""
Tungumál kennslu
Íslenska.
Lengd náms
1 ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á menningarheimi Forn-Grikklands og Rómaveldis?
  • Viltu auka skilning þinn á bókmenntum, sagnfræði, trúarbrögðum og heimspeki tímabilsins?
  • Langar þig að velja tvær námsleiðir?
  • Viltu námsleið sem hentar vel með aðalgreinum sagnfræði, bókmennta, heimspeki, íslenskra fræða, málvísinda og trúarbragðafræði?

Klassísk fræði eru kennd til BA-gráðu sem aukagrein. BA-nám tekur að jafnaði þrjú ár. Aukagrein til 60 eininga er eins árs nám með aðalgrein (120 einingar) á öðru sviði. Náminu má ljúka á einum vetri eða dreifa á fleiri.

Námsleiðin samanstendur af námskeiðum sem kennd eru í ólíkum greinum Hugvísindasviðs, innan bókmenntafræði, heimspeki, sagnfræði og klassískra mála.

Klassísk fræði fást við menningarheim Forngrikkja og Rómverja. Megináhersla er lögð á sögu þeirra, bókmenntir, heimspeki og tungumál. Klassísk fræði eru þess vegna í senn sagn- og bókmenntafræði, heimspeki og málvísindi.

Meðal viðfangsefna

  • Latína (bæði klassísk og miðaldalatína)
  • Forngríska (frá Hómer til aldanna eftir Krist)
  • Fornaldarheimspeki
  • Fornaldarsaga og sagnaritun fornaldar
  • Fornaldarbókmenntir (grískar og rómverskar, bundið mál og óbundið)
  • Goðafræði og trúarbrögð

Markmið

Markmið námsins er að miðla nemendum almennri þekkingu og veita skilning á rómverskri og/eða forngrískri tungu, sögu, hugmyndaheimi og menningu, sérstöðu þessa og áhrifum á evrópska sögu og menningu.

Námstilhögun 

Námsleið í klassískum fræðum er þverfaglegur inngangur að grundvelli vestrænnar menningar. Undirstaðan felst í nokkrum kynnum af tungumálunum tveimur, forngrísku og latínu, sem eru eins konar lykill að þessum menningarheimi og arfi hans. Málin gera nemendum kleift að öðlast visst sjálfstæði í kynnum sínum.

Önnur námskeið innan námsleiðarinnar veita almenna innsýn í helstu þætti menningarinnar en engin þeirra krefst nákvæmrar þekkingar á fornmálunum enda eru þau kennd innan ólíkra námsbrauta. Á þessum grundvelli getur nemandinn öðlast þekkingu á bakgrunni allra hugvísinda.

Um klassísk fræði

Það tímabil menningarsögunnar sem fræðin fást við er langt, að minnsta kosti þrettán aldir.  Það nær frá áttundu öld fyrir Krist, þegar hillir undir grísku ríkin og Hómerskviður eru samdar, fram til loka Rómaveldis um 500 eftir Krist. 

En fræðigreinin fæst ekki aðeins við fornöldina sjálfa, heldur einnig við arf klassískrar menningar, viðtökur hans og framhaldslíf, bæði í málunum sjálfum, bókmenntum eða heimspeki, á miðöldum í vestri eða austri, og á nýöld.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 18. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Aukagreinin klassísk fræði er þverfaglegur inngangur að grundvelli vestrænnar menningar. Undirstaðan felst í nokkrum kynnum af forngrísku og latínu, og eru námskeiðin Forngríska I og Latína I skyldunámskeið. Valnámskeið veita almenna innsýn í helstu þætti menningarinnar, en ekkert þeirra krefst nákvæmrar þekkingar á fornmálunum, og koma úr ólíkum greinum, s.s. heimspeki, sagnfræði og bókmenntafræði, auk grísku og latínu.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Latína I: Byrjendanámskeið (KLM101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í latínu ætlað byrjendum. Ekki er gert ráð fyrir kunnáttu í latínu við upphaf námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði. Farið er yfir beygingafræði latínunnar svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Stuttir leskaflar og málfræðiæfingar.

Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Forngríska I: Byrjendanámskeið (KLM102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir beygingarfræði forngrísku (attísku) í meginatriðum svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Áhersla er lögð á að nemendur læri í námskeiðinu þau atriði sem þeir þurfa til að geta byrjað að lesa og þýða forngríska texta. Ekki er gert ráð fyrir neinni kunnáttu í grísku í upphafi námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði.

Fylgt verður 2. útg. kennslubókar Donalds J. Mastronarde. Lögð verður áhersla á meginatriði. Kennt verður tvisvar í viku. Kennslustundir innihalda bæði fyrirlestur sem tekur fyrir afmarkað efni og verkefnavinnu þar sem reynir á virkni nemenda. Valdir textar verða þýddir og skýrðir málfræðilega. Lestur námsefnisins fyrir hvern tíma er nauðsynlegt skilyrði þess að nemendur nái valdi á námsefninu. Hverjum fyrirlestri fylgja glósur kennara, sem settar verða á Canvas.

Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Skáldsagan í fornöld (KLM304G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um skáldsöguna í klassískri fornöld. Skáldaðar sögur í óbundnu máli urðu til á 1. öld og þróuðust áfram í síðfornöld. Margvísleg tengsl eru við aðrar bókmenntagreinar, s.s. gríska og latneska skopleiki, satírur og fleira. Í námskeiðinu verður fjallað um helstu höfunda hinnar fornu skáldsögu og verk þeirra og hvernig þau tengjast öðrum grísk-latneskum bókmenntum.

Kunnáttu í latínu er ekki krafist en nemendur í klassískum málum geta valið að taka 5 ECTS eða 10 ECTS sérverkefni um latneskan frumtexta í tengslum við námskeiðið. Sérverkefnum sem nemendum stendur til boða að vinna er ætlað að styrkja latínukunnáttu nemenda (orðaforða og málfræði) og þjálfa nemendur í lestri frumtexta og greiningu þeirra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Heimur Forngrikkja: Saga og samfélag (KLM115G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Raktir verða þættir úr sögu Forngrikkja, með áherslu á menningu þeirra og hugmyndaheim frá upphafi til yfirráða Rómar. Lesnir verða valdir kaflar úr bókmenntaverkum þeirra í þýðingum.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Haust
Inngangur að Gamla testamentinu (GFR104G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um tilurðar- og bókmenntasögu Gamla testamentisins og þá mynd af stjórnmálasögu og trúarsögu „Ísraels“ sem þar er sett fram. Jafnframt verður fjallað um niðurstöður nýjustu ritskýringar-, sagnfræði- og fornleifarannsókna á stjórnmála- og trúarsögu landsvæðisins fyrir botni Miðjarðarhafs frá lokum bronsaldar og á 1. árþúsundi f. Kr. og þær niðurstöður bornar saman við söguskilning Gamla testamentisins. M.ö.o. verður annars vegar leitast við að varpa ljósi á „Ísrael“ Biblíunnar og hins vegar „Ísrael“ sögunnar (í sagnfræðilegum skilningi). Hugað verður að ólíkum hugmyndahefðum sem varðveittar eru í mismunandi bókmenntahefðum Gamla testamentisins og þessar hugmyndahefðir settar í almennt samhengi menningar og trúar þjóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs til forna. Einnig verður hugað að þróun guðsmyndarinnar í konungsríkjunum Ísrael og Júda á grundvelli rannsókna á félagssögulegu samhengi átrúnaðar í G.t.

Til grundvallar liggur nálgun og umfjöllun kennslubókar námskeiðsins, Introduction to the Bible eftir Christine Hayes, prófessor í trúarbragðafræðum við Yale-háskóla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Gríska Nýja testamentisins (GFR212G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið þessa námskeiðs er að veita nemendum grunn til að lesa og túlka texta Nýja testamentisins á sjálfstæðan hátt. Farið verður yfir meginatriði málfræðilegrar uppbyggingar forngrísku og textadæmi úr Nýja testamentinu og öðrum frumkristnum textum lesin í því sambandi. Lögð verður áhersla á hagnýtingu grískukunnáttunnar innan guðfræði og trúarbragðafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Fornaldarheimspeki (HSP104G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Veitt verður yfirlit yfir heimspeki fornaldar, byggt á nákvæmum lestri frumtexta. Fjallað verður um frumherja grískrar heimspeki fram yfir daga Sókratesar, heimspeki Platons og Aristótelesar, sem og arftaka þeirra, efahyggjumenn, epikúringa og stóumenn. Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir og skilning á þróun fornaldarheimspeki frá frumherjunum til síðfornaldar. Auk þess er námskeiðinu ætlað að kynna nemendum samhengi heimspekisögu og heimspekilegrar rökræðu og þjálfa þá í að lesa og greina heimspekirit liðins tíma. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að þekkja helstu tímabil og höfunda fornaldarheimspeki, sem og hugmyndir þeirra og röksemdir. Þeir ættu að geta gert grein fyrir skoðunum fornaldarheimspekinga, stutt greinargerðina tilvísunum í frumtexta og borið saman hugmyndir ólíkra heimspekinga. Auk þess ættu þeir að hafa skilning á mikilvægi heimspekisögu fyrir heimspekilega rökræðu, sögulegum uppruna sígildra heimspekilegra vandamála.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Dauði og endurfæðing - Inngangur að síðmiðöldum - Heimssaga I (SAG115G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Síðmiðaldir (14.-15. öld) einkenndust af andstreymi á flestum sviðum evrópsks samfélags. Eftir mannfjölgun, þenslu og vöxt undangenginna þriggja alda sóttu drepsóttir nú fast að með mannfelli og hörmungum. Efnahagsþrengingar settu svip sinn á mannlíf hátt og lágt ― valdamenningu, félagsformgerðir og trúarlíf. Menntun, menning og listir héldu fyrra afli en dauði og forgengileiki mannlegs lífs var víða í forgrunni. Innri friður álfunnar átti einnig undir högg að sækja þegar konungsveldi efldust enn frekar, oft með íþyngjandi og ófriðlegum hætti fyrir vinnandi stéttir og almúga. Rómarkirkjan, sem risið hafði hátt undir páfavaldi á hámiðöldum, fór hins vegar halloka fyrir veraldarvaldhöfum eða staðbundnu kirkjuvaldi og dró úr völdum páfa innan kirkju og kristindóms. En hvert sem litið er á tímabilinu haldast dauði og endurfæðing í hendur, eftirvænting eftir því sem tekur við þessa heims og annars í skugga dauðans.
Dauði og endurfæðing er inngangsnámskeið sniðið að nýnemum í sagnfræði ― öðrum er velkomið að nýta það sem valnámskeið. Lesin verður grunnbók um tímabilið en sjónum einkum beint að eftirtöldum þemum í fyrirlestrum: (1) Hnignun páfavalds og efling kirkjuþinga; (2) trúarinnlifun, alþýðutrú og mystisismi; (3) efling ríkisvalds við þröngan kost, stríð og örðuga skattheimtu; (4) Svarti dauði og mannfækkun af hallærum ― langvinn áhrif á efnahag, verslun og félagsgerðir; (5) menntun, menning og listir í skugga mannfellis og drepsótta; (6) rætur siðaskipta og endurreisnar í miðaldamenningu.
Námsmat byggir á stuttri ritgerð og skriflegu lokaprófi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Inngangur að klassískum fræðum (KLM103G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangur að klassískum fræðum eða fornfræði. Fjallað verður um sögu og þróun fræðigreinarinnar og helstu viðfangsefni hennar og aðferðir í nútímanum: Nemendum verður kynnt klassísk textafræði og hinar ýmsu greinar klassískra fræða og viðfangsefnum þeirra, svo sem sagnfræði, heimspeki og bókmenntir fornaldar. Auk þess verður fjallað um heimildavinnu og vinnulag í klassískum fræðum og þær venjur sem mótast hafa í greininni. Nemendum verða kynnt helstu stoðrit klassískra fræða og reynt verður að efla ratvísi þeirra um heim klassíkurinnar. Þekking á fornmálunum er ekki áskilin.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Sagnfræðileg vinnubrögð (SAG101G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um sérstöðu og einkenni sagnfræði og hvernig sambandi hennar við aðrar fræðigreinar er háttað. Rannsóknatækni sagnfræðinga er kynnt sem og fræðileg vinnubrögð í sagnfræði, einkum heimildafræði, megindlegar aðferðir í sagnfræði og ritgerðasmíð. - Námskeiðið skal taka á fyrsta misseri í sagnfræðinámi (öðru misseri fyrir þá nemendur sem byrja um áramót).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Frumkristni: Samtíðar- og bókmenntasaga (GFR211G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um upphaf frumkristni sem og sögulegan og hugmyndafræðilegan bakgrunn hennar. Áhersla verður lögð á rætur frumkristni í síðgyðingdómi og saga og þróun síðgyðingdómsins rakin í því sambandi. Einnig verða hugmyndafræðilegar rætur frumkristni í hinum helleníska menningarheimi skoðaðar. Fjallað verður um frumkristnar bókmenntir þar sem áhersla verður lögð á sagnfræðilega nálgun efnisins. Gefin verður innsýn í einstök rit Nýja testamentisins sem og önnur frumkristin rit, einkum í ljósi sögulegs samhengis þeirra og annarra samtímabókmennta. Einnig verður fjallað almennt um eðli og form rita af þessu tagi. Þannig verður lagður faglegur grunnur að lestri og rannsóknum á frumkristnum textum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Heimur Rómverja: Saga og samfélag (KLM216G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið kynnir nemendum menningu, sögu og samfélag Rómverja. Áhersla verður lögð á tímann frá 201 f.o.t. til 180 e.o.t. Fjallað verður um helstu atburði sögunnar, megin stofnanir samfélagsins, samfélagsgerð, fjölskyldu og kynjahlutverk, þrælahald, menntun, menningu, trú afþreyingu og hversdagslíf. Auk stoðrita verða lesnir fornir textar í þýðingu (enskri eða íslenskri) en ekki gert ráð fyrir latínukunnáttu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Miðaldabókmenntir (ÍSL206G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um mismunandi leiðir til þess að nálgast miðaldatexta, hvort sem er eftir hefðbundnum leiðum bókmenntafræði miðalda eða nútímabókmenntarannsókna. Þá verður lesið og rætt um viðhorf miðaldamanna til bókmenningar, sagnaskemmtunar og skáldskapar. Helstu greinar íslenskra miðaldabókmennta verða lesnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Miðaldalatína (KLM203G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða lesnir og þýddir valdir kaflar úr latneskum miðaldabókmenntum (allt frá lokum 4ðu aldar til loka þeirrar 15du) úr ýmsum áttum: fagurbókmenntum og sagnaritun, heimspeki og guðfræði. Textar verða skýrðir málfræðilega og ræddir efnislega eftir þörfum.

Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, stendur til boða að ljúka verkefnum og prófum á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Latína II: Úrval latneskra texta (KLM201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið tekur við af KLM101G Latínu I. Í námskeiðinu verður lesið úrval latneskra texta eftir ýmsa höfunda.

Kennt er á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Forngríska II (KLM202G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið tekur við af KLM102G Forngrísku I. Í fyrri hluta námskeiðsins er haldið áfram með málfræði og setningafræði forngrísku (attísku) þar sem yfirferð lauk í Forngrísku I. Í síðari hluta námskeiðsins lesa nemendur úrval forngrískra texta frá ýmsum tímum og eftir ýmsa höfunda.

Kennsla fer þannig fram að fyrir hvern tíma er settur ákveðinn texti. Ætlast er til að nemendur lesi textann heima. Í tímanum er textinn þýddur og skýrður málfræðilega (og efnislega eftir atvikum).

Nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Forsaga (FOR204G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Forsaga fjallar um menningarsögu mannkyns eins og hún birtist í efnismenningunni, frá upphafi verkmenningar fyrir rúmlega 2,5 milljónum ára til loka járnaldar (≈ 0-800 AD), þ.e. einkum þau tímabil sem aðeins takmarkaðar eða engar ritheimildir eru til um. Í námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði forsögu, svo sem tímatalsfræði og skilgreiningar forsögulegra menningarsamfélaga. Auk þess  verður fjallað um ýmsar birtingarmyndir forsögulegra menningarsamfélaga, svo sem búsetumynstur, grafsiði, verkmenningu og verktækni, verslun og viðurværi. Áhersla verður lögð á þróun mannsins í hnattrænu samhengi og síðari forsögu Evrópu (≈ 10.000 BC-800 AD).

Í lok námskeiðsins er þess vænst að nemendur geti fótað sig í orðfæri forsögulegrar fornleifafræði og kunni skil á helstu vörðum forsögulegrar tímatalsfræði og evrópskrar forsögu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Forngrískar bókmenntir (ABF201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita yfirlit yfir bókmenntir Forngrikkja með lestri valinna öndvegisrita af ýmsu tagi allt frá Hómerskviðum til forngrískra skáldsagna frá tímum hins tvítyngda rómverska heimsveldis. Lesnar verða íslenskar þýðingar ef til eru. Námsmat byggir á prófum og ritgerð.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Siðfræði (HSP202G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Veitt verður yfirlit yfir þrjár af höfuðkenningum siðfræðinnar, reist á lestri frumtexta: kenningu Aristótelesar í Siðfræði hans, Johns Stuarts Mill í Nytjastefnunni og Immanuels Kant í Frumspeki siðlegrar breytni.

Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í II. hluta heimspekináms. Ætlast er til að það sé tekið á öðru misseri fyrsta námsárs í heimspeki. Námskeiðið getur verið valnámskeið fyrir nemendur í ýmsum öðrum greinum.

Fluttir verða 2 x 12 fyrirlestrar. Lestur námsefnisins er nauðsynlegt skilyrði fyrir árangursríkri þátttöku í tímum. Hver fyrirlestur tekur fyrir afmarkað efni. Að loknum fyrirlestri verða glærur settar inn á heimasvæði námskeiðsins í Canvas.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Þróun málvísinda (AMV205G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er saga málvísinda og málspeki rakin í megindráttum frá fornöld til nútímans. Áhersla er lögð á þær kenningar og uppgötvanir sem afdrifaríkastar hafa orðið fyrir hugmyndir og aðferðafræði málvísinda. Meðal annars er fjallað um málvísindi fornaldar, íslenska miðaldamálfræði og sögu málvísindanna á 19. og 20. öld. Að lokum verður rætt um strauma og stefnur í málvísindum nútímans.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Miðaldalatína (KLM203G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða lesnir og þýddir valdir kaflar úr latneskum miðaldabókmenntum (allt frá lokum 4ðu aldar til loka þeirrar 15du) úr ýmsum áttum: fagurbókmenntum og sagnaritun, heimspeki og guðfræði. Textar verða skýrðir málfræðilega og ræddir efnislega eftir þörfum.

Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, stendur til boða að ljúka verkefnum og prófum á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Grískir og rómverskir sagnaritarar (KLM204G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um sagnaritun Forngrikkja og Rómverja, rekur upphaf hennar og þróun og ræðir umfang hennar, eðli, aðferðir og tilgang. Fjallað verður um höfunda á borð við Heródótos, Þúkýdídes, Xenofon, Pólýbíos, Cato, Sallustius, Livius, Plútarkos, Suetonius, Tacitus, Ammianus Marcellinus auk annarra. Lesið verður m.a. úr frumtextum í þýðingum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Rómverja saga (SAG271G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Arfur Rómaveldis í vestrænni menningu síðari alda er afgerandi og ristir djúpt. Í þessu námskeiði verður fjallað um sögu Rómaveldis frá upphafi fram til fjórðu aldar, frá stofnun borgarinnar til Konstantínusar mikla. Þetta er stórveldistími Rómar, þar sem hún rís frá því að vera bær í afskekktu héraði til stórborgar sem drottnaði yfir og skóp heim Miðjarðarhafsins. Þetta er ekki einföld saga um ris, hátind og hnignun heldur margbrotin saga umbreytinga og átaka í stjórnmálum og stjórnspeki, menningu og listum, efnahag og verslun, trú og heimsmynd, lífskjörum og félagslegum aðstæðum.

Auk grunnbókar um sögu tímabilsins ― Mary T. Boatwright et al., The Romans: From Village to Empire; A History of Rome from the Earliest Times to the End of the Western Empire, 2. útg. (Oxford: Oxford University Press, 2011) ― verða lesnar frumheimildir eftir Júlíus Sesar, Livíus, Dio Cassius, Svetóníus, Tacitus, Virgil, Óvidíus og fleiri. Sérstaklega verður hugað að heimildagrundvelli sögunnar, bæði ritheimildum og fornleifum, og spurt hvaða möguleika við höfum til þess að túlka og skilja horfinn heim. Skipti hlutur einstakra leikenda höfuðmáli eða flutu þeir á undirstraumi annarra aflavaka sögulegrar þróunar? Horft verður á nýlega leikna heimildaþáttaröð, Roman Empire: Reign of Blood, Master of Rome, The Mad Emperor (Netflix, 2016‒19) og gagnrýninna spurninga spurt um hvernig fortíðin birtist okkur í frásögn.

Námsmat byggir á ritgerð og lokaprófi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Grikklandssaga (SAG413G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um sögu Grikklands frá mínóískum tíma og fram að innlimun grísku borgríkjanna í Rómarveldi.
Áhersla verður lögð á klassískan og hellenískan tíma, tilkomu lýðræðis innan borgríkjanna, Persastríðin og Pelopsskagastyrjöldina, heimsveldi Alexanders mikla. Einnig verða rakin örlög arftakaríkjanna í Makedoníu,
Sýrlandi og Egyptalandi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári
  • Haust
  • KLM101G
    Latína I: Byrjendanámskeið
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í latínu ætlað byrjendum. Ekki er gert ráð fyrir kunnáttu í latínu við upphaf námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði. Farið er yfir beygingafræði latínunnar svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Stuttir leskaflar og málfræðiæfingar.

    Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM102G
    Forngríska I: Byrjendanámskeið
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir beygingarfræði forngrísku (attísku) í meginatriðum svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Áhersla er lögð á að nemendur læri í námskeiðinu þau atriði sem þeir þurfa til að geta byrjað að lesa og þýða forngríska texta. Ekki er gert ráð fyrir neinni kunnáttu í grísku í upphafi námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði.

    Fylgt verður 2. útg. kennslubókar Donalds J. Mastronarde. Lögð verður áhersla á meginatriði. Kennt verður tvisvar í viku. Kennslustundir innihalda bæði fyrirlestur sem tekur fyrir afmarkað efni og verkefnavinnu þar sem reynir á virkni nemenda. Valdir textar verða þýddir og skýrðir málfræðilega. Lestur námsefnisins fyrir hvern tíma er nauðsynlegt skilyrði þess að nemendur nái valdi á námsefninu. Hverjum fyrirlestri fylgja glósur kennara, sem settar verða á Canvas.

    Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM304G
    Skáldsagan í fornöld
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um skáldsöguna í klassískri fornöld. Skáldaðar sögur í óbundnu máli urðu til á 1. öld og þróuðust áfram í síðfornöld. Margvísleg tengsl eru við aðrar bókmenntagreinar, s.s. gríska og latneska skopleiki, satírur og fleira. Í námskeiðinu verður fjallað um helstu höfunda hinnar fornu skáldsögu og verk þeirra og hvernig þau tengjast öðrum grísk-latneskum bókmenntum.

    Kunnáttu í latínu er ekki krafist en nemendur í klassískum málum geta valið að taka 5 ECTS eða 10 ECTS sérverkefni um latneskan frumtexta í tengslum við námskeiðið. Sérverkefnum sem nemendum stendur til boða að vinna er ætlað að styrkja latínukunnáttu nemenda (orðaforða og málfræði) og þjálfa nemendur í lestri frumtexta og greiningu þeirra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM115G
    Heimur Forngrikkja: Saga og samfélag
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Raktir verða þættir úr sögu Forngrikkja, með áherslu á menningu þeirra og hugmyndaheim frá upphafi til yfirráða Rómar. Lesnir verða valdir kaflar úr bókmenntaverkum þeirra í þýðingum.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR104G
    Inngangur að Gamla testamentinu
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um tilurðar- og bókmenntasögu Gamla testamentisins og þá mynd af stjórnmálasögu og trúarsögu „Ísraels“ sem þar er sett fram. Jafnframt verður fjallað um niðurstöður nýjustu ritskýringar-, sagnfræði- og fornleifarannsókna á stjórnmála- og trúarsögu landsvæðisins fyrir botni Miðjarðarhafs frá lokum bronsaldar og á 1. árþúsundi f. Kr. og þær niðurstöður bornar saman við söguskilning Gamla testamentisins. M.ö.o. verður annars vegar leitast við að varpa ljósi á „Ísrael“ Biblíunnar og hins vegar „Ísrael“ sögunnar (í sagnfræðilegum skilningi). Hugað verður að ólíkum hugmyndahefðum sem varðveittar eru í mismunandi bókmenntahefðum Gamla testamentisins og þessar hugmyndahefðir settar í almennt samhengi menningar og trúar þjóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs til forna. Einnig verður hugað að þróun guðsmyndarinnar í konungsríkjunum Ísrael og Júda á grundvelli rannsókna á félagssögulegu samhengi átrúnaðar í G.t.

    Til grundvallar liggur nálgun og umfjöllun kennslubókar námskeiðsins, Introduction to the Bible eftir Christine Hayes, prófessor í trúarbragðafræðum við Yale-háskóla.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR212G
    Gríska Nýja testamentisins
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið þessa námskeiðs er að veita nemendum grunn til að lesa og túlka texta Nýja testamentisins á sjálfstæðan hátt. Farið verður yfir meginatriði málfræðilegrar uppbyggingar forngrísku og textadæmi úr Nýja testamentinu og öðrum frumkristnum textum lesin í því sambandi. Lögð verður áhersla á hagnýtingu grískukunnáttunnar innan guðfræði og trúarbragðafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP104G
    Fornaldarheimspeki
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Veitt verður yfirlit yfir heimspeki fornaldar, byggt á nákvæmum lestri frumtexta. Fjallað verður um frumherja grískrar heimspeki fram yfir daga Sókratesar, heimspeki Platons og Aristótelesar, sem og arftaka þeirra, efahyggjumenn, epikúringa og stóumenn. Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir og skilning á þróun fornaldarheimspeki frá frumherjunum til síðfornaldar. Auk þess er námskeiðinu ætlað að kynna nemendum samhengi heimspekisögu og heimspekilegrar rökræðu og þjálfa þá í að lesa og greina heimspekirit liðins tíma. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að þekkja helstu tímabil og höfunda fornaldarheimspeki, sem og hugmyndir þeirra og röksemdir. Þeir ættu að geta gert grein fyrir skoðunum fornaldarheimspekinga, stutt greinargerðina tilvísunum í frumtexta og borið saman hugmyndir ólíkra heimspekinga. Auk þess ættu þeir að hafa skilning á mikilvægi heimspekisögu fyrir heimspekilega rökræðu, sögulegum uppruna sígildra heimspekilegra vandamála.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG115G
    Dauði og endurfæðing - Inngangur að síðmiðöldum - Heimssaga I
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Síðmiðaldir (14.-15. öld) einkenndust af andstreymi á flestum sviðum evrópsks samfélags. Eftir mannfjölgun, þenslu og vöxt undangenginna þriggja alda sóttu drepsóttir nú fast að með mannfelli og hörmungum. Efnahagsþrengingar settu svip sinn á mannlíf hátt og lágt ― valdamenningu, félagsformgerðir og trúarlíf. Menntun, menning og listir héldu fyrra afli en dauði og forgengileiki mannlegs lífs var víða í forgrunni. Innri friður álfunnar átti einnig undir högg að sækja þegar konungsveldi efldust enn frekar, oft með íþyngjandi og ófriðlegum hætti fyrir vinnandi stéttir og almúga. Rómarkirkjan, sem risið hafði hátt undir páfavaldi á hámiðöldum, fór hins vegar halloka fyrir veraldarvaldhöfum eða staðbundnu kirkjuvaldi og dró úr völdum páfa innan kirkju og kristindóms. En hvert sem litið er á tímabilinu haldast dauði og endurfæðing í hendur, eftirvænting eftir því sem tekur við þessa heims og annars í skugga dauðans.
    Dauði og endurfæðing er inngangsnámskeið sniðið að nýnemum í sagnfræði ― öðrum er velkomið að nýta það sem valnámskeið. Lesin verður grunnbók um tímabilið en sjónum einkum beint að eftirtöldum þemum í fyrirlestrum: (1) Hnignun páfavalds og efling kirkjuþinga; (2) trúarinnlifun, alþýðutrú og mystisismi; (3) efling ríkisvalds við þröngan kost, stríð og örðuga skattheimtu; (4) Svarti dauði og mannfækkun af hallærum ― langvinn áhrif á efnahag, verslun og félagsgerðir; (5) menntun, menning og listir í skugga mannfellis og drepsótta; (6) rætur siðaskipta og endurreisnar í miðaldamenningu.
    Námsmat byggir á stuttri ritgerð og skriflegu lokaprófi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Ekki kennt á misserinu
    KLM103G
    Inngangur að klassískum fræðum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að klassískum fræðum eða fornfræði. Fjallað verður um sögu og þróun fræðigreinarinnar og helstu viðfangsefni hennar og aðferðir í nútímanum: Nemendum verður kynnt klassísk textafræði og hinar ýmsu greinar klassískra fræða og viðfangsefnum þeirra, svo sem sagnfræði, heimspeki og bókmenntir fornaldar. Auk þess verður fjallað um heimildavinnu og vinnulag í klassískum fræðum og þær venjur sem mótast hafa í greininni. Nemendum verða kynnt helstu stoðrit klassískra fræða og reynt verður að efla ratvísi þeirra um heim klassíkurinnar. Þekking á fornmálunum er ekki áskilin.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG101G
    Sagnfræðileg vinnubrögð
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um sérstöðu og einkenni sagnfræði og hvernig sambandi hennar við aðrar fræðigreinar er háttað. Rannsóknatækni sagnfræðinga er kynnt sem og fræðileg vinnubrögð í sagnfræði, einkum heimildafræði, megindlegar aðferðir í sagnfræði og ritgerðasmíð. - Námskeiðið skal taka á fyrsta misseri í sagnfræðinámi (öðru misseri fyrir þá nemendur sem byrja um áramót).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • GFR211G
    Frumkristni: Samtíðar- og bókmenntasaga
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um upphaf frumkristni sem og sögulegan og hugmyndafræðilegan bakgrunn hennar. Áhersla verður lögð á rætur frumkristni í síðgyðingdómi og saga og þróun síðgyðingdómsins rakin í því sambandi. Einnig verða hugmyndafræðilegar rætur frumkristni í hinum helleníska menningarheimi skoðaðar. Fjallað verður um frumkristnar bókmenntir þar sem áhersla verður lögð á sagnfræðilega nálgun efnisins. Gefin verður innsýn í einstök rit Nýja testamentisins sem og önnur frumkristin rit, einkum í ljósi sögulegs samhengis þeirra og annarra samtímabókmennta. Einnig verður fjallað almennt um eðli og form rita af þessu tagi. Þannig verður lagður faglegur grunnur að lestri og rannsóknum á frumkristnum textum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    KLM216G
    Heimur Rómverja: Saga og samfélag
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið kynnir nemendum menningu, sögu og samfélag Rómverja. Áhersla verður lögð á tímann frá 201 f.o.t. til 180 e.o.t. Fjallað verður um helstu atburði sögunnar, megin stofnanir samfélagsins, samfélagsgerð, fjölskyldu og kynjahlutverk, þrælahald, menntun, menningu, trú afþreyingu og hversdagslíf. Auk stoðrita verða lesnir fornir textar í þýðingu (enskri eða íslenskri) en ekki gert ráð fyrir latínukunnáttu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL206G
    Miðaldabókmenntir
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um mismunandi leiðir til þess að nálgast miðaldatexta, hvort sem er eftir hefðbundnum leiðum bókmenntafræði miðalda eða nútímabókmenntarannsókna. Þá verður lesið og rætt um viðhorf miðaldamanna til bókmenningar, sagnaskemmtunar og skáldskapar. Helstu greinar íslenskra miðaldabókmennta verða lesnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM203G
    Miðaldalatína
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða lesnir og þýddir valdir kaflar úr latneskum miðaldabókmenntum (allt frá lokum 4ðu aldar til loka þeirrar 15du) úr ýmsum áttum: fagurbókmenntum og sagnaritun, heimspeki og guðfræði. Textar verða skýrðir málfræðilega og ræddir efnislega eftir þörfum.

    Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, stendur til boða að ljúka verkefnum og prófum á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM201G
    Latína II: Úrval latneskra texta
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tekur við af KLM101G Latínu I. Í námskeiðinu verður lesið úrval latneskra texta eftir ýmsa höfunda.

    Kennt er á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM202G
    Forngríska II
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tekur við af KLM102G Forngrísku I. Í fyrri hluta námskeiðsins er haldið áfram með málfræði og setningafræði forngrísku (attísku) þar sem yfirferð lauk í Forngrísku I. Í síðari hluta námskeiðsins lesa nemendur úrval forngrískra texta frá ýmsum tímum og eftir ýmsa höfunda.

    Kennsla fer þannig fram að fyrir hvern tíma er settur ákveðinn texti. Ætlast er til að nemendur lesi textann heima. Í tímanum er textinn þýddur og skýrður málfræðilega (og efnislega eftir atvikum).

    Nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR204G
    Forsaga
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Forsaga fjallar um menningarsögu mannkyns eins og hún birtist í efnismenningunni, frá upphafi verkmenningar fyrir rúmlega 2,5 milljónum ára til loka járnaldar (≈ 0-800 AD), þ.e. einkum þau tímabil sem aðeins takmarkaðar eða engar ritheimildir eru til um. Í námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði forsögu, svo sem tímatalsfræði og skilgreiningar forsögulegra menningarsamfélaga. Auk þess  verður fjallað um ýmsar birtingarmyndir forsögulegra menningarsamfélaga, svo sem búsetumynstur, grafsiði, verkmenningu og verktækni, verslun og viðurværi. Áhersla verður lögð á þróun mannsins í hnattrænu samhengi og síðari forsögu Evrópu (≈ 10.000 BC-800 AD).

    Í lok námskeiðsins er þess vænst að nemendur geti fótað sig í orðfæri forsögulegrar fornleifafræði og kunni skil á helstu vörðum forsögulegrar tímatalsfræði og evrópskrar forsögu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF201G
    Forngrískar bókmenntir
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að veita yfirlit yfir bókmenntir Forngrikkja með lestri valinna öndvegisrita af ýmsu tagi allt frá Hómerskviðum til forngrískra skáldsagna frá tímum hins tvítyngda rómverska heimsveldis. Lesnar verða íslenskar þýðingar ef til eru. Námsmat byggir á prófum og ritgerð.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP202G
    Siðfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Veitt verður yfirlit yfir þrjár af höfuðkenningum siðfræðinnar, reist á lestri frumtexta: kenningu Aristótelesar í Siðfræði hans, Johns Stuarts Mill í Nytjastefnunni og Immanuels Kant í Frumspeki siðlegrar breytni.

    Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í II. hluta heimspekináms. Ætlast er til að það sé tekið á öðru misseri fyrsta námsárs í heimspeki. Námskeiðið getur verið valnámskeið fyrir nemendur í ýmsum öðrum greinum.

    Fluttir verða 2 x 12 fyrirlestrar. Lestur námsefnisins er nauðsynlegt skilyrði fyrir árangursríkri þátttöku í tímum. Hver fyrirlestur tekur fyrir afmarkað efni. Að loknum fyrirlestri verða glærur settar inn á heimasvæði námskeiðsins í Canvas.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • AMV205G
    Þróun málvísinda
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er saga málvísinda og málspeki rakin í megindráttum frá fornöld til nútímans. Áhersla er lögð á þær kenningar og uppgötvanir sem afdrifaríkastar hafa orðið fyrir hugmyndir og aðferðafræði málvísinda. Meðal annars er fjallað um málvísindi fornaldar, íslenska miðaldamálfræði og sögu málvísindanna á 19. og 20. öld. Að lokum verður rætt um strauma og stefnur í málvísindum nútímans.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM203G
    Miðaldalatína
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða lesnir og þýddir valdir kaflar úr latneskum miðaldabókmenntum (allt frá lokum 4ðu aldar til loka þeirrar 15du) úr ýmsum áttum: fagurbókmenntum og sagnaritun, heimspeki og guðfræði. Textar verða skýrðir málfræðilega og ræddir efnislega eftir þörfum.

    Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, stendur til boða að ljúka verkefnum og prófum á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM204G
    Grískir og rómverskir sagnaritarar
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um sagnaritun Forngrikkja og Rómverja, rekur upphaf hennar og þróun og ræðir umfang hennar, eðli, aðferðir og tilgang. Fjallað verður um höfunda á borð við Heródótos, Þúkýdídes, Xenofon, Pólýbíos, Cato, Sallustius, Livius, Plútarkos, Suetonius, Tacitus, Ammianus Marcellinus auk annarra. Lesið verður m.a. úr frumtextum í þýðingum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SAG271G
    Rómverja saga
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Arfur Rómaveldis í vestrænni menningu síðari alda er afgerandi og ristir djúpt. Í þessu námskeiði verður fjallað um sögu Rómaveldis frá upphafi fram til fjórðu aldar, frá stofnun borgarinnar til Konstantínusar mikla. Þetta er stórveldistími Rómar, þar sem hún rís frá því að vera bær í afskekktu héraði til stórborgar sem drottnaði yfir og skóp heim Miðjarðarhafsins. Þetta er ekki einföld saga um ris, hátind og hnignun heldur margbrotin saga umbreytinga og átaka í stjórnmálum og stjórnspeki, menningu og listum, efnahag og verslun, trú og heimsmynd, lífskjörum og félagslegum aðstæðum.

    Auk grunnbókar um sögu tímabilsins ― Mary T. Boatwright et al., The Romans: From Village to Empire; A History of Rome from the Earliest Times to the End of the Western Empire, 2. útg. (Oxford: Oxford University Press, 2011) ― verða lesnar frumheimildir eftir Júlíus Sesar, Livíus, Dio Cassius, Svetóníus, Tacitus, Virgil, Óvidíus og fleiri. Sérstaklega verður hugað að heimildagrundvelli sögunnar, bæði ritheimildum og fornleifum, og spurt hvaða möguleika við höfum til þess að túlka og skilja horfinn heim. Skipti hlutur einstakra leikenda höfuðmáli eða flutu þeir á undirstraumi annarra aflavaka sögulegrar þróunar? Horft verður á nýlega leikna heimildaþáttaröð, Roman Empire: Reign of Blood, Master of Rome, The Mad Emperor (Netflix, 2016‒19) og gagnrýninna spurninga spurt um hvernig fortíðin birtist okkur í frásögn.

    Námsmat byggir á ritgerð og lokaprófi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SAG413G
    Grikklandssaga
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um sögu Grikklands frá mínóískum tíma og fram að innlimun grísku borgríkjanna í Rómarveldi.
    Áhersla verður lögð á klassískan og hellenískan tíma, tilkomu lýðræðis innan borgríkjanna, Persastríðin og Pelopsskagastyrjöldina, heimsveldi Alexanders mikla. Einnig verða rakin örlög arftakaríkjanna í Makedoníu,
    Sýrlandi og Egyptalandi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Starfsmöguleikar í grísku, latínu og klassískum fræðum (eða fornfræði) geta verið afar fjölbreytilegir.

Fornfræði- og fornmálanám veitir í raun einstaka blöndu þjálfunar ólíkrar fræðilegrar hæfni: í tungumálum og málfræðigreiningu, sagnfræði og bókmenntafræði.

Vegna fjölbreytileika síns eflir fornfræðin bæði greinandi og heildræna hugsun nemandans auk málakunnáttu um leið og hún stuðlar að skilningi á eðli ólíkra heimilda, gagnrýninni heimildavinnu og næmum lesskilningi texta af ýmsu tagi. Þetta er hugvísindamenntun par excellence.

Fornmálanám við Háskóla Íslands miðar þess vegna að því að sinna því hlutverki sem háskólanám á umfram allt að gegna: að þroska nemendur vitsmunalega og efla með þeim gagnrýnið hugarfar, nákvæmni og góð vinnubrögð.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Rannsóknir
  • Kennslu
  • Blaðamennsku
  • Ritstörf
  • Útgáfu 
  • Ferðaþjónustu 
  • Stjórnmál

Listinn er ekki tæmandi.

  • Nemendafélag grísku- og latínunema heitir Carpe Diem og hefur verið starfrækt frá árinu 1976
  • Það hefur m.a. staðið fyrir árlegri árshátíð nemenda og kennara og hefur spjallhóp á Facebook þar sem eru bæði núverandi og fyrrverandi nemendur auk kennara
  • Carpe Diem skipar námsnefndarfulltrúa sem er boðið til samráðs í árlegri vinnu um námsframboð

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Sólveigu Hrönn Hilmarsdóttur
Eitt af því sem heillaði mig mest við nám í klassísku málunum tveimur latínu og grísku er hvað námið er fjölbreytt. Ég hef í náminu hér heima og í skiptinámi við fornfræðideild háskólans í Glasgow tekið kúrsa sem tengjast öllum hliðum fornaldar: latínu, grísku og málvísindum, bókmenntum, sagnfræði, heimspeki og list. Gráðan veitir því góðan grunn á mjög breiðu sviði og að mörgu leyti tel ég að klassísk mál séu með þverfaglegustu námsgreinunum sem Háskóli Íslands býður upp á. Kennararnir eru mjög áhugasamir um fagið og alltaf tilbúnir að aðstoða nemendur og ræða við þá.
Ljósmynd af Trausta Erni Einarssyni
Klassísk fræði sem aukagrein hefur gefið mér tækifæri til að öðlast dýpri skilning á heimi Forngrikkja og Rómverja. Saga og trúarbrögð, forngríska og latína, heimspeki og bókmenntir. Allt þetta og miklu fleira er hægt að fræðast um í náminu. Ég mæli með náminu fyrir alla sem hafa áhuga á þessum heillandi menningarheimi og áhrifum hans á nútímann.
Ljósmynd af Kristrúnu Ósk Óskarsdóttur
Frá því að ég man eftir mér hef ég alltaf haft mikinn áhuga á Forngrikkjum og Rómverjum. Í námi mínu í klassísku málunum, latínu og grísku, hef ég öðlast dýpri skilning á tungumáli og menningarheimi þessara þjóða. Námið er mjög fjölbreytt þar sem fjallað er um tungumálin og hinn mikla menningararf Forngrikkja og Rómverja. Kennararnir kunna vel sitt fag og eru alltaf reiðubúnir að aðstoða nemendur. Ég tel að allir, sem hafa áhuga á fornöldinni og áhrifum hennar á nútímann, ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi af þeim mörgu áföngum sem standa til boða.
Ljósmynd af Herði Brynjari Halldórssyni
Upphaflega vildi ég læra klassísk mál því margir frumtextar heimspekinnar voru ritaðir á forngrísku og latínu. Í gegnum námið hefur áhugi minn á öðrum fræðigreinum sem fást við fornöldina aukist sem og áhugi minn á íslensku og tungumálum almennt. Við lærum um ólík svið fornaldarinnar og getum líka unnið sérverkefni sem tengjast áhugamálum okkar. Námið er bæði krefjandi og skemmtilegt og eru kennararnir mjög hjálplegir. Ég hvet alla sem vilja fræðast um menningarsamfélög Forn-Grikkja og Rómverja og áhrif þeirra á menningu okkar að skrá sig í nám í klassískum málum
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil