Kínversk hátíðarhöld
Tungumál kennslu
Enska, kínverska og íslenska.
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á kínversku tungumáli?
  • Hefur þú gaman af kínverskum bókmenntum og menningu?
  • Viltu læra tvær námsgreinar?
  • Hefur þú áhuga á samfélags- og viðskiptafræði?
  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Þetta nám er 60 eininga aukagrein og þú getur tekið 120 eininga aðalgrein með því. Til þess að útskrifast með BA próf þarftu að ljúka 180 einingum. 

Ástundun kínverskra fræða gerir þér kleift að tjá þig á og skilja hversdagslegt mál og öðlast haldbæra þekkingu á kínversku ritmáli og menningarsamfélagi sem verið hefur í samfelldri mótun í yfir 3000 ár.

Meðal viðfangsefna

  • Saga Kína
  • Kínversk málnotkun
  • Kínverska
  • Kínversk menning og samfélag
  • Kínverksir textar
  • Bókmenntaþýðingar
  • Kínverskar kvennabókmenntir
  • Þýðingar

Markmið

Markmið námsins er að gera nemendum kleift að fá skilning á þessu fjarlæga og spennandi menningarsamfélagi fyrir tilstilli sterkrar undirstöðu í tungu, sögu og samfélagsrýni.

Nemendur fá:

  • færni í akademískum vinnubrögðum
  • gott vald á kínverskri tungu
  • undirstöðuþekkingu á kínverskum málvísindum
  • þekkingu á sögulegum og heimspekilegum forsendum kínversks samtíma
  • innsýn inn í þróun, breytingar og stefnu kínversks samfélags samtímans
  • skilning á veigamestu birtingarformum kínverskrar menninga

Kína er fjölmennasta ríki og annað stærsta hagkerfi veraldar. Umsvif þessa stórveldis eru svo mikil á flestum sviðum mannlífs í heiminum að á 21. öldinni getur engin þjóð heimsins leyft sér að vera án sérfræðinga sem eru læsir á gildismat, stefnu og markmið Kína. 

Annað

Einnig er hægt að taka kínversku sem:

Stúdentspróf.

Nemendum er skylt að ljúka öllum skyldunámskeiðum tilgreindum í námsleiðinni og velja á milli námskeiðanna Saga Kína I eða Saga Kína II.

Nemendur velja sér sjálfir 8 eininga valnámskeið innan kínveskra fræða. 

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Kína nútímans: Samfélag, stjórnmál og efnahagur (KÍN101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvernig virkar Kína? Yfirlitsnámskeið helstu áhrifaþátta kínversks samfélags, stjórnmála og efnahags með áherslu á afleiðingar opnunarstefnunnar eftir 1978. Farið verður yfir landfræði Kína. Stiklað er á stóru í efnahagssögu landsins. Stjórnmál og breytingar í forystu ríkisins og flokksins verða rýnd gaumgæfilega m.a. m.t.t. stjórnmálahagfræði Kína og samskipta við nágrannalöndin í Asíu og við Kyrrahaf. Einnig verða helstu atriði er varða þróun Kína nútímans skoðuð hvert fyrir sig í einstökum kennslustundum, þ. á m. orkumál, umhverfismál, lýðfræði, listir og alþjóðatengsl. Einnig verður vikið að stöðu fjölskyldunnar og kvenna, mannréttindum og fjölbreytileika. Hong Kong, Tævan og Tíbet eru einnig sérstaklega til umfjöllunar. Horft verður á klippur úr nýlegum kínverskum heimildamyndum sem taka á ýmsum þáttum hinna miklu umbreytinga sem orðið hafa á kínversku samfélagi undanfarna áratugi. Námskeiðið er kennt á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Kínversk málnotkun I (KÍN105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er einkum lögð áhersla á hljóðfræði með þjálfun framburðar og tóna. Uppistaða námskeiðsins eru æfingatímar til að þjálfa hlustun, skilning og tjáningu sem byggja á og útfæra námsefni námskeiðsins kínverska I. Námsstigið miðast við HSK 1.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Kínverska I (KÍN107G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Um er að ræða alhliða námskeið í staðlaðri kínversku (mandarín, putonghua) fyrir byrjendur. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum tungumálsins og málfræðilegri og tónalegri uppbyggingu þess. Áhersla er lögð á orðaforða daglegs lífs.

Í upphafi er pinyin umritunarformið kennt en síðan koma einfölduð kínversk tákn (jiantizi) til sögunnar. 

Heimaæfingar og tímapróf eru tíð. Gert er ráð fyrir miklu heima- og sjálfsnámi og í námskeiðinu gildir mætingarskylda.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Öld Asíu? Samtvinnaður uppgangur Kína og Indlands frá 1900 til dagsins í dag (KÍN503G)
Valnámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið verður kennt í 2. og 3. viku haustmisseris. Frekari tímasetningar verða gefnar út fyrir byrjun misseris.

Í þessu stutta námskeiði er ætlunin að tvinna saman nútímasögu Kína og Indlands frá 1900 til dagsins í dag. Varpað verður nýju ljósi á tuttugustu öldina út frá asísku sjónarhorni og litið til þess hvernig skilningur okkar á nútímasögu breytist þegar hún er skoðuð í gegnum það sem er bæði líkt og ólíkt í reynslu Kína og Indlands. Rýnt verður í samskipti sem snúa að andstöðu við nýlenduhyggju, diplómasíu á tímum kalda stríðsins og þaðan vikið að efnahagsumbótum og þá alþjóðaskipan sem ríkir í samtímanum. Námskeiðið leitast við að setja Kína og Indland í samtal með það að markmiði að ögra evrópumiðuðum nálgunum á alþjóðasögu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Ferlið og dygðin – Bókin um veginn – Daodejing – ritskýring (KÍN502G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður hið sígilda og áhrifamikla heimspeki- og trúarrit Daodejing lesið kafla fyrir kafla með það fyrir augum að gera grein fyrir inntaki textans í ljósi heimspekilegra og trúarlegra kenninga daoismans. Stuðst verður einkum við tvímála þýðingu Ragnars Baldurssonar sem nefnist á íslensku Ferlið og dygðin en jafnframt leitað fanga í öðrum erlendum þýðingum, túlkunum og skýringarritum. Kunnátta í kínversku ritmáli er kostur en ekki skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Vor
Saga Kína II: frá Qing-veldinu til nútímans (KÍN108G, KÍN102G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennari: Amy Matthewson, SOAS University of London

Námskeiðið fjallar um sögu kínversku þjóðarinnar frá og með seinni hluta Qing-veldisins (1644-1912) og grennslast fyrir um þau innri og ytri öfl sem hafa haft veigamikil áhrif á stöðu Kína í alþjóðasamfélaginu. Tekin verða til rannsóknar þau sögulegu ferli í Kína sem leiddu til þróunar nútímaríkisins og hugað að gagnvirkum áhrifum þeirra á framvindu alþjóðamála. Í námskeiðinu er hafist handa við að veita stutt yfirlit yfir stofnun síðasta keisaraveldis Kína, Qing-veldisins. Síðan er vikið að veigamiklum breytum í sögu þjóðarinnar, t.d. heimsvaldastefnu, uppreisnum og byltingu í Kína, sem öll höfðu mikil áhrif á samskipti Kínverja við önnur ríki. Að því loknu verður fjallað um stofnun Alþýðulýðveldisins Kína, flótta stjórnar Þjóðernissinna til Taívan, stefnumál Mao Zedong, menningarbyltinguna og opnunarstefnuna. Námskeiðið er kennt á ensku og í fjarfundarbúnaði.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Vor
Saga Kína I: From Mythological Origins to Late Ming (KÍN108G, KÍN102G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið fjallar um sögu Kína frá goðsögulegum tíma Xia-veldisins á þriðja árþúsundi f.Kr. fram að upphafi nítjándu aldar. Varpað verður ljósi á jafnt þær breytur sem varðað hafa mestu um mótun kínverskrar menningar sem einstaka viðburði í pólítískri og samfélagslegri framvindu þjóðarinnar. Veitt verður yfirlit yfir tilkomu og þróun áhrifamestu kínversku trúarbragða- og heimspekikerfa, einkum konfúsíanisma, daoisma og búddisma. Áhrifamiklir einstaklingar verða kynntir til sögunnar og samskipti og gagnkvæm áhrif erlendra þjóðhópa og Kínverja fá umtalsvert vægi.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Kínverska II (KÍN202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Um er að ræða alhliða námskeið í staðlaðri kínversku (mandarín, putonghua) fyrir byrjendur og framhald námskeiðsins kínverska I. Námsstigið miðast við HSK 2-3.

Nemendur dýpka skilning sinn á málfræði, bæta orðaforða og ná föstum tökum á grundvallaratriðum kínverskrar tungu. Kennsla mun fara aukið fram á kínversku og áhersla verður á virka notkun málsins. Heimaæfingar og tímapróf verða tíð. Gert er ráð fyrir miklu heima- og sjálfsnámi.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Kínversk málnotkun II (KÍN204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald námskeiðsins kínversk málnotkun I og heldur áfram hljóðfræðilegri þjálfun nemenda með áherslu á framburð og tóna. Uppistaða námskeiðsins eru æfingatímar til að þjálfa hlustun, skilning og tjáningu sem byggja á og útfæra námsefni námskeiðsins kínverska II. Námsstigið miðast við HSK 2.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Kínversk trúarbrögð (KÍN614G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður hafist handa við að draga fram þau sérkenni kínverskra trúarbragða sem greina þau frá trúarbrögðum hinnar abrahamísku trúarhefðar. Megininntak námskeiðsins eru síðan þau trúarbrögð sem hafa orðið til innan kínverskrar menningarhefðar, þ.e. daoismi, kínverskur búddismi (m.a. chan 禪, tiantai 天台 og jingtu 淨土) og kínversk alþýðutrú undir konfúsíanískum áhrifum. Rýnt verður í nokkur grunnrit þessara trúarbragða í því skyni að átta sig á helstu kenningum þeirra en jafnframt litið til birtingarforma þeirra í samtímanum, helgiathafna og samfélagslegrar stöðu, jafnt í Alþýðulýðveldinu Kína, Tævan, Malasíu, Singapúr og víðar. Eftir því sem tími gefst til verður jafnframt vikið að nokkrum nýlegum trúarhreyfingum sem blanda saman ýmsum eldri kínverskum hefðum, t.d. Tiandi jiao 天帝, Falun gong 法輪功 og Cao Dai í Víetnam, og hugað að öðrum trúarbragðahefðum sem hafa tekið sér bólstað í Kína, þ.á.m. kristni og íslam.

Kennslutungumál: Íslenska
Fyrsta ár
  • Haust
  • KÍN101G
    Kína nútímans: Samfélag, stjórnmál og efnahagur
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvernig virkar Kína? Yfirlitsnámskeið helstu áhrifaþátta kínversks samfélags, stjórnmála og efnahags með áherslu á afleiðingar opnunarstefnunnar eftir 1978. Farið verður yfir landfræði Kína. Stiklað er á stóru í efnahagssögu landsins. Stjórnmál og breytingar í forystu ríkisins og flokksins verða rýnd gaumgæfilega m.a. m.t.t. stjórnmálahagfræði Kína og samskipta við nágrannalöndin í Asíu og við Kyrrahaf. Einnig verða helstu atriði er varða þróun Kína nútímans skoðuð hvert fyrir sig í einstökum kennslustundum, þ. á m. orkumál, umhverfismál, lýðfræði, listir og alþjóðatengsl. Einnig verður vikið að stöðu fjölskyldunnar og kvenna, mannréttindum og fjölbreytileika. Hong Kong, Tævan og Tíbet eru einnig sérstaklega til umfjöllunar. Horft verður á klippur úr nýlegum kínverskum heimildamyndum sem taka á ýmsum þáttum hinna miklu umbreytinga sem orðið hafa á kínversku samfélagi undanfarna áratugi. Námskeiðið er kennt á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KÍN105G
    Kínversk málnotkun I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er einkum lögð áhersla á hljóðfræði með þjálfun framburðar og tóna. Uppistaða námskeiðsins eru æfingatímar til að þjálfa hlustun, skilning og tjáningu sem byggja á og útfæra námsefni námskeiðsins kínverska I. Námsstigið miðast við HSK 1.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KÍN107G
    Kínverska I
    Skyldunámskeið
    12
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    12 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Um er að ræða alhliða námskeið í staðlaðri kínversku (mandarín, putonghua) fyrir byrjendur. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum tungumálsins og málfræðilegri og tónalegri uppbyggingu þess. Áhersla er lögð á orðaforða daglegs lífs.

    Í upphafi er pinyin umritunarformið kennt en síðan koma einfölduð kínversk tákn (jiantizi) til sögunnar. 

    Heimaæfingar og tímapróf eru tíð. Gert er ráð fyrir miklu heima- og sjálfsnámi og í námskeiðinu gildir mætingarskylda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KÍN503G
    Öld Asíu? Samtvinnaður uppgangur Kína og Indlands frá 1900 til dagsins í dag
    Valnámskeið
    3
    Valnámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið verður kennt í 2. og 3. viku haustmisseris. Frekari tímasetningar verða gefnar út fyrir byrjun misseris.

    Í þessu stutta námskeiði er ætlunin að tvinna saman nútímasögu Kína og Indlands frá 1900 til dagsins í dag. Varpað verður nýju ljósi á tuttugustu öldina út frá asísku sjónarhorni og litið til þess hvernig skilningur okkar á nútímasögu breytist þegar hún er skoðuð í gegnum það sem er bæði líkt og ólíkt í reynslu Kína og Indlands. Rýnt verður í samskipti sem snúa að andstöðu við nýlenduhyggju, diplómasíu á tímum kalda stríðsins og þaðan vikið að efnahagsumbótum og þá alþjóðaskipan sem ríkir í samtímanum. Námskeiðið leitast við að setja Kína og Indland í samtal með það að markmiði að ögra evrópumiðuðum nálgunum á alþjóðasögu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • KÍN502G
    Ferlið og dygðin – Bókin um veginn – Daodejing – ritskýring
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður hið sígilda og áhrifamikla heimspeki- og trúarrit Daodejing lesið kafla fyrir kafla með það fyrir augum að gera grein fyrir inntaki textans í ljósi heimspekilegra og trúarlegra kenninga daoismans. Stuðst verður einkum við tvímála þýðingu Ragnars Baldurssonar sem nefnist á íslensku Ferlið og dygðin en jafnframt leitað fanga í öðrum erlendum þýðingum, túlkunum og skýringarritum. Kunnátta í kínversku ritmáli er kostur en ekki skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðinu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • Ekki kennt á misserinu
    KÍN108G, KÍN102G
    Saga Kína II: frá Qing-veldinu til nútímans
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennari: Amy Matthewson, SOAS University of London

    Námskeiðið fjallar um sögu kínversku þjóðarinnar frá og með seinni hluta Qing-veldisins (1644-1912) og grennslast fyrir um þau innri og ytri öfl sem hafa haft veigamikil áhrif á stöðu Kína í alþjóðasamfélaginu. Tekin verða til rannsóknar þau sögulegu ferli í Kína sem leiddu til þróunar nútímaríkisins og hugað að gagnvirkum áhrifum þeirra á framvindu alþjóðamála. Í námskeiðinu er hafist handa við að veita stutt yfirlit yfir stofnun síðasta keisaraveldis Kína, Qing-veldisins. Síðan er vikið að veigamiklum breytum í sögu þjóðarinnar, t.d. heimsvaldastefnu, uppreisnum og byltingu í Kína, sem öll höfðu mikil áhrif á samskipti Kínverja við önnur ríki. Að því loknu verður fjallað um stofnun Alþýðulýðveldisins Kína, flótta stjórnar Þjóðernissinna til Taívan, stefnumál Mao Zedong, menningarbyltinguna og opnunarstefnuna. Námskeiðið er kennt á ensku og í fjarfundarbúnaði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KÍN108G, KÍN102G
    Saga Kína I: From Mythological Origins to Late Ming
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið fjallar um sögu Kína frá goðsögulegum tíma Xia-veldisins á þriðja árþúsundi f.Kr. fram að upphafi nítjándu aldar. Varpað verður ljósi á jafnt þær breytur sem varðað hafa mestu um mótun kínverskrar menningar sem einstaka viðburði í pólítískri og samfélagslegri framvindu þjóðarinnar. Veitt verður yfirlit yfir tilkomu og þróun áhrifamestu kínversku trúarbragða- og heimspekikerfa, einkum konfúsíanisma, daoisma og búddisma. Áhrifamiklir einstaklingar verða kynntir til sögunnar og samskipti og gagnkvæm áhrif erlendra þjóðhópa og Kínverja fá umtalsvert vægi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KÍN202G
    Kínverska II
    Skyldunámskeið
    12
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    12 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Um er að ræða alhliða námskeið í staðlaðri kínversku (mandarín, putonghua) fyrir byrjendur og framhald námskeiðsins kínverska I. Námsstigið miðast við HSK 2-3.

    Nemendur dýpka skilning sinn á málfræði, bæta orðaforða og ná föstum tökum á grundvallaratriðum kínverskrar tungu. Kennsla mun fara aukið fram á kínversku og áhersla verður á virka notkun málsins. Heimaæfingar og tímapróf verða tíð. Gert er ráð fyrir miklu heima- og sjálfsnámi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KÍN204G
    Kínversk málnotkun II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er framhald námskeiðsins kínversk málnotkun I og heldur áfram hljóðfræðilegri þjálfun nemenda með áherslu á framburð og tóna. Uppistaða námskeiðsins eru æfingatímar til að þjálfa hlustun, skilning og tjáningu sem byggja á og útfæra námsefni námskeiðsins kínverska II. Námsstigið miðast við HSK 2.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KÍN614G
    Kínversk trúarbrögð
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður hafist handa við að draga fram þau sérkenni kínverskra trúarbragða sem greina þau frá trúarbrögðum hinnar abrahamísku trúarhefðar. Megininntak námskeiðsins eru síðan þau trúarbrögð sem hafa orðið til innan kínverskrar menningarhefðar, þ.e. daoismi, kínverskur búddismi (m.a. chan 禪, tiantai 天台 og jingtu 淨土) og kínversk alþýðutrú undir konfúsíanískum áhrifum. Rýnt verður í nokkur grunnrit þessara trúarbragða í því skyni að átta sig á helstu kenningum þeirra en jafnframt litið til birtingarforma þeirra í samtímanum, helgiathafna og samfélagslegrar stöðu, jafnt í Alþýðulýðveldinu Kína, Tævan, Malasíu, Singapúr og víðar. Eftir því sem tími gefst til verður jafnframt vikið að nokkrum nýlegum trúarhreyfingum sem blanda saman ýmsum eldri kínverskum hefðum, t.d. Tiandi jiao 天帝, Falun gong 法輪功 og Cao Dai í Víetnam, og hugað að öðrum trúarbragðahefðum sem hafa tekið sér bólstað í Kína, þ.á.m. kristni og íslam.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Viðskipti við Kína hefur aukist mjög á síðasta áratug. Ferðamönnum frá Kína hefur fjölgað mikið. Umsvif Kínverja eru að verða fyrirferðameiri á alþjóðavísu.

Fólk sem hefur próf í kínverskum fræðum starfar meðal annars við:

  • Alþjóðaviðskipti
  • Ferðaþjónustu
  • Túlkun og þýðingar
  • Stofnanir 
  • Fræðimennsku
  • Kennslu
  • Rannsóknir
  • Orkuiðnað

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Ummæli nemenda
Ljósmynd af Eyþóri Björgvinssyni
Kínversk fræði er frábær námsleið fyrir þá sem hafa áhuga á tungumálum og/eða kínverskum málefnum. Þess má geta að námið er mjög krefjandi en ekki síður skemmtilegt. Í boði eru einstaklega áhugaverð námskeið sem snúa að kínverskri sögu, menningu og samfélagi. Námið er vel skipulagt og kennsluefni mjög áhugavert. Sérstakt hrós fá kínverskukennararnir. Þeir kenndu okkur af miklu kappi og héldu vel utan um hópinn. Kostur er á að klára þriðja skólaárið í Kína. Í raun alger hápunktur námsins þar sem maður er umkringdur kínverskri menningu, sögu og tungu. Skiptinám af þessu tagi er að mínu mati einn besti "kennarinn". Ég get því heils hugar mælt með kínverskri fræði sem aðalgrein.
Snæfríður Grímsdóttir
Námið í kínverskum fræðum var styrkur grunnur fyrir áframhaldandi nám og síðar vinnu. Nemendur öðlast vald á tungumáli hjá sívaxandi stórveldi, en læra einnig að tileinka sér öguð vinnubrögð, gagnrýna hugsun og annað sem er ómissandi á hvaða starfsvettvangi sem er - þess utan eru kennararnir fyrsta flokks!
Hinrik Hólmfríðarson Ólason
Ég hafði búið í Taívan og kunni ágætis kínversku áður en ég fór í námið. Í náminu fékk ég/ fá allir skólastyrk til að fara til meginlands Kína. Ég jók því færni mína í ræðu og riti til muna. Að læra sögu Kína í akademísku umhverfi jók líka bæði skilning minn á Kínverjum og kínversku því Kínverjar þekkja söguna sína mjög vel, vitna gjarnan í hana og tala meira í sögulegum málsháttum en við Íslendingar. Ég lærði líka ýmis heillandi forn-fræði en við deildina eru stundaðar rannsóknir á kínverskri heimspeki (daóisma, konfúsíanisma og búddisma). Þetta nám gagnaðist mér bæði í leik og starfi.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil