""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækurnar eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að verða læknir, stunda vísindarannsóknir eða hvoru tveggja?
  • Viltu læra allt um mannslíkamann og starfsemi hans?
  • Viltu stunda krefjandi nám sem byggir á líf- og raunvísindum?
  • Hefur þú áhuga á að vinna náið með fólki?
  • Langar þig í nám sem er bæði bóklegt og verklegt?
  • Langar þig í grunnnám sem býður upp á fjölbreytta möguleika á framhaldsnámi?

BS nám í læknisfræði er fyrsta skrefið í læknanámi en inntökupróf er í námið. 

Markmið og sýn læknanámsins

Markmið læknanámsins
Að skila íslensku samfélagi læknum sem geta veitt hágæða heilbrigðisþjónustu innan lands sem utan með framúrskarandi kennslu og nýsköpun í rannsóknum. Námið elur af sér fyrirmyndar lækna sem starfa saman að því að ástunda félagslega ábyrgar lækningar grundvallaðar á vísindum.

Sýn læknanámsins
Læknanám við Háskóla Íslands stefnir að því að verða öðrum læknaskólum fyrirmynd ásamt því að hafa jákvæð áhrif á heilsu og velferð íslensks samfélags með menntun og rannsóknum.

Uppbygging náms

Á fyrsta og öðru ári eru kenndar undirstöðugreinar eins og efnafræði og eðlisfræði. Einnig eru kenndar greinar sem nauðsynlegar eru til þess að skilja starfsemi mannslíkamans:

  • líffærafræði
  • vefjafræði
  • frumulíffræði
  • fósturfræði
  • lífeðlisfræði
  • lífefnafræði

Fjallað er um gerð líkamans, vefja hans og líffæra. Einnig er fjallað um frumur er mynda líffærin, tengsl þeirra og starfsemi. Ýmsir þættir læknisstarfsins eru kynntir, t.d. samskipti við sjúklinga og aðferðir til að viðhalda þekkingu.

Á þriðja námsári læra nemendur um ýmsa þætti er truflað geta eðlilega uppbyggingu og starfsemi líkamans og valdið sjúkdómum (meinafræði, ónæmisfræði, veirufræði og sýklafræði) og grunn að fyrstu meðferðarúrræðum í formi lyfjagjafa (lyfjafræði).

Í lok þriðja árs er 10 vikna rannsóknatími þar sem læknanemar vinna að sjálfstæðum rannsóknum undir handleiðslu kennara. Margir nemendur kjósa að vinna verkefnin erlendis og geta m.a. farið sem skiptinemar til Norðurlandanna eða annarra landa í Evrópu á vegum Nordplus eða Erasmus. Nemendur geta einnig dvalið erlendis sem skiptinemar á öðrum tímabilum í náminu.

Mat á fyrra námi

Hafi nemendur lokið sambærilegum námskeiðum (að einingafjölda og innihaldi) og þeim er ætlað að taka samkvæmt skipulagi í læknisfræði í kennsluskrá HÍ, geta þeir sent inn formlega beiðni um mat á fyrra námi innan 2ja vikna frá því að nám á viðkomandi misseri hefst. Einkunn í þeim námskeiðum sem metin eru skal ekki vera lægri en því sem nemur 6,0 í einkunnakerfi Háskóla Íslands og aldur þeirra prófa skal ekki vera meiri en 3-4 ár að jafnaði.

Hafi námskeið sem óskað er eftir að verði metið verið lokið við annan háskóla þarf einnig að skila inn staðfestu afriti af prófvottorði ásamt námskeiðslýsingu frá viðkomandi háskóla til skrifstofu læknadeildar. Deildin aflar umsagnar umsjónarkennara í viðkomandi grein áður en ákvörðun um mat er tekin.

Annað

Námið veitir aðgang að kandídatsnámi í læknisfræði

Stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi frá tækni- og verkfræðigrunni háskólagrunns Háskólans í Reykjavík eða verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar. 
Nemendur eru teknir inn í grunnnám í læknisfræði á grundvelli inntökuprófs sem haldið er í júní ár hvert. Inntökuprófið byggist að hluta til á námsefni framhaldsskólanna, en einnig reynir á almenna þekkingu, siðfræðilega afstöðu og rökhugsun. Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms í læknisfræði við deildina er takmarkaður, nú við 75.

Sjá Reglur um inntökuskilyrði í grunnnám (2022) og Reglur um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði í Læknadeild Háskóla Íslands.

Ljúka þarf 180e fyrir BS próf, eða 60e á hverju ári. Stúdent skal hafa lokið öllum prófum hvers árs, áður en hann hefur nám á næsta námsári. Kennslu er hagað þannig að unnt er að ljúka námi á þrem árum en heildarnámstími má ekki vera lengri en fjögur ár.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Heilsársnámskeið
Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Sálarfræði I (LÆK225G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á þessu námskeiði er fjallað um grunnþætti heilsusálfræði, kenningar um heilsuhegðun, áhrif viðhorfa, tilfinningar og hegðunar á getu einstaklinga til að sinna eigin heilsu og takast á við heilsutengdar breytingar. Fjallað verður í þessu samhengi um nokkur af helstu viðfangsefnum sálfræðinnar svo sem þroska, sjálfsmynd, persónuleika, bjargráða, streitu og áföll.

Kennsla er í formi fyrirlestra og verklegrar kennslu. Æfingar tengt námsefninu eru unnar samhliða fyrirlestrum ýmist í tímum eða milli tíma. Prófað verður úr námsefninu á verklegu stöðvaprófi þar sem áhersla er lögð á að prófa fræðilega þekkingu samhliða því að meta hve vel gengur að miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt í samræmi við góða samskipta hætti.

Námskeiðið er samkennt LÆK226G Klínisk aðferð: Samskiptafræði - læknir/sjúklingur I

Læknanemar munu halda áfram að vinna með þessi viðfangsefni í samskiptafræði og sálfræði á 2 ári og umræðuhópum á 3-6 ári.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Heilsársnámskeið
Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur I (LÆK226G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Að vera læknir
  • Að vera sjúklingur
  • Samskipti og samband læknis og sjúklings skoðuð frá ýmsum sjónarhornum.
  • Mikilvægi þess að hlusta af athygli og nálgast vanda frá sjónarhóli sjúklings.
  • Grunn siðfræðinnar og sérkenni heilbrigðissiðfræðinnar
  • Dygðuga manngerð og gagnrýna hugsun í samhengi læknisfræðinnar
  • Siðfræðileg gildisviðmið, frumskyldur og siðareglur lækna
  • Fagmennsku og góða starfshætti lækna
  • Lög um þagnarskyldu og réttindi sjúklinga.

Námskeiðið er samkennt LÆK225G Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Sálarfræði I.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Að verða/vera læknir (LÆK123G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er á fyrstu tveimur vikum náms í læknisfræði og er ætlað að gefa nemendum innsýn í það starf sem bíður þeirra sem læknanema og lækna.

Námskeiðið er hluti af námskeiðinu LÆK226G Klínisk aðferð: Samskiptafræði - læknir/sjúklingur og kemur námsefni til prófs á stöðvaprófi á vorönn. 

Megináherslur:

Námskeiðinu er ætlað að veita innsýn í uppbyggingu námsins, kynna mikilvægi teymisvinnu, siðfræði, ábyrgðar og fagmennsku ásamt vísindalegra vinnubragða.

Í fyrri vikunni er fjallað um samskipti læknis og sjúklings, siðfræði, ábyrgð og fagmennsku lækna, uppbyggingu heilbrigðiskerfisins og heilsu lækna. Hlutverk annarra fagaðila verða kynnt og lögð áhersla á mikilvægi samskipta fagaðila sín á milli og við sjúklinga.  Menntun, samþætting vísinda í læknisnáminu og hálfur dagur tileinkaður forvörnum og hvernig þrær eru hluti af daglegu starfi læknis. Hálfur dagur er umræðutímar um atriði er varða lífsgæði , ábyrgð sjúklinga á eigin heilsu, meðferðarheldni og óhefðbundnar lækningar. Félag læknanema kynnir starfsemi félagsins og þá forvarnarhópa sem starfræktir eru á þeirra vegum. 

Síðari vikan er helguð þjálfun í fyrstu viðbrögðum. Nemendur taka RKÍ námskeið um fyrstuhjálp, fá kynningu um móttöku slasaðra og Bjargráðsliðar læknanema skipuleggja kennslu og æfingar í bráðaviðbrögðum. Saga læknisfræðinnar er kynnt og nemendur kynna verkefni því tengt. Í einni af fyrstu vikunum á haustmisseri skipuleggur Heilbrigðisvísindasvið móttöku nýnema.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Efnafræði 2 (EFN103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lífræn efnafræði er mikilvægt undirstöðu fag fyrir læknisfræði. Þegar lífefnafræðilegir ferlar sem eiga sér stað í líkama okkar eru skoðaðir, þá erum við í raun oft að skoða misflókin lífrænni efnahvörf. Lífræn efnafræði skiptir einnig miklu máli þegar virkniháttur lyfja er skoðaður og þar getur þrívíddarlögun lyfjanna haft gríðarleg áhrif.

Í þessu námskeiði verður farið yfir grunnatriði lífrænnar efnafræði. Farið verður yfir helstu kennihópa lífrænna efnasambanda, eiginleika þeirra og rúmefnafræði. Sérstök áherlsa verður lögð á efnahvörf lífrænna efna, hvarfganga þeirra og hvernig við getum nýtt efnahvörfin til að smíða önnur lífræn efni. Námsefnið mun byggja á fyrstu 12 köflum námsbókarinnar "Fundamentals of Organic Chemistry" eftir John McMurry.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Efnafræði 3 (EFN104G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennt í fimm vikur í upphafi kennsluárs.

Námskeið fyrir nemendur í læknisfræði. Verklegar æfingar í almennri og lífrænni efnafræði: Algeng vinnubrögð á tilraunastofu. Magngreining. Sýru-basa eiginleikar og sýrustigsmælingar. Ákvörðun á jafnvægisfasta efnahvarfs og magngreining á járni í járntöflu með ljósmælingum. Efnasmíði nokkurra lífrænna efna með skiptihvarfi og alkýlun. Greining lífrænna kennihópa með afleiðum og þunnlagsskilju. Stoðfyrirlestrar tengja saman hagnýt atriði verklegu æfinganna og fræðilega undirstöðu þeirra í samræmi við fjölritað vinnuhefti og kennslubækur.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Líffærafræði IB (LÆK115G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Stórsæ líffærafræði útlima og bols.

Í fyrirlestrum og verklegum tímum er farið kerfisbundið yfir sértæka líffærafræði (anatomia systematica), líffærafræði svæða (anatomia topographica), yfirborðsútlit og starfsemi (anatomia functionalis) útlima og bols. Fyrirlestraskrá varðandi námsefni hverrar kennslustundar verður aðgengilegt við upphaf námskeiðs.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Læknisfræðileg eðlisfræði (LÆK117G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla er að mestu á formi fyrirlestra en æfingaverkefnum og umræðu er blandað inn í tímana jafnóðum. Sjá nánar í kennsluáætlun á Canvas.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Líffærafræði IA - Almenn (LÆK120G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Almenn líffærafræði (general anatomy) er tekur til byggingar þ.e. gerð og útlits mannslíkamans. Í fyrirlestrum er farið kerfisbundið yfir almenna líffærafræði mannslíkamans, bæði stórsæar og smásæar byggingar frá vefjum um líffæri og líffærakerfi til samþáttunar í fullþroska mannslíkama. Í verklegum tímum er farið í smásæa bygginu grunnvefja líkamans. Ennfremur er vísað til fyrirlestraskrár varðandi námsefnið, sem afhent verður í upphafi námskeiðs.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Vísindalæsi (LÆK034G)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna vísindaleg vinnubrögð við heimildaleit, lestur og túlkun á vísindagreinum. Námskeiðið er ætlað læknanemum sem hafa hug á að gera rannsóknir að veigamiklum þætti í námi og starfi og verður skyldunámskeið fyrir þá sem stefna á rannsóknatengt nám samhliða klínísku læknanámi. Efni verður kynnt með fyrirlestrum en mikil áhersla lögð á að fara yfir raunveruleg dæmi í tímunum og þjálfun með heimaverkefnum. Námsmat verður byggt á þátttöku í hópavinnu og verkefnaskilum. Fjögur skipti, 3 klst. í senn.

Leit að upplýsingum
Kynntar verða aðferðir til að framkvæma markvissa leit að upplýsingum meðal birtra vísindagreina innan læknisfræði. Farið verður í skilgreiningu á klínísku vandamáli út frá „PICO“ (Patient, intervention, comparison, outcome) til að leit að vísindagreinum skili sem bestum áringri. Gerð verður grein fyrir helstu gagnagrunnum vísindagreina í læknisfræði. Farið verður í MEDLINE gagnagrunninn, leitarorð (Medical subject Heading, MeSH) PUBMED leitarvélina og MEDLINE leit í gegnum tölfræðiforritið R.  Einnig verða aðrir gagnagrunnar kynntir td. EMBASE, Google Scholar, Uptodate og Cochrane safnið.

Lestur vísindagreina
Kynntar verða helstu gerðir vísindagreina í læknisfræði, þ.á.m. vísindagrein (original scientific paper) sem byggir á eigin niðurstöðum og gögnum, yfirlitsgreinar af mismunandi gerðum, safngreiningar (meta-analysis) og klínískar leiðbeiningar sem að byggja á birtum niðurstöðum. Leiðbeint verður við að nálgast efni í skilvirkan hátt til þess að ná utan um helstu niðurstöður og skilaboð.

Skilningur á vísindagreinum
Farið verður í uppbyggingu vísindagreina í læknisfræði og tekin dæmi af vísindagreinum sem byggja á aðferðum sameindalíffræði annars vegar og faralds- og líftölfræði hins vegar. Farið verður í framsetningu gagna með töflum og myndum og ýmis tæknileg atriði sem eru nauðsynleg til skilnings.

Túlkun á vísindagreinum
Fjallað verður um trúverðugleika og áreiðanleika, almennt og sértækt gildi niðurstaðna frá vísindalegu og læknisfræðilegu sjónarmiði. Kynntar aðferðir gagnreyndrar læknisfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn (HVS202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Líffærafræði IA - Fósturfræði (LÆK220G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fósturfræði. Kynnt verða grundvallaratriði í fósturfræði: heiti (íslenskt, latneskt, enskt) atburða í fósturþroska, ferli breytinga í fósturþroska og stjórnun þeirra, orsakir og afleiðingar truflaðrar myndunar. Miðlun þessarar þekkingar til fagaðila, sjúklinga og almennings.
Kynntar verða með lestri greina helstu rannsóknir í fósturfræði og hvernig nota má þær til ákvarðanatöku (klíník og stefnumörkun) um greiningu og meðferð vandamála og miðlun þeirra ákvarðana til fagaðila, sjúklinga og almennings.
Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði fósturfræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Námsefnið kemur fram í fyrirlestraskrá í CANVAS við upphafi námskeiðs.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Líffærafræði IIA (LÆK221G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Taugalíffærafræði og líffærafræði höfuðs og háls. Líffæra- og fósturfræði höfuðs og háls. Í fyrirlestrum er farið yfir fósturfræði, líffærakerfi (anatomia systemica) og svæði (anatomia topographica) höfuðs og háls. Sýnikennsla eftir því sem aðstæður leyfa. Líffæra- og fósturfræði taugakerfis. Í líffærafræði er farið yfir fósturþroska og starfræn kerfi taugakerfis. Í verklegum-/sýnikennslutímum er farið yfir ytri og innri gerð heilans.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Frumulíffræði og erfðafræði (LÆK222G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Frumulíffræði fyrirlestrar (34F): Inngangur; þróun lífsins; frumuhimna: lífefnafræði og frumulíffræði; kjarninn: gen og genastjórn, litni, bygging kjarnans, kjarnahjúpur; frymisnet og Golgi líffæri; bólur og blöðrur; lýsósóm, peroxisóm og hvatberar; stoðkerfi og hreyfiprótein; frumuskipting; frumutengi og millifrumuefni (frumulíffræði og lífefnafræði); boðskipti (inngangur); þroskun og sérhæfing.

Sex umræðuefni: Frumuvinna á rannsóknarstofu, Vísindagrein, Smásjártækni við frumurannsóknir, Nóbelsverðlaun í Læknisfræði, Frumudauði og Hornsteinar krabbameina.

Erfðafræði fyrirlestrar (16F): Farið er yfir viðfangsefni, hugtök og aðferðir í erfðafræði. Fjallað er um gen, samsætur, erfðamengi, litninga, mítósu og meiósu, mendelískar, mítókondríu- og fjölþátta erfðir, erfðatölfræði, tengslagreiningu og genakortlagningu, þróun og þroskunarfræði. Dæmi eru tekin um notkun erfðafræði í læknisfræði. Kynning á upplýsingatækni í erfðafræði og skyldum greinum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Frumulífeðlisfræði (LÆK223G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla er í formi fyrirlestra og umræðutíma.

Efni fyrirlestra: Fjallað verður um samvægi, sveim, osmósu, himnuspennu, stigspennur, bospennur, ýmsar flutningsleiðir yfir himnur, taugamót, jónagöng og gangakvilla.

Í umræðu- og verkefnatímum verður æfð beiting þekkingar úr fyrirlestrum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Líffærafræði IIB (LÆK224G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Stórsæ líffærafræði (macroanatomia) innri (iðrar) líffæra. Í fyrirlestrum er farið yfir líffærafræði brjósthols-, kviðarhols- og grindarholslíffæra og fósturfræði þeirra kynnt þar sem við á. Einnig er kynnt yfirborðs líffærafræði búks og spangar þar sem bygging búk- og spangar veggjanna er skoðuð sérstaklega. Fyrirlestrar byggja á kliniskum tilfellum þar sem því verður við komið svo auka megi skilning vægi byggingar í klinisku samhengi.

Smásæ líffærafræði er tekur til sértækra byggingarþátta vefja. Smásæa vefjagreðin er skoðuð í smásjá (verklegir tímar) en í fyrirlestrum er lögð áhersla á samþáttun ólíkra vefjagerða í einstökum líffærum og er einkennandi fyrir starf þeirra (histologia functionalis).

Kennsla í LÆK224G byggist á hefðbundnum fyrirlestrum, netfyrirlestrum, umræðutímum og verkefnum auk þess sem í vefjafræðihluta námskeiðsins eru verklegar æfingar í smásjárskoðun. Kennslufyrirkomulag í námskeiðinu er í stöðugri endurskoðun er taka til framfara í kennslu og því er áskilinn réttur til breytinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Heilsársnámskeið
Lífeðlisfræði B (LÆK409G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
9 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu eru fyrirlestrar, hópverkefni í kennslustofu, verklegar æfingar með umræðutímum í kjölfarið, áfangapróf og verkleg próf. Skyldumæting er í verklegar æfingar og umræðutímana sem þeim tengjast.

Efni fyrirlestra er skipt í sex hluta:

  1. Blóðrásarkerfið: Hjartað sem dæla, raflífeðlisfræði hjartans, æðakerfið og stjórnun hjarta og æðakerfisins.
  2. Nýru, vökvi og jónir: Píplustarfssemi, vökvahólf, stjórnun blóðrúmmáls og jónavægis. Kalíum-, sýrubasavægi
  3. Öndun: Loftflæði, loftskipti, flutningur lofttegunda með blóði og stjórn öndunar. 
  4. Melting: Hreyfingar, seytun, upptaka. Stjórn meltingar og fæðuinntöku
  5. Ýktar ytri aðstæður, efnaskipti og vöxtur: Hár og lágur loftþrýstingur, hitastjórnun, orkuefnaskipti, hormónastjórn efnaskipta, vaxtar og kalsíumfosfatsvægis.
  6. Æxlun: Hormónastjórn kynfæra og æxlunar, þungun, fæðing og mjólkun.

Hópverkefni eru sex talsins og fylgja hverjum fyrirlestrarhluta. Nemendur vinna í þriggja manna hópum að verkefnum tengdum námsefninu, taka stutt próf, skrifa og lesa jafningjamat.

Áfangapróf eru reglulega yfir námstímann úr efni fyrirlestra.

Verklegar æfingar: 

  • Hjarta og blóðrás
  • Vökva- og jónavægi
  • Áreynslulífeðlisfræði

Umræðutímar og verklegt próf: Nemendur kynna niðurstöður sínar úr verklegu æfingunni, túlka þær og tengja við fræðin. Að loknum umræðutímum verða verkleg próf úr efni æfinganna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Heilsársnámskeið
Lífefna- og sameindalíffræði B (LÆK410G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
9 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Innihald námskeiðs:

Fyrirlestrar: Háorkusambönd, efnaskipti kolvetna, fitu og amínósýra, samhæfing efnaskipta, núkleótíð, plasma prótein og blóðstorka, járn, hem, lifur, næring, hormón.

Verklegar æfingar: Einangrun próteins á gripsúlu, mæling á próteinstyrk, ónæmismæling (ELISA).

Hópumræður: Samhæfing efnaskipta, næring.

TBL: Valið efni

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Heilsársnámskeið
Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Sálarfræði II (LÆK411G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að þjálfa færni í grundvallaratriðum (A) hugrænnar atferlismeðferðar og (B) hvatningar samtals og nýtingu þessara aðferða í viðtölum við sjúklinga í almennu starfi læknis.

Meginþættir námskeiðsins eru: 1) Fræðilegur bakgrunnur og grundvallarhugtök Hugrænnar atferlismeðferðar (HAM). 2) Grunn kortlagning vanda sjúklings skv. aðferðum HAM. 3) Hvernig er hægt að nota HAM í viðtali við sjúkling til að hafa áhrif á hugsun og hegðun. 4) Fræðilegur bakgrunnur og grundvallarhugtök hvatningarsamtals. 5) Kortlagning breytingarferlis sjúkling. 6) Hvernig nota má hvatningarsamtal í viðtölum við sjúklinga.

Kennsla er í formi fyrirlestra og verklegrar kennslu. Verklegar samtalsæfingar eru samhliða fyrirlestrum þar sem viðfangsefni námskeiðsins eru æfð. Prófað verður úr námsefninu á verklegu stöðvaprófi.

Læknanemar munu halda áfram að vinna með þessi viðfangsefni í umræðuhópum á 3-6 ári.

Námskeiðið er kennt í samvinnu við Klínísk aðferð: Samskipti læknis og sjúklings II (LÆK412G).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Heilsársnámskeið
Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur II (LÆK412G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðs er að þjálfa færni í sjúklingsviðmiðuðum samskiptum læknis og sjúklings. Farið er í uppbyggingu samtals læknis og sjúklings, samskiptafræði, samtalstækni, líkamsskoðun, grunnatriði í sýkingarvörnum, sálfræði og siðfræði og byggir kennslan á þekkingu og hæfnikröfum í LÆK123, LÆK226 og LÆK225.

Kennsla er í formi fyrirlestra með umræðuívafi, umræðutíma og verklegrar kennslu. Verklegar samtalsæfingar eru á haustönn þar sem læknisviðtalið er æft og tekið á sterkum tilfinningum í samskiptum. Farið verður í grunnatriði í ritun og notkun sjúkraskrár. Líkamsskoðun er kennd og æfð í færnibúðum í litlum hópum nemenda undir handleiðslu kennara. Verklegt nám er á heilsugæslustöðvum og á sjúkrahúsi þar sem nemendur fylgjast með störfum læknis og æfa samtöl og líkamsskoðun.

Prófað verður á stöðvaprófi úr atriðum er tengjast færni í samskiptum, líkamsskoðun, notkun sjúkraskrár og umræðu um siðfræðileg álitaefni.

Læknanemar munu halda áfram að vinna með þessi viðfangsefni í umræðuhópum á 3-6 ári.

Námskeiðið er samkennt LÆK411G Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Sálfræði II.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Heilsársnámskeið
Lausnamiðað nám (LÆK418G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þjálfun í að tengja saman þekkingu úr grunngreinum og nýta við greiningu vandamála í sjúkrasögum einstaklinga og að afla skilgreindar þekkingar með sjálfsnámi á ábyrgan hátt. Þjálfun í teymisvinnu, faglegum vinnubrögðum, ábyrgri öflun þekkingar og miðlun innan hóps (töflukynningar).

Nemendur vinna í hóp að því að skilgreina hvaða þekkingu eða upplýsingar hópinn vantar til að komast að því hvaða vandamál eru til staðar í einstaklingi hvers sjúkrasögu þau fá. Nemendur leggja fram tilgátur að því hvaða ferli tengjast sjúkdómsástandi og  á milli hópavinnutímanna afla þeir sér frekari þekkingar (sjálfsnám). Á síðari degi miðla nemendur með töflukynningu þeim upplýsingum sem þeir hafa aflað. Að lokum kemur hópurinn sér saman um hver niðurstaðan er, þ.e. hvaða sjúkdómur hrjáir einstaklinginn. Tilfellin eru raunveruleg og byggja á einkennum og sögu ónafngreindra einstaklinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Heilsársnámskeið
Ástráður (LÆK416G)
Valnámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ástráður kynfræðslufélag læknanema stendur fyrir Ástráðsviku á haustmisseri fyrir 2.árs læknanema. Vikan undirbýr nemendur til að halda fyrirlestra í framhaldsskólum landsins. Farið verður yfir kynheilbrigði, kynlíf, kynhneigðir og fleira sem að því kemur. Kennslan verður í formi fyrirlestra en fyrirlesararnir koma úr öllum áttum. Læknanemar í stjórn Ástráðs skipuleggja Ástráðsvikuna og fleira sem að því kemur.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Lífeðlisfræði A (LÆK313G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námsefni: Kennsla er í formi fyrirlestra, áfangaprófa, verklegra æfinga, verkprófa, umræðufunda og lausnarleitarnáms (PBL). Skylt er að mæta í PBL og allar verklegar æfingar, taka verkpróf, skila skýrslum og mæta á umræðufundi.
Efni fyrirlestra: Lífeðlisfræði taugakerfisins: Skipulag og boðflutningur í miðtaugakerfinu, sjálfvirka og viljastýrða taugakerfið, mænuviðbrögð og stjórn hreyfinga. Skynjunarlífeðlisfræði: Almenn skynjun, húðskyn, sársauki, sjónskyn, heyrnarskyn, jafnvægi, efnaskyn. Heilastarfsemi: Nám, minni, samskipti, hegðun, tilfinningar, vitundarstig, svefn, dægursveiflur.
Verklegar æfingar: (1) Vöðvar og viðbrögð. (2) Heilastarfsemi.  Og tilheyrandi umræðutímar og verkpróf.
Lausnaleit (PBL): Taugar, vöðvar, bein, prótein, erfðaefni, erfðatækni.
LÆK313G er annað af þremur námskeiðum um lífeðlisfræði mannslíkamans fyrir læknanema (ásamt LÆK223G og LÆK409G).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Lífefna- og sameindalíffræði A (LÆK314G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni, hugtök og aðferðir í lífefna- og sameindalíffræði. Erfðamengi, erfðaefni og efnaskipti DNA, erfðatækni. RNA, tjáning gena, umritun og þýðing. Prótein, ensím og próteinlyf. Transgenísk tilraunadýr. Lífupplýsingafræði. Sameindalíffræði veira og genalækningar. Frumuhringur, apoptosis og sameindaerfðafræði krabbameins. Sjúkdómalífefnafræði og dæmi um notkun lífefna- og sameindalíffræði í læknisfræði.

Hópumræður: Erfðamengið og efnaskipti DNA; RNA, tjáning og starfsemi RNA og próteina.

Lausnaleit (PBL): Erfðamengið, tjáning gena, starfsemi próteina.

Vefverkefni: Lífupplýsingafræði og notkun hennar með tilliti til sjúkdóma.

Sjúkdómalífefnafræði: Dæmi um lífefna- og sameindalíffræði sjúkdóma.

Verklegar æfingar: Einangrun og greining á DNA úr blóði.

Þátttakendur: Nemendur á 2. ári í læknisfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Ónæmisfræði (LÆK415G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Við lok námskeiðsins eiga nemendur að kunna skil á grunnþáttum ónæmiskerfisins og jafnframt hafa öðlast grunnþekkingu á megin rannsóknaraðferðum ónæmisfræðinnar. Ætlast er til að gera nemendur læsa á almennar læknisfræðilegar yfirlitsgreinar um ónæmisfræði, þannig að þeir geti fylgst með þróun greinarinnar og þekkt leiðir til að fyrirbyggja, greina og lækna sjúkdóma. Ætlast er til, að nemendur tileinki sér helstu grundvallaratriði heilbrigðs ónæmiskerfis, ónæmisbilanir, ofnæmi, sjálfsofnæmi og hlutdeild ónæmiskerfisins í tilurð og meingerð sjúkdóma almennt. Einnig verður farið yfir grunnatriði klínískrar ónæmisfræði. Stefnt er að því að nemendur geti skilið orsakasamhengi milli verkana ónæmiskerfisins og vissra sjúkdómsmyndana, sem þeir kynnast betur í síðari hluta klíníska námsins á 4 ári læknisfræðinnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Vor
Sýkla- og veirufræði (LÆK417G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
11 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið tekur til grundvallaratriða varðandi sýkla (bakteríur, veirur, sveppir og sníkjudýr) sem valda sjúkdómum í mönnum. Kennslan er í formi fyrirlestra, verklegra æfinga og umræðutíma/teymisnáms (TBL, team-based learning).

  • Í upphafi námskeiðsins verða fyrirlestrar um almenna sýkla- og veirufræði, þar á meðal flokkun og byggingu sýkla, samspil sýkils og hýsils, meinmyndun (pathogenesis) sýkinga, greiningaraðferðir og greiningarferli á sýkla- og veirufræðideildum.
  • Í kjölfarið verður farið nánar í einstaka meinvalda sem valda sýkingum hjá mönnum með áherslu á smitleiðir, faraldsfræði, sjúkdómsmyndun, klínísk einkenni og fylgikvilla sýkinga, greiningu sýkla á rannsóknarstofu og forvarnir.
  • Að lokum verður farið í grunnatriði klínískrar sýkla- og veirufræði með áherslu á einkennamiðaða nálgun tengt einstökum líffærakerfum og fer sú kennsla m.a. fram sem TBL.
  • Í verklega hluta námskeiðsins fá nemendur þjálfun í notkun einfaldra aðferða við rannsóknir og greiningu algengra sýkingavalda og kennd verða grundavallaratriði við túlkun og mat á rannsóknaniðurstöðum. Nemendum er skipt upp í minni hópa og hver nemandi er samfellt eina viku, eftir hádegi, í verklegum tímum og skilar inn verkefnahefti í lok vikunnar.
  • Mætingarskylda er í verklegar æfingar og teymisnám (TBL).
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Heilsársnámskeið
Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur III (LÆK615G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í upphafi námskeiðsins eru fyrirlestrar en síðan fer kennslan fram í litlum hópum (4-6 nemendur) með kennara þar sem nemendur fá þjálfun í töku sjúkrasögu og líkamsskoðun. Enn fremur fá nemendur að spreyta sig á skráningu klínískra upplýsinga og kynningu sjúkratilfella.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
 
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

Kennslutungumál: Íslenska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Meinafræði (LÆK514G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
14 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

A1: Fyrirlestrar: Almenn meinafræði: Frumuskemmdir, frumudauði, frumuaðlögun, efnasafnanir, blóðfylla, bólga, viðgerð vefja, vökvasafnanir, blæðing, storka, segar, blóðrek, æxli.

A2: Fyrirlestrar: Sérhæfð meinafræði: Hjarta- og æðasjúkdómar, lungnasjúkdómar, sjúkdómar í munni, munnvatnskirtlum og meltingarvegi, taugameinafræði, sjúkdómar í lifur, gallvegum og brisi, sjúkdómar í þvagfærum, sjúkdómar í kynfærum karla, sjúkdómar í kynfærum kvenna, sjúkdómar í brjóstum, sjúkdómar í innkirtlum, blóð- og eitilvefssjúkdómar og sjúkdómar í stoðvefjum.

B: Verklegt nám: Meinvefjafræði með sýnikennslu. Verklegar æfingar í smásjárskoðun sjúkra vefja undir leiðsögn kennara. Lýkur með 30 mínútna verklegu prófi í lok námskeiðs. Það er mætingarskylda í verklega tíma.

C: Sýnikennsla: Sýndar eru krufningar, skurðsýni og rætt um ýmis viðfangsefni í meinafræði í því sambandi, samkvæmt nánara samkomulagi kennara og nemenda.

D: Sjúkratilfelli: Í þessum tímum fást læknanemar við sjúkratilfelli sem tengjast námsefni lyfja- og/eða meinafræði. Þessir tímar eru skipulagðir í sameiningu af kennurum í meinafræði og lyfjafræði en með þátttöku klínískra kennara deildarinnar. Í þessum tímum er leitast við að tengja námið í meinafræði og lyfjafræði við klíníska læknisfræði. Læknanemum er skipt upp í hópa. Hver hópur fær í hendurnar sjúkrasögur, sem nemendur glíma við og kynna síðan fyrir samnemendum sínum og kennurum. Leitast skal við að virkja vel samnemendur í salnum að láta þannig nemendur taka þátt í að komast að sjúkdómsgreiningum með því að stinga upp á sjúkdómum sem til greina koma út frá einkennum og koma með tillögur að rannsóknum sem að gagni gætu komið við uppvinnslu sjúklings. Einkunn er byggð á mætingu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Lyfja- og eiturefnafræði (LÆK515G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
14 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið með kennslu í lyfjafræði í læknadeild (líflyfjafræði; medical pharmacology) er að veita læknanemum fræðslu um verkunarmáta helstu lyfja og lyfjaflokka sem notaðir eru við lækningar.

Veigamesti hluti kennslunnar er lyfhrifafræði (pharmacodynamics), er tekur til hinna sérstöku verkana lyfja (lyfhrifa) á tiltekin líffæri eða líffærakerfi (hjartalyf, lyf með verkun á úttaugakerfið o.s.frv.), svo og til verkunarháttar lyfjanna (með hverjum hætti lyfin verka á frumur hlutaðeigandi líffæra eða líffærakerfa eða sýkla, ef um sýklalyf er að ræða).

Önnur aðalgrein líflyfjafræði er lyfjahvarfafræði (pharmacokinetics) sem fjallar um það hvernig lyf komast, eftir gjöf eða töku, inn í líkamann (í blóðbraut), dreifast um hann, skiljast út eða umbreytast í önnur efni, svo og ýmis önnur atriði, sem sameiginleg eru öllum lyfjum eða miklum fjölda lyfja.

Kennsla í eiturefnafræði (toxicology) beinist að því að nemendur kynnist eiturhrifum (sbr. lyfhrif) helstu efna annarra en lyfja, er þeir kunna að hafa afskipti af við læknisstörf eða þurfa að hafa nokkra þekkingu á með öðrum hætti.

Sjúkratilfelli: Í þessum tímum fást læknanemar við sjúkratilfelli sem tengjast námsefni lyfja- og/eða meinafræði. Þessir tímar eru skipulagðir í sameiningu af kennurum í meinafræði og lyfjafræði en með þátttöku klínískra kennara deildarinnar. Í þessum tímum er leitast við að tengja námið í meinafræði og lyfjafræði við klíníska læknisfræði. Læknanemum er skipt upp í hópa. Hver hópur fær í hendurnar sjúkrasögur, sem nemendur glíma við og kynna síðan fyrir samnemendum sínum og kennurum. Leitast skal við að virkja vel samnemendur í salnum að láta þannig nemendur taka þátt í að komast að sjúkdómsgreiningum með því að stinga upp á sjúkdómum sem til greina koma út frá einkennum og koma með tillögur að rannsóknum sem að gagni gætu komið við uppvinnslu sjúklings. Það er mætingarskylda í sjúkratilfellatíma. Tilkynna þarf forföll.

Ábyrgð og umsjón:

Kristín Ólafsdóttir, dósent

Magnús Karl Magnússon, prófessor

Læknadeild, Rannsóknastofa í Lyfja og eiturefnafræði

Haga, Hofsvallagötu 53, 107 Reykjavík

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Rannsóknarverkefni (LÆK517G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

LÆK517G á haustmisseri er undanfari LÆK601L á vormisseri og sameiginlegt markmið þeirra er að gefa læknanemum tækifæri til þess að vinna að eigin rannsóknarverkefni undir handleiðslu. Allar tillögur að rannsóknarverkefnum eru yfirfarnar og samþykktar af nefnd um rannsóknanám læknanema (NURL). Nemar tileinka sér vísindaleg vinnubrögð við gagnaöflun/tilraunir, úrvinnslu gagna og túlkun niðurstaðna. Nemendur kynna niðurstöður verkefnisins með fyrirlestri á ráðstefnu og skrifa ritgerð á íslensku um efnið. Sækja má um undanþágu til að skila ritgerð á ensku ef móðurmál nemans er ekki íslenska eða leiðbeinendur lesa ekki íslensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Rannsóknarverkefni (LÆK601L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að gefa læknanemum tækifæri til þess að vinna að eigin rannsóknarverkefni undir handleiðslu. Allar tillögur að rannsóknarverkefnum eru yfirfarnar og samþykktar af nefnd um rannsóknanám læknanema (NURL). Nemar tileinka sér vísindaleg vinnubrögð við gagnaöflun/tilraunir, úrvinnslu gagna og túlkun niðurstaðna. Nemendur kynna niðurstöður verkefnisins með fyrirlestri á ráðstefnu og skrifa ritgerð um efnið.

Nemendur ráða hvort þeir skrifa ritgerðina á íslensku eða ensku en þurfa að hafa ítarlegan útdrátt á hinu tungumálinu. Kynningar á niðurstöðum fara alltaf fram á íslensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Faraldsfræði (LÆK616G, LÆK617G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangur að faraldsfræðilegum rannsóknaraðferðum og nálgun orsaka. Námskeiðið gefur yfirlit yfir mælingar á tíðni sjúkdóma, áhættu og afstæðri áhættu, gerðir faraldsfræðilegra rannsókna (íhlutandi rannsóknir, hóprannsóknir, tilfella-viðmiðsrannsóknir). Farið er yfir kerfisbundna skekkjuvalda og aðferðir við að komast hjá þeim á undirbúningsstigi rannsókna og í úrvinnslu gagna. Nemendur fá þjálfun í því að ritrýna faraldsfræðilegar rannsóknir.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Líftölfræði (LÆK616G, LÆK617G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Inngangur að hagnýtri líftölfræði í lýðheilsurannsóknum. Yfirlit er gefið yfir tegundir breyta; flokkabreytur, strjálar og samfelldar talnabreytur. Lýsandi tölfræði; lýsistærðir og myndræn framsetning gagna. Fræðilegar líkindadreifingar; tvíkostadreifing, Poisson dreifing og normaldreifing. Skilgreiningar á slembiúrtaki og þýði. Dreifingar lýsistærða. Notkun á öryggisbilum og tilgátuprófum. Samanburður á meðalgildi hópa (samfelldar mælingar). Tölfræðipróf fyrir tíðnitöflur (flokkabreytur). Einföld og lógistísk aðhvarfsgreining og ROC greining. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og dæmatímum. Í fyrirlestrum og dæmatímunum verður notast við tölfræðiforritið R og SAS.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár
  • Heilsársnámskeið
  • LÆK225G
    Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Sálarfræði I
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þessu námskeiði er fjallað um grunnþætti heilsusálfræði, kenningar um heilsuhegðun, áhrif viðhorfa, tilfinningar og hegðunar á getu einstaklinga til að sinna eigin heilsu og takast á við heilsutengdar breytingar. Fjallað verður í þessu samhengi um nokkur af helstu viðfangsefnum sálfræðinnar svo sem þroska, sjálfsmynd, persónuleika, bjargráða, streitu og áföll.

    Kennsla er í formi fyrirlestra og verklegrar kennslu. Æfingar tengt námsefninu eru unnar samhliða fyrirlestrum ýmist í tímum eða milli tíma. Prófað verður úr námsefninu á verklegu stöðvaprófi þar sem áhersla er lögð á að prófa fræðilega þekkingu samhliða því að meta hve vel gengur að miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt í samræmi við góða samskipta hætti.

    Námskeiðið er samkennt LÆK226G Klínisk aðferð: Samskiptafræði - læknir/sjúklingur I

    Læknanemar munu halda áfram að vinna með þessi viðfangsefni í samskiptafræði og sálfræði á 2 ári og umræðuhópum á 3-6 ári.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK226G
    Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur I
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu verður fjallað um:

    • Að vera læknir
    • Að vera sjúklingur
    • Samskipti og samband læknis og sjúklings skoðuð frá ýmsum sjónarhornum.
    • Mikilvægi þess að hlusta af athygli og nálgast vanda frá sjónarhóli sjúklings.
    • Grunn siðfræðinnar og sérkenni heilbrigðissiðfræðinnar
    • Dygðuga manngerð og gagnrýna hugsun í samhengi læknisfræðinnar
    • Siðfræðileg gildisviðmið, frumskyldur og siðareglur lækna
    • Fagmennsku og góða starfshætti lækna
    • Lög um þagnarskyldu og réttindi sjúklinga.

    Námskeiðið er samkennt LÆK225G Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Sálarfræði I.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • LÆK123G
    Að verða/vera læknir
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er á fyrstu tveimur vikum náms í læknisfræði og er ætlað að gefa nemendum innsýn í það starf sem bíður þeirra sem læknanema og lækna.

    Námskeiðið er hluti af námskeiðinu LÆK226G Klínisk aðferð: Samskiptafræði - læknir/sjúklingur og kemur námsefni til prófs á stöðvaprófi á vorönn. 

    Megináherslur:

    Námskeiðinu er ætlað að veita innsýn í uppbyggingu námsins, kynna mikilvægi teymisvinnu, siðfræði, ábyrgðar og fagmennsku ásamt vísindalegra vinnubragða.

    Í fyrri vikunni er fjallað um samskipti læknis og sjúklings, siðfræði, ábyrgð og fagmennsku lækna, uppbyggingu heilbrigðiskerfisins og heilsu lækna. Hlutverk annarra fagaðila verða kynnt og lögð áhersla á mikilvægi samskipta fagaðila sín á milli og við sjúklinga.  Menntun, samþætting vísinda í læknisnáminu og hálfur dagur tileinkaður forvörnum og hvernig þrær eru hluti af daglegu starfi læknis. Hálfur dagur er umræðutímar um atriði er varða lífsgæði , ábyrgð sjúklinga á eigin heilsu, meðferðarheldni og óhefðbundnar lækningar. Félag læknanema kynnir starfsemi félagsins og þá forvarnarhópa sem starfræktir eru á þeirra vegum. 

    Síðari vikan er helguð þjálfun í fyrstu viðbrögðum. Nemendur taka RKÍ námskeið um fyrstuhjálp, fá kynningu um móttöku slasaðra og Bjargráðsliðar læknanema skipuleggja kennslu og æfingar í bráðaviðbrögðum. Saga læknisfræðinnar er kynnt og nemendur kynna verkefni því tengt. Í einni af fyrstu vikunum á haustmisseri skipuleggur Heilbrigðisvísindasvið móttöku nýnema.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • EFN103G
    Efnafræði 2
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lífræn efnafræði er mikilvægt undirstöðu fag fyrir læknisfræði. Þegar lífefnafræðilegir ferlar sem eiga sér stað í líkama okkar eru skoðaðir, þá erum við í raun oft að skoða misflókin lífrænni efnahvörf. Lífræn efnafræði skiptir einnig miklu máli þegar virkniháttur lyfja er skoðaður og þar getur þrívíddarlögun lyfjanna haft gríðarleg áhrif.

    Í þessu námskeiði verður farið yfir grunnatriði lífrænnar efnafræði. Farið verður yfir helstu kennihópa lífrænna efnasambanda, eiginleika þeirra og rúmefnafræði. Sérstök áherlsa verður lögð á efnahvörf lífrænna efna, hvarfganga þeirra og hvernig við getum nýtt efnahvörfin til að smíða önnur lífræn efni. Námsefnið mun byggja á fyrstu 12 köflum námsbókarinnar "Fundamentals of Organic Chemistry" eftir John McMurry.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • EFN104G
    Efnafræði 3
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennt í fimm vikur í upphafi kennsluárs.

    Námskeið fyrir nemendur í læknisfræði. Verklegar æfingar í almennri og lífrænni efnafræði: Algeng vinnubrögð á tilraunastofu. Magngreining. Sýru-basa eiginleikar og sýrustigsmælingar. Ákvörðun á jafnvægisfasta efnahvarfs og magngreining á járni í járntöflu með ljósmælingum. Efnasmíði nokkurra lífrænna efna með skiptihvarfi og alkýlun. Greining lífrænna kennihópa með afleiðum og þunnlagsskilju. Stoðfyrirlestrar tengja saman hagnýt atriði verklegu æfinganna og fræðilega undirstöðu þeirra í samræmi við fjölritað vinnuhefti og kennslubækur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK115G
    Líffærafræði IB
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Stórsæ líffærafræði útlima og bols.

    Í fyrirlestrum og verklegum tímum er farið kerfisbundið yfir sértæka líffærafræði (anatomia systematica), líffærafræði svæða (anatomia topographica), yfirborðsútlit og starfsemi (anatomia functionalis) útlima og bols. Fyrirlestraskrá varðandi námsefni hverrar kennslustundar verður aðgengilegt við upphaf námskeiðs.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • LÆK117G
    Læknisfræðileg eðlisfræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennsla er að mestu á formi fyrirlestra en æfingaverkefnum og umræðu er blandað inn í tímana jafnóðum. Sjá nánar í kennsluáætlun á Canvas.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK120G
    Líffærafræði IA - Almenn
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Almenn líffærafræði (general anatomy) er tekur til byggingar þ.e. gerð og útlits mannslíkamans. Í fyrirlestrum er farið kerfisbundið yfir almenna líffærafræði mannslíkamans, bæði stórsæar og smásæar byggingar frá vefjum um líffæri og líffærakerfi til samþáttunar í fullþroska mannslíkama. Í verklegum tímum er farið í smásæa bygginu grunnvefja líkamans. Ennfremur er vísað til fyrirlestraskrár varðandi námsefnið, sem afhent verður í upphafi námskeiðs.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • LÆK034G
    Vísindalæsi
    Valnámskeið
    4
    Valnámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna vísindaleg vinnubrögð við heimildaleit, lestur og túlkun á vísindagreinum. Námskeiðið er ætlað læknanemum sem hafa hug á að gera rannsóknir að veigamiklum þætti í námi og starfi og verður skyldunámskeið fyrir þá sem stefna á rannsóknatengt nám samhliða klínísku læknanámi. Efni verður kynnt með fyrirlestrum en mikil áhersla lögð á að fara yfir raunveruleg dæmi í tímunum og þjálfun með heimaverkefnum. Námsmat verður byggt á þátttöku í hópavinnu og verkefnaskilum. Fjögur skipti, 3 klst. í senn.

    Leit að upplýsingum
    Kynntar verða aðferðir til að framkvæma markvissa leit að upplýsingum meðal birtra vísindagreina innan læknisfræði. Farið verður í skilgreiningu á klínísku vandamáli út frá „PICO“ (Patient, intervention, comparison, outcome) til að leit að vísindagreinum skili sem bestum áringri. Gerð verður grein fyrir helstu gagnagrunnum vísindagreina í læknisfræði. Farið verður í MEDLINE gagnagrunninn, leitarorð (Medical subject Heading, MeSH) PUBMED leitarvélina og MEDLINE leit í gegnum tölfræðiforritið R.  Einnig verða aðrir gagnagrunnar kynntir td. EMBASE, Google Scholar, Uptodate og Cochrane safnið.

    Lestur vísindagreina
    Kynntar verða helstu gerðir vísindagreina í læknisfræði, þ.á.m. vísindagrein (original scientific paper) sem byggir á eigin niðurstöðum og gögnum, yfirlitsgreinar af mismunandi gerðum, safngreiningar (meta-analysis) og klínískar leiðbeiningar sem að byggja á birtum niðurstöðum. Leiðbeint verður við að nálgast efni í skilvirkan hátt til þess að ná utan um helstu niðurstöður og skilaboð.

    Skilningur á vísindagreinum
    Farið verður í uppbyggingu vísindagreina í læknisfræði og tekin dæmi af vísindagreinum sem byggja á aðferðum sameindalíffræði annars vegar og faralds- og líftölfræði hins vegar. Farið verður í framsetningu gagna með töflum og myndum og ýmis tæknileg atriði sem eru nauðsynleg til skilnings.

    Túlkun á vísindagreinum
    Fjallað verður um trúverðugleika og áreiðanleika, almennt og sértækt gildi niðurstaðna frá vísindalegu og læknisfræðilegu sjónarmiði. Kynntar aðferðir gagnreyndrar læknisfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • Vor
  • HVS202G
    Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK220G
    Líffærafræði IA - Fósturfræði
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fósturfræði. Kynnt verða grundvallaratriði í fósturfræði: heiti (íslenskt, latneskt, enskt) atburða í fósturþroska, ferli breytinga í fósturþroska og stjórnun þeirra, orsakir og afleiðingar truflaðrar myndunar. Miðlun þessarar þekkingar til fagaðila, sjúklinga og almennings.
    Kynntar verða með lestri greina helstu rannsóknir í fósturfræði og hvernig nota má þær til ákvarðanatöku (klíník og stefnumörkun) um greiningu og meðferð vandamála og miðlun þeirra ákvarðana til fagaðila, sjúklinga og almennings.
    Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði fósturfræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Námsefnið kemur fram í fyrirlestraskrá í CANVAS við upphafi námskeiðs.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK221G
    Líffærafræði IIA
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Taugalíffærafræði og líffærafræði höfuðs og háls. Líffæra- og fósturfræði höfuðs og háls. Í fyrirlestrum er farið yfir fósturfræði, líffærakerfi (anatomia systemica) og svæði (anatomia topographica) höfuðs og háls. Sýnikennsla eftir því sem aðstæður leyfa. Líffæra- og fósturfræði taugakerfis. Í líffærafræði er farið yfir fósturþroska og starfræn kerfi taugakerfis. Í verklegum-/sýnikennslutímum er farið yfir ytri og innri gerð heilans.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • LÆK222G
    Frumulíffræði og erfðafræði
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Frumulíffræði fyrirlestrar (34F): Inngangur; þróun lífsins; frumuhimna: lífefnafræði og frumulíffræði; kjarninn: gen og genastjórn, litni, bygging kjarnans, kjarnahjúpur; frymisnet og Golgi líffæri; bólur og blöðrur; lýsósóm, peroxisóm og hvatberar; stoðkerfi og hreyfiprótein; frumuskipting; frumutengi og millifrumuefni (frumulíffræði og lífefnafræði); boðskipti (inngangur); þroskun og sérhæfing.

    Sex umræðuefni: Frumuvinna á rannsóknarstofu, Vísindagrein, Smásjártækni við frumurannsóknir, Nóbelsverðlaun í Læknisfræði, Frumudauði og Hornsteinar krabbameina.

    Erfðafræði fyrirlestrar (16F): Farið er yfir viðfangsefni, hugtök og aðferðir í erfðafræði. Fjallað er um gen, samsætur, erfðamengi, litninga, mítósu og meiósu, mendelískar, mítókondríu- og fjölþátta erfðir, erfðatölfræði, tengslagreiningu og genakortlagningu, þróun og þroskunarfræði. Dæmi eru tekin um notkun erfðafræði í læknisfræði. Kynning á upplýsingatækni í erfðafræði og skyldum greinum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK223G
    Frumulífeðlisfræði
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennsla er í formi fyrirlestra og umræðutíma.

    Efni fyrirlestra: Fjallað verður um samvægi, sveim, osmósu, himnuspennu, stigspennur, bospennur, ýmsar flutningsleiðir yfir himnur, taugamót, jónagöng og gangakvilla.

    Í umræðu- og verkefnatímum verður æfð beiting þekkingar úr fyrirlestrum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Efnisgjald er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK224G
    Líffærafræði IIB
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Stórsæ líffærafræði (macroanatomia) innri (iðrar) líffæra. Í fyrirlestrum er farið yfir líffærafræði brjósthols-, kviðarhols- og grindarholslíffæra og fósturfræði þeirra kynnt þar sem við á. Einnig er kynnt yfirborðs líffærafræði búks og spangar þar sem bygging búk- og spangar veggjanna er skoðuð sérstaklega. Fyrirlestrar byggja á kliniskum tilfellum þar sem því verður við komið svo auka megi skilning vægi byggingar í klinisku samhengi.

    Smásæ líffærafræði er tekur til sértækra byggingarþátta vefja. Smásæa vefjagreðin er skoðuð í smásjá (verklegir tímar) en í fyrirlestrum er lögð áhersla á samþáttun ólíkra vefjagerða í einstökum líffærum og er einkennandi fyrir starf þeirra (histologia functionalis).

    Kennsla í LÆK224G byggist á hefðbundnum fyrirlestrum, netfyrirlestrum, umræðutímum og verkefnum auk þess sem í vefjafræðihluta námskeiðsins eru verklegar æfingar í smásjárskoðun. Kennslufyrirkomulag í námskeiðinu er í stöðugri endurskoðun er taka til framfara í kennslu og því er áskilinn réttur til breytinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Heilsársnámskeið
  • LÆK409G
    Lífeðlisfræði B
    Skyldunámskeið
    9
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    9 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu eru fyrirlestrar, hópverkefni í kennslustofu, verklegar æfingar með umræðutímum í kjölfarið, áfangapróf og verkleg próf. Skyldumæting er í verklegar æfingar og umræðutímana sem þeim tengjast.

    Efni fyrirlestra er skipt í sex hluta:

    1. Blóðrásarkerfið: Hjartað sem dæla, raflífeðlisfræði hjartans, æðakerfið og stjórnun hjarta og æðakerfisins.
    2. Nýru, vökvi og jónir: Píplustarfssemi, vökvahólf, stjórnun blóðrúmmáls og jónavægis. Kalíum-, sýrubasavægi
    3. Öndun: Loftflæði, loftskipti, flutningur lofttegunda með blóði og stjórn öndunar. 
    4. Melting: Hreyfingar, seytun, upptaka. Stjórn meltingar og fæðuinntöku
    5. Ýktar ytri aðstæður, efnaskipti og vöxtur: Hár og lágur loftþrýstingur, hitastjórnun, orkuefnaskipti, hormónastjórn efnaskipta, vaxtar og kalsíumfosfatsvægis.
    6. Æxlun: Hormónastjórn kynfæra og æxlunar, þungun, fæðing og mjólkun.

    Hópverkefni eru sex talsins og fylgja hverjum fyrirlestrarhluta. Nemendur vinna í þriggja manna hópum að verkefnum tengdum námsefninu, taka stutt próf, skrifa og lesa jafningjamat.

    Áfangapróf eru reglulega yfir námstímann úr efni fyrirlestra.

    Verklegar æfingar: 

    • Hjarta og blóðrás
    • Vökva- og jónavægi
    • Áreynslulífeðlisfræði

    Umræðutímar og verklegt próf: Nemendur kynna niðurstöður sínar úr verklegu æfingunni, túlka þær og tengja við fræðin. Að loknum umræðutímum verða verkleg próf úr efni æfinganna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK410G
    Lífefna- og sameindalíffræði B
    Skyldunámskeið
    9
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    9 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Innihald námskeiðs:

    Fyrirlestrar: Háorkusambönd, efnaskipti kolvetna, fitu og amínósýra, samhæfing efnaskipta, núkleótíð, plasma prótein og blóðstorka, járn, hem, lifur, næring, hormón.

    Verklegar æfingar: Einangrun próteins á gripsúlu, mæling á próteinstyrk, ónæmismæling (ELISA).

    Hópumræður: Samhæfing efnaskipta, næring.

    TBL: Valið efni

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK411G
    Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Sálarfræði II
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að þjálfa færni í grundvallaratriðum (A) hugrænnar atferlismeðferðar og (B) hvatningar samtals og nýtingu þessara aðferða í viðtölum við sjúklinga í almennu starfi læknis.

    Meginþættir námskeiðsins eru: 1) Fræðilegur bakgrunnur og grundvallarhugtök Hugrænnar atferlismeðferðar (HAM). 2) Grunn kortlagning vanda sjúklings skv. aðferðum HAM. 3) Hvernig er hægt að nota HAM í viðtali við sjúkling til að hafa áhrif á hugsun og hegðun. 4) Fræðilegur bakgrunnur og grundvallarhugtök hvatningarsamtals. 5) Kortlagning breytingarferlis sjúkling. 6) Hvernig nota má hvatningarsamtal í viðtölum við sjúklinga.

    Kennsla er í formi fyrirlestra og verklegrar kennslu. Verklegar samtalsæfingar eru samhliða fyrirlestrum þar sem viðfangsefni námskeiðsins eru æfð. Prófað verður úr námsefninu á verklegu stöðvaprófi.

    Læknanemar munu halda áfram að vinna með þessi viðfangsefni í umræðuhópum á 3-6 ári.

    Námskeiðið er kennt í samvinnu við Klínísk aðferð: Samskipti læknis og sjúklings II (LÆK412G).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK412G
    Klínisk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur II
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðs er að þjálfa færni í sjúklingsviðmiðuðum samskiptum læknis og sjúklings. Farið er í uppbyggingu samtals læknis og sjúklings, samskiptafræði, samtalstækni, líkamsskoðun, grunnatriði í sýkingarvörnum, sálfræði og siðfræði og byggir kennslan á þekkingu og hæfnikröfum í LÆK123, LÆK226 og LÆK225.

    Kennsla er í formi fyrirlestra með umræðuívafi, umræðutíma og verklegrar kennslu. Verklegar samtalsæfingar eru á haustönn þar sem læknisviðtalið er æft og tekið á sterkum tilfinningum í samskiptum. Farið verður í grunnatriði í ritun og notkun sjúkraskrár. Líkamsskoðun er kennd og æfð í færnibúðum í litlum hópum nemenda undir handleiðslu kennara. Verklegt nám er á heilsugæslustöðvum og á sjúkrahúsi þar sem nemendur fylgjast með störfum læknis og æfa samtöl og líkamsskoðun.

    Prófað verður á stöðvaprófi úr atriðum er tengjast færni í samskiptum, líkamsskoðun, notkun sjúkraskrár og umræðu um siðfræðileg álitaefni.

    Læknanemar munu halda áfram að vinna með þessi viðfangsefni í umræðuhópum á 3-6 ári.

    Námskeiðið er samkennt LÆK411G Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Sálfræði II.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK418G
    Lausnamiðað nám
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þjálfun í að tengja saman þekkingu úr grunngreinum og nýta við greiningu vandamála í sjúkrasögum einstaklinga og að afla skilgreindar þekkingar með sjálfsnámi á ábyrgan hátt. Þjálfun í teymisvinnu, faglegum vinnubrögðum, ábyrgri öflun þekkingar og miðlun innan hóps (töflukynningar).

    Nemendur vinna í hóp að því að skilgreina hvaða þekkingu eða upplýsingar hópinn vantar til að komast að því hvaða vandamál eru til staðar í einstaklingi hvers sjúkrasögu þau fá. Nemendur leggja fram tilgátur að því hvaða ferli tengjast sjúkdómsástandi og  á milli hópavinnutímanna afla þeir sér frekari þekkingar (sjálfsnám). Á síðari degi miðla nemendur með töflukynningu þeim upplýsingum sem þeir hafa aflað. Að lokum kemur hópurinn sér saman um hver niðurstaðan er, þ.e. hvaða sjúkdómur hrjáir einstaklinginn. Tilfellin eru raunveruleg og byggja á einkennum og sögu ónafngreindra einstaklinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK416G
    Ástráður
    Valnámskeið
    1
    Valnámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ástráður kynfræðslufélag læknanema stendur fyrir Ástráðsviku á haustmisseri fyrir 2.árs læknanema. Vikan undirbýr nemendur til að halda fyrirlestra í framhaldsskólum landsins. Farið verður yfir kynheilbrigði, kynlíf, kynhneigðir og fleira sem að því kemur. Kennslan verður í formi fyrirlestra en fyrirlesararnir koma úr öllum áttum. Læknanemar í stjórn Ástráðs skipuleggja Ástráðsvikuna og fleira sem að því kemur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • LÆK313G
    Lífeðlisfræði A
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námsefni: Kennsla er í formi fyrirlestra, áfangaprófa, verklegra æfinga, verkprófa, umræðufunda og lausnarleitarnáms (PBL). Skylt er að mæta í PBL og allar verklegar æfingar, taka verkpróf, skila skýrslum og mæta á umræðufundi.
    Efni fyrirlestra: Lífeðlisfræði taugakerfisins: Skipulag og boðflutningur í miðtaugakerfinu, sjálfvirka og viljastýrða taugakerfið, mænuviðbrögð og stjórn hreyfinga. Skynjunarlífeðlisfræði: Almenn skynjun, húðskyn, sársauki, sjónskyn, heyrnarskyn, jafnvægi, efnaskyn. Heilastarfsemi: Nám, minni, samskipti, hegðun, tilfinningar, vitundarstig, svefn, dægursveiflur.
    Verklegar æfingar: (1) Vöðvar og viðbrögð. (2) Heilastarfsemi.  Og tilheyrandi umræðutímar og verkpróf.
    Lausnaleit (PBL): Taugar, vöðvar, bein, prótein, erfðaefni, erfðatækni.
    LÆK313G er annað af þremur námskeiðum um lífeðlisfræði mannslíkamans fyrir læknanema (ásamt LÆK223G og LÆK409G).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Efnisgjald er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK314G
    Lífefna- og sameindalíffræði A
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni, hugtök og aðferðir í lífefna- og sameindalíffræði. Erfðamengi, erfðaefni og efnaskipti DNA, erfðatækni. RNA, tjáning gena, umritun og þýðing. Prótein, ensím og próteinlyf. Transgenísk tilraunadýr. Lífupplýsingafræði. Sameindalíffræði veira og genalækningar. Frumuhringur, apoptosis og sameindaerfðafræði krabbameins. Sjúkdómalífefnafræði og dæmi um notkun lífefna- og sameindalíffræði í læknisfræði.

    Hópumræður: Erfðamengið og efnaskipti DNA; RNA, tjáning og starfsemi RNA og próteina.

    Lausnaleit (PBL): Erfðamengið, tjáning gena, starfsemi próteina.

    Vefverkefni: Lífupplýsingafræði og notkun hennar með tilliti til sjúkdóma.

    Sjúkdómalífefnafræði: Dæmi um lífefna- og sameindalíffræði sjúkdóma.

    Verklegar æfingar: Einangrun og greining á DNA úr blóði.

    Þátttakendur: Nemendur á 2. ári í læknisfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Vor
  • LÆK415G
    Ónæmisfræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Við lok námskeiðsins eiga nemendur að kunna skil á grunnþáttum ónæmiskerfisins og jafnframt hafa öðlast grunnþekkingu á megin rannsóknaraðferðum ónæmisfræðinnar. Ætlast er til að gera nemendur læsa á almennar læknisfræðilegar yfirlitsgreinar um ónæmisfræði, þannig að þeir geti fylgst með þróun greinarinnar og þekkt leiðir til að fyrirbyggja, greina og lækna sjúkdóma. Ætlast er til, að nemendur tileinki sér helstu grundvallaratriði heilbrigðs ónæmiskerfis, ónæmisbilanir, ofnæmi, sjálfsofnæmi og hlutdeild ónæmiskerfisins í tilurð og meingerð sjúkdóma almennt. Einnig verður farið yfir grunnatriði klínískrar ónæmisfræði. Stefnt er að því að nemendur geti skilið orsakasamhengi milli verkana ónæmiskerfisins og vissra sjúkdómsmyndana, sem þeir kynnast betur í síðari hluta klíníska námsins á 4 ári læknisfræðinnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • LÆK417G
    Sýkla- og veirufræði
    Skyldunámskeið
    11
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    11 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tekur til grundvallaratriða varðandi sýkla (bakteríur, veirur, sveppir og sníkjudýr) sem valda sjúkdómum í mönnum. Kennslan er í formi fyrirlestra, verklegra æfinga og umræðutíma/teymisnáms (TBL, team-based learning).

    • Í upphafi námskeiðsins verða fyrirlestrar um almenna sýkla- og veirufræði, þar á meðal flokkun og byggingu sýkla, samspil sýkils og hýsils, meinmyndun (pathogenesis) sýkinga, greiningaraðferðir og greiningarferli á sýkla- og veirufræðideildum.
    • Í kjölfarið verður farið nánar í einstaka meinvalda sem valda sýkingum hjá mönnum með áherslu á smitleiðir, faraldsfræði, sjúkdómsmyndun, klínísk einkenni og fylgikvilla sýkinga, greiningu sýkla á rannsóknarstofu og forvarnir.
    • Að lokum verður farið í grunnatriði klínískrar sýkla- og veirufræði með áherslu á einkennamiðaða nálgun tengt einstökum líffærakerfum og fer sú kennsla m.a. fram sem TBL.
    • Í verklega hluta námskeiðsins fá nemendur þjálfun í notkun einfaldra aðferða við rannsóknir og greiningu algengra sýkingavalda og kennd verða grundavallaratriði við túlkun og mat á rannsóknaniðurstöðum. Nemendum er skipt upp í minni hópa og hver nemandi er samfellt eina viku, eftir hádegi, í verklegum tímum og skilar inn verkefnahefti í lok vikunnar.
    • Mætingarskylda er í verklegar æfingar og teymisnám (TBL).
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Heilsársnámskeið
  • LÆK615G
    Klínísk aðferð: Samskiptafræði - Læknir/sjúklingur III
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í upphafi námskeiðsins eru fyrirlestrar en síðan fer kennslan fram í litlum hópum (4-6 nemendur) með kennara þar sem nemendur fá þjálfun í töku sjúkrasögu og líkamsskoðun. Enn fremur fá nemendur að spreyta sig á skráningu klínískra upplýsinga og kynningu sjúkratilfella.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • HVS501M
    Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

    Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

    Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
     
    Kennslutilhögun:
    Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK514G
    Meinafræði
    Skyldunámskeið
    14
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    14 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    A1: Fyrirlestrar: Almenn meinafræði: Frumuskemmdir, frumudauði, frumuaðlögun, efnasafnanir, blóðfylla, bólga, viðgerð vefja, vökvasafnanir, blæðing, storka, segar, blóðrek, æxli.

    A2: Fyrirlestrar: Sérhæfð meinafræði: Hjarta- og æðasjúkdómar, lungnasjúkdómar, sjúkdómar í munni, munnvatnskirtlum og meltingarvegi, taugameinafræði, sjúkdómar í lifur, gallvegum og brisi, sjúkdómar í þvagfærum, sjúkdómar í kynfærum karla, sjúkdómar í kynfærum kvenna, sjúkdómar í brjóstum, sjúkdómar í innkirtlum, blóð- og eitilvefssjúkdómar og sjúkdómar í stoðvefjum.

    B: Verklegt nám: Meinvefjafræði með sýnikennslu. Verklegar æfingar í smásjárskoðun sjúkra vefja undir leiðsögn kennara. Lýkur með 30 mínútna verklegu prófi í lok námskeiðs. Það er mætingarskylda í verklega tíma.

    C: Sýnikennsla: Sýndar eru krufningar, skurðsýni og rætt um ýmis viðfangsefni í meinafræði í því sambandi, samkvæmt nánara samkomulagi kennara og nemenda.

    D: Sjúkratilfelli: Í þessum tímum fást læknanemar við sjúkratilfelli sem tengjast námsefni lyfja- og/eða meinafræði. Þessir tímar eru skipulagðir í sameiningu af kennurum í meinafræði og lyfjafræði en með þátttöku klínískra kennara deildarinnar. Í þessum tímum er leitast við að tengja námið í meinafræði og lyfjafræði við klíníska læknisfræði. Læknanemum er skipt upp í hópa. Hver hópur fær í hendurnar sjúkrasögur, sem nemendur glíma við og kynna síðan fyrir samnemendum sínum og kennurum. Leitast skal við að virkja vel samnemendur í salnum að láta þannig nemendur taka þátt í að komast að sjúkdómsgreiningum með því að stinga upp á sjúkdómum sem til greina koma út frá einkennum og koma með tillögur að rannsóknum sem að gagni gætu komið við uppvinnslu sjúklings. Einkunn er byggð á mætingu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÆK515G
    Lyfja- og eiturefnafræði
    Skyldunámskeið
    14
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    14 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið með kennslu í lyfjafræði í læknadeild (líflyfjafræði; medical pharmacology) er að veita læknanemum fræðslu um verkunarmáta helstu lyfja og lyfjaflokka sem notaðir eru við lækningar.

    Veigamesti hluti kennslunnar er lyfhrifafræði (pharmacodynamics), er tekur til hinna sérstöku verkana lyfja (lyfhrifa) á tiltekin líffæri eða líffærakerfi (hjartalyf, lyf með verkun á úttaugakerfið o.s.frv.), svo og til verkunarháttar lyfjanna (með hverjum hætti lyfin verka á frumur hlutaðeigandi líffæra eða líffærakerfa eða sýkla, ef um sýklalyf er að ræða).

    Önnur aðalgrein líflyfjafræði er lyfjahvarfafræði (pharmacokinetics) sem fjallar um það hvernig lyf komast, eftir gjöf eða töku, inn í líkamann (í blóðbraut), dreifast um hann, skiljast út eða umbreytast í önnur efni, svo og ýmis önnur atriði, sem sameiginleg eru öllum lyfjum eða miklum fjölda lyfja.

    Kennsla í eiturefnafræði (toxicology) beinist að því að nemendur kynnist eiturhrifum (sbr. lyfhrif) helstu efna annarra en lyfja, er þeir kunna að hafa afskipti af við læknisstörf eða þurfa að hafa nokkra þekkingu á með öðrum hætti.

    Sjúkratilfelli: Í þessum tímum fást læknanemar við sjúkratilfelli sem tengjast námsefni lyfja- og/eða meinafræði. Þessir tímar eru skipulagðir í sameiningu af kennurum í meinafræði og lyfjafræði en með þátttöku klínískra kennara deildarinnar. Í þessum tímum er leitast við að tengja námið í meinafræði og lyfjafræði við klíníska læknisfræði. Læknanemum er skipt upp í hópa. Hver hópur fær í hendurnar sjúkrasögur, sem nemendur glíma við og kynna síðan fyrir samnemendum sínum og kennurum. Leitast skal við að virkja vel samnemendur í salnum að láta þannig nemendur taka þátt í að komast að sjúkdómsgreiningum með því að stinga upp á sjúkdómum sem til greina koma út frá einkennum og koma með tillögur að rannsóknum sem að gagni gætu komið við uppvinnslu sjúklings. Það er mætingarskylda í sjúkratilfellatíma. Tilkynna þarf forföll.

    Ábyrgð og umsjón:

    Kristín Ólafsdóttir, dósent

    Magnús Karl Magnússon, prófessor

    Læknadeild, Rannsóknastofa í Lyfja og eiturefnafræði

    Haga, Hofsvallagötu 53, 107 Reykjavík

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK517G
    Rannsóknarverkefni
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    LÆK517G á haustmisseri er undanfari LÆK601L á vormisseri og sameiginlegt markmið þeirra er að gefa læknanemum tækifæri til þess að vinna að eigin rannsóknarverkefni undir handleiðslu. Allar tillögur að rannsóknarverkefnum eru yfirfarnar og samþykktar af nefnd um rannsóknanám læknanema (NURL). Nemar tileinka sér vísindaleg vinnubrögð við gagnaöflun/tilraunir, úrvinnslu gagna og túlkun niðurstaðna. Nemendur kynna niðurstöður verkefnisins með fyrirlestri á ráðstefnu og skrifa ritgerð á íslensku um efnið. Sækja má um undanþágu til að skila ritgerð á ensku ef móðurmál nemans er ekki íslenska eða leiðbeinendur lesa ekki íslensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Vor
  • LÆK601L
    Rannsóknarverkefni
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gefa læknanemum tækifæri til þess að vinna að eigin rannsóknarverkefni undir handleiðslu. Allar tillögur að rannsóknarverkefnum eru yfirfarnar og samþykktar af nefnd um rannsóknanám læknanema (NURL). Nemar tileinka sér vísindaleg vinnubrögð við gagnaöflun/tilraunir, úrvinnslu gagna og túlkun niðurstaðna. Nemendur kynna niðurstöður verkefnisins með fyrirlestri á ráðstefnu og skrifa ritgerð um efnið.

    Nemendur ráða hvort þeir skrifa ritgerðina á íslensku eða ensku en þurfa að hafa ítarlegan útdrátt á hinu tungumálinu. Kynningar á niðurstöðum fara alltaf fram á íslensku.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • LÆK616G, LÆK617G
    Faraldsfræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að faraldsfræðilegum rannsóknaraðferðum og nálgun orsaka. Námskeiðið gefur yfirlit yfir mælingar á tíðni sjúkdóma, áhættu og afstæðri áhættu, gerðir faraldsfræðilegra rannsókna (íhlutandi rannsóknir, hóprannsóknir, tilfella-viðmiðsrannsóknir). Farið er yfir kerfisbundna skekkjuvalda og aðferðir við að komast hjá þeim á undirbúningsstigi rannsókna og í úrvinnslu gagna. Nemendur fá þjálfun í því að ritrýna faraldsfræðilegar rannsóknir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LÆK616G, LÆK617G
    Líftölfræði

Annað ár

Þriðja ár

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

BS gráða í læknisfræði veitir ekki sérstök starfsréttindi heldur aðgang að áframhaldandi cand. med. námi í læknisfræði.

Grunnnám í læknisfræði við HÍ veitir góða undirstöðu fyrir hvert það framhaldsnám sem nemendur óska, hvort sem það er sérhæfing í sérgreinum læknisfræðinnar, vísindarannsóknir eða hvoru tveggja.

Félag læknanema stendur fyrir öflugu félagslífi fyrir læknanema. Það annast stúdentaskipti í samvinnu við alþjóðleg samtök læknanema, aðstoðar við ráðningar læknanema í margs konar afleysingastörf innan heilbrigðiskerfisins og stendur fyrir kynfræðslu í framhaldsskólum undir yfirskriftinni Ástráður

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Thelmu Kristinsdóttur
Nám í læknisfræði er á sama tíma mjög krefjandi og ótrúlega skemmtilegt. Áfangarnir eru settir upp í lotukerfi svo maður getur einbeitt sér vel að hverju fagi og klárað þau jafnóðum. Námið er oft á tíðum bæði erfitt og tímafrekt og þá eru stuðningur samnemenda og samstaðan innan árganga ómissandi. Árgangarnir eru litlir og allir eru í sömu áföngum svo það myndast mikil bekkjarstemning. Þrátt fyrir að mikill tími fari í námið er félagslífið mjög gott, alltaf nóg að gera og margar nefndir til að sitja í. Ég mæli óhikað með námi í læknisfræði.
Ljósmynd af Teiti Ara Theódórssyni
Fyrri þrjú ár námsins eru byggð upp af grunnfögum læknisfræðinnar. Þau veigamestu telja líffærafræði (e. anatomy), lífeðlisfræði, lífefnafræði, lyfjafræði og meinafræði. Skiptist námið þannig að á 1. ári er líffærafræðin fyrirferðarmest, á 2. ári kveður lífeðlis- og lífefnafræðin sér rúms en á 3. ári er tími lyfja- og meinafræðinnar kominn. Bygging námsins er í línulegri röð, þ.e. til þess að öðlast nýja þekkingu þarf sífellt að ryfja upp það sem áður hefur verið lært. Sem gerir það að verkum að þrátt fyrir að náminu sé skipt niður í áfanga hjálpar það nemandanum að byggja upp heildarmynd af virkni og starfsemi líkamans.
Ljósmynd af Þórdísi Þorkelsdóttur
Nám í læknisfræði er langt, grunnnámið er sex ár og eftir það tekur við sérfræðinám og því verður að gera ráð fyrir að minnsta kosti áratugalangri framhaldsmenntun. Grunnnámið er tvískipt. Fyrstu þrjú árin eru að miklu leiti bókleg menntun í grunnvísindum, eðlilegri lífefna- og lífeðlisfræði líkamans ásamt því hvað getur farið úrskeiðis. Seinni þrjú árin eru að mestu verkleg kennsla sem fer fram á mismunandi sviðum og deildum Landspítalans. Verklega kennslan fer fram á dagvinnutíma og á nemavöktum sem eru ekki launaðar. Utan þess þarf að finna tíma til að tileinka sér bóklega námsefnið og því er námið óneitanlega mjög tímafrekt og krefjandi en einnig ákaflega skemmtilegt, fjölbreytt og áhugavekjandi. Ásamt því er óumflýjanlegt að eignast mjög góða vini sem munu vonandi endast út ævina.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Skrifstofa læknadeildar
Virka daga 9:00 – 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Læknagarðar

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil