- Vilt þú kenna náttúrufræði og tengdar greinar?
- Viltu stuðla að eflingu og færni barna og ungmenna á náttúrvísindum?
- Hljómar vel að taka frekar fleiri námskeið í stað þess að skrifa lokaritgerð?
- Langar þig að verða kennari?
MT nám í kennslu náttúrugreina er ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig grunnskólakennslu með sérstaka áherslu á náttúrufræði, eðlisfræði, jarðfæði, lífvísindi, sjálfbærni eða veðurfar.
Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 og felur það í sér að nemendur taka kennslufræðitengd námskeið í stað þess að skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.
Kjörsvið
Nemendur velja eitt af eftirfarandi kjörsviðum miðað við fyrra nám:
- Fimm ára kennaranám fyrir nemendur með B.Ed. próf
- Kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS-prófi
- Náttúrugreinar fyrir kennara með leyfisbréf
Mikilvægt er að velja kjörsvið eftir þeim bakgrunni nemanda.
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku.
Námskeið eru ýmist kennd í fjar- eða staðnámi og er nemendum því bent á að kynna sér kennslufyrirkomulag hvers námskeiðs vel. Sjá skilgreiningar á mismunandi námsformi.
Námið er að stórum hluta fræðilegt en einnig fá kennaranemar tækifæri til þess að fylgjast með kennslu og æfa sig í að kenna í grunnskóla. Námið miðar að kennslu í grunnskóla en nýtist þó einnig þeim sem hafa áhuga á því að kenna í framhaldsskólum.
Meginmarkið
Meginmarkmið námsins er að efla þekkingu og færni þátttakenda í náttúrufræðigreinum og kennslufræðum tengdum þessum greinum þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna náttúrufræðigreinar.
Annað
- Námið veitir rétt til þess að sækja um kennsluréttindi sem að gildir fyrir þrjú skólastig, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
- Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 en ljúka þarf gráðu af meistarastigi 2.2 ef sækja á um í doktorsnám. Námið veitir aðgang að námi á meistarastigi 2.2.
- Sjá M.Ed. nám í kennslu náttúrugreina
Við inntöku í nám til MT-prófs gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra).
Námið byggir á lögum nr. 95/2019 um að við brautskráningu búi kennari með sérhæfingu á grunnskólastigi yfir sérhæfðri hæfni í faggrein / kennslugrein grunnskóla, að lágmarki 90 námseiningar. Kjörsvið sem leiða til kennsluréttinda eru skipulögð með fyrra nám umsækjenda í huga. Ef fyrra nám umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum úr grunnnámi til að uppfylla kröfur um lágmarksfjölda eininga í faggrein.
Ef umsækjandi um meistaranám sem leiðir til leyfisbréfs kennara hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Ljúka þarf 120 einingum til lokaprófs, MT-gráðu.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Óháð misseri
- Náttúruvísindamenntun – Læsi, tungumál og áhugi
- Kennslufræði eðlis-, efna- og stjörnufræði
- Loftslagsbreytingar og menntun
- Að kenna um bylgjur, ljós, hljóð og umhverfi
- Ekki kennt á misserinuKennslufræði líf- og umhverfisvísinda
- Ekki kennt á misserinuErfðir og þróun
- Ekki kennt á misserinuAð kenna um orku í náttúru og samfélagi
- Ekki kennt á misserinuStjörnufræði og þróun lífs
- Ekki kennt á misserinuAð kenna um hreyfingu og krafta
- Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga
- Félagsfræði og heimspeki menntunar
- Læsi í faggreinum
Náttúruvísindamenntun – Læsi, tungumál og áhugi (SNU506M)
Fjallað verður um rannsóknir á náttúruvísindamenntun meðal annars á viðhorfum og áhuga nemenda. Fjallað verður um tungumál og læsi í náttúruvísindamenntun og rannsóknir tengdar þeim viðfangsefnum. Kynntar verða leiðir til að efla læsi á náttúruvísindatexta og sjónum beint að hugtakanámi, kennslunálgunum og námaðferðum tengdum lestri, ritun og þátttöku í umræðum. Læsi í víðum skilningi er einn af grunnþáttum menntunar sem fléttast inn í skólastarf þar á meðal náttúruvísindamenntun. Fjallað verður um merkingu hugtaksins læsi í þessu samhengi og sérstöðu náttúruvísindamenntunar hvað varðar læsi. Kynntar verða fjölmargar kennsluaðferðir til að efla læsi á náttúruvísindalega texta. Nemendur lesa greinar um rannsóknir og þróun í náttúruvísindamenntun, gera útdrætti úr þeim og fjalla um þær á Netinu og í staðlotum. Áhersla verður lögð á að nemendur afli sér upplýsinga sjálfir úr ýmsum heimildum kynni hugmyndir sínar og verkefni og taki virkan þátt í umræðum. Einnig munu nemendur kynna sér tímarit á sviðinu og ráðstefnur um náttúruvísindamenntun, meðal annars með því að skoða heimasíður slíkra ráðstefna til að greina mikilvægar nálganir í rannsóknum á þessu sviði.
Kennslufræði eðlis-, efna- og stjörnufræði (SNU217F)
Á námskeiðinu verður fjallað um nám og kennslu í eðlisfræði, í efnafræði og í stjörnufræði. Gefið yfirlit yfir þá þekkingu og færni sem kennari í þessum greinum þarf að hafa. Áhersla verði lögð á sérstöðu þessara faggreina sem námsgreina og að þátttakendur þrói hugmyndir sínar um nám og kennslu þessara greina þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna þær. Grunnhugmynd í námskeiðinu er að þátttakendur þrói þessar hugmyndir með því að kynna sér hugmyndir um nám og kennslu greinanna þriggja og kynna sér rannsóknir á þessum sviðum.
Loftslagsbreytingar og menntun (SNU203F)
Fjallað verður um orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga eins og þær birtast í náttúrunni heima og á heimsvísu. Tekin verða dæmi af mengun lands og sjávar og sjónum beint að aðgerðum til að vernda náttúruna, endurheimta fyrri landgæði og stuðla að kolefnishlutlausu spori landsins .
Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi í náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingatækni.
Þátttakendur vinna verkefni er tengjast aldurshópi að eigin vali, sem eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni.
Að kenna um bylgjur, ljós, hljóð og umhverfi (SNU003M)
Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna bylgjur, ljós og hljóð bæði með því að styrkja þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Mikil áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir grunnskólabarna. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Sveiflur, bylgjur á streng, öldur á vatni, almennir bylgjueiginleikar, hljóð, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, ljós, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, og sjóntæki.
Kennslufræði líf- og umhverfisvísinda (SNU214F)
|
Á námskeiðinu er fjallað um kennslufræði líf- og umhverfisvísinda með áherslu á hlutverk þeirra í almennri menntun, vísindalæsi og eðli vísindalegrar þekkingar. Nemendur kynnast vísindalegum kennsluaðferðum, svo sem lausnarleitarnámi (inquiry-based learning), 5E-nálguninni og staðbundnu námi (place-based education), og vinna með hugtakaskilning, mishugmyndir, læsi, siðferðileg álitamál og sjálfbærni í kennslu líf- og umhverfisvísinda. Námskeiðið leggur áherslu á ígrundaða kennsluþróun, þar sem nemendur hanna, prófa og ígrunda kennslulotur í líf- og umhverfisvísindum. Áhersla er lögð á:
Nemendur fá tækifæri til að:
|
Erfðir og þróun (SNU102M)
Fjöllum um hlutverk erfðaefnis í lífverum og hvernig eiginleikar lífvera erfast milli kynslóða. Lærum um litninga og byggingu litninga, frumuskiptingar, lögmál Mendels, umritun og prótínmyndun, erfðamynstur, arfgerðir og svipgerðir ofl. Kynnumst því helsta sem er að gerast í erfðatækni og ræðum gagnsemi þess og galla.
Þróunaröfl (náttúrulegt val, stökkbreytingar, genaflökt, genaflæði o.fl.), stórir viðburðir í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, þróunarsaga mannsins. Fjölbreytni lífsins. Þróunarsaga mannsins.
Grunnskólakennsla í þróunarlíffræði og erfðafræði. Námskrá, námsefni, möguleikar netsins og hreyfiefnis í kennslu.
Vinnulag: Fyrirlestrar kennara og nemenda - nær og fjær. Umræðutímar á staðnum/netinu.
Að kenna um orku í náttúru og samfélagi (SNU204M)
Fjallað verður um orku í náttúru og samfélagi í víðu samhengi. Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um orku og orkutengd viðfangsefni. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi þar með talið hvernig orkuflæði er háttað í náttúru og mannlegu samfélagi.
Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu úr daglegu lífi og auk þannig skilning á því hvernig orka skiptir máli fyrir hvern einstakling. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir.
Viðfangsefni námskeiðsins eru: Einfaldar vélar, vinna, orka, einingar fyrir orku, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, varmaorka, fjaðurstöðuorka, einfaldir orkuútreikningar, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar, nýtanleg orka, orka í náttúrunni, orka í samfélaginu, orkuvinnsla og orkunýting.
Stjörnufræði og þróun lífs (SNU218F)
Viðfangsefni námskeiðsins eru stjörnufræði og þróun lífs. Fjallað verður um sögu alheimsins og myndun sólkerfisins og jarðarinnar, ekki síst með áherslu á það hvernig efnafræðilegar og eðlisfræðilegar aðstæður mynduðust fyrir kviknun lífs og viðhaldi þess. Kynntar verða hugmyndir um möguleika til uppruna lífs og eiginleika erfðaefnisins. Fjallað verður um sögu lífs á jörðinni með áherslu á þróunaröfl og stóra viðburði í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, sem og þróunarsögu mannsins. . Nemendur kynna sér rannsóknir á námi á svið stjörnufræði, líf-stjörnufræði og um uppruna lífs.
Að kenna um hreyfingu og krafta (SNU101M)
Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um hreyfingu og krafta og önnur hugtök sem tengjast hreyfingu. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Einföld áhöld og vélar, hraði, hröðun, kraftur, tregða, massi, lögmál um hreyfingu hluta, mismunandi kraftar svo sem þyngdarkraftar, togkraftar, núningskraftar, samlagning krafta, vinna, orka, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, fjaðurstöðuorka, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar.
Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)
Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.
Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)
Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Læsi í faggreinum (ÍET214F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
- Annað ár
- Óháð misseri
- Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein
- Nám og kennsla - fagmennska í starfi
- Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum
- Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda
Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.
Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (MAL102F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda (ÍET206F)
Fjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
- Óháð námsári
- Haust
- Ekki kennt á misserinuJarðvegsfræði
- Óháð misseri
- Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi
Jarðvegsfræði (LAN615M)
Jarðvegur er undirstaða vistkerfa, grunnur matvælaframleiðslu og mannlegrar búsetu og gegnir lykilhlutverki í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns. Jafnframt geymir jarðvegur mikilvægar upplýsingar um umhverfisbreytingar og samspil náttúru og manns í tímans rás.
Í þessu námskeiði kynnast nemendur jarðveg sem vistkerfi, auðlind og upplýsingagjafa. Námskeiðið veitir bæði traustan fræðilegan grunn í jarðvegsfræði og leggur jafnframt ríka áherslu á hagnýta færni, vettvangsvinnu og gagnagreiningu.
Það fjallar um eftirfarandi helstu þætti:
- Jarðvegsmyndandi þætti og ferla sem leiða til myndunar mismunandi jarðvegsgerða um heiminn.
- Eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs, með sérstakri áherslu á hlutverk leirsteinda og lífrænna efna.
- Íslenskan jarðveg, myndun hans og sérstöðu.
- Jarðvegslíf – jarðveg sem vistkerfi og hlutverk hans í vistkerfum
- Jarðveg sem auðlind - hlutverk jarðvegs í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns.
- Ástand jarðvegs – hvernig meta megi heilbrigði jarðvegs bæði á vettvangi og með mælingum á rannsóknastofu.
- Áhrif landnýtingar á jarðveg – jarðvegshningnun og landhnignun (rof, mengun, söltun o.fl.).
- Tengsl jarðvegs og loftslags.
- Jarðveg sem rannsóknarefni í tengslum við mannvist og umhverfissögu.
Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða og rannsóknastofuvinnu, þar sem nemendur öðlast reynslu af raunverulegum jarðvegsrannsóknum og læra að tengja fræðilega þekkingu við eigin rannsóknargögn.
Námskeiðið hentar nemendum í grunnámi á öðru og þriðja námsári sem og nemendum í meistaranámi.
Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
- Óháð misseri
- SNU506MNáttúruvísindamenntun – Læsi, tungumál og áhugiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Fjallað verður um rannsóknir á náttúruvísindamenntun meðal annars á viðhorfum og áhuga nemenda. Fjallað verður um tungumál og læsi í náttúruvísindamenntun og rannsóknir tengdar þeim viðfangsefnum. Kynntar verða leiðir til að efla læsi á náttúruvísindatexta og sjónum beint að hugtakanámi, kennslunálgunum og námaðferðum tengdum lestri, ritun og þátttöku í umræðum. Læsi í víðum skilningi er einn af grunnþáttum menntunar sem fléttast inn í skólastarf þar á meðal náttúruvísindamenntun. Fjallað verður um merkingu hugtaksins læsi í þessu samhengi og sérstöðu náttúruvísindamenntunar hvað varðar læsi. Kynntar verða fjölmargar kennsluaðferðir til að efla læsi á náttúruvísindalega texta. Nemendur lesa greinar um rannsóknir og þróun í náttúruvísindamenntun, gera útdrætti úr þeim og fjalla um þær á Netinu og í staðlotum. Áhersla verður lögð á að nemendur afli sér upplýsinga sjálfir úr ýmsum heimildum kynni hugmyndir sínar og verkefni og taki virkan þátt í umræðum. Einnig munu nemendur kynna sér tímarit á sviðinu og ráðstefnur um náttúruvísindamenntun, meðal annars með því að skoða heimasíður slíkra ráðstefna til að greina mikilvægar nálganir í rannsóknum á þessu sviði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSNU217FKennslufræði eðlis-, efna- og stjörnufræðiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu verður fjallað um nám og kennslu í eðlisfræði, í efnafræði og í stjörnufræði. Gefið yfirlit yfir þá þekkingu og færni sem kennari í þessum greinum þarf að hafa. Áhersla verði lögð á sérstöðu þessara faggreina sem námsgreina og að þátttakendur þrói hugmyndir sínar um nám og kennslu þessara greina þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna þær. Grunnhugmynd í námskeiðinu er að þátttakendur þrói þessar hugmyndir með því að kynna sér hugmyndir um nám og kennslu greinanna þriggja og kynna sér rannsóknir á þessum sviðum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSNU203FLoftslagsbreytingar og menntunBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga eins og þær birtast í náttúrunni heima og á heimsvísu. Tekin verða dæmi af mengun lands og sjávar og sjónum beint að aðgerðum til að vernda náttúruna, endurheimta fyrri landgæði og stuðla að kolefnishlutlausu spori landsins .
Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi í náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingatækni.
Þátttakendur vinna verkefni er tengjast aldurshópi að eigin vali, sem eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSNU003MAð kenna um bylgjur, ljós, hljóð og umhverfiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna bylgjur, ljós og hljóð bæði með því að styrkja þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Mikil áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir grunnskólabarna. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Sveiflur, bylgjur á streng, öldur á vatni, almennir bylgjueiginleikar, hljóð, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, ljós, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, og sjóntæki.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuSNU214FKennslufræði líf- og umhverfisvísindaBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu er fjallað um kennslufræði líf- og umhverfisvísinda með áherslu á hlutverk þeirra í almennri menntun, vísindalæsi og eðli vísindalegrar þekkingar. Nemendur kynnast vísindalegum kennsluaðferðum, svo sem lausnarleitarnámi (inquiry-based learning), 5E-nálguninni og staðbundnu námi (place-based education), og vinna með hugtakaskilning, mishugmyndir, læsi, siðferðileg álitamál og sjálfbærni í kennslu líf- og umhverfisvísinda.
Námskeiðið leggur áherslu á ígrundaða kennsluþróun, þar sem nemendur hanna, prófa og ígrunda kennslulotur í líf- og umhverfisvísindum.
Áhersla er lögð á:
- Vísindalegar kennsluaðferðir eins og lausnaleitarnám (inquiry-based learning), 5E nálgunina og staðbundið nám (place-based learning) sem nýtir staðbundin náttúruleg og manngerð svæði.
- Hugtakaskilning, mishugmyndir og læsi í líf- og umhverfisvísindum og hvernig rannsóknir á þeim geta stutt kennslu.
- Gildi verklegrar kennslu og útináms, náttúrutengingu og sjálfbærni í kennslu.
- Læsi í lífvísindum, eðli vísindalegrar þekkingar og siðferðileg álitamál í kennslu líf- og umhverfisvísinda.
- Kennslutæki og upplýsingatækni í kennslu líf- og umhverfisvísinda, þar á meðal smásjár, víðsjár og stafrænar lausnir.
Nemendur fá tækifæri til að:
- Útbúa kennslufræðilega ferilmöppu
- Rýna í námsefni og kennslugögn og meta þau út frá námskrárbundnum hæfniviðmiðum.
- Þróa og prófa kennsluaðferðir í örkennslu með jafningjum og á vettvangi (í grunn- eða framhaldsskóla)
- Nýta kennslufræðilegan matsramman við sjálfsmat og jafningjamat.
- Miðla eigin kennslureynslu og lærdómi í umræðum, ígrundunarskrifum og kynningum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSNU102MErfðir og þróunBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjöllum um hlutverk erfðaefnis í lífverum og hvernig eiginleikar lífvera erfast milli kynslóða. Lærum um litninga og byggingu litninga, frumuskiptingar, lögmál Mendels, umritun og prótínmyndun, erfðamynstur, arfgerðir og svipgerðir ofl. Kynnumst því helsta sem er að gerast í erfðatækni og ræðum gagnsemi þess og galla.
Þróunaröfl (náttúrulegt val, stökkbreytingar, genaflökt, genaflæði o.fl.), stórir viðburðir í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, þróunarsaga mannsins. Fjölbreytni lífsins. Þróunarsaga mannsins.
Grunnskólakennsla í þróunarlíffræði og erfðafræði. Námskrá, námsefni, möguleikar netsins og hreyfiefnis í kennslu.
Vinnulag: Fyrirlestrar kennara og nemenda - nær og fjær. Umræðutímar á staðnum/netinu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSNU204MAð kenna um orku í náttúru og samfélagiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um orku í náttúru og samfélagi í víðu samhengi. Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um orku og orkutengd viðfangsefni. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi þar með talið hvernig orkuflæði er háttað í náttúru og mannlegu samfélagi.
Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu úr daglegu lífi og auk þannig skilning á því hvernig orka skiptir máli fyrir hvern einstakling. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir.
Viðfangsefni námskeiðsins eru: Einfaldar vélar, vinna, orka, einingar fyrir orku, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, varmaorka, fjaðurstöðuorka, einfaldir orkuútreikningar, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar, nýtanleg orka, orka í náttúrunni, orka í samfélaginu, orkuvinnsla og orkunýting.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSNU218FStjörnufræði og þróun lífsBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðsins eru stjörnufræði og þróun lífs. Fjallað verður um sögu alheimsins og myndun sólkerfisins og jarðarinnar, ekki síst með áherslu á það hvernig efnafræðilegar og eðlisfræðilegar aðstæður mynduðust fyrir kviknun lífs og viðhaldi þess. Kynntar verða hugmyndir um möguleika til uppruna lífs og eiginleika erfðaefnisins. Fjallað verður um sögu lífs á jörðinni með áherslu á þróunaröfl og stóra viðburði í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, sem og þróunarsögu mannsins. . Nemendur kynna sér rannsóknir á námi á svið stjörnufræði, líf-stjörnufræði og um uppruna lífs.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSNU101MAð kenna um hreyfingu og kraftaBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um hreyfingu og krafta og önnur hugtök sem tengjast hreyfingu. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Einföld áhöld og vélar, hraði, hröðun, kraftur, tregða, massi, lögmál um hreyfingu hluta, mismunandi kraftar svo sem þyngdarkraftar, togkraftar, núningskraftar, samlagning krafta, vinna, orka, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, fjaðurstöðuorka, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðFAG201FMenntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytingaSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG106FFélagsfræði og heimspeki menntunarSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
- FAG401FNám og kennsla – vettvangsnám í faggreinSkyldunámskeið15Skyldunámskeið á námsleiðinni15 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsing
Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME301FNám og kennsla - fagmennska í starfiSkyldunámskeið20Skyldunámskeið á námsleiðinni20 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMAL102FNám og kennsla: Að mæta sérþörfumSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET206FÍslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemendaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
- Námskeiðslýsing
Jarðvegur er undirstaða vistkerfa, grunnur matvælaframleiðslu og mannlegrar búsetu og gegnir lykilhlutverki í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns. Jafnframt geymir jarðvegur mikilvægar upplýsingar um umhverfisbreytingar og samspil náttúru og manns í tímans rás.
Í þessu námskeiði kynnast nemendur jarðveg sem vistkerfi, auðlind og upplýsingagjafa. Námskeiðið veitir bæði traustan fræðilegan grunn í jarðvegsfræði og leggur jafnframt ríka áherslu á hagnýta færni, vettvangsvinnu og gagnagreiningu.
Það fjallar um eftirfarandi helstu þætti:
- Jarðvegsmyndandi þætti og ferla sem leiða til myndunar mismunandi jarðvegsgerða um heiminn.
- Eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs, með sérstakri áherslu á hlutverk leirsteinda og lífrænna efna.
- Íslenskan jarðveg, myndun hans og sérstöðu.
- Jarðvegslíf – jarðveg sem vistkerfi og hlutverk hans í vistkerfum
- Jarðveg sem auðlind - hlutverk jarðvegs í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns.
- Ástand jarðvegs – hvernig meta megi heilbrigði jarðvegs bæði á vettvangi og með mælingum á rannsóknastofu.
- Áhrif landnýtingar á jarðveg – jarðvegshningnun og landhnignun (rof, mengun, söltun o.fl.).
- Tengsl jarðvegs og loftslags.
- Jarðveg sem rannsóknarefni í tengslum við mannvist og umhverfissögu.
Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða og rannsóknastofuvinnu, þar sem nemendur öðlast reynslu af raunverulegum jarðvegsrannsóknum og læra að tengja fræðilega þekkingu við eigin rannsóknargögn.
Námskeiðið hentar nemendum í grunnámi á öðru og þriðja námsári sem og nemendum í meistaranámi.
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Óháð misseri
FAG101MJafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár- Óháð misseri

Óháð námsári- Óháð misseri