- Hefur þú áhuga á tungumálum og menningu þjóðarinnar?
- Viltu stuðla að notkun íslenskunnar?
- Sækist þú eftir launuðu starfsnámi á loka ári námsins?
- Viltu hafa réttindi til að kenna á þremur skólastigum?
- Viltu kenna íslensku?
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.
Námið skiptist í:
- Námskeið, einingafjöldi breytilegur eftir kjörsviði
- Vettvangsnám, einingafjöldi breytilegur eftir kjörsviði
- Meistaraverkefni, 30 einingar
Kjörsvið
Nemendur velja eitt af eftirtöldum kjörsviðum miðað við fyrra nám:
- Sérhæfing í kennslu íslensku í fimm ára kennaranámi (eftir B.Ed. próf)
- Sérhæfing í kennslu íslensku sem annars máls í fimm ára kennaranámi (eftir B.Ed. próf)
- Kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS-prófi
- Íslenska fyrir kennara með leyfisbréf
- Sérhæfing í kennslu íslensku sem annars máls fyrir kennara með leyfisbréf
Mikilvægt er að velja námsleið miðað við þá prófgráðu sem þú ert með, eða ert að ljúka, þegar sótt er um.
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku.
Námskeið eru ýmist kennd í fjar- eða staðnámi og er nemendum því bent á að kynna sér kennslufyrirkomulag hvers námskeiðs vel. Sjá skilgreiningar á mismunandi námsformi.
Helstu áherslur
Meðal viðfangsefna er:
- Íslenska
- Rannsóknaraðferðir
- Nám og kennsla
Meginmarkmið
Miðar að því að efla færni nemenda til kennslu og rannsókna.
Annað
- Námleiðin veitir rétt til þess að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
- Námið getur veitt aðgang að doktorsnámi.
Við inntöku í nám til M.Ed.-prófs gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra).
Námið byggir á lögum nr. 95/2019 um að við brautskráningu búi kennari með sérhæfingu á grunnskólastigi yfir sérhæfðri hæfni í faggrein / kennslugrein grunnskóla, að lágmarki 90 námseiningar. Kjörsvið sem leiða til kennsluréttinda eru skipulögð með fyrra nám umsækjenda í huga. Ef fyrra nám umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum úr grunnnámi til að uppfylla kröfur um lágmarksfjölda eininga í faggrein.
Ef umsækjandi um meistaranám sem leiðir til leyfisbréfs kennara hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Ljúka þarf 120 einingum til M.Ed.-prófs. Þar af skal meistaraprófsverkefni vera 30 einingar.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Vor
- Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum
- Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum
- Óháð misseri
- Sígildar sögur
- Mál í sögu og samtíð
- Bókmenntakennsla
- Námsmat og námskrá grunnskóla
- Ekki kennt á misserinuVettvangsnám í íslensku I
- Ekki kennt á misserinuVettvangsnám í íslensku II
- Málrækt og málfræðikennsla
- Ritlist og bókmenntir
- Félagsfræði og heimspeki menntunar
- Nám og kennsla í grunnskóla
Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F, MVS213F)
Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.
Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F, MVS213F)
Markmiðið er að nemendur
- hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
- þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
- geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
- séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
- hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun
Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.
Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.
Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir.
Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.
Sígildar sögur (ÍET102M, ÍET212F, ÍET213F)
Námskeiðið er helgað þjóðsögum og miðaldabókmenntum og miðlun slíkra texta kennslu. Rýnt verður í valdar þjóðsögur og fjölbreytta bókmenntatexta frá miðöldum, svo sem goðsögur, valin eddukvæði og tilteknar Íslendinga sögur. Fjallað verður um þennan sagnasjóð í alþjóðlegu samhengi. Einnig verða lesnar ýmiss konar bókmenntir þar sem sóttar hafa verið fyrirmyndir til fornra frásagna og hugað að tengslum við menningu og listir á líðandi stund.
Mál í sögu og samtíð (ÍET102M, ÍET212F, ÍET213F)
Í námskeiðinu verða tekin fyrir valin efni um breytileika tungumálsins og uppruna og skyldleika orða sem síðan verða tengd við kennslu í skólakerfinu. Viðfangsefnin og öll nálgun á þau verður tengd grunnþáttum menntunar, þ.m.t. læsi á samfélag og menningu í gegnum tungumálið.
Fjallað verður um mállýskubundinn mun meðal annars í framburði og orðaforða, orðsifjafræði, helstu lögmál sem málbreytingar lúta og drifkrafta þeirra. Litið verður til málþróunar út frá eðli máltöku með samanburði við önnur tungumál og sú þróun sett í samhengi við menningarlega þætti og breytileika í samfélagsgerð. Einnig verða viðteknar hugmyndir um sérstöðu íslensku meðal skyldra mála á borð við Norðurlandamálin og ensku skoðaðar í gagnrýnu ljósi.
Áhersla er lögð á virkni nemenda og sjálfstæða en um leið skapandi vinnu með fjölbreytt (rafræn) textagögn frá ólíkum tímum. Einnig fá nemendur tækifæri til að hanna verkefni út frá efni námskeiðsins og beita gagnrýninni nálgun á fyrirliggjandi námsefni.
Bókmenntakennsla (ÍET102M, ÍET212F, ÍET213F)
Markmið námskeiðsins er tvíþætt. Annars vegar er fjallað um aðferðir við bókmenntakennslu og lögð áhersla á fjölbreytni bókmennta og margvíslega möguleika á að tengja þær við ólík viðfangsefni. Fjallað verður um hvernig nýta má aðferðir bókmenntafræðinnar við bókmenntagreiningu- og túlkun til að ljúka upp bókmenntatextum fyrir nemendum og setja þá í semhengi við daglegan veruleika. Gegnum bókmenntir og bókmenntafræði er hægt að nálgast mismunandi tímabil, menningu, þjóðerni, tungumál og persónuleika.
Hins vegar verður fjallað um bókmenntakennslu í íslenskum grunnskólum, markmið aðalnámsskrár, tilgang bókmenntakennslu og þátt hennar í samfélagsmótun og almennri menntun. Ítarlega verður rættum val þeirra bókmennta sem kenndar eru í skólakerfinu. Forsendur þessa vals verða ígrundaðar og kannaðar meðal annars með samanburði við slíkt val í öðrum löndum.
Námsmat og námskrá grunnskóla (KME006F)
Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms.
Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.
Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.
Vettvangsnám í íslensku I (ÍET219F, ÍET220F)
Námskeiðið er vettvangsnámskeið og meginmarkmið þess er að stúdent efli enn frekar þekkingu sína á námsgreininni íslensku í grunnskóla og kennslufræði hennar og öðlist haldgóða kennslureynslu.
Inntak / viðfangsefni
- Lesnir verða fjölbreyttir textar um mál og bókmenntir.
- Fjallað um kennslugreinina íslensku í tengslum við lög og reglugerðir er varða íslenskukennslu í grunnskóla, skólanámskrá og bekkjarnámskrá.
- Fjallað um fjölbreyttar kennsluaðferðir, námsefni og námsmat í kennslugreininni íslensku í grunnskóla.
- Í vettvangsnáminu er lögð áhersla á að stúdent fái haldgóða reynslu af því undirbúa og útfæra kennslu á mið- og unglingastigi í málfræði og bókmenntum og beri ábyrgð á kennslunni.
Vettvangsnám í íslensku II (ÍET219F, ÍET220F)

Málrækt og málfræðikennsla (ÍET106F)
Markmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist almennan skilning á nýjustu þekkingu, kenningum, hugmyndafræði, hugtökum og aðferðum á sviði málræktar og kennslu í málfræði með sérstaka áherslu á aðstæður á Íslandi.
Unnið er með hugtök á borð við málstefnu, málstýringu, málstaðal og málvenju og viðteknar hugmyndir um rétt mál og rangt teknar til endurskoðunar. Auk þess verður fjallað um ólík viðhorf til kynhlutlauss máls og skiptar skoðanir um afskipti yfirvalda af nafngjöfum. Tiltækt kennsluefni verður skoðað í ljósi slíkra hugmynda.
Megináhersla er lögð á hvernig hægt sé að vekja ungmenni til umhugsunar um ábyrgð sína þegar kemur að tungumálinu og viðgangi þess um leið og hvatt er til umburðarlyndis í málfarsefnum. Þá fá kennaranemar þjálfun í að leiða umræður um málpólitísk álitamál.
Ritlist og bókmenntir (ÍET004M)
Inntak og viðfangsefni:
Fjallað verður um ýmsar bókmenntategundir og einkenni þeirra. Nemendur nálgast bókmenntir með því að skapa þær. Lesnar verða fræðigreinar um ritun og skapandi starfi fylgt eftir með fræðilegum tilvísunum og upplýsingum um hvernig nýta má þekkingu á ritlist í kennslu.
Markmið:
Nemendur læra um bókmenntir með því að búa þær til sjálfir. Fræðileg umfjöllun snýst um einkenni bókmennta og það hvernig beita má ritun sem aðferð við kennslu. Tekið er samhliða á kenningum um bókmenntir og því handverki sem einkennir allar bókmenntir.
Nemandi:
- les og greinir mismunandi gerðir bókmennta og kynnist einkennum þeirra.
- metur gildi þeirra fyrir nemendur grunnskóla.
- lærir um bókmenntir með því að skapa texta.
- les sér til í fræðiritum um ritun sem kennsluaðferð.
Vinnulag:
Nemendur skrifa heima í fjarsambandi við kennara. Í þremur staðlotum verða fræðilegir fyrirlestrar um ritlist og jafningjamat þar sem nemendur greina hver annars verk á sameiginlegum fundi.
Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)
Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Nám og kennsla í grunnskóla (KME102F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi.
Inntak / viðfangsefni:
Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms.
Í vettvangsnámi kynna kennaranemar sér starfshætti á ákveðnu námssviði eða faggrein sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Í vettvangsnámi er nema ætlað að sýna frumkvæði og virkni og taka þátt í öllu daglegu starfi eftir því sem við verður komið. Skilgreind kennsla fer eftir fjölda Ve.
- Annað ár
- Haust
- Nám og kennsla - fagmennska í starfi
- Vor
- Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein
- Lokaverkefni
Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.
Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Lokaverkefni (ÍET401L)
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu: Fræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni
- Vor
- MVS212F, MVS213FInngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðumBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMVS212F, MVS213FInngangur að megindlegum rannsóknaraðferðumBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið er að nemendur
- hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
- þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
- geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
- séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
- hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun
Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.
Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir.
Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
ÍET102M, ÍET212F, ÍET213FSígildar sögurBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er helgað þjóðsögum og miðaldabókmenntum og miðlun slíkra texta kennslu. Rýnt verður í valdar þjóðsögur og fjölbreytta bókmenntatexta frá miðöldum, svo sem goðsögur, valin eddukvæði og tilteknar Íslendinga sögur. Fjallað verður um þennan sagnasjóð í alþjóðlegu samhengi. Einnig verða lesnar ýmiss konar bókmenntir þar sem sóttar hafa verið fyrirmyndir til fornra frásagna og hugað að tengslum við menningu og listir á líðandi stund.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET102M, ÍET212F, ÍET213FMál í sögu og samtíðBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verða tekin fyrir valin efni um breytileika tungumálsins og uppruna og skyldleika orða sem síðan verða tengd við kennslu í skólakerfinu. Viðfangsefnin og öll nálgun á þau verður tengd grunnþáttum menntunar, þ.m.t. læsi á samfélag og menningu í gegnum tungumálið.
Fjallað verður um mállýskubundinn mun meðal annars í framburði og orðaforða, orðsifjafræði, helstu lögmál sem málbreytingar lúta og drifkrafta þeirra. Litið verður til málþróunar út frá eðli máltöku með samanburði við önnur tungumál og sú þróun sett í samhengi við menningarlega þætti og breytileika í samfélagsgerð. Einnig verða viðteknar hugmyndir um sérstöðu íslensku meðal skyldra mála á borð við Norðurlandamálin og ensku skoðaðar í gagnrýnu ljósi.
Áhersla er lögð á virkni nemenda og sjálfstæða en um leið skapandi vinnu með fjölbreytt (rafræn) textagögn frá ólíkum tímum. Einnig fá nemendur tækifæri til að hanna verkefni út frá efni námskeiðsins og beita gagnrýninni nálgun á fyrirliggjandi námsefni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET102M, ÍET212F, ÍET213FBókmenntakennslaBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er tvíþætt. Annars vegar er fjallað um aðferðir við bókmenntakennslu og lögð áhersla á fjölbreytni bókmennta og margvíslega möguleika á að tengja þær við ólík viðfangsefni. Fjallað verður um hvernig nýta má aðferðir bókmenntafræðinnar við bókmenntagreiningu- og túlkun til að ljúka upp bókmenntatextum fyrir nemendum og setja þá í semhengi við daglegan veruleika. Gegnum bókmenntir og bókmenntafræði er hægt að nálgast mismunandi tímabil, menningu, þjóðerni, tungumál og persónuleika.
Hins vegar verður fjallað um bókmenntakennslu í íslenskum grunnskólum, markmið aðalnámsskrár, tilgang bókmenntakennslu og þátt hennar í samfélagsmótun og almennri menntun. Ítarlega verður rættum val þeirra bókmennta sem kenndar eru í skólakerfinu. Forsendur þessa vals verða ígrundaðar og kannaðar meðal annars með samanburði við slíkt val í öðrum löndum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMeginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms.
Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.
Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuÍET219F, ÍET220FVettvangsnám í íslensku ISkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNámskeiðið er vettvangsnámskeið og meginmarkmið þess er að stúdent efli enn frekar þekkingu sína á námsgreininni íslensku í grunnskóla og kennslufræði hennar og öðlist haldgóða kennslureynslu.
Inntak / viðfangsefni
- Lesnir verða fjölbreyttir textar um mál og bókmenntir.
- Fjallað um kennslugreinina íslensku í tengslum við lög og reglugerðir er varða íslenskukennslu í grunnskóla, skólanámskrá og bekkjarnámskrá.
- Fjallað um fjölbreyttar kennsluaðferðir, námsefni og námsmat í kennslugreininni íslensku í grunnskóla.
- Í vettvangsnáminu er lögð áhersla á að stúdent fái haldgóða reynslu af því undirbúa og útfæra kennslu á mið- og unglingastigi í málfræði og bókmenntum og beri ábyrgð á kennslunni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET219F, ÍET220FVettvangsnám í íslensku IISkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNámskeiðið er vettvangsnámskeið og meginmarkmið þess er að stúdent efli enn frekar þekkingu sína á námsgreininni íslensku í grunnskóla og kennslufræði hennar og öðlist haldgóða kennslureynslu.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist almennan skilning á nýjustu þekkingu, kenningum, hugmyndafræði, hugtökum og aðferðum á sviði málræktar og kennslu í málfræði með sérstaka áherslu á aðstæður á Íslandi.
Unnið er með hugtök á borð við málstefnu, málstýringu, málstaðal og málvenju og viðteknar hugmyndir um rétt mál og rangt teknar til endurskoðunar. Auk þess verður fjallað um ólík viðhorf til kynhlutlauss máls og skiptar skoðanir um afskipti yfirvalda af nafngjöfum. Tiltækt kennsluefni verður skoðað í ljósi slíkra hugmynda.
Megináhersla er lögð á hvernig hægt sé að vekja ungmenni til umhugsunar um ábyrgð sína þegar kemur að tungumálinu og viðgangi þess um leið og hvatt er til umburðarlyndis í málfarsefnum. Þá fá kennaranemar þjálfun í að leiða umræður um málpólitísk álitamál.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingInntak og viðfangsefni:
Fjallað verður um ýmsar bókmenntategundir og einkenni þeirra. Nemendur nálgast bókmenntir með því að skapa þær. Lesnar verða fræðigreinar um ritun og skapandi starfi fylgt eftir með fræðilegum tilvísunum og upplýsingum um hvernig nýta má þekkingu á ritlist í kennslu.Markmið:
Nemendur læra um bókmenntir með því að búa þær til sjálfir. Fræðileg umfjöllun snýst um einkenni bókmennta og það hvernig beita má ritun sem aðferð við kennslu. Tekið er samhliða á kenningum um bókmenntir og því handverki sem einkennir allar bókmenntir.Nemandi:
- les og greinir mismunandi gerðir bókmennta og kynnist einkennum þeirra.
- metur gildi þeirra fyrir nemendur grunnskóla.
- lærir um bókmenntir með því að skapa texta.
- les sér til í fræðiritum um ritun sem kennsluaðferð.
Vinnulag:
Nemendur skrifa heima í fjarsambandi við kennara. Í þremur staðlotum verða fræðilegir fyrirlestrar um ritlist og jafningjamat þar sem nemendur greina hver annars verk á sameiginlegum fundi.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG106FFélagsfræði og heimspeki menntunarSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME102FNám og kennsla í grunnskólaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi.
Inntak / viðfangsefni:
Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms.
Í vettvangsnámi kynna kennaranemar sér starfshætti á ákveðnu námssviði eða faggrein sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Í vettvangsnámi er nema ætlað að sýna frumkvæði og virkni og taka þátt í öllu daglegu starfi eftir því sem við verður komið. Skilgreind kennsla fer eftir fjölda Ve.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
- KME301FNám og kennsla - fagmennska í starfiSkyldunámskeið20Skyldunámskeið á námsleiðinni20 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsing
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
FAG401FNám og kennsla – vettvangsnám í faggreinSkyldunámskeið15Skyldunámskeið á námsleiðinni15 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingLokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.

Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarAnnað ár- Vor

Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar