjúkdómsferil, greiningu og meðferð. 

Forstöðumenn undirsérgreina í lyflæknisfræði, þ.e.a.s. í blóðsjúkdómafræði, efnaskipta-, innkirtla- og efnaskiptasjúkdómafræði, gigtsjúkdómafræði, hjartasjúkdómafræði, krabbameinslækningum, lungnasjúkdómafræði, meltingarsjúkdómafræði, nýrnasjúkdómafræði, ofnæmis- og ónæmisfræði, smitsjúkdómafræði og öldrunarsjúkdómafræði, gera námsmarkmiðslýsingar sem beinast annars vegar að þekkingaratriðum sem nemendur þarf að kunna góð skil á (I) og þekkingaratriðum sem nemendur þurfa að kunna nokkur skil á (II). 

Forstöðumaður lyflæknisfræði er Einar Stefán Björnsson. Umsjón með námi á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur Gunnar Þór Gunnarsson, dósent. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Lyflæknisfræði, klínísk (LÆK202F, LÆK203F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
13 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í lyflæknisfræði skiptist í tvo hluta, klínískan hluta og fræðilegan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma.

Kennsla í klíníska hluta námsins felst í umræðum við og skoðun á sjúklingum, umræðufundum í tengslum við hinn verklega þátt námsins. Fjallað er mest um algenga sjúkdóma og þá sem eru hugsanlega hættulegir.  Áhersla er á að meta hina klínísku mynd, sjúkdómsferil, greiningu og meðferð.

Undirsérgreinar lyflæknisfræði eru: blóðsjúkdómafræði, innkirtla- og efnaskiptafræði, gigtsjúkdómafræði, hjartasjúkdómafræði, krabbameinsfræði, lungnasjúkdómafræði, meltingarsjúkdómafræði, nýrnasjúkdómafræði, ofnæmis og ónæmisfræði, smitsjúkdómafræði, öldrunarsjúkdómafræði og almennar lyflækningar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Skurðlæknisfræði, fræðileg (LÆK204F, LÆK205F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
13 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í skurðlæknisfræði skiptist í fræðilegan og klínískan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma. 

Fræðilega kennslan byggir á fyrirlestrum samkvæmt kennsluáætlun og lestri bóka eða greina en tekur einnig til umræðufunda í tengslum við verklega námið. Kennslan er í höndum skurðlækna á Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri sem flestir eru einnig kennarar við læknadeild HÍ.  

Fræðilega kennslan tekur til eftirfarandi sérgreina skurðlæknisfræðinnar: Kviðarholsskurðlækninga, hjarta- og lungnaskurðlækninga, þvagfæraskurðlækninga, brjóstaskurðlækninga, æðaskurðlækninga, lýtalækninga, heila- og taugaskurðlækninga og bæklunarskurðlækninga. Lögð er sérstök áhersla á faraldsfræði, orsakir, greiningu, rannsóknir og meðferð sjúkdóma sem heyra undir skurðlækningar. Jafnframt er móttaka, greining og meðferð slasaðra kennd.  

Umsjónakennarar fræðigreina í skurðlæknisfræði, gera námsmarkmiðslýsingar þar sem fram kemur hvað nemendur þurfa að kunna góð skil á (I) og hvað nemendur þurfa að kunna nokkur skil á (II).  
 
Umsjónarkennari er Páll Helgi Möller. Umsjón með námi á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur Helgi Þór Leifsson. Forstöðumaður bráðalæknisfræðinnar er Hjalti Már Björnsson. 

Undirsérgreinar skurðlæknisfræðinnar og umsjónakennarar þeirra eru kviðarholsskurðlækningar (Páll Helgi Möller prófessor), hjarta- og lungnaskurðlækningar (Tómas Guðbjartsson prófessor), þvagfæraskurðlækningar (Sigurður Guðjónsson dósent), brjóstaskurðlækningar (Þórhildur Halldórsdóttir aðjúnkt), æðaskurðlækningar (Bergrós Kristín Jóhannesdóttir aðjúnkt), lýtalækningar (Þórir Jökull Auðólfsson lektor), heila- og taugaskurðlækningar (Steen Magnús Friðriksson aðjúnkt) og bæklunarskurðlækningar (Þorkell Snæbjörnsson dósent og Þorvaldur Ingvarsson prófessor).  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Skurðlæknisfræði, klínísk (LÆK204F, LÆK205F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
13 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í skurðlæknisfræði skiptist í tvo hluta, fræðilegan hluta og klínískan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma. 

Kennsla í klíníska hluta námsins felst í þátttöku og umræðum á starfsstöðvum ségreina (göngudeild, dagdeild, legudeild, bráðamóttöku og skurðdeild) skurðlæknisfræðinnar þar sem fram fer meðal annars móttaka, greining og meðferð sjúklinga. Þá mæta nemar á þverfaglega teymisfundi þar sem það á við.  

Í verknámi er lagt upp með að nemendur læri að beita þeirri þekkingu sem þeir hafa aflað sér í fræðilega hluta námsins. Þeir eiga að ná færni í ákveðnum inngripum og fá tækifæri til að æfa samskipti við sjúklinga, aðstandendur og annað heilbrigðisstarfsfólk og að vinna í teymi. Ætlast er til að nemar í verknámi sýni af sér fagmennsku og umgangist alla með virðingu. 

Kennsla fer fram með margvíslegum hætti eins og umræðum milli nemenda og sérfræðinga á hinum ýmsu starfstöðvum, umræðufundum þar sem nemar kynna sér sjúkling og kynna fyrir samnemendum, kennslustofugang með kennara, færnibúðum og sjúklingahermingu. Í færnibúðum er lögð áhersla á líkamsskoðun með afbrigðileika og handbragð og/eða inngrip. Í sjúklingahermingu er æft að taka á móti sjúklingi, setja í gang fyrstu meðferð og fyrstu uppvinnslu auk teymisvinnu. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Háls- nef- og eyrnasjúkdómafræði (LÆK206F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkleg kennsla: Kennt er á göngudeild háls- nef og eyrnadeildar LSH Fossvogi sem er á 3. hæð (B3). Verklega kennslan stendur yfir alla önnina. Nemendur verða 2-3 saman, í eina viku í senn (sjá nánar stundaskrá). Læknanemum er kennd háls-, nef- og eyrnaskoðun ásamt beitingu algengustu tækja til sjúkdómsgreiningar og meðhöndlunar. Sjúkdómstilfelli verða kynnt eftir því sem tök eru á hverju sinni, bæði á legudeild, göngudeild og skurðstofu.

Fræðileg kennsla: Beitt er aðferðum vendikennslu í þessu námskeiði. Fyrirlestrar um tiltekin efni verða aðgengileg í Canvas og ætlast er til að nemendur séu búnir að fara yfir þá áður en þeir koma í tíma. Í tímunum verður farið yfir efnið vandamálamiðað til að undirbúa nemandann sem best fyrir að takast á við þessi vandamál á bráðamóttöku og heilsugæslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Heilsársnámskeið
Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur V (LÆK408F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald af samskiptafræði og sálfræði á 1-3 ári í BS í læknisfræði og LÆK107F á fjórða námsári. Megináherslan verður á að dýpka þekkingu nemenda á aðferðum við mat á sjálfvígshættu og öryggi við lyfjaávísanir. Kennt verður á einum degi (8t) eða skipt í minni einingar háð því hvað passar vegna stundarskrár fimmta námsárs og árganginum skipt í minni hópa. Kennslan fer fram sem hermikennsla og umræður í minni hópum um valin efni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Fæðinga- og kvensjúkdómafræði (LÆK301F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla í fæðinga- og kvensjúkdómafræði fer að mestu fram á Kvennadeild Landspítalans. Kennslan samanstendur af verklegri kennslu og fjölbreyttum kennslustundum: fyrirlestrum, tilfellayfirferð, færniþjálfun, hermikennslu, umræðutímum og verkefnavinnu. Læknanemar fylgja læknum og ljósmæðrum á deildinni í daglegu starfi og fá kynningu á sérstakri starfsemi innan fagsins, s.s. meðgönguvernd, fósturgreiningu, frjósemislækningum og krabbameinsleit. Námskeiðið er kennt á 7 vikum fyrir fjórðung af árgangi læknanema í senn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Barnalæknisfræði (LÆK302F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námið er verklegt og bóklegt. Nemendum er skipt í fjóra hópa til verklegs náms sem fer fram á Barnaspítala Hringsins Landspítala. Fyrirlestrar eru einnig haldnir á Barnaspítala Hringsins samhliða verklegu námi. Námið byggist þannig upp af verklegri þjálfun, fyrirlestrum, úrlausnarverkefnum (klíníkum) o.fl. Í verklegu námi kynnast nemar starfinu á öllum deildum Barnaspítalans.

Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu á barnalæknisfræði. Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að skoða, umgangast og sjúkdómsgreina veik börn og gera tillögur um rannsóknir og meðferð.

Í upphafi námsins fá stúdentar gögn í hendur varðandi fyrirkomulag námsins, þ.m.t. fyrirlestrarskrá, lýsingu á fyrirkomulagi námsins o.fl. Nemendum er einnig bent á heimasíðu Barnaspítala Hringsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Erfðalæknisfræði (LÆK303F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á aðferðafræði við greiningu erfðasjúkdóma og meðfæddra galla og hvernig erfðaþættir stuðla að ýmsum algengum sjúkdómum. Megin áhersla er lögð á hagnýtingu þessarar þekkingar í daglegu starfi lækna og að lagður sé grundvöllur að því að nemendur geti fylgst með örri þróun á sviði erfðalæknisfræði og erfðatækni. Námsefni er bygging og starfsemi gena. Genakortlagning og erfðatölfræði. Lífefna- og sameindaerfðafræði valinna erfðasjúkdóma. Litningar, litningagallar og erfðasjúkdómaleit. Grundvallaratriði margþátta- og fjölgena erfðir kynnt, m.a. til skilnings á meðfæddum sjúkdómum, erfðafræði hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameins. Kynnt verða valin erfðaheilkenni og notkun gagnabanka við greiningu þeirra, meðferðarmöguleikar erfðasjúkdóma og helstu erfðasjúkdómar á Íslandi og sýnd dæmi um fósturgreiningar. Lögð er áhersla á erfðaráðgjöf og eftirlit einstaklinga í áhættuhópum, ásamt umræðum um siðferðilega þætti sem vakna við rannsóknir og greiningu erfðasjúkdóma og meðfæddra eiginleika.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Geðlæknisfræði (LÆK304F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
14 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið kennslunnar er að fræða stúdenta um geðsjúkdóma, tíðni þeirra, orsakir, gang, horfur, meðferð og forvarnir. Einnig að þjálfa nema í grunnatriðum hugrænnar atferlismeðferðar og áhugahvetjandi samtals og auka skilning þeirra á sjálfum sér, eigin tilfinningum, hugsun og viðbrögðum við álagi. Ein vika er valvika og önnur nýtt eingöngu til fyrirlestrahalds. Kennslan fer fram í fyrirlestrum, umræðutímum og verklegum æfingum á geðdeildum Landspítala háskólasjúkrahúss samkvæmt handbók sem stúdentar fá í upphafi námskeiðs.

Þátttakendur eru nemar á 5. ári í læknisfræði við Læknadeild eða skiptinemar sem hafa vald til tjáskipta við sjúklinga á íslensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Taugasjúkdómafræði (LÆK305F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Taugalæknisfræði er sú sérgrein læknisfræðinnar sem fjallar um taugasjúkdóma fullorðinna. Fyrirlestrar um helstu sjúkdóma í heila, mænu og úttaugakerfi í eina viku. Hver nemandi er svo 4 vikur á sjúkradeildum og í lok þess áfanga er verklegt og skriflegt próf.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Augnsjúkdómafræði (LÆK306F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu eru tekin fyrir grunnatriði í augnlæknisfræði. Í fyrirlestrum er meðal annars farið yfir eftirfarandi: Líffæra- og lífeðlisfræði augans; saga og skoðun; sjónlagsgallar; ský á augasteini; hornhimnusjúkdómar; rautt auga; augnlok og augntóft; sjónhimnusjúkdómar; gláka; auga og miðtaugakerfi; augnsjúkdómar barna; augun og sjúkdómar í öðrum líffærum; augnslys.

Verkleg kennsla á göngudeild augndeildar við Eiríksgötu 5, ein vika fyrir hvern nema. Skyldumæting er í verklega kennslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Fæðinga- og kvensjúkdómafræði (LÆK401F, LÆK402F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla í fæðinga- og kvensjúkdómafræði fer að mestu fram á Kvennadeild Landspítalans. Kennslan samanstendur af verklegri kennslu og fjölbreyttum kennslustundum: fyrirlestrum, tilfellayfirferð, færniþjálfun, hermikennslu, umræðutímum og verkefnavinnu. Læknanemar fylgja læknum og ljósmæðrum á deildinni í daglegu starfi og fá kynningu á sérstakri starfsemi innan fagsins, s.s. meðgönguvernd, fósturgreiningu, frjósemislækningum og krabbameinsleit. Námskeiðið er kennt á 7 vikum fyrir fjórðung af árgangi læknanema í senn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Barnalæknisfræði (LÆK401F, LÆK402F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námið er verklegt og bóklegt. Nemendum er skipt í fjóra hópa til verklegs náms sem fer fram á Barnaspítala Hringsins Landspítala. Fyrirlestrar eru einnig haldnir á Barnaspítala Hringsins samhliða verklegu námi. Námið byggist þannig upp af verklegri þjálfun, fyrirlestrum, úrlausnarverkefnum (klíníkum) o.fl. Í verklegu námi kynnast nemar starfinu á öllum deildum Barnaspítalans.

Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu á barnalæknisfræði. Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að skoða, umgangast og sjúkdómsgreina veik börn og gera tillögur um rannsóknir og meðferð.

Í upphafi námsins fá stúdentar gögn í hendur varðandi fyrirkomulag námsins, þ.m.t. fyrirlestrarskrá, lýsingu á fyrirkomulagi námsins o.fl. Nemendum er einnig bent á heimasíðu Barnaspítala Hringsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Erfðalæknisfræði (LÆK403F, LÆK404F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
14 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á aðferðafræði við greiningu erfðasjúkdóma og meðfæddra galla og hvernig erfðaþættir stuðla að ýmsum algengum sjúkdómum. Megin áhersla er lögð á hagnýtingu þessarar þekkingar í daglegu starfi lækna og að lagður sé grundvöllur að því að nemendur geti fylgst með örri þróun á sviði erfðalæknisfræði og erfðatækni. Námsefni er bygging og starfsemi gena. Genakortlagning og erfðatölfræði. Lífefna- og sameindaerfðafræði valinna erfðasjúkdóma. Litningar, litningagallar og erfðasjúkdómaleit. Grundvallaratriði margþátta- og fjölgena erfðir kynnt, m.a. til skilnings á meðfæddum sjúkdómum, erfðafræði hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameins. Kynnt verða valin erfðaheilkenni og notkun gagnabanka við greiningu þeirra, meðferðarmöguleikar erfðasjúkdóma og helstu erfðasjúkdómar á Íslandi og sýnd dæmi um fósturgreiningar. Lögð er áhersla á erfðaráðgjöf og eftirlit einstaklinga í áhættuhópum, ásamt umræðum um siðferðilega þætti sem vakna við rannsóknir og greiningu erfðasjúkdóma og meðfæddra eiginleika.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Geðlæknisfræði (LÆK403F, LÆK404F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
14 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið kennslunnar er að fræða stúdenta um geðsjúkdóma, tíðni þeirra, orsakir, gang, horfur, meðferð og forvarnir. Einnig að þjálfa nema í grunnatriðum hugrænnar atferlismeðferðar og áhugahvetjandi samtals og auka skilning þeirra á sjálfum sér, eigin tilfinningum, hugsun og viðbrögðum við álagi. Ein vika er valvika og önnur nýtt eingöngu til fyrirlestrahalds. Kennslan fer fram í fyrirlestrum, umræðutímum og verklegum æfingum á geðdeildum Landspítala háskólasjúkrahúss samkvæmt handbók sem stúdentar fá í upphafi námskeiðs.

Þátttakendur eru nemar á 5. ári í læknisfræði við Læknadeild eða skiptinemar sem hafa vald til tjáskipta við sjúklinga á íslensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Taugasjúkdómafræði (LÆK405F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Taugalæknisfræði er sú sérgrein læknisfræðinnar sem fjallar um taugasjúkdóma fullorðinna. Fyrirlestrar um helstu sjúkdóma í heila, mænu og úttaugakerfi í eina viku. Hver nemandi er svo 4 vikur á sjúkradeildum og í lok þess áfanga er verklegt og skriflegt próf.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Augnsjúkdómafræði (LÆK406F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu eru tekin fyrir grunnatriði í augnlæknisfræði. Í fyrirlestrum er meðal annars farið yfir eftirfarandi: Líffæra- og lífeðlisfræði augans; saga og skoðun; sjónlagsgallar; ský á augasteini; hornhimnusjúkdómar; rautt auga; augnlok og augntóft; sjónhimnusjúkdómar; gláka; auga og miðtaugakerfi; augnsjúkdómar barna; augun og sjúkdómar í öðrum líffærum; augnslys.

Verkleg kennsla á göngudeild augndeildar við Eiríksgötu 5, ein vika fyrir hvern nema. Skyldumæting er í verklega kennslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Húð- og kynsjúkdómafræði (LÆK407F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir yfirlit yfir algengustu húð- og kynsjúkdóma. Fjallað er um byggingu og starfsemi húðarinnar, meingerð og mismunagreiningar helstu sjúkdóma, þ.m.t. bólgusjúkdóma, æxla, sýkinga, ofnæmisviðbragða og áhrifa sólarljóss á húð.

Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og verklegri kennslu þar sem nemendur fá tækifæri til að skoða og meta einstaklinga með húð- og kynsjúkdóma á göngudeild og æfa einfaldar húðsýnatökur (shave- og punch-biopsíur) undir handleiðslu .

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Heilsársnámskeið
Klínisk aðferð/samskiptafræði VI (LÆK621F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald af samskiptafræði og sálfræði á 1-3 ári í BS í læknisfræði, LÆK208F á fjórða námsári og LÆK408F á fimmta námsári. Megináherslan verður á að dýpka þekkingu nemenda í samskiptaaðferðum á fjölskyldufundum, hvernig á að færa slæmar fréttir, þverfaglegri samvinnu og samtal við sjúklinga með aðstoð túlks. Kennt verður á einum degi eða skipt í minni einingar háð því hvað passar vegna stundaskrár sjötta námsárs og árganginum skipt í minni hópa. Kennslan fer fram sem hermikennsla og umræður í minni hópum um valin efni.

Kennslufyrirkomulag: Verður sambland af umræðutímum og færni- og hermikennsla. Allt kennt á einum degi (10 kennslustundir). Krafist er mætingarskyldu og verkefnaskil eftir námsdaginn. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Heilsársnámskeið
Sniðlækningar, einstaklingsmiðuð heilbrigðisþjónusta á Norðurlöndum (LÆK623F)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Samnorrænt netnámskeið í sniðlækningum (e. personalised/precision medicine) sem Háskóli Íslands stendur að ásamt Kaupmannahafnarháskóla og er ætlað læknanemum á seinni stigum náms. Námskeiðið er á ensku og var búið til að frumkvæði menntanefndar deildarforseta í læknadeildum á Norðurlöndunum undir forystu Engilberts Sigurðssonar þáverandi deildarforseta. Það hlaut styrk frá samnorrænu nefnd rannsóknarsjóðanna (https://nos-m.org/ ). Boðið hefur verið upp á námskeiðið frá 2022 á Coursera ( Personalised Medicine from a Nordic Perspective | Coursera ) og við lok 2023 höfðu yfir tvö þúsund manns skráð sig og námskeiðið fengið 4.6 af 5 mögulegum í einkunn. 

Sniðlækningar, stundum kallaðar einstaklingsmiðaðar lækningar er nýlegt hugtak á sviði heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að einstaklingsmiða meðferð með því nýta alla þá þætti sem hafa sýnt gagnreynd tengsl við áhættu, horfur eða meðferðarsvörun, til að velja besta meðferðarkostinn fyrir hvern einstakling á hverjum tímapunkti og forða honum frá ónauðsynlegri meðferð, aukaverkunum og kostnaði. Hugtakið sniðlækningar nær því frá grunnrannsóknum til klínískrar þjónustu og er leið til að takast skipulega á við þá áskorun að þekking aukist gríðarlega hratt og brúa þurfi bilið yfir í klíníkina. Til að slíkar upplýsingar gagnist í klínísku starfi þarf að þróa spálíkön sem eru aðgengileg fyrir bæði heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga með hjálp snjalltækja enda er tilgangurinn að gera upplýsingar um áhættu og meðferðarkosti aðgengilegar. Þannig sparast bæði peningar og tími þegar við getum beitt hnitmiðuðum forvörnum, snemmgreiningu og kjörmeðferð.

All taka 33 sérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum þátt í þessu námskeiði, sem er í sex hlutum með alls 30 stuttum myndböndum sem nálgast efnið frá ýmsum hliðum, ýmist í formi fyrirlestra, viðtala eða umræða, auk ítarefnis í formi greina um ýmsa aðferðafræði og tengla á gagnlegar vefsíður og tæki enda er þróunin svo hröð að slíkt getur fljótt orðið úrelt.

Fyrsti hlutinn (module) er með 5 myndböndum og 6 ítarefni sem kynnir efnið almennt, hugtökin sem notuð eru, nýtingu sniðlækninga og praktísk dæmi og tilfelli, auk viðtala við sérfræðinga frá Norðurlöndunum.

Annar hlutinn (6 myndbönd, 8 ítarefni) fjallar um hvaða heilbrigðisupplýsingar eru notaðar, hvernig þeim er safnað og þær nýttar til að þróa sniðlækningar, auk dæma um snjalllausnir sem stuðla að sniðlækningum.

Þriðji hlutinn (5 myndbönd, 3 ítarefni) fjallar um lífvísa (biomarkers), mælingar, úrvinnslu og nýtingu þeirra í sniðlækningum, þar með talið erfðaþætti, prótein og omics, þ.e.a.s. aðferðir sem hafa þróast til að mæla og vinna úr öllum tiltækum lífvísum af hverri gerð með tilgátulausri nálgun.

Fjórði hlutinn (4 myndbönd, 4 ítarefni) fjallar um hvernig sniðlækningar þróast á grunni gagnreyndrar læknisfræði og nýtir öll tiltæk gögn til að þróa spálíkön og hanna lyfjarannsóknir með öðrum hnitmiðaðri hætti en áður (‚data-driven‘ nálgun). Einnig er fjallað um lagalegar og siðferðilegar hliðar á efninu.

Fimmti hlutinn (5 myndbönd, 7 ítarefni) fjallar um hugtakið áhættu (risk) og hvernig hún er mæld, túlkuð og henni miðlað til sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Einnig er sjúklingamiðuð heilbrigðisþjónusta (patient-centered care) kynnt og tengsl þess hugtaks við sniðlækningar, og loks er fjallað um þátt fjölmiðla og annarra miðla.

Sjötti hlutinn (6 myndbönd, 3 ítarefni) fer dýpra í siðfræðilegar, lagalegar og félagslegar hliðar sniðlækninga, einkum frá sjónarhóli Norðurlandanna, auk þess að ræða samstarfs heilbrigðiskerfis, rannsóknaeininga og fyrirtækja á breiðum grundvelli.

Sjá nánar á www.coursera.org: Personalised medicine from a Nordic perspective.

Kennslutungumál: Íslenska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Fyrirbyggjandi læknisfræði (LÆK501F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Heilsuvernd, umhverfi, lífsvenjur og erfðir hafa áhrif á líðan og heilsufar einstaklinga, samfélagshópa og þjóða. Námskeiðið gefur yfirlit yfir aðferðir og tækifæri læknisfræðinnar til forvarna í samfélaginu og heilsueflingar meðal skjólstæðinga. Fjallað er um umhverfisvernd, smitsjúkdómavarnir, skimun við ýmsum langvinnum sjúkdómum og aðferðir til að hafa áhrif á lífsstíl fólks og geðheilbrigði. Markmið kennslunnar er að efla þekkingu á efninu og kynna nauðsynlega aðferðafræði sem leitt getur til bætts heilsufars í samfélaginu. Farið er yfir þekkingargrunn hinna ýmsu sviða forvarna með rýni vísindagreina.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Klínísk eitrunarfræði (LÆK504F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðsins er að kynna nemendum algengar eitranir sem koma til meðferðar á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum hér á landi og helstu úrræði við meðferð þeirra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Endurhæfingarfræði (LÆK505F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Endurhæfingarfræðin fjallar um skipulagða og marksetta þjónustu fyrir sjúklinga með tímabundna eða varanlega skerðingu á líkamlegri og andlegri færni eftir sjúkdóma og slys. Áhersla er lögð á þátt lækna í samvinnu heilbrigðisstétta um framvindu endurhæfingarferla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Stjórnun og gæðamál (LÆK507F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu Stjórnun og gæðamál fer fram samþætt lokayfirferð á helstu praktískum viðfangsefnum sem snúa að læknisstarfinu í heild. Sérstök áhersla er lögð á lög og reglur í heilbrigðisþjónustu, gæðastjórnun, öryggi sjúklinga og skipulag heilbrigðisþjónustu, auk grunnatriða í stjórnun í heilbrigðisþjónustu.

Innihald námskeiðisins:

Fjallað er um helstu lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisþjónustu. Þá er farið yfir grundvallaratriði gæðastjórnunar (Quality Management and Patient Safety) og meginþætti stjórnunar í heilbrigðisþjónustu.

Kennslufræðileg nálgun:

Fyrir námskeiðið verður birt stundaskrá á CANVAS ásamt lista yfir fyrirlesara. Nemum er skipt upp í hópa og fá upplýsingar um verkefni sem þeir vinna á námskeiðinu.

Við kennslu er stuðst við nálgun NHS í Bretlandi við kennslu heilbrigðisstétta:

  • Tell me: I will probably forget
  • Show me: I may remember
  • Make me participate: I will understand

Kennslan byggir á gagnvirkum fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu. Mætingarskylda er í alla fyrirlestra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Krabbameinslæknisfræði - verkleg (LÆK508F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fyrirlestrar: Ekki er farið yfir einstaka sjúkdóma í fyrirlestrum heldur er meira lagt upp úr almennri nálgun og meira lagt upp úr þeim fræðilega bakgrunni sem tengist krabbameinslækningum.

Vandamiðað tilfelli: Nemendum er skipt í hópa og lesa sig í gegnum tilfelli og leiða sjálfir umræður. Nemendur velja svo eitt umfjöllunarefni sem þeir kynna sér og segja frá.

Námskeið í viðtalstækni:. Átta til tíu læknanemar eru á hverju viðtalsnámskeiði, sem tekur 4-5 klukkutíma. Námskeiðið fer þannig fram að sérhver læknanemi fær hlutverk bæði sem læknir og sem sjúklingur eða ættingi sjúklings. Tekin eru fyrir vandamál eins og að tilkynna sjúklingi að hann sé með krabbamein, ræða takmörkun meðferðar og tilkynna um andlát. Öll viðtöl eru tekin upp á myndband og síðan fjallað um það sameiginlega á uppbyggilegan hátt.

Verkleg kennsla: Læknanemar fara á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga og kynnast göngudeildarvinnu með sérfræðingi í blóð- eða krabbameinslækningum. Sérhver læknanemi verður einnig einu sinni á Líknardeild og fær kynningu á geisladeild LSH.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Réttarlæknisfræði (LÆK511F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginstef: a) Dauðinn og birtingarmyndir dauða manneskjunnar b) Áverkafræði árása og ofbeldis c) Sjálfsvíg og slys d) Tengsl laga og læknisfræði.

Innihald námskeiðsins:

  • Kynning á réttarlæknisfræði
  • Dauðaferlið og breytingar eftir dauðann
  • Læknisfræðileg rannsókn dauðsfalla
  • Ritun dánarvottorðs
  • Krufning og aðrar rannsóknaraðferðir
  • Dauðsföll af náttúrulegum völdum
  • Skyndidauði barna
  • Kennslaburður
  • Sljóir áverkar
  • Skarpir áverkar
  • Höfuðáverkar
  • Áfengi, lyfjamisnotkun og dauðinn
  • Umferðaslys og önnur háorkuferli
  • Skotáverkar
  • Klínísk réttarlæknisfræði
  • Skrásetning, túlkun og tímasetning áverka
  • Köfnun
  • Kraftverkun á háls
  • Ofkæling og ofhitnun
  • Drukknun
  • Bruni og koloxíðeitrun
  • Rafáverkar
  • Vettvangsrannsókn og líkskoðun
  • Lærdómsrík tilfelli
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Bráðalækningar (LÆK512F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lengd 4 vikur. 

Á 6. ári er kennslan í bráðalækningum skipt i tvo hluta sem hvor um sig er tvær vikur.  

Á fyrri tímabilinu fer fer kennsla fram í fyrirlestrum og á verklegum námskeiðum með eftirfarandi hætti: 

  • Fræðsludagur um ofbeldi – skimun fyrir ofbeldi, skráningu áverka og kynning á meðferðarúrræðum  
  • 2 daga námskeið í sérhæfðri endurlífgun – ALS námskeið samkvæmt staðli Endurlífgunarráðs 
  • 1 dags námskeið í öndunarvegameðferð ofan raddbanda 
  • 1 dagur í tilfellaæfingum í hermisetri 
  • Bráðaómun - vefnámskeið og hálfur dagur í verklegum æfingum 

Eftir það taka við 2 vikur af verknámi á bráðamóttöku þar sem læknanemar fá þjálfun í að vinna upp sjúklinga með bráð vandamál undir handleiðslu sérfræðinga og reyndari sérnámslækna deildarinnar.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Svæfinga- og gjörgæslulækningar (LÆK513F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla í svæfinga- og gjörgæslulæknisfræði fer fram á 6. ári og skiptist í fræðilegan og klínískan hluta. Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu í svæfinga- og gjörgæslulækningum. 

Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að meta og undirbúa sjúklinga sem eru að fara í valaðgerðir eða bráðaaðgerðir, ásamt því að meta og meðhöndla sjúklinga sem undirgangast skurðaðgerðir og bráðveika gjörgæslusjúklinga. Ennfremur fá nemendur reynslu í að gera tillögur um rannsóknir og meðferð gjörgæslusjúklinga. 

Fræðileg kennsla fer fram á eftirfarandi hátt

  1. Fyrirlestrarvika í september/janúar, sjá fyrirlestraskrá á Canvas.
    1. Alls eru þrír dagar sem nemendur mæta í fyrirlestra í námskeiðinu
    2. Nemendur fá fyrir hvern fyrirlestrardag aðgang að upptökum (4 fyrirlestrum/dag) sem innihalda námsefni dagsins. Einnig verður stutt fjölvalspróf (5-10 spurningar) sem ætlast er til að nemendur svari áður en þeir koma í umræðutímann.
    3. Hópnum verður skipt í minni hópa og hver 5-7 manna hópur mætir í umræðutímann, sem tekur um klukkustund. Í umræðutímunum verður rætt um tilfelli sem falla að námsefni dagsins.

 Verkleg kennsla fer fram á eftirfarandi hátt 

  1. Nemar dvelja í 2 vikur á svæfinga- og gjörgæsludeildum og er úthlutað daglegu verkefni, annaðhvort á gjörgæsludeild, skurðgangi eða innskriftarmiðstöð.
  2. Lögð er megináhersla á undirstöðuatriði í svæfinga og gjörgæslulækningum
    1. Klínísk skoðun og mat á heilbrigðisástandi sjúklings fyrir skurðaðgerð (risk management)
    2. Þjálfun í að halda öndunarvegum opnum og tryggja æða-aðgang.
      1. Fyrsti forgangur er að halda öndunarvegi opnum með maska/kokrennu, þá notkun supraglottic öndunarvega (larynxmaska) og loks eiga nemendur að fylgjast með og reyna barkaþræðingu, þó það sé utan færniviðmiða námskeiðsins
    3. Mat á vökvajafnvægi og blóðtapi í og eftir skurðaðgerð og verkjameðferð eftir skurðaðgerðir.
    4. Mat og meðferð á alvarlega veikum/slösuðum sjúklingum á gjörgæslu.
    5. Haldnar verða eftirtaldar færnistöðvar meðan á verknámi stendur
      1. Öndunarvegameðferð
      2. Ytri og innri öndunarvélameðferð
    6. Nemendur fylgja eftir einum sjúklingi á gjörgæsludeild, og skulu annaðhvort velja einstakling með afmarkað gjörgæsluvandamál eða hluta af sjúkdómsgangi sjúklings með fjölþætt vandamál og fara yfir hann á formlegan hátt ásamt sérfræðilækni (ca 15 mín)
    7. Mætingarskylda í verknám er 100%, nemendur sem missa úr verknámsdag geta bætt hann upp í samráði við prófessor
    8. Nemendur taka tvær vaktir í verknámi, þar sem þeir halda áfram með vaktlæknum svæfinga- og gjörgæsludeildar frá 15:30-22:00
    9. Nemendur halda dagbók yfir svæfingar og fræðilega yfirferð í verknáminu

Verkleg kennsla fer fram á:

Landspítala Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut: umsjón Martin Ingi Sigurðsson, prófessor, Sigurbergur Kárason dósent/yfirlæknir.

Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi: umsjón Katrín Þormar sérfræðilæknir.

Sjúkrahúsi Akraness: umsjón Björn Gunnarsson yfirlæknir.

Sjúkrahúsinu á Akureyri: umsjón Oddur Ólafsson, yfirlæknir.

Allir sérfræðilæknar Svæfinga- og gjörgæsludeildar LSH, SA og SAK taka einnig þátt í fræðilegri og verklegri kennslu við verknám. Deildarlæknar svæfinga-og gjörgæsludeildar LSH og SAK taka jafnframt þátt í kennslu læknanema.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Heimilislæknisfræði (LÆK514F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
9 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Heilsugæslan getur sinnt um 95% allra vandamála fólks sem leitar eftir heilbrigðisþjónustu. Þessi vandamál sjást sjaldan innan veggja sjúkrahúsa. Heilsugæslan byggir því á eigin þekkingargrunni, færni, viðhorfum, mannauði og starfsaðstöðu til þess að sinna hlutverki sínu. 

Fjallað er um algengustu heilsufarsvandamál og önnur viðfangsefni heilsugæslunnar og vinnuaðferðir. Kennd verða undirstöðuatriði klínískrar skoðunar, vandaliðuð sjúkrasaga, klínísk færni og viðhorf við greiningu og vandalausn, heilsuverndarstarf og teymisvinna. Stúdentar tala við og skoða sjúklinga og setja fram greiningu og áætlun um meðferð. Þeir munu taka þátt í heilsuverndarstarfi, s.s. mæðravernd og ungbarnaeftirliti með læknum og hjúkrunarfræðingum eftir því sem kostur er. 

Kennsla: Fræðilegt nám fer fram í fyrirlestrum og hópkennslu í minni vinnubúðum (group based learning, problem/case learning). Aðalþættir fræðilega hlutans beinast að læknisfræðilegri kunnáttu og viðhorfum. Síðarnefnda markmiðið, viðhorfin, skiptir þó sköpum fyrir heimilislækningar. Hér er t.d. átt við að nemandinn stefni að því að verða sérfræðingur í einstaklingnum sjálfum, en ekki líffærum eða ákveðnu aldursskeiði, að læknirinn noti tímann sem tæki til greiningar vandamála og öðlist heildarsýn á einstaklingnum sem félagsveru, hluta af fjölskyldu, samfélagi og umhverfi. 

Fræðilegum hluta er síðan fylgt eftir með verklegu starfsnámi í 3 vikur á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu og 1 viku á heilsugæslustöð úti á landi undir leiðsögn reynds leiðbeinanda. 
Starfsþjálfun á heilsugæslustöð beinist að því að nemandinn öðlist ákveðna klíníska færni, svo sem í samtölum við sjúklinga, viðeigandi úrlausnum, eða að sauma sár svo eitthvað sé nefnt. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Valnámskeið (LÆK515F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Skipulegt valnámskeið í læknanámi er 4 vikur annað hvort á haust- eða á vormisseri 6. árs og er 8 ECTS. Valnámskeiðið er fyrst og fremst ætlað til að gefa nemandanum kost á að því að víkka sjóndeildarhring sinn með því að velja sér greinar eða áhugasvið sem nemandinn vill kynna sér nánar. Val er ekki bundið við klíníska læknisfræði, heldur getur nemandinn valið að vinna að skipulegum vísindarannsóknum, tekið námskeið við aðrar deildir Háskóla Íslands eða í háskólum í öðrum löndum. Skilyrði er að innihald námsins tengist heilbrigðisvísindum. Ef valnámskeiðið er tekið í formi vefnáms þá setur umsjónarkennari fram leiðbeiningar um hvernig slíkt nám er metið, en námið þarf að samsvara þeim tímafjölda sem liggur að baki 8 ECTS. Um klínískt valnámskeið gildir að leiðbeinendur sjá um að setja fram marklýsingu fyrir hvern nemanda. Marklýsingin er gerð í nánu samráði við nemandann og sér nemandinn um að skila henni til umsjónarkennara námskeiðsins á tilsettum tíma.

Umsjónarkennarinn tekur afstöðu til hvort samþykkja eigi verkefnið og marklýsinguna og hvort námið standist kröfur læknadeildar. Í vafatilfellum hefur umsjónarkennari samráð við kennslustjóra vegna þessa. Æskilegt er að nemendur sýni frumkvæði og leggi sjálfir drög að því hvernig valnámskeið þeirra er skipulagt. Ef margir nemendur sækja um sömu verkefni eða nám innan sömu sérgreina, verður dregið um þau.

Fyrir þá nemendur sem ekki hafa orðið sér úti um verkefni sjálfir er hægt að hafa samband við umsjónarkennara valnámskeiðs sem getur leiðbeint nema að finna verkefni í samráði við kennara deildarinnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Verklegt klínískt nám (LÆK516F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er verklegt klíniskt nám sem ætlað er að undirbúa læknanema undir vinnu sem læknar. Þetta er 6 vikna námskeið og þann tíma er neminn á sömu deildinni. Neminn er undir handleiðslu sérnámslæknis/deildarlæknis með sérfræðilækni með handleiðaraþjálfun sem bakhjarl. Markmið að samfella sé í handleiðslunni og að læknaneminn fái klíniska þjálfun á tímabilinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur IV og V (LÆK517F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sjá LÆK107F og LÆK408F

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Klínísk eitrunarfræði (LÆK613F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðsins er að kynna nemendum algengar eitranir sem koma til meðferðar á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum hér á landi og helstu úrræði við meðferð þeirra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Endurhæfingarfræði (LÆK614F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Endurhæfingarfræðin fjallar um skipulagða og marksetta þjónustu fyrir sjúklinga með tímabundna eða varanlega skerðingu á líkamlegri og andlegri færni eftir sjúkdóma og slys. Áhersla er lögð á þátt lækna í samvinnu heilbrigðisstétta um framvindu endurhæfingarferla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Réttarlæknisfræði (LÆK615F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginstef: a) Dauðinn og birtingarmyndir dauða manneskjunnar b) Áverkafræði árása og ofbeldis c) Sjálfsvíg og slys d) Tengsl laga og læknisfræði.

Innihald námskeiðsins:

  • Kynning á réttarlæknisfræði
  • Dauðaferlið og breytingar eftir dauðann
  • Læknisfræðileg rannsókn dauðsfalla
  • Ritun dánarvottorðs
  • Krufning og aðrar rannsóknaraðferðir
  • Dauðsföll af náttúrulegum völdum
  • Skyndidauði barna
  • Kennslaburður
  • Sljóir áverkar
  • Skarpir áverkar
  • Höfuðáverkar
  • Áfengi, lyfjamisnotkun og dauðinn
  • Umferðaslys og önnur háorkuferli
  • Skotáverkar
  • Klínísk réttarlæknisfræði
  • Skrásetning, túlkun og tímasetning áverka
  • Köfnun
  • Kraftverkun á háls
  • Ofkæling og ofhitnun
  • Drukknun
  • Bruni og koloxíðeitrun
  • Rafáverkar
  • Vettvangsrannsókn og líkskoðun
  • Lærdómsrík tilfelli
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Bráðalækningar (LÆK616F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lengd 4 vikur. 

Á 6. ári er kennslan í bráðalækningum skipt i tvo hluta sem hvor um sig er tvær vikur.  

Á fyrri tímabilinu fer fer kennsla fram í fyrirlestrum og á verklegum námskeiðum með eftirfarandi hætti: 

  • Fræðsludagur um ofbeldi – skimun fyrir ofbeldi, skráningu áverka og kynning á meðferðarúrræðum  
  • 2 daga námskeið í sérhæfðri endurlífgun – ALS námskeið samkvæmt staðli Endurlífgunarráðs 
  • 1 dags námskeið í öndunarvegameðferð ofan raddbanda 
  • 1 dagur í tilfellaæfingum í hermisetri 
  • Bráðaómun - vefnámskeið og hálfur dagur í verklegum æfingum 

Eftir það taka við 2 vikur af verknámi á bráðamóttöku þar sem læknanemar fá þjálfun í að vinna upp sjúklinga með bráð vandamál undir handleiðslu sérfræðinga og reyndari sérnámslækna deildarinnar.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Svæfinga- og gjörgæslulækningar (LÆK617F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla í svæfinga- og gjörgæslulæknisfræði fer fram á 6. ári og skiptist í fræðilegan og klínískan hluta. Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu í svæfinga- og gjörgæslulækningum. 

Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að meta og undirbúa sjúklinga sem eru að fara í valaðgerðir eða bráðaaðgerðir, ásamt því að meta og meðhöndla sjúklinga sem undirgangast skurðaðgerðir og bráðveika gjörgæslusjúklinga. Ennfremur fá nemendur reynslu í að gera tillögur um rannsóknir og meðferð gjörgæslusjúklinga. 

Fræðileg kennsla fer fram á eftirfarandi hátt

  1. Fyrirlestrarvika í september/janúar, sjá fyrirlestraskrá á Canvas.
    1. Alls eru þrír dagar sem nemendur mæta í fyrirlestra í námskeiðinu
    2. Nemendur fá fyrir hvern fyrirlestrardag aðgang að upptökum (4 fyrirlestrum/dag) sem innihalda námsefni dagsins. Einnig verður stutt fjölvalspróf (5-10 spurningar) sem ætlast er til að nemendur svari áður en þeir koma í umræðutímann.
    3. Hópnum verður skipt í minni hópa og hver 5-7 manna hópur mætir í umræðutímann, sem tekur um klukkustund. Í umræðutímunum verður rætt um tilfelli sem falla að námsefni dagsins

 Verkleg kennsla fer fram á eftirfarandi hátt 

  1. Nemar dvelja í 2 vikur á svæfinga- og gjörgæsludeildum og er úthlutað daglegu verkefni, annaðhvort á gjörgæsludeild, skurðgangi eða innskriftarmiðstöð.
  2. Lögð er megináhersla á undirstöðuatriði í svæfinga og gjörgæslulækningum
    1. Klínísk skoðun og mat á heilbrigðisástandi sjúklings fyrir skurðaðgerð (risk management)
    2. Þjálfun í að halda öndunarvegum opnum og tryggja æða-aðgang.
      1. Fyrsti forgangur er að halda öndunarvegi opnum með maska/kokrennu, þá notkun supraglottic öndunarvega (larynxmaska) og loks eiga nemendur að fylgjast með og reyna barkaþræðingu, þó það sé utan færniviðmiða námskeiðsins
    3. Mat á vökvajafnvægi og blóðtapi í og eftir skurðaðgerð og verkjameðferð eftir skurðaðgerðir.
    4. Mat og meðferð á alvarlega veikum/slösuðum sjúklingum á gjörgæslu.
    5. Haldnar verða eftirtaldar færnistöðvar meðan á verknámi stendur
      1. Öndunarvegameðferð
      2. Ytri og innri öndunarvélameðferð
    6. Nemendur fylgja eftir einum sjúklingi á gjörgæsludeild, og skulu annaðhvort velja einstakling með afmarkað gjörgæsluvandamál eða hluta af sjúkdómsgangi sjúklings með fjölþætt vandamál og fara yfir hann á formlegan hátt ásamt sérfræðilækni (ca 15 mín)
    7. Mætingarskylda í verknám er 100%, nemendur sem missa úr verknámsdag geta bætt hann upp í samráði við prófessor
    8. Nemendur taka tvær vaktir í verknámi, þar sem þeir halda áfram með vaktlæknum svæfinga-og gjörgæsludeildar frá 15:30-22:00
    9. Nemendur halda dagbók yfir svæfingar og fræðilega yfirferð í verknáminu

Verkleg kennsla fer fram á:

Landspítala Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut: umsjón Martin Ingi Sigurðsson, prófessor, Sigurbergur Kárason dósent/yfirlæknir.

Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi: umsjón Katrín Þormar sérfræðilæknir.

Sjúkrahúsi Akraness: umsjón Björn Gunnarsson yfirlæknir.

Sjúkrahúsinu á Akureyri: umsjón Oddur Ólafsson, yfirlæknir.

Allir sérfræðilæknar Svæfinga-og gjörgæsludeildar LSH, SA og SAK taka einnig þátt í fræðilegri og verklegri kennslu við verknám. Deildarlæknar svæfinga-og gjörgæsludeildar LSH og SAK taka jafnframt þátt í kennslu læknanema.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Heimilislæknisfræði (LÆK618F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
9 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Heilsugæslan getur sinnt um 95% allra vandamála fólks sem leitar eftir heilbrigðisþjónustu. Þessi vandamál sjást sjaldan innan veggja sjúkrahúsa. Heilsugæslan byggir því á eigin þekkingargrunni, færni, viðhorfum, mannauði og starfsaðstöðu til þess að sinna hlutverki sínu. 

Fjallað er um algengustu heilsufarsvandamál og önnur viðfangsefni heilsugæslunnar og vinnuaðferðir. Kennd verða undirstöðuatriði klínískrar skoðunar, vandaliðuð sjúkrasaga, klínísk færni og viðhorf við greiningu og vandalausn, heilsuverndarstarf og teymisvinna. Stúdentar tala við og skoða sjúklinga og setja fram greiningu og áætlun um meðferð. Þeir munu taka þátt í heilsuverndarstarfi, s.s. mæðravernd og ungbarnaeftirliti með læknum og hjúkrunarfræðingum eftir því sem kostur er. 

Kennsla: Fræðilegt nám fer fram í fyrirlestrum og hópkennslu í minni vinnubúðum (group based learning, problem/case learning). Aðalþættir fræðilega hlutans beinast að læknisfræðilegri kunnáttu og viðhorfum. Síðarnefnda markmiðið, viðhorfin, skiptir þó sköpum fyrir heimilislækningar. Hér er t.d. átt við að nemandinn stefni að því að verða sérfræðingur í einstaklingnum sjálfum, en ekki líffærum eða ákveðnu aldursskeiði, að læknirinn noti tímann sem tæki til greiningar vandamála og öðlist heildarsýn á einstaklingnum sem félagsveru, hluta af fjölskyldu, samfélagi og umhverfi. 

Fræðilegum hluta er síðan fylgt eftir með verklegu starfsnámi í 3 vikur á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu og 1 viku á heilsugæslustöð úti á landi undir leiðsögn reynds leiðbeinanda. 
Starfsþjálfun á heilsugæslustöð beinist að því að nemandinn öðlist ákveðna klíníska færni, svo sem í samtölum við sjúklinga, viðeigandi úrlausnum, eða að sauma sár svo eitthvað sé nefnt. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Valnámskeið (LÆK619F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Skipulegt valnámskeið í læknanámi er 4 vikur annað hvort á haust- eða á vormisseri 6. árs og er 8 ECTS. Valnámskeiðið er fyrst og fremst ætlað til að gefa nemandanum kost á að því að víkka sjóndeildarhring sinn með því að velja sér greinar eða áhugasvið sem nemandinn vill kynna sér nánar. Val er ekki bundið við klíníska læknisfræði, heldur getur nemandinn valið að vinna að skipulegum vísindarannsóknum, tekið námskeið við aðrar deildir Háskóla Íslands eða í háskólum í öðrum löndum. Skilyrði er að innihald námsins tengist heilbrigðisvísindum. Ef valnámskeiðið er tekið í formi vefnáms þá setur umsjónarkennari fram leiðbeiningar um hvernig slíkt nám er metið, en námið þarf að samsvara þeim tímafjölda sem liggur að baki 8 ECTS. Um klínískt valnámskeið gildir að leiðbeinendur sjá um að setja fram marklýsingu fyrir hvern nemanda. Marklýsingin er gerð í nánu samráði við nemandann og sér nemandinn um að skila henni til umsjónarkennara námskeiðsins á tilsettum tíma.

Umsjónarkennarinn tekur afstöðu til hvort samþykkja eigi verkefnið og marklýsinguna og hvort námið standist kröfur læknadeildar. Í vafatilfellum hefur umsjónarkennari samráð við kennslustjóra vegna þessa. Æskilegt er að nemendur sýni frumkvæði og leggi sjálfir drög að því hvernig valnámskeið þeirra er skipulagt. Ef margir nemendur sækja um sömu verkefni eða nám innan sömu sérgreina, verður dregið um þau.

Fyrir þá nemendur sem ekki hafa orðið sér úti um verkefni sjálfir er hægt að hafa samband við umsjónarkennara valnámskeiðs sem getur leiðbeint nema að finna verkefni í samráði við kennara deildarinnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Upplýsingatækni í heilbrigðisvísindum (LÆK620F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Heilbrigðisstarfsmenn þurfa að nota upplýsingatækni bæði við klíníska vinnu og í rannsóknum. Námskeiðið gefur yfirlit yfir heilbrigðisupplýsingatækni, hvað hún er og sögulegt samhengi.

Áhersla er lögð á tvo samtvinnaða en um leið ólíka þætti heilbrigðisupplýsingatækni. Annars vegar hvernig heilbrigðisstarfsmenn geta nýtt sér upplýsingatækni til þess að auðvelda sér vinnu í flóknu umhverfi. Þar er lögð áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir möguleikum góðra heilbrigðisupplýsingakerfa svo þeir geti gert kröfur til þeirra kerfa sem þeir síðar vinna með.

Hins vegar er skoðuð notkun upplýsingatækni í rannsóknarvinnu og nemendur vinna verkefni þar sem þeir þurfa sjálfir að hanna rannsóknarverkefni og búa til gagnagrunn utan um verkefnið.

Markmið kennslunnar er að nemendur geti nýtt sér heilbrigðisupplýsingakerfi í klínískri vinnu og í rannsóknum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Verklegt klínískt nám (LÆK622F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er verklegt klíniskt nám sem ætlað er að undirbúa læknanema undir vinnu sem læknar. Þetta er 6 vikna námskeið og þann tíma er neminn á sömu deildinni. Neminn er undir handleiðslu sérnámslæknis/deildarlæknis með sérfræðilækni með handleiðaraþjálfun sem bakhjarl. Markmiðið er að samfella sé í handleiðslunni og að læknaneminn fái klíníska þjálfun á tímabilinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
CCSE-próf (LÆK610F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Síðustu vikur vormisseris á 3. námsári kandídatsnáms eru ætlaðar í undirbúning fyrir lokapróf í læknisfræði CCSE (Comprehensive Clinical Science Examination). Prófað er úr klínískum fögum læknisfræðinnar og tekur prófið til þeirra faga sem kennd eru á fyrsta og öðru ári kandídatsnáms.

Haldinn verður fundur í upphafi misseris þar sem fyrirkomulag prófsins verður kynnt og upplýsingar um hvernig hægt sé að haga undirbúningi veittar.

Nánari upplýsingar um prófið má finna á heimasíðu National Board of Medical Examiners (NBME). Velja skal "Comprehensive Examinations" og síðan "Comprehensive Clinical Science" hlutann.
Þar er að finna upplýsingar um prófhluta, skiptingu efnis innan prófhluta og gefin dæmi um spurningar ásamt svörum („content outlines“). Prófið inniheldur 200 krossaspurningar og er 5 klst og 15 mín að 15 mínútna hléi meðtöldu.

Nemendur sem kjósa að taka USMLE Step2 geta fengið það metið í stað CCSE prófs að höfðu samráði við umsjónarkennara námskeiðsins. Læknadeild tekur ekki þátt í kostnaði við USMLE prófið.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár
  • Heilsársnámskeið
  • LÆK207F
    Myndgreining
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er yfir eðlisfræði myndgreiningar, geislavarnir, almenn hugtök læknisfræðilegrar myndgreiningar, myndgreiningaraðferðir (röntgenrannsóknir, tölvusneiðmyndarannsóknir, ómun, ísótóparannsóknir og segulómun) og notkun skuggaefnis. Farið er yfir m.a. myndgreiningu á taugakerfi, brjóst- og kviðarholi, stoðkerfi og æðum. Einnig verður hugað að inngripsröntgen. 

    Verkleg kennsla: Fer fram á röntgendeild Landspítala og í Orkuhúsinu. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK208F
    Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur IV
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er framhald af samskiptafræði og sálfræði á 1-3 ári í BS í læknisfræði. Megináherslan verður á samskiptatól eins og SBAR sem má nota til að auka öryggi sjúklinga og bæta teymisvinnu. Kennt verður á einum degi og árganginum skipt í minni hópa og fer kennsla fram sem hermikennsla og umræður í minni hópum um valin efni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • Haust
  • LÆK105F
    Klínísk lífefnafræði
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er grunnkennsla í notkun lífefnafræðilegra, sameindaerfðafræðilegra og frumulíffræðilegra hugtaka og aðferða til skilnings og mats á heilsu manna og sjúkdómum.

    Efni fyrirlestra: Almenn klínísk lífefnafræði, sérhæfð lífefnafræði einstakra sjúkdóma og líffærakerfa. Hagnýt atriði varðandi samskipti lækna við klínískar rannsóknastofur. Vaxtarbroddar í sameindalæknisfræði. Lausnaleitarnám. Heimsókn á rannsóknastofu í klínískri lífefnafræði á 2. námsári.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK109F, LÆK110F
    Lyflæknisfræði, fræðileg
    Skyldunámskeið
    13
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    13 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið í lyflæknisfræði skiptist í tvo hluta, klínískan hluta og fræðilegan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma. Próf í lyflæknisfræði verða tvö, skriflegt próf og klínískt stöðvapróf. 

    Kennsla í fræðilega hluta námsins felst í fyrirlestrum samkvæmt fyrirlestraskrá, umræðufundum í tengslum við hinn verklega þátt námsins og lestri kennslubóka og tímaritsgreina í lyflæknisfræði. Fjallað er um helstu sjúkdóma sem lyflæknisfræðin og undirgreinar hennar fjalla um með áherslu á útbreiðslu þeirra, orsakir, meinalífeðlisfræði, klíníska mynd, sjúkdómsferil, greiningu og meðferð. 

    Forstöðumenn undirsérgreina í lyflæknisfræði, þ.e.a.s. í blóðsjúkdómafræði, efnaskipta-, innkirtla- og efnaskiptasjúkdómafræði, gigtsjúkdómafræði, hjartasjúkdómafræði, krabbameinslækningum, lungnasjúkdómafræði, meltingarsjúkdómafræði, nýrnasjúkdómafræði, ofnæmis- og ónæmisfræði, smitsjúkdómafræði og öldrunarsjúkdómafræði, gera námsmarkmiðslýsingar sem beinast annars vegar að þekkingaratriðum sem nemendur þarf að kunna góð skil á (I) og þekkingaratriðum sem nemendur þurfa að kunna nokkur skil á (II). 

    Forstöðumaður lyflæknisfræði er Einar Stefán Björnsson. Umsjón með námi á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur Gunnar Þór Gunnarsson, dósent. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK109F, LÆK110F
    Lyflæknisfræði, klínísk
    Skyldunámskeið
    13
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    13 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið í lyflæknisfræði skiptist í tvo hluta, klínískan hluta og fræðilegan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma.

    Kennsla í klíníska hluta námsins felst í umræðum við og skoðun á sjúklingum, umræðufundum í tengslum við hinn verklega þátt námsins. Fjallað er mest um algenga sjúkdóma og þá sem eru hugsanlega hættulegir.  Áhersla er á að meta hina klínísku mynd, sjúkdómsferil, greiningu og meðferð.

    Undirsérgreinar lyflæknisfræði eru: blóðsjúkdómafræði, innkirtla- og efnaskiptafræði, gigtsjúkdómafræði, hjartasjúkdómafræði, krabbameinsfræði, lungnasjúkdómafræði, meltingarsjúkdómafræði, nýrnasjúkdómafræði, ofnæmis og ónæmisfræði, smitsjúkdómafræði, öldrunarsjúkdómafræði og almennar lyflækningar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK111F, LÆK112F
    Skurðlæknisfræði, fræðileg
    Skyldunámskeið
    13
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    13 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið í skurðlæknisfræði skiptist í fræðilegan og klínískan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma.

    Fræðilega kennslan byggir á fyrirlestrum samkvæmt kennsluáætlun og lestri bóka eða greina en tekur einnig til umræðufunda í tengslum við verklega námið. Kennslan er í höndum skurðlækna á Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri sem flestir eru einnig kennarar við læknadeild HÍ.

    Fræðilega kennslan tekur til eftirfarandi sérgreina skurðlæknisfræðinnar: Kviðarholsskurðlækninga, hjarta- og lungnaskurðlækninga, þvagfæraskurðlækninga, brjóstaskurðlækninga, æðaskurðlækninga, lýtalækninga, heila- og taugaskurðlækninga og bæklunarskurðlækninga. Lögð er sérstök áhersla á faraldsfræði, orsakir, greiningu, rannsóknir og meðferð sjúkdóma sem heyra undir skurðlækningar. Jafnframt er móttaka, greining og meðferð slasaðra kennd.

    Umsjónakennarar fræðigreina í skurðlæknisfræði, gera námsmarkmiðslýsingar þar sem fram kemur hvað nemendur þurfa að kunna góð skil á (I) og hvað nemendur þurfa að kunna nokkur skil á (II).

    Umsjónarkennari er Páll Helgi Möller. Umsjón með námi á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur Helgi Þór Leifsson. Forstöðumaður bráðalæknisfræðinnar er Hjalti Már Björnsson.

    Undirsérgreinar skurðlæknisfræðinnar og umsjónakennarar þeirra eru kviðarholsskurðlækningar (Páll Helgi Möller prófessor), hjarta- og lungnaskurðlækningar (Tómas Guðbjartsson prófessor), þvagfæraskurðlækningar (Sigurður Guðjónsson dósent), brjóstaskurðlækningar (Þórhildur Halldórsdóttir aðjúnkt), æðaskurðlækningar (Bergrós Kristín Jóhannesdóttir aðjúnkt), lýtalækningar (Þórir Jökull Auðólfsson lektor), heila- og taugaskurðlækningar (Steen Magnús Friðriksson aðjúnkt) og bæklunarskurðlækningar (Þorkell Snæbjörnsson dósent og Þorvaldur Ingvarsson prófessor).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÆK111F, LÆK112F
    Skurðlæknisfræði, klínísk
    Skyldunámskeið
    13
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    13 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið í skurðlæknisfræði skiptist í tvo hluta, fræðilegan hluta og klínískan hluta sem eru samofnir bæði efnislega og í tíma. 

    Kennsla í klíníska hluta námsins felst í þátttöku og umræðum á starfsstöðvum ségreina (göngudeild, dagdeild, legudeild, bráðamóttöku og skurðdeild) skurðlæknisfræðinnar þar sem fram fer meðal annars móttaka, greining og meðferð sjúklinga. Þá mæta nemar á þverfaglega teymisfundi þar sem það á við.  

    Í verknámi er lagt upp með að nemendur læri að beita þeirri þekkingu sem þeir hafa aflað sér í fræðilega hluta námsins. Þeir eiga að ná færni í ákveðnum inngripum og fá tækifæri til að æfa samskipti við sjúklinga, aðstandendur og annað heilbrigðisstarfsfólk og að vinna í teymi. Ætlast er til að nemar í verknámi sýni af sér fagmennsku og umgangist alla með virðingu. 

    Kennsla fer fram með margvíslegum hætti eins og umræðum milli nemenda og sérfræðinga á hinum ýmsu starfstöðvum, umræðufundum þar sem nemar kynna sér sjúkling og kynna fyrir samnemendum, kennslustofugang með kennara, færnibúðum og sjúklingahermingu. Í færnibúðum er lögð áhersla á líkamsskoðun með afbrigðileika og handbragð og/eða inngrip. Í sjúklingahermingu er æft að taka á móti sjúklingi, setja í gang fyrstu meðferð og fyrstu uppvinnslu auk teymisvinnu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÆK113F
    Háls- nef- og eyrnasjúkdómafræði
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkleg kennsla: Kennt er á göngudeild háls- nef og eyrnadeildar LSH Fossvogi sem er á 3. hæð (B3). Verklega kennslan stendur yfir alla önnina. Nemendur verða 2-3 saman, í eina viku í senn (sjá nánar stundaskrá). Læknanemum er kennd háls-, nef- og eyrnaskoðun ásamt beitingu algengustu tækja til sjúkdómsgreiningar og meðhöndlunar. Sjúkdómstilfelli verða kynnt eftir því sem tök eru á hverju sinni, bæði á legudeild, göngudeild og skurðstofu.

    Fræðileg kennsla: Beitt er aðferðum vendikennslu í þessu námskeiði. Fyrirlestrar um tiltekin efni verða aðgengileg í Canvas og ætlast er til að nemendur séu búnir að fara yfir þá áður en þeir koma í tíma. Í tímunum verður farið yfir efnið vandamálamiðað til að undirbúa nemandann sem best fyrir að takast á við þessi vandamál á bráðamóttöku og heilsugæslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • LÆK202F, LÆK203F

  • LÆK204F, LÆK205F

  • LÆK206F

  • LÆK408F
    Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur V
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er framhald af samskiptafræði og sálfræði á 1-3 ári í BS í læknisfræði og LÆK107F á fjórða námsári. Megináherslan verður á að dýpka þekkingu nemenda á aðferðum við mat á sjálfvígshættu og öryggi við lyfjaávísanir. Kennt verður á einum degi (8t) eða skipt í minni einingar háð því hvað passar vegna stundarskrár fimmta námsárs og árganginum skipt í minni hópa. Kennslan fer fram sem hermikennsla og umræður í minni hópum um valin efni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • LÆK301F
    Fæðinga- og kvensjúkdómafræði
    Skyldunámskeið
    12
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    12 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennsla í fæðinga- og kvensjúkdómafræði fer að mestu fram á Kvennadeild Landspítalans. Kennslan samanstendur af verklegri kennslu og fjölbreyttum kennslustundum: fyrirlestrum, tilfellayfirferð, færniþjálfun, hermikennslu, umræðutímum og verkefnavinnu. Læknanemar fylgja læknum og ljósmæðrum á deildinni í daglegu starfi og fá kynningu á sérstakri starfsemi innan fagsins, s.s. meðgönguvernd, fósturgreiningu, frjósemislækningum og krabbameinsleit. Námskeiðið er kennt á 7 vikum fyrir fjórðung af árgangi læknanema í senn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK302F
    Barnalæknisfræði
    Skyldunámskeið
    12
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    12 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námið er verklegt og bóklegt. Nemendum er skipt í fjóra hópa til verklegs náms sem fer fram á Barnaspítala Hringsins Landspítala. Fyrirlestrar eru einnig haldnir á Barnaspítala Hringsins samhliða verklegu námi. Námið byggist þannig upp af verklegri þjálfun, fyrirlestrum, úrlausnarverkefnum (klíníkum) o.fl. Í verklegu námi kynnast nemar starfinu á öllum deildum Barnaspítalans.

    Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu á barnalæknisfræði. Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að skoða, umgangast og sjúkdómsgreina veik börn og gera tillögur um rannsóknir og meðferð.

    Í upphafi námsins fá stúdentar gögn í hendur varðandi fyrirkomulag námsins, þ.m.t. fyrirlestrarskrá, lýsingu á fyrirkomulagi námsins o.fl. Nemendum er einnig bent á heimasíðu Barnaspítala Hringsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK303F
    Erfðalæknisfræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á aðferðafræði við greiningu erfðasjúkdóma og meðfæddra galla og hvernig erfðaþættir stuðla að ýmsum algengum sjúkdómum. Megin áhersla er lögð á hagnýtingu þessarar þekkingar í daglegu starfi lækna og að lagður sé grundvöllur að því að nemendur geti fylgst með örri þróun á sviði erfðalæknisfræði og erfðatækni. Námsefni er bygging og starfsemi gena. Genakortlagning og erfðatölfræði. Lífefna- og sameindaerfðafræði valinna erfðasjúkdóma. Litningar, litningagallar og erfðasjúkdómaleit. Grundvallaratriði margþátta- og fjölgena erfðir kynnt, m.a. til skilnings á meðfæddum sjúkdómum, erfðafræði hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameins. Kynnt verða valin erfðaheilkenni og notkun gagnabanka við greiningu þeirra, meðferðarmöguleikar erfðasjúkdóma og helstu erfðasjúkdómar á Íslandi og sýnd dæmi um fósturgreiningar. Lögð er áhersla á erfðaráðgjöf og eftirlit einstaklinga í áhættuhópum, ásamt umræðum um siðferðilega þætti sem vakna við rannsóknir og greiningu erfðasjúkdóma og meðfæddra eiginleika.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK304F
    Geðlæknisfræði
    Skyldunámskeið
    14
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    14 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið kennslunnar er að fræða stúdenta um geðsjúkdóma, tíðni þeirra, orsakir, gang, horfur, meðferð og forvarnir. Einnig að þjálfa nema í grunnatriðum hugrænnar atferlismeðferðar og áhugahvetjandi samtals og auka skilning þeirra á sjálfum sér, eigin tilfinningum, hugsun og viðbrögðum við álagi. Ein vika er valvika og önnur nýtt eingöngu til fyrirlestrahalds. Kennslan fer fram í fyrirlestrum, umræðutímum og verklegum æfingum á geðdeildum Landspítala háskólasjúkrahúss samkvæmt handbók sem stúdentar fá í upphafi námskeiðs.

    Þátttakendur eru nemar á 5. ári í læknisfræði við Læknadeild eða skiptinemar sem hafa vald til tjáskipta við sjúklinga á íslensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK305F
    Taugasjúkdómafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Taugalæknisfræði er sú sérgrein læknisfræðinnar sem fjallar um taugasjúkdóma fullorðinna. Fyrirlestrar um helstu sjúkdóma í heila, mænu og úttaugakerfi í eina viku. Hver nemandi er svo 4 vikur á sjúkradeildum og í lok þess áfanga er verklegt og skriflegt próf.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK306F
    Augnsjúkdómafræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu eru tekin fyrir grunnatriði í augnlæknisfræði. Í fyrirlestrum er meðal annars farið yfir eftirfarandi: Líffæra- og lífeðlisfræði augans; saga og skoðun; sjónlagsgallar; ský á augasteini; hornhimnusjúkdómar; rautt auga; augnlok og augntóft; sjónhimnusjúkdómar; gláka; auga og miðtaugakerfi; augnsjúkdómar barna; augun og sjúkdómar í öðrum líffærum; augnslys.

    Verkleg kennsla á göngudeild augndeildar við Eiríksgötu 5, ein vika fyrir hvern nema. Skyldumæting er í verklega kennslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • LÆK401F, LÆK402F

  • LÆK403F, LÆK404F

  • LÆK405F

  • LÆK406F

  • LÆK407F
    Húð- og kynsjúkdómafræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir yfirlit yfir algengustu húð- og kynsjúkdóma. Fjallað er um byggingu og starfsemi húðarinnar, meingerð og mismunagreiningar helstu sjúkdóma, þ.m.t. bólgusjúkdóma, æxla, sýkinga, ofnæmisviðbragða og áhrifa sólarljóss á húð.

    Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og verklegri kennslu þar sem nemendur fá tækifæri til að skoða og meta einstaklinga með húð- og kynsjúkdóma á göngudeild og æfa einfaldar húðsýnatökur (shave- og punch-biopsíur) undir handleiðslu .

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Heilsársnámskeið
  • LÆK621F
    Klínisk aðferð/samskiptafræði VI
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er framhald af samskiptafræði og sálfræði á 1-3 ári í BS í læknisfræði, LÆK208F á fjórða námsári og LÆK408F á fimmta námsári. Megináherslan verður á að dýpka þekkingu nemenda í samskiptaaðferðum á fjölskyldufundum, hvernig á að færa slæmar fréttir, þverfaglegri samvinnu og samtal við sjúklinga með aðstoð túlks. Kennt verður á einum degi eða skipt í minni einingar háð því hvað passar vegna stundaskrár sjötta námsárs og árganginum skipt í minni hópa. Kennslan fer fram sem hermikennsla og umræður í minni hópum um valin efni.

    Kennslufyrirkomulag: Verður sambland af umræðutímum og færni- og hermikennsla. Allt kennt á einum degi (10 kennslustundir). Krafist er mætingarskyldu og verkefnaskil eftir námsdaginn. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK623F
    Sniðlækningar, einstaklingsmiðuð heilbrigðisþjónusta á Norðurlöndum
    Valnámskeið
    4
    Valnámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Samnorrænt netnámskeið í sniðlækningum (e. personalised/precision medicine) sem Háskóli Íslands stendur að ásamt Kaupmannahafnarháskóla og er ætlað læknanemum á seinni stigum náms. Námskeiðið er á ensku og var búið til að frumkvæði menntanefndar deildarforseta í læknadeildum á Norðurlöndunum undir forystu Engilberts Sigurðssonar þáverandi deildarforseta. Það hlaut styrk frá samnorrænu nefnd rannsóknarsjóðanna (https://nos-m.org/ ). Boðið hefur verið upp á námskeiðið frá 2022 á Coursera ( Personalised Medicine from a Nordic Perspective | Coursera ) og við lok 2023 höfðu yfir tvö þúsund manns skráð sig og námskeiðið fengið 4.6 af 5 mögulegum í einkunn. 

    Sniðlækningar, stundum kallaðar einstaklingsmiðaðar lækningar er nýlegt hugtak á sviði heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að einstaklingsmiða meðferð með því nýta alla þá þætti sem hafa sýnt gagnreynd tengsl við áhættu, horfur eða meðferðarsvörun, til að velja besta meðferðarkostinn fyrir hvern einstakling á hverjum tímapunkti og forða honum frá ónauðsynlegri meðferð, aukaverkunum og kostnaði. Hugtakið sniðlækningar nær því frá grunnrannsóknum til klínískrar þjónustu og er leið til að takast skipulega á við þá áskorun að þekking aukist gríðarlega hratt og brúa þurfi bilið yfir í klíníkina. Til að slíkar upplýsingar gagnist í klínísku starfi þarf að þróa spálíkön sem eru aðgengileg fyrir bæði heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga með hjálp snjalltækja enda er tilgangurinn að gera upplýsingar um áhættu og meðferðarkosti aðgengilegar. Þannig sparast bæði peningar og tími þegar við getum beitt hnitmiðuðum forvörnum, snemmgreiningu og kjörmeðferð.

    All taka 33 sérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum þátt í þessu námskeiði, sem er í sex hlutum með alls 30 stuttum myndböndum sem nálgast efnið frá ýmsum hliðum, ýmist í formi fyrirlestra, viðtala eða umræða, auk ítarefnis í formi greina um ýmsa aðferðafræði og tengla á gagnlegar vefsíður og tæki enda er þróunin svo hröð að slíkt getur fljótt orðið úrelt.

    Fyrsti hlutinn (module) er með 5 myndböndum og 6 ítarefni sem kynnir efnið almennt, hugtökin sem notuð eru, nýtingu sniðlækninga og praktísk dæmi og tilfelli, auk viðtala við sérfræðinga frá Norðurlöndunum.

    Annar hlutinn (6 myndbönd, 8 ítarefni) fjallar um hvaða heilbrigðisupplýsingar eru notaðar, hvernig þeim er safnað og þær nýttar til að þróa sniðlækningar, auk dæma um snjalllausnir sem stuðla að sniðlækningum.

    Þriðji hlutinn (5 myndbönd, 3 ítarefni) fjallar um lífvísa (biomarkers), mælingar, úrvinnslu og nýtingu þeirra í sniðlækningum, þar með talið erfðaþætti, prótein og omics, þ.e.a.s. aðferðir sem hafa þróast til að mæla og vinna úr öllum tiltækum lífvísum af hverri gerð með tilgátulausri nálgun.

    Fjórði hlutinn (4 myndbönd, 4 ítarefni) fjallar um hvernig sniðlækningar þróast á grunni gagnreyndrar læknisfræði og nýtir öll tiltæk gögn til að þróa spálíkön og hanna lyfjarannsóknir með öðrum hnitmiðaðri hætti en áður (‚data-driven‘ nálgun). Einnig er fjallað um lagalegar og siðferðilegar hliðar á efninu.

    Fimmti hlutinn (5 myndbönd, 7 ítarefni) fjallar um hugtakið áhættu (risk) og hvernig hún er mæld, túlkuð og henni miðlað til sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Einnig er sjúklingamiðuð heilbrigðisþjónusta (patient-centered care) kynnt og tengsl þess hugtaks við sniðlækningar, og loks er fjallað um þátt fjölmiðla og annarra miðla.

    Sjötti hlutinn (6 myndbönd, 3 ítarefni) fer dýpra í siðfræðilegar, lagalegar og félagslegar hliðar sniðlækninga, einkum frá sjónarhóli Norðurlandanna, auk þess að ræða samstarfs heilbrigðiskerfis, rannsóknaeininga og fyrirtækja á breiðum grundvelli.

    Sjá nánar á www.coursera.org: Personalised medicine from a Nordic perspective.

    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • LÆK501F
    Fyrirbyggjandi læknisfræði
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Heilsuvernd, umhverfi, lífsvenjur og erfðir hafa áhrif á líðan og heilsufar einstaklinga, samfélagshópa og þjóða. Námskeiðið gefur yfirlit yfir aðferðir og tækifæri læknisfræðinnar til forvarna í samfélaginu og heilsueflingar meðal skjólstæðinga. Fjallað er um umhverfisvernd, smitsjúkdómavarnir, skimun við ýmsum langvinnum sjúkdómum og aðferðir til að hafa áhrif á lífsstíl fólks og geðheilbrigði. Markmið kennslunnar er að efla þekkingu á efninu og kynna nauðsynlega aðferðafræði sem leitt getur til bætts heilsufars í samfélaginu. Farið er yfir þekkingargrunn hinna ýmsu sviða forvarna með rýni vísindagreina.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK504F
    Klínísk eitrunarfræði
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur námskeiðsins er að kynna nemendum algengar eitranir sem koma til meðferðar á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum hér á landi og helstu úrræði við meðferð þeirra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÆK505F
    Endurhæfingarfræði
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Endurhæfingarfræðin fjallar um skipulagða og marksetta þjónustu fyrir sjúklinga með tímabundna eða varanlega skerðingu á líkamlegri og andlegri færni eftir sjúkdóma og slys. Áhersla er lögð á þátt lækna í samvinnu heilbrigðisstétta um framvindu endurhæfingarferla.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK507F
    Stjórnun og gæðamál
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu Stjórnun og gæðamál fer fram samþætt lokayfirferð á helstu praktískum viðfangsefnum sem snúa að læknisstarfinu í heild. Sérstök áhersla er lögð á lög og reglur í heilbrigðisþjónustu, gæðastjórnun, öryggi sjúklinga og skipulag heilbrigðisþjónustu, auk grunnatriða í stjórnun í heilbrigðisþjónustu.

    Innihald námskeiðisins:

    Fjallað er um helstu lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisþjónustu. Þá er farið yfir grundvallaratriði gæðastjórnunar (Quality Management and Patient Safety) og meginþætti stjórnunar í heilbrigðisþjónustu.

    Kennslufræðileg nálgun:

    Fyrir námskeiðið verður birt stundaskrá á CANVAS ásamt lista yfir fyrirlesara. Nemum er skipt upp í hópa og fá upplýsingar um verkefni sem þeir vinna á námskeiðinu.

    Við kennslu er stuðst við nálgun NHS í Bretlandi við kennslu heilbrigðisstétta:

    • Tell me: I will probably forget
    • Show me: I may remember
    • Make me participate: I will understand

    Kennslan byggir á gagnvirkum fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu. Mætingarskylda er í alla fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK508F
    Krabbameinslæknisfræði - verkleg
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fyrirlestrar: Ekki er farið yfir einstaka sjúkdóma í fyrirlestrum heldur er meira lagt upp úr almennri nálgun og meira lagt upp úr þeim fræðilega bakgrunni sem tengist krabbameinslækningum.

    Vandamiðað tilfelli: Nemendum er skipt í hópa og lesa sig í gegnum tilfelli og leiða sjálfir umræður. Nemendur velja svo eitt umfjöllunarefni sem þeir kynna sér og segja frá.

    Námskeið í viðtalstækni:. Átta til tíu læknanemar eru á hverju viðtalsnámskeiði, sem tekur 4-5 klukkutíma. Námskeiðið fer þannig fram að sérhver læknanemi fær hlutverk bæði sem læknir og sem sjúklingur eða ættingi sjúklings. Tekin eru fyrir vandamál eins og að tilkynna sjúklingi að hann sé með krabbamein, ræða takmörkun meðferðar og tilkynna um andlát. Öll viðtöl eru tekin upp á myndband og síðan fjallað um það sameiginlega á uppbyggilegan hátt.

    Verkleg kennsla: Læknanemar fara á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga og kynnast göngudeildarvinnu með sérfræðingi í blóð- eða krabbameinslækningum. Sérhver læknanemi verður einnig einu sinni á Líknardeild og fær kynningu á geisladeild LSH.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK511F
    Réttarlæknisfræði
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginstef: a) Dauðinn og birtingarmyndir dauða manneskjunnar b) Áverkafræði árása og ofbeldis c) Sjálfsvíg og slys d) Tengsl laga og læknisfræði.

    Innihald námskeiðsins:

    • Kynning á réttarlæknisfræði
    • Dauðaferlið og breytingar eftir dauðann
    • Læknisfræðileg rannsókn dauðsfalla
    • Ritun dánarvottorðs
    • Krufning og aðrar rannsóknaraðferðir
    • Dauðsföll af náttúrulegum völdum
    • Skyndidauði barna
    • Kennslaburður
    • Sljóir áverkar
    • Skarpir áverkar
    • Höfuðáverkar
    • Áfengi, lyfjamisnotkun og dauðinn
    • Umferðaslys og önnur háorkuferli
    • Skotáverkar
    • Klínísk réttarlæknisfræði
    • Skrásetning, túlkun og tímasetning áverka
    • Köfnun
    • Kraftverkun á háls
    • Ofkæling og ofhitnun
    • Drukknun
    • Bruni og koloxíðeitrun
    • Rafáverkar
    • Vettvangsrannsókn og líkskoðun
    • Lærdómsrík tilfelli
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK512F
    Bráðalækningar
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lengd 4 vikur. 

    Á 6. ári er kennslan í bráðalækningum skipt i tvo hluta sem hvor um sig er tvær vikur.  

    Á fyrri tímabilinu fer fer kennsla fram í fyrirlestrum og á verklegum námskeiðum með eftirfarandi hætti: 

    • Fræðsludagur um ofbeldi – skimun fyrir ofbeldi, skráningu áverka og kynning á meðferðarúrræðum  
    • 2 daga námskeið í sérhæfðri endurlífgun – ALS námskeið samkvæmt staðli Endurlífgunarráðs 
    • 1 dags námskeið í öndunarvegameðferð ofan raddbanda 
    • 1 dagur í tilfellaæfingum í hermisetri 
    • Bráðaómun - vefnámskeið og hálfur dagur í verklegum æfingum 

    Eftir það taka við 2 vikur af verknámi á bráðamóttöku þar sem læknanemar fá þjálfun í að vinna upp sjúklinga með bráð vandamál undir handleiðslu sérfræðinga og reyndari sérnámslækna deildarinnar.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK513F
    Svæfinga- og gjörgæslulækningar
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennsla í svæfinga- og gjörgæslulæknisfræði fer fram á 6. ári og skiptist í fræðilegan og klínískan hluta. Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu í svæfinga- og gjörgæslulækningum. 

    Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að meta og undirbúa sjúklinga sem eru að fara í valaðgerðir eða bráðaaðgerðir, ásamt því að meta og meðhöndla sjúklinga sem undirgangast skurðaðgerðir og bráðveika gjörgæslusjúklinga. Ennfremur fá nemendur reynslu í að gera tillögur um rannsóknir og meðferð gjörgæslusjúklinga. 

    Fræðileg kennsla fer fram á eftirfarandi hátt

    1. Fyrirlestrarvika í september/janúar, sjá fyrirlestraskrá á Canvas.
      1. Alls eru þrír dagar sem nemendur mæta í fyrirlestra í námskeiðinu
      2. Nemendur fá fyrir hvern fyrirlestrardag aðgang að upptökum (4 fyrirlestrum/dag) sem innihalda námsefni dagsins. Einnig verður stutt fjölvalspróf (5-10 spurningar) sem ætlast er til að nemendur svari áður en þeir koma í umræðutímann.
      3. Hópnum verður skipt í minni hópa og hver 5-7 manna hópur mætir í umræðutímann, sem tekur um klukkustund. Í umræðutímunum verður rætt um tilfelli sem falla að námsefni dagsins.

     Verkleg kennsla fer fram á eftirfarandi hátt 

    1. Nemar dvelja í 2 vikur á svæfinga- og gjörgæsludeildum og er úthlutað daglegu verkefni, annaðhvort á gjörgæsludeild, skurðgangi eða innskriftarmiðstöð.
    2. Lögð er megináhersla á undirstöðuatriði í svæfinga og gjörgæslulækningum
      1. Klínísk skoðun og mat á heilbrigðisástandi sjúklings fyrir skurðaðgerð (risk management)
      2. Þjálfun í að halda öndunarvegum opnum og tryggja æða-aðgang.
        1. Fyrsti forgangur er að halda öndunarvegi opnum með maska/kokrennu, þá notkun supraglottic öndunarvega (larynxmaska) og loks eiga nemendur að fylgjast með og reyna barkaþræðingu, þó það sé utan færniviðmiða námskeiðsins
      3. Mat á vökvajafnvægi og blóðtapi í og eftir skurðaðgerð og verkjameðferð eftir skurðaðgerðir.
      4. Mat og meðferð á alvarlega veikum/slösuðum sjúklingum á gjörgæslu.
      5. Haldnar verða eftirtaldar færnistöðvar meðan á verknámi stendur
        1. Öndunarvegameðferð
        2. Ytri og innri öndunarvélameðferð
      6. Nemendur fylgja eftir einum sjúklingi á gjörgæsludeild, og skulu annaðhvort velja einstakling með afmarkað gjörgæsluvandamál eða hluta af sjúkdómsgangi sjúklings með fjölþætt vandamál og fara yfir hann á formlegan hátt ásamt sérfræðilækni (ca 15 mín)
      7. Mætingarskylda í verknám er 100%, nemendur sem missa úr verknámsdag geta bætt hann upp í samráði við prófessor
      8. Nemendur taka tvær vaktir í verknámi, þar sem þeir halda áfram með vaktlæknum svæfinga- og gjörgæsludeildar frá 15:30-22:00
      9. Nemendur halda dagbók yfir svæfingar og fræðilega yfirferð í verknáminu

    Verkleg kennsla fer fram á:

    Landspítala Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut: umsjón Martin Ingi Sigurðsson, prófessor, Sigurbergur Kárason dósent/yfirlæknir.

    Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi: umsjón Katrín Þormar sérfræðilæknir.

    Sjúkrahúsi Akraness: umsjón Björn Gunnarsson yfirlæknir.

    Sjúkrahúsinu á Akureyri: umsjón Oddur Ólafsson, yfirlæknir.

    Allir sérfræðilæknar Svæfinga- og gjörgæsludeildar LSH, SA og SAK taka einnig þátt í fræðilegri og verklegri kennslu við verknám. Deildarlæknar svæfinga-og gjörgæsludeildar LSH og SAK taka jafnframt þátt í kennslu læknanema.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK514F
    Heimilislæknisfræði
    Skyldunámskeið
    9
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    9 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Heilsugæslan getur sinnt um 95% allra vandamála fólks sem leitar eftir heilbrigðisþjónustu. Þessi vandamál sjást sjaldan innan veggja sjúkrahúsa. Heilsugæslan byggir því á eigin þekkingargrunni, færni, viðhorfum, mannauði og starfsaðstöðu til þess að sinna hlutverki sínu. 

    Fjallað er um algengustu heilsufarsvandamál og önnur viðfangsefni heilsugæslunnar og vinnuaðferðir. Kennd verða undirstöðuatriði klínískrar skoðunar, vandaliðuð sjúkrasaga, klínísk færni og viðhorf við greiningu og vandalausn, heilsuverndarstarf og teymisvinna. Stúdentar tala við og skoða sjúklinga og setja fram greiningu og áætlun um meðferð. Þeir munu taka þátt í heilsuverndarstarfi, s.s. mæðravernd og ungbarnaeftirliti með læknum og hjúkrunarfræðingum eftir því sem kostur er. 

    Kennsla: Fræðilegt nám fer fram í fyrirlestrum og hópkennslu í minni vinnubúðum (group based learning, problem/case learning). Aðalþættir fræðilega hlutans beinast að læknisfræðilegri kunnáttu og viðhorfum. Síðarnefnda markmiðið, viðhorfin, skiptir þó sköpum fyrir heimilislækningar. Hér er t.d. átt við að nemandinn stefni að því að verða sérfræðingur í einstaklingnum sjálfum, en ekki líffærum eða ákveðnu aldursskeiði, að læknirinn noti tímann sem tæki til greiningar vandamála og öðlist heildarsýn á einstaklingnum sem félagsveru, hluta af fjölskyldu, samfélagi og umhverfi. 

    Fræðilegum hluta er síðan fylgt eftir með verklegu starfsnámi í 3 vikur á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu og 1 viku á heilsugæslustöð úti á landi undir leiðsögn reynds leiðbeinanda. 
    Starfsþjálfun á heilsugæslustöð beinist að því að nemandinn öðlist ákveðna klíníska færni, svo sem í samtölum við sjúklinga, viðeigandi úrlausnum, eða að sauma sár svo eitthvað sé nefnt. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK515F
    Valnámskeið
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Skipulegt valnámskeið í læknanámi er 4 vikur annað hvort á haust- eða á vormisseri 6. árs og er 8 ECTS. Valnámskeiðið er fyrst og fremst ætlað til að gefa nemandanum kost á að því að víkka sjóndeildarhring sinn með því að velja sér greinar eða áhugasvið sem nemandinn vill kynna sér nánar. Val er ekki bundið við klíníska læknisfræði, heldur getur nemandinn valið að vinna að skipulegum vísindarannsóknum, tekið námskeið við aðrar deildir Háskóla Íslands eða í háskólum í öðrum löndum. Skilyrði er að innihald námsins tengist heilbrigðisvísindum. Ef valnámskeiðið er tekið í formi vefnáms þá setur umsjónarkennari fram leiðbeiningar um hvernig slíkt nám er metið, en námið þarf að samsvara þeim tímafjölda sem liggur að baki 8 ECTS. Um klínískt valnámskeið gildir að leiðbeinendur sjá um að setja fram marklýsingu fyrir hvern nemanda. Marklýsingin er gerð í nánu samráði við nemandann og sér nemandinn um að skila henni til umsjónarkennara námskeiðsins á tilsettum tíma.

    Umsjónarkennarinn tekur afstöðu til hvort samþykkja eigi verkefnið og marklýsinguna og hvort námið standist kröfur læknadeildar. Í vafatilfellum hefur umsjónarkennari samráð við kennslustjóra vegna þessa. Æskilegt er að nemendur sýni frumkvæði og leggi sjálfir drög að því hvernig valnámskeið þeirra er skipulagt. Ef margir nemendur sækja um sömu verkefni eða nám innan sömu sérgreina, verður dregið um þau.

    Fyrir þá nemendur sem ekki hafa orðið sér úti um verkefni sjálfir er hægt að hafa samband við umsjónarkennara valnámskeiðs sem getur leiðbeint nema að finna verkefni í samráði við kennara deildarinnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÆK516F
    Verklegt klínískt nám
    Skyldunámskeið
    12
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    12 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er verklegt klíniskt nám sem ætlað er að undirbúa læknanema undir vinnu sem læknar. Þetta er 6 vikna námskeið og þann tíma er neminn á sömu deildinni. Neminn er undir handleiðslu sérnámslæknis/deildarlæknis með sérfræðilækni með handleiðaraþjálfun sem bakhjarl. Markmið að samfella sé í handleiðslunni og að læknaneminn fái klíniska þjálfun á tímabilinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK517F
    Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur IV og V
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sjá LÆK107F og LÆK408F

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • LÆK613F

  • LÆK614F

  • LÆK615F

  • LÆK616F

  • LÆK617F
    Svæfinga- og gjörgæslulækningar
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennsla í svæfinga- og gjörgæslulæknisfræði fer fram á 6. ári og skiptist í fræðilegan og klínískan hluta. Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu í svæfinga- og gjörgæslulækningum. 

    Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að meta og undirbúa sjúklinga sem eru að fara í valaðgerðir eða bráðaaðgerðir, ásamt því að meta og meðhöndla sjúklinga sem undirgangast skurðaðgerðir og bráðveika gjörgæslusjúklinga. Ennfremur fá nemendur reynslu í að gera tillögur um rannsóknir og meðferð gjörgæslusjúklinga. 

    Fræðileg kennsla fer fram á eftirfarandi hátt

    1. Fyrirlestrarvika í september/janúar, sjá fyrirlestraskrá á Canvas.
      1. Alls eru þrír dagar sem nemendur mæta í fyrirlestra í námskeiðinu
      2. Nemendur fá fyrir hvern fyrirlestrardag aðgang að upptökum (4 fyrirlestrum/dag) sem innihalda námsefni dagsins. Einnig verður stutt fjölvalspróf (5-10 spurningar) sem ætlast er til að nemendur svari áður en þeir koma í umræðutímann.
      3. Hópnum verður skipt í minni hópa og hver 5-7 manna hópur mætir í umræðutímann, sem tekur um klukkustund. Í umræðutímunum verður rætt um tilfelli sem falla að námsefni dagsins

     Verkleg kennsla fer fram á eftirfarandi hátt 

    1. Nemar dvelja í 2 vikur á svæfinga- og gjörgæsludeildum og er úthlutað daglegu verkefni, annaðhvort á gjörgæsludeild, skurðgangi eða innskriftarmiðstöð.
    2. Lögð er megináhersla á undirstöðuatriði í svæfinga og gjörgæslulækningum
      1. Klínísk skoðun og mat á heilbrigðisástandi sjúklings fyrir skurðaðgerð (risk management)
      2. Þjálfun í að halda öndunarvegum opnum og tryggja æða-aðgang.
        1. Fyrsti forgangur er að halda öndunarvegi opnum með maska/kokrennu, þá notkun supraglottic öndunarvega (larynxmaska) og loks eiga nemendur að fylgjast með og reyna barkaþræðingu, þó það sé utan færniviðmiða námskeiðsins
      3. Mat á vökvajafnvægi og blóðtapi í og eftir skurðaðgerð og verkjameðferð eftir skurðaðgerðir.
      4. Mat og meðferð á alvarlega veikum/slösuðum sjúklingum á gjörgæslu.
      5. Haldnar verða eftirtaldar færnistöðvar meðan á verknámi stendur
        1. Öndunarvegameðferð
        2. Ytri og innri öndunarvélameðferð
      6. Nemendur fylgja eftir einum sjúklingi á gjörgæsludeild, og skulu annaðhvort velja einstakling með afmarkað gjörgæsluvandamál eða hluta af sjúkdómsgangi sjúklings með fjölþætt vandamál og fara yfir hann á formlegan hátt ásamt sérfræðilækni (ca 15 mín)
      7. Mætingarskylda í verknám er 100%, nemendur sem missa úr verknámsdag geta bætt hann upp í samráði við prófessor
      8. Nemendur taka tvær vaktir í verknámi, þar sem þeir halda áfram með vaktlæknum svæfinga-og gjörgæsludeildar frá 15:30-22:00
      9. Nemendur halda dagbók yfir svæfingar og fræðilega yfirferð í verknáminu

    Verkleg kennsla fer fram á:

    Landspítala Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut: umsjón Martin Ingi Sigurðsson, prófessor, Sigurbergur Kárason dósent/yfirlæknir.

    Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi: umsjón Katrín Þormar sérfræðilæknir.

    Sjúkrahúsi Akraness: umsjón Björn Gunnarsson yfirlæknir.

    Sjúkrahúsinu á Akureyri: umsjón Oddur Ólafsson, yfirlæknir.

    Allir sérfræðilæknar Svæfinga-og gjörgæsludeildar LSH, SA og SAK taka einnig þátt í fræðilegri og verklegri kennslu við verknám. Deildarlæknar svæfinga-og gjörgæsludeildar LSH og SAK taka jafnframt þátt í kennslu læknanema.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK618F

  • LÆK619F

  • LÆK620F
    Upplýsingatækni í heilbrigðisvísindum
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Heilbrigðisstarfsmenn þurfa að nota upplýsingatækni bæði við klíníska vinnu og í rannsóknum. Námskeiðið gefur yfirlit yfir heilbrigðisupplýsingatækni, hvað hún er og sögulegt samhengi.

    Áhersla er lögð á tvo samtvinnaða en um leið ólíka þætti heilbrigðisupplýsingatækni. Annars vegar hvernig heilbrigðisstarfsmenn geta nýtt sér upplýsingatækni til þess að auðvelda sér vinnu í flóknu umhverfi. Þar er lögð áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir möguleikum góðra heilbrigðisupplýsingakerfa svo þeir geti gert kröfur til þeirra kerfa sem þeir síðar vinna með.

    Hins vegar er skoðuð notkun upplýsingatækni í rannsóknarvinnu og nemendur vinna verkefni þar sem þeir þurfa sjálfir að hanna rannsóknarverkefni og búa til gagnagrunn utan um verkefnið.

    Markmið kennslunnar er að nemendur geti nýtt sér heilbrigðisupplýsingakerfi í klínískri vinnu og í rannsóknum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK622F
    Verklegt klínískt nám
    Skyldunámskeið
    12
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    12 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er verklegt klíniskt nám sem ætlað er að undirbúa læknanema undir vinnu sem læknar. Þetta er 6 vikna námskeið og þann tíma er neminn á sömu deildinni. Neminn er undir handleiðslu sérnámslæknis/deildarlæknis með sérfræðilækni með handleiðaraþjálfun sem bakhjarl. Markmiðið er að samfella sé í handleiðslunni og að læknaneminn fái klíníska þjálfun á tímabilinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK610F
    CCSE-próf
    Skyldunámskeið
    6

Annað ár

Þriðja ár

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Sjúkrahús
  • Heilsugæslustöðvar
  • Einkareknar læknastofur
  • Öldrunarstofnanir
  • Tryggingastofnanir
  • Endurhæfingu
  • Stjórnsýslu og ráðgjöf
  • Kennsla og rannsóknir

Listinn er ekki tæmandi

Félag læknanema stendur fyrir öflugu félagslífi fyrir læknanema. Það annast stúdentaskipti í samvinnu við alþjóðleg samtök læknanema, aðstoðar við ráðningar læknanema í margs konar afleysingastörf innan heilbrigðiskerfisins og stendur fyrir kynfræðslu í framhaldsskólum undir yfirskriftinni Ástráður

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Arnari Snæ Ágústssyni
Mig hefur alltaf langað að verða læknir vegna þess að læknisfræði er gríðarlega mikilvægt starf, krefjandi og snýst fyrst og fremst um að hjálpa fólki. Fjölbreytnin er líka svakaleg; kósý heimilislækningar, klikkaðar hjartaskurðaðgerðir, sjaldgæfir og flóknir sjúkdómar eða yfirgripsmiklar rannsóknir, læknisfræðimenntunin býður upp á allt þetta. Læknisfræðin hefur allt til alls og er algjörlega þess virði.
Ljósmynd af Thelmu Kristinsdóttur
Nám í læknisfræði er á sama tíma mjög krefjandi og ótrúlega skemmtilegt. Áfangarnir eru settir upp í lotukerfi svo maður getur einbeitt sér vel að hverju fagi og klárað þau jafnóðum. Námið er oft á tíðum bæði erfitt og tímafrekt og þá eru stuðningur samnemenda og samstaðan innan árganga ómissandi. Árgangarnir eru litlir og allir eru í sömu áföngum svo það myndast mikil bekkjarstemning. Þrátt fyrir að mikill tími fari í námið er félagslífið mjög gott, alltaf nóg að gera og margar nefndir til að sitja í. Ég mæli óhikað með námi í læknisfræði.
Ljósmynd af Þórdísi Þorkelsdóttur
Nám í læknisfræði er langt, grunnnámið er sex ár og eftir það tekur við sérfræðinám og því verður að gera ráð fyrir að minnsta kosti áratugalangri framhaldsmenntun. Grunnnámið er tvískipt. Fyrstu þrjú árin eru að miklu leiti bókleg menntun í grunnvísindum, eðlilegri lífefna- og lífeðlisfræði líkamans ásamt því hvað getur farið úrskeiðis. Seinni þrjú árin eru að mestu verkleg kennsla sem fer fram á mismunandi sviðum og deildum Landspítalans. Verklega kennslan fer fram á dagvinnutíma og á nemavöktum sem eru ekki launaðar. Utan þess þarf að finna tíma til að tileinka sér bóklega námsefnið og því er námið óneitanlega mjög tímafrekt og krefjandi en einnig ákaflega skemmtilegt, fjölbreytt og áhugavekjandi. Ásamt því er óumflýjanlegt að eignast mjög góða vini sem munu vonandi endast út ævina.
Ljósmynd af Teiti Ara Theódórssyni
Fyrri þrjú ár námsins eru byggð upp af grunnfögum læknisfræðinnar. Þau veigamestu telja líffærafræði (e. anatomy), lífeðlisfræði, lífefnafræði, lyfjafræði og meinafræði. Skiptist námið þannig að á 1. ári er líffærafræðin fyrirferðarmest, á 2. ári kveður lífeðlis- og lífefnafræðin sér rúms en á 3. ári er tími lyfja- og meinafræðinnar kominn. Bygging námsins er í línulegri röð, þ.e. til þess að öðlast nýja þekkingu þarf sífellt að ryfja upp það sem áður hefur verið lært. Sem gerir það að verkum að þrátt fyrir að náminu sé skipt niður í áfanga hjálpar það nemandanum að byggja upp heildarmynd af virkni og starfsemi líkamans.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Skrifstofa læknadeildar
Virka daga 9:00 – 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Læknagarðar

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil