Nemendur í hjúkrun æfa sig á brúðu
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
1 1/2 - 3 ár
Námsform
Blönduð námsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Viltu efla þig í starfi?
  • Langar þig að auka sérhæfingu þína?
  • Hefurðu áhuga á að auka stjórnunar hæfni þína?
  • Viltu leggja áherslu á rannsókir á sviði hjúkrunar?
  • Langar þig að fara í fjölbreytt og sveigjanlegt nám?

Í meistaranámi í hjúkrunarfræði velja nemendur á milli þess að leggja áherslu á klíníska sérhæfingu, hjúkrunarstjórnun eða rannsóknarþjálfun.

Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám í eitt og hálft ár eða sem hlutanám til allt að fjögurra ára.

Áhersla á klíníska sérhæfingu.

Meistaranám á klínískum kjörsviðum (oft nefnd klíníska leiðin) byggir á hugmyndum um þróun sérfræðinga frá Bandaríkjunum, en hefur verið aðlagað að íslenskum aðstæðum. Nemendum gefst tækifæri til að þróa sérhæfingu í mismunandi sérgreinum hjúkrunar með vali á milli fjölmargra kjörsviða.

Þau sem velja klínísku leiðina hafa fyrst og fremst áhuga á að styrkja sig í klínísku starfi og stefna mörg að því að sækja um sérfræðileyfi.

Lögð er áhersla á sveigjanleika og leitast er við að gefa nemandanum tækifæri til að efla þekkingu sína á ákveðnum sérsviðum. Námið felur í sér þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og stór hluti þess er fólginn í vinnu nemanda að eigin rannsóknarverkefni.

Valnámskeið geta verið innan Hjúkrunarfræðideildar, í öðrum deildum HÍ eða öðrum háskólum.

Áhersla á hjúkrunarstjórnun.

Þekking í hjúkrunarstjórnun og forystu er mikilvæg öllum hjúkrunarfræðingum og hefur áhrif á gæði heilbrigðisþjónustunnar. Í náminu er lögð áhersla á að dýpka þekkingu, skilning og færni nemenda og undirbúa þau til starfa sem stjórnendur og leiðtoga í hjúkrun.

Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:

  • Rekstur og mannauðsstjórnun: Kjörsviðið er fyrir þau sem hafa áhuga á að starfa við stjórnun og forystu stofnana og skipulagsheilda í heilbrigðisþjónustu.
  • Forysta og verkefnastjórnun: Kjörsviðið er fyrir þau sem hafa áhuga á að starfa við stjórnun og forystu ákveðinna málaflokka og verkefna í heilbrigðisþjónustu.

Valnámskeið geta verið innan Hjúkrunarfræðideildar, í öðrum deildum HÍ eða öðrum háskólum.

Áhersla á rannsóknarþjálfun.

Í náminu er áhersla lögð á að nemendur öðlist fræðilega þekkingu á ákveðnu sérsviði hjúkrunar og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum. Auk þess að styrkja færni sína í rannsóknastörfum og þróunarverkefnum gefst nemendum möguleiki á þátttöku í spennandi klínískum rannsóknum með helstu fræðimönnum landsins í hjúkrunarfræði.

Áður en sótt er um námið þarf að semja við væntanlegan leiðbeinanda um leiðsögn í meistaraverkefni og eftir að nám er hafið þarf að leggja fram rannsóknaráætlun í samvinnu við leiðbeinanda sem rannsóknanámsnefnd þarf að samþykkja áður en framkvæmd rannsóknar hefst.

Æskilegt er að valnámskeið séu valin í samráði við leiðbeinanda.

Meginmarkmið

Markmið námsins er að efla fræðilega þekkingu í hjúkrunarfræði, þjálfa hjúkrunarfræðinga í vísindalegum vinnubrögðum og auka færni þeirra á völdu áherslusviði.

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku og flestar kennslubækur eru á ensku.
Námið er að jafnaði skipulagt sem blandað nám með tveimur staðkennslulotum á misseri og fjarkennslu að öðru leyti. Skyldumæting er í staðkennslulotur.

Í sumum tilvikum getur verði um stað- og fjarnám að ræða samtímis í fjarkennsluvikum. Að jafnaði er kennt aðra hvora viku og er gert ráð fyrir rauntímafjarkennslu en nemendum er bent á að kynna sér vel kennslutilhögun hvers námskeiðs.

Nemendum er jafnframt bent á að þau námskeið sem kennd eru í öðrum deildum eru að öllum líkindum kennd með öðrum hætti og er það á ábyrgð nemenda að kynna sér tilhögun þeirra.

Annað

Námið veitir aðgang að doktorsnámi

Til að innritast í meistaranám við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild þarf stúdent að hafa lokið BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands eða öðru sambærilegu prófi, með að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn og hafa gilt íslenskt hjúkrunarleyfi. Jafnframt þarf nemandi að búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu. Kennsla fer fram á íslensku.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda framhaldsnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku. Nánari upplýsingar má finna hérna: Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands

Athugið að umsækjendur sem hafa ekki lokið sambærilegu BS prófi í hjúkrunarfræði og frá HÍ (240e) en eru með íslenskt hjúkrunarleyfi, gætu þurft að bæta við sig forkröfunámi til að ljúka þeim einingum sem vantar upp á til að geta sótt um í framhaldsnám við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Væntanlegum umsækjendum er því bent á að snúa sér til Matsskrifstofu HÍ til að fá nám sitt metið.

Athugið að kjörsviðin skurðhjúkrun (eldri leið) og svæfingahjúkrun (eldri leið) er aðeins fyrir nemendur sem hafa lokið við viðbótardiplómanám í skurðhjúkrun og svæfingahjúkrun.

Meistaranám í hjúkrunarfræði er 120 einingar. Miðað er við að í eðlilegri námsframvindu sé lengd meistaranáms eitt og hálft ár og að jafnaði ekki lengra en fjögur ár. Við brautskráningu skal sýnt að stúdent hafi verið skráður og greitt skráningargjald allan námstímann.

Þeir sem koma í meistaranám geta fengið allt að 30 einingar metnar úr BS námi sínu frá Háskóla Íslands eða úr sambærilegu námi ef þeir hafa náð að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn á BS próf (fyrir utan nemendur í skurðhjúkrun og svæfingahjúkrun). Athugið að frá og með skólaárinu 2027-2028 fellur þessi heimild um að fá allt að 30 einingar metnar úr gildi. Þá velja nemendur um að taka 120 eininga meistaranám eða 90 eininga meistaranám. Fyrirkomulag þess náms verður kynnt í kennsluskrá 2027-2028.

Nemandi getur sótt um að fá metin námskeið úr sambærilegu námi á meistarastigi, sem hann hefur stundað utan Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar en tengist þó fræðasviði hans.

Námið felur í sér þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og stór hluti þess er fólginn í vinnu nemanda að eigin rannsóknarverkefni. Stærð rannsóknarverkefnis er ákveðin í námsáætlun og skal vera minnst 30 einingar en mest 60 einingar. Aðrar einingar fást með þátttöku í skyldu- og valnámskeiðum.

Að öllu jöfnu getur nemandi í meistaranámi ekki tekið meira en 15 einingar í sérsniðnum lesnámskeiðum. Lesnámskeið getur verið á rannsóknasviði sem tengist lokaverkefni stúdents en er ekki hluti af aðalverkefni hans.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Fyrsta ár | Haust
Hagnýt tölfræði (HJÚ135F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að dýpka þekkingu nemenda í hagnýtri tölfræði. Fengist verður við tölfræðilega úrvinnslu, s.s. meðaltalsmun háðra og óháðra hópa, tíðnimun milli hópa, aðhvarfs- og dreifigreiningu og tölfræðilegt mat á áreiðanleika og réttmæti mælitækja. Mikilvægt er að nemendur öðlist skilning á tölfræðilegum hugtökum og ólíkum úrvinnsluaðferðum. Nemendum gefst meðal annars kostur á að vinna með raunveruleg gögn í ólíkum gagnasöfnum.

Fyrirkomulag
Námið fer fram á formi fyrirlestra og dæma-/umræðutíma.
Kennt verður aðra hverja viku – í sex vikur samtals.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Þekkingarþróun í hjúkrunarfræði (HJÚ143F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður rætt um hugmyndir og hugtök sem hafa mótað skilning ólíkra samfélaga á heilbrigðisþjónustu og hjúkrun. Áhrifamiklar hugmyndir í hjúkrunarfræði verða kynntar og ræddar og leitast verður við að varpa ljósi á það hvernig skilningur á eðli hjúkrunar mótaðist og breyttist á tuttugustu öldinni. Einnig verður fjallað um þekkingu í hjúkrun og þróun hennar. Stefnur í þekkingarþróun verða kynntar og leitast verður við að benda á styrkleika og veikleika þeirra. Farið verður yfir aðferðir við að greina og meta fræðilegan texta og nemendur fá tækifæri til að beita þeim í umfjöllun um rannsóknir. Sérstök áhersla verður lögð á að greina hugtök og kenningar sem höfundar byggja á í rannsóknum sínum og hið fræðilega samhengi sem mótar þau verður skoðað.

Lágmarksfjöldi nemenda: 15.

Fyrirkomulag kennslu
Kennt verður aðra hverja viku – í sex vikur samtals. Í hverri lotu fara fram fyrirlestrar, hópvinna og kynningar á hóp- og einstaklingsverkefnum.

Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Málstofa í hjúkrunarfræði (HJÚ0AIF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Eigindleg aðferðafræði (HJÚ253F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið miðar að því að kynna heimspekilegan og fræðilegan grunn eigindlegra aðferða og útfærslu og beitingu þeirra rannsókna í  hjúkrunar- og ljósmóðurfræði, ásamt því að auka færni í hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna á eigin sérsviði.

Nemandinn leggur fram fróðlegar greinar innan eigin sérsviðs sem notaðar verða í umræðum um eigindlegar aðferðir. Til að þjálfa framkvæmd eigindlegrar rannsóknar verða gagnvirkar vinnusmiðjur. Jafnframt verður fjallað um álitamál sem tengjast eigindlegum rannsóknum, s.s. þagnarskyldu, réttmæti og alhæfingargildi rannsóknarniðurstaðna, ásamt þjálfun í rannsóknarrýni.

Í námskeiðinu verður lögð sérstök áhersla á að kynna nemendum fyrirbærafræði, eigindlega efnisgreiningu (þ.á m. þemagreiningu vs. kóðun og afleiðsla vs. aðleiðsla), vettvangsrannsóknir (etnografíu), einstaklingsviðtöl og hópviðtöl, blandaðar aðferðir og „action research“.

Verkefni sem unnin eru á námskeiðinu skulu vera á klínísku sérsviði nemenda, þau skulu unnin í samvinnu við umsjónarkennara nemanda og stuðla með því að markvissri þekkingarþróun á eigin sérsviði. Nemendur bera ábyrgð á að hafa samband við sinn umsjónarkennara í tengslum við sín verkefni.

Fyrirkomulag kennslu:
Námskeiðið er kennt í sex lotum. Nemendur er einnig boðið upp á „skriftarbúð“ á meðan námskeiðið stendur. Mætingaskylda (80%) er í kennslustundir og kennt langan dag í hvert sinn. Námið fer fram með fyrirlestrum og umræðufundum. Nemendur koma lesnir í kennslustundir, taka virkan þátt í umræðum og gera grein fyrir afmörkuðu efni sem tengist umfjöllun dagsins.

Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Klínísk lífeðlis- og meinafræði (HJÚ0AQF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðsins er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á lífeðlisfræðilegum ferlum og meinafræðilegum breytingum í starfsemi mannslíkamans sem orsaka sjúkdóma. Fjallað verður um algenga sjúkdóma á mismunandi æviskeiðum lífsins með áherslu á orsakir, undirliggjandi meinalífeðlisfræðilegar breytingar, klínísk einkenni, sjúkdómsferli, greiningu, og meðferð. Jafnframt verður fjallað um eðlilegar breytingar á lífeðlisfræðilegum ferlum öldrunar og áhrif þeirra á starfsemi líffæra og líffærakerfa á efri árum. Í námskeiðinu verður notast við fjölþættar kennsluaðferðir þar sem áhersla er lögð á virka þáttöku nemenda og yfirfærslu þekkingar yfir á klínískar aðstæður.  

Barnahjúkrun I: Heilbrigðisþjónusta, lýðheilsa og sérhæfð greining og meðferðarleiðir í hjúkrun barna - Lesnámskeið (HJÚ0AJF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið miðar að því að dýpka þekkingu þátttakenda á aðstæðum barna og þáttum sem hafa áhrif á heilsu þeirra og veikindi í samhengi samfélags og fjölskyldunnar.

Meginþemu námskeiðsins verða:

  1. Hugmyndafræði;
  2. Lýðheilsa og heilsuefling
  3. Viðbrögð við bráðum veikindum
  4. Viðbrögð við langvinnum veikindum
  5. Hlutverk heilbrigðiskerfisins og hjúkrunar í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Námskeiðið veitir kennslu í sérhæfðum aðferðum við greiningu hjúkrunarviðfangsefna hjá börnum og foreldrum og hjúkrunarmeðferð þeim tengdri, s.s. vegna sársauka, líkamlegs og andlegs álags og röskunar, röskunar á sjálfsáliti, skynjunar og skilnings á aðstæðum, röskunar í líkamskerfum, háska, þarfa foreldra ofl. Nemandi fær innsýn í eðli sértækra fyrirbæra í barnahjúkrun í samhengi við klínísk viðfangsefni innan sem utan stofnana. Nemandi lærir aðferðir til að greina á milli algengra eiginleika barna og foreldra og þeirra birtingarforma sem teljast til frávika í samhengi aldurs og þroska barna, aðstæðna og þarfa og bjargráða foreldra. Sérstök áhersla er lögð á samskipta- og tjáskiptaaðferðir og samvinnu við börn og foreldra.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Hagnýting megindlegrar aðferðafræði (HJÚ252F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða vísindaleg vinnubrögð kynnt þar sem sérstök áhersla er lögð á kerfisbundna fræðilega samantekt sem er hornsteinn gagnreyndra vinnubragða. Auk þess verða megin rannsóknarsniðin sem stuðst er við í klínískum rannsóknum í heilbrigðisvísindum rædd og greind. Í kerfisbundnu fræðilegu samantektinni fáið þið þjálfun í að setja fram skýra rannsóknarspurningu eða rannsóknaspurningar og að styðjast við PICO viðmiðið til að setja saman leit með leitarorðum úr rannsóknarspurningunni/unum. Auk þess verður lögð áhersla á styðjast við PRISMA yfirlýsinguna um það hvernig setja eigi fram niðurstöður úr kerfisbundinni fræðilegri samantekt til að auðkenna, velja og gagnrýna viðeigandi rannsóknir sem og til að safna og greina rannsóknirnar sem mæta inntökuskilyrðum fræðilegu samantektarinnar. Þið fáið þjálfun í að meta gæði rannsókna m.a. út frá Joanna Briggs Institute handbókinni. Lögð er sérstök áhersla á að kynna ykkur þversniðsrannsóknir, langtíma rannsóknir og þróun hálf- staðlaðra og staðlaðra tilraunarannsókna.  Í meðferðarrannsóknum verður m.a., fjallað um samhæfingu rannsóknarviðfangsefna út frá rannsóknaspurningum og tilgátum við þá aðferðafræði sem stuðst er við, þ.e., við úrtaksstærð, snið, mælingar, úrvinnslu gagna og hrifstærð (effect size). Lögð verður sérstök áhersla á að þið öðlist innsæi í kröfur um byrtingar rannsóknarniðurstaðna í alþjóðlegum tímaritum og um hagnýtingu þeirra innan hjúkrunarfræðinnar. 

Annað ár | Haust
Hjúkrun á sérsviði I (HJÚ158F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Þar af 2 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um hlutverk og hugmyndafræðilegan grunn sérfræðihjúkrunar. Nemendur fá innsýn í hvað einkennir sérfræðihjúkrun: klínísk störf, kennslu og fræðslu, ráðgjöf, leiðtogahlutverk, upplýsingatækni og nýtingu gagna og rannsókna-, gæða- og umbótastörf. Lögð er áhersla á að þjálfa nemendur í notkun sérhæfðra klínískra aðferða við upplýsingaöflun og mat á líkamlegu og andlegu ástandi sjúklinga.

Fyrirkomulag kennslu
Kennt verður í lotum samkvæmt skipulagi  meistaranáms í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Hluti námskeiðsins er klínískur og er sá hluti skipulagður í samráði við umsjónarkennara.

Lokaverkefni (HJÚ441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lokaverkefni

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

Annað ár | Vor
Hjúkrun á sérsviði II - Þróun meðferða og þjónustu (HJÚ269F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur tileinka sér þekkingu um hjúkrun sem starfsmiðaða fræðigrein og beita henni við útfærslur á gagnreyndum meðferðarheildum/meðferðum/þjónustuformum sem mæta flóknum og sértækum þörfum skjólstæðinga.

Nemendur þjálfa ákvarðanatöku, framkvæmd og mat á meðferðarheildum (practice/service) og sértækum hjúkrunarmeðferðarformum (interventions) fyrir tiltekinn skjólstæðingahóp.

Nemendur skoða áherslur í forvörnum á eigin sérsviði og samþætta við fyrirhugað sérsvið.

Óháð námsári | Haust
Áhrifavaldar heilbrigðis, forvarnir og heilsuefling (LÝÐ104F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Stærstu áhættuþættir ótímabærra dauðsfalla svo sem hár blóðþrýstingur, tóbaksnotkun, yfirþyngd og hreyfingarleysi valda um 22 milljónum dauðsfalla árlega á heimsvísu. Bæta mætti allt að 5 árum við meðalaldur jarðarbúa með því að draga hóflega úr algengi átta algengstu áhættuþáttanna. Markmið námskeiðsins er að undirbúa nemendur fyrir þetta viðfangsefni og skiptast áherslur í nokkra meginþætti:

1. Áhrifavaldar heilbrigðis: Hvaða þættir hafa mest áhrif á heilsu og heilbrigði?

2. Aðferðafræði:

a) Hvernig skipuleggjum við forvarnar- og heilsueflingarverkefni?

b) Hvar er hagkvæmast að byrja? Hagfræðileg greining á inngripum.

c) Hvernig höfum við jákvæð áhrif á atferli einstaklinga? Líkön í atferlisfræði, áhugahvetjandi samtöl, atferlishagfræði, samskiptafræði og félagsleg markaðsfærsla.

d) Hvernig höfum við áhrif á ,,kerfið”? Hagsmunagæsla (lobbyismi), bréfaskrif til þingmanna, umfjöllun í fjölmiðlum.

3. Nánari umfjöllun um helstu viðfangsefni: háþrýsingur, sykursýki, hjarta- og æðasjúkdomar, næring og mataræði, ofþyngd og offita, hreyfing, tóbaksvarnir, krabbamein, áfengi og vímuefni, slysavarnir, umhverfi og atvinna, geðrækt og sjálfsvígsforvarnir, kynheilbrigði og sjálfsmynd, sértækar lausnir fyrir börn og unglinga.

Framsetning: Fyrirlestrar umsjónarkennara og valinna gestafyrirlesara sem eru meðal fremstu sérfræðinga þjóðarinnar á sínu sviði. Lagt verður upp úr umræðum, virkni og þátttöku nemenda í tímum. Einnig vinna nemendur hópverkefni þar sem þeir kynna sér til hlítar valinn áhættuþátt og gefa tillögur að úrbótum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Hugræn atferlismeðferð á tímum lífsbreytinga (HJÚ169F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Megintilgangur námskeiðsins er að kynna fræðilega undirstöðu og klínískar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem gagnast einstaklingum og hópum sem standa frammi fyrir krefjandi lífsbreytingum t.d. tengt veikindum, áhættuþáttum geðheilbrigðis, streitu, þroskaverkefnum og aðstæðum. Sérstaklega verður tekið mið af kenningum Meleis o.fl. um lífsbreytingar og hugrænni atferlismeðferð samkvæmt Aaron Beck. Leitast verður við að nemendur skoði sína eigin faglegu og, eftir atvikum, persónulegu reynslu og úrvinnslu lífsbreytinga samkvæmt ofangreindri lífsbreytingakenninguLögð verður áhersla á virkni nemenda og samvinnu þar sem unnið verður ýmist með eigin reynslu, tilbúin dæmi eða skjólstæðing(a). Miðað er við að nemendur hljóti grunnþjálfun í að beita aðferðum sem byggja á hugrænni atferlismeðferð til að fást við atferli og vanlíðan s.s. streitu, kvíða og þunglyndi með stuttum og markvissum inngripum. Unnið verður sérstaklega með einstaklingshæft mat samkvæmt aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar meðal annars til að greina áhrif lífsbreytinga á einstaklinga sem og gagnreyndar aðferðir til íhlutunar. Notkun hugsanaskráa og markviss athafnavirkjun samkvæmt hugrænni atferlismeðferð verður kynnt og æfð í færnibúðum og í vinnu með skjóstæðingi/skjólstæðingum . Einnig verða ræddar aðferðir til að takast á við líkamleg einkenni vanlíðunar samkvæmt bestu þekkingu s.s. með hreyfingu, núvitund og öndunaræfingum. Kennsla fer fram í fjórum til sex lotum. Sérfræðingar á sviði hugrænnar atferlismeðferðar verða gestakennarar í námskeiðinu. 

Námsmat fer fram með einstaklingsverkefnum og gerð er krafa um 80% mætingar í námskeiðinu

Stuðningur við fullorðna í samfélaginu (HJÚ0BGF)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er áhersla á uppbyggingu þekkingar og færni á faglegu mati og viðbrögðum aðstæðna hjá eldra fólki í samfélaginu. Nemendur nýta þessa þekkingu við útfærslu á stuðningi og umönnun þeirra sem búa við heilsubrest og/eða færniskerðingu vegna langvinnra veikinda eða öldrunarbreytinga. Unnið verður með útfærslu á hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar sem finna má í klínískum leiðbeiningum og fræðilegum samantektum. Nemendur fá þjálfun í að hanna stuðningsleiðir við ólíkar aðstæður í þjónustu; t.d. á göngudeildum, í heilsugæslu og í heimaþjónustu með áherslu á fólk með langvinnan heilsuvanda og/eða hrumt eldra fólk. Fjallað verður um áhrif aðstæðna á heimili, skipulag þjónustu, samþættingu og notkun velferðartækni.

Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Heilsa og forvarnir einstaklinga með langvinna sjúkdóma (HJÚ0AVF)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um forvarnir hjá fólki með langvinna sjúkdóma s.s. krabbamein, lungnasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, hjarta – og æðasjúkdóma o.fl. í samræmi við heilbrigðisstefnu Íslands.

Áhersla er á 2. og 3. stigs forvarnir hjá þeim hópum. Stuttlega er fjallað um faraldsfræði algengra langvinnra sjúkdóma, áhættuþætti og tengsl við  1., 2. og 3. stigs forvarnir.

Hugtök og kenningar tengdar forvörnum verða kynntar og rætt um árangursríkar, gagnreyndar aðferðir til sjálfsumönnunar. Hluti námskeiðsins lýtur sérstaklega að reykleysismeðferð. Verkefni í námskeiðinu taka mið af áhugasviði/sérsviði nemenda.

Námskeiðið er kennt í lotum samkvæmt skipulagi Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar á seinni hluta misseris. Gert er ráð fyrir að námskeiðið hefjist um miðjan október.

Lyfjafræði fyrir hjúkrunarfræðinga (HJÚ159F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að hjúkrunarfræðingar þekki og skilji virkni lyfja sem geri þeim kleift að meðhöndla lyf og flóknar lyfjagjafir til sjúklinga innan og utan sjúkrahúsa á öruggan og ábyrgan hátt.

Í námskeiðinu er með fyrirlestrum og  umræðutímum kynnt virkni, lyfhrif, lyfjahvörf, ábendingar og frábendingar hjarta- og æða-lyfja, sýklalyfja, meltingarfæralyfja, innkirtlalyfja, hormónalyfja, taugalyfja, verkjalyfja og öndunarfæralyfja auk lyfjaforma. Áhersla er á að leysa flókin klínísk dæmi í hjúkrun sjúklinga innan og utan sjúkrahúsa þar sem þekking á virkni, auka-, milli-, og sam-verkunum lyfja og lyfjaforma er þjálfuð.

Námskeiðið er ætlað hjúkrunarfræðingum í framhaldsnámi í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.

Kennarar eru lyfjafræðingar, sérfræðilæknar og sérfræðingar í hjúkrun.

Gjörgæsluhjúkrun I (HJÚ160F)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum yfirsýn yfir grunnþætti gjörgæsluhjúkrunar með áherslu á þróun þekkingarfræðilegs grunns í gjörgæsluhjúkrun. Megin atriði er að nemendur þekki meðferð sem styður útkomu gjörgæslusjúklinga. Áhersla er á hjúkrunarmeðferð klínískt flókinna sjúklinga.Verkefni sem unnin eru í námskeiðinu skulu stuðla sem mest að markvissri þekkingarþróun nemanda á eigin sérsviði og samkvæmt verkefnalýsingum námskeiðsins. 

Faraldsfræði, útbreiðsla smitsjúkdóma og sóttvarnir (HJÚ162F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðsins er að kynna hjúkrunarfræðingum fyrir faraldsfræði smitsjúkdóma og aðferðum til að meta og stemma stigu við útbreiðslu þeirra; þeim lögum og reglugerðum sem ná yfir opinberar sóttvarnarráðstafanir; og starfsemi ónæmiskerfisins í tengslum við sýkingar og virkni bóluefna.

Í námskeiðinu verður fjallað um smitsjúkdómafaraldsfræði, sögu fræðigreinarinnar og helstu hugtakaskilgreiningar. Nemendur fá kynningu á nálgun orsaka, faraldsfræðilegum rannsóknaraðferðum og þeim mæliaðferðum sem notaðar eru til að skilgreina og meta útbreiðslu smitsjúkdóma. Rætt verður um notkun tölfræði í faraldsfræði, kerfisbundna skekkjuvalda í rannsóknum og aðferðir til að koma í veg fyrir þá. Fjallað verður um tegundir faraldra, viðbrögð við hópsýkingum og vöktun á tíðni smitsjúkdóma. Þá fá nemendur einnig kynningu á sóttvarnarlögum og reglugerð um sóttvarnarráðstafanir; hlutverki opinberra stofnana eins og embætti Sóttvarnarlæknis; og samstarfi við Almannavarnir og heilbrigðisstofnanir þegar tekist er á við heilbrigðisvá. Einnig er fjallað um siðferðisleg álitamál tengt lögbundnum aðgerðum til að stemma stigu við útbreiðslu smitsjúkdóma. Að lokum fá nemendur kennslu um ræsingu ósértæka og sértæka ónæmiskerfisins í tengslum við algenga smitsjúkdóma og virkni bóluefna.

Gert er ráð fyrir því að kennsla geti farið fram bæði í fjar- og staðarnámi eftir aðstæðum nemenda, og/eða stöðu heimsfaraldurs Covid-19.

Óháð námsári | Vor
Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun (HJÚ801F)
Valnámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar á starfsumhverfi heilbrigðisstofnana. Hið síbreytilega starfsumhverfi gerir enn meiri kröfur til hjúkrunarfræðinga um færni í leiðtogahlutverkinu, að þeir hugsi hnattrænt ekki síður en staðbundið og tileinki sér aðferðir frumkvöðla í stjórnun og forystu.

Kennslutungumál: Enska

Geðlyfjafræði fyrir fagfólk í heilbrigðisvísindum (HJÚ0AFF)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið kynnir hugtök og þekkingu á sviði taugafræði og geðlyfjafræði og hvernig þau nýtast skjólstæðingum sem fá lyfjameðferð vegna geðrænna raskana. Sérstök áhersla er lögð á að nota nýjustu þekkingu innan geðlyfjafræðinnar fyrir notendur geðheilbrigðisþjónustunnar á mismunandi vettvangi.

Námskeiðið verður bæði lotu- og staðnám.

Sérhæfð fjölskylduhjúkrun (HJÚ0ADF)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að gefa hjúkrunarfræðingum sem og öðrum fagaðilum tækifæri á að auka hæfni sína í að meta og útfæra hugmyndafræði fjölskyldumiðaðrar nálgunar. Stuðst verður m.a. við hugmyndafræði Calgary og aðrar fjölskyldukenningar sem hún byggir á. Auk þess verður áhersla lögð á að þróa klíníska færni fagaðila í að sinna einstaklingum og fjölskyldum þeirra sem fást við  ýmsa sjúkdóma, raskanir og eða áföll.  Í ljósi þess verður sérstök áhersla á, að vinna með aðlögun, tengsl, bjargráð, virkni, tilfinningar, hegðun, samskipti, færni, álag og viðhorf fjölskyldumeðlima.

Samskiptakenningar og hugmyndafræði Wright og Bell (2021) og Wright og Leahey (2023) um breytt tengsl fjölskyldumeðlima vegna langvinnra eða bráðra sjúkdóma og eða áfalla og hugmyndafræði um samvinnu við fjölskyldur á klínískum vettvangi er meðal þess efnis sem farið verður yfir.  Megin áhersla á námskeiðinu er á gagnreynda starfshætti fjölskyldumiðaðrar þjónustu og á þróun meðferðarsamræðna við fjölskyldur. Unnið er meðal annars með áhrif viðhorfs fjölskyldumeðlima, viðhorf fagaðila og samspil þeirra á milli.  Ítarleg umfjöllun verður um undirbúning og framkvæmd fjölskylduviðtala sem meðferðarform og þróun styrkleikamiðaðrar meðferðar fyrir fjölskyldur.    

Námskeiðinu er ætlað að gefa nemendum tækifæri á að þróa eigin færni í að aðstoða fjölskyldur við aðlögun og/eða takast á við alvarleg veikindi, röskun og áföll og á þann hátt að virkja og styrkja fjölskyldur í eigin eflingu. Sérstök áhersla verður lögð á einstaklingsbundna þjálfun þar sem nemendur fá persónulega leiðbeiningu um framkvæmd og aðferðir meðferðarsamræðna við fjölskyldumeðlimi.    

Námsmat er í formi einstaklingsverkefna þar sem um próflausan áfanga er að ræða er gerð krafa um 80% mætingu á námskeiðið. 

Stjórnun í heilbrigðisþjónustu (HJÚ259F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemandi öðlist fræðilega og hagnýta þekkingu á viðfangsefnum stjórnunar og búa þá undir hlutverk stjórnenda í heilbrigðisþjónustu. Áhersla er lögð á hlutverk stjórnenda, mannauðsstjórnun, teymisvinnu, vinnuumhverfi, þjónustu við sjúklinga, gæði og öryggi. Leitast er við að taka fyrir hagnýt viðfangsefni heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi í nútíð og framtíð og þannig efla fræðilega og hagnýta hæfni nemandans.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við University of Minnesota og er COIL námskeið (Collaborative Online International Learning) sem felur í sér sameiginlegt kennsluefni og verkefni með kennurum og nemendum í DNP námi í forystu í hjúkrun. Aðalsamstarfskennari við University of Minnesota er dr. Stephanie Gingerich, lektor við University of Minnesota.

Forysta í heilbrigðisþjónustu (HJÚ258F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist fræðilega og hagnýta þekkingu á viðfangsefnum forystu og búa þá undir hlutverk leiðtoga í heilbrigðisþjónustu. Áhersla er lögð á hlutverk leiðtoga í klíník, stjórnun og kennslu. Námskeiðinu er ætlað að búa nemendur undir forystuhlutverk í starfi. Farið er í lykilþætti forystu í heilbrigðisþjónustu staðbundið og í alþjóðlegu samhengi. Fjallað verður um ýmis hugtök, kenningar og hugmyndafræði forystu almennt. Enn fremur verður fjallað um hlutverk og hegðun leiðtoga og hlutverk leiðtoga í breytingaferlinu. Áhersla er á forystuhlutverk heilbrigðisstarfsmanna innan heilbrigðisstofnana og í samfélaginu, staðbundið og í alþjóðlegu samhengi, nú og til framtíðar. Lögð er áhersla á hnattræna framtíðarsýn og frumkvæði.

Fyrirkomulag
Staðlotur og vefkennsla.

Sérhæfð geðhjúkrun - Lesnámskeið (HJÚ0ABF)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita nemandanum fræðilega og klíníska færni í aðferðum sem beitt er í sérhæfðri geðhjúkrun og sálfélagslegri meðferð, sem og fræðilega þekkingu er varðar þær kenningar og rannsóknir sem liggja til grundvallar meðferð geðrænna vandamála og áhættuþátta.

Námskeiðið skiptist í klíníska fræðilega þjálfun og fræðilegt nám með sjálfstæðum vinnubrögðum og skoðun kenninga og fræðilegra forsenda íhlutana.

Áhersla verður lögð á að tengja rannsóknir og kenningar við íhlutanir og skoða árangur þeirra. Einnig gefst nemendum kostur á að veita íhlutun á klínískum vettvangi og skoða, með markvissum hætti, árangur hennar.

Leiðsögn fer fram í umræðutímum þar sem nemendur hafa sjálfstætt framlag og taka virkan þátt í faglegum umræðum.

Bráðahjúkrun - mat og meðferð (HJÚ271F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur þessa námskeiðs er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á orsökum bráðra og alvarlegra sjúkdóma og færni í mati og meðferð mikið veikra sjúklinga. Í námskeiðinu er meðal annars fjallað um bráð vandamál tengd smitsjúkdómum, eitrunum og fjöláverkum, mat á bráðveikum, endurlífgun, öndunarbilun, bráð vandamál i miðtaugakerfi, nýrnavandamál, vökva- og elektrólýtatruflanir, sýklasótt og lost. Lögð er áhersla á að kenna nemendum mat á alvarlegu ástandi sjúklinga og fyrstu viðbrögð við því. Í þeim tilgangi verður sérstök áhersla á klínískar leiðbeiningar og verkferla, gagnreynda klíníska þekkingu, þjálfun í færni og eflingu hæfni nemenda í bráðum aðstæðum.

Verklag í vísindum (LÝÐ202F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir hagnýta leiðsögn við undirbúning rannsóknar. Heimildaöflun, tilgátuþróun og gerð yfirlitsgreinar (systematic critical review) á fræðasviði fyrirhugaðaðrar rannsóknar. Nemendur fá einnig þjálfun í að vinna rannsóknaráætlun og kynna hana.

Námskeiðið er ætlað nemendum á meistara- eða doktorsstigi sem hafa valið sér svið/rannsóknarspurningu lokaverkefnis. 

Nemendur í MPH námi í lýðheilsuvísindum og MS námi í faralds- og líftölfræði verða að standast námskeiðið áður en vinna við lokaverkefni hefst.

Óháð námsári | Óháð misseri
Hjúkrun nýrnasjúklinga I (HJÚ0BLF)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir yfirsýn og dýpri skilning á bráðum og langvinnum nýrnasjúkdómum, faraldsfræði, áhættuþáttum, fylgikvillum og meðferð, ásamt færni í líkamsmati á einkennum tengdum vanstarfsemi í nýrum. Fjallað verður um fyrirbyggingu og seinkun framgangs nýrnasjúkdóma ásamt sértækri lyfjafræði þar sem áhersla er á lyf sem hafa áhrif á starfsemi nýrna, auk greiningar á vökva- og elektrólýta jafnvægi tengd minnkraðri starfsgetu nýrna, eftirlit og meðferðir tengdar skilunarmeðferð. Jafnframt verður fjallað um sértæk næringarvandamál nýrnasjúklinga.

Námskeiðið leggur grunn að klínískri, fræðilegri og ígrundandi færni sem nýtist við sérhæfða hjúkrun sjúklinga með nýrnasjúkdóma og við þróun hjúkrunar á þessu sviði.

Kennsla byggist á blandaðri nálgun og notast við fyrirlestra, umræður, ígrundun og verkefni.

Rekstur og heilbrigðisþjónusta (HJÚ142F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í fræðilega nálgun ýmissa hagrænna þátta sem hafa áhrif á starfsumhverfi í heilbrigðisþjónustu. Þessir þættir eru óumflýjanlegir í öllum rekstri stórum og smáum, hvort sem er opinber rekstur eða einkarekstur.  Í námskeiðinu er farið yfir með hvaða hætti þættirnir birtast og hvernig hægt er að hafa áhrif á þá rekstrinum til góða.  Meðal hugtaka sem farið verður yfir:

  • Framboð, eftirspurn, framleiðsluþættir, teygni
  • Breytilegur-, fastur-, beinn- og óbeinn kostnaður.
  • Áhrif skattheimtu og utanaðkomandi áhrif. Einkagæði og sameiginleg gæði.
  • Viðskipti og hlutfallslegir yfirburðir. Hringrás efnahagslífsins.
  • Framfærslukostnaður, vísitölur og þjóðhagsreikningar.
  • Fjárhagsbókhald, rekstrar- og efnahagsreikningur.
  • Rekstrarbókhald, mismunandi rekstrargreiningar.

Líknarmeðferð (HJÚ263F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðsins er líknarmeðferð þar sem megin áhersla er á lífsgæði sjúklinga með lífsógnandi sjúkdóma og fjölskyldna þeirra, meðferð og umönnun við lífslok sem stuðlar að jákvæðri upplifun af lífslokum.  

Umfjöllun verður um líknarmeðferð bæði sem hugmyndafræði og meðferð. Fjallað verður um líknarmeðferð fyrir mismunandi sjúklingahópa og  lögð verður áhersla á mat og meðferð helstu einkenna,  sálfélagslegan stuðning við sjúkling og fjölskyldu, tjáskipti og samskipti, siðfræðileg álitamál, sorg og sorgarúrvinnslu. 

Áhersla verður lögð á grundvallarþætti líknarmeðferðar og útfærslu þeirra í klínísku starfi og farið verður yfir nýjustu stefnumótun varðandi útfærslu á líknameðferð innan heilbrigðiskerfis. Nemendur verða hvattir til að spegla nýja þekkingu við klínískt starf og miðað er við að námskeiðið nýtist vel í klínísku starfi.

Ráðgjöf um getnaðarvarnir - lyfjaávísanir (HJÚ157F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Þar af 1 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Almenn umfjöllun er um lög og reglur varðandi lyfjaávísanir og ábyrgðarskyldu heilbrigðisstarfsmanna. Farið er í lyfjafræði hormónagetnaðarvarna út frá áhrifum þeirra á líkamann og milliverkun lyfja. Gerð er grein fyrir helstu frábendingum getnaðarvarna og hvað skuli varast við ávísun þeirra. Lögð er áhersla á heilsufarssögu og fleiri áhrifaþætti (viðhorf, þekkingu, reynslu...) er varða upplýsta ákvörðun um val á getnaðarvörnum. Fjallað er um verkun prógesteróns og estrógens á líkamann, gerður samanburður á samsettum getnaðarvörnum og prógesterón getnaðarvörnum , kostum þeirra, aukaverkunum og meðhöndlun þeirra. Veitt er kennsla um kynheilbrigði, kynlífsvanda og kynsjúkdóma.

Nemendur fá þjálfun í ráðgjöf um getnaðarvarnir þar sem að miklu leiti er byggt á klínískum tilfellum. Þeir æfa sig við að beita aðferðum sem geta skipt sköpum til að ná árangri með ráðgjöfinni og stuðlað getur að markvissri notkun getnaðarvarna. Fjallað er um mismunandi áherslur viðtala eftir sérhópum. Fram fer sýnikennsla í uppsetningu á hormónastaf og lykkju og nemendur fá tækifæri til að æfa sig í þeim handbrögðum.

ATH: Fræðilegi hluti námskeiðsins er kenndur í 5 daga lotu. Námskeiðið nær yfir fimm vikur og á þeim tíma þurfa nemendur að skila tveimur verkefnum og taka rafrænt lokapróf.
Skyldumæting í tvo umræðufundi sem og í sýnikennslu. 

Mat og hjúkrunarmeðferð lungnasjúklinga (HJÚ0BKF)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir yfirsýn og dýpri skilning á hjúkrun lungnasjúklinga frá forvörnum til meðferðar, endurhæfingar og eftirfylgdar. Fjallað er um faraldsfræði og áhættuþætti lungnasjúkdóma, skimun og greiningarferli, túlkun á rannsóknarniðurstöðum tengdum starfsemi öndunarfæra, mat og meðferð á einkennum tengdum öndun, helstu meðferðarform og áhrif sjúkdóms og meðferðar á líkamlega, andlega og félagslega heilsu sjúklinga. Fjallað verður um öndunarþjálfun og öndunarstuðning, skjólstæðingsmiðaða hjúkrun sjúklinga og fjölskyldur og kennslu og eftirlit með innöndunarlyfjanotkun sjúklinga ásamt tóbaksvörnum. Teymisvinna og hjúkrun innan og utan bráðameðferðar verður útfærð sérstaklega.

Námskeiðið leggur grunn að klínískri, fræðilegri og ígrundandi færni sem nýtist við sérhæfða hjúkrun sjúklinga með lungnasjúkdóma og við þróun hjúkrunar á þessu sviði.

Kennsla byggist á blandaðri nálgun þar sem nýjustu rannsóknir og klínískar leiðbeiningar eru tengdar dæmum úr klínísku starfi. Notast er við fyrirlestra, umræður, ígrundun og verkefni.

Inngangur að sérhæfðri krabbameinshjúkrun: forvarnir, greining, meðferð og eftirfylgd (HJÚ173F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir yfirsýn og dýpri skilning á hjúkrun sjúklinga með krabbamein, frá forvörnum og snemmgreiningu til meðferðar, endurhæfingar og eftirfylgdar. Fjallað er um faraldsfræði og áhættuþætti krabbameina, skimun og greiningargerli, helstu meðferðarform og áhrif sjúkdóms og meðferðar á líkamlega, andlega og félagslega heilsu sjúklinga.

Áhersla er lögð á sérhæft hlutverk hjúkrunarfræðinga í greiningar- og meðferðarferli sjúklinga, þ.m.t. klínískt mat, einkennameðferð, fræðslu, teymisvinnu og stuðning við sjúklinga og aðstandendur. Rýnt er í klínískar leiðbeiningar, nýjustu rannsóknir og gagnreynda nálgun í krabbameinshjúkrun, auk þess sem fjallað er um siðferðileg álitaefni sem tengjast greiningu, meðferð og ákvarðanatöku.

Námskeiðið leggur grunn að klínískri, fræðilegri og ígrundandi færni sem nýtist við sérhæfða hjúkrun sjúklinga með krabbamein og við þróun hjúkrunar á þessu sviði.

Klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun nýbura, barna og fullorðinna I (HJÚ0AZF)
Valnámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Þar af 7 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Annað hvert ár (oddatala árs) bjóða gjörgæsludeildir Landspítala (gjörgæsla fullorðinna og barna E6 Fossvogi og 12B Hringbraut, Nýburagjörgæsla 23D Barnaspítala) klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun þeim hjúkrunarfræðingum sem fastráðnir eru á fyrrnefndar gjörgæsludeildir og skráðir í fullt MS nám í gjörgæsluhjúkrun við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ. Hægt er að velja milli þess að taka klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun til 30 ECTS eða fá metnar 30 ECTS úr BS námi í hjúkrunarfræði upp í MS námið. Klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun eru 950 klukkustundir sem skiptast milli fjögurra samliggjandi anna, 237 klst. á haustönn og 238 klst. á vorönn. Aðeins er tekið við tilteknum fjölda nemenda vegna takmarkaðrar getu sjúkrastofnana til að veita nemendum klíníska starfsþjálfun.

Grunnmeðferð bráðveikra barna (HJÚ0APF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lýsing á námskeiðinu á íslensku: Markmið námskeiðsins er að kenna mat á bráðveikum börnum og fyrstu meðferð og stuðning við bráðaástand. Þetta er tveggja daga námskeið með fyrirlestrum og færnistöðvum og kennarar eru sérfræðingar í bráða- og gjörgæslulækningum og hjúkrun barna. Sérstök kennslubók er notuð (Paediatric BASIC) og rafrænt mat á efni námskeiðsins fer fram í vikunni áður en námskeiðið er haldið. Í lok seinni dags námskeiðsins er krossapróf án gagna. Áherslan í kennslu er á eftirfarandi: teymisvinna, mat á bráðveikum börnum, öndunarvegur, öndun, öndunarbilun, öndunarvélameðferð, blóðrásartruflanir, meðferð við blóðsýkingu, fjöláverkar, taugamat, nýrnabilun, næring og sjúklingaflutningur.

Þetta er tveggja daga námskeið með fyrirlestrum og færnistöðvum og kennarar eru sérfræðingar í bráða- og gjörgæslu-lækningum og -hjúkrun barna. Í lok seinni dags námskeiðsins er krossapróf án gagna. Áherslan í kennslu er á eftirfarandi: teymisvinna, mat á bráðveikum börnum, öndunarvegur, öndun, öndunarbilun, öndunarvélameðferð, blóðrásartruflanir, meðferð við blóðsýkingu, fjöláverkar, taugamat, nýrnabilun, næring og sjúklingaflutningur.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Klínísk lífeðlis- og meinafræði (HJÚ0AQF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðsins er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á lífeðlisfræðilegum ferlum og meinafræðilegum breytingum í starfsemi mannslíkamans sem orsaka sjúkdóma. Fjallað verður um algenga sjúkdóma á mismunandi æviskeiðum lífsins með áherslu á orsakir, undirliggjandi meinalífeðlisfræðilegar breytingar, klínísk einkenni, sjúkdómsferli, greiningu, og meðferð. Jafnframt verður fjallað um eðlilegar breytingar á lífeðlisfræðilegum ferlum öldrunar og áhrif þeirra á starfsemi líffæra og líffærakerfa á efri árum. Í námskeiðinu verður notast við fjölþættar kennsluaðferðir þar sem áhersla er lögð á virka þáttöku nemenda og yfirfærslu þekkingar yfir á klínískar aðstæður.  

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Vor
Klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun nýbura, barna og fullorðinna II (HJÚ0B0F)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Þar af 8 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Annað hvert ár (oddatala árs) bjóða gjörgæsludeildir Landspítala (gjörgæsla fullorðinna og barna E6 Fossvogi og 12B Hringbraut, Nýburagjörgæsla 23D Barnaspítala) klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun þeim hjúkrunarfræðingum sem skráðir eru í fullt MS nám í gjörgæsluhjúkrun við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ. Hægt er að velja milli þess að taka klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun til 30 ECTS eða fá metnar 30 ECTS úr BS námi í hjúkrunarfræði upp í MS námið. Klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun eru 950 klukkustundir sem skiptast milli fjögurra samliggjandi anna. Aðeins er tekið við tilteknum fjölda nemenda vegna takmarkaðrar getu sjúkrastofnana til að veita nemendum klíníska starfsþjálfun.

Gjörgæsluhjúkrun II (HJÚ343F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum yfirsýn yfir helstu þætti gjörgæsluhjúkrunar fullorðinna, barna og nýbura. Í námskeiðinu þróa nemendur þekkingarfræðilegan grunn í gjörgæsluhjúkrun sem byggir á gagnreyndri þekkingu og styður við meðferð og útkomu sjúklinga á meðan gjörgæsludvöl varir og eftir útskrift þaðan.

Áhersla er á nýtingu rannsóknarniðurstaðna í að veita hjúkrunarmeðferð sem tengist fjölkerfa vandamálum og flókinni klínískri meðferð. Meðal þátta sem teknir eru fyrir eru stuðningsmeðferð hjarta og blóðrásar, fjölskylduhjúkrun, líknandi meðferð, sýkingar, hrumleiki, áföll, streita og teymisvinna.

Kennslutungumál: Íslenska
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Lyfjafræði svæfingalyfja (HJÚ151F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um lyfhrif og lyfhvörf  algengustu lyfja sem notuð eru við svæfingar og deyfingar, lyf notuð samhliða þeim og önnur algeng lyf sem notuð eru í meðferð sjúklinga á svæfinga- og gjörgæsludeildum.  Skoðað verður hlutverk ósjálfráða taugakerfisins við samhæfingu og stjórnun líkamsstarfseminnar og rætt um lyf með áhrif þar á. Í námskeiðinu er áhersla lögð á yfirfærslu fræðilegrar þekkingar á klínískar aðstæður á svæfinga- og gjörgæsludeildum og meðhöndlun lyfjagjafa á ábyrgan og öruggan hátt.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Hjúkrun á sérsviði I (HJÚ158F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Þar af 2 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um hlutverk og hugmyndafræðilegan grunn sérfræðihjúkrunar. Nemendur fá innsýn í hvað einkennir sérfræðihjúkrun: klínísk störf, kennslu og fræðslu, ráðgjöf, leiðtogahlutverk, upplýsingatækni og nýtingu gagna og rannsókna-, gæða- og umbótastörf. Lögð er áhersla á að þjálfa nemendur í notkun sérhæfðra klínískra aðferða við upplýsingaöflun og mat á líkamlegu og andlegu ástandi sjúklinga.

Fyrirkomulag kennslu
Kennt verður í lotum samkvæmt skipulagi  meistaranáms í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Hluti námskeiðsins er klínískur og er sá hluti skipulagður í samráði við umsjónarkennara.

Kennslutungumál: Íslenska
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Lokaverkefni (HJÚ441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lokaverkefni

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Haust
Klínískt starfsnám gjörgæsluhjúkrun nýbura, barna og fullorðinna III (HJÚ0B1F)

Klínískt starfsnám gjörgæsluhjúkrun nýbura, barna og fullorðinna IV (HJÚ0B2F)

Áhrifaþættir öldrunar: Umhverfi, félagstengsl og heilsufar (ÖLD201F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að dýpka þekkingu þátttakenda í öldrunarfræðum (gerontology) og öldrunarlækningum (geriatri). Fjallað verður um það hvernig umhverfi, félagsleg tengsl og heilsufar hafa áhrif á vellíðan aldraðra. Rætt verður um þjónustu við aldraða almennt og einnig hópa aldraðra með sérþarfir. Mismunandi kenningar öldrunarfræða verða til umræðu og hvernig þær hafa áhrif á viðhorf og þjónustu við aldraðra. Rannsóknir innlendar og erlendar á sviðinu verða kynntar svo og rannsóknaraðferðir öldrunarfræðinnar. Fjallað verður um teymisvinnu í öldrunarþjónustu og áhersla lögð á að kynna starfsaðferðir mismunandi starfsstétta sem vinna að málefnum aldraðra.

Námskeiðið er kennt í staðlotum og fyrirlestrum. Mætingaskylda er í staðlotur. 

Gestafyrirlesarar á sérsviðum öldrunarfræða og öldrunarlækninga.

Nám fullorðinna og þróun mannauðs (NAF003F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Símenntun, endurmenntun, mannauðsþróun eru hugtök sem æ fleiri þurfa að takast á við vegna vinnu sinnar. Stjórnendur þurfa til dæmis að útbúa símenntunaráætlanir, sérfræðingar þurfa að kenna samstarfsfólki sínu, kennarar koma að foreldrastarfi eða starfsþróun samkennara sinna og svo mætti lengi telja.  Þetta námskeið er fyrir fólk sem vill dýpka skilning sinn á námi fullorðinna, til að geta betur tekið ákvarðanir um símenntun, skipulagt fræðslustarf eða unnið á annan hátt með fullorðnum sem ætla að læra. Námskeiðið gefur fræðilegan grunn undir allt fræðslustaf með fullorðnum.

Markmið
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist haldgóða þekkingu á rannsóknum og kenningum um nám fullorðinna, og geti nýtt þá þekkingu til að taka rökstuddar ákvarðanir í tengslum við skipulagningu náms fyrir fullorðna og / eða við það hjálpa fullorðnum á annan hátt til að læra, takast á við breytingaferli og þroskast.

Inntak / viðfangsefni
Til að ná þessum yfirmarkmiðum takast nemendur við þrjú aðal viðfangsefni á námskeiðinu:

  1. Greiningu á hlutverki náms og menntunar fullorðinna í ljósi þróunar samfélagsins, rannsókn á því hvernig stofnanir samfélagsins hafa brugðist við - einkum hvað varðar aðgerðir sem ætlað er að styðja við nám fullorðinna. Þátttakendur læra að nota ýmis verkfæri til þess að greina samtímann og meta mögulegar þarfir fullorðinna fyrir nám.
  2. Rannsókn á sérkennum og sérstöðu fullorðinna námsmanna. Könnun á kenningum um hið sama og greining á gagni þeirra til að skýra og skipuleggja nám fyrir fullorðna og með þeim.
  3. Þátttakendur kynna sér nokkur meginstef úr kennslufræði fullorðinna. Hugmyndir um fullorðna námsmenn, þátttöku þeirra í fræðslu, áhugahvöt og hindranir, hlutverk leiðbeinenda í fullorðinsfræðslu, mótun námsumhverfis, samskipti kennara og nemenda og fleira.

Vinnulag

Námskeiðið verður kennt á formi sem er kallað "Valvíst nám". En það þýðir að þátttakendur geta valið hvort þeir mæta í skólann, taka þátt í gegnum fjarfundabúnað í rauntíma eða hlusta á upptökur og taka virkan þátt í samvinnu þátttakenda á netinu milli reglulegra funda.

Á námskeiðinu eru tvær "vinnulotur" þar sem allir þátttakendur vinna saman í heilan dag í tengslum við efni namskeiðsins. Þátttakendur eru hvattir til að mæta í húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu í vinnuloturnar. Þar verða teknar mikilvægar ákvarðanir um námskeiðið, þátttakendur kynnast vel og það styður við samvinnu þeirra á námskeiðinu, þá reynum við að beita aðferðum sem nýtast vel í fullorðinsfræðslu, þannig að þátttakendur upplifa ýmsar aðferðir sem þeir geta síðan nýtt við skipulagningu náms og kennslu.

Síðan hittast þeir vikulega í húsnæði skólans eða á netinu.

Á milli funda og vinnulota fer samvinnan fram á vef námskeiðsins, t.d. í gegnum skriflegar umræður á umræðuþráðum námskeiðsins.

Fyrir hverja er þetta námskeið?

Námskeiðið hentar öllum þeim sem koma – eða vilja koma – á einhvern hátt að ákvörðunum um nám fullorðinna, skipulagningu þess og útfærslu. Það hentar þannig fólki sem starfar við mannauðs- og fræðslumál innan fyrirtækja og stofnana, stjórnendur og verkefnastjóra í stofnunum sem bjóða upp á nám og námskeið fyrir fullorðna sem og sérfræðingum sem hafa áhuga á að kenna fullorðnum. Námskeiðið býður þessu fólki tækifæri að afla sér góðrar grunnþekkingar á helstu spurningum og viðfangsefnum sem snerta nám fullorðinna, forsendur, aðstæður og skipulagningu þess. Námskeiðið gefur þannig góða undirstöðu fyrir alls konar verkefni er varða nám fullorðinna almennt.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Mannauðsstjórnun ríkis og sveitarfélaga (OSS102F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um mannauðsstjórnun hjá hinu opinbera. Farið er yfir helstu kenningar og aðferðir mannauðsstjórnunar, þar á meðal mannauðsstefnur, ráðningar, frammistöðustjórnun, launakerfi og kjarasamninga. Jafnframt er farið yfir lög og reglur sem gilda um réttarsamband opinberra starfsmanna við vinnuveitendur, breytingar á störfum, starfslok og hlutverk stéttarfélaga. Áhersla er lögð á að tengja fræðilega þekkingu við hagnýt álitaefni og ákvörðunartöku stjórnenda og mannauðssérfræðinga hjá ríki og sveitarfélögum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Breytingastjórnun (VIÐ190F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði breytingastjórnunar, s.s. innleiðingu breytinga, viðbrögð starfsmanna, helstu hindranir í vegi breytinga ásamt þeim hamlandi og hvetjandi kröftum sem eru að verki í breytingaferlinu.  Farið verður ítarlega í kenningar og aðferðir sem breytingastjórnun byggir á og ræddar verða algengustu lausnir og aðferðir í stjórnun breytinga.  Rætt verður um hlutverk leiðtoga, stjórnenda almennt og millistjórnenda í breytingum sem og krísustjórnun. Fjallað verður einnig um fyrirtækjamenningu og hvers vegna hún er mikilvægur þáttur í breytingaferlinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu II

Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana (OSS204F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um íslensk stjórnvöld, íslenska stjórnsýslukerfið, reglur sem gilda um samskipti og yfirstjórn innan stjórnsýslukerfisins, um meðferð stjórnsýslumála og upplýsingarétt almennings. Aðalháerslan er á meðferð stjórnsýslumála og þýðingu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 í því sambandi. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu

Siðferðileg álitamál samtímans (HSP723M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Óháð misseri
Fjölbreytileiki og inngilding (inclusion) í skipulagsheildum (VIÐ288F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum tækifæri til að bera kennsl á þörfina á að þróa vinnuumhverfi sem byggir á jafnréttishugsun og inngildingu ólíkra hópa þar sem fjölbreytt framlag er velkomið. Nemendur læra að bera kennsl á félagslegt réttlæti/útilokun minnihlutahópa t.d. vegna kynþáttar, uppruna, aldurs, kyns, trúarbragða, kynhneigðar, fötlunar/færni, stéttar og annara fjölbreytileikaþátta í skipulagsheildum og nýta þekkinguna til að greina og beita aðferðum stjórnunar fjölbreytileika og  inngildingar í skipulagsheildum. Nemendur kynnast nýjum rannsóknum á sviðinu til að efla gagnrýna hugsun um viðfangsefni eins og sjálfsmynd (identity), (ó)meðvitaða hlutdrægni, samvinnu í fjölbreyttum teymum, (ó)jöfn tækifæri í skipulagsheildum og tækifærum sem felast í fjölbreytileikanum. 

Námskeiðið er kennt á ensku

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu IV

Klínísk starfsþjálfun í skurðhjúkrun I (HJÚ172F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sérhæfð starfsþjálfun til diplómaprófs samfara diplómanámi í skurðhjúkrun. Starfsþjálfunin telur þá 10 einingar á sérsviðinu og veitir þjálfun í klínískum vinnubrögðum og starfsferlum í skurðhjúkrun. Starfsþjálfunin til 1608 klst. fer fram á skurð- og svæfingadeildum Landspítala - háskólasjúkrahúss og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Nánari upplýsingar um starfsþjálfunina er að finna í verknámsbók í diplómanámi.

Nemendum er skylt að taka námskeið í Sérhæfðri endurlífgun I (ILS) LSH. Nemendur fá skírteini að loknu þessu námskeiði á verknámstímabilinu. Skal námskeiði þessu vera lokið 2 mán. fyrir fyrirhugaða útskrift. Námskeið þetta er hluti af klíniska námskeiðinu. Sérhæfð endurlífgun I (ILS) og meðhöndlun.

  • Að nemendur séu færir um greina fyrstu einkenni hjartabilunar,
  • kunni helstu aðgerðir sem beita má til að koma í veg fyrir hjartastopp og geti framkvæmt grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoð, öndunaraðstoð og gefið hjartarafstuð með sjálfvirku eða hálfsjálfvirku hjartastuðtæki, þar til sérhæfð aðstoð berst.

Kennsluaðferðir: Sýnikennsla, verklegar æfingar og fyrirlestrar. Námsmat: Færni nemenda er metin í gegnum allt námskeiðið.

Athugið að ekki er heimilt að skrá sig í námskeiðið nema með heimild umsjónarkennara.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Skurðhjúkrun I (HJÚ153F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um þekkingarþróun í skurðhjúkrun, hugtök og kenningar tengdar skurðhjúkun. Lögð er áhersla á dýpkun þekkingar nemanda tengt grundvallarviðfangsefnum skurðhjúkrunar s.s. handsótthreinsun, sótthreinsun húðar fyrir skurðaðgerðir og umgengnisreglur á skurðstofum. Auk þess er farið yfir heiti verkfæra í ólíkum skurðaðgerðum og þætti sem hafa áhrif á öryggi sjúklinga í skurðaðgerð.

Farið verður yfir hjúkrunarviðfangsefni sem skurðhjúkrunarfræðingar vinna við í aðgerðarferli sjúklings á skurðstofu s.s. fyribygging taugaskaða, sýkinga- og legusáravarnir. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að nota gæðastaðla AORN (Association of periOperative Registered nurses) við störf sín á skurðstofu.

Þekking nemanda verður dýpkuð á grundvallarþáttum sérhæfðrar hjúkrunarmeðferðar, hjúkrunargreiningar og á aðgerðarferli skjólstæðinga á skurðstofu sem byggir á hugmyndafræði um heildræna hjúkrun.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Sérhæfð líffærafræði skurðlækninga (HJÚ251F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er farið í líffærafræði líkamans m.t.t. skurðaðgerða gerðar á, í og við líffærin svo sem eins og líffærafræði höfuðs og háls, líffærafræði innri líffæra, ásamt taugakerfi útlima og bols. Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði almennrar líffærafræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Námsefnið kemur nánar fram í fyrirlestraskrá í upphafi námskeiðs.

Skurðhjúkrun II (HJÚ0BNF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um öryggi í víðu samhengi við þætti er snerta skurðstofuumhverfi og þær hættur sem þar geta skapast bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk. Fjallað verður um öryggi og öryggismenningu og það tengt samskiptum við sjúklinga, mannlegu eðli, mistökum og starfsumhverfi. Einnig verður fjallað um öryggisþætti sem tengjast tækni og efnanotkun á skurðstofum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fyrsta ár | Vor
Klínísk starfsþjálfun í skurðhjúkrun II (HJÚ282F)

Skurðhjúkrun III (HJÚ339F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um helstu skurðaðgerðir á sérsviðum skurðhjúkrunar og hjúkrunarmeðferðir þeim tengdar. Markmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist þekkingu á flestum sérgreinum skurðlæknisfræðinnar. Einnig að nemendur öðlist fræðilega þekkingu á þeim vandamálum sem tengjast sjaldgæfari sjúkdómum sem geta haft áhrif á afdrif sjúklinga í aðgerð. Fjallað verður um áhættusjúklinga, sértækar varúðarráðstafanir, viðbrögð og viðeigandi hjúkrunarmeðferðir. Fjallað verður um skurðaðgerðir í bráðaástandi sjúklings.

Markmið:
Að nemendur öðlist þekkingu á sérgreinum skurðaðgerða. Að nemendur öðlist þekkingu á hlutverki skurðhjúkrunarfræðinga.
Að nemendur öðlist þekkingu á hjúkrun skurðsjúklinga í hinum ýmsu skurðaðgerðum.
Helstu hjúkrunarviðfangsefni tengd skurðaðgerðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Klínísk starfsþjálfun í skurðhjúkrun III (HJÚ346F)

Skurðhjúkrun IV (HJÚ444F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður haldið áfram að fjalla um skurðaðgerðir í framhaldi af Skurðhjúkrun II. Fjallað verður um grundvallaratriði stjórnunar á sérhæfðum hátæknideildum. Nemendur eru fræddir um mannauð á starfvettvangi og hvernig best megi nýta tæki og fjármagn í hátækniheilbrigðiskerfi. Fjallað verður um siðfræðileg álitamál tengt skurðaðgerðum og samvinnu heilbrigðisstétta á skurðstofu. Fjallað verður um leiðtogahlutverkið, helstu áhættuþætti í starfsumhverfi og ábyrgð stofnunar og hjúkrunarfræðings. Nemendur fá kennslu í líkamsmati sjúklinga fyrir, í og eftir skurðaðgerð.Kennd eru fræðileg vinnubrögð og þau þjálfuð.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Lokaverkefni (HJÚ441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lokaverkefni

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor
Klínísk starfsþjálfun í skurðhjúkrun IV (HJÚ447F)

Þriðja ár | Haust
Málstofa í hjúkrunarfræði (HJÚ0AIF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust
Lokaverkefni (HJÚ441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lokaverkefni

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Haust
Hagnýt tölfræði (HJÚ135F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að dýpka þekkingu nemenda í hagnýtri tölfræði. Fengist verður við tölfræðilega úrvinnslu, s.s. meðaltalsmun háðra og óháðra hópa, tíðnimun milli hópa, aðhvarfs- og dreifigreiningu og tölfræðilegt mat á áreiðanleika og réttmæti mælitækja. Mikilvægt er að nemendur öðlist skilning á tölfræðilegum hugtökum og ólíkum úrvinnsluaðferðum. Nemendum gefst meðal annars kostur á að vinna með raunveruleg gögn í ólíkum gagnasöfnum.

Fyrirkomulag
Námið fer fram á formi fyrirlestra og dæma-/umræðutíma.
Kennt verður aðra hverja viku – í sex vikur samtals.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Þriðja ár | Vor

Eðlis- og efnafræði svæfinga (HJÚ218F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennd eru helstu uppgufunar- , þrýstings- og flæðilögmál lofttegunda og vökva. Þekking á þessu sviði er nauðsynlegur undirbúningur til skilnings á verkun gasa þ.e svæfingagasa súrefnis, glaðslofts og lofts sem og til skilnings á starfsemi lungna og blóðrásar í heilbrigðu og sjúku ástandi. Enn fremur verður fjallað um eðlisfræðilögmál þeirra tækja sem notuð eru við svæfingar, s.s. virkni gasara gasgreina, súrefnismettunarmæla, ífarandi þrýstingsmælinga o.fl.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun I (HJÚ170F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er fyrsta námskeiðið af fjórum í 1600 klukkustunda klínískri starfsþjálfun í námsleið svæfingahjúkrunar. Í námskeiðinu samþætta sérnámshjúkrunarfræðingar fræðilega þekkingu og verklega þjálfun á skurðstofum með áherslu á þróun tæknilegrar færni, beitingu verkferla og klínískrar rökhugsunar við umönnun sjúklinga fyrir, í og fyrst eftir aðgerð. Jafnframt fá nemendur þjálfun í færnibúðum og hermisetri þar sem lögð er áhersla á notkun tækjabúnaðar, grunnþætti loftvegameðhöndlunar, innleiðslu svæfinga og vöktun sjúklinga. Nemendur vinna undir leiðsögn svæfingahjúkrunarfræðinga og svæfingalækna og hefja markvissa uppbyggingu klínískrar hæfni sem þróast í gegnum sérnámið og undirbýr þá fyrir fagleg og sjálfstæð störf í svæfingahjúkrun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Svæfingahjúkrun I (HJÚ152F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

L

Námskeiðið er fyrsta námskeiðið af fjórum sem fjalla um svæfingar og deyfingar sjúklinga sem gangast undir skurðaðgerðir eða önnur ífarandi inngrip innan sem utan skurðstofa. Í námskeiðinu er lögð áhersla á undirstöðuatriði svæfinga og deyfinga og áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi sjúklings. Fjallað er um mismunandi aðferðir við svæfingar og deyfingar og nauðsynlegur tækjabúnaður kynntur. Sérstök áhersla er lögð á undirbúning sjúklinga fyrir aðgerðir, kerfisbundna upplýsingasöfnun og heilsufarsmat, loftvegameðhöndlun, legustellingar og vöktun sjúklinga. Samhliða námskeiðinu hefja nemendur klíníska verkþjálfun á svæfingadeildum þar sem þeir fá tækifæri til að yfirfæra fræðilega þekkingu yfir á klínískar aðstæður við umönnun sjúklinga.  

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Lyfjafræði svæfingalyfja (HJÚ151F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um lyfhrif og lyfhvörf  algengustu lyfja sem notuð eru við svæfingar og deyfingar, lyf notuð samhliða þeim og önnur algeng lyf sem notuð eru í meðferð sjúklinga á svæfinga- og gjörgæsludeildum.  Skoðað verður hlutverk ósjálfráða taugakerfisins við samhæfingu og stjórnun líkamsstarfseminnar og rætt um lyf með áhrif þar á. Í námskeiðinu er áhersla lögð á yfirfærslu fræðilegrar þekkingar á klínískar aðstæður á svæfinga- og gjörgæsludeildum og meðhöndlun lyfjagjafa á ábyrgan og öruggan hátt.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Þekkingarþróun í hjúkrunarfræði (HJÚ143F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður rætt um hugmyndir og hugtök sem hafa mótað skilning ólíkra samfélaga á heilbrigðisþjónustu og hjúkrun. Áhrifamiklar hugmyndir í hjúkrunarfræði verða kynntar og ræddar og leitast verður við að varpa ljósi á það hvernig skilningur á eðli hjúkrunar mótaðist og breyttist á tuttugustu öldinni. Einnig verður fjallað um þekkingu í hjúkrun og þróun hennar. Stefnur í þekkingarþróun verða kynntar og leitast verður við að benda á styrkleika og veikleika þeirra. Farið verður yfir aðferðir við að greina og meta fræðilegan texta og nemendur fá tækifæri til að beita þeim í umfjöllun um rannsóknir. Sérstök áhersla verður lögð á að greina hugtök og kenningar sem höfundar byggja á í rannsóknum sínum og hið fræðilega samhengi sem mótar þau verður skoðað.

Lágmarksfjöldi nemenda: 15.

Fyrirkomulag kennslu
Kennt verður aðra hverja viku – í sex vikur samtals. Í hverri lotu fara fram fyrirlestrar, hópvinna og kynningar á hóp- og einstaklingsverkefnum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Málstofa í hjúkrunarfræði (HJÚ0AIF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Svæfingahjúkrun II (HJÚ219F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Haldið verður áfram að fjalla um undirstöðuatriði svæfinga og deyfinga og áhrif þeirra á lífeðlisfræðilega starfsemi sjúklings. Rætt verður um mismunandi aðgerðir og aðferðir sem notaðar eru við svæfingar og deyfingar viðkomandi sjúklingaflokka. Fjallað verður um  einstaka sjúklingahópa auk undirliggjandi sjúkdóma sem taka verður mið af í aðgerðarferlinu (fyrir aðgerð, í aðgerð og eftir aðgerð) og mun nemandinn öðlast þjálfun í að beita fræðilegri þekkingu við svæfingaáætlun og úrlausn klínískra viðfangsefna. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun II (HJÚ281F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er annað af fjórum í klínískri starfþjálfun í svæfingahjúkrun og lögð áhersla á samþættingu fræðilegrar þekkingar og verklegrar þjálfunar við svæfingatengd inngrip á skurðstofum og starfsstöðvum utan svæfingadeilda. Í námskeiðinu halda nemendur áfram að kynnast sérgreinum skurðlækninga og þjálfa tæknilega færni og klíníska rökhugsun við svæfingar, deyfingar og slævingar mismunandi sjúklingahópa. Nemendur þjálfa með sér klínískt mat á sjúklingum og tileinka sér grundvallaþætti svæfingaáætlana, framkvæmd þeirra og mat á árangri. Þjálfunin nær frá umönnun heilbrigðra fullorðinna einstaklinga til sjúklinga með fjölþættan heilsufarsvanda.

Klínískir fagfundir og valkvæð þátttaka í fagráðstefnum stuðla að dýpkun þekkingar og faglegri þróun nemenda.

Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun III (HJÚ345F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun fer fram samhliða fræðilegu námi í svæfingahjúkrun og veitir þjálfun í klíniskum vinnubrögðum og vinnuferlum í svæfingahjúkrun. Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun er metin til 30 eininga og er 1700 klst. sem fer fram á svæfingadeildum Landspítala - háskólasjúkrahúss, í hermi (simulator) og í verklegum æfingum í vinnubúðum.

Í klínískri starfsþjálfun er notuð verknámsbók þar sem m.a. koma fram  námsmarkmið, hvaða kröfur nemar þurfa að uppfylla, upplýsingar um námsmat, gerð svæfingaáætlana, skráningu færnikorta og verknámsskráa.

Gerð er krafa um 100% ástundun í klínískri starfsþjálfun. Markmið starfsþjálfunar í svæfingahjúkrun er að þjálfa nemendur í að samþætta klíníska- og fræðilega þekkingu, veita þjálfun í klínískum vinnubrögðum og vinnuferlum og kynna sem flest svið svæfingahjúkunar.

Kennslumisseri: Kennsla mun fara fram samfara námi en skráning í námsskeiðið verður aðeins á síðasta misseri.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Endurlífgun og svæfingar bráðveikra sjúklinga (HJÚ438F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita þekkingu og færni í svæfingahjúkrun sjúklinga með lífshótandi vandamál og endurlífgun fullorðinna og barna.

Námskeiðið felur í sér fyrirlestra, verkþjálfun, tilfellaþjálfun og herminám.

Námskeiðið byggir mjög á þekkingu sem nemandinn hefur öðlast í námskeiðunum Svæfingahjúkrun 1 og 2, Lyfjafræði svæfinga, Eðlis- og efnafræði svæfinga og Hjúkrun bráðveikra sem og í verknámi.

Meðal efnisþátta námskeiðsins er sérhæfð endurlífgun barna og fullorðinna sniðin að þörfum svæfingahjúkrunarfræðinga. Kerfisbundin nálgun bráðveikra (ABCDE nálgun). Fjallað er um úrlestur hjartalínurita og taktgreiningu. Hraðatakta, hægatakta og endurlífgun við sérhæfðar aðstæður sem upp geta komið í svæfingum. Svæfingahjúkrun í þrýstiklefa (hyperbaric chamber). Svæfingahjúkrun sjúklinga með bráð lífsógnandi veikindi, m.a. vegna:  bruna, fjöláverka, heila- og taugaáfalla, aðgerða í brjóstholi, kviðarholi, bæklunaraðgerða, æðaaðgerða, HNE aðgerða, í fæðingum og augnaðgerðum. Farið verður í sérhæfða loftvegameðferð, meðhöndlun hins erfiða loftvegar og flæðirit um erfiða loftvegi, in-line stabilization og bráða innleiðslu. Þjálfuð verður notkun bakbretta og hálskraga og kennd verður frumskoðun á vettvangi.

Á námskeiðinu mun reyna á þekkingu í meðferð við katastrófublæðingar og meðferð vasoaktívra lyfja. Þá verður þjálfuð teymisvinna við bráðaaðstæður. Fjallað verður um neyðarástand á skurðstofu vegna bruna og bilana í rafkerfi og súrefniskerfi.  Lögð verður til grundvallar kerfisbundin nálgun við lausn vandamála. Þá verður fjallað um mannlega þáttinn við neyðaraðstæður (CRM).

Námskeiðið er unnið í samvinnu við Bráðaskólann sem leggur fram kennslubúnað og hluta kennsluefnis endurgjaldslaust.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Svæfingahjúkrun III (HJÚ337F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu, sem er framhald af Svæfingafræði og Svæfingahjúkrun II, verður fjallað um svæfingar og deyfingar mismunandi sjúklingahópa sem koma til skurðaðgerðar. Skoðað verður hvað einkennir viðkomandi sjúklingahópa og þau vandamál sem nemandi þarf hugsanlega að glíma við í gegnum aðgerðarferlið. Ennfremur verður fjallað um sjúklinga með sérhæfð vandamál og undirliggjandi sjúkdóma sem geta haft áhrif á umönnun þeirra.

Kennsluaðferð: Fyrirlestrar, umræðutímar og verkefni. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Annað ár | Haust
Málstofa í hjúkrunarfræði (HJÚ0AIF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Svæfingahjúkrun IV (HJÚ443F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður áhersla lögð á sérsvið svæfingahjúkrunar með hliðsjón af klínískum viðfangsefnum og innviðum fagsins útfrá hugmyndaramma alþjóðasamtaka svæfingahjúkrunarfræðinga (IFNA) og alþjóðlegu samstarfi.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Lokaverkefni (HJÚ441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lokaverkefni

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun IV (HJÚ448F)

Fyrsta ár
  • Haust
  • HJÚ135F
    Hagnýt tölfræði
    Skyldunámskeið
    6

  • HJÚ143F
    Þekkingarþróun í hjúkrunarfræði

  • HJÚ0AIF
    Málstofa í hjúkrunarfræði
    Skyldunámskeið
    0

  • Vor
  • HJÚ253F
    Eigindleg aðferðafræði

  • HJÚ0AQF
    Klínísk lífeðlis- og meinafræði

  • Námskeiðslýsing

  • HJÚ252F
    Hagnýting megindlegrar aðferðafræði

  • HJÚ158F
    Hjúkrun á sérsviði I

  • HJÚ441L

  • HJÚ269F
    Hjúkrun á sérsviði II - Þróun meðferða og þjónustu

  • LÝÐ104F
    Áhrifavaldar heilbrigðis, forvarnir og heilsuefling
    Valnámskeið

  • HJÚ169F
    Hugræn atferlismeðferð á tímum lífsbreytinga

  • HJÚ0BGF
    Stuðningur við fullorðna í samfélaginu

  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ0AVF
    Heilsa og forvarnir einstaklinga með langvinna sjúkdóma
    Valnámskeið
    4

  • HJÚ159F
    Lyfjafræði fyrir hjúkrunarfræðinga

    HJÚ160F
    Gjörgæsluhjúkrun I
    Valnámskeið
    8

    HJÚ162F
    Faraldsfræði, útbreiðsla smitsjúkdóma og sóttvarnir

  • HJÚ801F
    Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun
    Valnámskeið
    3

  • HJÚ0AFF
    Geðlyfjafræði fyrir fagfólk í heilbrigðisvísindum

  • HJÚ0ADF
    Sérhæfð fjölskylduhjúkrun

  • HJÚ259F
    Stjórnun í heilbrigðisþjónustu

    HJÚ258F
    Forysta í heilbrigðisþjónustu

  • HJÚ0ABF
    Sérhæfð geðhjúkrun - Lesnámskeið

    HJÚ271F
    Bráðahjúkrun - mat og meðferð

    LÝÐ202F
    Verklag í vísindum

  • Óháð misseri
  • HJÚ0BLF
    Hjúkrun nýrnasjúklinga I

  • HJÚ142F
    Rekstur og heilbrigðisþjónusta

  • HJÚ263F
    Líknarmeðferð

  • HJÚ157F
    Ráðgjöf um getnaðarvarnir - lyfjaávísanir

    HJÚ0BKF
    Mat og hjúkrunarmeðferð lungnasjúklinga

  • HJÚ173F
    Inngangur að sérhæfðri krabbameinshjúkrun: forvarnir, greining, meðferð og eftirfylgd

Annað ár

Óháð námsári

    Hagnýt tölfræði hide

    Þekkingarþróun í hjúkrunarfræði hide

    Málstofa í hjúkrunarfræði hide

    Eigindleg aðferðafræði hide

    Klínísk lífeðlis- og meinafræði hide

    Bráðahjúkrun - mat og meðferð hide

    Hagnýting megindlegrar aðferðafræði hide

    Hjúkrun á sérsviði I hide

    Lokaverkefni hide

    Hjúkrun á sérsviði II - Þróun meðferða og þjónustu hide

    Áhrifavaldar heilbrigðis, forvarnir og heilsuefling hide

    Hugræn atferlismeðferð á tímum lífsbreytinga hide

    Stuðningur við fullorðna í samfélaginu hide

    Heilsa og forvarnir einstaklinga með langvinna sjúkdóma hide

    Lyfjafræði fyrir hjúkrunarfræðinga hide

    Gjörgæsluhjúkrun I hide

    Faraldsfræði, útbreiðsla smitsjúkdóma og sóttvarnir hide

    Líknarmeðferð hide

    Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun hide

    Geðlyfjafræði fyrir fagfólk í heilbrigðisvísindum hide

    Sérhæfð fjölskylduhjúkrun hide

    Stjórnun í heilbrigðisþjónustu hide

    Forysta í heilbrigðisþjónustu hide

    Sérhæfð geðhjúkrun - Lesnámskeið hide

    Verklag í vísindum hide

    Hjúkrun nýrnasjúklinga I hide

    Rekstur og heilbrigðisþjónusta hide

    Ráðgjöf um getnaðarvarnir - lyfjaávísanir hide

    Mat og hjúkrunarmeðferð lungnasjúklinga hide

    Inngangur að sérhæfðri krabbameinshjúkrun: forvarnir, greining, meðferð og eftirfylgd hide

    HJÚ0AZF
    Klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun nýbura, barna og fullorðinna I hide
    Valnámskeið
    7
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Þar af 7 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Annað hvert ár (oddatala árs) bjóða gjörgæsludeildir Landspítala (gjörgæsla fullorðinna og barna E6 Fossvogi og 12B Hringbraut, Nýburagjörgæsla 23D Barnaspítala) klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun þeim hjúkrunarfræðingum sem fastráðnir eru á fyrrnefndar gjörgæsludeildir og skráðir í fullt MS nám í gjörgæsluhjúkrun við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ. Hægt er að velja milli þess að taka klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun til 30 ECTS eða fá metnar 30 ECTS úr BS námi í hjúkrunarfræði upp í MS námið. Klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun eru 950 klukkustundir sem skiptast milli fjögurra samliggjandi anna, 237 klst. á haustönn og 238 klst. á vorönn. Aðeins er tekið við tilteknum fjölda nemenda vegna takmarkaðrar getu sjúkrastofnana til að veita nemendum klíníska starfsþjálfun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ143F
    Þekkingarþróun í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður rætt um hugmyndir og hugtök sem hafa mótað skilning ólíkra samfélaga á heilbrigðisþjónustu og hjúkrun. Áhrifamiklar hugmyndir í hjúkrunarfræði verða kynntar og ræddar og leitast verður við að varpa ljósi á það hvernig skilningur á eðli hjúkrunar mótaðist og breyttist á tuttugustu öldinni. Einnig verður fjallað um þekkingu í hjúkrun og þróun hennar. Stefnur í þekkingarþróun verða kynntar og leitast verður við að benda á styrkleika og veikleika þeirra. Farið verður yfir aðferðir við að greina og meta fræðilegan texta og nemendur fá tækifæri til að beita þeim í umfjöllun um rannsóknir. Sérstök áhersla verður lögð á að greina hugtök og kenningar sem höfundar byggja á í rannsóknum sínum og hið fræðilega samhengi sem mótar þau verður skoðað.

    Lágmarksfjöldi nemenda: 15.

    Fyrirkomulag kennslu
    Kennt verður aðra hverja viku – í sex vikur samtals. Í hverri lotu fara fram fyrirlestrar, hópvinna og kynningar á hóp- og einstaklingsverkefnum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ0AIF
    Málstofa í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

    Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

    Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • HJÚ253F
    Eigindleg aðferðafræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að kynna heimspekilegan og fræðilegan grunn eigindlegra aðferða og útfærslu og beitingu þeirra rannsókna í  hjúkrunar- og ljósmóðurfræði, ásamt því að auka færni í hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna á eigin sérsviði.

    Nemandinn leggur fram fróðlegar greinar innan eigin sérsviðs sem notaðar verða í umræðum um eigindlegar aðferðir. Til að þjálfa framkvæmd eigindlegrar rannsóknar verða gagnvirkar vinnusmiðjur. Jafnframt verður fjallað um álitamál sem tengjast eigindlegum rannsóknum, s.s. þagnarskyldu, réttmæti og alhæfingargildi rannsóknarniðurstaðna, ásamt þjálfun í rannsóknarrýni.

    Í námskeiðinu verður lögð sérstök áhersla á að kynna nemendum fyrirbærafræði, eigindlega efnisgreiningu (þ.á m. þemagreiningu vs. kóðun og afleiðsla vs. aðleiðsla), vettvangsrannsóknir (etnografíu), einstaklingsviðtöl og hópviðtöl, blandaðar aðferðir og „action research“.

    Verkefni sem unnin eru á námskeiðinu skulu vera á klínísku sérsviði nemenda, þau skulu unnin í samvinnu við umsjónarkennara nemanda og stuðla með því að markvissri þekkingarþróun á eigin sérsviði. Nemendur bera ábyrgð á að hafa samband við sinn umsjónarkennara í tengslum við sín verkefni.

    Fyrirkomulag kennslu:
    Námskeiðið er kennt í sex lotum. Nemendur er einnig boðið upp á „skriftarbúð“ á meðan námskeiðið stendur. Mætingaskylda (80%) er í kennslustundir og kennt langan dag í hvert sinn. Námið fer fram með fyrirlestrum og umræðufundum. Nemendur koma lesnir í kennslustundir, taka virkan þátt í umræðum og gera grein fyrir afmörkuðu efni sem tengist umfjöllun dagsins.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ0APF
    Grunnmeðferð bráðveikra barna hide
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lýsing á námskeiðinu á íslensku: Markmið námskeiðsins er að kenna mat á bráðveikum börnum og fyrstu meðferð og stuðning við bráðaástand. Þetta er tveggja daga námskeið með fyrirlestrum og færnistöðvum og kennarar eru sérfræðingar í bráða- og gjörgæslulækningum og hjúkrun barna. Sérstök kennslubók er notuð (Paediatric BASIC) og rafrænt mat á efni námskeiðsins fer fram í vikunni áður en námskeiðið er haldið. Í lok seinni dags námskeiðsins er krossapróf án gagna. Áherslan í kennslu er á eftirfarandi: teymisvinna, mat á bráðveikum börnum, öndunarvegur, öndun, öndunarbilun, öndunarvélameðferð, blóðrásartruflanir, meðferð við blóðsýkingu, fjöláverkar, taugamat, nýrnabilun, næring og sjúklingaflutningur.

    Þetta er tveggja daga námskeið með fyrirlestrum og færnistöðvum og kennarar eru sérfræðingar í bráða- og gjörgæslu-lækningum og -hjúkrun barna. Í lok seinni dags námskeiðsins er krossapróf án gagna. Áherslan í kennslu er á eftirfarandi: teymisvinna, mat á bráðveikum börnum, öndunarvegur, öndun, öndunarbilun, öndunarvélameðferð, blóðrásartruflanir, meðferð við blóðsýkingu, fjöláverkar, taugamat, nýrnabilun, næring og sjúklingaflutningur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ0AQF
    Klínísk lífeðlis- og meinafræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur námskeiðsins er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á lífeðlisfræðilegum ferlum og meinafræðilegum breytingum í starfsemi mannslíkamans sem orsaka sjúkdóma. Fjallað verður um algenga sjúkdóma á mismunandi æviskeiðum lífsins með áherslu á orsakir, undirliggjandi meinalífeðlisfræðilegar breytingar, klínísk einkenni, sjúkdómsferli, greiningu, og meðferð. Jafnframt verður fjallað um eðlilegar breytingar á lífeðlisfræðilegum ferlum öldrunar og áhrif þeirra á starfsemi líffæra og líffærakerfa á efri árum. Í námskeiðinu verður notast við fjölþættar kennsluaðferðir þar sem áhersla er lögð á virka þáttöku nemenda og yfirfærslu þekkingar yfir á klínískar aðstæður.  

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ0B0F
    Klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun nýbura, barna og fullorðinna II hide
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Þar af 8 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Annað hvert ár (oddatala árs) bjóða gjörgæsludeildir Landspítala (gjörgæsla fullorðinna og barna E6 Fossvogi og 12B Hringbraut, Nýburagjörgæsla 23D Barnaspítala) klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun þeim hjúkrunarfræðingum sem skráðir eru í fullt MS nám í gjörgæsluhjúkrun við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ. Hægt er að velja milli þess að taka klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun til 30 ECTS eða fá metnar 30 ECTS úr BS námi í hjúkrunarfræði upp í MS námið. Klínískt starfsnám í gjörgæsluhjúkrun eru 950 klukkustundir sem skiptast milli fjögurra samliggjandi anna. Aðeins er tekið við tilteknum fjölda nemenda vegna takmarkaðrar getu sjúkrastofnana til að veita nemendum klíníska starfsþjálfun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ252F
    Hagnýting megindlegrar aðferðafræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða vísindaleg vinnubrögð kynnt þar sem sérstök áhersla er lögð á kerfisbundna fræðilega samantekt sem er hornsteinn gagnreyndra vinnubragða. Auk þess verða megin rannsóknarsniðin sem stuðst er við í klínískum rannsóknum í heilbrigðisvísindum rædd og greind. Í kerfisbundnu fræðilegu samantektinni fáið þið þjálfun í að setja fram skýra rannsóknarspurningu eða rannsóknaspurningar og að styðjast við PICO viðmiðið til að setja saman leit með leitarorðum úr rannsóknarspurningunni/unum. Auk þess verður lögð áhersla á styðjast við PRISMA yfirlýsinguna um það hvernig setja eigi fram niðurstöður úr kerfisbundinni fræðilegri samantekt til að auðkenna, velja og gagnrýna viðeigandi rannsóknir sem og til að safna og greina rannsóknirnar sem mæta inntökuskilyrðum fræðilegu samantektarinnar. Þið fáið þjálfun í að meta gæði rannsókna m.a. út frá Joanna Briggs Institute handbókinni. Lögð er sérstök áhersla á að kynna ykkur þversniðsrannsóknir, langtíma rannsóknir og þróun hálf- staðlaðra og staðlaðra tilraunarannsókna.  Í meðferðarrannsóknum verður m.a., fjallað um samhæfingu rannsóknarviðfangsefna út frá rannsóknaspurningum og tilgátum við þá aðferðafræði sem stuðst er við, þ.e., við úrtaksstærð, snið, mælingar, úrvinnslu gagna og hrifstærð (effect size). Lögð verður sérstök áhersla á að þið öðlist innsæi í kröfur um byrtingar rannsóknarniðurstaðna í alþjóðlegum tímaritum og um hagnýtingu þeirra innan hjúkrunarfræðinnar. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ0AIF
    Málstofa í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

    Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

    Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • HJÚ343F
    Gjörgæsluhjúkrun II hide
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir nemendum yfirsýn yfir helstu þætti gjörgæsluhjúkrunar fullorðinna, barna og nýbura. Í námskeiðinu þróa nemendur þekkingarfræðilegan grunn í gjörgæsluhjúkrun sem byggir á gagnreyndri þekkingu og styður við meðferð og útkomu sjúklinga á meðan gjörgæsludvöl varir og eftir útskrift þaðan.

    Áhersla er á nýtingu rannsóknarniðurstaðna í að veita hjúkrunarmeðferð sem tengist fjölkerfa vandamálum og flókinni klínískri meðferð. Meðal þátta sem teknir eru fyrir eru stuðningsmeðferð hjarta og blóðrásar, fjölskylduhjúkrun, líknandi meðferð, sýkingar, hrumleiki, áföll, streita og teymisvinna.

    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ151F
    Lyfjafræði svæfingalyfja hide
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um lyfhrif og lyfhvörf  algengustu lyfja sem notuð eru við svæfingar og deyfingar, lyf notuð samhliða þeim og önnur algeng lyf sem notuð eru í meðferð sjúklinga á svæfinga- og gjörgæsludeildum.  Skoðað verður hlutverk ósjálfráða taugakerfisins við samhæfingu og stjórnun líkamsstarfseminnar og rætt um lyf með áhrif þar á. Í námskeiðinu er áhersla lögð á yfirfærslu fræðilegrar þekkingar á klínískar aðstæður á svæfinga- og gjörgæsludeildum og meðhöndlun lyfjagjafa á ábyrgan og öruggan hátt.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ158F
    Hjúkrun á sérsviði I hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Þar af 2 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um hlutverk og hugmyndafræðilegan grunn sérfræðihjúkrunar. Nemendur fá innsýn í hvað einkennir sérfræðihjúkrun: klínísk störf, kennslu og fræðslu, ráðgjöf, leiðtogahlutverk, upplýsingatækni og nýtingu gagna og rannsókna-, gæða- og umbótastörf. Lögð er áhersla á að þjálfa nemendur í notkun sérhæfðra klínískra aðferða við upplýsingaöflun og mat á líkamlegu og andlegu ástandi sjúklinga.

    Fyrirkomulag kennslu
    Kennt verður í lotum samkvæmt skipulagi  meistaranáms í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Hluti námskeiðsins er klínískur og er sá hluti skipulagður í samráði við umsjónarkennara.

    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ441L
    Lokaverkefni hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • HJÚ0B1F
    Klínískt starfsnám gjörgæsluhjúkrun nýbura, barna og fullorðinna III hide

  • HJÚ0B2F
    Klínískt starfsnám gjörgæsluhjúkrun nýbura, barna og fullorðinna IV hide

  • ÖLD201F
    Áhrifaþættir öldrunar: Umhverfi, félagstengsl og heilsufar hide

  • NAF003F
    Nám fullorðinna og þróun mannauðs hide
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Símenntun, endurmenntun, mannauðsþróun eru hugtök sem æ fleiri þurfa að takast á við vegna vinnu sinnar. Stjórnendur þurfa til dæmis að útbúa símenntunaráætlanir, sérfræðingar þurfa að kenna samstarfsfólki sínu, kennarar koma að foreldrastarfi eða starfsþróun samkennara sinna og svo mætti lengi telja.  Þetta námskeið er fyrir fólk sem vill dýpka skilning sinn á námi fullorðinna, til að geta betur tekið ákvarðanir um símenntun, skipulagt fræðslustarf eða unnið á annan hátt með fullorðnum sem ætla að læra. Námskeiðið gefur fræðilegan grunn undir allt fræðslustaf með fullorðnum.

    Markmið
    Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist haldgóða þekkingu á rannsóknum og kenningum um nám fullorðinna, og geti nýtt þá þekkingu til að taka rökstuddar ákvarðanir í tengslum við skipulagningu náms fyrir fullorðna og / eða við það hjálpa fullorðnum á annan hátt til að læra, takast á við breytingaferli og þroskast.

    Inntak / viðfangsefni
    Til að ná þessum yfirmarkmiðum takast nemendur við þrjú aðal viðfangsefni á námskeiðinu:

    1. Greiningu á hlutverki náms og menntunar fullorðinna í ljósi þróunar samfélagsins, rannsókn á því hvernig stofnanir samfélagsins hafa brugðist við - einkum hvað varðar aðgerðir sem ætlað er að styðja við nám fullorðinna. Þátttakendur læra að nota ýmis verkfæri til þess að greina samtímann og meta mögulegar þarfir fullorðinna fyrir nám.
    2. Rannsókn á sérkennum og sérstöðu fullorðinna námsmanna. Könnun á kenningum um hið sama og greining á gagni þeirra til að skýra og skipuleggja nám fyrir fullorðna og með þeim.
    3. Þátttakendur kynna sér nokkur meginstef úr kennslufræði fullorðinna. Hugmyndir um fullorðna námsmenn, þátttöku þeirra í fræðslu, áhugahvöt og hindranir, hlutverk leiðbeinenda í fullorðinsfræðslu, mótun námsumhverfis, samskipti kennara og nemenda og fleira.

    Vinnulag

    Námskeiðið verður kennt á formi sem er kallað "Valvíst nám". En það þýðir að þátttakendur geta valið hvort þeir mæta í skólann, taka þátt í gegnum fjarfundabúnað í rauntíma eða hlusta á upptökur og taka virkan þátt í samvinnu þátttakenda á netinu milli reglulegra funda.

    Á námskeiðinu eru tvær "vinnulotur" þar sem allir þátttakendur vinna saman í heilan dag í tengslum við efni namskeiðsins. Þátttakendur eru hvattir til að mæta í húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu í vinnuloturnar. Þar verða teknar mikilvægar ákvarðanir um námskeiðið, þátttakendur kynnast vel og það styður við samvinnu þeirra á námskeiðinu, þá reynum við að beita aðferðum sem nýtast vel í fullorðinsfræðslu, þannig að þátttakendur upplifa ýmsar aðferðir sem þeir geta síðan nýtt við skipulagningu náms og kennslu.

    Síðan hittast þeir vikulega í húsnæði skólans eða á netinu.

    Á milli funda og vinnulota fer samvinnan fram á vef námskeiðsins, t.d. í gegnum skriflegar umræður á umræðuþráðum námskeiðsins.

    Fyrir hverja er þetta námskeið?

    Námskeiðið hentar öllum þeim sem koma – eða vilja koma – á einhvern hátt að ákvörðunum um nám fullorðinna, skipulagningu þess og útfærslu. Það hentar þannig fólki sem starfar við mannauðs- og fræðslumál innan fyrirtækja og stofnana, stjórnendur og verkefnastjóra í stofnunum sem bjóða upp á nám og námskeið fyrir fullorðna sem og sérfræðingum sem hafa áhuga á að kenna fullorðnum. Námskeiðið býður þessu fólki tækifæri að afla sér góðrar grunnþekkingar á helstu spurningum og viðfangsefnum sem snerta nám fullorðinna, forsendur, aðstæður og skipulagningu þess. Námskeiðið gefur þannig góða undirstöðu fyrir alls konar verkefni er varða nám fullorðinna almennt.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • OSS102F
    Mannauðsstjórnun ríkis og sveitarfélaga hide
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um mannauðsstjórnun hjá hinu opinbera. Farið er yfir helstu kenningar og aðferðir mannauðsstjórnunar, þar á meðal mannauðsstefnur, ráðningar, frammistöðustjórnun, launakerfi og kjarasamninga. Jafnframt er farið yfir lög og reglur sem gilda um réttarsamband opinberra starfsmanna við vinnuveitendur, breytingar á störfum, starfslok og hlutverk stéttarfélaga. Áhersla er lögð á að tengja fræðilega þekkingu við hagnýt álitaefni og ákvörðunartöku stjórnenda og mannauðssérfræðinga hjá ríki og sveitarfélögum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    VIÐ190F
    Breytingastjórnun hide
    Bundið valnámskeið
    7,5

  • OSS204F
    Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana hide

  • HSP723M
    Siðferðileg álitamál samtímans hide
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    VIÐ288F
    Fjölbreytileiki og inngilding (inclusion) í skipulagsheildum hide

  • HJÚ172F
    Klínísk starfsþjálfun í skurðhjúkrun I hide
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sérhæfð starfsþjálfun til diplómaprófs samfara diplómanámi í skurðhjúkrun. Starfsþjálfunin telur þá 10 einingar á sérsviðinu og veitir þjálfun í klínískum vinnubrögðum og starfsferlum í skurðhjúkrun. Starfsþjálfunin til 1608 klst. fer fram á skurð- og svæfingadeildum Landspítala - háskólasjúkrahúss og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Nánari upplýsingar um starfsþjálfunina er að finna í verknámsbók í diplómanámi.

    Nemendum er skylt að taka námskeið í Sérhæfðri endurlífgun I (ILS) LSH. Nemendur fá skírteini að loknu þessu námskeiði á verknámstímabilinu. Skal námskeiði þessu vera lokið 2 mán. fyrir fyrirhugaða útskrift. Námskeið þetta er hluti af klíniska námskeiðinu. Sérhæfð endurlífgun I (ILS) og meðhöndlun.

    • Að nemendur séu færir um greina fyrstu einkenni hjartabilunar,
    • kunni helstu aðgerðir sem beita má til að koma í veg fyrir hjartastopp og geti framkvæmt grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoð, öndunaraðstoð og gefið hjartarafstuð með sjálfvirku eða hálfsjálfvirku hjartastuðtæki, þar til sérhæfð aðstoð berst.

    Kennsluaðferðir: Sýnikennsla, verklegar æfingar og fyrirlestrar. Námsmat: Færni nemenda er metin í gegnum allt námskeiðið.

    Athugið að ekki er heimilt að skrá sig í námskeiðið nema með heimild umsjónarkennara.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ153F
    Skurðhjúkrun I hide
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um þekkingarþróun í skurðhjúkrun, hugtök og kenningar tengdar skurðhjúkun. Lögð er áhersla á dýpkun þekkingar nemanda tengt grundvallarviðfangsefnum skurðhjúkrunar s.s. handsótthreinsun, sótthreinsun húðar fyrir skurðaðgerðir og umgengnisreglur á skurðstofum. Auk þess er farið yfir heiti verkfæra í ólíkum skurðaðgerðum og þætti sem hafa áhrif á öryggi sjúklinga í skurðaðgerð.

    Farið verður yfir hjúkrunarviðfangsefni sem skurðhjúkrunarfræðingar vinna við í aðgerðarferli sjúklings á skurðstofu s.s. fyribygging taugaskaða, sýkinga- og legusáravarnir. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að nota gæðastaðla AORN (Association of periOperative Registered nurses) við störf sín á skurðstofu.

    Þekking nemanda verður dýpkuð á grundvallarþáttum sérhæfðrar hjúkrunarmeðferðar, hjúkrunargreiningar og á aðgerðarferli skjólstæðinga á skurðstofu sem byggir á hugmyndafræði um heildræna hjúkrun.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ251F
    Sérhæfð líffærafræði skurðlækninga hide
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er farið í líffærafræði líkamans m.t.t. skurðaðgerða gerðar á, í og við líffærin svo sem eins og líffærafræði höfuðs og háls, líffærafræði innri líffæra, ásamt taugakerfi útlima og bols. Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði almennrar líffærafræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Námsefnið kemur nánar fram í fyrirlestraskrá í upphafi námskeiðs.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ143F
    Þekkingarþróun í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður rætt um hugmyndir og hugtök sem hafa mótað skilning ólíkra samfélaga á heilbrigðisþjónustu og hjúkrun. Áhrifamiklar hugmyndir í hjúkrunarfræði verða kynntar og ræddar og leitast verður við að varpa ljósi á það hvernig skilningur á eðli hjúkrunar mótaðist og breyttist á tuttugustu öldinni. Einnig verður fjallað um þekkingu í hjúkrun og þróun hennar. Stefnur í þekkingarþróun verða kynntar og leitast verður við að benda á styrkleika og veikleika þeirra. Farið verður yfir aðferðir við að greina og meta fræðilegan texta og nemendur fá tækifæri til að beita þeim í umfjöllun um rannsóknir. Sérstök áhersla verður lögð á að greina hugtök og kenningar sem höfundar byggja á í rannsóknum sínum og hið fræðilega samhengi sem mótar þau verður skoðað.

    Lágmarksfjöldi nemenda: 15.

    Fyrirkomulag kennslu
    Kennt verður aðra hverja viku – í sex vikur samtals. Í hverri lotu fara fram fyrirlestrar, hópvinna og kynningar á hóp- og einstaklingsverkefnum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ0AIF
    Málstofa í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

    Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

    Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • HJÚ0AQF
    Klínísk lífeðlis- og meinafræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur námskeiðsins er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á lífeðlisfræðilegum ferlum og meinafræðilegum breytingum í starfsemi mannslíkamans sem orsaka sjúkdóma. Fjallað verður um algenga sjúkdóma á mismunandi æviskeiðum lífsins með áherslu á orsakir, undirliggjandi meinalífeðlisfræðilegar breytingar, klínísk einkenni, sjúkdómsferli, greiningu, og meðferð. Jafnframt verður fjallað um eðlilegar breytingar á lífeðlisfræðilegum ferlum öldrunar og áhrif þeirra á starfsemi líffæra og líffærakerfa á efri árum. Í námskeiðinu verður notast við fjölþættar kennsluaðferðir þar sem áhersla er lögð á virka þáttöku nemenda og yfirfærslu þekkingar yfir á klínískar aðstæður.  

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ0BNF
    Skurðhjúkrun II hide
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um öryggi í víðu samhengi við þætti er snerta skurðstofuumhverfi og þær hættur sem þar geta skapast bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk. Fjallað verður um öryggi og öryggismenningu og það tengt samskiptum við sjúklinga, mannlegu eðli, mistökum og starfsumhverfi. Einnig verður fjallað um öryggisþætti sem tengjast tækni og efnanotkun á skurðstofum.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ282F
    Klínísk starfsþjálfun í skurðhjúkrun II hide

    HJÚ339F
    Skurðhjúkrun III hide
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um helstu skurðaðgerðir á sérsviðum skurðhjúkrunar og hjúkrunarmeðferðir þeim tengdar. Markmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist þekkingu á flestum sérgreinum skurðlæknisfræðinnar. Einnig að nemendur öðlist fræðilega þekkingu á þeim vandamálum sem tengjast sjaldgæfari sjúkdómum sem geta haft áhrif á afdrif sjúklinga í aðgerð. Fjallað verður um áhættusjúklinga, sértækar varúðarráðstafanir, viðbrögð og viðeigandi hjúkrunarmeðferðir. Fjallað verður um skurðaðgerðir í bráðaástandi sjúklings.

    Markmið:
    Að nemendur öðlist þekkingu á sérgreinum skurðaðgerða. Að nemendur öðlist þekkingu á hlutverki skurðhjúkrunarfræðinga.
    Að nemendur öðlist þekkingu á hjúkrun skurðsjúklinga í hinum ýmsu skurðaðgerðum.
    Helstu hjúkrunarviðfangsefni tengd skurðaðgerðum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ346F
    Klínísk starfsþjálfun í skurðhjúkrun III hide

    HJÚ444F
    Skurðhjúkrun IV hide
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður haldið áfram að fjalla um skurðaðgerðir í framhaldi af Skurðhjúkrun II. Fjallað verður um grundvallaratriði stjórnunar á sérhæfðum hátæknideildum. Nemendur eru fræddir um mannauð á starfvettvangi og hvernig best megi nýta tæki og fjármagn í hátækniheilbrigðiskerfi. Fjallað verður um siðfræðileg álitamál tengt skurðaðgerðum og samvinnu heilbrigðisstétta á skurðstofu. Fjallað verður um leiðtogahlutverkið, helstu áhættuþætti í starfsumhverfi og ábyrgð stofnunar og hjúkrunarfræðings. Nemendur fá kennslu í líkamsmati sjúklinga fyrir, í og eftir skurðaðgerð.Kennd eru fræðileg vinnubrögð og þau þjálfuð.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ441L
    Lokaverkefni hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • HJÚ447F
    Klínísk starfsþjálfun í skurðhjúkrun IV hide

Þriðja ár

  • HJÚ218F
    Eðlis- og efnafræði svæfinga hide
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennd eru helstu uppgufunar- , þrýstings- og flæðilögmál lofttegunda og vökva. Þekking á þessu sviði er nauðsynlegur undirbúningur til skilnings á verkun gasa þ.e svæfingagasa súrefnis, glaðslofts og lofts sem og til skilnings á starfsemi lungna og blóðrásar í heilbrigðu og sjúku ástandi. Enn fremur verður fjallað um eðlisfræðilögmál þeirra tækja sem notuð eru við svæfingar, s.s. virkni gasara gasgreina, súrefnismettunarmæla, ífarandi þrýstingsmælinga o.fl.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • HJÚ170F
    Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun I hide
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er fyrsta námskeiðið af fjórum í 1600 klukkustunda klínískri starfsþjálfun í námsleið svæfingahjúkrunar. Í námskeiðinu samþætta sérnámshjúkrunarfræðingar fræðilega þekkingu og verklega þjálfun á skurðstofum með áherslu á þróun tæknilegrar færni, beitingu verkferla og klínískrar rökhugsunar við umönnun sjúklinga fyrir, í og fyrst eftir aðgerð. Jafnframt fá nemendur þjálfun í færnibúðum og hermisetri þar sem lögð er áhersla á notkun tækjabúnaðar, grunnþætti loftvegameðhöndlunar, innleiðslu svæfinga og vöktun sjúklinga. Nemendur vinna undir leiðsögn svæfingahjúkrunarfræðinga og svæfingalækna og hefja markvissa uppbyggingu klínískrar hæfni sem þróast í gegnum sérnámið og undirbýr þá fyrir fagleg og sjálfstæð störf í svæfingahjúkrun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ152F
    Svæfingahjúkrun I hide
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    L

    Námskeiðið er fyrsta námskeiðið af fjórum sem fjalla um svæfingar og deyfingar sjúklinga sem gangast undir skurðaðgerðir eða önnur ífarandi inngrip innan sem utan skurðstofa. Í námskeiðinu er lögð áhersla á undirstöðuatriði svæfinga og deyfinga og áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi sjúklings. Fjallað er um mismunandi aðferðir við svæfingar og deyfingar og nauðsynlegur tækjabúnaður kynntur. Sérstök áhersla er lögð á undirbúning sjúklinga fyrir aðgerðir, kerfisbundna upplýsingasöfnun og heilsufarsmat, loftvegameðhöndlun, legustellingar og vöktun sjúklinga. Samhliða námskeiðinu hefja nemendur klíníska verkþjálfun á svæfingadeildum þar sem þeir fá tækifæri til að yfirfæra fræðilega þekkingu yfir á klínískar aðstæður við umönnun sjúklinga.  

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ151F
    Lyfjafræði svæfingalyfja hide
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um lyfhrif og lyfhvörf  algengustu lyfja sem notuð eru við svæfingar og deyfingar, lyf notuð samhliða þeim og önnur algeng lyf sem notuð eru í meðferð sjúklinga á svæfinga- og gjörgæsludeildum.  Skoðað verður hlutverk ósjálfráða taugakerfisins við samhæfingu og stjórnun líkamsstarfseminnar og rætt um lyf með áhrif þar á. Í námskeiðinu er áhersla lögð á yfirfærslu fræðilegrar þekkingar á klínískar aðstæður á svæfinga- og gjörgæsludeildum og meðhöndlun lyfjagjafa á ábyrgan og öruggan hátt.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ143F
    Þekkingarþróun í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður rætt um hugmyndir og hugtök sem hafa mótað skilning ólíkra samfélaga á heilbrigðisþjónustu og hjúkrun. Áhrifamiklar hugmyndir í hjúkrunarfræði verða kynntar og ræddar og leitast verður við að varpa ljósi á það hvernig skilningur á eðli hjúkrunar mótaðist og breyttist á tuttugustu öldinni. Einnig verður fjallað um þekkingu í hjúkrun og þróun hennar. Stefnur í þekkingarþróun verða kynntar og leitast verður við að benda á styrkleika og veikleika þeirra. Farið verður yfir aðferðir við að greina og meta fræðilegan texta og nemendur fá tækifæri til að beita þeim í umfjöllun um rannsóknir. Sérstök áhersla verður lögð á að greina hugtök og kenningar sem höfundar byggja á í rannsóknum sínum og hið fræðilega samhengi sem mótar þau verður skoðað.

    Lágmarksfjöldi nemenda: 15.

    Fyrirkomulag kennslu
    Kennt verður aðra hverja viku – í sex vikur samtals. Í hverri lotu fara fram fyrirlestrar, hópvinna og kynningar á hóp- og einstaklingsverkefnum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ0AIF
    Málstofa í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

    Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

    Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • HJÚ219F
    Svæfingahjúkrun II hide
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Haldið verður áfram að fjalla um undirstöðuatriði svæfinga og deyfinga og áhrif þeirra á lífeðlisfræðilega starfsemi sjúklings. Rætt verður um mismunandi aðgerðir og aðferðir sem notaðar eru við svæfingar og deyfingar viðkomandi sjúklingaflokka. Fjallað verður um  einstaka sjúklingahópa auk undirliggjandi sjúkdóma sem taka verður mið af í aðgerðarferlinu (fyrir aðgerð, í aðgerð og eftir aðgerð) og mun nemandinn öðlast þjálfun í að beita fræðilegri þekkingu við svæfingaáætlun og úrlausn klínískra viðfangsefna. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ281F
    Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun II hide
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er annað af fjórum í klínískri starfþjálfun í svæfingahjúkrun og lögð áhersla á samþættingu fræðilegrar þekkingar og verklegrar þjálfunar við svæfingatengd inngrip á skurðstofum og starfsstöðvum utan svæfingadeilda. Í námskeiðinu halda nemendur áfram að kynnast sérgreinum skurðlækninga og þjálfa tæknilega færni og klíníska rökhugsun við svæfingar, deyfingar og slævingar mismunandi sjúklingahópa. Nemendur þjálfa með sér klínískt mat á sjúklingum og tileinka sér grundvallaþætti svæfingaáætlana, framkvæmd þeirra og mat á árangri. Þjálfunin nær frá umönnun heilbrigðra fullorðinna einstaklinga til sjúklinga með fjölþættan heilsufarsvanda.

    Klínískir fagfundir og valkvæð þátttaka í fagráðstefnum stuðla að dýpkun þekkingar og faglegri þróun nemenda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ0AQF
    Klínísk lífeðlis- og meinafræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur námskeiðsins er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á lífeðlisfræðilegum ferlum og meinafræðilegum breytingum í starfsemi mannslíkamans sem orsaka sjúkdóma. Fjallað verður um algenga sjúkdóma á mismunandi æviskeiðum lífsins með áherslu á orsakir, undirliggjandi meinalífeðlisfræðilegar breytingar, klínísk einkenni, sjúkdómsferli, greiningu, og meðferð. Jafnframt verður fjallað um eðlilegar breytingar á lífeðlisfræðilegum ferlum öldrunar og áhrif þeirra á starfsemi líffæra og líffærakerfa á efri árum. Í námskeiðinu verður notast við fjölþættar kennsluaðferðir þar sem áhersla er lögð á virka þáttöku nemenda og yfirfærslu þekkingar yfir á klínískar aðstæður.  

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ252F
    Hagnýting megindlegrar aðferðafræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða vísindaleg vinnubrögð kynnt þar sem sérstök áhersla er lögð á kerfisbundna fræðilega samantekt sem er hornsteinn gagnreyndra vinnubragða. Auk þess verða megin rannsóknarsniðin sem stuðst er við í klínískum rannsóknum í heilbrigðisvísindum rædd og greind. Í kerfisbundnu fræðilegu samantektinni fáið þið þjálfun í að setja fram skýra rannsóknarspurningu eða rannsóknaspurningar og að styðjast við PICO viðmiðið til að setja saman leit með leitarorðum úr rannsóknarspurningunni/unum. Auk þess verður lögð áhersla á styðjast við PRISMA yfirlýsinguna um það hvernig setja eigi fram niðurstöður úr kerfisbundinni fræðilegri samantekt til að auðkenna, velja og gagnrýna viðeigandi rannsóknir sem og til að safna og greina rannsóknirnar sem mæta inntökuskilyrðum fræðilegu samantektarinnar. Þið fáið þjálfun í að meta gæði rannsókna m.a. út frá Joanna Briggs Institute handbókinni. Lögð er sérstök áhersla á að kynna ykkur þversniðsrannsóknir, langtíma rannsóknir og þróun hálf- staðlaðra og staðlaðra tilraunarannsókna.  Í meðferðarrannsóknum verður m.a., fjallað um samhæfingu rannsóknarviðfangsefna út frá rannsóknaspurningum og tilgátum við þá aðferðafræði sem stuðst er við, þ.e., við úrtaksstærð, snið, mælingar, úrvinnslu gagna og hrifstærð (effect size). Lögð verður sérstök áhersla á að þið öðlist innsæi í kröfur um byrtingar rannsóknarniðurstaðna í alþjóðlegum tímaritum og um hagnýtingu þeirra innan hjúkrunarfræðinnar. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ0AIF
    Málstofa í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

    Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

    Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ345F
    Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun III hide
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun fer fram samhliða fræðilegu námi í svæfingahjúkrun og veitir þjálfun í klíniskum vinnubrögðum og vinnuferlum í svæfingahjúkrun. Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun er metin til 30 eininga og er 1700 klst. sem fer fram á svæfingadeildum Landspítala - háskólasjúkrahúss, í hermi (simulator) og í verklegum æfingum í vinnubúðum.

    Í klínískri starfsþjálfun er notuð verknámsbók þar sem m.a. koma fram  námsmarkmið, hvaða kröfur nemar þurfa að uppfylla, upplýsingar um námsmat, gerð svæfingaáætlana, skráningu færnikorta og verknámsskráa.

    Gerð er krafa um 100% ástundun í klínískri starfsþjálfun. Markmið starfsþjálfunar í svæfingahjúkrun er að þjálfa nemendur í að samþætta klíníska- og fræðilega þekkingu, veita þjálfun í klínískum vinnubrögðum og vinnuferlum og kynna sem flest svið svæfingahjúkunar.

    Kennslumisseri: Kennsla mun fara fram samfara námi en skráning í námsskeiðið verður aðeins á síðasta misseri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ438F
    Endurlífgun og svæfingar bráðveikra sjúklinga hide
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að veita þekkingu og færni í svæfingahjúkrun sjúklinga með lífshótandi vandamál og endurlífgun fullorðinna og barna.

    Námskeiðið felur í sér fyrirlestra, verkþjálfun, tilfellaþjálfun og herminám.

    Námskeiðið byggir mjög á þekkingu sem nemandinn hefur öðlast í námskeiðunum Svæfingahjúkrun 1 og 2, Lyfjafræði svæfinga, Eðlis- og efnafræði svæfinga og Hjúkrun bráðveikra sem og í verknámi.

    Meðal efnisþátta námskeiðsins er sérhæfð endurlífgun barna og fullorðinna sniðin að þörfum svæfingahjúkrunarfræðinga. Kerfisbundin nálgun bráðveikra (ABCDE nálgun). Fjallað er um úrlestur hjartalínurita og taktgreiningu. Hraðatakta, hægatakta og endurlífgun við sérhæfðar aðstæður sem upp geta komið í svæfingum. Svæfingahjúkrun í þrýstiklefa (hyperbaric chamber). Svæfingahjúkrun sjúklinga með bráð lífsógnandi veikindi, m.a. vegna:  bruna, fjöláverka, heila- og taugaáfalla, aðgerða í brjóstholi, kviðarholi, bæklunaraðgerða, æðaaðgerða, HNE aðgerða, í fæðingum og augnaðgerðum. Farið verður í sérhæfða loftvegameðferð, meðhöndlun hins erfiða loftvegar og flæðirit um erfiða loftvegi, in-line stabilization og bráða innleiðslu. Þjálfuð verður notkun bakbretta og hálskraga og kennd verður frumskoðun á vettvangi.

    Á námskeiðinu mun reyna á þekkingu í meðferð við katastrófublæðingar og meðferð vasoaktívra lyfja. Þá verður þjálfuð teymisvinna við bráðaaðstæður. Fjallað verður um neyðarástand á skurðstofu vegna bruna og bilana í rafkerfi og súrefniskerfi.  Lögð verður til grundvallar kerfisbundin nálgun við lausn vandamála. Þá verður fjallað um mannlega þáttinn við neyðaraðstæður (CRM).

    Námskeiðið er unnið í samvinnu við Bráðaskólann sem leggur fram kennslubúnað og hluta kennsluefnis endurgjaldslaust.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ337F
    Svæfingahjúkrun III hide
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu, sem er framhald af Svæfingafræði og Svæfingahjúkrun II, verður fjallað um svæfingar og deyfingar mismunandi sjúklingahópa sem koma til skurðaðgerðar. Skoðað verður hvað einkennir viðkomandi sjúklingahópa og þau vandamál sem nemandi þarf hugsanlega að glíma við í gegnum aðgerðarferlið. Ennfremur verður fjallað um sjúklinga með sérhæfð vandamál og undirliggjandi sjúkdóma sem geta haft áhrif á umönnun þeirra.

    Kennsluaðferð: Fyrirlestrar, umræðutímar og verkefni. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ0AIF
    Málstofa í hjúkrunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofan er hluti af lokaverkefni og miðar að því að leiðbeina og styðja nemendur við að útfæra rannsóknarverkefni til meistaragráðu. Henni er ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni umræðu um meistaraverkefni á öllum stigum vinnunnar og þálfun í fræðilegri framsetningu. Hver nemandi kynnir verkefni sitt og fær endurgjöf frá samnemendum og rýnir verkefni samnemanda a.m.k einu sinni yfir námstímann.

    Nauðsynlegt er að mæta í tíu málstofur á námstímanum til að útskrifast úr meistaranámi. Málstofur eru settar upp í staðlotum á haust og vormisseri og skráir nemandi sig á sérstakt skráningablað í námskeiðinu á Canvas til kynna verkefni sitt og rýna.

    Þær málstofur sem enginn skráir sig til að  kynna verkefni falla sjálfkrafa niður.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ443F
    Svæfingahjúkrun IV hide
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður áhersla lögð á sérsvið svæfingahjúkrunar með hliðsjón af klínískum viðfangsefnum og innviðum fagsins útfrá hugmyndaramma alþjóðasamtaka svæfingahjúkrunarfræðinga (IFNA) og alþjóðlegu samstarfi.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ441L
    Lokaverkefni hide
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ448F
    Klínísk starfsþjálfun í svæfingahjúkrun IV hide

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Hjúkrunarfræðingar eru eftirsóttir starfskraftar um allan heim. Fjölbreytileiki starfsins er mikill og sérhæfing nýtist víða.

Fólk þessa menntun starfar auk hjúkrunar meðal annars við:

  • Rannsóknir
  • Innleiðingu nýjunga í hjúkrun
  • Breytingastjórnun
  • Öryggi í heilbrigðisþjónustu
  • Verkefnastjórnun
  • Gagnavinnslu og upplýsingatækni
  • Kennslu

Listinn er ekki tæmandi.

Nemendafélagið Curator heldur uppi frábæru félagslífi við Hjúkrunai- og ljósmóðurfræðideild. Markmið Curator er að stuðla að skemmtun, samheldni og góðum anda í deildinni.

Félagið stendur meðal annars fyrir nýnemadegi, vísindaferðum, óvissuferð og fleira.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Thelmu Björk Árnadóttur
Þegar hugurinn fór að reika í frekara nám lá beinast við að velja meistaranám í heilsugæsluhjúkrun því mig langaði að öðlast dýpri þekkingu og fræðilega færni til að mæta þörfum barna og fjölskyldna þeirra. Námið er krefjandi en jafnframt fjölbreytt og skemmtilegt. Áhugaverðast var að sjá hversu flott hjúkrun er sem fræðigrein.
Ljósmynd af Yousef Inga Tamimi
Ég ákvað að skrá mig í MS-nám, rannsóknaleið, samhliða svæfingahjúkrun sem viðbótardiplóma. Hæfni mín sem klínískur hjúkrunarfræðingur hefur aukist töluvert og fræðilega þekkingin sem ég fæ úr MS-námi hefur hjálpað mikið við að skilja betur hjúkrunarfræðina sem fræðigrein. Námið gerir mér enn betur kleift að skoða með gagrýnum augum þær aðferðir og meðferðir sem við beitum. Það kom á óvart hve gaman ég hef haft af rannsóknarvinnu og því þverfaglega samstarfi sem ég hef tekið þátt í. Dyggur stuðningur leiðbeinenda minna hefur hjálpað verulega við að gera námið skemmtilegt og áhugavert sem og kennarar deildarinnar eru ávallt tilbúnir að aðstoða og eiga umræður um rannsóknaverkefnin.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Virka daga 9:00 - 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Eirberg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil