- Hefur þú áhuga á list, listsköpun og handverki?
- Viltu stuðla að færni barna í listsköpun og handverki?
- Sækist þú eftir launuðu starfsnámi á loka ári námsins?
- Viltu hafa réttindi til að geta kennt á þremur skólastigum?
- Langar þig að taka frekar fleiri námskeið í stað lokaverkefnis?
- Viltu kenna list- eða verkgrein?
MT nám í kennslu list- og verkgreina er ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig grunnskólakennslu með sérstaka áherslu á hönnun og smíði, sjónlistir, sviðslistir, textílmennt og tónmennt.
Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 sem felur það í sér að nemendur geta tekið kennslufræðitengd námskeið í stað þess að skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.
Kjörsvið
Nemendur geta valið á milli margra kjörsviðum miðað við fyrra nám. Þú getur séð þau öll neðar á síðunni undir Uppbygging náms Kjörsvið.
Athugið ef sótt er um kjörsvið að loknu grunnnámi þarf að taka fram á umsókn hvort kjörsvið sé valið eftir B.Ed. próf eða að loknu BA/BS prófi.
Helstu áherslur
- Menntun og sjálfbærni
- Miðlun og sköpun
- Nám og kennsla
- Sérsvið faggreinar
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku.
Námskeið eru ýmist kennd í fjar- eða staðnámi og er nemendum því bent á að kynna sér kennslufyrirkomulag hvers námskeiðs vel. Sjá skilgreiningar á mismunandi námsformi.
Meginmarkmið
Megin markmið námsins er að mennta fagreinakennara til starfa og stuðla að góðri og fjölbreyttri menntun list- og verkgreina í íslenska menntakerfinu.
Annað
Námsleiðin veitir rétt til þess að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
- Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 en ljúka þarf gráðu af meistarastigi 2.2 ef sækja á um í doktorsnám. Námið veitir aðgang að námi á meistarastigi 2.2.
- Sjá M.Ed. nám í kennslu list- og verkgreina
Við inntöku í nám til MT-prófs gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra).
Námið byggir á lögum nr. 95/2019 um að við brautskráningu búi kennari með sérhæfingu á grunnskólastigi yfir sérhæfðri hæfni í faggrein / kennslugrein grunnskóla, að lágmarki 90 námseiningar. Kjörsvið sem leiða til kennsluréttinda eru skipulögð með fyrra nám umsækjenda í huga. Ef fyrra nám umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum úr grunnnámi til að uppfylla kröfur um lágmarksfjölda eininga í faggrein.
Ef umsækjandi um meistaranám sem leiðir til leyfisbréfs kennara hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Ljúka þarf 120 einingum til MT-prófs.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Óháð misseri
- Ekki kennt á misserinuKennslufræði hönnunar og smíða I
- Ekki kennt á misserinuKennslufræði hönnunar og smíða II
- Ekki kennt á misserinuHugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina
- Ekki kennt á misserinuGamalt handverk í skólastarfi
- Ekki kennt á misserinuÚtikennsla og græn nytjahönnun
- Ekki kennt á misserinuTrésmíði, trérennismíði og útskurður
- Nám og kennsla í grunnskóla
- Félagsfræði og heimspeki menntunar
- Námsmat og námskrá grunnskóla
- Læsi í faggreinum
Kennslufræði hönnunar og smíða I (LVG217F, LVG218F)
Markmið: Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni hönnun og smíði.
Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið smíðakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í grunnskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir og smíða verkefnadæmi sem miðuð eru við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.
Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Kennslufræði nýsköpunar gerð sérstaklega skil. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.
Verkleg þjálfun og fyrirlestrar.
Kennslufræði hönnunar og smíða II (LVG217F, LVG218F)
Markmið: Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni hönnun og smíði.
Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið og kennslufræði hönnunar smíðakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í grunnskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir og smíða verkefnadæmi sem miðuð eru við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.
Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Kennslufræði nýsköpunar gerð sérstaklega skil. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.
Verkleg þjálfun og fyrirlestrar.
Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina (LVG101M, LVG004M)
Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.
Kennslan byggist annars vegar á sameiginlegum kjarna þar sem kenndar eru aðferðir og kenningar sem tengjast hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun. Hins vegar vinna nemendur að eigin rannsóknarverkefnum. Verkefnin byggja á gagnasöfnun, tilraunavinnu og þróun í gegnum eigin listsköpun. Mikilvægt er að nemendur geti rökstutt niðurstöður sínar og framsett afurðir á faglegan hátt.
Nemendur vinna hluta rannsóknarverkefnis síns í tengslum við Loftskeytastöðina (menningarhús tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur), með áherslu á að vinna út frá hugðarefnum hennar. Verkefnið skal þróað í samræmi við viðurkenndar rannsóknaraðferðir innan list- og verkgreina.
Námskeiðinu lýkur með sýningu þar sem nemendur fá þjálfun og reynslu af sýningarferlinu.
Vinnulag: Fyrirlestrar, gagnasöfnun, skrifleg og myndræn skráning, greinargerð, verkleg vinna og gagnrýnin umræða.
Gamalt handverk í skólastarfi (LVG101M, LVG004M)
Markmið:
a) Að kenna gamlar handverksaðferðir
b) Að nemendur smíði þjóðlega hluti er byggja á gömlum fyrirmyndum
c) Að þjálfa nemendur í að nýta sér minjasöfn sem uppsprettu verkefna.
Lýsing: Námskeiðið er hugsað fyrir nemendur sem vilja læra gamlar handverksaðferðir. Nemendur kynnast verkaðferðum eins og útskurði, trafaöskjugerð, horna- og beinavinnu og trérennismíði. Lögð er áhersla á gerð verkefna sem nemendur geta nýtt bæði í skólastarfi og í eigin lífi. Lögð er áhersla á íslenskan efnivið. Námskeiðið hentar öllum þeim er vilja leggja áherslu á þjóðlegt, bæði innan list- og verkgreina, í almennu skólastarfi og í leikskóla. Handverk er stór hluti af dýrmætum menningararfi okkar sem mikilvægt er að standa vörð um
A. Inntak / viðfangsefni
a) Nemendur skoða gamalt handverk á söfnum, heimsækja íslenskt handverksfólk og skoða sýningar
b) Nemendur byggja verkefni sín á m.a. gömlum þjóðlegum fyrirmyndum t.d. af söfnum sem þeir útfæra að eigin vild.
c) Nemendur læra gamlar verkaðferðir og nota viðeigandi efnivið til að smíða úr með áherslu á notkun handverkfæra
d.) Nemendur læra um sögu og hugmyndafræði uppeldismiðaðs handverks
B. Hönnun og gerð hluta
a) Nemendur hanna og smíða einfalda nytja hluti svo sem trafaöskju, bakka, prjónastokka, spil, skálar, box, leikföng og einnig skartgripi,
b) Lögð er áhersla á að þátttakendur noti fjölbreytt smíðaefni og náttúruleg yfirborðsefni.
Útikennsla og græn nytjahönnun (LVG006M, LVG203M)
Tekist verður á við kennslu- og hugmyndafræði "Útikennslu og grænnar nytjahönnunar". Nemendur læra um sjálfbæra þróun í hönnun, skógarvistfræði og skógarnytjar. Farið verður í vettvangsferðir þar sem nemendur kynnast þessari kennsluaðferð af eigin raun. Hugað verður að eflingu tengsla nemenda í verkgreinum við íslenska náttúru og hvernig hægt er að hanna fyrir umhverfið, án þess að valda því skaða. Þróaðir verða nytjahlutir úr íslenskum viðarafurðum og frumgerðir smíðaðar. Stuðst verður við tálguaðferðir sem notaðar hafa verið á norðurlöndunum um árhundruðin. Nemendur eru þjálfaðir að tálga úr blautum viði og að tileinka sér rétt handbrögð og umgengni við bitverkfæri.
Markmið námskeiðsins er að:
- Efla þekkingu og vitund nemenda á viðarfræði, skógarvistfræði og skógarnytjum.
- Nemendur nái leikni í notkun öruggra tálguaðferða sem hægt er að beita við útikennslu þar sem fengist er við hönnun nytjahluta úr íslenskum efniviði.
- Nemendur kynnist af eigin raun kennslufræði og hugmyndafræði um útikennslu og grænnar nytjahönnunar og séu færir um að skipuleggja og sjá um slíkt nám þar sem byggt er á útikennslu.
- Nemendur kynnist nýlegum rannsóknum á gildi list-, verk, og tæknigreina fyrir almennt skólastarfi.
Inntak / viðfangsefni: Fjallað verður um varðveislu og nýtingu íslenska nytjaskógarins og sjálfbæra þróun sem þátt í hönnun nytjahluta. Lögð verður áhersla á hönnun nytjahluta er byggja á hugsuninni um sjálfbæra þróun. Hugað er að réttri hagkvæmri efnisheimsins, líftíma hluta og áhrif þeirra á lífsvenjur okkar, heilsu og umhverfi. Þverfagleg og skapandi skólaverkefni skoðuð er tengjast grænni umhverfisvænni hönnun. Fengist verður við mótun afurða úr íslenskum efniviði, vistfræði, fjölbreytta listsköpun og grenndarfræðslu. Notast verður við gamlar verkaðferðir við tálgun. Fjallað verður um rannsóknir er tengjast gildi list- og verkgreina fyrir þroska skólabarna.
Vinnulag: Vettvangsferðir, fyrirlestrar, hópverkefni, einstaklingsvinna og umræður.
Trésmíði, trérennismíði og útskurður (LVG006M, LVG203M)
Nemar hljóti þekkingu á og þjálfun í smíði tréhluta sem þeir útfæra sjálfir og geta skreytt með útskurði. Áhersla er á gerð nytjahluta úr tré, tréleikföng og trérennismíði. Nemar læra beitingu tréhandverkfæra (og útskurðarjárna). Farið verður í ýmsa trésmíðaþætti eins og yfirborðsmeðferð viðar, brýningar, lím og samlímingar, efnisfræði, festingar og samsetningar.
Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins en að öðru leyti fer kennslan fram í fyrirlestrum og í gegnum leiðsögn við verkefnavinnu.
Námsmat: Einkunn fyrir smíðisgripi og verklýsingar.
Markmið námskeiðsins eru að:
- Þjálfa nemendur í hönnun,
- Efla handverksþekkingu nemenda og leikni,
- Nemendur þjálfist í almennri trésmíði, trérennismíði og útskurði.
Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins; skissuvinna, handverkfæranotkun, innlagnir og vettvangsferðir.
Nám og kennsla í grunnskóla (KME102F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi.
Inntak / viðfangsefni:
Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms.
Í vettvangsnámi kynna kennaranemar sér starfshætti á ákveðnu námssviði eða faggrein sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Í vettvangsnámi er nema ætlað að sýna frumkvæði og virkni og taka þátt í öllu daglegu starfi eftir því sem við verður komið. Skilgreind kennsla fer eftir fjölda Ve.
Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)
Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Námsmat og námskrá grunnskóla (KME006F)
Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms.
Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.
Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.
Læsi í faggreinum (ÍET214F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
- Annað ár
- Haust
- Nám og kennsla - fagmennska í starfi
- Vor
- Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda
- Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein
- Óháð misseri
- Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga
- Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi
Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.
Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda (ÍET206F)
Fjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)
Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.
Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
- Óháð námsári
- Óháð misseri
- Barna- og unglingaleikrit með börnum og fyrir börn
- Ekki kennt á misserinuHópkennsla í tónlist -Kenningar og hagnýtar aðferðir
- Ekki kennt á misserinuHagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu
- Tónlistin og heilinn
- Ekki kennt á misserinuTónlist í sögulegu ljósi
- Ekki kennt á misserinuHugmynda- og hönnunarvinna
- Ekki kennt á misserinuSöngur og kórstjórn II
- Ekki kennt á misserinuHugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina
- Trésmíði, trérennismíði og útskurður
- Leiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistar
- Leirmótun, hönnun og teikning
- Lista- og hönnunarsaga, söfn og menntun
- Ekki kennt á misserinuLeiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi.
- Ekki kennt á misserinuGildi leiklistar í ljósi velferðar og jafnréttis
- Fatahönnunar- og híbýlasaga – tíska, textíll, húsgögn og byggingar
- Ekki kennt á misserinuÚtikennsla og græn nytjahönnun
- Gamalt handverk í skólastarfi
- Textíllist og hönnun
- Ekki kennt á misserinuSjálfbærni og skapandi endurnýting í textíl
- Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi
Barna- og unglingaleikrit með börnum og fyrir börn (LVG207M)
Á námskeiðinu er áhersla lögð á að kynna og þjálfa nemendur í að vinna sjálfstætt og faglega að sviðsetningu á leikriti/söngleik í skólum ásamt kennslu í útvarpsleikritagerð. Unnið verður með leikrit sem tekur á málefnum barna- og unglinga með börnum annars vegar og fyrir börn hins vegar. Nemendur kynnast fjölbreyttum aðferðum við uppsetningu á leikverki hvort heldur sem er fyrir útvarp eða svið. Einnig kynnast nemendur fjölbreyttum kennsluháttum og leiðum í leiklistarkennslu. Uppistaðan í námskeiðinu er þjálfun nemenda í að vinna sjálfstætt, faglega og á skapandi hátt með uppsetningu leikverks; gerð handrita umræður, úrvinnsla og kynningar.
Hópkennsla í tónlist -Kenningar og hagnýtar aðferðir (LVG009M)
Viðfangsefni námskeiðsins eru námskenningar á sviði tónlistarmenntunar og hagnýtar útfærslur á þeim. Lesin eru helstu fræði um stefnur og strauma í tónlistarmenntunarfræðum. Sérstaklega eru skoðaðar gagnrýnar kenningar á viðtekna kennsluhætti í tónlistarnámi barna, ungmenna og fullorðinna. Nemendum gefst færi á að fara dýpra í einstakar kenningar og kennsluaðferðir sem hafa notið vinsælda undanfarna áratugi víða um heim.
Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu (LVG103M)
Á þessu námskeiði læra nemendur að beita áhrifaríkum aðferðum í undirleik á hljómborðshljóðfæri sem henta vel í tónmenntakennslu. Farið verður í hagnýta hljómfræði sem leggur grunninn að færni í að semja og spinna einfaldan undirleik fyrir hljóðfæraleik og söng. Auk hljómborðsleiks verður farið yfir grundvallaratriði í leik á gítar og ukulele með sömu hljómfræðilegu nálgun. Nemendur öðlast færni í að hljómgreina algenga tónlist og læra leiðir til að útsetja á hljómborðshljóðfæri í samræmi við eigin hljóðfærafærni. Í lok námskeiðs eiga nemendur að hafa færni til þess að leika undir algeng sönglög í minnst sex tóntegundum.
Tónlistin og heilinn (LVG102M)
Á námskeiðinu er fjallað um áhrif tónlistar á manneskjuna frá ýmsum hliðum. Skoðaðar verða rannsóknir á áhrifum tónlistar á líðan og tilfinningar. Einnig verða lesnar kenningar um skynjun tónlistar og tengsl tónlistar við nám og vitsmunaþroska. Lesefni verður meðal annars á sviði heilarannsókna og taugasálfræði.
Nemendur taka virkan þátt í efnistökum fyrir fyrirlestur hverrar viku með því að leggja af mörkum eigin skoðanir á lesefninu. Nemendur taka afstöðu til þess sem þeir sjálfir telja áhugaverðast í lesefninu en kennarinn bætir við lesefni til dýpkunar í samræmi við áhugasvið nemenda.
Tónlist í sögulegu ljósi (LVG104M)
Viðfangsefni námskeiðsins er tónlist í sögulegu ljósi. Ekki verður einungis farið yfir hefðbundna Vestræna tónlistarsögu heldur leitast við að skoða tónlist frá ýmsum tímum á ólíkum heimssvæðum. Nemendur verða hvattir til að skoða hvað hefur áhrif á tónlistarstefnur og stíla svo sem samfélagsþróun og tækniframfarir. Í lok námskeiðs eiga nemendur að vera færir um að skoða fjölbreyttar gerðir tónlistar með tónlistarlegum og félagssögulegum gleraugum og geta miðlað þekkingu á ólíkum tónlistarstílum til barna og unglinga.
Hugmynda- og hönnunarvinna (LVG005M)
Lögð er áhersla á hugmynda- og hönnunarverkefni í tengslum við fatnað og textíl sem fléttað er sögu- og samtímalegri þróun. Áhersla er lögð á munsturgerð, liti og form, tískuteikningu, útlit og snið og tilraunir með textílaðferðir og textílhráefni. Unnin er skipulögð rannsóknarvinna við vinnuferlið frá gagnaöflun til úrvinnslu hugmyndar og hönnunar með nýsköpun að leiðarljósi. Lögð er áhersla á frágang og framsetningu verkefna í ferlilmöppu og til sýninga.
Söngur og kórstjórn II (LVG210M)
Viðfangsefni
Söngraddir barna og unglinga
Viðeigandi raddþjálfun fyrir barna- og unglingakóra.
Unnið er með færni hvers og eins nemanda í kórstjórnartækni sem miðast við þarfir kóra með ungar raddir sem eru í mótun.
Nemendur byggja ofan á grunn í kórstjórnartækni og fá tækifæri til að styrkja eigin færni í hópi jafningja með faglegri tilsögn.
Vinnulag
Blanda af verklegum smiðjum, heimaæfingum, hittingi á vef og lesefni sem styður við þekkingaröflun á sviði söngradda og kóræfingatækni
Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina (LVG101M)
Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.
Kennslan byggist annars vegar á sameiginlegum kjarna þar sem kenndar eru aðferðir og kenningar sem tengjast hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun. Hins vegar vinna nemendur að eigin rannsóknarverkefnum. Verkefnin byggja á gagnasöfnun, tilraunavinnu og þróun í gegnum eigin listsköpun. Mikilvægt er að nemendur geti rökstutt niðurstöður sínar og framsett afurðir á faglegan hátt.
Nemendur vinna hluta rannsóknarverkefnis síns í tengslum við Loftskeytastöðina (menningarhús tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur), með áherslu á að vinna út frá hugðarefnum hennar. Verkefnið skal þróað í samræmi við viðurkenndar rannsóknaraðferðir innan list- og verkgreina.
Námskeiðinu lýkur með sýningu þar sem nemendur fá þjálfun og reynslu af sýningarferlinu.
Vinnulag: Fyrirlestrar, gagnasöfnun, skrifleg og myndræn skráning, greinargerð, verkleg vinna og gagnrýnin umræða.
Trésmíði, trérennismíði og útskurður (LVG203M)
Nemar hljóti þekkingu á og þjálfun í smíði tréhluta sem þeir útfæra sjálfir og geta skreytt með útskurði. Áhersla er á gerð nytjahluta úr tré, tréleikföng og trérennismíði. Nemar læra beitingu tréhandverkfæra (og útskurðarjárna). Farið verður í ýmsa trésmíðaþætti eins og yfirborðsmeðferð viðar, brýningar, lím og samlímingar, efnisfræði, festingar og samsetningar.
Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins en að öðru leyti fer kennslan fram í fyrirlestrum og í gegnum leiðsögn við verkefnavinnu.
Námsmat: Einkunn fyrir smíðisgripi og verklýsingar.
Markmið námskeiðsins eru að:
- Þjálfa nemendur í hönnun,
- Efla handverksþekkingu nemenda og leikni,
- Nemendur þjálfist í almennri trésmíði, trérennismíði og útskurði.
Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins; skissuvinna, handverkfæranotkun, innlagnir og vettvangsferðir.
Leiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistar (LVG108M)
Viðfangsefni: Nemendur fá kennslu í samsettum (devised) aðferðum leiklistar ásamt því að vinna með aðferðir leikhúss líkamans og Ímyndarleikhús. Nemendur kynna sér listamenn og listviðburði í íslensku samfélagi og tengja við hugmyndafræði og kenningar um listupplifun. Mögulegir snertifletir leiklistarinnar verða kannaðir út frá margvíslegum sjónarhornum með mismunandi miðlunarleiðir að leiðarljósi.
Vinnulag: Vinna í smiðjum þar sem nemendur leita fjölbreyttra leiða til að vinna með miðlunarleiðir leiklistar þ.e. leikrit (hefðbundin, óhefðbundin), útvarpsleikrit eða hljóðmyndir, miðlun í gegnum kvikmyndum, eða uppsetningu í gegnum samfélagsmiðla í tengslum við nám barna og unglinga. Þá verða listviðburðir sóttir og rætt við listamenn um starfsgrein þeirra.
Unnin verða verkefni sem reyna á sköpun og tjáningu, tengjast þróun eigin starfskenningar, námskrárgerð í leiklist ásamt ígrundun um menningar- og samfélagslega vídd leiklistarinnar.
Leirmótun, hönnun og teikning (LVG003M)
Athugið að nemendur á kjörsviðinu Sjónlistir: Myndmennt ganga fyrir þegar hámarksfjölda er náð!
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu á möguleikum leirs í myndmenntakennslu og leikni til að útfæra hugmyndir sínar á ólíkan sjónrænan máta með mismunandi tækni, aðferðum og efni.
- Á fyrra hluta námskeiðsins verður farið í ýmsa grunnvinnu í skissugerð og mótun leirs. Einnig kynnast nemendur allri grunnvinnu með glerunga og brennslur.
- Á seinni hluta námskeiðsins vinna þátttakendur sjálfstæð verkefni með áherslu á skapandi vinnubrögð, persónulega nálgun ásamt tilrauna- og rannsóknarvinnu.
Gert er ráð fyrir að nemendur séu virkir í að skrásetja og ljósmynda vinnuferil sinn sem er uppistaða ferilmöppu um námskeiðið sem lögð er fram til mats undir lok námskeiðsins.
Vinnulag: Fyrirlestrar, sýnikennsla, verkleg vinna, vettvangsferðir, kynningar, umræður, gagnaöflun og skrásetning vinnuferils.
Lista- og hönnunarsaga, söfn og menntun (LVG102F)
Mætingarskylda: Kennslan fer fram í staðnámi. Í sérstökum tilfellum er heimilt að sækja einstaka kennslulotu í fjarkennslu í rauntíma í samráði við kennara. Námskeiðið felur jafnframt í sér tvær lengri staðlotur og þátttöku í undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju (einn laugardag).
Samstarfsaðili: Listasafn Íslands
Áhersla er lögð á að veita innsýn í listasögu frá frá upphafi 20. aldar til samtímans. Megináherlsa er lögð á íslenska listasögu. Fjallað verður um helstu strauma, stefnur, listamenn og lykilverk tímabilsins og þau skoðuð í samhengi við samfélagsþróun á Íslandi. Jafnframt verður litið til alþjóðlegrar listasögu eftir því sem við á til að varpa ljósi á þróun íslenskrar listar og tengsl hennar við alþjóðlega strauma.
Fjallað verður um ólíka stíla og strauma í myndlist og, þar sem við á, hönnun. Einnig verður fjallað um stöðu listamanna og hlutverk listar í samfélaginu, þróun listhugtaksins, markaðsvæðingu listar og breytt hlutverk listamannsins á tímabilinu.
Námskeiðið er unnið í samstarfi við Listasafn Íslands. Skapaður er vettvangur þar sem áhersla er lögð á samstarf og samtal milli skóla og safna. Nemendur kynnast starfsemi lista- og minjasafna og kennslufræði þeirra gagnvart skólum og öðlast aukna hæfni til að nýta söfn sem fræðslu- og menningarstofnanir.
Nemendum gefst kostur á að þróa, útfæra og framkvæma hugmyndir sínar í tengslum við safnafræðslu og skapandi starf. Unnið verður að undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju í tengslum við sýningu í Listasafni Íslands.
Vinnulag:
Kennslan fer fram í staðnámi. Heimilt er að sækja einstaka kennslulotu í fjarkennslu í rauntíma í samráði við kennara. Auk reglulegrar kennslu eru tvær staðlotur og þátttaka í undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju (einn laugardagur).
Kennslan byggist á einstaklings- og hópavinnu. Lista-, minja- og, eftir því sem við á, hönnunarsöfn verða heimsótt bæði á eigin vegum og með kennara.
Námskeiðið krefst sjálfstæðra vinnubragða, virkrar þátttöku og samstarfs.
Leiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi. (LVG205M)
Markmiðið með Leiksmiðjunni, sköpun í stafrænum heimi er að skapa vettvang fyrir gagnvirka leiklist og er námskeiðinu ætlað að vera lifandi leikhúsvettvangur og miðstöð tilrauna fyrir hvers kyns leiklist sem tengist netmiðlum allt frá lifandi uppákomum til tilbúinna mynd- og hljóðverka.
Áhersla er á stafrænar sviðslistir þ.m.t. leiksýningar og hljóðverk þar sem tölvutækni er notuð til að miðla verki eða hluta af verki.
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi leiklistarkennara bæði fræðilega og verklega. Kynntar verðar nýjustu rannsóknir og fræðigreinar og verkefni unnin í tengslum við það.
Fyrirkomulag: Námskeiðið er kennt í nokkrum lotum.
Gildi leiklistar í ljósi velferðar og jafnréttis (LVG204F)
Á námskeiðinu fá nemendur hvorutveggja, verklega og bóklega kennslu í leiklist. Kenningar og skilgreiningar eru reifaðar samtímis með verklegum skapandi verkefnum. Nemendur kynnast hugmyndasögu leiklistar í stórum dráttum og fjallað verður um gildi leiklistar með skírskotun í kenningar og rannsóknir.
Á námskeiðinu verður unnið út frá jafnrétti og velferð barna með tilliti til farsældarlaganna. Nemendur tileinka sér þekkingu og skilning á jafnrétti og velferð barna og leita leiða til úrbóta í gegnum leiklist sem hægt er að nota í kennslu nemenda með ólíka færni. Unnið verður í heildstæðum leikferlum og þau tengd við fræði og rannsóknir.
Uppistaðan í námskeiðinu er þjálfun nemenda í að vinna sjálfstætt, faglega og á skapandi hátt með leiklist.
Fatahönnunar- og híbýlasaga – tíska, textíll, húsgögn og byggingar (LVG008M)
Lögð er áhersla á sögu hönnunar frá Egyptum til vorra daga með áherslu á fatnað og textíl. Einnig er skoðuð húsgagna- og byggingarsagan í samhengi við híbýlaskreytingar úr textíl, til dæmis húsgagnaáklæða- og gluggatjaldahönnun. Kynntar eru stefnur, stílar og straumar og víðtækt hlutverk fatnaðar og textíls innan listasögu, tísku og hönnunar í alþjóðlegu samhengi og samanborið við þróun fata- og textílsögu á Íslandi. Einnig eru skoðuð tengslin við atvinnulíf, menningu, söfn og menntun. Námið er fólgið í fyrirlestrum og bók- og verklegum rannsóknarverkefnum þar sem unnið er með fjölbreytta gagnaöflun og úrvinnslu verkefna á myndrænan hátt.
Útikennsla og græn nytjahönnun (LVG006M)
Tekist verður á við kennslu- og hugmyndafræði "Útikennslu og grænnar nytjahönnunar". Nemendur læra um sjálfbæra þróun í hönnun, skógarvistfræði og skógarnytjar. Farið verður í vettvangsferðir þar sem nemendur kynnast þessari kennsluaðferð af eigin raun. Hugað verður að eflingu tengsla nemenda í verkgreinum við íslenska náttúru og hvernig hægt er að hanna fyrir umhverfið, án þess að valda því skaða. Þróaðir verða nytjahlutir úr íslenskum viðarafurðum og frumgerðir smíðaðar. Stuðst verður við tálguaðferðir sem notaðar hafa verið á norðurlöndunum um árhundruðin. Nemendur eru þjálfaðir að tálga úr blautum viði og að tileinka sér rétt handbrögð og umgengni við bitverkfæri.
Markmið námskeiðsins er að:
- Efla þekkingu og vitund nemenda á viðarfræði, skógarvistfræði og skógarnytjum.
- Nemendur nái leikni í notkun öruggra tálguaðferða sem hægt er að beita við útikennslu þar sem fengist er við hönnun nytjahluta úr íslenskum efniviði.
- Nemendur kynnist af eigin raun kennslufræði og hugmyndafræði um útikennslu og grænnar nytjahönnunar og séu færir um að skipuleggja og sjá um slíkt nám þar sem byggt er á útikennslu.
- Nemendur kynnist nýlegum rannsóknum á gildi list-, verk, og tæknigreina fyrir almennt skólastarfi.
Inntak / viðfangsefni: Fjallað verður um varðveislu og nýtingu íslenska nytjaskógarins og sjálfbæra þróun sem þátt í hönnun nytjahluta. Lögð verður áhersla á hönnun nytjahluta er byggja á hugsuninni um sjálfbæra þróun. Hugað er að réttri hagkvæmri efnisheimsins, líftíma hluta og áhrif þeirra á lífsvenjur okkar, heilsu og umhverfi. Þverfagleg og skapandi skólaverkefni skoðuð er tengjast grænni umhverfisvænni hönnun. Fengist verður við mótun afurða úr íslenskum efniviði, vistfræði, fjölbreytta listsköpun og grenndarfræðslu. Notast verður við gamlar verkaðferðir við tálgun. Fjallað verður um rannsóknir er tengjast gildi list- og verkgreina fyrir þroska skólabarna.
Vinnulag: Vettvangsferðir, fyrirlestrar, hópverkefni, einstaklingsvinna og umræður.
Gamalt handverk í skólastarfi (LVG004M)
Markmið:
a) Að kenna gamlar handverksaðferðir
b) Að nemendur smíði þjóðlega hluti er byggja á gömlum fyrirmyndum
c) Að þjálfa nemendur í að nýta sér minjasöfn sem uppsprettu verkefna.
Lýsing: Námskeiðið er hugsað fyrir nemendur sem vilja læra gamlar handverksaðferðir. Nemendur kynnast verkaðferðum eins og útskurði, trafaöskjugerð, horna- og beinavinnu og trérennismíði. Lögð er áhersla á gerð verkefna sem nemendur geta nýtt bæði í skólastarfi og í eigin lífi. Lögð er áhersla á íslenskan efnivið. Námskeiðið hentar öllum þeim er vilja leggja áherslu á þjóðlegt, bæði innan list- og verkgreina, í almennu skólastarfi og í leikskóla. Handverk er stór hluti af dýrmætum menningararfi okkar sem mikilvægt er að standa vörð um
A. Inntak / viðfangsefni
a) Nemendur skoða gamalt handverk á söfnum, heimsækja íslenskt handverksfólk og skoða sýningar
b) Nemendur byggja verkefni sín á m.a. gömlum þjóðlegum fyrirmyndum t.d. af söfnum sem þeir útfæra að eigin vild.
c) Nemendur læra gamlar verkaðferðir og nota viðeigandi efnivið til að smíða úr með áherslu á notkun handverkfæra
d.) Nemendur læra um sögu og hugmyndafræði uppeldismiðaðs handverks
B. Hönnun og gerð hluta
a) Nemendur hanna og smíða einfalda nytja hluti svo sem trafaöskju, bakka, prjónastokka, spil, skálar, box, leikföng og einnig skartgripi,
b) Lögð er áhersla á að þátttakendur noti fjölbreytt smíðaefni og náttúruleg yfirborðsefni.
Textíllist og hönnun (LVG005F)
Lögð er áhersla á söguskoðun og rannsóknir á eldri og nýrri stefnum og straumum í textíllist og aðferðafræði hönnunar og nýsköpunar. Nemar vinna með formhönnun og skreytimöguleika í tví- og þrívíðri túlkun í eigin hugverkum. Lögð er áhersla á sniðútfærslur og saumtækni í tengslum við hönnun á fatnaði, nytjahlutum eða leikbúningum. Nemar ganga frá rannsóknargögnum, hugmyndavinnu og verklegum verkefnum í ferilmöppu. Unnin er skýrsla yfir afrakstur verkefna með tengingu við kennslufræðilega þætti og gerð kennsluverkefna og gildi textíllistar, hönnunar og nýsköpunar fyrir nám og atvinnulíf.
Sjálfbærni og skapandi endurnýting í textíl (LVG011M)
Markmiðið er að virkja umhverfisvæna hugsun í verki og tengja sjálfbærni í textíl við sjálfbæran og ábyrgan lífsstíl. Fylgt er eftir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og aðferðafræði og ferli hönnunar og nýsköpunar. Á námskeiðinu eru gefin upp verkfæri, textílaðferðir og lausnir, en helst ræður för hvaða efni eða fatnaður stendur til boða að endurskapa eða endurnýta hverju sinni. Lögð er áhersla á að nýta eldri eða ónotaðar tilbúnar flíkur, áklæði, gluggatjöld eða afgangsefni til að hanna nýja og tilraunakennda textílafurð. Samhliða því þjálfast nemendur í tilrauna- og rannsóknarvinnu með áherslu á frjóa og skapandi hugsun og nývirkni. Nemendur kynnast ýmsum textílaðferðum og tækniatriðum innan vélsaums auk þess að vinna með snið í tví- og þrívíðu formi eftir fjölbreyttum leiðum. Lögð er áhersla á skráningu hugmynda- og vinnuferlis í ferilmöppur samhliða verklegri vinnu með tengingu við kennslufræðilega þætti og gildi sjálfbærni og umhverfisverndar fyrir textílnám og kennslu sem og atvinnulíf í faggreininni.
Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
- Óháð misseri
- Ekki kennt á misserinuLVG217F, LVG218FKennslufræði hönnunar og smíða IBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsing
Markmið: Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni hönnun og smíði.
Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið smíðakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í grunnskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir og smíða verkefnadæmi sem miðuð eru við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.
Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Kennslufræði nýsköpunar gerð sérstaklega skil. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.
Verkleg þjálfun og fyrirlestrar.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLVG217F, LVG218FKennslufræði hönnunar og smíða IIBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMarkmið: Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni hönnun og smíði.
Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið og kennslufræði hönnunar smíðakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í grunnskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir og smíða verkefnadæmi sem miðuð eru við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.
Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Kennslufræði nýsköpunar gerð sérstaklega skil. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.
Verkleg þjálfun og fyrirlestrar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuLVG101M, LVG004MHugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreinaBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.
Kennslan byggist annars vegar á sameiginlegum kjarna þar sem kenndar eru aðferðir og kenningar sem tengjast hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun. Hins vegar vinna nemendur að eigin rannsóknarverkefnum. Verkefnin byggja á gagnasöfnun, tilraunavinnu og þróun í gegnum eigin listsköpun. Mikilvægt er að nemendur geti rökstutt niðurstöður sínar og framsett afurðir á faglegan hátt.
Nemendur vinna hluta rannsóknarverkefnis síns í tengslum við Loftskeytastöðina (menningarhús tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur), með áherslu á að vinna út frá hugðarefnum hennar. Verkefnið skal þróað í samræmi við viðurkenndar rannsóknaraðferðir innan list- og verkgreina.
Námskeiðinu lýkur með sýningu þar sem nemendur fá þjálfun og reynslu af sýningarferlinu.
Vinnulag: Fyrirlestrar, gagnasöfnun, skrifleg og myndræn skráning, greinargerð, verkleg vinna og gagnrýnin umræða.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðLVG101M, LVG004MGamalt handverk í skólastarfiBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið:
a) Að kenna gamlar handverksaðferðir
b) Að nemendur smíði þjóðlega hluti er byggja á gömlum fyrirmyndum
c) Að þjálfa nemendur í að nýta sér minjasöfn sem uppsprettu verkefna.Lýsing: Námskeiðið er hugsað fyrir nemendur sem vilja læra gamlar handverksaðferðir. Nemendur kynnast verkaðferðum eins og útskurði, trafaöskjugerð, horna- og beinavinnu og trérennismíði. Lögð er áhersla á gerð verkefna sem nemendur geta nýtt bæði í skólastarfi og í eigin lífi. Lögð er áhersla á íslenskan efnivið. Námskeiðið hentar öllum þeim er vilja leggja áherslu á þjóðlegt, bæði innan list- og verkgreina, í almennu skólastarfi og í leikskóla. Handverk er stór hluti af dýrmætum menningararfi okkar sem mikilvægt er að standa vörð um
A. Inntak / viðfangsefni
a) Nemendur skoða gamalt handverk á söfnum, heimsækja íslenskt handverksfólk og skoða sýningar
b) Nemendur byggja verkefni sín á m.a. gömlum þjóðlegum fyrirmyndum t.d. af söfnum sem þeir útfæra að eigin vild.
c) Nemendur læra gamlar verkaðferðir og nota viðeigandi efnivið til að smíða úr með áherslu á notkun handverkfæra
d.) Nemendur læra um sögu og hugmyndafræði uppeldismiðaðs handverksB. Hönnun og gerð hluta
a) Nemendur hanna og smíða einfalda nytja hluti svo sem trafaöskju, bakka, prjónastokka, spil, skálar, box, leikföng og einnig skartgripi,
b) Lögð er áhersla á að þátttakendur noti fjölbreytt smíðaefni og náttúruleg yfirborðsefni.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuLVG006M, LVG203MÚtikennsla og græn nytjahönnunBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingTekist verður á við kennslu- og hugmyndafræði "Útikennslu og grænnar nytjahönnunar". Nemendur læra um sjálfbæra þróun í hönnun, skógarvistfræði og skógarnytjar. Farið verður í vettvangsferðir þar sem nemendur kynnast þessari kennsluaðferð af eigin raun. Hugað verður að eflingu tengsla nemenda í verkgreinum við íslenska náttúru og hvernig hægt er að hanna fyrir umhverfið, án þess að valda því skaða. Þróaðir verða nytjahlutir úr íslenskum viðarafurðum og frumgerðir smíðaðar. Stuðst verður við tálguaðferðir sem notaðar hafa verið á norðurlöndunum um árhundruðin. Nemendur eru þjálfaðir að tálga úr blautum viði og að tileinka sér rétt handbrögð og umgengni við bitverkfæri.
Markmið námskeiðsins er að:
- Efla þekkingu og vitund nemenda á viðarfræði, skógarvistfræði og skógarnytjum.
- Nemendur nái leikni í notkun öruggra tálguaðferða sem hægt er að beita við útikennslu þar sem fengist er við hönnun nytjahluta úr íslenskum efniviði.
- Nemendur kynnist af eigin raun kennslufræði og hugmyndafræði um útikennslu og grænnar nytjahönnunar og séu færir um að skipuleggja og sjá um slíkt nám þar sem byggt er á útikennslu.
- Nemendur kynnist nýlegum rannsóknum á gildi list-, verk, og tæknigreina fyrir almennt skólastarfi.
Inntak / viðfangsefni: Fjallað verður um varðveislu og nýtingu íslenska nytjaskógarins og sjálfbæra þróun sem þátt í hönnun nytjahluta. Lögð verður áhersla á hönnun nytjahluta er byggja á hugsuninni um sjálfbæra þróun. Hugað er að réttri hagkvæmri efnisheimsins, líftíma hluta og áhrif þeirra á lífsvenjur okkar, heilsu og umhverfi. Þverfagleg og skapandi skólaverkefni skoðuð er tengjast grænni umhverfisvænni hönnun. Fengist verður við mótun afurða úr íslenskum efniviði, vistfræði, fjölbreytta listsköpun og grenndarfræðslu. Notast verður við gamlar verkaðferðir við tálgun. Fjallað verður um rannsóknir er tengjast gildi list- og verkgreina fyrir þroska skólabarna.
Vinnulag: Vettvangsferðir, fyrirlestrar, hópverkefni, einstaklingsvinna og umræður.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLVG006M, LVG203MTrésmíði, trérennismíði og útskurðurBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNemar hljóti þekkingu á og þjálfun í smíði tréhluta sem þeir útfæra sjálfir og geta skreytt með útskurði. Áhersla er á gerð nytjahluta úr tré, tréleikföng og trérennismíði. Nemar læra beitingu tréhandverkfæra (og útskurðarjárna). Farið verður í ýmsa trésmíðaþætti eins og yfirborðsmeðferð viðar, brýningar, lím og samlímingar, efnisfræði, festingar og samsetningar.
Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins en að öðru leyti fer kennslan fram í fyrirlestrum og í gegnum leiðsögn við verkefnavinnu.
Námsmat: Einkunn fyrir smíðisgripi og verklýsingar.
Markmið námskeiðsins eru að:
- Þjálfa nemendur í hönnun,
- Efla handverksþekkingu nemenda og leikni,
- Nemendur þjálfist í almennri trésmíði, trérennismíði og útskurði.
Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins; skissuvinna, handverkfæranotkun, innlagnir og vettvangsferðir.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME102FNám og kennsla í grunnskólaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi.
Inntak / viðfangsefni:
Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms.
Í vettvangsnámi kynna kennaranemar sér starfshætti á ákveðnu námssviði eða faggrein sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Í vettvangsnámi er nema ætlað að sýna frumkvæði og virkni og taka þátt í öllu daglegu starfi eftir því sem við verður komið. Skilgreind kennsla fer eftir fjölda Ve.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG106FFélagsfræði og heimspeki menntunarSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMeginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms.
Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.
Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
- KME301FNám og kennsla - fagmennska í starfiSkyldunámskeið20Skyldunámskeið á námsleiðinni20 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsing
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
ÍET206FÍslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemendaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFAG401FNám og kennsla – vettvangsnám í faggreinSkyldunámskeið15Skyldunámskeið á námsleiðinni15 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
FAG201FMenntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytingaSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFAG101MJafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfiSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
- LVG207MBarna- og unglingaleikrit með börnum og fyrir börnValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Á námskeiðinu er áhersla lögð á að kynna og þjálfa nemendur í að vinna sjálfstætt og faglega að sviðsetningu á leikriti/söngleik í skólum ásamt kennslu í útvarpsleikritagerð. Unnið verður með leikrit sem tekur á málefnum barna- og unglinga með börnum annars vegar og fyrir börn hins vegar. Nemendur kynnast fjölbreyttum aðferðum við uppsetningu á leikverki hvort heldur sem er fyrir útvarp eða svið. Einnig kynnast nemendur fjölbreyttum kennsluháttum og leiðum í leiklistarkennslu. Uppistaðan í námskeiðinu er þjálfun nemenda í að vinna sjálfstætt, faglega og á skapandi hátt með uppsetningu leikverks; gerð handrita umræður, úrvinnsla og kynningar.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuLVG009MHópkennsla í tónlist -Kenningar og hagnýtar aðferðirValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðsins eru námskenningar á sviði tónlistarmenntunar og hagnýtar útfærslur á þeim. Lesin eru helstu fræði um stefnur og strauma í tónlistarmenntunarfræðum. Sérstaklega eru skoðaðar gagnrýnar kenningar á viðtekna kennsluhætti í tónlistarnámi barna, ungmenna og fullorðinna. Nemendum gefst færi á að fara dýpra í einstakar kenningar og kennsluaðferðir sem hafa notið vinsælda undanfarna áratugi víða um heim.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuLVG103MHagnýtur undirleikur í tónmenntakennsluValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ þessu námskeiði læra nemendur að beita áhrifaríkum aðferðum í undirleik á hljómborðshljóðfæri sem henta vel í tónmenntakennslu. Farið verður í hagnýta hljómfræði sem leggur grunninn að færni í að semja og spinna einfaldan undirleik fyrir hljóðfæraleik og söng. Auk hljómborðsleiks verður farið yfir grundvallaratriði í leik á gítar og ukulele með sömu hljómfræðilegu nálgun. Nemendur öðlast færni í að hljómgreina algenga tónlist og læra leiðir til að útsetja á hljómborðshljóðfæri í samræmi við eigin hljóðfærafærni. Í lok námskeiðs eiga nemendur að hafa færni til þess að leika undir algeng sönglög í minnst sex tóntegundum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu er fjallað um áhrif tónlistar á manneskjuna frá ýmsum hliðum. Skoðaðar verða rannsóknir á áhrifum tónlistar á líðan og tilfinningar. Einnig verða lesnar kenningar um skynjun tónlistar og tengsl tónlistar við nám og vitsmunaþroska. Lesefni verður meðal annars á sviði heilarannsókna og taugasálfræði.
Nemendur taka virkan þátt í efnistökum fyrir fyrirlestur hverrar viku með því að leggja af mörkum eigin skoðanir á lesefninu. Nemendur taka afstöðu til þess sem þeir sjálfir telja áhugaverðast í lesefninu en kennarinn bætir við lesefni til dýpkunar í samræmi við áhugasvið nemenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuLVG104MTónlist í sögulegu ljósiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðsins er tónlist í sögulegu ljósi. Ekki verður einungis farið yfir hefðbundna Vestræna tónlistarsögu heldur leitast við að skoða tónlist frá ýmsum tímum á ólíkum heimssvæðum. Nemendur verða hvattir til að skoða hvað hefur áhrif á tónlistarstefnur og stíla svo sem samfélagsþróun og tækniframfarir. Í lok námskeiðs eiga nemendur að vera færir um að skoða fjölbreyttar gerðir tónlistar með tónlistarlegum og félagssögulegum gleraugum og geta miðlað þekkingu á ólíkum tónlistarstílum til barna og unglinga.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuLVG005MHugmynda- og hönnunarvinnaValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingLögð er áhersla á hugmynda- og hönnunarverkefni í tengslum við fatnað og textíl sem fléttað er sögu- og samtímalegri þróun. Áhersla er lögð á munsturgerð, liti og form, tískuteikningu, útlit og snið og tilraunir með textílaðferðir og textílhráefni. Unnin er skipulögð rannsóknarvinna við vinnuferlið frá gagnaöflun til úrvinnslu hugmyndar og hönnunar með nýsköpun að leiðarljósi. Lögð er áhersla á frágang og framsetningu verkefna í ferlilmöppu og til sýninga.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuLVG210MSöngur og kórstjórn IIValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni
Söngraddir barna og unglinga
Viðeigandi raddþjálfun fyrir barna- og unglingakóra.
Unnið er með færni hvers og eins nemanda í kórstjórnartækni sem miðast við þarfir kóra með ungar raddir sem eru í mótun.
Nemendur byggja ofan á grunn í kórstjórnartækni og fá tækifæri til að styrkja eigin færni í hópi jafningja með faglegri tilsögn.
Vinnulag
Blanda af verklegum smiðjum, heimaæfingum, hittingi á vef og lesefni sem styður við þekkingaröflun á sviði söngradda og kóræfingatækni
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuLVG101MHugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreinaValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNemar hljóti þekkingu á og þjálfun í smíði tréhluta sem þeir útfæra sjálfir og geta skreytt með útskurði. Áhersla er á gerð nytjahluta úr tré, tréleikföng og trérennismíði. Nemar læra beitingu tréhandverkfæra (og útskurðarjárna). Farið verður í ýmsa trésmíðaþætti eins og yfirborðsmeðferð viðar, brýningar, lím og samlímingar, efnisfræði, festingar og samsetningar.

Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLVG108MLeiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistarValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Nemendur fá kennslu í samsettum (devised) aðferðum leiklistar ásamt því að vinna með aðferðir leikhúss líkamans og Ímyndarleikhús. Nemendur kynna sér listamenn og listviðburði í íslensku samfélagi og tengja við hugmyndafræði og kenningar um listupplifun. Mögulegir snertifletir leiklistarinnar verða kannaðir út frá margvíslegum sjónarhornum með mismunandi miðlunarleiðir að leiðarljósi.
Vinnulag: Vinna í smiðjum þar sem nemendur leita fjölbreyttra leiða til að vinna með miðlunarleiðir leiklistar þ.e. leikrit (hefðbundin, óhefðbundin), útvarpsleikrit eða hljóðmyndir, miðlun í gegnum kvikmyndum, eða uppsetningu í gegnum samfélagsmiðla í tengslum við nám barna og unglinga. Þá verða listviðburðir sóttir og rætt við listamenn um starfsgrein þeirra.
Unnin verða verkefni sem reyna á sköpun og tjáningu, tengjast þróun eigin starfskenningar, námskrárgerð í leiklist ásamt ígrundun um menningar- og samfélagslega vídd leiklistarinnar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingAthugið að nemendur á kjörsviðinu Sjónlistir: Myndmennt ganga fyrir þegar hámarksfjölda er náð!
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu á möguleikum leirs í myndmenntakennslu og leikni til að útfæra hugmyndir sínar á ólíkan sjónrænan máta með mismunandi tækni, aðferðum og efni.- Á fyrra hluta námskeiðsins verður farið í ýmsa grunnvinnu í skissugerð og mótun leirs. Einnig kynnast nemendur allri grunnvinnu með glerunga og brennslur.
- Á seinni hluta námskeiðsins vinna þátttakendur sjálfstæð verkefni með áherslu á skapandi vinnubrögð, persónulega nálgun ásamt tilrauna- og rannsóknarvinnu.
Gert er ráð fyrir að nemendur séu virkir í að skrásetja og ljósmynda vinnuferil sinn sem er uppistaða ferilmöppu um námskeiðið sem lögð er fram til mats undir lok námskeiðsins.
Vinnulag: Fyrirlestrar, sýnikennsla, verkleg vinna, vettvangsferðir, kynningar, umræður, gagnaöflun og skrásetning vinnuferils.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLVG102FLista- og hönnunarsaga, söfn og menntunValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMætingarskylda: Kennslan fer fram í staðnámi. Í sérstökum tilfellum er heimilt að sækja einstaka kennslulotu í fjarkennslu í rauntíma í samráði við kennara. Námskeiðið felur jafnframt í sér tvær lengri staðlotur og þátttöku í undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju (einn laugardag).
Samstarfsaðili: Listasafn Íslands
Áhersla er lögð á að veita innsýn í listasögu frá frá upphafi 20. aldar til samtímans. Megináherlsa er lögð á íslenska listasögu. Fjallað verður um helstu strauma, stefnur, listamenn og lykilverk tímabilsins og þau skoðuð í samhengi við samfélagsþróun á Íslandi. Jafnframt verður litið til alþjóðlegrar listasögu eftir því sem við á til að varpa ljósi á þróun íslenskrar listar og tengsl hennar við alþjóðlega strauma.
Fjallað verður um ólíka stíla og strauma í myndlist og, þar sem við á, hönnun. Einnig verður fjallað um stöðu listamanna og hlutverk listar í samfélaginu, þróun listhugtaksins, markaðsvæðingu listar og breytt hlutverk listamannsins á tímabilinu.
Námskeiðið er unnið í samstarfi við Listasafn Íslands. Skapaður er vettvangur þar sem áhersla er lögð á samstarf og samtal milli skóla og safna. Nemendur kynnast starfsemi lista- og minjasafna og kennslufræði þeirra gagnvart skólum og öðlast aukna hæfni til að nýta söfn sem fræðslu- og menningarstofnanir.
Nemendum gefst kostur á að þróa, útfæra og framkvæma hugmyndir sínar í tengslum við safnafræðslu og skapandi starf. Unnið verður að undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju í tengslum við sýningu í Listasafni Íslands.
Vinnulag:
Kennslan fer fram í staðnámi. Heimilt er að sækja einstaka kennslulotu í fjarkennslu í rauntíma í samráði við kennara. Auk reglulegrar kennslu eru tvær staðlotur og þátttaka í undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju (einn laugardagur).
Kennslan byggist á einstaklings- og hópavinnu. Lista-, minja- og, eftir því sem við á, hönnunarsöfn verða heimsótt bæði á eigin vegum og með kennara.
Námskeiðið krefst sjálfstæðra vinnubragða, virkrar þátttöku og samstarfs.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuLVG205MLeiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi.Valnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með Leiksmiðjunni, sköpun í stafrænum heimi er að skapa vettvang fyrir gagnvirka leiklist og er námskeiðinu ætlað að vera lifandi leikhúsvettvangur og miðstöð tilrauna fyrir hvers kyns leiklist sem tengist netmiðlum allt frá lifandi uppákomum til tilbúinna mynd- og hljóðverka.
Áhersla er á stafrænar sviðslistir þ.m.t. leiksýningar og hljóðverk þar sem tölvutækni er notuð til að miðla verki eða hluta af verki.
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi leiklistarkennara bæði fræðilega og verklega. Kynntar verðar nýjustu rannsóknir og fræðigreinar og verkefni unnin í tengslum við það.
Fyrirkomulag: Námskeiðið er kennt í nokkrum lotum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuLVG204FGildi leiklistar í ljósi velferðar og jafnréttisValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu fá nemendur hvorutveggja, verklega og bóklega kennslu í leiklist. Kenningar og skilgreiningar eru reifaðar samtímis með verklegum skapandi verkefnum. Nemendur kynnast hugmyndasögu leiklistar í stórum dráttum og fjallað verður um gildi leiklistar með skírskotun í kenningar og rannsóknir.
Á námskeiðinu verður unnið út frá jafnrétti og velferð barna með tilliti til farsældarlaganna. Nemendur tileinka sér þekkingu og skilning á jafnrétti og velferð barna og leita leiða til úrbóta í gegnum leiklist sem hægt er að nota í kennslu nemenda með ólíka færni. Unnið verður í heildstæðum leikferlum og þau tengd við fræði og rannsóknir.
Uppistaðan í námskeiðinu er þjálfun nemenda í að vinna sjálfstætt, faglega og á skapandi hátt með leiklist.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðLVG008MFatahönnunar- og híbýlasaga – tíska, textíll, húsgögn og byggingarValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingLögð er áhersla á sögu hönnunar frá Egyptum til vorra daga með áherslu á fatnað og textíl. Einnig er skoðuð húsgagna- og byggingarsagan í samhengi við híbýlaskreytingar úr textíl, til dæmis húsgagnaáklæða- og gluggatjaldahönnun. Kynntar eru stefnur, stílar og straumar og víðtækt hlutverk fatnaðar og textíls innan listasögu, tísku og hönnunar í alþjóðlegu samhengi og samanborið við þróun fata- og textílsögu á Íslandi. Einnig eru skoðuð tengslin við atvinnulíf, menningu, söfn og menntun. Námið er fólgið í fyrirlestrum og bók- og verklegum rannsóknarverkefnum þar sem unnið er með fjölbreytta gagnaöflun og úrvinnslu verkefna á myndrænan hátt.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuLVG006MÚtikennsla og græn nytjahönnunValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingTekist verður á við kennslu- og hugmyndafræði "Útikennslu og grænnar nytjahönnunar". Nemendur læra um sjálfbæra þróun í hönnun, skógarvistfræði og skógarnytjar. Farið verður í vettvangsferðir þar sem nemendur kynnast þessari kennsluaðferð af eigin raun. Hugað verður að eflingu tengsla nemenda í verkgreinum við íslenska náttúru og hvernig hægt er að hanna fyrir umhverfið, án þess að valda því skaða. Þróaðir verða nytjahlutir úr íslenskum viðarafurðum og frumgerðir smíðaðar. Stuðst verður við tálguaðferðir sem notaðar hafa verið á norðurlöndunum um árhundruðin. Nemendur eru þjálfaðir að tálga úr blautum viði og að tileinka sér rétt handbrögð og umgengni við bitverkfæri.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið:

b) Lögð er áhersla á að þátttakendur noti fjölbreytt smíðaefni og náttúruleg yfirborðsefni.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingLögð er áhersla á söguskoðun og rannsóknir á eldri og nýrri stefnum og straumum í textíllist og aðferðafræði hönnunar og nýsköpunar. Nemar vinna með formhönnun og skreytimöguleika í tví- og þrívíðri túlkun í eigin hugverkum. Lögð er áhersla á sniðútfærslur og saumtækni í tengslum við hönnun á fatnaði, nytjahlutum eða leikbúningum. Nemar ganga frá rannsóknargögnum, hugmyndavinnu og verklegum verkefnum í ferilmöppu. Unnin er skýrsla yfir afrakstur verkefna með tengingu við kennslufræðilega þætti og gerð kennsluverkefna og gildi textíllistar, hönnunar og nýsköpunar fyrir nám og atvinnulíf.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuLVG011MSjálfbærni og skapandi endurnýting í textílValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið er að virkja umhverfisvæna hugsun í verki og tengja sjálfbærni í textíl við sjálfbæran og ábyrgan lífsstíl. Fylgt er eftir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og aðferðafræði og ferli hönnunar og nýsköpunar. Á námskeiðinu eru gefin upp verkfæri, textílaðferðir og lausnir, en helst ræður för hvaða efni eða fatnaður stendur til boða að endurskapa eða endurnýta hverju sinni. Lögð er áhersla á að nýta eldri eða ónotaðar tilbúnar flíkur, áklæði, gluggatjöld eða afgangsefni til að hanna nýja og tilraunakennda textílafurð. Samhliða því þjálfast nemendur í tilrauna- og rannsóknarvinnu með áherslu á frjóa og skapandi hugsun og nývirkni. Nemendur kynnast ýmsum textílaðferðum og tækniatriðum innan vélsaums auk þess að vinna með snið í tví- og þrívíðu formi eftir fjölbreyttum leiðum. Lögð er áhersla á skráningu hugmynda- og vinnuferlis í ferilmöppur samhliða verklegri vinnu með tengingu við kennslufræðilega þætti og gildi sjálfbærni og umhverfisverndar fyrir textílnám og kennslu sem og atvinnulíf í faggreininni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðFAG101MJafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuAnnað ár- Óháð misseri

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÓháð námsári- Óháð misseri

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu