""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á að taka 60 einingar í íslensku sem öðru máli samhliða annarri námsleið?
  • Viltu læra góða íslensku?
  • Viltu getað skrifað og talað íslensku vel?
  • Hefur þú gaman af íslenskum bókmenntum og menningu?

Þessi námsleið er einkum ætluð þeim sem hafa fræðilegan áhuga á íslensku máli, bókmenntum og menningu. 

Nám í íslensku sem öðru máli er kjörin leið fyrir þá sem vilja fá fræðilega eða hagnýta þekkingu á íslensku. Þú færð nauðsynlegan grunn og fræðilega þekkingu í íslensku máli og menningu til að leggja stund á frekara íslenskunám. 

Inntökupróf fyrir umsækjendur

Nauðsynleg hæfni til að standast þetta próf jafngildir því að ljúka Icelandic Online 1 og 2, sjálfsnámsnámskeiðum sem er að finna ókeypis á netinu, eða ljúka 5 þrepum í íslensku í tunngumálaskóla á Íslandi.

Prófið fer fram fyrstu vikuna í júní í Háskóla Íslands. Þau sem ekki geta tekið prófið við Háskóla Íslands þurfa að þreyta það á prófstöð á Íslandi. Nánari upplýsingar verða sendar umsækjendum.

Meðal viðfangsefna

  • Málfræði og beygingarfræði
  • Íslenskt mál og menning
  • Íslenskar bókmenntir, þjóðsögur og þjóðtrú
  • Setningafræði og talþjálfun

Annars vegar er um að ræða tungumálanám þar sem nemendur fá kennslu og þjálfun í að skrifa, tala og skilja nútímaíslensku. Hins vegar almennt fræðilegt nám um íslenska tungu, bókmenntir og sögu Íslands. Fjallað er um beygingakerfi, setningakerfi og hljóðkerfi íslensks nútímamáls.

Nemendur lesa fornbókmenntir og nútímabókmenntir og fjallað er um sögu Íslands og samfélag. Þýðingafræði og þýðingum eru gerð nokkur skil og einnig annars máls fræði þar sem íslenska er í forgrunni.

Markmið

Nemendur eiga að loknu námi:

  • að hafa fengið nauðsynlegan grunn og fræðilega þekkingu á íslensku máli og menningu til að leggja stund á frekara íslenskunám
  • að hafa tileinkað sér sjálfstæði, víðsýni og gagnrýna hugsun sem nýtist þeim í námi og starfi

Kennslutilhögun

Kennsla fer fram í fyrirlestrum, smærri hópum og umræðutímum. Einnig eru heimaverkefni mikilvægur þáttur kennslunnar í flestum námskeiðum.

Tímasókn er hófleg en heimavinna er mikil og slíkt krefst sjálfstæðra og agaðra vinnubragða og gagnrýninnar hugsunar. Námsmat er af ýmsum toga: skrifleg og munnleg próf, framsaga í tímum, ritgerðir og önnur verkefni.

Aðrar mögulegar námsleiðir

Hagnýtt gildi

Margir hafa haldið áfram námi í íslensku eða skyldum greinum í heimalandi sínu eða hérlendis, enda veitir kunnátta í íslensku, byggð á fræðilegum grunni, mikla möguleika til frekara náms og rannsókna á mörgum sviðum málvísinda og bókmennta.

Aðrir hafa sest hér að, lagt íslensku samfélagi lið og auðgað það. Innflytjendur með traust og góð tök á tungumálinu og almenna þekkingu á íslenskri menningu eru líklegri til þess að aðlagast vel og dafna í íslensku samfélagi.

Umsóknarfrestur

Athugið að aðeins er tekið við umsóknum fyrir nám að hausti. Umsóknarfrestur er 1. febrúar ár hvert.

Nemendur með íslenska kennitölu geta einnig sótt um BA-nám á íslenska umsóknartímabilinu, frá 1. mars til 20. maí, í gegnum umsóknagátt Háskóla Íslands.

Vinsamlegast athugaðu að þetta nám krefst ekki sönnunar á enskukunnáttu eins og öll önnur alþjóðlegar námsleiðir krefjast.

Styrkir

Mennta- og viðskiptaráðuneyti Íslands veitir árlega um 12 námsstyrki til nemenda frá erlendum háskólum til að stunda nám í BA-námi í íslensku sem öðru tungumáli við Háskóla Íslands. Styrktaráætlunin er í umsjón Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Styrkir eru veittir fyrir tímabilið frá 1. september til 31. maí ár hvert.

Erlent ígildi íslensks stúdentsprófs. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.  Auk þess þurfa nemendur að sýna fram á færni í íslensku á stigi A2+ samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Allir umsækjendur skulu standast sérstakt inntökupróf í íslensku. Upplýsingar um inntökuprófið eru aðgengilegar hér.

Umsækjendur sem hafa lokið Hagnýta diplóma náminu í íslensku sem öðru máli með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) árið 2022 eða síðar, eru undanþegnir inntökuprófinu.

Í inntökuprófi reynir á færni sem er þjálfuð í Íslensku 1, 2, 3, 4 og 5 hjá framhaldsfræðsluaðilum eins og t.d. Mími. Til að undirbúa sig fyrir prófið geta nemendur t.d. skoðað Icelandic Online I og II sem opið er á Netinu (https://icelandiconline.com/) eða bækurnar Íslenska fyrir alla 1-4

Til aukagreinarinnar íslensku sem annars máls teljast námskeiðin Íslenskt mál I og II, Talþjálfun I og II og Málfræði I og II, alls 60 einingar. Nemendur þurfa að hafa lokið minnst 60 einingum í aðalgrein sinni ásamt því að standast inntökupróf áður en kennsla hefst á haustmisseri til þess að eiga þess kost að geta skráð sig í aukagreinina Íslenska sem annað mál.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Málfræði I (ÍSE102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður ítarlega í grundvallarþætti íslenskrar málfræði og megináhersla lögð á algengustu og reglulegustu beygingar fallorða (nafnorða, greinis, lýsingarorða og fornafna) og tíðbeygingu sagnorða. Fallstjórn, sambeyging, hljóðkerfis- og hljóðbeygingarreglur og reglur um orðaröð eru jafnframt til umfjöllunar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Íslenskt mál I (ÍSE103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér orðaforða með lestri, ritun og verkefnavinnu í tengslum við afmörkuð efni. Fjallað er um orðmyndun og sérstök áhersla lögð á samsett orð. Í námskeiðinu eru lesnir ýmiss konar textar, bæði nytjatextar og bókmenntatextar, smásögur og skáldsögur. Málnotkun er þjálfuð með margs konar ritunaræfingum og verkefnum. Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku og undirbúnings nemenda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Talþjálfun I (ÍSE105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Megináhersla er lögð á munnlega tjáningu, grunnatriði íslensks framburðar og skilning á töluðu máli. Fjallað er um íslenskt hljóðkerfi og sérstök áhersla lögð á sérhljóð. Farið er í framburð á einstökum orðum og einföldum setningum og hugað að áherslu og tónfalli. Nemendur fá þjálfun í talmáli (einræðu og samræðu) og lögð er áhersla á algenga samskiptafrasa og notkun daglegs máls. Skilningur á mæltu máli er þjálfaður með verkefnavinnu undir leiðsögn kennara. Krafist er virkrar þátttöku og góðs undirbúnings fyrir tímana.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Málfræði II (ÍSE201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald námskeiðsins Málfræði I þar sem farið var yfir ýmsa grundvallarþætti íslenskrar málfræði. Haldið áfram að auka enn frekar við þá þekkingu í byggingu málsins sem nemendur öfluðu sér þar. Þannig verða fleiri beygingarflokkar nafnorða kynntir og jafnframt verður mikil áhersla lögð á sagnir og notkun þeirra. Rætt verður um myndun og notkun stigbreyttra lýsingarorða auk þess sem áhersla verður lögð á fornöfn og notkun þeirra, jafnt eftir formi og merkingu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Íslenskt mál II (ÍSE204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Megináhersla verður lögð á lestur fjölbreytts efnis og ritun. Lesnar verða skáldsögur og smásögur auk efnis úr fjölmiðlum og unnið að ritun styttri og lengri texta. Áfram verður unnið að því að byggja upp og dýpka orðaforða og auka nákvæmni í ritun. Lögð verður áhersla á aukinn lesskilning og hugað að myndun orða, þá sérstaklega er lýtur að afleiddum orðum. Þannig verður unnið að auknum lesskilningi og fjölbreyttri notkun málsins. Áhersla verður lögð á að nemendur þekki og noti stuðningsmiðla við ritun, s.s. orðabækur. Að auki verður unnið með uppbyggingu ritsmíða og fræðilega ritun. Með lestri skáldverka verður og hugað að aukinni þekkingu á íslensku umhverfi og menningu. Krafist er virkrar þátttöku nemenda og undirbúnings þeirra fyrir kennslustundir.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Talþjálfun II (ÍSE205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Megináhersla er lögð á munnlega tjáningu, grunnatriði íslensks framburðar og skilning á töluðu máli. Fjallað er um íslenskt hljóðkerfi og sérstök áhersla lögð á samhljóð. Farið er í framburð og hugað að áherslu og tónfalli. Nemendur fá þjálfun í talmáli (einræðu og samræðu) og lögð er áhersla á rennsli og skoðanaskipti. Skilningur á mæltu máli er þjálfaður með verkefnavinnu undir leiðsögn kennara. Krafist er virkrar þátttöku og góðs undirbúnings fyrir tímana.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár
  • Haust
  • ÍSE102G
    Málfræði I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður ítarlega í grundvallarþætti íslenskrar málfræði og megináhersla lögð á algengustu og reglulegustu beygingar fallorða (nafnorða, greinis, lýsingarorða og fornafna) og tíðbeygingu sagnorða. Fallstjórn, sambeyging, hljóðkerfis- og hljóðbeygingarreglur og reglur um orðaröð eru jafnframt til umfjöllunar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE103G
    Íslenskt mál I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér orðaforða með lestri, ritun og verkefnavinnu í tengslum við afmörkuð efni. Fjallað er um orðmyndun og sérstök áhersla lögð á samsett orð. Í námskeiðinu eru lesnir ýmiss konar textar, bæði nytjatextar og bókmenntatextar, smásögur og skáldsögur. Málnotkun er þjálfuð með margs konar ritunaræfingum og verkefnum. Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku og undirbúnings nemenda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE105G
    Talþjálfun I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Megináhersla er lögð á munnlega tjáningu, grunnatriði íslensks framburðar og skilning á töluðu máli. Fjallað er um íslenskt hljóðkerfi og sérstök áhersla lögð á sérhljóð. Farið er í framburð á einstökum orðum og einföldum setningum og hugað að áherslu og tónfalli. Nemendur fá þjálfun í talmáli (einræðu og samræðu) og lögð er áhersla á algenga samskiptafrasa og notkun daglegs máls. Skilningur á mæltu máli er þjálfaður með verkefnavinnu undir leiðsögn kennara. Krafist er virkrar þátttöku og góðs undirbúnings fyrir tímana.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ÍSE201G
    Málfræði II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er framhald námskeiðsins Málfræði I þar sem farið var yfir ýmsa grundvallarþætti íslenskrar málfræði. Haldið áfram að auka enn frekar við þá þekkingu í byggingu málsins sem nemendur öfluðu sér þar. Þannig verða fleiri beygingarflokkar nafnorða kynntir og jafnframt verður mikil áhersla lögð á sagnir og notkun þeirra. Rætt verður um myndun og notkun stigbreyttra lýsingarorða auk þess sem áhersla verður lögð á fornöfn og notkun þeirra, jafnt eftir formi og merkingu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE204G
    Íslenskt mál II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Megináhersla verður lögð á lestur fjölbreytts efnis og ritun. Lesnar verða skáldsögur og smásögur auk efnis úr fjölmiðlum og unnið að ritun styttri og lengri texta. Áfram verður unnið að því að byggja upp og dýpka orðaforða og auka nákvæmni í ritun. Lögð verður áhersla á aukinn lesskilning og hugað að myndun orða, þá sérstaklega er lýtur að afleiddum orðum. Þannig verður unnið að auknum lesskilningi og fjölbreyttri notkun málsins. Áhersla verður lögð á að nemendur þekki og noti stuðningsmiðla við ritun, s.s. orðabækur. Að auki verður unnið með uppbyggingu ritsmíða og fræðilega ritun. Með lestri skáldverka verður og hugað að aukinni þekkingu á íslensku umhverfi og menningu. Krafist er virkrar þátttöku nemenda og undirbúnings þeirra fyrir kennslustundir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE205G
    Talþjálfun II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Megináhersla er lögð á munnlega tjáningu, grunnatriði íslensks framburðar og skilning á töluðu máli. Fjallað er um íslenskt hljóðkerfi og sérstök áhersla lögð á samhljóð. Farið er í framburð og hugað að áherslu og tónfalli. Nemendur fá þjálfun í talmáli (einræðu og samræðu) og lögð er áhersla á rennsli og skoðanaskipti. Skilningur á mæltu máli er þjálfaður með verkefnavinnu undir leiðsögn kennara. Krafist er virkrar þátttöku og góðs undirbúnings fyrir tímana.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Með góða þekkingu á íslensku máli getur þú starfað:

  • Á íslenskum vinnumarkaði
  • Í ferðaþjónustu
  • Við inn- og útflutning

Listinn er ekki tæmandi

  • Huldumál er félag nemenda í íslensku sem öðru máli
  • Félagið stuðlar að virku félagslífi og gætir hagsmuna sinna félagsmanna

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Hana Sterikova
Mér finnst námið bæði krefjandi og spennandi. Öll námskeiðin eru frá byrjun kennd á íslensku, sem getur verið erfitt fyrir fólk sem er nýlega komið til Íslands og hefur ekki sérstaklega mikla kunnáttu í íslensku. Maður þarf að undirbúa sig mjög vel og helst að læra á hverjum degi, ef maður vill ná árangri, en það margborgar sig fljótlega. Þemun í námskeiðunum eru mjög fjölbreytt þannig að námið verður skemmtilegra. Nemendur læra ekki bara málfræði, hljóðfræði og að tala nútímaíslensku í praktísku lífi, heldur er líka alltaf eitthvað nýtt um íslenska menningu og landafræði, bragfræði, sögu Íslands, fornsögur eða eddukvæði. Ég kann vel að meta þessa blöndu af verklegu og bóklegu námi.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil