- Viltu vinna náið með fólki á öllum aldri?
- Viltu vinna við að bæta heilsu og líðan fólks?
- Viltu aðstoða fólk á erfiðum og góðum stundum?
- Hefur þú áhuga á fjölbreyttu, krefjandi og gefandi starfi?
- Viltu takast á við fjölbreyttar áskoranir í námi og starfi?
Nám í hjúkrunarfræði tekur til allra aldurshópa og helstu heilsufarsvandamála nútímans. Námið er fjölbreytt og kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum, verklegum æfingum, verkefnavinnu og dæmatímum.
Í náminu er lögð áhersla á að þú fáir skilning á margbreytileika mannsins og áhrifum heilbrigðis og sjúkleika á líðan hans og aðstæður. Kennsla í hjúkrunarfræði miðar að því að þú verðir fær um að viðhalda og efla heilbrigði skjólstæðinga þinna og bæta líðan þeirra í veikindum.
Meðal viðfangsefna
- Geðhjúkrun og geðheilbrigði
- Klínísk hjúkrun
- Heilsugæsla samfélagsins
- Hjúkrun, menning og margbreytileiki
- Líffærafræði
- Frumulífeðlisfræði
- Félags- og sálfræði
- Siðfræði í hjúkrun
- Örveru- og sýklafræði
- Lífeðlisfræði
- Töl- og aðferðafræði
- Ónæmis- og meinafræði
- Samskipti, öryggi og heilbrigðisfræðsla
- Lyf- og næringarfræði
- Skurðlækningafræði
Á fyrstu tveimur árunum fer fram kennsla í undirstöðugreinum hjúkrunar, í raun- og hugvísindum og í sjúkdóma- og lyfjafræði ásamt kennslu í hjúkrunarfræði. Eftir því sem líður á námið eykst vægi hjúkrunarfræðinnar og við tekur sérhæfðari hjúkrun, s.s. hjúkrun aldraðra, barna og geðsjúkra.
Starfsþjálfun fer fram á öllum námsárum, ýmist samhliða eða í kjölfar fræðilegrar kennslu. Lokaverkefni til BS-prófs er unnið á 4. námsári og vinna nemendur það annað hvort einir eða tveir saman.
Námið er fjölbreytt og kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum, verklegum æfingum, verkefnavinnu og dæmatímum.
Í færnisetrinu í Eirbergi er líkt eftir raunverulegum aðstæðum og nemendur undirbúnir fyrir störf á heilbrigðisstofnunum.
Setrið er útbúið fullkomnum tækjabúnaði sem býður upp á ótal möguleika til gagnvirkrar kennslu, til dæmis myndavélakerfi, nákvæma eftirlíkingu á sjúkrastæði, sérstakt úrvinnsluherbergi, lyfjaherbergi, að ógleymdum tölvustýrðum sýndarsjúklingum. Lykillinn að árangursríku herminámi er góður undirbúningur, skýr námsmarkmið og raunhæf tilfelli í samræmi við þarfir þátttakenda.
Hjúkrunarfræði er bara hægt að stunda sem aðalgrein og miðað er við 30 einingar á misseri ef fullt nám er stundað. Hámarkstími til að ljúka náminu eru 6 ár.
Í Hjúkrunarfræðideild eru stundaðar öflugar rannsóknir og er deildin með þeim bestu á heimsvísu.
Til að hefja BS-nám við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Þá nægir lokapróf frá verk- og raunvísindadeild (áður frumgreinadeild) Keilis Háskólabrúar Háskóla Íslands eða úr háskólagrunni HR til inngöngu í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.
Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku, sbr. 2. mgr. 1. gr. reglna nr. 331-2022, um inntökuskilyrði í grunnnám. Nánari upplýsingar má finna hér:
Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands
Æskilegur undirbúningur samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 er: 3. hæfniþrep í íslensku, ensku og stærðfræði. Auk þess er mælt með því að stúdent hafi lokið 10 fein á 3. þrepi í efnafræði og/eða stærðfræði og 5 fein á 3. þrepi í líffræði. Gerð er krafa um íslensku- og enskukunnáttu. Kennsla og námsmat fer fram á íslensku.
Samkeppnispróf eru haldin í desember ár hvert og miðast fjöldatakmörkun við 125 nemendur. Framkvæmd fjöldatakmörkunar er þannig:
Nemendum sem standast öll samkeppnispróf, þ.e. próf í öllum námskeiðum haustmisseris á 1. ári BS-náms, er raðað eftir veginni meðaleinkunn, frá þeirri hæstu til þeirrar lægstu, og er 125 nemendum með hæstu meðaleinkunnirnar boðið námspláss á vormisseri næsta árs.
Ef færri en 125 nemendur ná öllum samkeppnisprófum er nemendum sem hafa fallið í einu prófi raðað eftir veginni meðaleinkunn, frá þeirri hæstu til þeirrar lægstu, og þeim nemendum sem hlotið hafa hæsta meðaleinkunn boðið námspláss á vormisseri 1. námsárs, þar til náð hefur verið þeim fjölda nemenda sem fjöldatakmörkun kveður á um.
Námið fer alla jafna fram á fjórum árum og ljúka þarf 240 einingum fyrir brautskráningu. Hámarkstími til námsins er sex ár. Í náminu er lögð áhersla á að kenna um manninn, umhverfi hans og heilsu, og hvernig hægt er með hjúkrun að hafa áhrif á aðstæður hans og líðan. Á fyrstu tveimur árunum fer fram kennsla í undirstöðugreinum hjúkrunar í náttúru-, félags- og hugvísindum ásamt kennslu í hjúkrunarfræði og heilbrigðisvísindum. Eftir því sem líður á námið eykst vægi hjúkrunarfræðinnar og við tekur sérhæfðari hjúkrun. Lokaverkefni til BS-prófs er unnið á 4. námsári og vinna nemendur það í litlum hópum. Lágmarkseinkunn er 6,0 í hjúkrunarnámskeiðum en 5,0 í öðrum námskeiðum. Stuðst er við fjölbreyttar kennsluaðferðir, fyrirlestra, verklegar æfingar, færni- og hermikennslu, klíníska kennslu, umræðutíma og verkefnavinnu. Áhersla er lögð á eflandi námssamfélag nemenda og kennara. Klínísk námstímabil eru á öllum námsárum, ýmist samhliða eða í kjölfar fræðilegrar kennslu og fara fram á heilbrigðisstofnunum um allt land, til dæmis á Akranesi, Selfossi, Keflavík, Akureyri, Ísafirði og víðar.
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Fyrsta ár
- Haust
- Félags- og sálfræði
- Hjúkrunarfræði og starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga
- Líkaminn – Bygging og þroskun
- Frumulíffræði
- Örveru- og sýklafræði
- Vor
- Lífeðlisfræði I
- Tölfræði
- Ónæmis- og meinafræði
- Almenn hjúkrun I
- Aðferðafræði
- Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn
Félags- og sálfræði (HJÚ114G)
Í félagsfræðihluta: Gerð er grein fyrir hugtökunum heilbrigði, sjúkdómur, veikindi og sjúklingur. Fjallað er um virkni-, álags- og lífsstílsskýringar á heilsuvandamálum. Gerð er grein fyrir tengslum viðhorfa og hegðunar og kynnt fræðileg líkön um þau tengsl. Langvinn heilsuvandamál eru skilgreind og rætt um sálrænar, félagslegar og efnahagslegar afleiðingar þeirra.
Í sálfræðihluta: Fjallað verður um hvernig skilja má hugarstarf og hegðun einstaklinga og hópa út frá sjónarhorni sálfræðinnar. Kynnt eru mikilvægt hugtök, helstu kenningar og niðurstöður rannsókna. Fjallað verður um sálfræði sem vísindagrein með áherslu á gagnrýna hugsun og fagleg vinnubrögð. Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á mikilvægum undirstöðuatriðum sálfræðinnar og hagnýtum nálgunum innan hennar.
Hjúkrunarfræði og starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga (HJÚ127G)
Viðfangsefnum námskeiðsins er skipt í þrjá meginhluta sem hver hefur sína áhersluþætti:
1. Hjúkrunarstarfið:Fjallað um hvað í því felst að vera hjúkrunarfræðingur. Saga hjúkrunar og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á Íslandi skoðað. Sjónum beint að hlutverki hjúkrunarfræðinga og sérsvið hjúkrunar kynnt.
2. Hjúkrunarfræðin:Fjallað um grunnkenningar í hjúkrunarfræði og þekkingu sem hjúkrunarstarfið byggir á. Rýnt í samhengið milli skjólstæðings, umhverfis, heilbrigðis og hjúkrunar. Sérstaklega verður fjallað um tengslakenningar, þarfakenningar og umhyggjukenningar. Siðareglum og grunngildum hjúkrunar verða gerð skil og fjallað sérstaklega um gagnrýna hugsun í samhengi við hjúkrunarfræði.
3. Heildræn hjúkrun í þágu skjólstæðinga, aðstandenda og samfélags: Samskipti í samhengi við hjúkrun verða skoðuð, einnig fjölmenning og inngilding og áhrifin sem þau hafa á störf hjúkrunarfræðinga. Hinsegin heilbrigðisþjónusta verður til umfjöllunar. Sérstaklega verður fjallað um hlutverk hjúkrunarfræðinga í geðvernd auk þess sem ofbeldi og áföll og áhrif þess á heilsu fólks verða gerð skil. Jafnframt verður umfjöllun um með hvaða hætti hjúkrunarfræðingar geta hlúð að eigin heilsu og vellíðan og í kjölfarið tekist á við krefjandi starf í síbreytilegum heimi.
Meginmarkmið námskeiðsins eru eftirfarandi:
- að nemendur fái innsýn og þekkingu á hugtökum og kenningum sem móta starfsumhverfi og starfsvettvang hjúkrunarfræðinga.
- að nemendur öðlist þekkingu á hjúkrun sem fræðigrein og sem starfsgrein með áherslu á gagnrýna hugsun, fagmennsku, starfsþróun, sjálfræði, samvinnu og hlutverk hjúkrunarfræðinga.
- að nemendur öðlist þekkingu á helstu siðareglum, lögum og reglugerðum sem skapa ramma og móta starf hjúkrunarfræðinga.
- að nemendur öðlist þekkingu á sögu hjúkrunar á Íslandi.
- að nemendur öðlist þekkingu á áhrifum heilsu og sjúkdóma á líðan fólks og aðstæður.
- að nemendur öðlist þekkingu á geðvernd, sem er ein af meginundirstöðum hjúkrunar. Umfjöllun á námskeiðinu mun beinast að hugtökum sem tengjast tilgangi og aðferðum geðverndar og geðræktar, og verður tengd við gagnreyndar aðferðir sem stuðla að farsælli úrvinnslu lífsbreytinga, efla þrautseigju og vellíðan. Sjónum verður sérstaklega beint að daglegum lifnaðarháttum einstaklinga og hópa í nútíma samfélagi.
- að nemendur öðlist þekkingu á áföllum og ofbeldi með áherslu á afleiðingar áfalla og ofbeldis á heilsu.
- að nemendur öðlist þekkingu á aðferðum sem geta stuðlað að vellíðan þeirra í námi sem hjúkrunarnemar og í starfi sem hjúkrunarfræðingar.
Líkaminn – Bygging og þroskun (HJÚ130G)
Markmið kennslu í líffæra- og fósturfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í byggingu og þroskun líkamans. Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði fósturfræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Þannig þekki verðandi hjúkrunarfræðingar byggingu og innbyrðis afstöðu þátta stoðkerfisins, vöðva, líffæra og líffærakerfa. Þessi grunnur veitir grundvallarskilning á uppbyggingu líkamans, en gerir nemendum jafnframt kleift að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði.
Frumulíffræði (HJÚ131G)
Inngangur að frumulíffræði.
Að loknu námskeiðinu mun nemandinn hafa öðlast þekkingu til að geta lýst og gert í grundvallaratriðum grein fyrir eftirfarandi þáttum og hugtökum.
Bygging og þróun heilkjörnunga. Efnafræði frumna og orkubúskapur, gerð og eiginleikar stórsameinda eins og próteina og kjarnsýra. Bygging og hlutverk frumuhluta sem dæmi frumuhimnu, kjarna, hvatbera, frumugrindar, golgíkerfis, leysikorna og oxunarkorna. Grunnatriði í erfðafræði og genastjórnun. Stjórnkerfi og boðleiðir innan frumu og samskipti milli fruma ásamt frumusérhæfingu og krabbameinum.
Örveru- og sýklafræði (HJÚ142G)
Markmið námskeiðsins er að kynna mikilvægi sýkla og smitvarna við umönnun og meðferð sjúklinga og önnur störf á vettvangi hjúkrunar. Lögð er áhersla á fræðilegan undirbúning nemenda til þess að þeir geti hámarkað öryggi sjúklinga og umönnunaraðila við störf sín. Þannig geti þeir tekist á við þekkta og nýja sýkla, spítalasýkingar og útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Mikilvægir orsakavaldar sýkinga og smitsjúkdóma eru kynntir, helstu eiginleikar þeirra, varnir gegn þeim og meðferð.
Lífeðlisfræði I (HJÚ212G)
Markmið kennslu í lífeðlisfræði er veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í starfsemi mannslíkamans. Þannig öðlist verðandi hjúkrunarfræðingar grundvallarskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og orsökum sjúkdóma og geti betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eigi nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.
Viðfangsefni: Vöðvar, taugakerfi, stjórn hreyfinga. Inkirtlar og hormónar. Hjarta og æðakerfið. Öndun.
Tölfræði (HJÚ214G)
Í námskeiðinu eru kennd grunnatriði hagnýtrar tölfræði með áherslu á notkun Jamovi tölfræðihugbúnaðarins. Fjallað er um helstu hugtök lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og hvernig tölfræðilegir útreikningar eru framkvæmdir í Jamovi, túlkaðir og kynntir. Meginefni námskeiðsins nær m.a. til breytutegunda og rannsóknarsniða, mælikvarða á miðlægni og dreifingu, myndrænnar framsetningar gagna, stöðlunar, dreifinga, tilgátuprófana (þar á meðal t-prófa og χ²-prófa) og fylgni (þar meðal Pearson’s r og Spearman’s r). Áhersla er lögð á hagnýta færni nemenda í Jamovi og gagnrýna túlkun á tölfræðilegum niðurstöðum í samhengi heilbrigðisvísinda.
Ónæmis- og meinafræði (HJÚ224G)
Markmið kennslu í ónæmisfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í starfsemi ónæmiskerfisins. Þannig öðlist verðandi hjúkrunarfræðingar grundvallarskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og orsökum sjúkdóma og geti betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eigi nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.
Viðfangsefni: Ónæmiskerfið, líffæri og frumur. Ósérhæfðar varnir, átfrumur, magnakerfið og bólgusvar. Sérhæfðar varnir gegn sýkingum og krabbameini, þroskun og sérhæfing eitilfrumna, og ónæmisminni. Grundvöllur ónæmissvars, sjálfsþols og stjórnunar. Tilurð, greining og meðferð meðfæddra og áunnra ónæmisbilana. Tilurð, greining og meðferð ofnæmis- og sjálfsofnæmissjúkdóma. Ónæmisfræðilegur grundvöllur líffæraflutninga. Sértækar meðferðir byggðar á forsendum ónæmisfræðinnar (bólusetningar, afnæmingar, líftæknilyf).
Farið er í grundvallaratriði í almennri meinafræði. Fjallað er um frumuáverka, bráða- og króníska bólgu, græðslu, blóðsega og blóðrek, hjarta- og æðasjúkdóma og góðkynja- og illkynja æxlisvöxt.
Almenn hjúkrun I (HJÚ225G)
Í þessu námskeiði er fjallað um grunn almennrar hjúkrunar og hjúkrunarferlið, allt frá mati á skjólstæðingum, greiningu hjúkrunarviðfangsefna, áætlun, meðferð og framvindu skjólstæðings. Kennd verða grunnhugtök og -viðfangsefni hjúkrunar með áherslu á skjólstæðinga með skerta sjálfsbjargar- og hreyfigetu þar með talið aðhlynningu slíkra skjólstæðinga. Lykilviðfangsefni eru upplýsingasöfnun, sýkingavarnir, þrýstingssáravarnir, áhrif rúmlegu, vinnutækni, næringarástand, útskilnaður, lífsmörk og öryggi við lyfjagjafir. Nemendur læra einnig flóknari viðfangsefni tengd hjúkrun eldra fólks og þeim líkamlegu og sálfélagslegu breytingum sem fylgja öldrun. Sem dæmi er kennt um færni- og heilsumat vegna flutnings á hjúkrunarheimili, mat á heilsufari íbúa á hjúkrunarheimilum og vísbendingar um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum.
Í færnisetri kynnast og þjálfa nemendur vinnubrögð sín í viðfangsefnum sem fjallað hefur verið um í fræðilegri kennslu. Nemandinn fær þjálfun í notkun kvarða við mat á sjálfsbjargargetu og ástandi skjólstæðinga og kynnist leiðum til að tryggja öryggi þeirra í daglegri umönnun.
Í tveggja vikna klínísku námi á hjúkrunardeild er lögð áhersla á þjálfun í að veita aðhlynningu og aðra grunnhjúkrun, þar með talið færni við samskipti, mat á ástandi skjólstæðinga, greiningu viðfangsefna, áætlun um meðferð einkenna og framkvæmd viðeigandi hjúkrunar.
Aðferðafræði (HJÚ243G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum í aðferðafræði sem og þekkingu á algengustu rannsóknaaðferðum sem beitt er í hjúkrunarrannsóknum.
Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn (HVS202G)
Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda. Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.
- Annað ár
- Haust
- Lífeðlisfræði II
- Samskipti og fræðsla
- Almenn hjúkrun II
- Vöxtur og þroski barna og unglinga
- Heilbrigðismat
- Vor
- Lyfjafræði
- Skurðlækningafræði
- Næringarfræði
- Lyflækningafræði
- Almenn hjúkrun III
Lífeðlisfræði II (HJÚ309G)
Markmið kennslu í lífeðlisfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallarstarfssemi mannslíkamans. Þannig öðlast verðandi hjúkrunarfræðingar grunnskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og forsendum sjúkdóma og geta betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eiga nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.
Viðfangsefni: nýrnastarfsemi, bygging og starfsemi meltingarfæra, stjórn efnaskipta, orkujafnvægi, stjórn líkamshita, lífeðlisfræði vaxtar, skynjun, meðvitund, atferli, æxlunarlífeðlisfræði og fósturþroskun.
Samskipti og fræðsla (HJÚ314G)
Námskeiðið er kennt á 2. ári í grunnnámi í hjúkrunarfræði og er í námskeiðinu byggt ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa öðlast í námskeiðum um hjúkrunarfræði og félags- og sálfræði. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að færni nemenda til 1) samskipta sem einkennast af gæðum, 2) að mynda árangursríkt meðferðarsamband, 3) að veita notendum heilbrigðisþjónustunnar fræðslu með gagnreyndum aðferðum og 4) að skilja hvernig ofangreind færni tengist öryggi notenda heilbrigðisþjónustunnar. Á námskeiðinu verður fjallað um samskipti frá ýmsum hliðum og fá nemendur fjölmörg tækifæri til æfinga í kennslustundum og utan þeirra. Þar verður lögð áhersla á að skoða og þjálfa virka hlustun, viðbrögð í erfiðum samskiptum og uppbyggjandi leiðir til samskipta við notendur heilbrigðisþjónustunnar. Fjallað verður um hugtakið virðingu, ábyrgð heilbrigðisstarfsfólks og fagmennsku í tengslum við rétt allra til heilbrigðisþjónustu.
Á námskeiðinu verður einnig fjallað um tilgang heilbrigðisfræðslu til notenda og tengsl fræðslu við útkomu og árangur meðferðar. Helstu kenningar er tengjast heilbrigðisfræðslu og námi fullorðinna verða kynntar svo og hugtakið heilsulæsi. Farið verður í fræðsluferlið í ljósi mismunandi þarfa notenda og nemendur æfa sig í að skipuleggja og veita fræðslu. Skoðaðar verða mismunandi kennsluaðferðir, kennslumiðlar og hvernig þekking, færni og viðhorf hjúkrunarfræðinga geta haft áhrif á árangur fræðslu til notenda.
HÆFNIVIÐMIÐ
Við lok námskeiðs á nemandi að:
- Geta notað uppbyggjandi samskiptaaðferðir í ólíkum aðstæðum
- Geta útskýrt meðferðarsambandið og áhrifamátt þess í hjúkrun sjúklinga
- Vera fær um að ígrunda áhrif eigin samskiptahátta á myndun meðferðartengsla við sjúklinga
- Geta fjallað á gagnrýninn hátt um grunnþætti heilbrigðisfræðslu, svo sem tilgang hennar,
siðfræði, helstu námskenningar og fræðsluferlið - Geta útbúið og rökstutt kennsluáætlun fyrir sjúkling um afmarkað efni
- Geta útskýrt hvernig samskipti og fræðsla hafa áhrif á öryggi innan heilbrigðiskerfisins
Almenn hjúkrun II (HJÚ318G)
Haldið verður áfram að fjalla um hjúkrunarfræðileg hugtök, auka færni nemenda í flóknari hjúkrunarviðfangsefnum s.s. að vinna við dauðhreinsaðar aðstæður, lyfja-, vökva. Áhersla er lögð á ábyrgð hjúkrunarfræðinga við að meta ástand einstaklinga, skráningu og notkun hjúkrunarferlisins. Einnig verður farið í fræðileg vinnubrögð. Klínískt nám fer fram á sjúkrahúsum.
Vöxtur og þroski barna og unglinga (HJÚ319G)
Í námskeiðinu er farið í helstu kenningar um vitsmuna-, siðferðis- og sálfélagslegan þroska yfir æviskeiðið. Lögð er áhersla á heilbrigðan vöxt og þroska barna og unglinga. Farið er í líkamlegar breytingar en jafnframt í vitsmunalegan og sálfélagslegan þroska hjá börnum og unglingum og ýmsar aðferðir til að meta vöxt og þroska þeirrra.
Heilbrigðismat (HJÚ320G)
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum yfirgripsmikla þekkingu á líkamsmati (physical assessment) og tengdum þáttum. Áhersla er lögð annarsvegar á að nemendur öðlist færni í beitingu á lykilþáttum í líkamsmati og hinsvegar á skilning nemenda á sérhæfðari aðferðum líkamsmats. Megin viðfangsefnið er heildrænt líkamsmat út frá fullorðnum einstaklingum. Samhliða er tæpt á bráðum líkamlegum einkennum hjá sjúklingum í tengslum við líkamsmat, sem og öryggi sjúklinga. Í námskeiðinu verður ennfremur tekið fyrir lykilþættir fyrstuhjálpar, þar sem megin markmið er að undirbúa nemendur að sinna fyrstuhjálp við krefjandi aðstæður og á sjálfstæðan hátt. Í færnistofu er farið yfir aðferðir við framkvæmd á allsherjar líkamsmati og námsefnið sett í klínískt samhengi. Rík áhersla er á að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu, til að mynda líffæra- og lífeðlisfræði. Sjá betur námskeiðslýsingu.
Lyfjafræði (HJÚ409G)
Lyfjahvarfafræði: Frásog, dreifing, útskilnaður og umbrot lyfja. Gildi lyfjamælinga í blóði. Lyfjaviðtakar. Samband skammta og verkunar. Hjáverkanir lyfja. Öldrunarlyfjafræði. Milliverkun lyfja. Lyfhrifafræði: Lyfjafræði innkirtla. Bólgueyðandi lyf. Lyfjafræði úttaugakerfis. Lyfjafræði miðtaugakerfis. Blóðþrýstingslækkandi lyf. Hjartalyf. Segavarnarlyf. Fitulækkandi lyf. Eitranir í heimahúsum.
Skurðlækningafræði (HJÚ410G)
Námskeiðið miðar að því að nemandi öðlist yfirsýn yfir helstu sjúkdóma og áverka vegna slysa sem fengist er við innan handlækningafræði. Farið verður yfir einkenni, greiningu og meðferð sjúkdóma og slysa, sem skiptist þannig: Almennir hlutar skurðlæknisfræði, sjúkdómar í brjóstholi, sjúkdómar í kviðarholi, brjóstasjúkdómar, skjaldkirtilssjúkdómar og meðferð bruna, sjúkdómar í þvagfærum, sjúkdómar í beinum og liðum og sjúkdómar í heila og mænu.
Næringarfræði (HJÚ416G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur læri undirstöðuatriði næringarfræðinnar, þ.e. um hugtakið lífsnauðsynlegt, um næringarefni og hlutverk þeirra í líkamanum, hvaðan næringarefnin koma, áhrif þeirra á líkamsstarfsemi og tengsl mataræðis, næringarefna og heilsu. Fjallað verður um næringu á mismunandi æviskeiðum og helstu áherslur varðandi næringu mismunandi sjúklingahópa. Markmiðið er jafnframt að nemendur kynnist samstarfi hjúkrunarfræðinga og næringarfræðinga í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.
Lyflækningafræði (HJÚ418G)
Námskeiðið miðar að því að nemandi öðlist yfirsýn yfir helstu sjúkdóma er fengist er við innan lyflækningafræði. Kennd eru grundvallaratriði allra algengustu sjúkdóma eftirtalinna sjúkdómaflokka: hjarta- og æðasjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, öndunarfærasjúkdóma, sjúkdóma í taugakerfi, blóðsjúkdóma, innkirtlasjúkdóma, gigtarsjúkdóma, smitsjúkdóma og krabbameinssjúkdóma. Við lok námskeiðsins á nemandi að geta hagnýtt þekkingu sína á sjúkdómum innan hvers sjúkdómaflokks lyflækninga í starfi og frekara námi.
Almenn hjúkrun III (HJÚ419G)
Þetta námskeið miðar að því að auka færni nemenda í greiningu hjúkrunarþarfa og skipuleggja hjúkrunarmeðferð. Áhersla er lögð á ábyrgð hjúkrunarfræðinga við að meta ástand einstaklinga og að veita viðeigandi hjúkrunarmeðferð. Fjallað verður um verki, einkennamat, vökva- og blóðgjafir í æð ásamt vökva-, elektrólýta- og sýrubasa jafnvægi. Farið verður yfir túlkun rannsóknarniðurstaða, töku sýna og meðhöndlun. Haldið verður áfram að kenna öryggi við lyfjavinnu og lyfjaútreikninga ásamt öryggismenningu. Umbætur, gagnreynd þekking ásamt þátttöku sjúklinga, upplýsingatækni og teymisvinna eru leiðarstef í gegnum allt námskeiðið.
- Þriðja ár
- Haust
- Geðhjúkrun og geðheilbrigði
- Öldrunarhjúkrun
- Hjúkrun langveikra fullorðinna
- Hjúkrun aðgerðasjúklinga
- Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun
- Heilsugæsla samfélagsins
- Vor
- Klínísk geðhjúkrun
- Klínísk öldrunarhjúkrun
- Klínísk hjúkrun langveikra fullorðinna
- Klínísk heilsugæsla
- Klínísk fjölskylduhjúkrun
- Klínísk hjúkrun aðgerðasjúklinga
Geðhjúkrun og geðheilbrigði (HJÚ523G)
Í námskeiðinu er fjallað um ýmsa þætti geðheilbrigðis og helstu geðraskanir meðal fullorðinna og barna, tíðni, greiningu, meðferðarleiðir og hvernig geðrænar áskoranir hafa áhrif á fjölskyldur. Farið verður yfir meginkenningar og hugtök sem geðhjúkrun byggir á sem og mismunandi nálganir í geðheilbrigðisþjónustu. Fjallað er sérstaklega um hlutverk hjúkrunarfræðinga í bráðameðferð og endurhæfingu einstaklinga með geðræn vandamál.
Öldrunarhjúkrun (HJÚ525G)
Í þessu námskeiði verður fjallað um breytingar sem verða á einstaklingum með hækkandi aldri og helstu viðfangsefnum öldrunarhjúkrunar. Gerð verður grein fyrir algengum heilsufarseinkennum, sjúkdómum og hjúkrunarmeðferð sem beitt er við þeim. Sérstök áhersla verður á einkenni vitrænnar skerðingar og greiningu hennar svo og hjúkrun sjúklinga með heilabilun og/eða í óráði.
Hjúkrun langveikra fullorðinna (HJÚ527G)
Tilgangur námskeiðisins Hjúkrun langveikra fullorðinna er að efla þekkingu og færni nemenda við að hjúkra fullorðnum einstaklingum með langvinna sjúkdóma bæði í langvinnu og bráðaástandi. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar, trúarlegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans og vinni heildrænt að því að lina þjáningu og efla heilbrigði og þroska sjúklinga sinna. Tengsl hjúkrunarfræðings og sjúklings, eftirlit, viðbrögð við einkennum, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferðar eru lykilatriði
Hjúkrun aðgerðasjúklinga (HJÚ528G)
Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem eiga við bráða og langvinna sjúkdóma að stríða, fara í skurðaðgerð og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit (observation), skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða eru lykilatriði. Þá er fjallað öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynda þekkingu og teymisvinnu heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli (post-operative recovery) sjúklings.
Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun (HJÚ529G)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur kynnist hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og því hvernig fjölskylduhjúkrun hefur verið útfærð innan heilbrigðisþjónustunnar. Hlutverk hjúkrunarfræðinga í fjölskyldustuðningi og viðhorf til sjúkdóma verða rædd. Farið verður yfir fjölskylduvirkni og fjölskylduhjúkrun í framkvæmd, hvernig hægt er að nota meðferðarspurningar á árangursríkan hátt og hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir virka og þá hvers vegna. Nemendur fá þjálfun í að beyta hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar í færnibúðum, auk þess sem unnið verður að því að þróa styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður. Hvatt er til þátttöku ykkar í námskeiðinu.
Fyrirkomulag námsins
Fyrirlestrar: Verða haldnir í námskeiðinu nánar tiltekið í okt. Fyrirlestrar verða ekki teknir upp. Þar sem kennslan í fjölskylduhjúkruninni byggir mikið á hópavinnu sem kemur í kjölfar fyrirlestrana, er virka þátttaka ykkar mikilvæg í tímunum. Hópavinnan og umræður þar sem nemendum gefst tækifæri til að kafa ofan í námsefnið til að öðlast betri skilning á því er ekki tekin upp. Nemendur eru því hvattir til að mæta í fyrirlestrana.
Kennslan byggist á því að nemendur mæti undirbúnir í hvern tíma. Notaðar verða fjölþættar kennsluaðferðir (fyrirlestrar, vinna í hópum og þjálfun í færnibúðum). Hvatt er til skoðanaskipta og rökræðna á gagnrýninn og uppbyggjandi hátt. Skyldumæting er í færnibúðirnar (tveir dagar) og í munnlegar samræður með kennurum um fjölskylduverkefnið þeirra í færnibúðunum. Auk þess er skyldumæting í munnlegar samræður við sérfræðikennara nemenda um verkefni B.
Færnibúðir: Nemendur mæta tvisvar sinnum (þ.e. í tvo daga) í færnibúðir og skila inn einu verkefni (Verkefni A—einstaklingsverkefni (skriflegur hluti verkefnisins) auk þess sem þeir mæta í munnlegar sammræður um verkefnið með sérfræðikennaranum þeirra á síðari degi færnibúðanna (síðari hluti verkefnisins). Í færnibúðunum vinna þeir einnig að undirbúningi á verkefni C sem tilheyrir námskeiðinu HJÚ632G (en námskeiðin eru tengd saman)
Verkefni A:
Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann). Verkefnið er unnið undir náinni handleiðslu sérfræðikennara í færnibúðum.
Verkefni B:
Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann). Verkefnið er einstaklingsverkefni þar sem nemendum er úthlutað fjölskyldu- bíómynd til að vinna með í verkefnaviku. Tilgangur verkefnisins er að nemendur geti dýpkað þekkingu sína í fjölskylduhjúkrun. Verkefnið er unnið á þremur dögum um miðjan nóv (sjá stundatöflu). Munnlegu samræðurnar um verkefni B eru haldnar á síðasta degi verkefnavikunnar (þ.e. á föstudeginum).
Heilsugæsla samfélagsins (HJÚ530G)
Markmið námskeiðsins er að fjalla um þá heilbrigðisþjónustu sem hjúkrunarfræðingar sinna innan heilsugæslunnar og í samfélaginu utan heilbrigðisstofnana. Farið er í hlutverk heilsugæsluhjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæslu í grunn- og framhaldsskólum og móttöku skjólstæðinga í móttöku á heilsugæslustöðvum. Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um umönnun nýbura, foreldra og ungu fjölskylduna. Í námskeiðinu kynnast nemendur barneingarferlinu, ýmsum frávikum svo sem áhrifum meðgöngu-og fæðingarreynslu á heilsu móður og barns, aðlögun foreldra að nýjum hlutverkum, þróun tengslamyndunar og þunglyndi mæðra/foreldra eftir fæðingu. Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í því að meta sérþarfir og heilsufarsástand mæðra,nýbura og fjölskyldna eftir fæðingu, bæði með klínískri starfsþjálfun og einnig með gerð lausnaleitarverkefna. Áhersla verður lögð á að þjálfa nemendur í samskiptum við skjólstæðinga og fyrirbyggjandi og heilbrigðishvetjandi hjúkrun. Einnig verður áhersla lögð á forvarnir og heilsueflingu einstaklinga og hópa í samfélaginu innan og utan heilbrigðisstofnana. Fjallað er um leiðir til að fyrirbyggja heilsufarsvandamál og efla heilsu hópa innan samfélagsins, með hliðsjón af þekkingu um lifnaðarhætti og kenningar um forvarnir og heilsueflingu, meðal annars með umfjöllun um atvinnu- og umhverfisheilbrigði.
Klínísk geðhjúkrun (HJÚ617G)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur m.a. í að beita þeirri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu Geðhjúkrun og geðheilbrigði. Klíníska þjálfunin fer fram á heilbrigðisstofnunum þar með talið á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, Reykjalundi og Landspítala háskólasjúkrahúsi. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun heilsufarsmats og klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga og aðstandenda á sviði geðhjúkrunar.
Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í að meta þarfir og heilsufarsástand skjólstæðinga, bæði með klínískri þjálfun og einnig með framkvæmd klínískra verkefna. Auk þess er áhersla lögð á þjálfun nemenda í tengslamyndun og samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur ásamt heilsueflandi umönnun. Nemendur eiga samneyti við sjúklinga, aðstandendur og fagfólk og skoða sérstaklega þátt hjúkrunarfræðinga í meðferð og þverfaglegu samstarfi. Þeir leitast við að tengja fræðilega þekkingu við klínísk viðfangsefni og leita í því samhengi eftir fræðilegu efni og rannsóknarniðurstöðum. Nemendur taka þátt í daglegum viðfangsefnum hjúkrunar og nýta sér námstækifæri sem þeim bjóðast og vinna klínísk námsverkefni með leiðsögn klínískra- og sérfræðikennara.
Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í að meta þarfir og heilsufarsástand skjólstæðinga sinna, bæði með klínískri þjálfun og einnig með framkvæmd klínískra verkefna. Auk þess er áhersla lögð á þjálfun nemenda í samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra og á fyrirbyggjandi og heilsueflandi umönnun. Nemendum gefst tækifæri til að beita fræðilegri þekkingu við mat og þróun íhlutana fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra undir handleiðslu heilbrigðisstarfsmanna. Þeir eiga samneyti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og fagfólk og skoða sérstaklega þátt hjúkrunarfræðinga í meðferð og þverfaglegu samstarfi. Þeir leitast við að tengja fræðilega þekkingu við klínísku viðfangsefni og leita í því samhengi eftir fræðilegu efni og rannsóknarniðurstöðum. Nemendur taka þátt í daglegum viðfangsefnum hjúkrunar og nýta sér námstækifæri sem þeim bjóðast og vinna klínísk námsverkefni með leiðsögn klínískra- og sérfræðikennara.
Klínísk öldrunarhjúkrun (HJÚ618G)
Í þessu námskeiði kynnist nemandi sértækum þörfum og hjúkrun eldra fólks og þeim breytingum sem verða á einstaklingnum með hækkandi aldri. Áherslan er á að greina hvernig meðferð og mat á eldra fólki þarf að taka tillit til sérstakra þarfa þeirra svo sem bestur árangur náist í meðferð og endurhæfingu. Með því að taka tillit til sér þarfa eldra fólks má tryggja lífsgæði og stytta legutíma. Verkefni og matstæki sem unnið er með geta skarast við önnur námskeið en tilgangurinn er þá að þjálfa nemandann í að nota matstæki sem og að túlka niðurstöðuna með tilliti til öldrunarbreytinga.
Klínísk hjúkrun langveikra fullorðinna (HJÚ620G)
Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem eiga við bráða og langvinna sjúkdóma að stríða og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða, öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynd þekking og teymisvinna heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli sjúklings eða að taka á við einkenni og heilsufarsvanda eru lykilatriði í klínískri þjálfun í námskeiðinu.
Klínísk heilsugæsla (HJÚ627G)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita gagnreyndri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu „Heilsugæsla samfélagsins. Klíniska þjálfunin fer fram á heilbrigðisstofnunum þar með talið á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala háskólasjúkrahúsi. Sérstök áhersla verður lögð á klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga (t.d. nýbura, mæðra/foreldris og skólabarna), fjölskyldna og hópa innan heilsugæslunnar.
Klínísk fjölskylduhjúkrun (HJÚ632G)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita gagnreyndri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu HJÚ 529G Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun. Sérstök áhersla verður lögð á klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Nemendur vinna í sameiningu með sérfræðikennara að því að finna skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra til að vinna með í klíníkinni.
Klínísk hjúkrun aðgerðasjúklinga (HJÚ633G)
Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem fara í skurðaðgerð og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða, öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynd þekking og teymisvinna heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli sjúklings eða að taka á við einkenni og heilsufarsvanda eru lykilatriði í klínískri þjálfun í námskeiðinu.
- Fjórða ár
- Haust
- Heimahjúkrun
- Hjúkrunarstjórnun
- Heilbrigði og siðfræði
- Langveikir og heilbrigðisþjónustan
- Barnahjúkrun I
- Barnahjúkrun II
- Bráðahjúkrun I
- Bráðahjúkrun II
- Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum
- Vor
- Inngangur að svæfingahjúkrun
- Inngangur að skurðhjúkrun
- Kynheilbrigði
- Konur, heilsa og samfélag
- Andvari: Gjörgæsluhjúkrun
- Hjúkrun, menning og margbreytileiki
- Ekki kennt á misserinuBráðahjúkrun - Valnámskeið
- Ekki kennt á misserinuMeðferðir til heilsueflingar
- Barnahjúkrun II
- Bráðahjúkrun II
- Lokaverkefni
- Valnámskeið í klínískri hjúkrun
Heimahjúkrun (HJÚ711G)
Í námskeiðinu verður fjallað um heimilið sem vettvang heilbrigðisþjónustu. Rætt verður um gildi heimilisins fyrir fólk og áhrif tæknivæðingar á heimilismenn. Leitast verður við að skoða samspil umhverfis á heimilum og heilsu og lífsgæða. Samstarf við aðstandendur og aðstæður þeirra verða ræddar með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum. Gerð verður grein fyrir uppbyggingu og skipulagi heilbrigðis- og félagsþjónustu til þeirra sem dvelja heima og þarfnast aðstoðar vegna veikinda eða skerðingar á færni. Í fyrirlestrum og klínísku námi kynnist nemandi störfum í heimahjúkrun sem miða að því að viðhalda og efla vellíðan fólks með langvinn heilsufarsvandamál sem býr á eigin heimili.
Hjúkrunarstjórnun (HJÚ714G)
Námskeiðinu er ætlað að auka þekkingu og dýpka skilning nemanda á helstu grunnhugtökum og kenningum í hjúkrunarstjórnun og hvernig hægt er að beita þeim í hjúkrunarstarfi. Lögð er áhersla á að nemendur þekki og geri sér grein fyrir því stjórnunarstarfi sem fram fer í hjúkrun innan heilbrigðisstofnana. Jafnframt að þau þekki grundvallaratriði í rekstri, uppbyggingu og skipulagi stjórnkerfa heilbrigðisstofnana. Fjallað verður sérstaklega um forystuhlutverk hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðiskerfisins og hlutverk þeirra í teymisvinnu. Hermikennsla og klínískt nám í hjúkrunarstjórnun miðar að því að nemendur fái æfingu í að hafa umsjón með, skipuleggja, stjórna og forgangsraða hjúkrunarmeðferð ákveðins hóps sjúklinga ásamt því að tryggja öryggi þeirra og starfsmanna. Nemendur eiga að ljúka klínískum verkefnum og vera virkir þátttakendur í umræðuhópum.
Heilbrigði og siðfræði (HJÚ726G)
- Sérstaklega er fjallað um siðferðilegan þátt hjúkrunarfræðinnar og hjúkrunarstarfsins með það að markmiði að búa nemendur undir að greina og takast á við siðferðileg úrlausnarefni í starfi heilbrigðisstétta til dæmis tengt ofbeldi og flóknum aðstæðum í starfi. Tekin verða til athugunar ýmis siðfræðileg úrlausnarefni, sem upp koma í starfi heilbrigðisstétta og forsendur fyrir lausnum á þeim.
- Afleiðingar ofbeldis og kynbundinna áfalla á heilsu. Birtingarmyndir ofbeldis og kynbundins ofbeldis á mismunandi æviskeiðum. Birtingarmyndir ofbeldis meðal mismunandi samfélagshópa, s.s. ofbeldis í nánum samböndum og fjölskyldum; ofbeldis gagnvart viðkvæmum og jaðarsettum hópum; eineltis; ofbeldis í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Faraldsfræði ofbeldis, úrræði fyrir þolendur og leiðir til forvarna.
- Erfiða samtalið og áskoranir í samskiptum. Sjálfskaðar og sjálfsvígshætta. Aðferðir til að skima fyrir ofbeldi og veita þolendum stuðning. Hjúkrun eftir ofbeldi
Langveikir og heilbrigðisþjónustan (HJÚ727G)
Námskeiðið er ætlað 4. árs BS nemendum í hjúkrunarfræði. Það er fræðilegt (4 ECTS) og klínískt (1 ECTS) og skiptist í tvo þætti:
Þjónustunotkun og íslensk heilbrigðisþjónusta í alþjóðlegu samhengi.
Fjallað er um veikindahegðun og þjónustunotkun, skýringar á þjónustunotkun, einkenni þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu, skipulag á og aðgengi að þjónustu, árangur og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu. Umsjón með þessum þætti námskeiðsins hefur Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.
Meðferð/þjónusta hjúkrunarfræðinga fyrir langveika og fjölskyldur þeirra.
Fjallað er um hugtök, einkenni og fyrirbæri sem tengjast langveikum og fjölskyldum þeirra og hjúkrunarmeðferðir sérsniðnar að þörfum langveikra og fjölskyldna þeirra. Einnig er fjallað um siðferðileg álitamál í þjónustu við langveika og fjölskyldur þeirra og úrvinnsla álitamála þjálfuð. Nemendur kynnast starfsemi stofnana sem þjónusta langveika, verða í klínísku námi á göngudeildum fyrir langveika og kynnast starfsemi sjúklingasamtaka.
Tvær kennsluáætlanir verða í námskeiðinu, annars vegar fyrir grunnnemendur og hins vegar fyrir framhaldsnemendur. Nemendur námskeiðsins geta nálgast þær á Canvas þegar kennsla er hafin.
Barnahjúkrun I (HJÚ730G)
Námskeiðið veitir nemendum þekkingu og skilning á grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í barnahjúkrun og grundvallar þekkingu og skilningi á hugtökum sem tengjast helstu barnasjúkdómum. Lögð er áhersla á þarfir og heilbrigði barna; einkenni, viðbrögð, upplifun og skynjun barna á veikindum og sjúkrahúsvist; tjáskipti við börn, tengsl við foreldra og hlutverk hjúkrunar í umönnun barna með ýmis heilbrigðisfrávik. Þátttaka í klínískum verkefnum, starfi og umræðu, ásamt umræðufundum og klínískum vinnusmiðjum veita nemendum tækifæri til að kynnast störfum hjúkrunarfræðinga og samstarfsmanna á barnadeildum og að öðlast grundvallarhæfni og -leikni í helstu aðferðum og inngripum tengdum hjúkrun og tengdri meðferð. Áhersla er lögð á tengingu fræðilegrar þekkingar, klínískrar aðferðafræði og framkvæmd hjúkrunar foreldra og barna með gagnreyndum aðferðum.
Barnahjúkrun II (HJÚ731G)

Bráðahjúkrun I (HJÚ732G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga og hjúkrun slasaðra.
Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum.
Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á hugtökin:
- Mat (assessment)
- Eftirlit (surveillance)
- Fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.
Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC).
Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á:
- Þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun
- Fyrstu meðferð/bjargráð
- Samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum.
Athugið að áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.
Bráðahjúkrun II (HJÚ733G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga, sem og hjúkrun slasaðra. Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum. Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. Í námskeiðinu er áhersla lögð á hugtökin mat (assessment), eftirlit (surveillance) og fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.
Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC). Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun, fyrstu meðferð/bjargráð og samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.
Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda. Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti.
Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.
Námsmat (staðið/fallið) byggist á verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október.
Inngangur að svæfingahjúkrun (HJÚ836G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn í fagsvið og starfsvettvang svæfingahjúkrunarfræðinga.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á undirstöðuatriði svæfingahjúkrunar með tengingu við umönnun sjúklinga í gegnum aðgerðarferlið á svæfinga- og vöknunardeildum. Námskeiðið nær yfir þriggja vikna tímabil og fer kennslan fram í Eirbergi og á svæfinga- og vöknunardeildum Landspítala.
Kennsluhættir byggja á fyrirlestrum, sjálfsnámi, færniþjálfun, gagnvirkum umræðum og verknámskynningu á svæfinga- og vöknunardeildum.
Þess er vænst að nemendur komi undirbúnir fyrir tíma með því að kynna sér námsefni sem sett er á kennsluvef námskeiðsins á Canvas.
Fyrstu þrír dagarnir byggja á fyrirlestrum og umræðufundum fyrir úrvinnslu á námsefni dagsins en fjórða daginn er áhersla á færnistöðvar og hermiþjálfun. Eftir það fara nemendur í tvo daga á svæfinga- og vöknunardeild en sjöunda daginn er mæting á umræðufundi í Eirbergi.
Fyrirkomulag kennslu:
- Dagur 1-3: Fyrirlestrar 4/ dag og Umræðufundir 1/dag. (Samtals 15 stundir)
- Dagur 4: Færni og hermiþjálfun (4 stundir)
- Dagur 5-6: (8/dag = 16 stundir)
- Dagur 7: Umræðufundur, kynning á verkefnum og staðverkefni
Inngangur að skurðhjúkrun (HJÚ835G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn í fagsvið og starfsvettvang skurðhjúkrunarfræðinga.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á undirstöðuatriði skurðhjúkrunar með tengingu við umönnun sjúklinga í gegnum aðgerðarferlið á skurðstofu. Námskeiðið nær yfir þriggja vikna tímabil og fer kennslan fram í Eirbergi og á skurðstofum Landspítala.
Kennsluhættir byggja á fyrirlestrum, sjálfsnámi, færniþjálfun, gagnvirkum umræðum og verknámskynningu á skurðstofu. Þess er vænst að nemendur komi undirbúnir fyrir tíma með því að kynna sér námsefni sem sett er á kennsluvef námskeiðsins á Canvas.
Fyrstu þrír dagarnir byggja á fyrirlestrum og umræðufundum fyrir úrvinnslu á námsefni dagsins en fjórða daginn er áhersla á færnistöðvar og hermiþjálfun. Eftir það fara nemendur í tvo daga á skurðstofu en sjöunda daginn er mæting á umræðufundi í Eirbergi.
Fyrirkomulag kennslu:
- Dagur 1-3: Fyrirlestrar 4/ dag og Umræðufundir 1/dag (Samtals 15 stundir)
- Dagur 4: Færni og hermiþjálfun (4 stundir)
- Dagur 5-6: (8/dag = 16 stundir)
- Dagur 7: Umræðufundur, kynning á verkefnum og stutt staðverkefni
Kynheilbrigði (HJÚ825G)
Í námskeiðinu kynnast nemendur hugmyndafræði kynheilbrigðis og skoða mikilvæga þætti er varða kynheilbrigði einstaklingsins, parsins og hvernig samfélagið getur haft mótandi áhrif á kynverund mannsins. Einnig kynnast nemendur margvíslegum áhrifaþáttum á kynheilbrigði eins og og sjúkdóma sem geta raskað eðlilegri starfsemi líkamans og haft áhrif á náin sambönd og kynferðislega velllíðan. Námskeiðinu er ætlað að efla nemendur í að sinna kynheilbrigðismálum með því að gefa þeim góðan þekkingarlegan grunn út frá máttarstólpum sem varða réttindi kynverundar, veita nemendum tækifæri á að æfa sig að ræða og veita stuðning og fræðslu um kynlífstengd málefni.
Áhersla er lögð á að nemendur glöggvi sig á megin áhrifavöldum í mótun kynverundar og hvernig þeir geti sýnt skilning og víðsýni gagnvart ólíkum þörfum og sjónarmiðum skjólstæðinga sinna.
Ætlast er til að nemendur noti umræðuvef námskeiðsins og skili verkefnum rafrænt. Svo kennslustundir nýtist nemendum sem best og nemandi geti verið virkur í umræðutímum, er nemendum bent á að koma undirbúnir í allar kennslustundir.
Konur, heilsa og samfélag (HJÚ828G)
Námskeiðið fjallar um konur heilsu og samfélag. Fjallað er um líffræðilega, sál-/félags- og umhverfislega þætti sem hafa áhrif á heilbrigði kvenna. Pólitísk stefnumótun og hugmyndir um heilbrigði og skoðaðar í kynjafræðilegu samhengi. Unnið er út frá heildrænu sjónarmiði um æviskeiðin og fjallað um áhrif lífsviðburða, sjúkdóma og lyfja. Í námskeiðinu er einnig fjallað um sérhæfða líffæra- og lífeðlisfræði kvenna og barneignarferli, algenga kvensjúkdóma og helstu hugtök í erfðafræði og litningarannsóknum í tengslum við meðgöngu.
Andvari: Gjörgæsluhjúkrun (HJÚ829G)
Námskeiðið veitir nemendum yfirsýn yfir grunnþætti gjörgæsluhjúkrunar. Megináhersla er á mat og meðferð tengd öndunarvegi, öndun og meðvitund. Æskilegt er að nemandi taki HJÚ823G Valnámskeið í klínískri hjúkrun á gjörgæsludeild.
Hjúkrun, menning og margbreytileiki (HJÚ830G)
Námskeiðslýsing:
Markmið námskeiðsins er að tengja saman starf hjúkrunarfræðinga við jaðarsetta hópa samfélagsins með sérstakri áherslu á hlutverk hjúkrunarfræðinga sem málsvara. Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum skilning á helstu hugtökum í menningarnæmri hjúkrun og færni til að beita þeirri þekkingu á vettvangi. Farið verður í hugtök sem tengjast forréttindum, stétt, stofnanatengdu ofbeldi, jaðarsetningu af ýmsum toga og hnattvæðingu.
Hluti námskeiðsins verður kenndur af gestarafyrirlesurum sem tilheyra jaðarsettum hópum eða vinna í þjónustu við jaðarsetta hópa í samfélaginu og heilbrigðiskerfinu. Má þar nefna fyrirlesara úr hópum LGBTQIA+ fólks, fólks af erlendum uppruna, flóttafólk, fatlað fólk, fólk sem lifir í fátækt, fólk með fíknir og fleira.
Bráðahjúkrun - Valnámskeið (HJÚ831G)
Tilgangur þessa námskeiðs er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á bráðaþjónustu, bráðahjúkrun innan sem utan sjúkrastofnana, á almennum og sérhæfðum bráðamóttökum auk ferli sjúklinga frá fyrstu veikindum/slysi til útskriftar af sjúkrastofnum.
Krafa er um að nemendur velji stað í klínísku valnámskeiði á vormisseri 4. árs sem tengist bráðaþjónustu og vinna þar verkefni tengd þessu námskeiði.
Faglegar forkröfur: Gert er ráð fyrir að nemendur hafi við upphaf námskeiðs
- hæfni til þess að greina sértækar hjúkrunarþarfir bráð- og alvarlega veikra sjúklinga og aðstandenda þeirra,
- þekkingu á reynsluheimi bráð- og alvarlega veikra sjúklinga
- þekkingu og kunnáttu til að beita völdum meðferðum sjúklinga með við líffærabilanir
- þekkingu á áhrifaþáttum bráðra og alvarlegra veikinda á líf og lífsgæði skjólstæðinga
- verulega færni í uppbyggjandi samskiptum við skjólstæðinga og myndun meðferðartengsla við þá
- getu til að beita víðtækum þekkingargrunni úr hug-, sál-, félags,- líf,- raun- og heilbrigðisvísindum sem hjúkrunarstarfið byggir á
- umtalsverðrar hjúkrunarfræðilegar þekkingar í bráðahjúkrun
- tileinkað sér vinnubrögð um gagnreynda þekkingu og beitingu hennar
- þekki til þróunar klínískra leiðbeininga.
Nemendur skulu tengja efni námskeiðsins við eigin viðfangsefni/sérsvið eftir því sem við verður komið.
Námið byggir á fyrirlestrum, umræðum, klínísku námi og verkefnum. Í klínísku námi þjálfar nemandi og skerpir á fræðilegri þekkingu í raunverulegum aðstæðum sjúklinga.
Námskeiðið er í boði sem val í grunnnámi í hjúkrunarfræði.
Námsmarkmið
- Nemendur öðlist yfirgripsmikla þekkingu í bráðahjúkrun við mismunandi aðstæður.
- Nemendur öðlist færni til að meta, forgangsraða og bregðast við bráðum veikindum/slysum skjólstæðinga og þekki viðeigandi meðferðir og úrræði innan sem utan sinnar starfseiningar hverju sinni.
- Nemendur sýni hæfni til að beita gagnrýnni hugsun á hefðir og venjur í bráðaþjónustu og bráðahjúkrun.
- Nemendur öðlist færni við að greina árangur hjúkrunar bráðveikra, slasaðra og aðstandenda þeirra.
- Nemendur öðlist þekkingarlegan grunn til að greina tækifæri til breytinga á vinnulagi, taka frumkvæði að þróunarverkefnum eða með öðrum hætti finna leiðir til umbóta í starfi sínu.
Námsþættir
- Bráðahjúkrun innan og utan sjúkrahúsa.
- Mat á og forgangsflokkun sjúklinga
- Fyrsta meðferð og þarfir út frá mismunandi einkennum/sjúklingahópum
- Meðferðasamband í bráðaþjónustu - Fagmennska
- Bráðaflokkun og áverkamat
- Hópslys: viðbragðsáætlun og hlutverk hjúkrunarfræðinga
- Almannavarnakerfið, lögregla, sjúkraflutningar, hjálparlið almannavarna (Slysavarnafélagið Landsbjörg og Rauði Kross Íslands), Neyðarlínan , Landhelgisgæslan og heilbrigðisstofnanir
- Forvarnir slysa og bráðra veikinda: börn, aldraðir, útsettir og jaðarsettir hópar, almenningur
- Ofbeldi: greining, sérhæft mat og meðferð mismunandi hópa
Meðferðir til heilsueflingar (HJÚ832G)
Námskeiðið fjallar um kenningar og gagnreyndar meðferðir til heilsueflingar almennings, til að sinna eigin heilbrigði sem og ákveðinna sjúklingahópa. Í námskeiðinu verða kynnar leiðir sem hjúkrunarfræðingar geta beitt til að styðja skjólstæðinga sína að taka ábyrgð á eigin heilbrigði. Fjallað verður um mataræði, hreyfingu, útiveru, algeng náttúrulyf og náttúruvörur sem almenningur og sjúklingar eru að nota og hugsanlega gagnsemi og skaðsemi þeirra. Sérstaklega verður fjallað um notkun viðbótarmeðferða (complementary theraies) fyrir aldraða, krabbameinssjúklinga, gigtarsjúklinga, barnshafandi konur og við lífslok. Farið verður í notkun viðbótarmeðferða við ákveðum einkennum eins og verkjum, þreytu, kvíða og ógleði. Einnig verður í námskeiðinu hugað að þáttum sem hafa áhrif á vellíðan í starfi. Verklegar æfingar verða eitt skipti þar sem verður farið í nudd, djúpslökun og hugleiðslu. Í námskeiðinu huga nemendur að því að innleiða meðferð í klíník og gera æfingar við að sinna eigin heilsu.
Barnahjúkrun II (HJÚ731G)
Námskeiðið veitir nemendum þekkingu og skilning á grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í barnahjúkrun og grundvallar þekkingu og skilningi á hugtökum sem tengjast helstu barnasjúkdómum. Lögð er áhersla á þarfir og heilbrigði barna; einkenni, viðbrögð, upplifun og skynjun barna á veikindum og sjúkrahúsvist; tjáskipti við börn, tengsl við foreldra og hlutverk hjúkrunar í umönnun barna með ýmis heilbrigðisfrávik. Þátttaka í klínískum verkefnum, starfi og umræðu, ásamt umræðufundum og klínískum vinnusmiðjum veita nemendum tækifæri til að kynnast störfum hjúkrunarfræðinga og samstarfsmanna á barnadeildum og að öðlast grundvallarhæfni og -leikni í helstu aðferðum og inngripum tengdum hjúkrun og tengdri meðferð. Áhersla er lögð á tengingu fræðilegrar þekkingar, klínískrar aðferðafræði og framkvæmd hjúkrunar foreldra og barna með gagnreyndum aðferðum.
Bráðahjúkrun II (HJÚ733G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga, sem og hjúkrun slasaðra. Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum. Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. Í námskeiðinu er áhersla lögð á hugtökin mat (assessment), eftirlit (surveillance) og fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.
Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC). Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun, fyrstu meðferð/bjargráð og samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.
Lokaverkefni (HJÚ818L)
Lokaverkefni í hjúkrunarfræði er 10 eininga námskeið sem undirbýr nemendur fyrir að beita fræðilegum vinnubrögðum og aðferðafræðilegri þekkingu í þeim tilgangi að setja fram nýja þekkingu með hagnýtt gildi. Nemendur vinna verkefni að jafnaði 3-4 saman undir leiðsögn bæði fastráðinna kennara við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild og hjúkrunarfræðinga á klínískum vettvangi með a.m.k. meistarapróf. Verkefnin verða byggð á fræðilegum heimildum og tengjast klínískri vinnu hjúkrunarfræðinga.
Valnámskeið í klínískri hjúkrun (HJÚ823G)
Lýsing á námskeiðinu á íslensku:
Nemendur velja sér sjálfir klínískan vettvang eftir áhugasviði. Klínískur vettvangur er þar sem sjúklingum/einstaklingum er veitt hjúkrun og þar sem nemandi getur aukið klíníska færni sína og þekkingu. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi. Gert er ráð fyrir að nemandi dvelji á vettvangi í eina vinnuviku (40 stundir). Frávik geta verið frá því t.d. ef nemandi fer erlendis.
Nemandi hefur samband við vettvang og semur munnlega við hjúkrunarfræðing um að fá að koma í klínískt nám sem samsvarar 40 klukkustundum. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi.
Nemandi sendir formlega umsókn með starfsferilskrá til umsjónarkennara námskeiðs (á Canvas vef námskeiðsins) og hjúkrunarfræðings á vettvangi. Í umsókn á að koma fram:
- Nafn og netfang nemanda.
- Nafn og netfang umsjónarkennara.
- Hvaða vettvang valdi nemandi og hver hefur umsjón með dvöl hans þar (nafn og netfang hjúkrunarfræðings).
- Hvers vegna varð þessi vettvangur fyrir valinu/rök fyrir vali.
- Hver eru markmið nemandans með klíníska náminu á þessum stað.
- Áhersluatriði sem nemandi mun sérstaklega kynna sér. Hvaða gagnreyndu þekkingu ætlar nemandi að skoða og skrifa um sem tengist þessum vettvangi.
Umsjónarkennari sendir hjúkrunarfræðingi á vettvangi upplýsingar um námskeiðið.
Þegar ljóst er hvenær nemandi mun fara á vettvang hefur hann samband við hjúkrunarfræðing á vettvangi. Nemandi staðfestir síðan við umsjónarkennara tímabil klíníska námsins. Mismunandi er eftir stundatöflu hvers nemanda hvenær hann getur farið á vettvang
- Haust
- Námskeiðslýsing
Í félagsfræðihluta: Gerð er grein fyrir hugtökunum heilbrigði, sjúkdómur, veikindi og sjúklingur. Fjallað er um virkni-, álags- og lífsstílsskýringar á heilsuvandamálum. Gerð er grein fyrir tengslum viðhorfa og hegðunar og kynnt fræðileg líkön um þau tengsl. Langvinn heilsuvandamál eru skilgreind og rætt um sálrænar, félagslegar og efnahagslegar afleiðingar þeirra.
Í sálfræðihluta: Fjallað verður um hvernig skilja má hugarstarf og hegðun einstaklinga og hópa út frá sjónarhorni sálfræðinnar. Kynnt eru mikilvægt hugtök, helstu kenningar og niðurstöður rannsókna. Fjallað verður um sálfræði sem vísindagrein með áherslu á gagnrýna hugsun og fagleg vinnubrögð. Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á mikilvægum undirstöðuatriðum sálfræðinnar og hagnýtum nálgunum innan hennar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHJÚ127GHjúkrunarfræði og starfsvettvangur hjúkrunarfræðingaSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefnum námskeiðsins er skipt í þrjá meginhluta sem hver hefur sína áhersluþætti:
1. Hjúkrunarstarfið:Fjallað um hvað í því felst að vera hjúkrunarfræðingur. Saga hjúkrunar og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á Íslandi skoðað. Sjónum beint að hlutverki hjúkrunarfræðinga og sérsvið hjúkrunar kynnt.
2. Hjúkrunarfræðin:Fjallað um grunnkenningar í hjúkrunarfræði og þekkingu sem hjúkrunarstarfið byggir á. Rýnt í samhengið milli skjólstæðings, umhverfis, heilbrigðis og hjúkrunar. Sérstaklega verður fjallað um tengslakenningar, þarfakenningar og umhyggjukenningar. Siðareglum og grunngildum hjúkrunar verða gerð skil og fjallað sérstaklega um gagnrýna hugsun í samhengi við hjúkrunarfræði.
3. Heildræn hjúkrun í þágu skjólstæðinga, aðstandenda og samfélags: Samskipti í samhengi við hjúkrun verða skoðuð, einnig fjölmenning og inngilding og áhrifin sem þau hafa á störf hjúkrunarfræðinga. Hinsegin heilbrigðisþjónusta verður til umfjöllunar. Sérstaklega verður fjallað um hlutverk hjúkrunarfræðinga í geðvernd auk þess sem ofbeldi og áföll og áhrif þess á heilsu fólks verða gerð skil. Jafnframt verður umfjöllun um með hvaða hætti hjúkrunarfræðingar geta hlúð að eigin heilsu og vellíðan og í kjölfarið tekist á við krefjandi starf í síbreytilegum heimi.
Meginmarkmið námskeiðsins eru eftirfarandi:
- að nemendur fái innsýn og þekkingu á hugtökum og kenningum sem móta starfsumhverfi og starfsvettvang hjúkrunarfræðinga.
- að nemendur öðlist þekkingu á hjúkrun sem fræðigrein og sem starfsgrein með áherslu á gagnrýna hugsun, fagmennsku, starfsþróun, sjálfræði, samvinnu og hlutverk hjúkrunarfræðinga.
- að nemendur öðlist þekkingu á helstu siðareglum, lögum og reglugerðum sem skapa ramma og móta starf hjúkrunarfræðinga.
- að nemendur öðlist þekkingu á sögu hjúkrunar á Íslandi.
- að nemendur öðlist þekkingu á áhrifum heilsu og sjúkdóma á líðan fólks og aðstæður.
- að nemendur öðlist þekkingu á geðvernd, sem er ein af meginundirstöðum hjúkrunar. Umfjöllun á námskeiðinu mun beinast að hugtökum sem tengjast tilgangi og aðferðum geðverndar og geðræktar, og verður tengd við gagnreyndar aðferðir sem stuðla að farsælli úrvinnslu lífsbreytinga, efla þrautseigju og vellíðan. Sjónum verður sérstaklega beint að daglegum lifnaðarháttum einstaklinga og hópa í nútíma samfélagi.
- að nemendur öðlist þekkingu á áföllum og ofbeldi með áherslu á afleiðingar áfalla og ofbeldis á heilsu.
- að nemendur öðlist þekkingu á aðferðum sem geta stuðlað að vellíðan þeirra í námi sem hjúkrunarnemar og í starfi sem hjúkrunarfræðingar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið kennslu í líffæra- og fósturfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í byggingu og þroskun líkamans. Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði fósturfræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Þannig þekki verðandi hjúkrunarfræðingar byggingu og innbyrðis afstöðu þátta stoðkerfisins, vöðva, líffæra og líffærakerfa. Þessi grunnur veitir grundvallarskilning á uppbyggingu líkamans, en gerir nemendum jafnframt kleift að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingInngangur að frumulíffræði.
Að loknu námskeiðinu mun nemandinn hafa öðlast þekkingu til að geta lýst og gert í grundvallaratriðum grein fyrir eftirfarandi þáttum og hugtökum.
Bygging og þróun heilkjörnunga. Efnafræði frumna og orkubúskapur, gerð og eiginleikar stórsameinda eins og próteina og kjarnsýra. Bygging og hlutverk frumuhluta sem dæmi frumuhimnu, kjarna, hvatbera, frumugrindar, golgíkerfis, leysikorna og oxunarkorna. Grunnatriði í erfðafræði og genastjórnun. Stjórnkerfi og boðleiðir innan frumu og samskipti milli fruma ásamt frumusérhæfingu og krabbameinum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kynna mikilvægi sýkla og smitvarna við umönnun og meðferð sjúklinga og önnur störf á vettvangi hjúkrunar. Lögð er áhersla á fræðilegan undirbúning nemenda til þess að þeir geti hámarkað öryggi sjúklinga og umönnunaraðila við störf sín. Þannig geti þeir tekist á við þekkta og nýja sýkla, spítalasýkingar og útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Mikilvægir orsakavaldar sýkinga og smitsjúkdóma eru kynntir, helstu eiginleikar þeirra, varnir gegn þeim og meðferð.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingMarkmið kennslu í lífeðlisfræði er veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í starfsemi mannslíkamans. Þannig öðlist verðandi hjúkrunarfræðingar grundvallarskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og orsökum sjúkdóma og geti betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eigi nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.
Viðfangsefni: Vöðvar, taugakerfi, stjórn hreyfinga. Inkirtlar og hormónar. Hjarta og æðakerfið. Öndun.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEfnisgjald er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu eru kennd grunnatriði hagnýtrar tölfræði með áherslu á notkun Jamovi tölfræðihugbúnaðarins. Fjallað er um helstu hugtök lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og hvernig tölfræðilegir útreikningar eru framkvæmdir í Jamovi, túlkaðir og kynntir. Meginefni námskeiðsins nær m.a. til breytutegunda og rannsóknarsniða, mælikvarða á miðlægni og dreifingu, myndrænnar framsetningar gagna, stöðlunar, dreifinga, tilgátuprófana (þar á meðal t-prófa og χ²-prófa) og fylgni (þar meðal Pearson’s r og Spearman’s r). Áhersla er lögð á hagnýta færni nemenda í Jamovi og gagnrýna túlkun á tölfræðilegum niðurstöðum í samhengi heilbrigðisvísinda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið kennslu í ónæmisfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í starfsemi ónæmiskerfisins. Þannig öðlist verðandi hjúkrunarfræðingar grundvallarskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og orsökum sjúkdóma og geti betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eigi nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.
Viðfangsefni: Ónæmiskerfið, líffæri og frumur. Ósérhæfðar varnir, átfrumur, magnakerfið og bólgusvar. Sérhæfðar varnir gegn sýkingum og krabbameini, þroskun og sérhæfing eitilfrumna, og ónæmisminni. Grundvöllur ónæmissvars, sjálfsþols og stjórnunar. Tilurð, greining og meðferð meðfæddra og áunnra ónæmisbilana. Tilurð, greining og meðferð ofnæmis- og sjálfsofnæmissjúkdóma. Ónæmisfræðilegur grundvöllur líffæraflutninga. Sértækar meðferðir byggðar á forsendum ónæmisfræðinnar (bólusetningar, afnæmingar, líftæknilyf).
Farið er í grundvallaratriði í almennri meinafræði. Fjallað er um frumuáverka, bráða- og króníska bólgu, græðslu, blóðsega og blóðrek, hjarta- og æðasjúkdóma og góðkynja- og illkynja æxlisvöxt.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði er fjallað um grunn almennrar hjúkrunar og hjúkrunarferlið, allt frá mati á skjólstæðingum, greiningu hjúkrunarviðfangsefna, áætlun, meðferð og framvindu skjólstæðings. Kennd verða grunnhugtök og -viðfangsefni hjúkrunar með áherslu á skjólstæðinga með skerta sjálfsbjargar- og hreyfigetu þar með talið aðhlynningu slíkra skjólstæðinga. Lykilviðfangsefni eru upplýsingasöfnun, sýkingavarnir, þrýstingssáravarnir, áhrif rúmlegu, vinnutækni, næringarástand, útskilnaður, lífsmörk og öryggi við lyfjagjafir. Nemendur læra einnig flóknari viðfangsefni tengd hjúkrun eldra fólks og þeim líkamlegu og sálfélagslegu breytingum sem fylgja öldrun. Sem dæmi er kennt um færni- og heilsumat vegna flutnings á hjúkrunarheimili, mat á heilsufari íbúa á hjúkrunarheimilum og vísbendingar um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum.
Í færnisetri kynnast og þjálfa nemendur vinnubrögð sín í viðfangsefnum sem fjallað hefur verið um í fræðilegri kennslu. Nemandinn fær þjálfun í notkun kvarða við mat á sjálfsbjargargetu og ástandi skjólstæðinga og kynnist leiðum til að tryggja öryggi þeirra í daglegri umönnun.
Í tveggja vikna klínísku námi á hjúkrunardeild er lögð áhersla á þjálfun í að veita aðhlynningu og aðra grunnhjúkrun, þar með talið færni við samskipti, mat á ástandi skjólstæðinga, greiningu viðfangsefna, áætlun um meðferð einkenna og framkvæmd viðeigandi hjúkrunar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum í aðferðafræði sem og þekkingu á algengustu rannsóknaaðferðum sem beitt er í hjúkrunarrannsóknum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHVS202GInngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinnSkyldunámskeið1Skyldunámskeið á námsleiðinni1 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda. Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
- Námskeiðslýsing
Markmið kennslu í lífeðlisfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallarstarfssemi mannslíkamans. Þannig öðlast verðandi hjúkrunarfræðingar grunnskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og forsendum sjúkdóma og geta betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eiga nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.
Viðfangsefni: nýrnastarfsemi, bygging og starfsemi meltingarfæra, stjórn efnaskipta, orkujafnvægi, stjórn líkamshita, lífeðlisfræði vaxtar, skynjun, meðvitund, atferli, æxlunarlífeðlisfræði og fósturþroskun.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEfnisgjald er í námskeiðinuNámskeiðslýsingNámskeiðið er kennt á 2. ári í grunnnámi í hjúkrunarfræði og er í námskeiðinu byggt ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa öðlast í námskeiðum um hjúkrunarfræði og félags- og sálfræði. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að færni nemenda til 1) samskipta sem einkennast af gæðum, 2) að mynda árangursríkt meðferðarsamband, 3) að veita notendum heilbrigðisþjónustunnar fræðslu með gagnreyndum aðferðum og 4) að skilja hvernig ofangreind færni tengist öryggi notenda heilbrigðisþjónustunnar. Á námskeiðinu verður fjallað um samskipti frá ýmsum hliðum og fá nemendur fjölmörg tækifæri til æfinga í kennslustundum og utan þeirra. Þar verður lögð áhersla á að skoða og þjálfa virka hlustun, viðbrögð í erfiðum samskiptum og uppbyggjandi leiðir til samskipta við notendur heilbrigðisþjónustunnar. Fjallað verður um hugtakið virðingu, ábyrgð heilbrigðisstarfsfólks og fagmennsku í tengslum við rétt allra til heilbrigðisþjónustu.
Á námskeiðinu verður einnig fjallað um tilgang heilbrigðisfræðslu til notenda og tengsl fræðslu við útkomu og árangur meðferðar. Helstu kenningar er tengjast heilbrigðisfræðslu og námi fullorðinna verða kynntar svo og hugtakið heilsulæsi. Farið verður í fræðsluferlið í ljósi mismunandi þarfa notenda og nemendur æfa sig í að skipuleggja og veita fræðslu. Skoðaðar verða mismunandi kennsluaðferðir, kennslumiðlar og hvernig þekking, færni og viðhorf hjúkrunarfræðinga geta haft áhrif á árangur fræðslu til notenda.
HÆFNIVIÐMIÐ
Við lok námskeiðs á nemandi að:
- Geta notað uppbyggjandi samskiptaaðferðir í ólíkum aðstæðum
- Geta útskýrt meðferðarsambandið og áhrifamátt þess í hjúkrun sjúklinga
- Vera fær um að ígrunda áhrif eigin samskiptahátta á myndun meðferðartengsla við sjúklinga
- Geta fjallað á gagnrýninn hátt um grunnþætti heilbrigðisfræðslu, svo sem tilgang hennar,
siðfræði, helstu námskenningar og fræðsluferlið - Geta útbúið og rökstutt kennsluáætlun fyrir sjúkling um afmarkað efni
- Geta útskýrt hvernig samskipti og fræðsla hafa áhrif á öryggi innan heilbrigðiskerfisins
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingHaldið verður áfram að fjalla um hjúkrunarfræðileg hugtök, auka færni nemenda í flóknari hjúkrunarviðfangsefnum s.s. að vinna við dauðhreinsaðar aðstæður, lyfja-, vökva. Áhersla er lögð á ábyrgð hjúkrunarfræðinga við að meta ástand einstaklinga, skráningu og notkun hjúkrunarferlisins. Einnig verður farið í fræðileg vinnubrögð. Klínískt nám fer fram á sjúkrahúsum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuHJÚ319GVöxtur og þroski barna og unglingaSkyldunámskeið3Skyldunámskeið á námsleiðinni3 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er farið í helstu kenningar um vitsmuna-, siðferðis- og sálfélagslegan þroska yfir æviskeiðið. Lögð er áhersla á heilbrigðan vöxt og þroska barna og unglinga. Farið er í líkamlegar breytingar en jafnframt í vitsmunalegan og sálfélagslegan þroska hjá börnum og unglingum og ýmsar aðferðir til að meta vöxt og þroska þeirrra.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að veita nemendum yfirgripsmikla þekkingu á líkamsmati (physical assessment) og tengdum þáttum. Áhersla er lögð annarsvegar á að nemendur öðlist færni í beitingu á lykilþáttum í líkamsmati og hinsvegar á skilning nemenda á sérhæfðari aðferðum líkamsmats. Megin viðfangsefnið er heildrænt líkamsmat út frá fullorðnum einstaklingum. Samhliða er tæpt á bráðum líkamlegum einkennum hjá sjúklingum í tengslum við líkamsmat, sem og öryggi sjúklinga. Í námskeiðinu verður ennfremur tekið fyrir lykilþættir fyrstuhjálpar, þar sem megin markmið er að undirbúa nemendur að sinna fyrstuhjálp við krefjandi aðstæður og á sjálfstæðan hátt. Í færnistofu er farið yfir aðferðir við framkvæmd á allsherjar líkamsmati og námsefnið sett í klínískt samhengi. Rík áhersla er á að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu, til að mynda líffæra- og lífeðlisfræði. Sjá betur námskeiðslýsingu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
NámskeiðslýsingLyfjahvarfafræði: Frásog, dreifing, útskilnaður og umbrot lyfja. Gildi lyfjamælinga í blóði. Lyfjaviðtakar. Samband skammta og verkunar. Hjáverkanir lyfja. Öldrunarlyfjafræði. Milliverkun lyfja. Lyfhrifafræði: Lyfjafræði innkirtla. Bólgueyðandi lyf. Lyfjafræði úttaugakerfis. Lyfjafræði miðtaugakerfis. Blóðþrýstingslækkandi lyf. Hjartalyf. Segavarnarlyf. Fitulækkandi lyf. Eitranir í heimahúsum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið miðar að því að nemandi öðlist yfirsýn yfir helstu sjúkdóma og áverka vegna slysa sem fengist er við innan handlækningafræði. Farið verður yfir einkenni, greiningu og meðferð sjúkdóma og slysa, sem skiptist þannig: Almennir hlutar skurðlæknisfræði, sjúkdómar í brjóstholi, sjúkdómar í kviðarholi, brjóstasjúkdómar, skjaldkirtilssjúkdómar og meðferð bruna, sjúkdómar í þvagfærum, sjúkdómar í beinum og liðum og sjúkdómar í heila og mænu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemendur læri undirstöðuatriði næringarfræðinnar, þ.e. um hugtakið lífsnauðsynlegt, um næringarefni og hlutverk þeirra í líkamanum, hvaðan næringarefnin koma, áhrif þeirra á líkamsstarfsemi og tengsl mataræðis, næringarefna og heilsu. Fjallað verður um næringu á mismunandi æviskeiðum og helstu áherslur varðandi næringu mismunandi sjúklingahópa. Markmiðið er jafnframt að nemendur kynnist samstarfi hjúkrunarfræðinga og næringarfræðinga í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið miðar að því að nemandi öðlist yfirsýn yfir helstu sjúkdóma er fengist er við innan lyflækningafræði. Kennd eru grundvallaratriði allra algengustu sjúkdóma eftirtalinna sjúkdómaflokka: hjarta- og æðasjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, öndunarfærasjúkdóma, sjúkdóma í taugakerfi, blóðsjúkdóma, innkirtlasjúkdóma, gigtarsjúkdóma, smitsjúkdóma og krabbameinssjúkdóma. Við lok námskeiðsins á nemandi að geta hagnýtt þekkingu sína á sjúkdómum innan hvers sjúkdómaflokks lyflækninga í starfi og frekara námi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÞetta námskeið miðar að því að auka færni nemenda í greiningu hjúkrunarþarfa og skipuleggja hjúkrunarmeðferð. Áhersla er lögð á ábyrgð hjúkrunarfræðinga við að meta ástand einstaklinga og að veita viðeigandi hjúkrunarmeðferð. Fjallað verður um verki, einkennamat, vökva- og blóðgjafir í æð ásamt vökva-, elektrólýta- og sýrubasa jafnvægi. Farið verður yfir túlkun rannsóknarniðurstaða, töku sýna og meðhöndlun. Haldið verður áfram að kenna öryggi við lyfjavinnu og lyfjaútreikninga ásamt öryggismenningu. Umbætur, gagnreynd þekking ásamt þátttöku sjúklinga, upplýsingatækni og teymisvinna eru leiðarstef í gegnum allt námskeiðið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
- Námskeiðslýsing
Í námskeiðinu er fjallað um ýmsa þætti geðheilbrigðis og helstu geðraskanir meðal fullorðinna og barna, tíðni, greiningu, meðferðarleiðir og hvernig geðrænar áskoranir hafa áhrif á fjölskyldur. Farið verður yfir meginkenningar og hugtök sem geðhjúkrun byggir á sem og mismunandi nálganir í geðheilbrigðisþjónustu. Fjallað er sérstaklega um hlutverk hjúkrunarfræðinga í bráðameðferð og endurhæfingu einstaklinga með geðræn vandamál.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði verður fjallað um breytingar sem verða á einstaklingum með hækkandi aldri og helstu viðfangsefnum öldrunarhjúkrunar. Gerð verður grein fyrir algengum heilsufarseinkennum, sjúkdómum og hjúkrunarmeðferð sem beitt er við þeim. Sérstök áhersla verður á einkenni vitrænnar skerðingar og greiningu hennar svo og hjúkrun sjúklinga með heilabilun og/eða í óráði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingTilgangur námskeiðisins Hjúkrun langveikra fullorðinna er að efla þekkingu og færni nemenda við að hjúkra fullorðnum einstaklingum með langvinna sjúkdóma bæði í langvinnu og bráðaástandi. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar, trúarlegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans og vinni heildrænt að því að lina þjáningu og efla heilbrigði og þroska sjúklinga sinna. Tengsl hjúkrunarfræðings og sjúklings, eftirlit, viðbrögð við einkennum, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferðar eru lykilatriði
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingTilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem eiga við bráða og langvinna sjúkdóma að stríða, fara í skurðaðgerð og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit (observation), skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða eru lykilatriði. Þá er fjallað öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynda þekkingu og teymisvinnu heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli (post-operative recovery) sjúklings.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuHJÚ529GKlínísk færni í fjölskylduhjúkrunSkyldunámskeið3Skyldunámskeið á námsleiðinni3 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur kynnist hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og því hvernig fjölskylduhjúkrun hefur verið útfærð innan heilbrigðisþjónustunnar. Hlutverk hjúkrunarfræðinga í fjölskyldustuðningi og viðhorf til sjúkdóma verða rædd. Farið verður yfir fjölskylduvirkni og fjölskylduhjúkrun í framkvæmd, hvernig hægt er að nota meðferðarspurningar á árangursríkan hátt og hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir virka og þá hvers vegna. Nemendur fá þjálfun í að beyta hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar í færnibúðum, auk þess sem unnið verður að því að þróa styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður. Hvatt er til þátttöku ykkar í námskeiðinu.
Fyrirkomulag námsins
Fyrirlestrar: Verða haldnir í námskeiðinu nánar tiltekið í okt. Fyrirlestrar verða ekki teknir upp. Þar sem kennslan í fjölskylduhjúkruninni byggir mikið á hópavinnu sem kemur í kjölfar fyrirlestrana, er virka þátttaka ykkar mikilvæg í tímunum. Hópavinnan og umræður þar sem nemendum gefst tækifæri til að kafa ofan í námsefnið til að öðlast betri skilning á því er ekki tekin upp. Nemendur eru því hvattir til að mæta í fyrirlestrana.
Kennslan byggist á því að nemendur mæti undirbúnir í hvern tíma. Notaðar verða fjölþættar kennsluaðferðir (fyrirlestrar, vinna í hópum og þjálfun í færnibúðum). Hvatt er til skoðanaskipta og rökræðna á gagnrýninn og uppbyggjandi hátt. Skyldumæting er í færnibúðirnar (tveir dagar) og í munnlegar samræður með kennurum um fjölskylduverkefnið þeirra í færnibúðunum. Auk þess er skyldumæting í munnlegar samræður við sérfræðikennara nemenda um verkefni B.
Færnibúðir: Nemendur mæta tvisvar sinnum (þ.e. í tvo daga) í færnibúðir og skila inn einu verkefni (Verkefni A—einstaklingsverkefni (skriflegur hluti verkefnisins) auk þess sem þeir mæta í munnlegar sammræður um verkefnið með sérfræðikennaranum þeirra á síðari degi færnibúðanna (síðari hluti verkefnisins). Í færnibúðunum vinna þeir einnig að undirbúningi á verkefni C sem tilheyrir námskeiðinu HJÚ632G (en námskeiðin eru tengd saman)
Verkefni A:
Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann). Verkefnið er unnið undir náinni handleiðslu sérfræðikennara í færnibúðum.
Verkefni B:
Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann). Verkefnið er einstaklingsverkefni þar sem nemendum er úthlutað fjölskyldu- bíómynd til að vinna með í verkefnaviku. Tilgangur verkefnisins er að nemendur geti dýpkað þekkingu sína í fjölskylduhjúkrun. Verkefnið er unnið á þremur dögum um miðjan nóv (sjá stundatöflu). Munnlegu samræðurnar um verkefni B eru haldnar á síðasta degi verkefnavikunnar (þ.e. á föstudeginum).
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að fjalla um þá heilbrigðisþjónustu sem hjúkrunarfræðingar sinna innan heilsugæslunnar og í samfélaginu utan heilbrigðisstofnana. Farið er í hlutverk heilsugæsluhjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæslu í grunn- og framhaldsskólum og móttöku skjólstæðinga í móttöku á heilsugæslustöðvum. Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um umönnun nýbura, foreldra og ungu fjölskylduna. Í námskeiðinu kynnast nemendur barneingarferlinu, ýmsum frávikum svo sem áhrifum meðgöngu-og fæðingarreynslu á heilsu móður og barns, aðlögun foreldra að nýjum hlutverkum, þróun tengslamyndunar og þunglyndi mæðra/foreldra eftir fæðingu. Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í því að meta sérþarfir og heilsufarsástand mæðra,nýbura og fjölskyldna eftir fæðingu, bæði með klínískri starfsþjálfun og einnig með gerð lausnaleitarverkefna. Áhersla verður lögð á að þjálfa nemendur í samskiptum við skjólstæðinga og fyrirbyggjandi og heilbrigðishvetjandi hjúkrun. Einnig verður áhersla lögð á forvarnir og heilsueflingu einstaklinga og hópa í samfélaginu innan og utan heilbrigðisstofnana. Fjallað er um leiðir til að fyrirbyggja heilsufarsvandamál og efla heilsu hópa innan samfélagsins, með hliðsjón af þekkingu um lifnaðarhætti og kenningar um forvarnir og heilsueflingu, meðal annars með umfjöllun um atvinnu- og umhverfisheilbrigði.

NámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur m.a. í að beita þeirri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu Geðhjúkrun og geðheilbrigði. Klíníska þjálfunin fer fram á heilbrigðisstofnunum þar með talið á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, Reykjalundi og Landspítala háskólasjúkrahúsi. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun heilsufarsmats og klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga og aðstandenda á sviði geðhjúkrunar.
Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í að meta þarfir og heilsufarsástand skjólstæðinga, bæði með klínískri þjálfun og einnig með framkvæmd klínískra verkefna. Auk þess er áhersla lögð á þjálfun nemenda í tengslamyndun og samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur ásamt heilsueflandi umönnun. Nemendur eiga samneyti við sjúklinga, aðstandendur og fagfólk og skoða sérstaklega þátt hjúkrunarfræðinga í meðferð og þverfaglegu samstarfi. Þeir leitast við að tengja fræðilega þekkingu við klínísk viðfangsefni og leita í því samhengi eftir fræðilegu efni og rannsóknarniðurstöðum. Nemendur taka þátt í daglegum viðfangsefnum hjúkrunar og nýta sér námstækifæri sem þeim bjóðast og vinna klínísk námsverkefni með leiðsögn klínískra- og sérfræðikennara.
Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í að meta þarfir og heilsufarsástand skjólstæðinga sinna, bæði með klínískri þjálfun og einnig með framkvæmd klínískra verkefna. Auk þess er áhersla lögð á þjálfun nemenda í samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra og á fyrirbyggjandi og heilsueflandi umönnun. Nemendum gefst tækifæri til að beita fræðilegri þekkingu við mat og þróun íhlutana fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra undir handleiðslu heilbrigðisstarfsmanna. Þeir eiga samneyti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og fagfólk og skoða sérstaklega þátt hjúkrunarfræðinga í meðferð og þverfaglegu samstarfi. Þeir leitast við að tengja fræðilega þekkingu við klínísku viðfangsefni og leita í því samhengi eftir fræðilegu efni og rannsóknarniðurstöðum. Nemendur taka þátt í daglegum viðfangsefnum hjúkrunar og nýta sér námstækifæri sem þeim bjóðast og vinna klínísk námsverkefni með leiðsögn klínískra- og sérfræðikennara.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði kynnist nemandi sértækum þörfum og hjúkrun eldra fólks og þeim breytingum sem verða á einstaklingnum með hækkandi aldri. Áherslan er á að greina hvernig meðferð og mat á eldra fólki þarf að taka tillit til sérstakra þarfa þeirra svo sem bestur árangur náist í meðferð og endurhæfingu. Með því að taka tillit til sér þarfa eldra fólks má tryggja lífsgæði og stytta legutíma. Verkefni og matstæki sem unnið er með geta skarast við önnur námskeið en tilgangurinn er þá að þjálfa nemandann í að nota matstæki sem og að túlka niðurstöðuna með tilliti til öldrunarbreytinga.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHJÚ620GKlínísk hjúkrun langveikra fullorðinnaSkyldunámskeið7Skyldunámskeið á námsleiðinni7 einingar, ETCSNámskeiðslýsingTilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem eiga við bráða og langvinna sjúkdóma að stríða og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða, öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynd þekking og teymisvinna heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli sjúklings eða að taka á við einkenni og heilsufarsvanda eru lykilatriði í klínískri þjálfun í námskeiðinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita gagnreyndri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu „Heilsugæsla samfélagsins. Klíniska þjálfunin fer fram á heilbrigðisstofnunum þar með talið á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala háskólasjúkrahúsi. Sérstök áhersla verður lögð á klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga (t.d. nýbura, mæðra/foreldris og skólabarna), fjölskyldna og hópa innan heilsugæslunnar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita gagnreyndri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu HJÚ 529G Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun. Sérstök áhersla verður lögð á klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Nemendur vinna í sameiningu með sérfræðikennara að því að finna skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra til að vinna með í klíníkinni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingTilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem fara í skurðaðgerð og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða, öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynd þekking og teymisvinna heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli sjúklings eða að taka á við einkenni og heilsufarsvanda eru lykilatriði í klínískri þjálfun í námskeiðinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Námskeiðslýsing
Í námskeiðinu verður fjallað um heimilið sem vettvang heilbrigðisþjónustu. Rætt verður um gildi heimilisins fyrir fólk og áhrif tæknivæðingar á heimilismenn. Leitast verður við að skoða samspil umhverfis á heimilum og heilsu og lífsgæða. Samstarf við aðstandendur og aðstæður þeirra verða ræddar með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum. Gerð verður grein fyrir uppbyggingu og skipulagi heilbrigðis- og félagsþjónustu til þeirra sem dvelja heima og þarfnast aðstoðar vegna veikinda eða skerðingar á færni. Í fyrirlestrum og klínísku námi kynnist nemandi störfum í heimahjúkrun sem miða að því að viðhalda og efla vellíðan fólks með langvinn heilsufarsvandamál sem býr á eigin heimili.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingNámskeiðinu er ætlað að auka þekkingu og dýpka skilning nemanda á helstu grunnhugtökum og kenningum í hjúkrunarstjórnun og hvernig hægt er að beita þeim í hjúkrunarstarfi. Lögð er áhersla á að nemendur þekki og geri sér grein fyrir því stjórnunarstarfi sem fram fer í hjúkrun innan heilbrigðisstofnana. Jafnframt að þau þekki grundvallaratriði í rekstri, uppbyggingu og skipulagi stjórnkerfa heilbrigðisstofnana. Fjallað verður sérstaklega um forystuhlutverk hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðiskerfisins og hlutverk þeirra í teymisvinnu. Hermikennsla og klínískt nám í hjúkrunarstjórnun miðar að því að nemendur fái æfingu í að hafa umsjón með, skipuleggja, stjórna og forgangsraða hjúkrunarmeðferð ákveðins hóps sjúklinga ásamt því að tryggja öryggi þeirra og starfsmanna. Nemendur eiga að ljúka klínískum verkefnum og vera virkir þátttakendur í umræðuhópum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsing- Sérstaklega er fjallað um siðferðilegan þátt hjúkrunarfræðinnar og hjúkrunarstarfsins með það að markmiði að búa nemendur undir að greina og takast á við siðferðileg úrlausnarefni í starfi heilbrigðisstétta til dæmis tengt ofbeldi og flóknum aðstæðum í starfi. Tekin verða til athugunar ýmis siðfræðileg úrlausnarefni, sem upp koma í starfi heilbrigðisstétta og forsendur fyrir lausnum á þeim.
- Afleiðingar ofbeldis og kynbundinna áfalla á heilsu. Birtingarmyndir ofbeldis og kynbundins ofbeldis á mismunandi æviskeiðum. Birtingarmyndir ofbeldis meðal mismunandi samfélagshópa, s.s. ofbeldis í nánum samböndum og fjölskyldum; ofbeldis gagnvart viðkvæmum og jaðarsettum hópum; eineltis; ofbeldis í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Faraldsfræði ofbeldis, úrræði fyrir þolendur og leiðir til forvarna.
- Erfiða samtalið og áskoranir í samskiptum. Sjálfskaðar og sjálfsvígshætta. Aðferðir til að skima fyrir ofbeldi og veita þolendum stuðning. Hjúkrun eftir ofbeldi
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHJÚ727GLangveikir og heilbrigðisþjónustanSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er ætlað 4. árs BS nemendum í hjúkrunarfræði. Það er fræðilegt (4 ECTS) og klínískt (1 ECTS) og skiptist í tvo þætti:
Þjónustunotkun og íslensk heilbrigðisþjónusta í alþjóðlegu samhengi.
Fjallað er um veikindahegðun og þjónustunotkun, skýringar á þjónustunotkun, einkenni þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu, skipulag á og aðgengi að þjónustu, árangur og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu. Umsjón með þessum þætti námskeiðsins hefur Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.Meðferð/þjónusta hjúkrunarfræðinga fyrir langveika og fjölskyldur þeirra.
Fjallað er um hugtök, einkenni og fyrirbæri sem tengjast langveikum og fjölskyldum þeirra og hjúkrunarmeðferðir sérsniðnar að þörfum langveikra og fjölskyldna þeirra. Einnig er fjallað um siðferðileg álitamál í þjónustu við langveika og fjölskyldur þeirra og úrvinnsla álitamála þjálfuð. Nemendur kynnast starfsemi stofnana sem þjónusta langveika, verða í klínísku námi á göngudeildum fyrir langveika og kynnast starfsemi sjúklingasamtaka.Tvær kennsluáætlanir verða í námskeiðinu, annars vegar fyrir grunnnemendur og hins vegar fyrir framhaldsnemendur. Nemendur námskeiðsins geta nálgast þær á Canvas þegar kennsla er hafin.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingNámskeiðið veitir nemendum þekkingu og skilning á grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í barnahjúkrun og grundvallar þekkingu og skilningi á hugtökum sem tengjast helstu barnasjúkdómum. Lögð er áhersla á þarfir og heilbrigði barna; einkenni, viðbrögð, upplifun og skynjun barna á veikindum og sjúkrahúsvist; tjáskipti við börn, tengsl við foreldra og hlutverk hjúkrunar í umönnun barna með ýmis heilbrigðisfrávik. Þátttaka í klínískum verkefnum, starfi og umræðu, ásamt umræðufundum og klínískum vinnusmiðjum veita nemendum tækifæri til að kynnast störfum hjúkrunarfræðinga og samstarfsmanna á barnadeildum og að öðlast grundvallarhæfni og -leikni í helstu aðferðum og inngripum tengdum hjúkrun og tengdri meðferð. Áhersla er lögð á tengingu fræðilegrar þekkingar, klínískrar aðferðafræði og framkvæmd hjúkrunar foreldra og barna með gagnreyndum aðferðum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingNámskeiðið veitir nemendum þekkingu og skilning á grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í barnahjúkrun og grundvallar þekkingu og skilningi á hugtökum sem tengjast helstu barnasjúkdómum. Lögð er áhersla á þarfir og heilbrigði barna; einkenni, viðbrögð, upplifun og skynjun barna á veikindum og sjúkrahúsvist; tjáskipti við börn, tengsl við foreldra og hlutverk hjúkrunar í umönnun barna með ýmis heilbrigðisfrávik. Þátttaka í klínískum verkefnum, starfi og umræðu, ásamt umræðufundum og klínískum vinnusmiðjum veita nemendum tækifæri til að kynnast störfum hjúkrunarfræðinga og samstarfsmanna á barnadeildum og að öðlast grundvallarhæfni og -leikni í helstu aðferðum og inngripum tengdum hjúkrun og tengdri meðferð. Áhersla er lögð á tengingu fræðilegrar þekkingar, klínískrar aðferðafræði og framkvæmd hjúkrunar foreldra og barna með gagnreyndum aðferðum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga og hjúkrun slasaðra.
Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum.
Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á hugtökin:
- Mat (assessment)
- Eftirlit (surveillance)
- Fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.
Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC).
Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á:
- Þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun
- Fyrstu meðferð/bjargráð
- Samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum.
Athugið að áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga, sem og hjúkrun slasaðra. Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum. Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. Í námskeiðinu er áhersla lögð á hugtökin mat (assessment), eftirlit (surveillance) og fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.
Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC). Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun, fyrstu meðferð/bjargráð og samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuHVS501MÞverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindumSkyldunámskeið2Skyldunámskeið á námsleiðinni2 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda. Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti.
Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.
Námsmat (staðið/fallið) byggist á verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október.Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
HJÚ836GInngangur að svæfingahjúkrunBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn í fagsvið og starfsvettvang svæfingahjúkrunarfræðinga.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á undirstöðuatriði svæfingahjúkrunar með tengingu við umönnun sjúklinga í gegnum aðgerðarferlið á svæfinga- og vöknunardeildum. Námskeiðið nær yfir þriggja vikna tímabil og fer kennslan fram í Eirbergi og á svæfinga- og vöknunardeildum Landspítala.
Kennsluhættir byggja á fyrirlestrum, sjálfsnámi, færniþjálfun, gagnvirkum umræðum og verknámskynningu á svæfinga- og vöknunardeildum.
Þess er vænst að nemendur komi undirbúnir fyrir tíma með því að kynna sér námsefni sem sett er á kennsluvef námskeiðsins á Canvas.
Fyrstu þrír dagarnir byggja á fyrirlestrum og umræðufundum fyrir úrvinnslu á námsefni dagsins en fjórða daginn er áhersla á færnistöðvar og hermiþjálfun. Eftir það fara nemendur í tvo daga á svæfinga- og vöknunardeild en sjöunda daginn er mæting á umræðufundi í Eirbergi.
Fyrirkomulag kennslu:
- Dagur 1-3: Fyrirlestrar 4/ dag og Umræðufundir 1/dag. (Samtals 15 stundir)
- Dagur 4: Færni og hermiþjálfun (4 stundir)
- Dagur 5-6: (8/dag = 16 stundir)
- Dagur 7: Umræðufundur, kynning á verkefnum og staðverkefni
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn í fagsvið og starfsvettvang skurðhjúkrunarfræðinga.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á undirstöðuatriði skurðhjúkrunar með tengingu við umönnun sjúklinga í gegnum aðgerðarferlið á skurðstofu. Námskeiðið nær yfir þriggja vikna tímabil og fer kennslan fram í Eirbergi og á skurðstofum Landspítala.
Kennsluhættir byggja á fyrirlestrum, sjálfsnámi, færniþjálfun, gagnvirkum umræðum og verknámskynningu á skurðstofu. Þess er vænst að nemendur komi undirbúnir fyrir tíma með því að kynna sér námsefni sem sett er á kennsluvef námskeiðsins á Canvas.
Fyrstu þrír dagarnir byggja á fyrirlestrum og umræðufundum fyrir úrvinnslu á námsefni dagsins en fjórða daginn er áhersla á færnistöðvar og hermiþjálfun. Eftir það fara nemendur í tvo daga á skurðstofu en sjöunda daginn er mæting á umræðufundi í Eirbergi.
Fyrirkomulag kennslu:
- Dagur 1-3: Fyrirlestrar 4/ dag og Umræðufundir 1/dag (Samtals 15 stundir)
- Dagur 4: Færni og hermiþjálfun (4 stundir)
- Dagur 5-6: (8/dag = 16 stundir)
- Dagur 7: Umræðufundur, kynning á verkefnum og stutt staðverkefni
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu kynnast nemendur hugmyndafræði kynheilbrigðis og skoða mikilvæga þætti er varða kynheilbrigði einstaklingsins, parsins og hvernig samfélagið getur haft mótandi áhrif á kynverund mannsins. Einnig kynnast nemendur margvíslegum áhrifaþáttum á kynheilbrigði eins og og sjúkdóma sem geta raskað eðlilegri starfsemi líkamans og haft áhrif á náin sambönd og kynferðislega velllíðan. Námskeiðinu er ætlað að efla nemendur í að sinna kynheilbrigðismálum með því að gefa þeim góðan þekkingarlegan grunn út frá máttarstólpum sem varða réttindi kynverundar, veita nemendum tækifæri á að æfa sig að ræða og veita stuðning og fræðslu um kynlífstengd málefni.
Áhersla er lögð á að nemendur glöggvi sig á megin áhrifavöldum í mótun kynverundar og hvernig þeir geti sýnt skilning og víðsýni gagnvart ólíkum þörfum og sjónarmiðum skjólstæðinga sinna.
Ætlast er til að nemendur noti umræðuvef námskeiðsins og skili verkefnum rafrænt. Svo kennslustundir nýtist nemendum sem best og nemandi geti verið virkur í umræðutímum, er nemendum bent á að koma undirbúnir í allar kennslustundir.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingNámskeiðið fjallar um konur heilsu og samfélag. Fjallað er um líffræðilega, sál-/félags- og umhverfislega þætti sem hafa áhrif á heilbrigði kvenna. Pólitísk stefnumótun og hugmyndir um heilbrigði og skoðaðar í kynjafræðilegu samhengi. Unnið er út frá heildrænu sjónarmiði um æviskeiðin og fjallað um áhrif lífsviðburða, sjúkdóma og lyfja. Í námskeiðinu er einnig fjallað um sérhæfða líffæra- og lífeðlisfræði kvenna og barneignarferli, algenga kvensjúkdóma og helstu hugtök í erfðafræði og litningarannsóknum í tengslum við meðgöngu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingNámskeiðið veitir nemendum yfirsýn yfir grunnþætti gjörgæsluhjúkrunar. Megináhersla er á mat og meðferð tengd öndunarvegi, öndun og meðvitund. Æskilegt er að nemandi taki HJÚ823G Valnámskeið í klínískri hjúkrun á gjörgæsludeild.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuHJÚ830GHjúkrun, menning og margbreytileikiBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðslýsing:
Markmið námskeiðsins er að tengja saman starf hjúkrunarfræðinga við jaðarsetta hópa samfélagsins með sérstakri áherslu á hlutverk hjúkrunarfræðinga sem málsvara. Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum skilning á helstu hugtökum í menningarnæmri hjúkrun og færni til að beita þeirri þekkingu á vettvangi. Farið verður í hugtök sem tengjast forréttindum, stétt, stofnanatengdu ofbeldi, jaðarsetningu af ýmsum toga og hnattvæðingu.
Hluti námskeiðsins verður kenndur af gestarafyrirlesurum sem tilheyra jaðarsettum hópum eða vinna í þjónustu við jaðarsetta hópa í samfélaginu og heilbrigðiskerfinu. Má þar nefna fyrirlesara úr hópum LGBTQIA+ fólks, fólks af erlendum uppruna, flóttafólk, fatlað fólk, fólk sem lifir í fátækt, fólk með fíknir og fleira.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuHJÚ831GBráðahjúkrun - ValnámskeiðBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingTilgangur þessa námskeiðs er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á bráðaþjónustu, bráðahjúkrun innan sem utan sjúkrastofnana, á almennum og sérhæfðum bráðamóttökum auk ferli sjúklinga frá fyrstu veikindum/slysi til útskriftar af sjúkrastofnum.
Krafa er um að nemendur velji stað í klínísku valnámskeiði á vormisseri 4. árs sem tengist bráðaþjónustu og vinna þar verkefni tengd þessu námskeiði.
Faglegar forkröfur: Gert er ráð fyrir að nemendur hafi við upphaf námskeiðs
- hæfni til þess að greina sértækar hjúkrunarþarfir bráð- og alvarlega veikra sjúklinga og aðstandenda þeirra,
- þekkingu á reynsluheimi bráð- og alvarlega veikra sjúklinga
- þekkingu og kunnáttu til að beita völdum meðferðum sjúklinga með við líffærabilanir
- þekkingu á áhrifaþáttum bráðra og alvarlegra veikinda á líf og lífsgæði skjólstæðinga
- verulega færni í uppbyggjandi samskiptum við skjólstæðinga og myndun meðferðartengsla við þá
- getu til að beita víðtækum þekkingargrunni úr hug-, sál-, félags,- líf,- raun- og heilbrigðisvísindum sem hjúkrunarstarfið byggir á
- umtalsverðrar hjúkrunarfræðilegar þekkingar í bráðahjúkrun
- tileinkað sér vinnubrögð um gagnreynda þekkingu og beitingu hennar
- þekki til þróunar klínískra leiðbeininga.
Nemendur skulu tengja efni námskeiðsins við eigin viðfangsefni/sérsvið eftir því sem við verður komið.
Námið byggir á fyrirlestrum, umræðum, klínísku námi og verkefnum. Í klínísku námi þjálfar nemandi og skerpir á fræðilegri þekkingu í raunverulegum aðstæðum sjúklinga.
Námskeiðið er í boði sem val í grunnnámi í hjúkrunarfræði.
Námsmarkmið
- Nemendur öðlist yfirgripsmikla þekkingu í bráðahjúkrun við mismunandi aðstæður.
- Nemendur öðlist færni til að meta, forgangsraða og bregðast við bráðum veikindum/slysum skjólstæðinga og þekki viðeigandi meðferðir og úrræði innan sem utan sinnar starfseiningar hverju sinni.
- Nemendur sýni hæfni til að beita gagnrýnni hugsun á hefðir og venjur í bráðaþjónustu og bráðahjúkrun.
- Nemendur öðlist færni við að greina árangur hjúkrunar bráðveikra, slasaðra og aðstandenda þeirra.
- Nemendur öðlist þekkingarlegan grunn til að greina tækifæri til breytinga á vinnulagi, taka frumkvæði að þróunarverkefnum eða með öðrum hætti finna leiðir til umbóta í starfi sínu.
Námsþættir
- Bráðahjúkrun innan og utan sjúkrahúsa.
- Mat á og forgangsflokkun sjúklinga
- Fyrsta meðferð og þarfir út frá mismunandi einkennum/sjúklingahópum
- Meðferðasamband í bráðaþjónustu - Fagmennska
- Bráðaflokkun og áverkamat
- Hópslys: viðbragðsáætlun og hlutverk hjúkrunarfræðinga
- Almannavarnakerfið, lögregla, sjúkraflutningar, hjálparlið almannavarna (Slysavarnafélagið Landsbjörg og Rauði Kross Íslands), Neyðarlínan , Landhelgisgæslan og heilbrigðisstofnanir
- Forvarnir slysa og bráðra veikinda: börn, aldraðir, útsettir og jaðarsettir hópar, almenningur
- Ofbeldi: greining, sérhæft mat og meðferð mismunandi hópa
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuHJÚ832GMeðferðir til heilsueflingarBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið fjallar um kenningar og gagnreyndar meðferðir til heilsueflingar almennings, til að sinna eigin heilbrigði sem og ákveðinna sjúklingahópa. Í námskeiðinu verða kynnar leiðir sem hjúkrunarfræðingar geta beitt til að styðja skjólstæðinga sína að taka ábyrgð á eigin heilbrigði. Fjallað verður um mataræði, hreyfingu, útiveru, algeng náttúrulyf og náttúruvörur sem almenningur og sjúklingar eru að nota og hugsanlega gagnsemi og skaðsemi þeirra. Sérstaklega verður fjallað um notkun viðbótarmeðferða (complementary theraies) fyrir aldraða, krabbameinssjúklinga, gigtarsjúklinga, barnshafandi konur og við lífslok. Farið verður í notkun viðbótarmeðferða við ákveðum einkennum eins og verkjum, þreytu, kvíða og ógleði. Einnig verður í námskeiðinu hugað að þáttum sem hafa áhrif á vellíðan í starfi. Verklegar æfingar verða eitt skipti þar sem verður farið í nudd, djúpslökun og hugleiðslu. Í námskeiðinu huga nemendur að því að innleiða meðferð í klíník og gera æfingar við að sinna eigin heilsu.

Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC). Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun, fyrstu meðferð/bjargráð og samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingLokaverkefni í hjúkrunarfræði er 10 eininga námskeið sem undirbýr nemendur fyrir að beita fræðilegum vinnubrögðum og aðferðafræðilegri þekkingu í þeim tilgangi að setja fram nýja þekkingu með hagnýtt gildi. Nemendur vinna verkefni að jafnaði 3-4 saman undir leiðsögn bæði fastráðinna kennara við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild og hjúkrunarfræðinga á klínískum vettvangi með a.m.k. meistarapróf. Verkefnin verða byggð á fræðilegum heimildum og tengjast klínískri vinnu hjúkrunarfræðinga.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingLýsing á námskeiðinu á íslensku:
Nemendur velja sér sjálfir klínískan vettvang eftir áhugasviði. Klínískur vettvangur er þar sem sjúklingum/einstaklingum er veitt hjúkrun og þar sem nemandi getur aukið klíníska færni sína og þekkingu. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi. Gert er ráð fyrir að nemandi dvelji á vettvangi í eina vinnuviku (40 stundir). Frávik geta verið frá því t.d. ef nemandi fer erlendis.Nemandi hefur samband við vettvang og semur munnlega við hjúkrunarfræðing um að fá að koma í klínískt nám sem samsvarar 40 klukkustundum. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuAnnað ár- Haust

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÞriðja ár- Haust

Viðfangsefni: Vöðvar, taugakerfi, stjórn hreyfinga. Inkirtlar og hormónar. Hjarta og æðakerfið. Öndun.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEfnisgjald er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu eru kennd grunnatriði hagnýtrar tölfræði með áherslu á notkun Jamovi tölfræðihugbúnaðarins. Fjallað er um helstu hugtök lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og hvernig tölfræðilegir útreikningar eru framkvæmdir í Jamovi, túlkaðir og kynntir. Meginefni námskeiðsins nær m.a. til breytutegunda og rannsóknarsniða, mælikvarða á miðlægni og dreifingu, myndrænnar framsetningar gagna, stöðlunar, dreifinga, tilgátuprófana (þar á meðal