- Hefur þú áhuga á sögu og menningu þjóða?
- Viltu stuðla að betri tungumálakunnáttu?
- Sækist þú eftir launuðu starfsnámi á loka ári námsins?
- Viltu hafa réttindi til að kenna á þremur skólastigum?
- Viltu kenna tungumál?
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.
Nemendur velja eitt af eftirtöldum kjörsviðum miðað við fyrra nám:
- Enska í fimm ára kennaranámi (eftir B.Ed. próf)
- Danska í fimm ára kennaranámi (eftir B.Ed. próf)
- Kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS-prófi
- Erlend tungumál fyrir kennara með leyfisbréf
Mikilvægt er að velja námsleið miðað við þá prófgráðu sem þú ert með, eða ert að ljúka, þegar sótt er um.
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku, dönsku eða ensku.
Námskeið eru ýmist kennd í fjar- eða staðnámi og er nemendum því bent á að kynna sér kennslufyrirkomulag hvers námskeiðs vel. Sjá skilgreiningar á mismunandi námsformi.
Helstu áherslur
- Tungumálakennsla
- Menntun til sjálfbærni
- Rannsóknaraðferðir
Meginmarkmið
Meginmarkmið námsins er að efla þekkingu og færni þátttakenda í tungumálakennslu og kennslufræðum tengdum greinum þannig að þau verði betur í stakk búin að kenna tungumál.
Annað
Námleiðin veitir þér rétt til þess að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
- Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 en ljúka þarf gráðu af meistarastigi 2.2 ef sækja á um í doktorsnám. Námið veitir aðgang að námi á meistarastigi 2.2.
- Sjá M.Ed. nám í kennslu erlendra tungumála
Við inntöku í nám til MT-prófs gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra).
Námið byggir á lögum nr. 95/2019 um að við brautskráningu búi kennari með sérhæfingu á grunnskólastigi yfir sérhæfðri hæfni í faggrein / kennslugrein grunnskóla, að lágmarki 90 námseiningar. Kjörsvið sem leiða til kennsluréttinda eru skipulögð með fyrra nám umsækjenda í huga. Ef fyrra nám umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum úr grunnnámi til að uppfylla kröfur um lágmarksfjölda eininga í faggrein.
Ef umsækjandi um meistaranám sem leiðir til leyfisbréfs kennara hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Ljúka þarf 120 einingum til MT-prófs.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Vor
- Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga
- Óháð misseri
- Tölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumála
- Námsmat í tungumálanámi
- Hönnun skapandi námsefnis fyrir tungumálakennslu
- Félagsfræði og heimspeki menntunar
- Læsi í faggreinum
- Kennsluaðferðir leiklistar við tungumálakennslu og bekkjarstjórnun
Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)
Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.
Tölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumála (ÍET201M, ÍET001F, ÍET215F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að
- veita þátttakendum yfirsýn yfir og skilning á helstu kenningum og rannsóknum um tölvutengt tungumálanám.
- þátttakendur öðlist þekkingu og kunni skil á helstu kenningum og rannsóknum um rafræn læsi (digital literacies) og tungumálnam.
- þátttakendur fái tækifæri til að tengja saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu af tölvu og upplýsingartækni í tungumálakennslu.
Viðfangsefni:
Á námskeiðinu verður fjallað um áhríf upplýsingartækni á uppeldi, menntun og skólastarf. Lögð er áhersla á að fjalla um tölvustutt tungumála nám (CALL - Computer Assisted Language Learning) og áhríf og þróun þess síðastliðin 30 ár. Einnig verður fjallað um kenningar og rannsóknir er varðar notkun upplýsingartækni í tungumálanámi í skólastofunni í grunn- og framhaldsskóla. Ýmis forrit verða kynnt og skoðað hvernig má nýta þau til að þjálfa mismunandi þættir tungumálsins.
Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Nemendur fá margvísleg verkefni til úrlausnar og skila úrlausnum ýmist munnlega eða skriflega. Einnig munu þátttakendur vinna einir eða í hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Efnið gætu tengst nýtingu tölvu og veraldarvefsins i tungumálakennslu, rannsóknar- og þróunarstörfum, fjarkennslu erlendra tungumála, gerð rafræns námsefnis til notkunar í tungumálakennslu, vendinám, notkun spjaldtölvur í tungumálanámi o.fl. Nemendur vinna og skila rafræn ferilsmöppu.
Námsmat í tungumálanámi (ÍET201M, ÍET001F, ÍET215F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist
- þekkingu og skilning á nýjum námsmatskenningum og aðferðum í túngumálanámi.
- leikni í að skipuleggja þróunarverkefni og móta námsmatsáætlarnir.
Viðfangsefni:
Fjallað verður um ýmis lykilatriði í námsmati og prófagerð, hæfniþrep Aðalnámskrá og nýjar stefnur og strauma. Hefðbundið námsmatsaðferðir og stöðluð próf verða skoðaðir með gagnrýnum augum. Einnig verður fjallað um nýjar leiðir í námsmat, t.d. leiðsagnamat, heildrænt mat (authentic assessment), sjálfsmat, jafningjamat og mat byggt á náms- eða ferilsmöppum (portfolio).
Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Mikið verður lagt upp úr lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu, verkefnum sem lýkur með kynningu og málstofum. Lögð verður áhersla á að þátttakendur þróa eigin kennsluhætti og matsaðferðir.
Hönnun skapandi námsefnis fyrir tungumálakennslu (ÍET201M, ÍET001F, ÍET215F)
Námskeiðið Hönnun skapandi námefnis fyrir tungumálakennslu miðar að því að veita framtíðarkennurum færni og þekkingu til að skapa grípandi og áhrifaríkt námsefni. Í sífellt fjöltyngdara námsumhverfi er hæfileikinn til að kenna tungumál á skapandi og áhrifaríkan hátt lykilhæfni í samræmi við grunnstoðir menntunar í íslenskri aðalnámskrá. Í þessu námskeiði er lögð áhersla á nýsköpun í hönnun námsefnis og aðlögun á eldra námsefni til að stuðla að inngildingu, samvinnu, og fjölbreytni innan og utan kennslustofunnar. Með því að rýna kenningar og hagnýtar nálganir munu nemendur læra að þróa námsefni sem bæði eykur tungumálanám og stuðlar að virkni og hvata hjá nemendum. Námskeiðið tekur til margs konar þátta í hönnun námsefnis, svo sem stafrænna verkfæra, stafrænna miðla, og menningarnæms efnis, og tryggir þar með að framtíðarkennarar séu vel undirbúnir að mæta áskorunum tungumálanáms á 21. öld. Eitt af áherslusviðum námskeiðsins er að nemendur þrói hagnýtt námsefni fyrir tungumálanám sem þeir geti nýtt strax í eigin kennslu.
Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)
Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Læsi í faggreinum (ÍET214F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
Kennsluaðferðir leiklistar við tungumálakennslu og bekkjarstjórnun (ÍET204F)
Meginreglur tungumálakennslu, sérstaklega þegar þeim er beitt ásamt heildrænni og tjáskiptamiðað nálgun gagnvart tungumálanámi, fara vel saman við sameiginleg markmið bekkjarstjórnunar. Bekkjarstjórnun er alhliða hugtak sem vísar til margvíslegra aðgerða sem kennarar grípa til í skipulagningu gagnvart nemendum, efni, rými og tíma til að ná námsmarkmiðum sínum. Tengslamyndun, samskipti, þátttökuaðferðir og uppbygging skilvirks námsumhverfis eru allt þættir í bekkjarstjórnun (Stanzione & Mackenzie, bls. 4-5) og tungumálakennslu. Nýting leiklistartækni til að ná samræmdum markmiðum tungumálakennslu og bekkjarstjórnunar gerir það mögulegt að þróa hagnýta kunnáttu og þekkingu sem kemur bæði kennurum og nemendum til góða. Meðal röksemda fyrir því að beita leiklistaraðferðum til að bæta tungumálanám og bekkjarstjórnun eru eftirfarandi:
- Það er tilvalin leið til að hvetja nemendur til tjáningar sem nýtist í daglegu lífi.
- Það gerir tungumálanám virka hvatningarupplifun.
- Það hjálpar nemendum að auka það sjálfstraust sitt og sjálfsálit sem þarf til að beita tungumálinu án umhugsunar og í samvinnu við aðra.
- Það gerir tungumálanám eftirminnilegt með beinni þátttöku.
- Það örvar vitsmuni, ímyndunarafl og sköpunargáfu nemenda.
- Það ýtir undir getu nemenda til að finna til samkenndar með öðrum og tjá sig betur (Alvarado, 2017).
- Annað ár
- Haust
- Nám og kennsla - fagmennska í starfi
- Vor
- Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein
- Óháð misseri
- Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda
- Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum
Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.
Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda (ÍET206F)
Fjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (MAL102F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
- Óháð námsári
- Óháð misseri
- Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi
Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
- Vor
- FAG201FMenntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytingaSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
ÍET201M, ÍET001F, ÍET215FTölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumálaBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að
- veita þátttakendum yfirsýn yfir og skilning á helstu kenningum og rannsóknum um tölvutengt tungumálanám.
- þátttakendur öðlist þekkingu og kunni skil á helstu kenningum og rannsóknum um rafræn læsi (digital literacies) og tungumálnam.
- þátttakendur fái tækifæri til að tengja saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu af tölvu og upplýsingartækni í tungumálakennslu.
Viðfangsefni:
Á námskeiðinu verður fjallað um áhríf upplýsingartækni á uppeldi, menntun og skólastarf. Lögð er áhersla á að fjalla um tölvustutt tungumála nám (CALL - Computer Assisted Language Learning) og áhríf og þróun þess síðastliðin 30 ár. Einnig verður fjallað um kenningar og rannsóknir er varðar notkun upplýsingartækni í tungumálanámi í skólastofunni í grunn- og framhaldsskóla. Ýmis forrit verða kynnt og skoðað hvernig má nýta þau til að þjálfa mismunandi þættir tungumálsins.Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Nemendur fá margvísleg verkefni til úrlausnar og skila úrlausnum ýmist munnlega eða skriflega. Einnig munu þátttakendur vinna einir eða í hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Efnið gætu tengst nýtingu tölvu og veraldarvefsins i tungumálakennslu, rannsóknar- og þróunarstörfum, fjarkennslu erlendra tungumála, gerð rafræns námsefnis til notkunar í tungumálakennslu, vendinám, notkun spjaldtölvur í tungumálanámi o.fl. Nemendur vinna og skila rafræn ferilsmöppu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuÍET201M, ÍET001F, ÍET215FNámsmat í tungumálanámiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist
- þekkingu og skilning á nýjum námsmatskenningum og aðferðum í túngumálanámi.
- leikni í að skipuleggja þróunarverkefni og móta námsmatsáætlarnir.
Viðfangsefni:
Fjallað verður um ýmis lykilatriði í námsmati og prófagerð, hæfniþrep Aðalnámskrá og nýjar stefnur og strauma. Hefðbundið námsmatsaðferðir og stöðluð próf verða skoðaðir með gagnrýnum augum. Einnig verður fjallað um nýjar leiðir í námsmat, t.d. leiðsagnamat, heildrænt mat (authentic assessment), sjálfsmat, jafningjamat og mat byggt á náms- eða ferilsmöppum (portfolio).Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Mikið verður lagt upp úr lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu, verkefnum sem lýkur með kynningu og málstofum. Lögð verður áhersla á að þátttakendur þróa eigin kennsluhætti og matsaðferðir.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuÍET201M, ÍET001F, ÍET215FHönnun skapandi námsefnis fyrir tungumálakennsluBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið Hönnun skapandi námefnis fyrir tungumálakennslu miðar að því að veita framtíðarkennurum færni og þekkingu til að skapa grípandi og áhrifaríkt námsefni. Í sífellt fjöltyngdara námsumhverfi er hæfileikinn til að kenna tungumál á skapandi og áhrifaríkan hátt lykilhæfni í samræmi við grunnstoðir menntunar í íslenskri aðalnámskrá. Í þessu námskeiði er lögð áhersla á nýsköpun í hönnun námsefnis og aðlögun á eldra námsefni til að stuðla að inngildingu, samvinnu, og fjölbreytni innan og utan kennslustofunnar. Með því að rýna kenningar og hagnýtar nálganir munu nemendur læra að þróa námsefni sem bæði eykur tungumálanám og stuðlar að virkni og hvata hjá nemendum. Námskeiðið tekur til margs konar þátta í hönnun námsefnis, svo sem stafrænna verkfæra, stafrænna miðla, og menningarnæms efnis, og tryggir þar með að framtíðarkennarar séu vel undirbúnir að mæta áskorunum tungumálanáms á 21. öld. Eitt af áherslusviðum námskeiðsins er að nemendur þrói hagnýtt námsefni fyrir tungumálanám sem þeir geti nýtt strax í eigin kennslu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG106FFélagsfræði og heimspeki menntunarSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET204FKennsluaðferðir leiklistar við tungumálakennslu og bekkjarstjórnunSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginreglur tungumálakennslu, sérstaklega þegar þeim er beitt ásamt heildrænni og tjáskiptamiðað nálgun gagnvart tungumálanámi, fara vel saman við sameiginleg markmið bekkjarstjórnunar. Bekkjarstjórnun er alhliða hugtak sem vísar til margvíslegra aðgerða sem kennarar grípa til í skipulagningu gagnvart nemendum, efni, rými og tíma til að ná námsmarkmiðum sínum. Tengslamyndun, samskipti, þátttökuaðferðir og uppbygging skilvirks námsumhverfis eru allt þættir í bekkjarstjórnun (Stanzione & Mackenzie, bls. 4-5) og tungumálakennslu. Nýting leiklistartækni til að ná samræmdum markmiðum tungumálakennslu og bekkjarstjórnunar gerir það mögulegt að þróa hagnýta kunnáttu og þekkingu sem kemur bæði kennurum og nemendum til góða. Meðal röksemda fyrir því að beita leiklistaraðferðum til að bæta tungumálanám og bekkjarstjórnun eru eftirfarandi:
- Það er tilvalin leið til að hvetja nemendur til tjáningar sem nýtist í daglegu lífi.
- Það gerir tungumálanám virka hvatningarupplifun.
- Það hjálpar nemendum að auka það sjálfstraust sitt og sjálfsálit sem þarf til að beita tungumálinu án umhugsunar og í samvinnu við aðra.
- Það gerir tungumálanám eftirminnilegt með beinni þátttöku.
- Það örvar vitsmuni, ímyndunarafl og sköpunargáfu nemenda.
- Það ýtir undir getu nemenda til að finna til samkenndar með öðrum og tjá sig betur (Alvarado, 2017).
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
- KME301FNám og kennsla - fagmennska í starfiSkyldunámskeið20Skyldunámskeið á námsleiðinni20 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsing
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
FAG401FNám og kennsla – vettvangsnám í faggreinSkyldunámskeið15Skyldunámskeið á námsleiðinni15 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
ÍET206FÍslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemendaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMAL102FNám og kennsla: Að mæta sérþörfumSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
- FAG101MJafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár- Vor

Óháð námsári- Vor