- Viltu kenna samfélagsfræði og tengdar greinar?
- Hefur þú brennandi áhuga samfélagsmálum?
- Viltu stuðla af samfélagslæsi og hæfni til að lifa í fjölbreyttu samfélagi?
- Hefur þú áhuga á fræðilegu og starfstengdu vettvangsnámi?
- Sækist þú eftir launuðu starfsnámi á loka ári námsins?
- Viltu hafa réttindi til að geta kennt á þremur skólastigum?
M.Ed. nám í kennslu samfélagsgreina er ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig grunnskólakennslu með sérstaka áherslu á samfélagsfræði, sögu, landafræði, kynjafræði, trúarbragðafræði, heimspeki, siðfræði eða lífsleikni.
Samfélagsgreinar fjalla um mannlegt samfélag í nútíð og fortíð, forsendur þess, lífsbjargir og hugarheim. Þær spanna vítt svið, allt frá náttúrulegum skilyrðum til átrúnaðar, fortíðar og félagsgerðar.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.
Kjörsvið
Nemendur velja eitt af eftirfarandi kjörsviðum miðað við fyrra nám:
- Fimm ára kennaranám, fyrir nemendur með B.Ed. próf
- Kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS-prófi
- Samfélagsgreinar fyrir kennara með leyfisbréf
Mikilvægt er að velja kjörsvið eftir bakgrunni nemanda.
Námið skiptist í sameiginlegan kjarna allra námsleiða í deild faggreinakennslu, faggreinakjarna og námskeið í samfélagsgreinum.
Helstu áherslur
- Samfélagsgreinamenntun
- Ísland nútíðar og fortíðar í alþjóðlegu samhengi
- Straumar og stefnu samfélagsgreina
- Nýjungar í náms- og kennslufræði sem og námskrárfræðum
- Rannsóknir og rannsóknaaðferðir
- Vettangskennsla
- Lokaverkefni
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku.
Námskeið eru ýmist kennd í fjar- eða staðnámi og er nemendum því bent á að kynna sér kennslufyrirkomulag hvers námskeiðs vel. Sjá skilgreiningar á mismunandi námsformi.
Kennslufræði greinanna er tengd námskeiðunum og vettvangsnámi nemenda.
Meginmarkmið
Markmið námsins er að mennta kennara til kennslu samfélagsgreina á öllum stigum grunnskóla, þó að sérstök áhersla sé lögð á miðstig og unglingastig.
Annað
- Námsleiðin veitir þér rétt til þess að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
- Námið getur veitt aðgang að doktorsnámi.
Við inntöku í nám til M.Ed.-prófs gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra).
Námið byggir á lögum nr. 95/2019 um að við brautskráningu búi kennari með sérhæfingu á grunnskólastigi yfir sérhæfðri hæfni í faggrein / kennslugrein grunnskóla, að lágmarki 90 námseiningar. Kjörsvið sem leiða til kennsluréttinda eru skipulögð með fyrra nám umsækjenda í huga. Ef fyrra nám umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum úr grunnnámi til að uppfylla kröfur um lágmarksfjölda eininga í faggrein.
Ef umsækjandi um meistaranám sem leiðir til leyfisbréfs kennara hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Ljúka þarf 120 einingum til M.Ed.-prófs. Þar af skal meistaraprófsverkefni vera 30 einingar.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Vor
- Lokaverkefni
- Óháð misseri
- Félagsfræði og heimspeki menntunar
- Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum
- Ekki kennt á misserinuViðfangsefni í samfélagsgreinamenntun
- Mótandi afl: Menntun, réttlæti og gagnrýnin fræði
- Ekki kennt á misserinuÓlík sjónarhorn á íslenska miðaldasögu
- Ísland nútímans
- Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum
- Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum
Lokaverkefni (SFG401L)
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu: Fræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni
Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F, MAL102F)
Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (SFG106F, MAL102F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Viðfangsefni í samfélagsgreinamenntun (SFG107F)
Viðfangsefni: Fjallað verður um valin viðfangsefni tengd samfélagsgreinamenntun, þ.e. innan landafræði, lífsleikni, siðfræði, sögu, heimspeki, trúarbragðafræði eða þjóðfélagsfræði. Skoðaðar verða kenningar og rökræður um viðfangsefni, hugtök og nálganir á þessu sviði í kennslu og skólastarfi með það fyrir augum að nemendur geti nýtt sér umræðuna til að dýpka sýn sína á samfélagsgreinamenntun. Áhersla er lögð á þverfaglega nálgun í samfélagsgreinakennslu um leið og nemendum gefst kostur á að skoða betur þær greinar og viðfangsefni sem höfða mest til þeirra.
Vinnulag: Námskeiðið byggist á lestri fræðilegra texta og umræðum um þá. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þá og taki svo þátt í umræðum. Umræðutímarnir verða ekki teknir upp en þeir sem ekki komast í umræðutíma geta uppfyllt þátttökuskyldu með því að skila virkniverkefni. Einnig eru reglulega unnin ígrundunarverkefni. Þá kynna nemendur lokaverkefni sín í vinnustofu um lokaverkefni, áður en þeim er svo skilað.
Mótandi afl: Menntun, réttlæti og gagnrýnin fræði (SFG102M)
Viðfangsefni: Í námskeiðinu er fjallað um samspil samfélagsgreina við samfélög sín, með áherslu á Ísland. Markmiðið námskeiðsins er að nemendur öðlast þjálfun í að ígrunda hvernig þeirra kennsla á þátt í að móta viðtekin samfélagsleg viðmið og hugmyndafræði. Einnig hvernig kennarar geti gripið inn í og hafa áhrif á mótunarferlið í anda félagslegs réttlætis.
Inntak: Nemendur öðlast skilning á því hvernig greinarnar höfðu grundvallaráhrif á hugmyndafræði þjóðernishyggju og heimsvaldastefnu á 19. öld og hvernig arfleifð þessara hugmyndastefna birtist okkur í samtímanum. Því næst er athyglinni beint að völdum flóknum viðfangsefnum úr samtímanum og um leið fjallað um hvernig og hvort samfélagsgreinar geti eða eigi að hafa áhrif á samfélög í samtímanum. Nemendur kynnast fræðilegum viðfangsefnum gagnrýnna fræða, sér í lagi viðfangsefnum sem tilheyra gagnrýnum menntunarfræðum, loftslagsbreytingamenntun, kynjafræði, hinsegin fræðum og eftirlendufræðum. Þeir öðlast jafnframt þjálfun í að beita nálgunum gagnrýnna fræða, einkum gagnrýnna menntunarfræða, í skólastofunni, m.a. í skipulagi kennslu og hönnun og framkvæmd verkefna
Vinnulag: Vinnulag námskeiðsins byggist meðal annars á umræðum á neti og umræðum og verkefnavinnu í tímum þar sem nemendur fást við álitamál og æfa sig í að glíma við þau í grunnskólakennslu.
Ólík sjónarhorn á íslenska miðaldasögu (SFG103M)
Viðfangsefni: Í námskeiðinu verður fjallað um stóra drætti í íslenskri miðaldasögu, svo sem fólksflutninga, upphaf fastrar búsetu, átök trúarbragða, stéttaskiptingu, borgarastríð á Sturlungaöld og samskipti og tengsl við aðrar þjóðir. Meðal annars verður beitt sjónarhornum félagssögu, kynjasögu og umhverfissögu og nemendur þjálfaðir í beitingu sögulegrar hugsunar og rökfærslu, jafnt við eigin lestur sem og í samfélagsgreinakennslu. Áhersla verður lögð á að vinna með frumheimildir af margvíslegu tagi, sérstaklega í kennslu sögu og samfélagsgreina, en leiðarstef námskeiðsins er hvernig hægt sé að kenna efnið í grunn- og framhaldsskólum.
Vinnulag: Upptökur af fyrirlestrum sem nemendur kynna sér utan kennslustunda, vinnusmiðjur, vettvangsferðir, skapandi málstofur, sjálfstæð verkefni og samvinnuverkefni.
Ísland nútímans (SFG205F)
Viðfangsefni: Í námskeiðinu verður spurt hver sé staðan á Íslandi í dag með hliðsjón af t.d. samsetningu íbúa, búsetumynstri, atvinnuháttum, uppbyggingu samfélagsins og stjórnskipan. Í námskeiðinu greina þátttakendur valið svæði á Íslandi út frá opinberum gögnum og rannsóknarniðurstöðum. Einnig snýst greiningin um trúverðugleika upplýsinga, álitamál á borð við samband ríkis og trúarbragða og samfélagsleg áhrif loftslagsbreytinga. Rýnt verður í af hverju staðan sé sú sem birtist, hvort einhverju þyrfti að breyta og af hverju með hliðsjón af framtíðarsýn þátttakenda á skólastarf.
Vinnulag: Námskeiðið er að mestu skipt í tveggja vikna lotur þar sem fengist er við eitt þema í hverri lotu. Fyrirlestrar verða á neti og lesefni verður aðgengilegt á Canvas í skjölum eða á nettenglum. Lokapróf gildir 40%, en verkefni og hlutapróf 60%. Námskeiðið er kennt í vikulegum kennslustundum á neti. Enginn munur er á skipulagi náms hjá stað- og fjarnemum. Sjá nánar í kennsluáætlun. Þátttakendum skylt að mæta í 80% kennslustunda (sbr. reglur HÍ) samkvæmt kennsluáætlun.
Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)
Markmiðið er að nemendur
- hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
- þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
- geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
- séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
- hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun
Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.
Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.
Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir.
Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.
Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)
Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.
- Annað ár
- Haust
- Lokaverkefni
- Vor
- Lokaverkefni
- Óháð misseri
- Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein
- Nám og kennsla - fagmennska í starfi
Lokaverkefni (SFG401L)
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu: Fræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni
Lokaverkefni (SFG401L)
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu: Fræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni
Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.
Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
- Óháð námsári
- Óháð misseri
- Læsi í faggreinum
- Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga
- Ekki kennt á misserinuLoftslagsbreytingar og samfélög fólks
- Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi
- Fjármálalæsi og nýsköpun
- Upp með jafnréttisgleraugun: Jafnréttismenntun og jafnrétti í víðara samhengi
- Ekki kennt á misserinuLífsleikni - sjálfið
- Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda
- Fjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað nám
- Ekki kennt á misserinuHinsegin menntunarfræði
- Ekki kennt á misserinuHeimabyggðin
Læsi í faggreinum (ÍET214F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)
Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.
Loftslagsbreytingar og samfélög fólks (SFG002F)
Viðfangsefni: Námskeiðið beinir sjónum að loftslagsbreytingum og loftslagsmenntun (e. climate change education). Fjallað verður um orsakir loftslagsbreytinga af manna völdum og afleiðingar bæði á náttúru og samfélög fólks, þ.e. búsetuskilyrði fólks og lífsviðurværi heima og á heimsvísu. Rýnt verður í áherslu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um loftslagsmenntun og slík menntun rædd í samhengi heimsmarkmiða og lykilhæfni SÞ um sjálfbærnimenntun. Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af því hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi með áherslu á að valdefla nemendur. Rýnt verður í þátt tilfinninga í samhengi loftslagskvíða, félagslegt réttlæti og rætt hvernig samfélög fólks reyna að aðlagast og draga úr loftslagsbreytingum og hvers konar mótvægisaðgerðum er beitt.
Vinnulag: Námskeiðið er skipulagt í lotum þar sem fengist er við eitt þema í hverri lotu. Kennsla byggist á vikulegum kennslustundum á neti og þátttakendur vinna verkefni sem eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni og sníða þau að aldurshópi að eigin vali. Þá hafa þátttakendur val bæði um verkefni og innan verkefna. Fyrirlestrar verða á neti og lesefni verður aðgengilegt á Canvas í skjölum eða á nettenglum. Mætingaskylda er 80% samkvæmt kennsluáætlun, enda hafa nemendur þar ákveðið hlutverk sem ekki verður sinnt nema með þátttöku í tíma.
Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
Fjármálalæsi og nýsköpun (SNU012M)
Í námskeiðinu er fjallað um fjármálalæsi, nýsköpun og viðskiptatengd viðfangsefni með hliðsjón af kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á fjármálum einstaklinga og samfélags, ásamt grundvallarhugmyndum um rekstur, neyslu og viðskipti. Nemendur kynnast helstu hugtökum eins og tekjum og útgjöldum, sparnaði, lánum, sköttum, ábyrgri neyslu, jafnrétti í efnahagsmálum og sjálfbærni í fjármálum. Fjallað er um hvernig þessir þættir tengjast daglegu lífi, samfélagslegri ábyrgð og borgaravitund og hvernig kennarar geta miðlað viðfangsefninu á aðgengilegan, skapandi og sjónrænan hátt. Áhersla er á að tengja fjármálalæsi og nýsköpun við hæfniviðmið í upplýsinga- og tæknimennt, stærðfræði og samfélagsgreinum og efla gagnrýna hugsun gagnvart fjölmiðlum og neyslumenningu. Lögð er áhersla á vinnu með töflureikna og myndræna framsetningu gagna, auk þjálfunar í að lesa og túlka slíkar framsetningar á gagnrýninn hátt. Einnig er unnið með stafræna miðlun, ábyrga nethegðun og skapandi notkun upplýsingatækni í kennslu. Kennslan byggir á umræðum, dæmum og verkefnavinnu þar sem nemendur þróa hugmyndir um hvernig tengja má fjármál og viðskipti við skólastarf.
Upp með jafnréttisgleraugun: Jafnréttismenntun og jafnrétti í víðara samhengi (SFG203M)
Viðfangsefni: Í þessu námskeiði setjum við upp jafnréttisgleraugun og kynnumst einum grunnþætti Aðalnámskrár grunnskóla nánar, jafnrétti.
Inntak: Fjallað verður margvíslegar hliðar jafnréttis og jafnræðis og hvernig hægt er að tvinna jafnréttismenntun saman við kennslu samfélagsgreina á skapandi hátt. Fjallað er um jafnrétti og jafnræði út frá víðum sjónarhóli, líkt og í Aðalnámskrá grunnskóla, og lögð sérstök áhersla á jafnréttismál sem snúa að menningu og uppruna, fötlun, stétt og búsetu. Einnig verður hugað að þeirri margþættu mismunun sem fólk verður fyrir vegna samtvinnunar (e. intersectionality) ólíkra jaðarsetjandi þátta.
Vinnulag byggst á hópumræðum og verkefnavinnu í tímum þar sem nemendur fá t.d. fá þjálfun í gagnrýnum lestri hefðbundins námsefnis og kennsluáætlana- og verkefnagerð í anda jafnréttismenntunar. Í verkefnavinnu er m.a. lögð áhersla á að samþætta grunnþættina jafnrétti og sköpun en nemendur vinna eitt verkefni í samvinnu við nemendur í listgreinakennslu.
Lífsleikni - sjálfið (SFG104F)
Viðfangsefni: Á námskeiðinu er unnið með þá þætti lífsleikni sem miða að sjálfinu og persónulegri hæfni með fræðilegum og hagnýtum hætti. Efni námskeiðsins er í samræmi við ákvæði úr námskrám íslenskra leik-, grunn- og framhaldsskóla um að efla andlega heilsu, heilbrigða sjálfsmynd og siðferðilegan styrk nemenda. Meðal annars er fjallað um mannkostamenntun, lífstilraunir og nútvitund.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða í flestum vikum. Fyrirlestrar verða að jafnaði teknir upp fyrirfram og settir á Canvas-vef námskeiðsins. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þá og taki svo þátt í umræðum. Umræðutímarnir verða ekki teknir upp en þeir sem ekki komast í umræðutíma geta uppfyllt þátttökuskyldu með því að skila þátttökubloggi. Einnig eru unnin þrjú verkefni auk lokaverkefnis. Í staðlotum I og II eru tímarnir verklegir.
Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda (ÍET206F)
Fjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Fjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað nám (KME205F)
Markmið
Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þátttakendur efli þekkingu sína á fjölbreyttum kennsluháttum og hæfni sína í að fjalla um þá með fræðilega viðurkenndum hætti.
Viðfangsefni
Á námskeiðinu verður fjallað um kennsluaðferðahugtakið og dæmi kynnt um fræðilega flokkun kennsluaðferða. Rannsóknum á kennsluaðferðum verða gerð sérstök skil, einkum innlendum rannsóknum. Þá verður fjallað um kennsluhætti og kennsluaðferðir sem tengjast hugmyndum um nemendamiðað og lýðræðislegt skólastarf (m.a. opinn skóla, sveigjanlega kennsluhætti, samvinnunám, samkennslu, lausnaleitarnám, heildstæð viðfangsefni, þemanám, samkomulagsnám og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni). Efni námskeiðsins verður tengt þróun fjölbreyttra kennsluhátta hér á landi, og erlendis, og áhersla lögð á að þátttakendur ígrundi eigin reynslu af kennslu. Þátttakendum gefst tækifæri til að kynna sér einstaka kennsluhætti og kennsluaðferðir til nokkurrar hlítar og fjalla um það með fræðilegum hætti.
Vinnulag
Byggt er á fyrirlestrum, kynningum, málstofum, umræðum, sjálfstæðri vinnu, hópverkefnum, lestri og upplýsingaleit. Lögð er áhersla á að þátttakendur ígrundi eigið starf og greini, túlki og meti reynslu sína og tengi hana við fræði og rannsóknir. Þáttakendur ræða lesefni námskeiðsins og tengja það kennslustundum og eigin reynslu með aðstoð lestrardagbókar og annarra verkefna. Auk þess vinna nemendur lokaverkefni sem er hópverkefni.
Hinsegin menntunarfræði (SFG004M)
Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum í hinsegin menntunarfræðum. Enn fremur að þeir fái góða innsýn inn í fræðaheim hinsegin fræða. Áhersla verður lögð að að nemar tileinki sér gagnrýna sýn á uppeldi og menntun og að þeir verði meðvitaður um veruleika hinsegin ungmenna.
Viðfangsefni: Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynhneigð, kynvitund, samtvinnun, karlmennska, kvenleiki, kynhlutverk, kynjatvíhyggja, gagnkynhneigðarhyggja og síshyggja. Fjallað verður um megininntak hinsegin menntunarfræða og hvernig nálgun þeirra getur varpað ljósi á menntun, uppeldi, tómstunda- og félagsstarf og samfélag. Nálgunin verður í anda hinsegin fræða og félagslegrar mótunarhyggju sem verða notuð til að útskýra ólíkar hugmyndir um kynhneigð, kynvitund og hinsegin kynverund. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi, hérlendis og erlendis, og hvernig það viðheldur margs konar mismunun og ýtir jafnvel undir stofnanabundna gagnkynhneigðarhyggju og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við kynhneigð, kynvitund, skólakerfi, kennslu og námsbækur. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum í að búa til hinseginvænt andrúmsloft í barna- og ungmennahópi, að flétta hinsegin veruleika inn í starf sitt og bregðast við neikvæðum viðhorfum í garð hisneginleika.
Heimabyggðin (SFG202M)
Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að greina tækifæri og áskoranir í nærsamfélagi og nærumhverfi valins staðar á Íslandi og með hvaða hætti mætti vinna með efnið í skólastarfi.
Viðfangsefni námskeiðsins er heimabyggð hvers og eins eða valins svæðis. Rýnt verður í landfræði svæðisins út frá náttúrufari, atvinnulífi, samgöngum og landnýtingu. Einnig verður fjallað um afmörkun svæða út frá náttúrufari, sögu, efnahagslífi og búsetuþróun. Notuð verða hugtök um svæði, svo sem kjarnasvæði, jaðarsvæði, kjördæmi, sveitarfélag og landshluti. Fjallað verður um dreifingu fólksfjölda, þéttbýli, strjálbýli og samtök svæða hér á landi. Sjónum verður beint að staðtengdu námi og þætti upplifunar í námi um staði. Áhersla verður lögð á hvernig megi nýta sér álitamál og ágreiningsefni í kennslunni.
Vinnulag: Námskeiðinu er skipt í lotur. Fyrirlestrar verða á neti og lesefni verður aðgengilegt á Canvas í skjölum eða á nettenglum. Lokapróf gildir 40%, en verkefni og hlutapróf 60%. Námskeiðið er kennt á staðnum í staðlotum (stuttar vettvangsferðir) og svo neti í vikulegum kennslustundum. Nemendum er skylt að mæta í tiltekna tíma samkvæmt kennsluáætlun, enda hafa þeir þar ákveðið hlutverk sem ekki verður sinnt nema með þátttöku.
- Vor
- Námskeiðslýsing
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu: Fræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar- Óháð misseri
SFG106F, MAL102FFélagsfræði og heimspeki menntunarBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG106F, MAL102FNám og kennsla: Að mæta sérþörfumBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSFG107FViðfangsefni í samfélagsgreinamenntunBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Fjallað verður um valin viðfangsefni tengd samfélagsgreinamenntun, þ.e. innan landafræði, lífsleikni, siðfræði, sögu, heimspeki, trúarbragðafræði eða þjóðfélagsfræði. Skoðaðar verða kenningar og rökræður um viðfangsefni, hugtök og nálganir á þessu sviði í kennslu og skólastarfi með það fyrir augum að nemendur geti nýtt sér umræðuna til að dýpka sýn sína á samfélagsgreinamenntun. Áhersla er lögð á þverfaglega nálgun í samfélagsgreinakennslu um leið og nemendum gefst kostur á að skoða betur þær greinar og viðfangsefni sem höfða mest til þeirra.
Vinnulag: Námskeiðið byggist á lestri fræðilegra texta og umræðum um þá. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þá og taki svo þátt í umræðum. Umræðutímarnir verða ekki teknir upp en þeir sem ekki komast í umræðutíma geta uppfyllt þátttökuskyldu með því að skila virkniverkefni. Einnig eru reglulega unnin ígrundunarverkefni. Þá kynna nemendur lokaverkefni sín í vinnustofu um lokaverkefni, áður en þeim er svo skilað.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSFG102MMótandi afl: Menntun, réttlæti og gagnrýnin fræðiBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Í námskeiðinu er fjallað um samspil samfélagsgreina við samfélög sín, með áherslu á Ísland. Markmiðið námskeiðsins er að nemendur öðlast þjálfun í að ígrunda hvernig þeirra kennsla á þátt í að móta viðtekin samfélagsleg viðmið og hugmyndafræði. Einnig hvernig kennarar geti gripið inn í og hafa áhrif á mótunarferlið í anda félagslegs réttlætis.
Inntak: Nemendur öðlast skilning á því hvernig greinarnar höfðu grundvallaráhrif á hugmyndafræði þjóðernishyggju og heimsvaldastefnu á 19. öld og hvernig arfleifð þessara hugmyndastefna birtist okkur í samtímanum. Því næst er athyglinni beint að völdum flóknum viðfangsefnum úr samtímanum og um leið fjallað um hvernig og hvort samfélagsgreinar geti eða eigi að hafa áhrif á samfélög í samtímanum. Nemendur kynnast fræðilegum viðfangsefnum gagnrýnna fræða, sér í lagi viðfangsefnum sem tilheyra gagnrýnum menntunarfræðum, loftslagsbreytingamenntun, kynjafræði, hinsegin fræðum og eftirlendufræðum. Þeir öðlast jafnframt þjálfun í að beita nálgunum gagnrýnna fræða, einkum gagnrýnna menntunarfræða, í skólastofunni, m.a. í skipulagi kennslu og hönnun og framkvæmd verkefna
Vinnulag: Vinnulag námskeiðsins byggist meðal annars á umræðum á neti og umræðum og verkefnavinnu í tímum þar sem nemendur fást við álitamál og æfa sig í að glíma við þau í grunnskólakennslu.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSFG103MÓlík sjónarhorn á íslenska miðaldasöguBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Í námskeiðinu verður fjallað um stóra drætti í íslenskri miðaldasögu, svo sem fólksflutninga, upphaf fastrar búsetu, átök trúarbragða, stéttaskiptingu, borgarastríð á Sturlungaöld og samskipti og tengsl við aðrar þjóðir. Meðal annars verður beitt sjónarhornum félagssögu, kynjasögu og umhverfissögu og nemendur þjálfaðir í beitingu sögulegrar hugsunar og rökfærslu, jafnt við eigin lestur sem og í samfélagsgreinakennslu. Áhersla verður lögð á að vinna með frumheimildir af margvíslegu tagi, sérstaklega í kennslu sögu og samfélagsgreina, en leiðarstef námskeiðsins er hvernig hægt sé að kenna efnið í grunn- og framhaldsskólum.
Vinnulag: Upptökur af fyrirlestrum sem nemendur kynna sér utan kennslustunda, vinnusmiðjur, vettvangsferðir, skapandi málstofur, sjálfstæð verkefni og samvinnuverkefni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingViðfangsefni: Í námskeiðinu verður spurt hver sé staðan á Íslandi í dag með hliðsjón af t.d. samsetningu íbúa, búsetumynstri, atvinnuháttum, uppbyggingu samfélagsins og stjórnskipan. Í námskeiðinu greina þátttakendur valið svæði á Íslandi út frá opinberum gögnum og rannsóknarniðurstöðum. Einnig snýst greiningin um trúverðugleika upplýsinga, álitamál á borð við samband ríkis og trúarbragða og samfélagsleg áhrif loftslagsbreytinga. Rýnt verður í af hverju staðan sé sú sem birtist, hvort einhverju þyrfti að breyta og af hverju með hliðsjón af framtíðarsýn þátttakenda á skólastarf.
Vinnulag: Námskeiðið er að mestu skipt í tveggja vikna lotur þar sem fengist er við eitt þema í hverri lotu. Fyrirlestrar verða á neti og lesefni verður aðgengilegt á Canvas í skjölum eða á nettenglum. Lokapróf gildir 40%, en verkefni og hlutapróf 60%. Námskeiðið er kennt í vikulegum kennslustundum á neti. Enginn munur er á skipulagi náms hjá stað- og fjarnemum. Sjá nánar í kennsluáætlun. Þátttakendum skylt að mæta í 80% kennslustunda (sbr. reglur HÍ) samkvæmt kennsluáætlun.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMVS213F, MVS212FInngangur að megindlegum rannsóknaraðferðumBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið er að nemendur
- hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
- þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
- geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
- séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
- hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun
Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.
Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir.
Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMVS213F, MVS212FInngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðumBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust

Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar- Vor
NámskeiðslýsingLokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.

FAG401FNám og kennsla – vettvangsnám í faggreinSkyldunámskeið15Skyldunámskeið á námsleiðinni15 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME301FNám og kennsla - fagmennska í starfiSkyldunámskeið20Skyldunámskeið á námsleiðinni20 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Óháð misseri
- Námskeiðslýsing
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFAG201FMenntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytingaValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSFG002FLoftslagsbreytingar og samfélög fólksValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Námskeiðið beinir sjónum að loftslagsbreytingum og loftslagsmenntun (e. climate change education). Fjallað verður um orsakir loftslagsbreytinga af manna völdum og afleiðingar bæði á náttúru og samfélög fólks, þ.e. búsetuskilyrði fólks og lífsviðurværi heima og á heimsvísu. Rýnt verður í áherslu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um loftslagsmenntun og slík menntun rædd í samhengi heimsmarkmiða og lykilhæfni SÞ um sjálfbærnimenntun. Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af því hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi með áherslu á að valdefla nemendur. Rýnt verður í þátt tilfinninga í samhengi loftslagskvíða, félagslegt réttlæti og rætt hvernig samfélög fólks reyna að aðlagast og draga úr loftslagsbreytingum og hvers konar mótvægisaðgerðum er beitt.
Vinnulag: Námskeiðið er skipulagt í lotum þar sem fengist er við eitt þema í hverri lotu. Kennsla byggist á vikulegum kennslustundum á neti og þátttakendur vinna verkefni sem eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni og sníða þau að aldurshópi að eigin vali. Þá hafa þátttakendur val bæði um verkefni og innan verkefna. Fyrirlestrar verða á neti og lesefni verður aðgengilegt á Canvas í skjölum eða á nettenglum. Mætingaskylda er 80% samkvæmt kennsluáætlun, enda hafa nemendur þar ákveðið hlutverk sem ekki verður sinnt nema með þátttöku í tíma.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFAG101MJafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um fjármálalæsi, nýsköpun og viðskiptatengd viðfangsefni með hliðsjón af kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á fjármálum einstaklinga og samfélags, ásamt grundvallarhugmyndum um rekstur, neyslu og viðskipti. Nemendur kynnast helstu hugtökum eins og tekjum og útgjöldum, sparnaði, lánum, sköttum, ábyrgri neyslu, jafnrétti í efnahagsmálum og sjálfbærni í fjármálum. Fjallað er um hvernig þessir þættir tengjast daglegu lífi, samfélagslegri ábyrgð og borgaravitund og hvernig kennarar geta miðlað viðfangsefninu á aðgengilegan, skapandi og sjónrænan hátt. Áhersla er á að tengja fjármálalæsi og nýsköpun við hæfniviðmið í upplýsinga- og tæknimennt, stærðfræði og samfélagsgreinum og efla gagnrýna hugsun gagnvart fjölmiðlum og neyslumenningu. Lögð er áhersla á vinnu með töflureikna og myndræna framsetningu gagna, auk þjálfunar í að lesa og túlka slíkar framsetningar á gagnrýninn hátt. Einnig er unnið með stafræna miðlun, ábyrga nethegðun og skapandi notkun upplýsingatækni í kennslu. Kennslan byggir á umræðum, dæmum og verkefnavinnu þar sem nemendur þróa hugmyndir um hvernig tengja má fjármál og viðskipti við skólastarf.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSFG203MUpp með jafnréttisgleraugun: Jafnréttismenntun og jafnrétti í víðara samhengiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Í þessu námskeiði setjum við upp jafnréttisgleraugun og kynnumst einum grunnþætti Aðalnámskrár grunnskóla nánar, jafnrétti.
Inntak: Fjallað verður margvíslegar hliðar jafnréttis og jafnræðis og hvernig hægt er að tvinna jafnréttismenntun saman við kennslu samfélagsgreina á skapandi hátt. Fjallað er um jafnrétti og jafnræði út frá víðum sjónarhóli, líkt og í Aðalnámskrá grunnskóla, og lögð sérstök áhersla á jafnréttismál sem snúa að menningu og uppruna, fötlun, stétt og búsetu. Einnig verður hugað að þeirri margþættu mismunun sem fólk verður fyrir vegna samtvinnunar (e. intersectionality) ólíkra jaðarsetjandi þátta.
Vinnulag byggst á hópumræðum og verkefnavinnu í tímum þar sem nemendur fá t.d. fá þjálfun í gagnrýnum lestri hefðbundins námsefnis og kennsluáætlana- og verkefnagerð í anda jafnréttismenntunar. Í verkefnavinnu er m.a. lögð áhersla á að samþætta grunnþættina jafnrétti og sköpun en nemendur vinna eitt verkefni í samvinnu við nemendur í listgreinakennslu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSFG104FLífsleikni - sjálfiðValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Á námskeiðinu er unnið með þá þætti lífsleikni sem miða að sjálfinu og persónulegri hæfni með fræðilegum og hagnýtum hætti. Efni námskeiðsins er í samræmi við ákvæði úr námskrám íslenskra leik-, grunn- og framhaldsskóla um að efla andlega heilsu, heilbrigða sjálfsmynd og siðferðilegan styrk nemenda. Meðal annars er fjallað um mannkostamenntun, lífstilraunir og nútvitund.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða í flestum vikum. Fyrirlestrar verða að jafnaði teknir upp fyrirfram og settir á Canvas-vef námskeiðsins. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þá og taki svo þátt í umræðum. Umræðutímarnir verða ekki teknir upp en þeir sem ekki komast í umræðutíma geta uppfyllt þátttökuskyldu með því að skila þátttökubloggi. Einnig eru unnin þrjú verkefni auk lokaverkefnis. Í staðlotum I og II eru tímarnir verklegir.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET206FÍslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemendaValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME205FFjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað námValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið
Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þátttakendur efli þekkingu sína á fjölbreyttum kennsluháttum og hæfni sína í að fjalla um þá með fræðilega viðurkenndum hætti.Viðfangsefni
Á námskeiðinu verður fjallað um kennsluaðferðahugtakið og dæmi kynnt um fræðilega flokkun kennsluaðferða. Rannsóknum á kennsluaðferðum verða gerð sérstök skil, einkum innlendum rannsóknum. Þá verður fjallað um kennsluhætti og kennsluaðferðir sem tengjast hugmyndum um nemendamiðað og lýðræðislegt skólastarf (m.a. opinn skóla, sveigjanlega kennsluhætti, samvinnunám, samkennslu, lausnaleitarnám, heildstæð viðfangsefni, þemanám, samkomulagsnám og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni). Efni námskeiðsins verður tengt þróun fjölbreyttra kennsluhátta hér á landi, og erlendis, og áhersla lögð á að þátttakendur ígrundi eigin reynslu af kennslu. Þátttakendum gefst tækifæri til að kynna sér einstaka kennsluhætti og kennsluaðferðir til nokkurrar hlítar og fjalla um það með fræðilegum hætti.Vinnulag
Byggt er á fyrirlestrum, kynningum, málstofum, umræðum, sjálfstæðri vinnu, hópverkefnum, lestri og upplýsingaleit. Lögð er áhersla á að þátttakendur ígrundi eigið starf og greini, túlki og meti reynslu sína og tengi hana við fræði og rannsóknir. Þáttakendur ræða lesefni námskeiðsins og tengja það kennslustundum og eigin reynslu með aðstoð lestrardagbókar og annarra verkefna. Auk þess vinna nemendur lokaverkefni sem er hópverkefni.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSFG004MHinsegin menntunarfræðiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum í hinsegin menntunarfræðum. Enn fremur að þeir fái góða innsýn inn í fræðaheim hinsegin fræða. Áhersla verður lögð að að nemar tileinki sér gagnrýna sýn á uppeldi og menntun og að þeir verði meðvitaður um veruleika hinsegin ungmenna.
Viðfangsefni: Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynhneigð, kynvitund, samtvinnun, karlmennska, kvenleiki, kynhlutverk, kynjatvíhyggja, gagnkynhneigðarhyggja og síshyggja. Fjallað verður um megininntak hinsegin menntunarfræða og hvernig nálgun þeirra getur varpað ljósi á menntun, uppeldi, tómstunda- og félagsstarf og samfélag. Nálgunin verður í anda hinsegin fræða og félagslegrar mótunarhyggju sem verða notuð til að útskýra ólíkar hugmyndir um kynhneigð, kynvitund og hinsegin kynverund. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi, hérlendis og erlendis, og hvernig það viðheldur margs konar mismunun og ýtir jafnvel undir stofnanabundna gagnkynhneigðarhyggju og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við kynhneigð, kynvitund, skólakerfi, kennslu og námsbækur. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum í að búa til hinseginvænt andrúmsloft í barna- og ungmennahópi, að flétta hinsegin veruleika inn í starf sitt og bregðast við neikvæðum viðhorfum í garð hisneginleika.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingViðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að greina tækifæri og áskoranir í nærsamfélagi og nærumhverfi valins staðar á Íslandi og með hvaða hætti mætti vinna með efnið í skólastarfi.
Viðfangsefni námskeiðsins er heimabyggð hvers og eins eða valins svæðis. Rýnt verður í landfræði svæðisins út frá náttúrufari, atvinnulífi, samgöngum og landnýtingu. Einnig verður fjallað um afmörkun svæða út frá náttúrufari, sögu, efnahagslífi og búsetuþróun. Notuð verða hugtök um svæði, svo sem kjarnasvæði, jaðarsvæði, kjördæmi, sveitarfélag og landshluti. Fjallað verður um dreifingu fólksfjölda, þéttbýli, strjálbýli og samtök svæða hér á landi. Sjónum verður beint að staðtengdu námi og þætti upplifunar í námi um staði. Áhersla verður lögð á hvernig megi nýta sér álitamál og ágreiningsefni í kennslunni.Vinnulag: Námskeiðinu er skipt í lotur. Fyrirlestrar verða á neti og lesefni verður aðgengilegt á Canvas í skjölum eða á nettenglum. Lokapróf gildir 40%, en verkefni og hlutapróf 60%. Námskeiðið er kennt á staðnum í staðlotum (stuttar vettvangsferðir) og svo neti í vikulegum kennslustundum. Nemendum er skylt að mæta í tiltekna tíma samkvæmt kennsluáætlun, enda hafa þeir þar ákveðið hlutverk sem ekki verður sinnt nema með þátttöku.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuAnnað ár- Vor

Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÓháð námsári- Vor

Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu