""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á list, listsköpun og handverki?
  • Viltu stuðla að færni barna í listsköpun og handverki?
  • Sækist þú eftir launuðu starfsnámi á loka ári námsins?
  • Viltu hafa réttindi til að geta kennt á þremur skólastigum?
  • Viltu kenna list- eða verkgrein?

M.Ed. nám í kennslu list- og verkgreina er ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig grunnskólakennslu með sérstaka áherslu á hönnun og smíði, sjónlistir, sviðslistir, textílmennt og tónmennt.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.

Kjörsvið

Nemendur velja eitt af eftirfarandi kjörsviðum miðað við fyrra nám:

  • Hönnun og smíði eftir B.Ed 
  • Sjónlistir: Myndmennt eftir B.Ed 
  • Leiklist eftir B.Ed. 
  • Textíll og hönnun eftir B.Ed.
  • Tónmennt eftir B.Ed.  
  • Hönnun og smíði að loknu BA/BS prófi 
  • Sjónlistir: Myndmennt að loknu BA/BS prófi
  • Leiklist að loknu BA/BS prófi
  • Textíll og hönnun að loknu BA/BS prófi
  • Tónmennt að loknu BA/BS prófi
  • List- og verkgreinar fyrir kennara með leyfisbréf

Athugið ef sótt er um kjörsvið að loknu grunnnámi þarf að taka fram á umsókn hvort kjörsvið sé valið eftir B.Ed. próf eða að loknu BA/BS prófi.

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku

Námskeið eru ýmist kennd í fjar- eða staðnámi og er nemendum því bent á að kynna sér kennslufyrirkomulag hvers námskeiðs vel. Sjá skilgreiningar á mismunandi námsformi.

    Helstu áherslur

    • Menntun og sjálfbærni
    • Miðlun og sköpun
    • Nám og kennsla
    • Sérsvið faggreinar

    Meginmarkmið

    Markmið námsins er að mennta fagreinakennara til starfa og stuðla að góðri og fjölbreyttri menntun list- og verkgreina í íslenska menntakerfinu. 

    Annað

    Námsleiðin veitir þér rétt til þess að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.

    Við inntöku í nám til M.Ed.-prófs gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra).

    Námið byggir á lögum nr. 95/2019 um að við brautskráningu búi kennari með sérhæfingu á grunnskólastigi yfir sérhæfðri hæfni í faggrein / kennslugrein grunnskóla, að lágmarki 90 námseiningar. Kjörsvið sem leiða til kennsluréttinda eru skipulögð með fyrra nám umsækjenda í huga. Ef fyrra nám umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum úr grunnnámi til að uppfylla kröfur um lágmarksfjölda eininga í faggrein.

    Ef umsækjandi um meistaranám sem leiðir til leyfisbréfs kennara hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).

    Ljúka þarf 120 einingum til M.Ed.-prófs. Þar af skal meistaraprófsverkefni vera 30 einingar.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Fyrsta ár | Haust
    Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.

     Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Kennslufræði hönnunar og smíða I (LVG217F, LVG218F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni hönnun og smíði.

    Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið smíðakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í grunnskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir og smíða verkefnadæmi sem miðuð eru við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

    Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Kennslufræði nýsköpunar gerð sérstaklega skil. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.
    Verkleg þjálfun og fyrirlestrar.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Kennslufræði hönnunar og smíða II (LVG217F, LVG218F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni hönnun og smíði.

    Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið og kennslufræði hönnunar smíðakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í grunnskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir og smíða verkefnadæmi sem miðuð eru við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

    Hönnun og smíði leikfanga (LVG221F, LVG222F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    a) Að kenna almennan feril hönnunar;
    b) Að hanna og smíða leikföng fyrir börn á ýmsum aldri;
    c) Að þjálfa nemendur í þrívíddarhönnun
    d) Að geta hannað fyrir börn með öryggissjónarmið í huga. 

    Lýsing:

    Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í handverki og hönnunarvinnu. Nemendur vinna verkefni á fjölbreyttan hátt og dýpka skilning sinn á gildi handverks fyrir skólastarf í gegnum verklega vinnu. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.

    Námskeiðið er hugsað fyrir nemendur sem vilja læra að hanna og smíða þroskaleikföng bæði fyrir kornabörn, leikskólabörn og börn í grunnskóla. Lögð er áhersla á gerð verkefna sem nemendur geta bæði nýtt í skólastarfi og í eigin lífi. Nemendur kynnast einnig hagnýtingu tölvustuddar hönnunar og framleiðslu við þróun verkefna. Unnið er með fjölbreytt smíðaefni. Námskeiðið hentar öllum þeim er vilja leggja áherslu á skapandi skólastarf, bæði innan list- og verkgreina, í almennu skólastarfi og í leikskóla. 

    Inntak / viðfangsefni

    A. Hönnun leikfanga
    a) Nemendur þurfa að hanna og teikna leikföng;
    b) Nemendur læra að teikna í tölvu, málsetja vinnuteikningar og gefa þrívíðum hlutum efnisáferðir.
    c) Kynnt verður tölvustudd framleiðsla og nokkur verkefni gerð í tölvustýrðum fræsara. 

    B. Smíði leikfanga
    a) Nemendur hanna og smíða verkefni svo sem hreyfileikföng, spil og leikföng sem byggja á hagnýtingu einfaldra rafrænna lausna;
    b) Lögð er áhersla á að þátttakendur noti fjölbreytt smíðaefni og náttúruleg yfirborðsefni; 

    Vinnulag: Fyrirlestrar, verkstæðisvinna í tölvu- og smíðastofu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Lesið í skóginn og tálgað í tré (LVG221F, LVG222F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðslýsing:

    Markmið: Að nemendur kynnist hvernig hægt er að nýta skóginn í kennslu og læri helstu vinnubrögð við gerð hluta úr íslensku efni. 

    Inntak / viðfangsefni: Megináherslan er lögð á verklega þáttinn þar sem nemendur vinna með blautt og þurrt efni úr íslenskum skógum. Kennd verða helstu vinnubrögð í tálgun, bæði með hníf og exi. Einnig verða kennd grundvallaratriði í viðar- og vistfræði og kannað hvernig hægt er að nýta sér form og eiginleika íslenskra viðartegunda. Farið verður í vettvangsferð í skóg í nágrenninu og hugað að efnisöflun og útikennslu í skógi. Kynnt verður skólaverkefnið Lesið í skóginn, samþætt kennsluverkefni um íslenska skóga og nýtingu þeirra.

    Nemendur á kjörsviði hönnunar og smíða fá sérstakan undirbúning fyrir kennslu á vettvangi með tilheyrandi verkefnum. 

    Vinnulag: Verkleg þjálfun og fyrirlestrar. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina (LVG101M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.

    Kennslan byggist annars vegar á sameiginlegum kjarna þar sem kenndar eru aðferðir og kenningar sem tengjast hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun. Hins vegar vinna nemendur að eigin rannsóknarverkefnum. Verkefnin byggja á gagnasöfnun, tilraunavinnu og þróun í gegnum eigin listsköpun. Mikilvægt er að nemendur geti rökstutt niðurstöður sínar og framsett afurðir á faglegan hátt.

    Nemendur vinna hluta rannsóknarverkefnis síns í tengslum við Loftskeytastöðina (menningarhús tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur), með áherslu á að vinna út frá hugðarefnum hennar. Verkefnið skal þróað í samræmi við viðurkenndar rannsóknaraðferðir innan list- og verkgreina.

    Námskeiðinu lýkur með sýningu þar sem nemendur fá þjálfun og reynslu af sýningarferlinu.

    Vinnulag: Fyrirlestrar, gagnasöfnun, skrifleg og myndræn skráning, greinargerð, verkleg vinna og gagnrýnin umræða.

    Gamalt handverk í skólastarfi (LVG004M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:
    a) Að kenna gamlar handverksaðferðir
    b) Að nemendur smíði þjóðlega hluti er byggja á gömlum fyrirmyndum
    c) Að þjálfa nemendur í að nýta sér minjasöfn sem uppsprettu verkefna. 

    Lýsing: Námskeiðið er hugsað fyrir nemendur sem vilja læra gamlar handverksaðferðir. Nemendur kynnast verkaðferðum eins og útskurði, trafaöskjugerð, horna- og beinavinnu og trérennismíði. Lögð er áhersla á gerð verkefna sem nemendur geta nýtt bæði í skólastarfi og í eigin lífi. Lögð er áhersla á íslenskan efnivið. Námskeiðið hentar öllum þeim er vilja leggja áherslu á þjóðlegt, bæði innan list- og verkgreina, í almennu skólastarfi og í leikskóla. Handverk er stór hluti af dýrmætum menningararfi okkar sem mikilvægt er að standa vörð um

    A.  Inntak / viðfangsefni
    a) Nemendur skoða gamalt handverk á söfnum, heimsækja íslenskt handverksfólk og skoða sýningar
    b) Nemendur byggja verkefni sín á m.a. gömlum þjóðlegum fyrirmyndum t.d. af söfnum sem þeir útfæra að eigin vild. 
    c) Nemendur læra gamlar verkaðferðir og nota viðeigandi efnivið til að smíða úr með áherslu á notkun handverkfæra
    d.) Nemendur læra um sögu og hugmyndafræði uppeldismiðaðs handverks 

    B. Hönnun og gerð hluta
    a) Nemendur hanna og smíða einfalda nytja hluti svo sem trafaöskju, bakka, prjónastokka, spil, skálar, box, leikföng og einnig skartgripi,
    b) Lögð er áhersla á að þátttakendur noti fjölbreytt smíðaefni og náttúruleg yfirborðsefni.

    Nám og kennsla í grunnskóla (KME102F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi. 

    Inntak / viðfangsefni:

    Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms. 

    Í vettvangsnámi kynna kennaranemar sér starfshætti á ákveðnu námssviði eða faggrein sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Í vettvangsnámi er nema ætlað að sýna frumkvæði og virkni og taka þátt í öllu daglegu starfi eftir því sem við verður komið. Skilgreind kennsla fer eftir fjölda Ve.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Námsmat og námskrá grunnskóla (KME006F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms. 

    Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.

    Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.

    Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F, MVS213F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.

    Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.

    Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F, MVS213F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið er að nemendur

    • hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
    • þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
    • geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
    • séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
    • hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun

    Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.

    Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.

    Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir. 

    Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.

    Annað ár | Haust
    Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    20 einingar, ETCS
    Þar af 12 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.

    Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.

    Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.

    Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:

    Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið  í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
    Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.

    Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.

    Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.

    Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.

    Annað ár | Vor
    Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    15 einingar, ETCS
    Þar af 12 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi. 

    Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Annað ár | Vor
    Lokaverkefni (LVG401L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    30 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.

    Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.

    Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.

    Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.

    Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.

    Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.

    Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, UgluFræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

    Óháð námsári | Haust
    Tónlist í sögulegu ljósi (LVG104M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins er tónlist í sögulegu ljósi. Ekki verður einungis farið yfir hefðbundna Vestræna tónlistarsögu heldur leitast við að skoða tónlist frá ýmsum tímum á ólíkum heimssvæðum. Nemendur verða hvattir til að skoða hvað hefur áhrif á tónlistarstefnur og stíla svo sem samfélagsþróun og tækniframfarir. Í lok námskeiðs eiga nemendur að vera færir um að skoða fjölbreyttar gerðir tónlistar með tónlistarlegum og félagssögulegum gleraugum og geta miðlað þekkingu á ólíkum tónlistarstílum til barna og unglinga.

    Kennslutungumál: Enska

    Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu (LVG103M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þessu námskeiði læra nemendur að beita áhrifaríkum aðferðum í undirleik á hljómborðshljóðfæri sem henta vel í tónmenntakennslu. Farið verður í hagnýta hljómfræði sem leggur grunninn að færni í að semja og spinna einfaldan undirleik fyrir hljóðfæraleik og söng. Auk hljómborðsleiks  verður farið yfir grundvallaratriði í leik á gítar og ukulele með sömu hljómfræðilegu nálgun. Nemendur öðlast færni í að hljómgreina algenga tónlist og læra leiðir til að útsetja á hljómborðshljóðfæri í samræmi við eigin hljóðfærafærni.  Í lok námskeiðs eiga nemendur að hafa færni til þess að leika undir algeng sönglög í minnst sex tóntegundum.

    Óháð námsári | Óháð misseri
    Læsi í faggreinum (ÍET214F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar

     Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.

    Hópkennsla í tónlist -Kenningar og hagnýtar aðferðir (LVG009M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins eru námskenningar á sviði tónlistarmenntunar og hagnýtar útfærslur á þeim. Lesin eru helstu fræði um stefnur og strauma í tónlistarmenntunarfræðum. Sérstaklega eru skoðaðar gagnrýnar kenningar á viðtekna kennsluhætti í tónlistarnámi barna, ungmenna og fullorðinna. Nemendum gefst færi á að fara dýpra í einstakar kenningar og kennsluaðferðir sem hafa notið vinsælda undanfarna áratugi víða um heim.

    Leiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistar (LVG108M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni: Nemendur fá kennslu í samsettum (devised) aðferðum leiklistar ásamt því að vinna með aðferðir leikhúss líkamans og Ímyndarleikhús. Nemendur kynna sér listamenn og listviðburði í íslensku samfélagi og tengja við hugmyndafræði og kenningar um listupplifun. Mögulegir snertifletir leiklistarinnar verða kannaðir út frá margvíslegum sjónarhornum með mismunandi miðlunarleiðir að leiðarljósi.

    Vinnulag: Vinna í smiðjum þar sem nemendur leita fjölbreyttra leiða til að vinna með miðlunarleiðir leiklistar þ.e. leikrit (hefðbundin, óhefðbundin), útvarpsleikrit eða hljóðmyndir, miðlun í gegnum kvikmyndum, eða uppsetningu í gegnum samfélagsmiðla í tengslum við nám barna og unglinga. Þá verða listviðburðir sóttir og rætt við listamenn um starfsgrein þeirra.

    Unnin verða verkefni sem reyna á sköpun og tjáningu, tengjast þróun eigin starfskenningar, námskrárgerð í leiklist ásamt ígrundun um menningar- og samfélagslega vídd leiklistarinnar.

    Söngur og kórstjórn II (LVG210M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni

    Söngraddir barna og unglinga

    Viðeigandi raddþjálfun fyrir barna- og unglingakóra.

    Unnið er með færni hvers og eins nemanda í kórstjórnartækni sem miðast við þarfir kóra með ungar raddir sem eru í mótun.

    Nemendur byggja ofan á grunn í kórstjórnartækni og fá tækifæri til að styrkja eigin færni í hópi jafningja með faglegri tilsögn.

    Vinnulag

    Blanda af verklegum smiðjum, heimaæfingum, hittingi á vef og lesefni sem styður við þekkingaröflun á sviði söngradda og kóræfingatækni

    Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.

    Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.

    Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.

    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum

    Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
    Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.

    Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda (ÍET206F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.

    Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.

    Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.

    Barna- og unglingaleikrit með börnum og fyrir börn (LVG207M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu er áhersla lögð á að kynna og þjálfa nemendur í að vinna sjálfstætt og faglega að sviðsetningu á leikriti/söngleik í skólum ásamt kennslu í útvarpsleikritagerð. Unnið verður með leikrit sem tekur á málefnum barna- og unglinga  með börnum annars vegar og fyrir börn hins vegar. Nemendur kynnast  fjölbreyttum aðferðum við uppsetningu á leikverki hvort heldur sem er fyrir útvarp eða svið. Einnig  kynnast nemendur fjölbreyttum kennsluháttum og leiðum í leiklistarkennslu. Uppistaðan í námskeiðinu er þjálfun nemenda í að vinna sjálfstætt, faglega og á skapandi hátt með uppsetningu leikverks; gerð handrita umræður, úrvinnsla og kynningar. 

    Lista- og hönnunarsaga, söfn og menntun (LVG102F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Mætingarskylda: Kennslan fer fram í staðnámi. Í sérstökum tilfellum er heimilt að sækja einstaka kennslulotu í fjarkennslu í rauntíma í samráði við kennara. Námskeiðið felur jafnframt í sér tvær lengri staðlotur og þátttöku í undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju (einn laugardag). 

    Samstarfsaðili: Listasafn Íslands 

    Áhersla er lögð á að veita innsýn í listasögu frá frá upphafi 20. aldar til samtímans. Megináherlsa er lögð á íslenska listasögu. Fjallað verður um helstu strauma, stefnur, listamenn og lykilverk tímabilsins og þau skoðuð í samhengi við samfélagsþróun á Íslandi. Jafnframt verður litið til alþjóðlegrar listasögu eftir því sem við á til að varpa ljósi á þróun íslenskrar listar og tengsl hennar við alþjóðlega strauma.

    Fjallað verður um ólíka stíla og strauma í myndlist og, þar sem við á, hönnun. Einnig verður fjallað um stöðu listamanna og hlutverk listar í samfélaginu, þróun listhugtaksins, markaðsvæðingu listar og breytt hlutverk listamannsins á tímabilinu.

    Námskeiðið er unnið í samstarfi við Listasafn Íslands. Skapaður er vettvangur þar sem áhersla er lögð á samstarf og samtal milli skóla og safna. Nemendur kynnast starfsemi lista- og minjasafna og kennslufræði þeirra gagnvart skólum og öðlast aukna hæfni til að nýta söfn sem fræðslu- og menningarstofnanir.

    Nemendum gefst kostur á að þróa, útfæra og framkvæma hugmyndir sínar í tengslum við safnafræðslu og skapandi starf. Unnið verður að undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju í tengslum við sýningu í Listasafni Íslands.

    Vinnulag:

    Kennslan fer fram í staðnámi. Heimilt er að sækja einstaka kennslulotu í fjarkennslu í rauntíma í samráði við kennara. Auk reglulegrar kennslu eru tvær staðlotur og þátttaka í undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju (einn laugardagur).

    Kennslan byggist á einstaklings- og hópavinnu. Lista-, minja- og, eftir því sem við á, hönnunarsöfn verða heimsótt bæði á eigin vegum og með kennara.

    Námskeiðið krefst sjálfstæðra vinnubragða, virkrar þátttöku og samstarfs.

    Útikennsla og græn nytjahönnun (LVG006M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tekist verður á við kennslu- og hugmyndafræði "Útikennslu og grænnar nytjahönnunar". Nemendur læra um sjálfbæra þróun í hönnun, skógarvistfræði og skógarnytjar. Farið verður í vettvangsferðir þar sem nemendur kynnast þessari kennsluaðferð af eigin raun. Hugað verður að eflingu tengsla nemenda í verkgreinum við íslenska náttúru og hvernig hægt er að hanna fyrir umhverfið, án þess að valda því skaða. Þróaðir verða nytjahlutir úr íslenskum viðarafurðum og frumgerðir smíðaðar. Stuðst verður við tálguaðferðir sem notaðar hafa verið á norðurlöndunum um árhundruðin. Nemendur eru þjálfaðir að tálga úr blautum viði og að tileinka sér rétt handbrögð og umgengni við bitverkfæri. 

    Markmið námskeiðsins er að:

    1. Efla þekkingu og vitund nemenda á viðarfræði, skógarvistfræði og skógarnytjum.
    2. Nemendur nái leikni í notkun öruggra tálguaðferða sem hægt er að beita við útikennslu þar sem fengist er við hönnun nytjahluta úr íslenskum efniviði.
    3. Nemendur kynnist af eigin raun kennslufræði og hugmyndafræði um útikennslu og grænnar nytjahönnunar og séu færir um að skipuleggja og sjá um slíkt nám þar sem byggt er á útikennslu.
    4. Nemendur kynnist nýlegum rannsóknum á gildi list-, verk, og tæknigreina fyrir almennt skólastarfi. 

    Inntak / viðfangsefni: Fjallað verður um varðveislu og nýtingu íslenska nytjaskógarins og sjálfbæra þróun sem þátt í hönnun nytjahluta. Lögð verður áhersla á hönnun nytjahluta er byggja á hugsuninni um sjálfbæra þróun. Hugað er að réttri hagkvæmri efnisheimsins, líftíma hluta og áhrif þeirra á lífsvenjur okkar, heilsu og umhverfi. Þverfagleg og skapandi skólaverkefni skoðuð er tengjast grænni umhverfisvænni hönnun. Fengist verður við mótun afurða úr íslenskum efniviði, vistfræði, fjölbreytta listsköpun og grenndarfræðslu. Notast verður við gamlar verkaðferðir við tálgun. Fjallað verður um rannsóknir er tengjast gildi list- og verkgreina fyrir þroska skólabarna.

    Vinnulag: Vettvangsferðir, fyrirlestrar, hópverkefni, einstaklingsvinna og umræður.

    Fatahönnunar- og híbýlasaga – tíska, textíll, húsgögn og byggingar (LVG008M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð er áhersla á sögu hönnunar frá Egyptum til vorra daga með áherslu á fatnað og textíl. Einnig er skoðuð húsgagna- og byggingarsagan í samhengi við híbýlaskreytingar úr textíl, til dæmis húsgagnaáklæða- og gluggatjaldahönnun. Kynntar eru stefnur, stílar og straumar og víðtækt hlutverk fatnaðar og textíls innan listasögu, tísku og hönnunar í alþjóðlegu samhengi og samanborið við þróun fata- og textílsögu á Íslandi. Einnig eru skoðuð tengslin við atvinnulíf, menningu, söfn og menntun. Námið er fólgið í fyrirlestrum og bók- og verklegum rannsóknarverkefnum þar sem unnið er með fjölbreytta gagnaöflun og úrvinnslu verkefna á myndrænan hátt.

    Leiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi. (LVG205M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið með Leiksmiðjunni, sköpun í stafrænum heimi er að skapa vettvang fyrir gagnvirka leiklist og er námskeiðinu ætlað að vera lifandi leikhúsvettvangur og miðstöð tilrauna fyrir hvers kyns leiklist sem tengist netmiðlum allt frá lifandi uppákomum til tilbúinna mynd- og hljóðverka. 

    Áhersla er á stafrænar sviðslistir þ.m.t. leiksýningar og hljóðverk þar sem tölvutækni er notuð til að miðla verki eða hluta af verki.

    Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi leiklistarkennara bæði fræðilega og verklega. Kynntar verðar nýjustu rannsóknir og fræðigreinar og verkefni unnin í tengslum við það.

    Fyrirkomulag: Námskeiðið er kennt í nokkrum lotum.

    Leirmótun, hönnun og teikning (LVG003M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Athugið að nemendur á kjörsviðinu Sjónlistir: Myndmennt ganga fyrir þegar hámarksfjölda er náð!
    Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu á möguleikum leirs í myndmenntakennslu og leikni til að útfæra hugmyndir sínar á ólíkan sjónrænan máta með mismunandi tækni, aðferðum og efni. 

    • Á fyrra hluta námskeiðsins verður farið í ýmsa grunnvinnu í skissugerð og mótun leirs. Einnig kynnast nemendur allri grunnvinnu með glerunga og brennslur.
    • Á seinni hluta námskeiðsins vinna þátttakendur sjálfstæð verkefni með áherslu á skapandi vinnubrögð, persónulega nálgun ásamt tilrauna- og rannsóknarvinnu.

    Gert er ráð fyrir að nemendur séu virkir í að skrásetja og ljósmynda vinnuferil sinn sem er uppistaða ferilmöppu um námskeiðið sem lögð er fram til mats undir lok námskeiðsins. 

    Vinnulag: Fyrirlestrar, sýnikennsla, verkleg vinna, vettvangsferðir, kynningar, umræður, gagnaöflun og skrásetning vinnuferils.

    Sjálfbærni og skapandi endurnýting í textíl (LVG011M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið er að virkja umhverfisvæna hugsun í verki og tengja sjálfbærni í textíl við sjálfbæran og ábyrgan lífsstíl. Fylgt er eftir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og aðferðafræði og ferli hönnunar og nýsköpunar. Á námskeiðinu eru gefin upp verkfæri, textílaðferðir og lausnir, en helst ræður för hvaða efni eða fatnaður stendur til boða að endurskapa eða endurnýta hverju sinni. Lögð er áhersla á að nýta eldri eða ónotaðar tilbúnar flíkur, áklæði, gluggatjöld eða afgangsefni til að hanna nýja og tilraunakennda textílafurð. Samhliða því þjálfast nemendur í tilrauna- og rannsóknarvinnu með áherslu á frjóa og skapandi hugsun og nývirkni. Nemendur kynnast ýmsum textílaðferðum og tækniatriðum innan vélsaums auk þess að vinna með snið í tví- og þrívíðu formi eftir fjölbreyttum leiðum. Lögð er áhersla á skráningu hugmynda- og vinnuferlis í ferilmöppur samhliða verklegri vinnu með tengingu við kennslufræðilega þætti og gildi sjálfbærni og umhverfisverndar fyrir textílnám og kennslu sem og atvinnulíf í faggreininni.

    Textíllist og hönnun (LVG005F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð er áhersla á söguskoðun og rannsóknir á eldri og nýrri stefnum og straumum í textíllist og aðferðafræði hönnunar og nýsköpunar. Nemar vinna með formhönnun og skreytimöguleika í tví- og þrívíðri túlkun í eigin hugverkum. Lögð er áhersla á sniðútfærslur og saumtækni í tengslum við hönnun á fatnaði, nytjahlutum eða leikbúningum. Nemar ganga frá rannsóknargögnum, hugmyndavinnu og verklegum verkefnum í ferilmöppu. Unnin er skýrsla yfir afrakstur verkefna með tengingu við kennslufræðilega þætti og gerð kennsluverkefna og gildi textíllistar, hönnunar og nýsköpunar fyrir nám og atvinnulíf.

    Hugmynda- og hönnunarvinna (LVG005M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð er áhersla á hugmynda- og hönnunarverkefni í tengslum við fatnað og textíl sem fléttað er sögu- og samtímalegri þróun. Áhersla er lögð á munsturgerð, liti og form, tískuteikningu, útlit og snið og tilraunir með textílaðferðir og textílhráefni. Unnin er skipulögð rannsóknarvinna við vinnuferlið frá gagnaöflun til úrvinnslu hugmyndar og hönnunar með nýsköpun að leiðarljósi. Lögð er áhersla á frágang og framsetningu verkefna í ferlilmöppu og til sýninga.

    Trésmíði, trérennismíði og útskurður (LVG203M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemar hljóti þekkingu á og þjálfun í smíði tréhluta sem þeir útfæra sjálfir og geta skreytt með útskurði. Áhersla er á gerð nytjahluta úr tré, tréleikföng og trérennismíði. Nemar læra beitingu tréhandverkfæra (og útskurðarjárna). Farið verður í ýmsa trésmíðaþætti eins og yfirborðsmeðferð viðar, brýningar, lím og samlímingar, efnisfræði, festingar og samsetningar. 

    Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins en að öðru leyti fer kennslan fram í fyrirlestrum og í gegnum leiðsögn við verkefnavinnu.

    Námsmat: Einkunn fyrir smíðisgripi og verklýsingar. 

    Markmið námskeiðsins eru að:

    1. Þjálfa nemendur í hönnun,
    2. Efla handverksþekkingu nemenda og leikni,
    3. Nemendur þjálfist í almennri trésmíði, trérennismíði og útskurði.

    Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins; skissuvinna, handverkfæranotkun, innlagnir og vettvangsferðir.

    Tónlistin og heilinn (LVG102M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu er fjallað um áhrif tónlistar á manneskjuna frá ýmsum hliðum. Skoðaðar verða rannsóknir á áhrifum tónlistar á líðan og tilfinningar. Einnig verða lesnar kenningar um skynjun tónlistar og tengsl tónlistar við nám og vitsmunaþroska. Lesefni verður meðal annars á sviði heilarannsókna og taugasálfræði.

    Nemendur taka virkan þátt í efnistökum fyrir fyrirlestur hverrar viku með því að leggja af mörkum eigin skoðanir á lesefninu. Nemendur taka afstöðu til þess sem þeir sjálfir telja áhugaverðast í lesefninu en kennarinn bætir við lesefni til dýpkunar í samræmi við áhugasvið nemenda.

    Gildi leiklistar í ljósi velferðar og jafnréttis (LVG204F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu fá nemendur hvorutveggja, verklega og bóklega kennslu í leiklist. Kenningar og skilgreiningar eru reifaðar samtímis með verklegum skapandi verkefnum. Nemendur kynnast hugmyndasögu leiklistar  í stórum dráttum og fjallað verður um gildi leiklistar með skírskotun í kenningar og rannsóknir.

    Á námskeiðinu verður unnið út frá jafnrétti og velferð barna með tilliti til farsældarlaganna. Nemendur tileinka sér þekkingu og skilning á jafnrétti og velferð barna og  leita leiða til úrbóta í gegnum leiklist  sem hægt er að nota í kennslu nemenda með ólíka færni. Unnið verður í heildstæðum leikferlum og þau tengd við fræði og rannsóknir. 

    Uppistaðan í námskeiðinu er þjálfun nemenda í að vinna sjálfstætt, faglega og á skapandi hátt með leiklist. 

    Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (MAL102F, SFG106F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.

    Félagsfræði og heimspeki menntunar (MAL102F, SFG106F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.

     Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Útikennsla og græn nytjahönnun (LVG006M, LVG203M)

    Trésmíði, trérennismíði og útskurður (LVG006M, LVG203M)

    Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina (LVG101M, LVG004M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.

    Kennslan byggist annars vegar á sameiginlegum kjarna þar sem kenndar eru aðferðir og kenningar sem tengjast hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun. Hins vegar vinna nemendur að eigin rannsóknarverkefnum. Verkefnin byggja á gagnasöfnun, tilraunavinnu og þróun í gegnum eigin listsköpun. Mikilvægt er að nemendur geti rökstutt niðurstöður sínar og framsett afurðir á faglegan hátt.

    Nemendur vinna hluta rannsóknarverkefnis síns í tengslum við Loftskeytastöðina (menningarhús tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur), með áherslu á að vinna út frá hugðarefnum hennar. Verkefnið skal þróað í samræmi við viðurkenndar rannsóknaraðferðir innan list- og verkgreina.

    Námskeiðinu lýkur með sýningu þar sem nemendur fá þjálfun og reynslu af sýningarferlinu.

    Vinnulag: Fyrirlestrar, gagnasöfnun, skrifleg og myndræn skráning, greinargerð, verkleg vinna og gagnrýnin umræða.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Gamalt handverk í skólastarfi (LVG101M, LVG004M)

    Leiklistarkennarinn (LVG209F, LVG211F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni:
    Í námskeiðinu er lögð áhersla á leiklistaræfingar sem þjálfa hæfni nemenda til að þróa og fullvinna eigin hugmyndir á sviði – frá samlestri til sýningar. Nemendur öðlast þekkingu og skilning á grundvallarhugmyndum, aðferðum og vinnubrögðum sem leiklistarkennarar beita í kennslu sinni.

    Fræðilegur grunnur:
    Fjallað verður um hugmyndafræði og rannsóknir á sviði leiklistarkennslu með hliðsjón af helstu fræðimönnum á sviðinu, þar á meðal Mike Fleming, John O’Toole, Helen Nicholson, Andy Kempe og David Hornbrook. Sérstök áhersla er lögð á að greina gildi leiklistar í ljósi kenninga og rannsókna.

    Verkleg og listræn nálgun:
    Kynnt verða vinnubrögð við uppsetningu leiksýninga, þar sem leikhúsið er skoðað sem kennslufræðilegt afl. Áhersla er lögð á líkams- og raddbeitingu, sviðshreyfingar og leikræna tjáningu. Nemendur öðlast færni á fjölbreyttum sviðum sviðsetningar, þar á meðal í handritsgerð og leikgerð, hönnun sviðsmuna, búninga og leikmynda, auk mótunar hljóðmyndar.

    Vinnulag:
    Námið byggir á verklegum æfingum, spunaverkefnum og umræðum. Kennslan felur í sér fræðileg innlegg kennara, lestur fræðitexta frá helstu kennismiðum leiklistarkennslu, sem og fræðileg og skapandi innlegg frá nemendum sjálfum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Leiklist fyrir alla - kennsluaðferðir leiklistar í skólastarfi (LVG209F, LVG211F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér bæði fræðilegan skilning og hagnýta færni í notkun leiklistar í kennslu. Markmið námskeiðsins er að þjálfa nemendur í að vinna sjálfstætt, faglega og skapandi með leiklist sem kennsluaðferð, og að efla hæfni þeirra til að nýta leiklist sem aðferð til að stuðla að virkni, gagnrýnni hugsun og félagslegum þroska nemenda.

    Nemendur kynnast fjölbreyttum kennsluháttum og nálgunum innan leiklistarkennslu og læra að beita leiklistaraðferðum á markvissan hátt við úrvinnslu viðfangsefna. Þeir fá jafnframt innsýn í hvernig leiklist má samþætta við aðrar námsgreinar grunnskólans og hvernig hún getur stuðlað að dýpri skilningi, auknu sjálfstrausti og bættum samskiptum meðal nemenda.

    Fjallað er um hugmyndafræðilegar og kennslufræðilegar forsendur skapandi kennsluhátta og samþættingar listgreina, auk skipulagningar kennslu í fjölbreyttum og blönduðum nemendahópum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Leiklistarkennarinn framkvæmd og fræði (LVG210F, LVG212F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Markmið:
    Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni leiklist sem fag og kennslufræðilega þætti greinarinnar.

    Inntak / vinnulag:

    Nemendur styrkja færni sína í að skipuleggja og kenna leiklist sem fag í grunnskóla. Lesefni námskeiðsins miðar að því að dýpka skilning á markmiðum og leiðum í kennslu leiklistar innan grunnskóla. Nemendur draga saman fyrri þekkingu sína og byggja á henni til þess að ná aukinni færni í helstu þáttum leiklistarkennslu. Lögð er áhersla á þekkingu og færni í fjölbreyttum þáttum sviðsetningar, handrits- og leikgerðar, sviðsmuna, búningahönnunar, leikmyndagerðar og hljóðmyndar.

    Verklegar æfingar miða að því að auka færni nemenda til að takast á við kennslu leiklistar á vettvangi.

    Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir sem miðast við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

    Vinnulag: Fyrirlestrar um kennslufræðilega þætti og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám.

    Nemendur halda dagbók fyrir hugmyndavinnu sína sem tengist verkefna- og vettvangsnámi þeirra.  Nemendur kynna verkleg verkefni og afrakstur af vettvangsnámi undir lok námskeiðsins.

    Vettvangsnámið í þessu námskeiði er þannig skipulagt að nemi fær úthlutað grunnskóla þar sem vettvangsnámið mun fara fram. Skólar eru valdir fyrir nema með hliðsjón af viðfangsefni námskeiðsins auk þess sem horft er til námsstigs og námsárs nema.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Leiklist fyrir alla, framkvæmd og fræði, kennsluaðferðir leiklistar í skólastarfi (LVG210F, LVG212F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér bæði fræðilegan skilning og hagnýta færni í notkun leiklistar í kennslu. Markmið námskeiðsins er að þjálfa nemendur í að vinna sjálfstætt, faglega og skapandi með leiklist sem kennsluaðferð, og að efla hæfni þeirra til að nýta leiklist sem aðferð til að stuðla að virkni, gagnrýnni hugsun og félagslegum þroska nemenda.

    Fjallað er um hugmyndafræðilegar og kennslufræðilegar forsendur skapandi kennsluhátta og samþættingar listgreina, auk skipulagningar kennslu í fjölbreyttum og blönduðum nemendahópum. Megináherslan er á að nemendur þrói færni í að beita leiklist sem rannsóknar- og kennsluaðferð og í að ígrunda og meta eigin kennsluhætti á gagnrýninn hátt í ljósi fræðilegra kenninga og rannsókna á sviði leiklistarkennslu

    Leiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi. (LVG205M, LVG108M)

    Leiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistar (LVG205M, LVG108M)

    Gildi leiklistar í ljósi velferðar og jafnréttis (LVG204F, LVG207M)

    Barna- og unglingaleikrit með börnum og fyrir börn (LVG204F, LVG207M)

    Kennsla í margbreytilegum nemendahópi (KME115F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að starfandi kennarar og kennaranemar eflist í að nýta eigin auðlindir í vinnu með margbreytilegum nemendahópum.  Byggt er á kennslufræði menntunar fyrir alla (inclusive pedagogy) og kennslufræði nýsköpunarmenntar þar sem lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu og að nýta auðlindir nemenda.

    Viðfangsefni
    Námskeiðið byggir á hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar. Fjallað verður um mismunandi vinnubrögð og kynntir kennsluhættir og kennsluaðferðir sem hafa reynst vel í fjölbreyttum nemendahópum. Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir nýsköpunarmenntar, samvirks náms, altæka hönnun náms, fjölmenningarlega kennslu og listrænar og skapandi aðferðir. Fjallað verður um samstarf við foreldra og aðrar starfsstéttir er starfa við eða tengjast skólastarfi. Þátttakendur skilgreina og þróa eigin starfskenningu.

    Vinnulag
    Námskeiðið er skipulagt sem blandað nám, bæði fjarnám og staðnám. Kennslan fer fram bæði í staðlotum og staðtímum milli staðlota og á netinu. Námskeiðinu er skipt upp í fjórar námslotur (tímabil) sem eru skipulagðar út frá ákveðnum þemum. Þau tengjast öll kennslu í margbreytilegum nemendahópi og eru: hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunarmenntar, fagmennska og forysta í kennslu margbreytilegra nemendahópa, kennsluhættir í margbreytilegum nemendahópum og samstarf í skóla fyrir alla. Hver námslota stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Kennsla og nám verður í formi fyrirlestra, umræðna í tímum og á Canvas, stuttra verkefna í tímum og á Canvas og verkefna með formlegum skilum. Námskeiðið byggir á sjálfstæðri vinnu, ábyrgð og þátttöku nemenda.

    Gert er ráð fyrir 80% þátttöku í virkni á námskeiðinu (þátttaka og skil verkefna). 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hugmynda- og hönnunarvinna (LVG005M, LVG008M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð er áhersla á hugmynda- og hönnunarverkefni í tengslum við fatnað og textíl sem fléttað er sögu- og samtímalegri þróun. Áhersla er lögð á munsturgerð, liti og form, tískuteikningu, útlit og snið og tilraunir með textílaðferðir og textílhráefni. Unnin er skipulögð rannsóknarvinna við vinnuferlið frá gagnaöflun til úrvinnslu hugmyndar og hönnunar með nýsköpun að leiðarljósi. Lögð er áhersla á frágang og framsetningu verkefna í ferlilmöppu og til sýninga.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Fatahönnunar- og híbýlasaga – tíska, textíll, húsgögn og byggingar (LVG005M, LVG008M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð er áhersla á sögu hönnunar frá Egyptum til vorra daga með áherslu á fatnað og textíl. Einnig er skoðuð húsgagna- og byggingarsagan í samhengi við híbýlaskreytingar úr textíl, til dæmis húsgagnaáklæða- og gluggatjaldahönnun. Kynntar eru stefnur, stílar og straumar og víðtækt hlutverk fatnaðar og textíls innan listasögu, tísku og hönnunar í alþjóðlegu samhengi og samanborið við þróun fata- og textílsögu á Íslandi. Einnig eru skoðuð tengslin við atvinnulíf, menningu, söfn og menntun. Námið er fólgið í fyrirlestrum og bók- og verklegum rannsóknarverkefnum þar sem unnið er með fjölbreytta gagnaöflun og úrvinnslu verkefna á myndrænan hátt.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Gamalt handverk í skólastarfi (LVG004M, LVG101M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:
    a) Að kenna gamlar handverksaðferðir
    b) Að nemendur smíði þjóðlega hluti er byggja á gömlum fyrirmyndum
    c) Að þjálfa nemendur í að nýta sér minjasöfn sem uppsprettu verkefna. 

    Lýsing: Námskeiðið er hugsað fyrir nemendur sem vilja læra gamlar handverksaðferðir. Nemendur kynnast verkaðferðum eins og útskurði, trafaöskjugerð, horna- og beinavinnu og trérennismíði. Lögð er áhersla á gerð verkefna sem nemendur geta nýtt bæði í skólastarfi og í eigin lífi. Lögð er áhersla á íslenskan efnivið. Námskeiðið hentar öllum þeim er vilja leggja áherslu á þjóðlegt, bæði innan list- og verkgreina, í almennu skólastarfi og í leikskóla. Handverk er stór hluti af dýrmætum menningararfi okkar sem mikilvægt er að standa vörð um

    A.  Inntak / viðfangsefni
    a) Nemendur skoða gamalt handverk á söfnum, heimsækja íslenskt handverksfólk og skoða sýningar
    b) Nemendur byggja verkefni sín á m.a. gömlum þjóðlegum fyrirmyndum t.d. af söfnum sem þeir útfæra að eigin vild. 
    c) Nemendur læra gamlar verkaðferðir og nota viðeigandi efnivið til að smíða úr með áherslu á notkun handverkfæra
    d.) Nemendur læra um sögu og hugmyndafræði uppeldismiðaðs handverks 

    B. Hönnun og gerð hluta
    a) Nemendur hanna og smíða einfalda nytja hluti svo sem trafaöskju, bakka, prjónastokka, spil, skálar, box, leikföng og einnig skartgripi,
    b) Lögð er áhersla á að þátttakendur noti fjölbreytt smíðaefni og náttúruleg yfirborðsefni.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina (LVG004M, LVG101M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.

    Kennslan byggist annars vegar á sameiginlegum kjarna þar sem kenndar eru aðferðir og kenningar sem tengjast hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun. Hins vegar vinna nemendur að eigin rannsóknarverkefnum. Verkefnin byggja á gagnasöfnun, tilraunavinnu og þróun í gegnum eigin listsköpun. Mikilvægt er að nemendur geti rökstutt niðurstöður sínar og framsett afurðir á faglegan hátt.

    Nemendur vinna hluta rannsóknarverkefnis síns í tengslum við Loftskeytastöðina (menningarhús tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur), með áherslu á að vinna út frá hugðarefnum hennar. Verkefnið skal þróað í samræmi við viðurkenndar rannsóknaraðferðir innan list- og verkgreina.

    Námskeiðinu lýkur með sýningu þar sem nemendur fá þjálfun og reynslu af sýningarferlinu.

    Vinnulag: Fyrirlestrar, gagnasöfnun, skrifleg og myndræn skráning, greinargerð, verkleg vinna og gagnrýnin umræða.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Sjálfbærni og skapandi endurnýting í textíl (LVG011M, LVG005F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið er að virkja umhverfisvæna hugsun í verki og tengja sjálfbærni í textíl við sjálfbæran og ábyrgan lífsstíl. Fylgt er eftir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og aðferðafræði og ferli hönnunar og nýsköpunar. Á námskeiðinu eru gefin upp verkfæri, textílaðferðir og lausnir, en helst ræður för hvaða efni eða fatnaður stendur til boða að endurskapa eða endurnýta hverju sinni. Lögð er áhersla á að nýta eldri eða ónotaðar tilbúnar flíkur, áklæði, gluggatjöld eða afgangsefni til að hanna nýja og tilraunakennda textílafurð. Samhliða því þjálfast nemendur í tilrauna- og rannsóknarvinnu með áherslu á frjóa og skapandi hugsun og nývirkni. Nemendur kynnast ýmsum textílaðferðum og tækniatriðum innan vélsaums auk þess að vinna með snið í tví- og þrívíðu formi eftir fjölbreyttum leiðum. Lögð er áhersla á skráningu hugmynda- og vinnuferlis í ferilmöppur samhliða verklegri vinnu með tengingu við kennslufræðilega þætti og gildi sjálfbærni og umhverfisverndar fyrir textílnám og kennslu sem og atvinnulíf í faggreininni.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Textíllist og hönnun (LVG011M, LVG005F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð er áhersla á söguskoðun og rannsóknir á eldri og nýrri stefnum og straumum í textíllist og aðferðafræði hönnunar og nýsköpunar. Nemar vinna með formhönnun og skreytimöguleika í tví- og þrívíðri túlkun í eigin hugverkum. Lögð er áhersla á sniðútfærslur og saumtækni í tengslum við hönnun á fatnaði, nytjahlutum eða leikbúningum. Nemar ganga frá rannsóknargögnum, hugmyndavinnu og verklegum verkefnum í ferilmöppu. Unnin er skýrsla yfir afrakstur verkefna með tengingu við kennslufræðilega þætti og gerð kennsluverkefna og gildi textíllistar, hönnunar og nýsköpunar fyrir nám og atvinnulíf.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu (LVG103M, LVG104M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þessu námskeiði læra nemendur að beita áhrifaríkum aðferðum í undirleik á hljómborðshljóðfæri sem henta vel í tónmenntakennslu. Farið verður í hagnýta hljómfræði sem leggur grunninn að færni í að semja og spinna einfaldan undirleik fyrir hljóðfæraleik og söng. Auk hljómborðsleiks  verður farið yfir grundvallaratriði í leik á gítar og ukulele með sömu hljómfræðilegu nálgun. Nemendur öðlast færni í að hljómgreina algenga tónlist og læra leiðir til að útsetja á hljómborðshljóðfæri í samræmi við eigin hljóðfærafærni.  Í lok námskeiðs eiga nemendur að hafa færni til þess að leika undir algeng sönglög í minnst sex tóntegundum.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Tónlist í sögulegu ljósi (LVG103M, LVG104M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins er tónlist í sögulegu ljósi. Ekki verður einungis farið yfir hefðbundna Vestræna tónlistarsögu heldur leitast við að skoða tónlist frá ýmsum tímum á ólíkum heimssvæðum. Nemendur verða hvattir til að skoða hvað hefur áhrif á tónlistarstefnur og stíla svo sem samfélagsþróun og tækniframfarir. Í lok námskeiðs eiga nemendur að vera færir um að skoða fjölbreyttar gerðir tónlistar með tónlistarlegum og félagssögulegum gleraugum og geta miðlað þekkingu á ólíkum tónlistarstílum til barna og unglinga.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Trésmíði, trérennismíði og útskurður (LVG203M, LVG006M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemar hljóti þekkingu á og þjálfun í smíði tréhluta sem þeir útfæra sjálfir og geta skreytt með útskurði. Áhersla er á gerð nytjahluta úr tré, tréleikföng og trérennismíði. Nemar læra beitingu tréhandverkfæra (og útskurðarjárna). Farið verður í ýmsa trésmíðaþætti eins og yfirborðsmeðferð viðar, brýningar, lím og samlímingar, efnisfræði, festingar og samsetningar. 

    Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins en að öðru leyti fer kennslan fram í fyrirlestrum og í gegnum leiðsögn við verkefnavinnu.

    Námsmat: Einkunn fyrir smíðisgripi og verklýsingar. 

    Markmið námskeiðsins eru að:

    1. Þjálfa nemendur í hönnun,
    2. Efla handverksþekkingu nemenda og leikni,
    3. Nemendur þjálfist í almennri trésmíði, trérennismíði og útskurði.

    Vinnulag: Verkleg þjálfun er undirstaða námsins; skissuvinna, handverkfæranotkun, innlagnir og vettvangsferðir.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Útikennsla og græn nytjahönnun (LVG203M, LVG006M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tekist verður á við kennslu- og hugmyndafræði "Útikennslu og grænnar nytjahönnunar". Nemendur læra um sjálfbæra þróun í hönnun, skógarvistfræði og skógarnytjar. Farið verður í vettvangsferðir þar sem nemendur kynnast þessari kennsluaðferð af eigin raun. Hugað verður að eflingu tengsla nemenda í verkgreinum við íslenska náttúru og hvernig hægt er að hanna fyrir umhverfið, án þess að valda því skaða. Þróaðir verða nytjahlutir úr íslenskum viðarafurðum og frumgerðir smíðaðar. Stuðst verður við tálguaðferðir sem notaðar hafa verið á norðurlöndunum um árhundruðin. Nemendur eru þjálfaðir að tálga úr blautum viði og að tileinka sér rétt handbrögð og umgengni við bitverkfæri. 

    Markmið námskeiðsins er að:

    1. Efla þekkingu og vitund nemenda á viðarfræði, skógarvistfræði og skógarnytjum.
    2. Nemendur nái leikni í notkun öruggra tálguaðferða sem hægt er að beita við útikennslu þar sem fengist er við hönnun nytjahluta úr íslenskum efniviði.
    3. Nemendur kynnist af eigin raun kennslufræði og hugmyndafræði um útikennslu og grænnar nytjahönnunar og séu færir um að skipuleggja og sjá um slíkt nám þar sem byggt er á útikennslu.
    4. Nemendur kynnist nýlegum rannsóknum á gildi list-, verk, og tæknigreina fyrir almennt skólastarfi. 

    Inntak / viðfangsefni: Fjallað verður um varðveislu og nýtingu íslenska nytjaskógarins og sjálfbæra þróun sem þátt í hönnun nytjahluta. Lögð verður áhersla á hönnun nytjahluta er byggja á hugsuninni um sjálfbæra þróun. Hugað er að réttri hagkvæmri efnisheimsins, líftíma hluta og áhrif þeirra á lífsvenjur okkar, heilsu og umhverfi. Þverfagleg og skapandi skólaverkefni skoðuð er tengjast grænni umhverfisvænni hönnun. Fengist verður við mótun afurða úr íslenskum efniviði, vistfræði, fjölbreytta listsköpun og grenndarfræðslu. Notast verður við gamlar verkaðferðir við tálgun. Fjallað verður um rannsóknir er tengjast gildi list- og verkgreina fyrir þroska skólabarna.

    Vinnulag: Vettvangsferðir, fyrirlestrar, hópverkefni, einstaklingsvinna og umræður.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Söngur og kórstjórn II (LVG210M, LVG009M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni

    Söngraddir barna og unglinga

    Viðeigandi raddþjálfun fyrir barna- og unglingakóra.

    Unnið er með færni hvers og eins nemanda í kórstjórnartækni sem miðast við þarfir kóra með ungar raddir sem eru í mótun.

    Nemendur byggja ofan á grunn í kórstjórnartækni og fá tækifæri til að styrkja eigin færni í hópi jafningja með faglegri tilsögn.

    Vinnulag

    Blanda af verklegum smiðjum, heimaæfingum, hittingi á vef og lesefni sem styður við þekkingaröflun á sviði söngradda og kóræfingatækni

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hópkennsla í tónlist -Kenningar og hagnýtar aðferðir (LVG210M, LVG009M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins eru námskenningar á sviði tónlistarmenntunar og hagnýtar útfærslur á þeim. Lesin eru helstu fræði um stefnur og strauma í tónlistarmenntunarfræðum. Sérstaklega eru skoðaðar gagnrýnar kenningar á viðtekna kennsluhætti í tónlistarnámi barna, ungmenna og fullorðinna. Nemendum gefst færi á að fara dýpra í einstakar kenningar og kennsluaðferðir sem hafa notið vinsælda undanfarna áratugi víða um heim.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Leiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi. (LVG205M, LVG108M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið með Leiksmiðjunni, sköpun í stafrænum heimi er að skapa vettvang fyrir gagnvirka leiklist og er námskeiðinu ætlað að vera lifandi leikhúsvettvangur og miðstöð tilrauna fyrir hvers kyns leiklist sem tengist netmiðlum allt frá lifandi uppákomum til tilbúinna mynd- og hljóðverka. 

    Áhersla er á stafrænar sviðslistir þ.m.t. leiksýningar og hljóðverk þar sem tölvutækni er notuð til að miðla verki eða hluta af verki.

    Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi leiklistarkennara bæði fræðilega og verklega. Kynntar verðar nýjustu rannsóknir og fræðigreinar og verkefni unnin í tengslum við það.

    Fyrirkomulag: Námskeiðið er kennt í nokkrum lotum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Leiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistar (LVG205M, LVG108M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni: Nemendur fá kennslu í samsettum (devised) aðferðum leiklistar ásamt því að vinna með aðferðir leikhúss líkamans og Ímyndarleikhús. Nemendur kynna sér listamenn og listviðburði í íslensku samfélagi og tengja við hugmyndafræði og kenningar um listupplifun. Mögulegir snertifletir leiklistarinnar verða kannaðir út frá margvíslegum sjónarhornum með mismunandi miðlunarleiðir að leiðarljósi.

    Vinnulag: Vinna í smiðjum þar sem nemendur leita fjölbreyttra leiða til að vinna með miðlunarleiðir leiklistar þ.e. leikrit (hefðbundin, óhefðbundin), útvarpsleikrit eða hljóðmyndir, miðlun í gegnum kvikmyndum, eða uppsetningu í gegnum samfélagsmiðla í tengslum við nám barna og unglinga. Þá verða listviðburðir sóttir og rætt við listamenn um starfsgrein þeirra.

    Unnin verða verkefni sem reyna á sköpun og tjáningu, tengjast þróun eigin starfskenningar, námskrárgerð í leiklist ásamt ígrundun um menningar- og samfélagslega vídd leiklistarinnar.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun (SNU007F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um:

    • áhrif upplýsingatækni á menntun og skólastarf
    • námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi
    • hugtök, kenningar og rannsóknir sem tengjast notkun upplýsingatækni í námi og kennslu
    • innleiðingu tölva og upplýsingatækni í skólastarf
    • kennsluhætti, símenntun kennara, hugbúnað og stafrænt námsefni
    • stafræna hæfni nemenda og kennara og læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni
    • hlutdeild upplýsingatækni í lífi fólks innan og utan skóla

    Vinnulag:
    Lestur og umræða um námskrá og stefnu, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þeir miðla hugmyndum sínum og reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leggja sitt af mörkum við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir (MVS009F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið
    Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.   

    Inntak / viðfangsefni

    • Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
    • Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
    • Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
    • Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
    • Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
    Kennslutungumál: Íslenska
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Fjarnám og kennsla (SNU008F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu verða hugtökin fjarnám- og fjarkennsla og tengd hugtök s.s. blandað nám, dreifnám og netnám skoðuð og skilgreind. Skoðaðar verða hugmyndir og kenningar sem tengjast sviðinu og hvernig þær hafa þróast frá áherslu á sjálfstætt nám (independent study) á tímum bréfaskóla til áherslu á samskipti og uppbyggingu sameiginlegrar þekkingar á tímum netvæðingar og alþjóðahyggju. Fjallað verður um erlendar og innlendar rannsóknir á fjarnámi og -kennslu. Athygli er beint að stöðu fjarnáms á mismunandi skólastigum, fjarnemum og þörfum þeirra, kennsluháttum með nýtingu mismunandi miðla og hönnun fjarnámsáfanga m.t.t. alþjóðlegra viðmiða og gæðastaðla.

    Vinnulag
    Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitarnám) og annað stærra einstaklingsverkefni.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Fjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað nám (KME205F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið
    Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þátttakendur efli þekkingu sína á fjölbreyttum kennsluháttum og hæfni sína í að fjalla um þá með fræðilega viðurkenndum hætti.

    Viðfangsefni
    Á námskeiðinu verður fjallað um kennsluaðferðahugtakið og dæmi kynnt um fræðilega flokkun kennsluaðferða. Rannsóknum á kennsluaðferðum verða gerð sérstök skil, einkum innlendum rannsóknum. Þá verður fjallað um kennsluhætti og kennsluaðferðir sem tengjast hugmyndum um nemendamiðað og lýðræðislegt skólastarf (m.a. opinn skóla, sveigjanlega kennsluhætti, samvinnunám, samkennslu, lausnaleitarnám, heildstæð viðfangsefni, þemanám, samkomulagsnám og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni). Efni námskeiðsins verður tengt þróun fjölbreyttra kennsluhátta hér á landi, og erlendis, og áhersla lögð á að þátttakendur ígrundi eigin reynslu af kennslu. Þátttakendum gefst tækifæri til að kynna sér einstaka kennsluhætti og kennsluaðferðir til nokkurrar hlítar og fjalla um það með fræðilegum hætti.

    Vinnulag
    Byggt er á fyrirlestrum, kynningum, málstofum, umræðum, sjálfstæðri vinnu, hópverkefnum, lestri og upplýsingaleit. Lögð er áhersla á að þátttakendur ígrundi eigið starf og greini, túlki og meti reynslu sína og tengi hana við fræði og rannsóknir. Þáttakendur ræða lesefni námskeiðsins og tengja það kennslustundum og eigin reynslu með aðstoð lestrardagbókar og annarra verkefna. Auk þess vinna nemendur lokaverkefni sem er hópverkefni.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (MAL102F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Barna- og unglingaleikrit með börnum og fyrir börn (LVG207M, LVG204F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu er áhersla lögð á að kynna og þjálfa nemendur í að vinna sjálfstætt og faglega að sviðsetningu á leikriti/söngleik í skólum ásamt kennslu í útvarpsleikritagerð. Unnið verður með leikrit sem tekur á málefnum barna- og unglinga  með börnum annars vegar og fyrir börn hins vegar. Nemendur kynnast  fjölbreyttum aðferðum við uppsetningu á leikverki hvort heldur sem er fyrir útvarp eða svið. Einnig  kynnast nemendur fjölbreyttum kennsluháttum og leiðum í leiklistarkennslu. Uppistaðan í námskeiðinu er þjálfun nemenda í að vinna sjálfstætt, faglega og á skapandi hátt með uppsetningu leikverks; gerð handrita umræður, úrvinnsla og kynningar. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Gildi leiklistar í ljósi velferðar og jafnréttis (LVG207M, LVG204F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu fá nemendur hvorutveggja, verklega og bóklega kennslu í leiklist. Kenningar og skilgreiningar eru reifaðar samtímis með verklegum skapandi verkefnum. Nemendur kynnast hugmyndasögu leiklistar  í stórum dráttum og fjallað verður um gildi leiklistar með skírskotun í kenningar og rannsóknir.

    Á námskeiðinu verður unnið út frá jafnrétti og velferð barna með tilliti til farsældarlaganna. Nemendur tileinka sér þekkingu og skilning á jafnrétti og velferð barna og  leita leiða til úrbóta í gegnum leiklist  sem hægt er að nota í kennslu nemenda með ólíka færni. Unnið verður í heildstæðum leikferlum og þau tengd við fræði og rannsóknir. 

    Uppistaðan í námskeiðinu er þjálfun nemenda í að vinna sjálfstætt, faglega og á skapandi hátt með leiklist. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina (LVG101M, LVG102F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.

    Kennslan byggist annars vegar á sameiginlegum kjarna þar sem kenndar eru aðferðir og kenningar sem tengjast hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun. Hins vegar vinna nemendur að eigin rannsóknarverkefnum. Verkefnin byggja á gagnasöfnun, tilraunavinnu og þróun í gegnum eigin listsköpun. Mikilvægt er að nemendur geti rökstutt niðurstöður sínar og framsett afurðir á faglegan hátt.

    Nemendur vinna hluta rannsóknarverkefnis síns í tengslum við Loftskeytastöðina (menningarhús tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur), með áherslu á að vinna út frá hugðarefnum hennar. Verkefnið skal þróað í samræmi við viðurkenndar rannsóknaraðferðir innan list- og verkgreina.

    Námskeiðinu lýkur með sýningu þar sem nemendur fá þjálfun og reynslu af sýningarferlinu.

    Vinnulag: Fyrirlestrar, gagnasöfnun, skrifleg og myndræn skráning, greinargerð, verkleg vinna og gagnrýnin umræða.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Lista- og hönnunarsaga, söfn og menntun (LVG101M, LVG102F)

    Kennslufræði Sjónlista (LVG206F, LVG208F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Markmið
    Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni sjónlistir. Kennsluverkefni miða að nemendum í efri- eða neðri bekkjum grunnskólans.

    Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið sjónlistakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í efra stigi grunnskólans. Lögð er áhersla á að nemendur þekki til helstu kenningasmiða, rannsókna á sviðinu og innihalds og markmiða í aðalnámskrá grunnskóla.  

    Nemendur vinna með eigin hugmyndir að kennsluverkefnum í samráði við kennara og leiðsagnarkennara á vettvangi auk þess sem þeir taka mið af hæfniviðmiðum sjónlista í aðalnámskrá grunnskóla sem og skólanámskrá viðtökuskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir sem miða við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

    Vettvangsnámið í þessu námskeiði er þannig skipulagt að nemi fær úthlutað grunnskóla þar sem vettvangsnámið mun fara fram. Skólar eru valdir fyrir nema með hliðsjón af viðfangsefni námskeiðsins auk þess sem horft er til námsstigs og námsárs nema.

    Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Umræður. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Kennslufræði Myndmenntar (LVG206F, LVG208F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni myndmennt og kennslufræðilega þætti greinarinnar. 

    Inntak / viðfangsefni:

    Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið myndmenntarkennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Lögð er áhersla á að nemendur þekki til helstu kenningasmiða, rannsókna á sviðinu og innihalds og markmiða í aðalnámskrá grunnskóla.  Nemendur vinna með eigin hugmyndir að kennsluverkefnum í samráði við kennara og leiðsagnarkennara á vettvangi auk þess sem þeir taka mið af hæfniviðmiðum myndmenntar í aðalnámskrá grunnskóla sem og skólanámskrá viðtökuskóla. Kennsluverkefnin eru aldursmiðuð og með tengingu við sköpun, sjálfbærni og aðra grunnþætti menntunar. 

    Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir sem miða við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

    Vinnulag:

    Fyrirlestrar um kennslufræðilega þætti og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám.

    Nemendur vinna hugmynda- og dagbók sem tengist verkefna- og vettvangsnámi þeirra.  Nemendur kynna verkleg verkefni og afrakstur af vettvangsnámi undir lok námskeiðsins. 

    Sjónlistir (LVG205F, LVG207F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á tvívíðri myndgerð og möguleikum hennar í skólastarfi. Nemendur þjálfast í grunnþáttum aðferða og hugmyndavinnu í tengslum við sjónlistir. Meginviðfangsefni námskeiðsins eru verkleg vinna, hugmyndavinna og gerð ferilmöppu.

    Lögð er megin áhersla á teikningu, lita- og formfræði, grafíkþrykk og mynsturgerð. Fjölbreytt efni eru notuð til útfærslu verkefna og lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði nemenda.

    Ferilmappa er lögð fram til mats en jafnframt skila nemendur inn hugleiðingum og umræðum í tengslum við safnaheimsóknir.

    Námskeiðið krefst sjálfstæðra vinnubragða, Heimavinna er talsverð þar sem gert er ráð fyrir að nemendur vinni verkefnin sín á sjálfstæðan og skapandi hátt.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Listir, náttúra og samfélag (LVG205F, LVG207F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið

    Að nemandinn:

    • skynji tengsl menningar og listar við náttúru og samfélag.
    • tileinki sér hugmyndafræði námskrár sem byggir á myndlist, náttúru og samfélagi.
    • hafi vald á fræðilegri og verklegri þekkingu til að vinna með aðferðum myndlistarmanna.
    • uppgötvi hvernig listamenn nýta náttúru og náttúruleg efni í listsköpun.
    • kynnist og tileinki sér aðferðafræði myndlistar og myndmáls sem tjáskiptaforms í samtímanum.
    • beiti gagnrýnni og skapandi hugsun í verkefnum tengdum náttúruskoðun og samfélagsrýni í starfi með börnum.
    • skilji mikilvægi samþættingar listar, samfélagsrýni og annarra faggreina skólans.
    • geti unnið sjálfstætt og skipulega að viðfangsefnum.

    Inntak / viðfangsefni

    Fjallað verður um sögulegt og félagslegt samhengi náttúruskoðunar og samfélagsrýni með áherslu á tengsl nútímalistar og uppeldisfræði. Unnið verður með hugmyndir samtímalistamanna og listrannsóknir sem tengjast náttúru og samfélagi.

    Nemendur rannsaka starfshætti myndlistarmanna, fræðileg markmið þeirra og tækni í listsköpun, og þróa eigin myndverk í fjölbreyttum efnum með áherslu á skýrt myndmál. Sérstök áhersla verður á endurnýtingu efna út frá umhverfisverndarsjónarmiðum og sjálfbærni.

    Nemendur fá þjálfun í að fjalla um og rökstyðja eigin verk í ljósi markmiða námskeiðsins. Unnið verður út frá ólíkum hefðum og reynslu nemenda með áherslu á tengsl náttúru og samfélags í grunnskólum.

    Vinnulag

    Fyrirlestrar, gagnrýnin umræða, vettvangsferðir og verkefnavinna. Nemendur vinna með fjölbreytt efni, aðferðir og miðla.
    Ath.: Áhersla er lögð á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina (LVG101M, LVG102F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í hugmyndavinnu og skapandi þróunarferli innan list- og verkgreina. Nemendur dýpka skilning sinn á eigin viðfangsefni í gegnum verklega vinnu sem byggir á listrannsóknum. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.

    Kennslan byggist annars vegar á sameiginlegum kjarna þar sem kenndar eru aðferðir og kenningar sem tengjast hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun. Hins vegar vinna nemendur að eigin rannsóknarverkefnum. Verkefnin byggja á gagnasöfnun, tilraunavinnu og þróun í gegnum eigin listsköpun. Mikilvægt er að nemendur geti rökstutt niðurstöður sínar og framsett afurðir á faglegan hátt.

    Nemendur vinna hluta rannsóknarverkefnis síns í tengslum við Loftskeytastöðina (menningarhús tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur), með áherslu á að vinna út frá hugðarefnum hennar. Verkefnið skal þróað í samræmi við viðurkenndar rannsóknaraðferðir innan list- og verkgreina.

    Námskeiðinu lýkur með sýningu þar sem nemendur fá þjálfun og reynslu af sýningarferlinu.

    Vinnulag: Fyrirlestrar, gagnasöfnun, skrifleg og myndræn skráning, greinargerð, verkleg vinna og gagnrýnin umræða.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Lista- og hönnunarsaga, söfn og menntun (LVG101M, LVG102F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Mætingarskylda: Kennslan fer fram í staðnámi. Í sérstökum tilfellum er heimilt að sækja einstaka kennslulotu í fjarkennslu í rauntíma í samráði við kennara. Námskeiðið felur jafnframt í sér tvær lengri staðlotur og þátttöku í undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju (einn laugardag). 

    Samstarfsaðili: Listasafn Íslands 

    Áhersla er lögð á að veita innsýn í listasögu frá frá upphafi 20. aldar til samtímans. Megináherlsa er lögð á íslenska listasögu. Fjallað verður um helstu strauma, stefnur, listamenn og lykilverk tímabilsins og þau skoðuð í samhengi við samfélagsþróun á Íslandi. Jafnframt verður litið til alþjóðlegrar listasögu eftir því sem við á til að varpa ljósi á þróun íslenskrar listar og tengsl hennar við alþjóðlega strauma.

    Fjallað verður um ólíka stíla og strauma í myndlist og, þar sem við á, hönnun. Einnig verður fjallað um stöðu listamanna og hlutverk listar í samfélaginu, þróun listhugtaksins, markaðsvæðingu listar og breytt hlutverk listamannsins á tímabilinu.

    Námskeiðið er unnið í samstarfi við Listasafn Íslands. Skapaður er vettvangur þar sem áhersla er lögð á samstarf og samtal milli skóla og safna. Nemendur kynnast starfsemi lista- og minjasafna og kennslufræði þeirra gagnvart skólum og öðlast aukna hæfni til að nýta söfn sem fræðslu- og menningarstofnanir.

    Nemendum gefst kostur á að þróa, útfæra og framkvæma hugmyndir sínar í tengslum við safnafræðslu og skapandi starf. Unnið verður að undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju í tengslum við sýningu í Listasafni Íslands.

    Vinnulag:

    Kennslan fer fram í staðnámi. Heimilt er að sækja einstaka kennslulotu í fjarkennslu í rauntíma í samráði við kennara. Auk reglulegrar kennslu eru tvær staðlotur og þátttaka í undirbúningi og framkvæmd vinnusmiðju (einn laugardagur).

    Kennslan byggist á einstaklings- og hópavinnu. Lista-, minja- og, eftir því sem við á, hönnunarsöfn verða heimsótt bæði á eigin vegum og með kennara.

    Námskeiðið krefst sjálfstæðra vinnubragða, virkrar þátttöku og samstarfs.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.

     Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Námsmat og námskrá grunnskóla (KME006F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms. 

    Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.

    Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Nám og kennsla í grunnskóla (KME102F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi. 

    Inntak / viðfangsefni:

    Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms. 

    Í vettvangsnámi kynna kennaranemar sér starfshætti á ákveðnu námssviði eða faggrein sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Í vettvangsnámi er nema ætlað að sýna frumkvæði og virkni og taka þátt í öllu daglegu starfi eftir því sem við verður komið. Skilgreind kennsla fer eftir fjölda Ve.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F, MVS213F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.

    Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F, MVS213F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið er að nemendur

    • hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
    • þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
    • geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
    • séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
    • hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun

    Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.

    Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.

    Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir. 

    Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Annað ár | Vor
    Lokaverkefni (LVG401L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    30 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.

    Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.

    Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.

    Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.

    Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.

    Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.

    Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, UgluFræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Annað ár | Óháð misseri

    Textílhönnun (LVG219F, LVG220F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð er áhersla á tilrauna- og þróunarvinnu í munsturgerð og grunnaðferðum, eins og til dæmis saumi, prjóni, hekli, vefnaði, útsaumi, þrykki og fleiri aðferðum. Markmiðið er að vinna með skapandi hugsun, frumleika og listræna nálgun í viðfangsefnum. Nemendur vinna verkefni samkvæmt aðferðum nýsköpunar og hönnunar.  Gerðar eru vinnuskýrslur og greinargerðir yfir afrakstur námskeiðsins með tengingu við kennslufræðilegar áherslur og kennsluverkefni. Einnig er lögð áhersla á rannsóknarverkefni sem tengjast munsturgerð, textílaðferð eða nýsköpun í textíl.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Fatahönnun (LVG219F, LVG220F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð er áhersla á formsköpun fatnaðar og sóttar hugmyndir í ólík þemu með tengingu við sögu og samtíma. Nemendur nýta mismunandi textílhráefni, efnis- og garntegundir, munstur- og litamöguleika sem skapandi uppsprettu eigin hugmynda og verka. Gerðar eru vinnuskýrslur og greinargerðir yfir afrakstur námskeiðsins með tengingu við kennslufræðilegar áherslur og kennsluverkefni. Einnig er lögð áhersla á rannsóknarverkefni sem tengjast hugmyndavinnu, sniðútfærslu eða saumtækni.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Textíll og hönnun: Kennslufræði í textílhluta og vettvangsnám (LVG213F, LVG214F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið er að undirbúa kennaranema fyrir vettvangsnám í textílkennslu með áherslu á textílhluta námsgreinarinnar. Lögð er áhersla á að nemar þekki til helstu kenningasmiða og aðferðafræði hönnunar og geti tengt það við kennslufræðilegar áherslur í faggreininni. Nemar kynnast náms- og kennslubókum faggreinar og fjölbreytileika textílaðferða og tengja það við skapandi vinnuframlag og mismunandi kennsluaðferðir. Unnið er með eigin hugmyndir að aldursmiðuðum kennsluverkefnum og tekið mið af hæfniviðmiðum faggreinar í námskrá, lykilhæfni og grunnþáttum menntunar með áherslu á sköpun, sjálfbærni og læsi. Nemar fá þjálfun í vinnulagi við kennsluverkefnagerð; verkefnalýsingar, verkefnaleiðbeiningar, innlagnir og sýnikennslu og gerð kennsluáætlana. Nemar kynnast námsmatsleiðum sem hæfa mismunandi textílaðferðum. Nemar halda leiðarbók og skrifa greinargerð um vettvangshluta námsins; áhorf, aðstoð við kennslu, framkvæmd kennsluverkefna og eigin kennslu og kynna afrakstur af vettvangsnámi. Unnið er rannsóknarverkefni og greinargerð um kennslu textílaðferða eftir aldursstigum samanborið við uppbyggingu náms- og kennslubóka eða innleiðingu nýrra aðferða með nýsköpun eða endurnýtingu að leiðarljósi.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Textíll og hönnun: Kennslufræði í fatahluta og vettvangsnám (LVG213F, LVG214F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið er að undirbúa kennaranema fyrir vettvangsnám í textílkennslu með áherslu á fatahluta námsgreinarinnar. Nemar kynnast námsframboði og starfsumhverfi kennara í grunn- og framhaldsskólum. Markmiðið er að nemar geti tengt og rökstutt gildi og mikilvægi faggreinarinnar fyrir áframhaldandi nám og atvinnulíf. Lögð er áhersla á að nemar þekki til aðferðafræði fatahönnunar frá hugmynd að lokaafurð og þekki vel til náms- og kennslubóka sem nýttar eru í kennslu í fatagerð og vélsaumi. Unnið er með eigin hugmyndir að aldursmiðuðum kennsluverkefnum og tekið mið af hæfniviðmiðum faggreinar í námskrá, lykilhæfni og grunnþáttum menntunar með áherslu á sköpun, sjálfbærni og læsi. Nemar fá þjálfun í vinnulagi við kennsluverkefnagerð; verkefnalýsingar, verkefnaleiðbeiningar, innlagnir og sýnikennslu, gerð kennsluáætlana og vali á námsmatsleiðum. Nemar halda leiðarbók og skrifa greinargerð um vettvangshluta námsins; áhorf, aðstoð við kennslu, framkvæmd kennsluverkefna og eigin kennslu. Unnið er rannsóknarverkefni og greinargerð þar sem fylgt er eftir aðferðafræði fatahönnunar frá hugmynd að lokaafurð og skoðað hvaða verkefni og kennsluaðferðir henta hverju aldursstigi.

    Söngur og kórstjórn (LVG223F, LVG224F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni 

    Söngur, upphitun söngradda og fjölbreytt sönglög í ýmsu stíltegundum. Nemendur læra grunnatriði í kórstjórnartækni og læra að tileinka sér fagleg vinnubrögð við val og undirbúning verkefna fyrir ólíkar gerðir kóra og sönghópa. 

    Nemendur lesa fræðilegt efni um rannsóknir á söng- og raddþroska barna og skrifa greinagerð um afmarkað efni á því sviði og kynna í fyrirlestri 

    Vinnulag 

    Verklegar æfingar í söng, kórstjórn og léttum undirleik á hljómborð/píanó.  

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Listin að skapa tónlist   (LVG223F, LVG224F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu og færni í notkun fjölbreyttra aðferða til að stuðla að tónlistarsköpun barna og ungmenna í námi og frístundastarfi. 

    Þess er krafist að nemendur sýni frumkvæði og sjálfstæði  í mótun viðfangsefna umfram nemendur á grunnstigi. 

    Viðfangsefni  

    Nemendur læra fjölbreyttar leiðir til að setja saman laglínur og lítil tónverk. Nemendur fræðast um helstu form og stíla í tónsmíðum sem þeir tengja eigin nýsköpun í tónlist.  Nemendur þurfa að tengja saman fræðilega þekkingu á kennslufræði tónlistar annars vegar og skapandi leiðir í tónsköpun hins vegar, með skýr markmið að leiðarljósi. 

    Vinnulag  

    Áhersla á verklegar æfingar, spuna og samvinnu. Einnig er áhersla á frumleika og leiðtogahæfni í skapandi vinnu. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Tónmenntakennsla á vettvangi -Áhersla á mið- og unglingastig (LVG215F, LVG216F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tengist vettvangsnámi í tónmenntakennslu. Nemendur styrkja færni sína í að skipuleggja og kenna tónmennt í grunnskóla á mið- og unglingastigi. Lesefni námskeiðsins miðar að því að dýpka skilning á markmiðum og leiðum í kennslu tónlistar í bekkjarkennslu innan grunnskóla. Nemendur draga saman fyrri þekkingu sína og byggja á henni til þess að ná aukinni færni í helstu þáttum tónmenntakennslu. Verklegar æfingar miða að því að auka færni nemenda til að takast á við kennslu tónmennta á vettvangi. 

    Í lok námskeiðs skulu nemendur:

    Kunna skil á fjölbreyttum aðferðum í tónmenntakennslu og þekkja uppruna þeirra. Nemendur sýna þessa þekkingu með þátttöku í faglegum samræðum um fagtexta og með skriflegum verkefnum. 

    Geta leitað uppi fjölbreytt efni sem hentar fyrir kennslu í tónmennt við hæfi ólíkra aldurshópa og unnið úr því kennslufræðilega ígrundaðar kennsluáætlanir. 

    Vera færir um að skipuleggja kennslu í tónmennt með tilliti til námskrár, þroska nemenda og aðstæðna á vettvangi. 

    Þekkja til útgefins námsefnis í tónmennt sem nýta má til kennslu og geta sýnt þá þekkingu í munnlegum og skriflegum verkefnum. 

    Nemendur tengja saman fræði og vettvang með því að beita aðferðafræði starfendarannsókna til að leggja mat á eigin kennslu og sýna hæfni sína með því að leggja fram starfsáætlun, vísa í fræðilegar heimildir, safna gögnum á vettvangi og vinna úr niðurstöðum sem þeir setja fram í lokaritgerð námskeiðsins. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Tónmenntakennsla á vettvangi -Áhersla á yngsta- og miðstig (LVG215F, LVG216F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tengist vettvangsnámi í tónmenntakennslu. Nemendur styrkja færni sína í að skipuleggja og kenna tónmennt í grunnskóla á yngra- og miðstigi. Lesefni námskeiðsins miðar að því að dýpka skilning á markmiðum og leiðum í kennslu tónlistar í bekkjarkennslu innan grunnskóla. Nemendur draga saman fyrri þekkingu sína og byggja á henni til þess að ná aukinni færni í helstu þáttum tónmenntakennslu. Verklegar æfingar miða að því að auka færni nemenda til að takast á við kennslu tónmennta á vettvangi. 

    Í lok námskeiðs skulu nemendur 

    Tónlistin og heilinn (LVG102M, LVG103M, LVG104M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu er fjallað um áhrif tónlistar á manneskjuna frá ýmsum hliðum. Skoðaðar verða rannsóknir á áhrifum tónlistar á líðan og tilfinningar. Einnig verða lesnar kenningar um skynjun tónlistar og tengsl tónlistar við nám og vitsmunaþroska. Lesefni verður meðal annars á sviði heilarannsókna og taugasálfræði.

    Nemendur taka virkan þátt í efnistökum fyrir fyrirlestur hverrar viku með því að leggja af mörkum eigin skoðanir á lesefninu. Nemendur taka afstöðu til þess sem þeir sjálfir telja áhugaverðast í lesefninu en kennarinn bætir við lesefni til dýpkunar í samræmi við áhugasvið nemenda.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu (LVG102M, LVG103M, LVG104M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þessu námskeiði læra nemendur að beita áhrifaríkum aðferðum í undirleik á hljómborðshljóðfæri sem henta vel í tónmenntakennslu. Farið verður í hagnýta hljómfræði sem leggur grunninn að færni í að semja og spinna einfaldan undirleik fyrir hljóðfæraleik og söng. Auk hljómborðsleiks  verður farið yfir grundvallaratriði í leik á gítar og ukulele með sömu hljómfræðilegu nálgun. Nemendur öðlast færni í að hljómgreina algenga tónlist og læra leiðir til að útsetja á hljómborðshljóðfæri í samræmi við eigin hljóðfærafærni.  Í lok námskeiðs eiga nemendur að hafa færni til þess að leika undir algeng sönglög í minnst sex tóntegundum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Tónlist í sögulegu ljósi (LVG102M, LVG103M, LVG104M)

    Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu II (LVG109M, LVG009M, LVG210M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þessu námskeiði er farið dýpra en í undanfaranámskeiðinu í undirleik á hljómborðshljóðfæri og gítarleik fyrir tónmenntakennslu. Farið verður dýpra í hljómfræði og nemendur fá aukna færni í að hljómgreina flóknari tónlist en áður. Nemendur fá tækifæri til að auka færni í hljóðfæraleik og ýmiskonar tækni sem auðvelda tónmenntakennaranum að leika fjölbreytta tónlist af fingrum fram. Í lok námskeiðs eiga nemendur að hafa færni til þess að leika undir sem flestar stíltegundir tónlistar.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Hópkennsla í tónlist -Kenningar og hagnýtar aðferðir (LVG109M, LVG009M, LVG210M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins eru námskenningar á sviði tónlistarmenntunar og hagnýtar útfærslur á þeim. Lesin eru helstu fræði um stefnur og strauma í tónlistarmenntunarfræðum. Sérstaklega eru skoðaðar gagnrýnar kenningar á viðtekna kennsluhætti í tónlistarnámi barna, ungmenna og fullorðinna. Nemendum gefst færi á að fara dýpra í einstakar kenningar og kennsluaðferðir sem hafa notið vinsælda undanfarna áratugi víða um heim.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Óháð misseri
    Söngur og kórstjórn II (LVG109M, LVG009M, LVG210M)

    Fyrsta ár
    • Haust
    • SFG106F
      Félagsfræði og heimspeki menntunar
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.

       Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp. 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Óháð misseri
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG217F, LVG218F
      Kennslufræði hönnunar og smíða I
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Markmið: Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni hönnun og smíði.

      Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið smíðakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í grunnskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir og smíða verkefnadæmi sem miðuð eru við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

      Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Kennslufræði nýsköpunar gerð sérstaklega skil. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.
      Verkleg þjálfun og fyrirlestrar.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • LVG217F, LVG218F
      Kennslufræði hönnunar og smíða II
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Markmið: Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni hönnun og smíði.

      Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið og kennslufræði hönnunar smíðakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í grunnskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir og smíða verkefnadæmi sem miðuð eru við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

      Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Kennslufræði nýsköpunar gerð sérstaklega skil. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.

      Verkleg þjálfun og fyrirlestrar.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG221F, LVG222F
      Hönnun og smíði leikfanga
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      a) Að kenna almennan feril hönnunar;
      b) Að hanna og smíða leikföng fyrir börn á ýmsum aldri;
      c) Að þjálfa nemendur í þrívíddarhönnun
      d) Að geta hannað fyrir börn með öryggissjónarmið í huga. 

      Lýsing:

      Námskeiðið miðar að því að efla hæfni nemenda í handverki og hönnunarvinnu. Nemendur vinna verkefni á fjölbreyttan hátt og dýpka skilning sinn á gildi handverks fyrir skólastarf í gegnum verklega vinnu. Lögð er áhersla á markviss vinnubrögð, sjálfstæði, frumleika og ígrundun.

      Námskeiðið er hugsað fyrir nemendur sem vilja læra að hanna og smíða þroskaleikföng bæði fyrir kornabörn, leikskólabörn og börn í grunnskóla. Lögð er áhersla á gerð verkefna sem nemendur geta bæði nýtt í skólastarfi og í eigin lífi. Nemendur kynnast einnig hagnýtingu tölvustuddar hönnunar og framleiðslu við þróun verkefna. Unnið er með fjölbreytt smíðaefni. Námskeiðið hentar öllum þeim er vilja leggja áherslu á skapandi skólastarf, bæði innan list- og verkgreina, í almennu skólastarfi og í leikskóla. 

      Inntak / viðfangsefni

      A. Hönnun leikfanga
      a) Nemendur þurfa að hanna og teikna leikföng;
      b) Nemendur læra að teikna í tölvu, málsetja vinnuteikningar og gefa þrívíðum hlutum efnisáferðir.
      c) Kynnt verður tölvustudd framleiðsla og nokkur verkefni gerð í tölvustýrðum fræsara. 

      B. Smíði leikfanga
      a) Nemendur hanna og smíða verkefni svo sem hreyfileikföng, spil og leikföng sem byggja á hagnýtingu einfaldra rafrænna lausna;
      b) Lögð er áhersla á að þátttakendur noti fjölbreytt smíðaefni og náttúruleg yfirborðsefni; 

      Vinnulag: Fyrirlestrar, verkstæðisvinna í tölvu- og smíðastofu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • LVG221F, LVG222F
      Lesið í skóginn og tálgað í tré
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðslýsing:

      Markmið: Að nemendur kynnist hvernig hægt er að nýta skóginn í kennslu og læri helstu vinnubrögð við gerð hluta úr íslensku efni. 

      Inntak / viðfangsefni: Megináherslan er lögð á verklega þáttinn þar sem nemendur vinna með blautt og þurrt efni úr íslenskum skógum. Kennd verða helstu vinnubrögð í tálgun, bæði með hníf og exi. Einnig verða kennd grundvallaratriði í viðar- og vistfræði og kannað hvernig hægt er að nýta sér form og eiginleika íslenskra viðartegunda. Farið verður í vettvangsferð í skóg í nágrenninu og hugað að efnisöflun og útikennslu í skógi. Kynnt verður skólaverkefnið Lesið í skóginn, samþætt kennsluverkefni um íslenska skóga og nýtingu þeirra.

      Nemendur á kjörsviði hönnunar og smíða fá sérstakan undirbúning fyrir kennslu á vettvangi með tilheyrandi verkefnum. 

      Vinnulag: Verkleg þjálfun og fyrirlestrar. 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG101M
      Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina

    • LVG004M
      Gamalt handverk í skólastarfi

    • KME102F
      Nám og kennsla í grunnskóla
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi. 

      Inntak / viðfangsefni:

      Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms. 

      Í vettvangsnámi kynna kennaranemar sér starfshætti á ákveðnu námssviði eða faggrein sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Í vettvangsnámi er nema ætlað að sýna frumkvæði og virkni og taka þátt í öllu daglegu starfi eftir því sem við verður komið. Skilgreind kennsla fer eftir fjölda Ve.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • KME006F
      Námsmat og námskrá grunnskóla
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms. 

      Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.

      Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • MVS212F, MVS213F
      Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum

      Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum

    • KME301F
      Nám og kennsla - fagmennska í starfi
      Skyldunámskeið
      20

    • Vor
    • FAG401F
      Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein
      Skyldunámskeið
      15

    • LVG401L
      Lokaverkefni
      Skyldunámskeið
      30

      LVG104M
      Tónlist í sögulegu ljósi
      Valnámskeið

      LVG103M
      Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu

    • ÍET214F
      Læsi í faggreinum

      LVG009M
      Hópkennsla í tónlist -Kenningar og hagnýtar aðferðir

    • LVG108M
      Leiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistar

      LVG210M
      Söngur og kórstjórn II

    • FAG101M
      Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi

    • FAG201F
      Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga

    • ÍET206F
      Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda

    • LVG207M
      Barna- og unglingaleikrit með börnum og fyrir börn

    • LVG102F
      Lista- og hönnunarsaga, söfn og menntun

      LVG006M
      Útikennsla og græn nytjahönnun

    • LVG008M
      Fatahönnunar- og híbýlasaga – tíska, textíll, húsgögn og byggingar

      LVG205M
      Leiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi.

    • LVG003M
      Leirmótun, hönnun og teikning

      LVG011M
      Sjálfbærni og skapandi endurnýting í textíl

    • LVG005F
      Textíllist og hönnun

      LVG005M
      Hugmynda- og hönnunarvinna

    • LVG203M
      Trésmíði, trérennismíði og útskurður

    • LVG102M
      Tónlistin og heilinn

      LVG204F
      Gildi leiklistar í ljósi velferðar og jafnréttis

    Annað ár

    Óháð námsári

    • MAL102F, SFG106F
      Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum hide
      Bundið valnámskeið
      10
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • MAL102F, SFG106F
      Félagsfræði og heimspeki menntunar hide

      LVG006M, LVG203M
      Útikennsla og græn nytjahönnun hide

    • LVG006M, LVG203M
      Trésmíði, trérennismíði og útskurður hide

      LVG101M, LVG004M
      Hugmynda- og þróunarvinna innan list- og verkgreina hide

    • LVG101M, LVG004M
      Gamalt handverk í skólastarfi hide

      Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum hide

      Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum hide

      Nám og kennsla - fagmennska í starfi hide

      Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein hide

      Lokaverkefni hide

      Tónlist í sögulegu ljósi hide

      Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu hide

      Læsi í faggreinum hide

      Hópkennsla í tónlist -Kenningar og hagnýtar aðferðir hide

      Leiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistar hide

      Söngur og kórstjórn II hide

      Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi hide

      Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga hide

      Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda hide

      Barna- og unglingaleikrit með börnum og fyrir börn hide

      Lista- og hönnunarsaga, söfn og menntun hide

      Fatahönnunar- og híbýlasaga – tíska, textíll, húsgögn og byggingar hide

      Leiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi. hide

      Leirmótun, hönnun og teikning hide

      Sjálfbærni og skapandi endurnýting í textíl hide

      Textíllist og hönnun hide

      Hugmynda- og hönnunarvinna hide

      Tónlistin og heilinn hide

      Gildi leiklistar í ljósi velferðar og jafnréttis hide

      Nám og kennsla í grunnskóla hide

    • LVG209F, LVG211F
      Leiklistarkennarinn hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Viðfangsefni:
      Í námskeiðinu er lögð áhersla á leiklistaræfingar sem þjálfa hæfni nemenda til að þróa og fullvinna eigin hugmyndir á sviði – frá samlestri til sýningar. Nemendur öðlast þekkingu og skilning á grundvallarhugmyndum, aðferðum og vinnubrögðum sem leiklistarkennarar beita í kennslu sinni.

      Fræðilegur grunnur:
      Fjallað verður um hugmyndafræði og rannsóknir á sviði leiklistarkennslu með hliðsjón af helstu fræðimönnum á sviðinu, þar á meðal Mike Fleming, John O’Toole, Helen Nicholson, Andy Kempe og David Hornbrook. Sérstök áhersla er lögð á að greina gildi leiklistar í ljósi kenninga og rannsókna.

      Verkleg og listræn nálgun:
      Kynnt verða vinnubrögð við uppsetningu leiksýninga, þar sem leikhúsið er skoðað sem kennslufræðilegt afl. Áhersla er lögð á líkams- og raddbeitingu, sviðshreyfingar og leikræna tjáningu. Nemendur öðlast færni á fjölbreyttum sviðum sviðsetningar, þar á meðal í handritsgerð og leikgerð, hönnun sviðsmuna, búninga og leikmynda, auk mótunar hljóðmyndar.

      Vinnulag:
      Námið byggir á verklegum æfingum, spunaverkefnum og umræðum. Kennslan felur í sér fræðileg innlegg kennara, lestur fræðitexta frá helstu kennismiðum leiklistarkennslu, sem og fræðileg og skapandi innlegg frá nemendum sjálfum.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG209F, LVG211F
      Leiklist fyrir alla - kennsluaðferðir leiklistar í skólastarfi hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Á námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér bæði fræðilegan skilning og hagnýta færni í notkun leiklistar í kennslu. Markmið námskeiðsins er að þjálfa nemendur í að vinna sjálfstætt, faglega og skapandi með leiklist sem kennsluaðferð, og að efla hæfni þeirra til að nýta leiklist sem aðferð til að stuðla að virkni, gagnrýnni hugsun og félagslegum þroska nemenda.

      Nemendur kynnast fjölbreyttum kennsluháttum og nálgunum innan leiklistarkennslu og læra að beita leiklistaraðferðum á markvissan hátt við úrvinnslu viðfangsefna. Þeir fá jafnframt innsýn í hvernig leiklist má samþætta við aðrar námsgreinar grunnskólans og hvernig hún getur stuðlað að dýpri skilningi, auknu sjálfstrausti og bættum samskiptum meðal nemenda.

      Fjallað er um hugmyndafræðilegar og kennslufræðilegar forsendur skapandi kennsluhátta og samþættingar listgreina, auk skipulagningar kennslu í fjölbreyttum og blönduðum nemendahópum.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • LVG210F, LVG212F
      Leiklistarkennarinn framkvæmd og fræði hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Markmið:
      Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni leiklist sem fag og kennslufræðilega þætti greinarinnar.

      Inntak / vinnulag:

      Nemendur styrkja færni sína í að skipuleggja og kenna leiklist sem fag í grunnskóla. Lesefni námskeiðsins miðar að því að dýpka skilning á markmiðum og leiðum í kennslu leiklistar innan grunnskóla. Nemendur draga saman fyrri þekkingu sína og byggja á henni til þess að ná aukinni færni í helstu þáttum leiklistarkennslu. Lögð er áhersla á þekkingu og færni í fjölbreyttum þáttum sviðsetningar, handrits- og leikgerðar, sviðsmuna, búningahönnunar, leikmyndagerðar og hljóðmyndar.

      Verklegar æfingar miða að því að auka færni nemenda til að takast á við kennslu leiklistar á vettvangi.

      Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir sem miðast við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

      Vinnulag: Fyrirlestrar um kennslufræðilega þætti og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám.

      Nemendur halda dagbók fyrir hugmyndavinnu sína sem tengist verkefna- og vettvangsnámi þeirra.  Nemendur kynna verkleg verkefni og afrakstur af vettvangsnámi undir lok námskeiðsins.

      Vettvangsnámið í þessu námskeiði er þannig skipulagt að nemi fær úthlutað grunnskóla þar sem vettvangsnámið mun fara fram. Skólar eru valdir fyrir nema með hliðsjón af viðfangsefni námskeiðsins auk þess sem horft er til námsstigs og námsárs nema.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG210F, LVG212F
      Leiklist fyrir alla, framkvæmd og fræði, kennsluaðferðir leiklistar í skólastarfi hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Á námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér bæði fræðilegan skilning og hagnýta færni í notkun leiklistar í kennslu. Markmið námskeiðsins er að þjálfa nemendur í að vinna sjálfstætt, faglega og skapandi með leiklist sem kennsluaðferð, og að efla hæfni þeirra til að nýta leiklist sem aðferð til að stuðla að virkni, gagnrýnni hugsun og félagslegum þroska nemenda.

      Fjallað er um hugmyndafræðilegar og kennslufræðilegar forsendur skapandi kennsluhátta og samþættingar listgreina, auk skipulagningar kennslu í fjölbreyttum og blönduðum nemendahópum. Megináherslan er á að nemendur þrói færni í að beita leiklist sem rannsóknar- og kennsluaðferð og í að ígrunda og meta eigin kennsluhætti á gagnrýninn hátt í ljósi fræðilegra kenninga og rannsókna á sviði leiklistarkennslu

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • LVG108M
      Leiklistarbræðingur - miðlunarleiðir leiklistar hide
      Bundið valnámskeið
      10
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Viðfangsefni: Nemendur fá kennslu í samsettum (devised) aðferðum leiklistar ásamt því að vinna með aðferðir leikhúss líkamans og Ímyndarleikhús. Nemendur kynna sér listamenn og listviðburði í íslensku samfélagi og tengja við hugmyndafræði og kenningar um listupplifun. Mögulegir snertifletir leiklistarinnar verða kannaðir út frá margvíslegum sjónarhornum með mismunandi miðlunarleiðir að leiðarljósi.

      Vinnulag: Vinna í smiðjum þar sem nemendur leita fjölbreyttra leiða til að vinna með miðlunarleiðir leiklistar þ.e. leikrit (hefðbundin, óhefðbundin), útvarpsleikrit eða hljóðmyndir, miðlun í gegnum kvikmyndum, eða uppsetningu í gegnum samfélagsmiðla í tengslum við nám barna og unglinga. Þá verða listviðburðir sóttir og rætt við listamenn um starfsgrein þeirra.

      Unnin verða verkefni sem reyna á sköpun og tjáningu, tengjast þróun eigin starfskenningar, námskrárgerð í leiklist ásamt ígrundun um menningar- og samfélagslega vídd leiklistarinnar.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • KME006F
      Námsmat og námskrá grunnskóla hide

      LVG205M, LVG108M

    • LVG205M, LVG108M

      LVG204F, LVG207M

    • LVG204F, LVG207M

    • KME115F
      Kennsla í margbreytilegum nemendahópi hide
      Bundið valnámskeið
      10
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að starfandi kennarar og kennaranemar eflist í að nýta eigin auðlindir í vinnu með margbreytilegum nemendahópum.  Byggt er á kennslufræði menntunar fyrir alla (inclusive pedagogy) og kennslufræði nýsköpunarmenntar þar sem lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu og að nýta auðlindir nemenda.

      Viðfangsefni
      Námskeiðið byggir á hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar. Fjallað verður um mismunandi vinnubrögð og kynntir kennsluhættir og kennsluaðferðir sem hafa reynst vel í fjölbreyttum nemendahópum. Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir nýsköpunarmenntar, samvirks náms, altæka hönnun náms, fjölmenningarlega kennslu og listrænar og skapandi aðferðir. Fjallað verður um samstarf við foreldra og aðrar starfsstéttir er starfa við eða tengjast skólastarfi. Þátttakendur skilgreina og þróa eigin starfskenningu.

      Vinnulag
      Námskeiðið er skipulagt sem blandað nám, bæði fjarnám og staðnám. Kennslan fer fram bæði í staðlotum og staðtímum milli staðlota og á netinu. Námskeiðinu er skipt upp í fjórar námslotur (tímabil) sem eru skipulagðar út frá ákveðnum þemum. Þau tengjast öll kennslu í margbreytilegum nemendahópi og eru: hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunarmenntar, fagmennska og forysta í kennslu margbreytilegra nemendahópa, kennsluhættir í margbreytilegum nemendahópum og samstarf í skóla fyrir alla. Hver námslota stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Kennsla og nám verður í formi fyrirlestra, umræðna í tímum og á Canvas, stuttra verkefna í tímum og á Canvas og verkefna með formlegum skilum. Námskeiðið byggir á sjálfstæðri vinnu, ábyrgð og þátttöku nemenda.

      Gert er ráð fyrir 80% þátttöku í virkni á námskeiðinu (þátttaka og skil verkefna). 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG005M, LVG008M

    • LVG005M, LVG008M

    • LVG004M, LVG101M

      LVG004M, LVG101M

      LVG011M, LVG005F

    • LVG011M, LVG005F

      LVG103M, LVG104M

    • LVG203M, LVG006M

      LVG203M, LVG006M

      LVG210M, LVG009M

    • SNU007F
      Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun hide
      Bundið valnámskeið
      10
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu er fjallað um:

      • áhrif upplýsingatækni á menntun og skólastarf
      • námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi
      • hugtök, kenningar og rannsóknir sem tengjast notkun upplýsingatækni í námi og kennslu
      • innleiðingu tölva og upplýsingatækni í skólastarf
      • kennsluhætti, símenntun kennara, hugbúnað og stafrænt námsefni
      • stafræna hæfni nemenda og kennara og læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni
      • hlutdeild upplýsingatækni í lífi fólks innan og utan skóla

      Vinnulag:
      Lestur og umræða um námskrá og stefnu, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þeir miðla hugmyndum sínum og reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leggja sitt af mörkum við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.

      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • MVS009F
      Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir hide
      Bundið valnámskeið
      10
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið
      Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.   

      Inntak / viðfangsefni

      • Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
      • Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
      • Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
      • Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
      • Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • SNU008F
      Fjarnám og kennsla hide
      Bundið valnámskeið
      10
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Á námskeiðinu verða hugtökin fjarnám- og fjarkennsla og tengd hugtök s.s. blandað nám, dreifnám og netnám skoðuð og skilgreind. Skoðaðar verða hugmyndir og kenningar sem tengjast sviðinu og hvernig þær hafa þróast frá áherslu á sjálfstætt nám (independent study) á tímum bréfaskóla til áherslu á samskipti og uppbyggingu sameiginlegrar þekkingar á tímum netvæðingar og alþjóðahyggju. Fjallað verður um erlendar og innlendar rannsóknir á fjarnámi og -kennslu. Athygli er beint að stöðu fjarnáms á mismunandi skólastigum, fjarnemum og þörfum þeirra, kennsluháttum með nýtingu mismunandi miðla og hönnun fjarnámsáfanga m.t.t. alþjóðlegra viðmiða og gæðastaðla.

      Vinnulag
      Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitarnám) og annað stærra einstaklingsverkefni.

      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • KME205F
      Fjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað nám hide
      Bundið valnámskeið
      10
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið
      Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þátttakendur efli þekkingu sína á fjölbreyttum kennsluháttum og hæfni sína í að fjalla um þá með fræðilega viðurkenndum hætti.

      Viðfangsefni
      Á námskeiðinu verður fjallað um kennsluaðferðahugtakið og dæmi kynnt um fræðilega flokkun kennsluaðferða. Rannsóknum á kennsluaðferðum verða gerð sérstök skil, einkum innlendum rannsóknum. Þá verður fjallað um kennsluhætti og kennsluaðferðir sem tengjast hugmyndum um nemendamiðað og lýðræðislegt skólastarf (m.a. opinn skóla, sveigjanlega kennsluhætti, samvinnunám, samkennslu, lausnaleitarnám, heildstæð viðfangsefni, þemanám, samkomulagsnám og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni). Efni námskeiðsins verður tengt þróun fjölbreyttra kennsluhátta hér á landi, og erlendis, og áhersla lögð á að þátttakendur ígrundi eigin reynslu af kennslu. Þátttakendum gefst tækifæri til að kynna sér einstaka kennsluhætti og kennsluaðferðir til nokkurrar hlítar og fjalla um það með fræðilegum hætti.

      Vinnulag
      Byggt er á fyrirlestrum, kynningum, málstofum, umræðum, sjálfstæðri vinnu, hópverkefnum, lestri og upplýsingaleit. Lögð er áhersla á að þátttakendur ígrundi eigið starf og greini, túlki og meti reynslu sína og tengi hana við fræði og rannsóknir. Þáttakendur ræða lesefni námskeiðsins og tengja það kennslustundum og eigin reynslu með aðstoð lestrardagbókar og annarra verkefna. Auk þess vinna nemendur lokaverkefni sem er hópverkefni.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • MAL102F

    • LVG207M, LVG204F

      LVG207M, LVG204F

      LVG101M, LVG102F

    • LVG101M, LVG102F

      LVG206F, LVG208F
      Kennslufræði Sjónlista hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Markmið
      Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni sjónlistir. Kennsluverkefni miða að nemendum í efri- eða neðri bekkjum grunnskólans.

      Inntak / viðfangsefni: Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið sjónlistakennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum í efra stigi grunnskólans. Lögð er áhersla á að nemendur þekki til helstu kenningasmiða, rannsókna á sviðinu og innihalds og markmiða í aðalnámskrá grunnskóla.  

      Nemendur vinna með eigin hugmyndir að kennsluverkefnum í samráði við kennara og leiðsagnarkennara á vettvangi auk þess sem þeir taka mið af hæfniviðmiðum sjónlista í aðalnámskrá grunnskóla sem og skólanámskrá viðtökuskóla. Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir sem miða við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

      Vettvangsnámið í þessu námskeiði er þannig skipulagt að nemi fær úthlutað grunnskóla þar sem vettvangsnámið mun fara fram. Skólar eru valdir fyrir nema með hliðsjón af viðfangsefni námskeiðsins auk þess sem horft er til námsstigs og námsárs nema.

      Vinnulag: Fyrirlestrar og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám. Umræður. Nemar sitja fyrirlestra um ýmis kennslufræðileg efni valgreinarinnar. Nemendur vinna verkefni sem tengjast vettvangsnámi þeirra.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • LVG206F, LVG208F
      Kennslufræði Myndmenntar hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Markmið:

      Að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í námsgreininni myndmennt og kennslufræðilega þætti greinarinnar. 

      Inntak / viðfangsefni:

      Vettvangsnám á misserinu er undirbúið með verkefnavali, verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna. Markmið myndmenntarkennslu eru tekin til umfjöllunar ásamt fagnámskrá. Lögð er áhersla á að nemendur þekki til helstu kenningasmiða, rannsókna á sviðinu og innihalds og markmiða í aðalnámskrá grunnskóla.  Nemendur vinna með eigin hugmyndir að kennsluverkefnum í samráði við kennara og leiðsagnarkennara á vettvangi auk þess sem þeir taka mið af hæfniviðmiðum myndmenntar í aðalnámskrá grunnskóla sem og skólanámskrá viðtökuskóla. Kennsluverkefnin eru aldursmiðuð og með tengingu við sköpun, sjálfbærni og aðra grunnþætti menntunar. 

      Nemar fá þjálfun í að semja kennsluáætlanir sem miða við ákveðna verkþætti, aldur og þroska barna.

      Vinnulag:

      Fyrirlestrar um kennslufræðilega þætti og verklegur undirbúningur fyrir vettvangsnám.

      Nemendur vinna hugmynda- og dagbók sem tengist verkefna- og vettvangsnámi þeirra.  Nemendur kynna verkleg verkefni og afrakstur af vettvangsnámi undir lok námskeiðsins. 

      Vettvangsnámið í þessu námskeiði er þannig skipulagt að nemi fær úthlutað grunnskóla þar sem vettvangsnámið mun fara fram. Skólar eru valdir fyrir nema með hliðsjón af viðfangsefni námskeiðsins auk þess sem horft er til námsstigs og námsárs nema.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG205F, LVG207F
      Sjónlistir hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á tvívíðri myndgerð og möguleikum hennar í skólastarfi. Nemendur þjálfast í grunnþáttum aðferða og hugmyndavinnu í tengslum við sjónlistir. Meginviðfangsefni námskeiðsins eru verkleg vinna, hugmyndavinna og gerð ferilmöppu.

      Lögð er megin áhersla á teikningu, lita- og formfræði, grafíkþrykk og mynsturgerð. Fjölbreytt efni eru notuð til útfærslu verkefna og lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði nemenda.

      Ferilmappa er lögð fram til mats en jafnframt skila nemendur inn hugleiðingum og umræðum í tengslum við safnaheimsóknir.

      Námskeiðið krefst sjálfstæðra vinnubragða, Heimavinna er talsverð þar sem gert er ráð fyrir að nemendur vinni verkefnin sín á sjálfstæðan og skapandi hátt.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • LVG205F, LVG207F
      Listir, náttúra og samfélag hide

    • LVG219F, LVG220F
      Textílhönnun hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Lögð er áhersla á tilrauna- og þróunarvinnu í munsturgerð og grunnaðferðum, eins og til dæmis saumi, prjóni, hekli, vefnaði, útsaumi, þrykki og fleiri aðferðum. Markmiðið er að vinna með skapandi hugsun, frumleika og listræna nálgun í viðfangsefnum. Nemendur vinna verkefni samkvæmt aðferðum nýsköpunar og hönnunar.  Gerðar eru vinnuskýrslur og greinargerðir yfir afrakstur námskeiðsins með tengingu við kennslufræðilegar áherslur og kennsluverkefni. Einnig er lögð áhersla á rannsóknarverkefni sem tengjast munsturgerð, textílaðferð eða nýsköpun í textíl.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG219F, LVG220F
      Fatahönnun hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Lögð er áhersla á formsköpun fatnaðar og sóttar hugmyndir í ólík þemu með tengingu við sögu og samtíma. Nemendur nýta mismunandi textílhráefni, efnis- og garntegundir, munstur- og litamöguleika sem skapandi uppsprettu eigin hugmynda og verka. Gerðar eru vinnuskýrslur og greinargerðir yfir afrakstur námskeiðsins með tengingu við kennslufræðilegar áherslur og kennsluverkefni. Einnig er lögð áhersla á rannsóknarverkefni sem tengjast hugmyndavinnu, sniðútfærslu eða saumtækni.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • LVG213F, LVG214F
      Textíll og hönnun: Kennslufræði í textílhluta og vettvangsnám hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Markmiðið er að undirbúa kennaranema fyrir vettvangsnám í textílkennslu með áherslu á textílhluta námsgreinarinnar. Lögð er áhersla á að nemar þekki til helstu kenningasmiða og aðferðafræði hönnunar og geti tengt það við kennslufræðilegar áherslur í faggreininni. Nemar kynnast náms- og kennslubókum faggreinar og fjölbreytileika textílaðferða og tengja það við skapandi vinnuframlag og mismunandi kennsluaðferðir. Unnið er með eigin hugmyndir að aldursmiðuðum kennsluverkefnum og tekið mið af hæfniviðmiðum faggreinar í námskrá, lykilhæfni og grunnþáttum menntunar með áherslu á sköpun, sjálfbærni og læsi. Nemar fá þjálfun í vinnulagi við kennsluverkefnagerð; verkefnalýsingar, verkefnaleiðbeiningar, innlagnir og sýnikennslu og gerð kennsluáætlana. Nemar kynnast námsmatsleiðum sem hæfa mismunandi textílaðferðum. Nemar halda leiðarbók og skrifa greinargerð um vettvangshluta námsins; áhorf, aðstoð við kennslu, framkvæmd kennsluverkefna og eigin kennslu og kynna afrakstur af vettvangsnámi. Unnið er rannsóknarverkefni og greinargerð um kennslu textílaðferða eftir aldursstigum samanborið við uppbyggingu náms- og kennslubóka eða innleiðingu nýrra aðferða með nýsköpun eða endurnýtingu að leiðarljósi.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG213F, LVG214F
      Textíll og hönnun: Kennslufræði í fatahluta og vettvangsnám hide

    • LVG223F, LVG224F
      Söngur og kórstjórn hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Viðfangsefni 

      Söngur, upphitun söngradda og fjölbreytt sönglög í ýmsu stíltegundum. Nemendur læra grunnatriði í kórstjórnartækni og læra að tileinka sér fagleg vinnubrögð við val og undirbúning verkefna fyrir ólíkar gerðir kóra og sönghópa. 

      Nemendur lesa fræðilegt efni um rannsóknir á söng- og raddþroska barna og skrifa greinagerð um afmarkað efni á því sviði og kynna í fyrirlestri 

      Vinnulag 

      Verklegar æfingar í söng, kórstjórn og léttum undirleik á hljómborð/píanó.  

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG223F, LVG224F
      Listin að skapa tónlist   hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu og færni í notkun fjölbreyttra aðferða til að stuðla að tónlistarsköpun barna og ungmenna í námi og frístundastarfi. 

      Þess er krafist að nemendur sýni frumkvæði og sjálfstæði  í mótun viðfangsefna umfram nemendur á grunnstigi. 

      Viðfangsefni  

      Nemendur læra fjölbreyttar leiðir til að setja saman laglínur og lítil tónverk. Nemendur fræðast um helstu form og stíla í tónsmíðum sem þeir tengja eigin nýsköpun í tónlist.  Nemendur þurfa að tengja saman fræðilega þekkingu á kennslufræði tónlistar annars vegar og skapandi leiðir í tónsköpun hins vegar, með skýr markmið að leiðarljósi. 

      Vinnulag  

      Áhersla á verklegar æfingar, spuna og samvinnu. Einnig er áhersla á frumleika og leiðtogahæfni í skapandi vinnu. 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • LVG215F, LVG216F
      Tónmenntakennsla á vettvangi -Áhersla á mið- og unglingastig hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið tengist vettvangsnámi í tónmenntakennslu. Nemendur styrkja færni sína í að skipuleggja og kenna tónmennt í grunnskóla á mið- og unglingastigi. Lesefni námskeiðsins miðar að því að dýpka skilning á markmiðum og leiðum í kennslu tónlistar í bekkjarkennslu innan grunnskóla. Nemendur draga saman fyrri þekkingu sína og byggja á henni til þess að ná aukinni færni í helstu þáttum tónmenntakennslu. Verklegar æfingar miða að því að auka færni nemenda til að takast á við kennslu tónmennta á vettvangi. 

      Í lok námskeiðs skulu nemendur:

      Kunna skil á fjölbreyttum aðferðum í tónmenntakennslu og þekkja uppruna þeirra. Nemendur sýna þessa þekkingu með þátttöku í faglegum samræðum um fagtexta og með skriflegum verkefnum. 

      Geta leitað uppi fjölbreytt efni sem hentar fyrir kennslu í tónmennt við hæfi ólíkra aldurshópa og unnið úr því kennslufræðilega ígrundaðar kennsluáætlanir. 

      Vera færir um að skipuleggja kennslu í tónmennt með tilliti til námskrár, þroska nemenda og aðstæðna á vettvangi. 

      Þekkja til útgefins námsefnis í tónmennt sem nýta má til kennslu og geta sýnt þá þekkingu í munnlegum og skriflegum verkefnum. 

      Nemendur tengja saman fræði og vettvang með því að beita aðferðafræði starfendarannsókna til að leggja mat á eigin kennslu og sýna hæfni sína með því að leggja fram starfsáætlun, vísa í fræðilegar heimildir, safna gögnum á vettvangi og vinna úr niðurstöðum sem þeir setja fram í lokaritgerð námskeiðsins. 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG215F, LVG216F
      Tónmenntakennsla á vettvangi -Áhersla á yngsta- og miðstig hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Þar af 2 vettvangseiningar
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið tengist vettvangsnámi í tónmenntakennslu. Nemendur styrkja færni sína í að skipuleggja og kenna tónmennt í grunnskóla á yngra- og miðstigi. Lesefni námskeiðsins miðar að því að dýpka skilning á markmiðum og leiðum í kennslu tónlistar í bekkjarkennslu innan grunnskóla. Nemendur draga saman fyrri þekkingu sína og byggja á henni til þess að ná aukinni færni í helstu þáttum tónmenntakennslu. Verklegar æfingar miða að því að auka færni nemenda til að takast á við kennslu tónmennta á vettvangi. 

      Í lok námskeiðs skulu nemendur 

      Kunna skil á fjölbreyttum aðferðum í tónmenntakennslu og þekkja uppruna þeirra. Nemendur sýna þessa þekkingu með þátttöku í faglegum samræðum um fagtexta og með skriflegum verkefnum. 

      Geta leitað uppi fjölbreytt efni sem hentar fyrir kennslu í tónmennt við hæfi ólíkra aldurshópa og unnið úr því kennslufræðilega ígrundaðar kennsluáætlanir. 

      Vera færir um að skipuleggja kennslu í tónmennt með tilliti til námskrár, þroska nemenda og aðstæðna á vettvangi. 

      Þekkja til útgefins námsefnis í tónmennt sem nýta má til kennslu og geta sýnt þá þekkingu í munnlegum og skriflegum verkefnum. 

      Nemendur tengja saman fræði og vettvang með því að beita aðferðafræði starfendarannsókna til að leggja mat á eigin kennslu og sýna hæfni sína með því að leggja fram starfsáætlun, vísa í fræðilegar heimildir, safna gögnum á vettvangi og vinna úr niðurstöðum sem þeir setja fram í lokaritgerð námskeiðsins. 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • LVG102M, LVG103M, LVG104M

      LVG102M, LVG103M, LVG104M

    • LVG109M, LVG009M, LVG210M
      Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu II hide
      Bundið valnámskeið
      5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Á þessu námskeiði er farið dýpra en í undanfaranámskeiðinu í undirleik á hljómborðshljóðfæri og gítarleik fyrir tónmenntakennslu. Farið verður dýpra í hljómfræði og nemendur fá aukna færni í að hljómgreina flóknari tónlist en áður. Nemendur fá tækifæri til að auka færni í hljóðfæraleik og ýmiskonar tækni sem auðvelda tónmenntakennaranum að leika fjölbreytta tónlist af fingrum fram. Í lok námskeiðs eiga nemendur að hafa færni til þess að leika undir sem flestar stíltegundir tónlistar.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Ekki kennt á misserinu
      LVG109M, LVG009M, LVG210M

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Kennaramenntun er alþjóðlega viðurkennt nám og eru atvinnumöguleikar að loknu námi miklir.

    Langflestir þeirra sem ljúka kennaranámi starfa við kennslu en menntunin nýtist einnig vel á öðrum vettvangi, bæði innan menntakerfisins og á almennum vinnumarkaði.

    Fólk með þessa menntun starfar meðal annars:

    • í grunnskólum
    • við sérfræðistörf innan menntakerfisins
    • við félagsmiðstöðvar
    • í þjónustukjörnum eldriborgara
    • við námskeiðshald
    • við verkefnastjórnun

    Listinn er ekki tæmandi.

    Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

    Umsagnir nemenda
    Ljósmynd af Angelu Árnadóttur
    Ég útskrifaðist með MT í kennslu list- og verkgreina eftir 2 ára meistaranám. Það fyrsta sem kom upp í hugann þegar námið var að klárast var: Ég trúi ekki að þetta sé búið. Allt samstarf við kennara á sviði list- og verkgreinakennslu hér hjá Háskóla Íslands er náið og persónulegt. Í dag er ég er starfandi myndlistarkennari en einnig, dans og leiklistarkennari. Eitt það besta við námið hér í HÍ á sviði list og verkgreina er að manni er gert kleift að nýta alla þá þekkingu sem maður kemur með inn í námið. Þú ert semsagt menntaður í að verða besta mögulega útgáfan af sjálfum þér, og það er viss grunnforsenda þess að verða góður kennari. Ég útskrifast með mikið þakklæti í brjósti til þeirra sem stóðu að menntun minni. Takk fyrir mig!
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Menntavísindasvið | Kennsluskrifstofa
    Virka daga 9:00 - 15:00
    Þjónustuborð og samfélagsmiðlar

    Á Þjónustuborði Háskólatorgs færðu aðstoð og upplýsingar um þjónustu Háskóla Íslands. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða notað vefspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.

    Fylgdu okkur á Instagram, Youtube og Facebook

    Mynd af byggingunni Sögu við Hagatorg

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil