""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Þrjú og hálft ár - 240 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að breyta um starfsvettvang?
  • Hefur þú lokið háskólagráðu í öðru fagi en hjúkrun?
  • Langar þig í fjölbreytt og gefandi starf að námi loknu?
  • Hefur þú áhuga á að vinna náið með fólki á öllum aldri?

Námsleiðin er skipulögð sem sjö missera nám.

Nemendur fá 22 ECTS einingar metnar úr fyrra námi, lokaverkefni (10 ECTS) og valnámskeið (12 ECTS).

Jafnframt þurfa nemendur að bæta við sig klínískum námsstundum sem nema allt að þremur mánuðum (480 stundum) til að uppfylla viðmið tilskipunar um lengd klínísks náms. Klínískar stundir byrja að telja að loknum 60 ECTS.

Námið er samtals 240 einingar. Hámarkstími námsins er sex ár.

Hvert námskeið er nauðsynleg undirstaða og forkrafa fyrir næsta námskeið. Því er ekki hægt að raða námskeiðum upp öðruvísi en gefið er upp í kennsluskrá.

Kennslan fer fram með:

  • fyrirlestrum
  • umræðutímum
  • færnibúðum
  • verklegum æfingum
  • verkefnavinnu og dæmatímum
  • klínísku námi á heilbrigðisstofnunum

Námsleiðin er fyrir þau sem hafa lokið öðru háskólanámi (BA, BS, B.Ed).

Til að hefja BS-nám í hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild skal umsækjandi hafa lokið bakkalárnámi með lágmarkseinkunn 6,5. 

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku, sbr. 2. mgr. 1. gr. reglna nr. 331-2022, um inntökuskilyrði í grunnnám. Nánari upplýsingar má finna hérna: 

Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands

Fjöldatakmörkun:
Fjöldatakmörkun er í námsleiðina sem miðast við 25 nemendur og ræður námsárangur í fyrra háskólanámi röðun umsækjenda við inntöku í námsleiðina. Nemendur á þessari námsleið þreyta ekki samkeppnispróf. Umsóknarfrestur í námsleiðina er til 5. júní ár hvert.

Ef þau sem sækja um að hefja námið og uppfylla inntökuskilyrði samkvæmt 9. gr. reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331/2022 eru fleiri en unnt er að taka inn í námið skal val nemenda byggjast á ákvæðum 5. gr. reglna nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar greinar við Háskóla Íslands. Val nemenda tekur mið af námsárangri í fyrra námi.

Sérstök inntökunefnd skipuð fulltrúum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar fjallar um umsóknirnar og annast val nemenda. 

Ljúka þarf 240 einingum fyrir lokapróf. Hámarksnámstími er 6 ár.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Félags- og sálfræði (HJÚ114G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í félagsfræðihluta: Gerð er grein fyrir hugtökunum heilbrigði, sjúkdómur, veikindi og sjúklingur. Fjallað er um virkni-, álags- og lífsstílsskýringar á heilsuvandamálum. Gerð er grein fyrir tengslum viðhorfa og hegðunar og kynnt fræðileg líkön um þau tengsl. Langvinn heilsuvandamál eru skilgreind og rætt um sálrænar, félagslegar og efnahagslegar afleiðingar þeirra.

Í sálfræðihluta: Fjallað verður um hvernig skilja má hugarstarf og hegðun einstaklinga og hópa út frá sjónarhorni sálfræðinnar. Kynnt eru mikilvægt hugtök, helstu kenningar og niðurstöður rannsókna. Fjallað verður um sálfræði sem vísindagrein með áherslu á gagnrýna hugsun og fagleg vinnubrögð. Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á mikilvægum undirstöðuatriðum sálfræðinnar og hagnýtum nálgunum innan hennar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Hjúkrunarfræði og starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga (HJÚ127G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefnum námskeiðsins er skipt í þrjá meginhluta sem hver hefur sína áhersluþætti:

1. Hjúkrunarstarfið:Fjallað um hvað í því felst að vera hjúkrunarfræðingur. Saga hjúkrunar og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á Íslandi skoðað. Sjónum beint að hlutverki hjúkrunarfræðinga og sérsvið hjúkrunar kynnt.

2. Hjúkrunarfræðin:Fjallað um grunnkenningar í hjúkrunarfræði og þekkingu sem hjúkrunarstarfið byggir á. Rýnt í samhengið milli skjólstæðings, umhverfis, heilbrigðis og hjúkrunar. Sérstaklega verður fjallað um tengslakenningar, þarfakenningar og umhyggjukenningar. Siðareglum og grunngildum hjúkrunar verða gerð skil og fjallað sérstaklega um gagnrýna hugsun í samhengi við hjúkrunarfræði.

3. Heildræn hjúkrun í þágu skjólstæðinga, aðstandenda og samfélags: Samskipti í samhengi við hjúkrun verða skoðuð, einnig fjölmenning og inngilding og áhrifin sem þau hafa á störf hjúkrunarfræðinga. Hinsegin heilbrigðisþjónusta verður til umfjöllunar. Sérstaklega verður fjallað um hlutverk hjúkrunarfræðinga í geðvernd auk þess sem ofbeldi og áföll og áhrif þess á heilsu fólks verða gerð skil. Jafnframt verður umfjöllun um með hvaða hætti hjúkrunarfræðingar geta hlúð að eigin heilsu og vellíðan og í kjölfarið tekist á við krefjandi starf í síbreytilegum heimi.

Meginmarkmið námskeiðsins eru eftirfarandi:

  • að nemendur fái innsýn og þekkingu á hugtökum og kenningum sem móta starfsumhverfi og starfsvettvang hjúkrunarfræðinga.
  • að nemendur öðlist þekkingu á hjúkrun sem fræðigrein og sem starfsgrein með áherslu á gagnrýna hugsun, fagmennsku, starfsþróun, sjálfræði, samvinnu og hlutverk hjúkrunarfræðinga.
  • að nemendur öðlist þekkingu á helstu siðareglum, lögum og reglugerðum sem skapa ramma og móta starf hjúkrunarfræðinga.
  • að nemendur öðlist þekkingu á sögu hjúkrunar á Íslandi.
  • að nemendur öðlist þekkingu á áhrifum heilsu og sjúkdóma á líðan fólks og aðstæður.
  • að nemendur öðlist þekkingu á geðvernd, sem er ein af meginundirstöðum hjúkrunar. Umfjöllun á námskeiðinu mun beinast að hugtökum sem tengjast tilgangi og aðferðum geðverndar og geðræktar, og verður tengd við gagnreyndar aðferðir sem stuðla að farsælli úrvinnslu lífsbreytinga, efla þrautseigju og vellíðan. Sjónum verður sérstaklega beint að daglegum lifnaðarháttum einstaklinga og hópa í nútíma samfélagi.
  • að nemendur öðlist þekkingu á áföllum og ofbeldi með áherslu á afleiðingar áfalla og ofbeldis á heilsu.
  • að nemendur öðlist þekkingu á aðferðum sem geta stuðlað að vellíðan þeirra í námi sem hjúkrunarnemar og í starfi sem hjúkrunarfræðingar.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Líkaminn – Bygging og þroskun (HJÚ130G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið kennslu í líffæra- og fósturfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í byggingu og þroskun líkamans. Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði fósturfræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Þannig þekki verðandi hjúkrunarfræðingar byggingu og innbyrðis afstöðu þátta stoðkerfisins, vöðva, líffæra og líffærakerfa. Þessi grunnur veitir grundvallarskilning á uppbyggingu líkamans, en gerir nemendum jafnframt kleift að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Frumulíffræði (HJÚ131G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Inngangur að frumulíffræði.

Að loknu námskeiðinu mun nemandinn hafa öðlast þekkingu til að geta lýst og gert í grundvallaratriðum grein  fyrir eftirfarandi þáttum og hugtökum.

Bygging og þróun heilkjörnunga. Efnafræði frumna og orkubúskapur, gerð og eiginleikar stórsameinda eins og próteina og kjarnsýra. Bygging og hlutverk frumuhluta sem dæmi frumuhimnu, kjarna, hvatbera, frumugrindar, golgíkerfis, leysikorna og oxunarkorna. Grunnatriði í erfðafræði og genastjórnun. Stjórnkerfi og boðleiðir innan frumu og samskipti milli fruma ásamt frumusérhæfingu og krabbameinum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Örveru- og sýklafræði (HJÚ142G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna mikilvægi sýkla og smitvarna við umönnun og meðferð sjúklinga og önnur störf á vettvangi hjúkrunar. Lögð er áhersla á fræðilegan undirbúning nemenda til þess að þeir geti hámarkað öryggi sjúklinga og umönnunaraðila við störf sín. Þannig geti þeir tekist á við þekkta og nýja sýkla, spítalasýkingar og útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Mikilvægir orsakavaldar sýkinga og smitsjúkdóma eru kynntir, helstu eiginleikar þeirra, varnir gegn þeim og meðferð.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Lífeðlisfræði I (HJÚ212G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið kennslu í lífeðlisfræði er veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í starfsemi mannslíkamans. Þannig öðlist verðandi hjúkrunarfræðingar grundvallarskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og orsökum sjúkdóma og geti betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eigi nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.
Viðfangsefni: Vöðvar, taugakerfi, stjórn hreyfinga. Inkirtlar og hormónar. Hjarta og æðakerfið. Öndun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Tölfræði (HJÚ214G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu eru kennd grunnatriði hagnýtrar tölfræði með áherslu á notkun Jamovi tölfræðihugbúnaðarins. Fjallað er um helstu hugtök lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og hvernig tölfræðilegir útreikningar eru framkvæmdir í Jamovi, túlkaðir og kynntir. Meginefni námskeiðsins nær m.a. til breytutegunda og rannsóknarsniða, mælikvarða á miðlægni og dreifingu, myndrænnar framsetningar gagna, stöðlunar, dreifinga, tilgátuprófana (þar á meðal t-prófa og χ²-prófa) og fylgni (þar meðal Pearson’s r og Spearman’s r). Áhersla er lögð á hagnýta færni nemenda í Jamovi og gagnrýna túlkun á tölfræðilegum niðurstöðum í samhengi heilbrigðisvísinda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Ónæmis- og meinafræði (HJÚ224G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið kennslu í ónæmisfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í starfsemi ónæmiskerfisins. Þannig öðlist verðandi hjúkrunarfræðingar grundvallarskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og orsökum sjúkdóma og geti betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eigi nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.

Viðfangsefni: Ónæmiskerfið, líffæri og frumur. Ósérhæfðar varnir, átfrumur, magnakerfið og bólgusvar. Sérhæfðar varnir gegn sýkingum og krabbameini, þroskun og sérhæfing eitilfrumna, og ónæmisminni. Grundvöllur ónæmissvars, sjálfsþols og stjórnunar. Tilurð, greining og meðferð meðfæddra og áunnra ónæmisbilana. Tilurð, greining og meðferð ofnæmis- og sjálfsofnæmissjúkdóma. Ónæmisfræðilegur grundvöllur líffæraflutninga. Sértækar meðferðir byggðar á forsendum ónæmisfræðinnar (bólusetningar, afnæmingar, líftæknilyf).

Farið er í grundvallaratriði í almennri meinafræði. Fjallað er um frumuáverka, bráða- og króníska bólgu, græðslu, blóðsega og blóðrek, hjarta- og æðasjúkdóma og góðkynja- og illkynja æxlisvöxt.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Almenn hjúkrun I (HJÚ225G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er fjallað um grunn almennrar hjúkrunar og hjúkrunarferlið, allt frá mati á skjólstæðingum, greiningu hjúkrunarviðfangsefna, áætlun, meðferð og framvindu skjólstæðings. Kennd verða grunnhugtök og -viðfangsefni hjúkrunar með áherslu á skjólstæðinga með skerta sjálfsbjargar- og hreyfigetu þar með talið aðhlynningu slíkra skjólstæðinga. Lykilviðfangsefni eru upplýsingasöfnun, sýkingavarnir, þrýstingssáravarnir, áhrif rúmlegu, vinnutækni, næringarástand, útskilnaður, lífsmörk og öryggi við lyfjagjafir. Nemendur læra einnig flóknari viðfangsefni tengd hjúkrun eldra fólks og þeim líkamlegu og sálfélagslegu breytingum sem fylgja öldrun. Sem dæmi er kennt um færni- og heilsumat vegna flutnings á hjúkrunarheimili, mat á heilsufari íbúa á hjúkrunarheimilum og vísbendingar um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum.

Í færnisetri kynnast og þjálfa nemendur vinnubrögð sín í viðfangsefnum sem fjallað hefur verið um í fræðilegri kennslu. Nemandinn fær þjálfun í notkun kvarða við mat á sjálfsbjargargetu og ástandi skjólstæðinga og kynnist leiðum til að tryggja öryggi þeirra í daglegri umönnun.

Í tveggja vikna klínísku námi á hjúkrunardeild er lögð áhersla á þjálfun í að veita aðhlynningu og aðra grunnhjúkrun, þar með talið færni við samskipti, mat á ástandi skjólstæðinga, greiningu viðfangsefna, áætlun um meðferð einkenna og framkvæmd viðeigandi hjúkrunar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Aðferðafræði (HJÚ243G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum í aðferðafræði sem og þekkingu á algengustu rannsóknaaðferðum sem beitt er í hjúkrunarrannsóknum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn (HVS202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Lífeðlisfræði II (HJÚ309G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið kennslu í lífeðlisfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallarstarfssemi mannslíkamans. Þannig öðlast verðandi hjúkrunarfræðingar grunnskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og forsendum sjúkdóma og geta betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eiga nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.

Viðfangsefni: nýrnastarfsemi, bygging og starfsemi meltingarfæra, stjórn efnaskipta, orkujafnvægi, stjórn líkamshita, lífeðlisfræði vaxtar, skynjun, meðvitund, atferli, æxlunarlífeðlisfræði og fósturþroskun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Samskipti og fræðsla (HJÚ314G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er kennt á 2. ári í grunnnámi í hjúkrunarfræði og er í námskeiðinu byggt ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa öðlast í námskeiðum um hjúkrunarfræði og félags- og sálfræði. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að færni nemenda til 1) samskipta sem einkennast af gæðum, 2) að mynda árangursríkt meðferðarsamband, 3) að veita notendum heilbrigðisþjónustunnar fræðslu með gagnreyndum aðferðum og 4) að skilja hvernig ofangreind færni tengist öryggi notenda heilbrigðisþjónustunnar. Á námskeiðinu verður fjallað um samskipti frá ýmsum hliðum og fá nemendur fjölmörg tækifæri til æfinga í kennslustundum og utan þeirra. Þar verður lögð áhersla á að skoða og þjálfa virka hlustun, viðbrögð í erfiðum samskiptum og uppbyggjandi leiðir til samskipta við notendur heilbrigðisþjónustunnar. Fjallað verður um hugtakið virðingu, ábyrgð heilbrigðisstarfsfólks og fagmennsku í tengslum við rétt allra til heilbrigðisþjónustu.

Á námskeiðinu verður einnig fjallað um tilgang heilbrigðisfræðslu til notenda og tengsl fræðslu við útkomu og árangur meðferðar. Helstu kenningar er tengjast heilbrigðisfræðslu og námi fullorðinna verða kynntar svo og hugtakið heilsulæsi. Farið verður í fræðsluferlið í ljósi mismunandi þarfa notenda og nemendur æfa sig í að skipuleggja og veita fræðslu. Skoðaðar verða mismunandi kennsluaðferðir, kennslumiðlar og hvernig þekking, færni og viðhorf hjúkrunarfræðinga geta haft áhrif á árangur fræðslu til notenda.

HÆFNIVIÐMIР

Við lok námskeiðs á nemandi að:

  1. Geta notað uppbyggjandi samskiptaaðferðir í ólíkum aðstæðum
  2. Geta útskýrt meðferðarsambandið og áhrifamátt þess í hjúkrun sjúklinga
  3. Vera fær um að ígrunda áhrif eigin samskiptahátta á myndun meðferðartengsla við sjúklinga
  4. Geta fjallað á gagnrýninn hátt um grunnþætti heilbrigðisfræðslu, svo sem tilgang hennar,
    siðfræði, helstu námskenningar og fræðsluferlið
  5. Geta útbúið og rökstutt kennsluáætlun fyrir sjúkling um afmarkað efni
  6. Geta útskýrt hvernig samskipti og fræðsla hafa áhrif á öryggi innan heilbrigðiskerfisins
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Almenn hjúkrun II (HJÚ318G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Haldið verður áfram að fjalla um hjúkrunarfræðileg hugtök, auka færni nemenda í flóknari hjúkrunarviðfangsefnum s.s. að vinna við dauðhreinsaðar aðstæður, lyfja-, vökva. Áhersla er lögð á ábyrgð hjúkrunarfræðinga við að meta ástand einstaklinga, skráningu og notkun hjúkrunarferlisins. Einnig verður farið í fræðileg vinnubrögð. Klínískt nám fer fram á sjúkrahúsum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Vöxtur og þroski barna og unglinga (HJÚ319G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er farið í helstu kenningar um vitsmuna-, siðferðis- og sálfélagslegan þroska yfir æviskeiðið. Lögð er áhersla á heilbrigðan vöxt og þroska barna og unglinga. Farið er í líkamlegar breytingar en jafnframt í vitsmunalegan og sálfélagslegan þroska hjá börnum og unglingum og ýmsar aðferðir til að meta vöxt og þroska þeirrra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Heilbrigðismat (HJÚ320G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum yfirgripsmikla þekkingu á líkamsmati (physical assessment) og tengdum þáttum. Áhersla er lögð annarsvegar á að nemendur öðlist færni í beitingu á lykilþáttum í líkamsmati og hinsvegar á skilning nemenda á sérhæfðari aðferðum líkamsmats. Megin viðfangsefnið er heildrænt líkamsmat út frá fullorðnum einstaklingum. Samhliða er tæpt á bráðum líkamlegum einkennum hjá sjúklingum í tengslum við líkamsmat, sem og öryggi sjúklinga. Í námskeiðinu verður ennfremur tekið fyrir lykilþættir fyrstuhjálpar, þar sem megin markmið er að undirbúa nemendur að sinna fyrstuhjálp við krefjandi aðstæður og á sjálfstæðan hátt. Í færnistofu er farið yfir aðferðir við framkvæmd á allsherjar líkamsmati og námsefnið sett í klínískt samhengi. Rík áhersla er á að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu, til að mynda líffæra- og lífeðlisfræði. Sjá betur námskeiðslýsingu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Lyfjafræði (HJÚ409G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lyfjahvarfafræði: Frásog, dreifing, útskilnaður og umbrot lyfja. Gildi lyfjamælinga í blóði. Lyfjaviðtakar. Samband skammta og verkunar. Hjáverkanir lyfja. Öldrunarlyfjafræði. Milliverkun lyfja. Lyfhrifafræði: Lyfjafræði innkirtla. Bólgueyðandi lyf. Lyfjafræði úttaugakerfis. Lyfjafræði miðtaugakerfis. Blóðþrýstingslækkandi lyf. Hjartalyf. Segavarnarlyf. Fitulækkandi lyf. Eitranir í heimahúsum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Skurðlækningafræði (HJÚ410G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið miðar að því að nemandi öðlist yfirsýn yfir helstu sjúkdóma og áverka vegna slysa sem fengist er við innan handlækningafræði. Farið verður yfir einkenni, greiningu og meðferð sjúkdóma og slysa, sem skiptist þannig: Almennir hlutar skurðlæknisfræði, sjúkdómar í brjóstholi, sjúkdómar í kviðarholi, brjóstasjúkdómar, skjaldkirtilssjúkdómar og meðferð bruna, sjúkdómar í þvagfærum, sjúkdómar í beinum og liðum og sjúkdómar í heila og mænu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Næringarfræði (HJÚ416G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur læri undirstöðuatriði næringarfræðinnar, þ.e. um hugtakið lífsnauðsynlegt, um næringarefni og hlutverk þeirra í líkamanum, hvaðan næringarefnin koma, áhrif þeirra á líkamsstarfsemi og tengsl mataræðis, næringarefna og heilsu. Fjallað verður um næringu á mismunandi æviskeiðum og helstu áherslur varðandi næringu mismunandi sjúklingahópa. Markmiðið er jafnframt að nemendur kynnist samstarfi hjúkrunarfræðinga og næringarfræðinga í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Lyflækningafræði (HJÚ418G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið miðar að því að nemandi öðlist yfirsýn yfir helstu sjúkdóma er fengist er við innan lyflækningafræði. Kennd eru grundvallaratriði allra algengustu sjúkdóma eftirtalinna sjúkdómaflokka: hjarta- og æðasjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, öndunarfærasjúkdóma, sjúkdóma í taugakerfi, blóðsjúkdóma, innkirtlasjúkdóma, gigtarsjúkdóma, smitsjúkdóma og krabbameinssjúkdóma. Við lok námskeiðsins á nemandi að geta hagnýtt þekkingu sína á sjúkdómum innan hvers sjúkdómaflokks lyflækninga í starfi og frekara námi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Almenn hjúkrun III (HJÚ419G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið miðar því auka færni nemenda í greiningu hjúkrunarþarfa og skipuleggja hjúkrunarmeðferð. Áhersla er lögð á ábyrgð hjúkrunarfræðinga við að meta ástand einstaklinga og að veita viðeigandi hjúkrunarmeðferð. Fjallað verður um verki, einkennamat, vökva- og blóðgjafir í æð ásamt vökva-, elektrólýta- og sýrubasa jafnvægi. Farið verður yfir túlkun rannsóknarniðurstaða, töku sýna og meðhöndlun. Haldið verður áfram að kenna öryggi við lyfjavinnu og lyfjaútreikninga ásamt öryggismenningu. Umbætur, gagnreynd þekking ásamt þátttöku sjúklinga, upplýsingatækni og teymisvinna eru leiðarstef í gegnum allt námskeiðið. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Geðhjúkrun og geðheilbrigði (HJÚ523G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um ýmsa þætti geðheilbrigðis og helstu geðraskanir meðal fullorðinna og barna, tíðni, greiningu, meðferðarleiðir og hvernig geðrænar áskoranir hafa áhrif á fjölskyldur. Farið verður yfir meginkenningar og hugtök sem geðhjúkrun byggir á sem og mismunandi nálganir í geðheilbrigðisþjónustu. Fjallað er sérstaklega um hlutverk hjúkrunarfræðinga í bráðameðferð og endurhæfingu einstaklinga með geðræn vandamál.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Öldrunarhjúkrun (HJÚ525G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um breytingar sem verða á einstaklingum með hækkandi aldri og helstu viðfangsefnum öldrunarhjúkrunar. Gerð verður grein fyrir algengum heilsufarseinkennum, sjúkdómum og hjúkrunarmeðferð sem beitt er við þeim. Sérstök áhersla verður á einkenni vitrænnar skerðingar og greiningu hennar svo og hjúkrun sjúklinga með heilabilun og/eða í óráði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Hjúkrun langveikra fullorðinna (HJÚ527G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðisins Hjúkrun langveikra fullorðinna er að efla þekkingu og færni nemenda við að hjúkra fullorðnum einstaklingum með langvinna sjúkdóma bæði í langvinnu og bráðaástandi. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar, trúarlegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans og vinni heildrænt að því að lina þjáningu og efla heilbrigði og þroska sjúklinga sinna. Tengsl hjúkrunarfræðings og sjúklings, eftirlit, viðbrögð við einkennum, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferðar eru lykilatriði

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Hjúkrun aðgerðasjúklinga (HJÚ528G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem eiga við bráða og langvinna sjúkdóma að stríða, fara í skurðaðgerð og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit (observation), skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða eru lykilatriði. Þá er fjallað öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynda þekkingu og teymisvinnu heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli (post-operative recovery) sjúklings.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun (HJÚ529G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur kynnist hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og því hvernig fjölskylduhjúkrun hefur verið útfærð innan heilbrigðisþjónustunnar.  Hlutverk hjúkrunarfræðinga í fjölskyldustuðningi og viðhorf til sjúkdóma verða rædd.  Farið verður yfir fjölskylduvirkni og fjölskylduhjúkrun í framkvæmd, hvernig hægt er að nota meðferðarspurningar á árangursríkan hátt og hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir virka og þá hvers vegna.  Nemendur fá þjálfun í að beyta hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar í færnibúðum, auk þess sem unnið verður að því að þróa styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður.  Hvatt er til þátttöku ykkar í námskeiðinu.  

Fyrirkomulag námsins

Fyrirlestrar:  Verða haldnir í námskeiðinu nánar tiltekið í oktFyrirlestrar verða ekki teknir upp.  Þar sem kennslan í fjölskylduhjúkruninni byggir mikið á hópavinnu sem kemur í kjölfar fyrirlestrana, er virka þátttaka ykkar mikilvæg í tímunum.  Hópavinnan og umræður þar sem nemendum gefst tækifæri til að kafa ofan í námsefnið til að öðlast betri skilning á því er ekki tekin upp Nemendur eru því hvattir til að mæta í fyrirlestrana. 

Kennslan byggist á því að nemendur mæti undirbúnir í hvern tíma.  Notaðar verða fjölþættar kennsluaðferðir (fyrirlestrar, vinna í hópum og þjálfun í færnibúðum).  Hvatt er til skoðanaskipta og rökræðna á gagnrýninn og uppbyggjandi hátt.  Skyldumæting er í færnibúðirnar (tveir dagar) og í munnlegar samræður með kennurum um fjölskylduverkefnið þeirra í færnibúðunum.  Auk þess er skyldumæting í munnlegar samræður við sérfræðikennara nemenda um verkefni B.  

Færnibúðir:  Nemendur mæta tvisvar sinnum (þ.e. í tvo daga) í færnibúðir og skila inn einu verkefni (Verkefni A—einstaklingsverkefni (skriflegur hluti verkefnisins) auk þess sem þeir mæta í munnlegar sammræður um verkefnið með sérfræðikennaranum þeirra á síðari degi færnibúðanna (síðari hluti verkefnisins).  Í færnibúðunum vinna þeir einnig að undirbúningi á verkefni C sem tilheyrir námskeiðinu HJÚ632G (en námskeiðin eru tengd saman)

Verkefni A:  

Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann).  Verkefnið er unnið undir náinni handleiðslu sérfræðikennara í færnibúðum.  

Verkefni B:

Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann).  Verkefnið er einstaklingsverkefni þar sem nemendum er úthlutað fjölskyldu- bíómynd til að vinna með í verkefnaviku.  Tilgangur verkefnisins er að nemendur geti dýpkað þekkingu sína í fjölskylduhjúkrun.   Verkefnið er unnið á þremur dögum um miðjan nóv (sjá stundatöflu).  Munnlegu samræðurnar um verkefni B eru haldnar á síðasta degi verkefnavikunnar (þ.e. á föstudeginum).   

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Heilsugæsla samfélagsins (HJÚ530G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að fjalla um þá heilbrigðisþjónustu sem hjúkrunarfræðingar sinna innan heilsugæslunnar og í samfélaginu utan heilbrigðisstofnana.  Farið er í hlutverk heilsugæsluhjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæslu í grunn- og framhaldsskólum og móttöku skjólstæðinga í móttöku á heilsugæslustöðvum.  Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um umönnun nýbura, foreldra og ungu fjölskylduna.  Í námskeiðinu kynnast nemendur barneingarferlinu, ýmsum frávikum svo sem áhrifum meðgöngu-og fæðingarreynslu á heilsu móður og barns, aðlögun foreldra að nýjum hlutverkum, þróun tengslamyndunar og þunglyndi mæðra/foreldra eftir fæðingu. Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í því að meta sérþarfir og heilsufarsástand mæðra,nýbura og fjölskyldna eftir fæðingu, bæði með klínískri starfsþjálfun og einnig með gerð lausnaleitarverkefna.  Áhersla verður lögð á að þjálfa nemendur í samskiptum við skjólstæðinga og fyrirbyggjandi og heilbrigðishvetjandi hjúkrun. Einnig verður áhersla lögð á forvarnir og heilsueflingu einstaklinga og hópa í samfélaginu innan og utan heilbrigðisstofnana. Fjallað er um leiðir til að fyrirbyggja heilsufarsvandamál og efla heilsu hópa innan samfélagsins, með hliðsjón af þekkingu um lifnaðarhætti og  kenningar um forvarnir og heilsueflingu, meðal annars með umfjöllun um atvinnu- og umhverfisheilbrigði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Klínísk geðhjúkrun (HJÚ617G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur m.a. í að beita þeirri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu Geðhjúkrun og geðheilbrigði. Klíníska þjálfunin fer fram á heilbrigðisstofnunum þar með talið á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, Reykjalundi og Landspítala háskólasjúkrahúsi. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun heilsufarsmats og klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga og aðstandenda á sviði geðhjúkrunar.

Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í að meta þarfir og heilsufarsástand skjólstæðinga, bæði með klínískri þjálfun og einnig með framkvæmd klínískra verkefna. Auk þess er áhersla lögð á þjálfun nemenda í tengslamyndun og samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur ásamt heilsueflandi umönnun. Nemendur eiga samneyti við sjúklinga, aðstandendur og fagfólk og skoða sérstaklega þátt hjúkrunarfræðinga í meðferð og þverfaglegu samstarfi. Þeir leitast við að tengja fræðilega þekkingu við klínísk viðfangsefni og leita í því samhengi eftir fræðilegu efni og rannsóknarniðurstöðum. Nemendur taka þátt í daglegum viðfangsefnum hjúkrunar og nýta sér námstækifæri sem þeim bjóðast og vinna klínísk námsverkefni með leiðsögn klínískra- og sérfræðikennara.

Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í að meta þarfir og heilsufarsástand skjólstæðinga sinna, bæði með klínískri þjálfun og einnig með framkvæmd klínískra verkefna. Auk þess er áhersla lögð á þjálfun nemenda í samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra og á fyrirbyggjandi og heilsueflandi umönnun. Nemendum gefst tækifæri til að beita fræðilegri þekkingu við mat og þróun íhlutana fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra undir handleiðslu heilbrigðisstarfsmanna. Þeir eiga samneyti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og fagfólk og skoða sérstaklega þátt hjúkrunarfræðinga í meðferð og þverfaglegu samstarfi. Þeir leitast við að tengja fræðilega þekkingu við klínísku viðfangsefni og leita í því samhengi eftir fræðilegu efni og rannsóknarniðurstöðum. Nemendur taka þátt í daglegum viðfangsefnum hjúkrunar og nýta sér námstækifæri sem þeim bjóðast og vinna klínísk námsverkefni með leiðsögn klínískra- og sérfræðikennara.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Klínísk öldrunarhjúkrun (HJÚ618G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði kynnist nemandi sértækum þörfum og hjúkrun eldra fólks og þeim breytingum sem verða á einstaklingnum með hækkandi aldri. Áherslan er á að greina hvernig meðferð og mat á eldra fólki þarf að taka tillit til sérstakra þarfa þeirra svo sem bestur árangur náist í meðferð og endurhæfingu. Með því að taka tillit til sér þarfa eldra fólks má tryggja lífsgæði og stytta legutíma. Verkefni og matstæki sem unnið er með geta skarast við önnur námskeið en tilgangurinn er þá að þjálfa nemandann í að nota matstæki sem og að túlka niðurstöðuna með tilliti til öldrunarbreytinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Klínísk hjúkrun langveikra fullorðinna (HJÚ620G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem eiga við bráða og langvinna sjúkdóma að stríða og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða, öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynd þekking og teymisvinna heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli sjúklings eða að taka á við einkenni og heilsufarsvanda eru lykilatriði í klínískri þjálfun í námskeiðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Klínísk heilsugæsla (HJÚ627G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita gagnreyndri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu „Heilsugæsla samfélagsins. Klíniska þjálfunin fer fram á heilbrigðisstofnunum þar með talið á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala háskólasjúkrahúsi. Sérstök áhersla verður lögð á klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga (t.d. nýbura, mæðra/foreldris og skólabarna), fjölskyldna og hópa innan heilsugæslunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Klínísk fjölskylduhjúkrun (HJÚ632G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita gagnreyndri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu HJÚ 529G Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun.  Sérstök áhersla verður lögð á klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Nemendur vinna í sameiningu með sérfræðikennara að því að finna skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra til að vinna með í klíníkinni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Klínísk hjúkrun aðgerðasjúklinga (HJÚ633G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem fara í skurðaðgerð og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða, öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynd þekking og teymisvinna heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli sjúklings eða að taka á við einkenni og heilsufarsvanda eru lykilatriði í klínískri þjálfun í námskeiðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Valnámskeið í klínískri hjúkrun (HJÚ823G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lýsing á námskeiðinu á íslensku:
Nemendur velja sér sjálfir klínískan vettvang eftir áhugasviði. Klínískur vettvangur er þar sem sjúklingum/einstaklingum er veitt hjúkrun og þar sem nemandi getur aukið klíníska færni sína og þekkingu. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi. Gert er ráð fyrir að nemandi dvelji á vettvangi í eina vinnuviku (40 stundir). Frávik geta verið frá því t.d. ef nemandi fer erlendis.

Nemandi hefur samband við vettvang og semur munnlega við hjúkrunarfræðing um að fá að koma í klínískt nám sem samsvarar 40 klukkustundum. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi. 

Nemandi sendir formlega umsókn með starfsferilskrá til umsjónarkennara námskeiðs (á Canvas vef námskeiðsins) og hjúkrunarfræðings á vettvangi. Í umsókn á að koma fram:

    1. Nafn og netfang nemanda.
    2. Nafn og netfang umsjónarkennara.
    3. Hvaða vettvang valdi nemandi og hver hefur umsjón með dvöl hans þar (nafn og netfang hjúkrunarfræðings).
    4. Hvers vegna varð þessi vettvangur fyrir valinu/rök fyrir vali.
    5. Hver eru markmið nemandans með klíníska náminu á þessum stað.
    6. Áhersluatriði sem nemandi mun sérstaklega kynna sér. Hvaða gagnreyndu þekkingu ætlar nemandi að skoða og skrifa um sem tengist þessum vettvangi.

 Umsjónarkennari sendir hjúkrunarfræðingi á vettvangi upplýsingar um námskeiðið.

Þegar ljóst er hvenær nemandi mun fara á vettvang hefur hann samband við hjúkrunarfræðing á vettvangi. Nemandi staðfestir síðan við umsjónarkennara tímabil klíníska námsins. Mismunandi er eftir stundatöflu hvers nemanda hvenær hann getur farið á vettvang

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fjórða ár | Haust
Heimahjúkrun (HJÚ711G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um heimilið sem vettvang heilbrigðisþjónustu. Rætt verður um gildi heimilisins fyrir fólk og áhrif tæknivæðingar á heimilismenn. Leitast verður við að skoða samspil umhverfis á heimilum og heilsu og lífsgæða. Samstarf við aðstandendur og aðstæður þeirra verða ræddar með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum. Gerð verður grein fyrir uppbyggingu og skipulagi heilbrigðis- og félagsþjónustu til þeirra sem dvelja heima og þarfnast aðstoðar vegna veikinda eða skerðingar á færni. Í fyrirlestrum og klínísku námi kynnist nemandi störfum í heimahjúkrun sem miða að því að viðhalda og efla vellíðan fólks með langvinn heilsufarsvandamál sem býr á eigin heimili.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fjórða ár | Haust
Hjúkrunarstjórnun (HJÚ714G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að auka þekkingu og dýpka skilning nemanda á helstu grunnhugtökum og kenningum í hjúkrunarstjórnun og hvernig hægt er að beita þeim í hjúkrunarstarfi. Lögð er áhersla á að nemendur þekki og geri sér grein fyrir því stjórnunarstarfi sem fram fer í hjúkrun innan heilbrigðisstofnana. Jafnframt að þau þekki grundvallaratriði í rekstri, uppbyggingu og skipulagi stjórnkerfa heilbrigðisstofnana. Fjallað verður sérstaklega um forystuhlutverk hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðiskerfisins og hlutverk þeirra í teymisvinnu. Hermikennsla og klínískt nám í hjúkrunarstjórnun miðar að því að nemendur fái æfingu í að hafa umsjón með, skipuleggja, stjórna og forgangsraða hjúkrunarmeðferð ákveðins hóps sjúklinga ásamt því að tryggja öryggi þeirra og starfsmanna. Nemendur eiga að ljúka klínískum verkefnum og vera virkir þátttakendur í umræðuhópum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fjórða ár | Haust
Heilbrigði og siðfræði (HJÚ726G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing
  • Sérstaklega er fjallað um siðferðilegan þátt hjúkrunarfræðinnar og hjúkrunarstarfsins með það að markmiði að búa nemendur undir að greina og takast á við siðferðileg úrlausnarefni í starfi heilbrigðisstétta til dæmis tengt ofbeldi og flóknum aðstæðum í starfi. Tekin verða til athugunar ýmis siðfræðileg úrlausnarefni, sem upp koma í starfi heilbrigðisstétta og forsendur fyrir lausnum á þeim.
  • Afleiðingar ofbeldis og kynbundinna áfalla á heilsu. Birtingarmyndir ofbeldis og kynbundins ofbeldis á mismunandi æviskeiðum. Birtingarmyndir ofbeldis meðal mismunandi samfélagshópa, s.s. ofbeldis í nánum samböndum og fjölskyldum; ofbeldis gagnvart viðkvæmum og jaðarsettum hópum; eineltis; ofbeldis í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Faraldsfræði ofbeldis, úrræði fyrir þolendur og leiðir til forvarna.
  • Erfiða samtalið og áskoranir í samskiptum. Sjálfskaðar og sjálfsvígshætta. Aðferðir til að skima fyrir ofbeldi og veita þolendum stuðning. Hjúkrun eftir ofbeldi
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fjórða ár | Haust
Langveikir og heilbrigðisþjónustan (HJÚ727G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað 4. árs BS nemendum í hjúkrunarfræði. Það er fræðilegt (4 ECTS) og klínískt (1 ECTS) og skiptist í tvo þætti:

Þjónustunotkun og íslensk heilbrigðisþjónusta í alþjóðlegu samhengi.
Fjallað er um veikindahegðun og þjónustunotkun, skýringar á þjónustunotkun, einkenni þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu, skipulag á og aðgengi að þjónustu, árangur og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu. Umsjón með þessum þætti námskeiðsins hefur Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.

Meðferð/þjónusta hjúkrunarfræðinga fyrir langveika og fjölskyldur þeirra.
Fjallað er um hugtök, einkenni og fyrirbæri sem tengjast langveikum og fjölskyldum þeirra og hjúkrunarmeðferðir  sérsniðnar að þörfum langveikra og fjölskyldna þeirra. Einnig er fjallað um siðferðileg álitamál í þjónustu við langveika og fjölskyldur þeirra og úrvinnsla álitamála þjálfuð. Nemendur kynnast starfsemi stofnana sem þjónusta langveika, verða í klínísku námi á göngudeildum fyrir langveika og kynnast starfsemi sjúklingasamtaka.

Tvær kennsluáætlanir verða í námskeiðinu, annars vegar fyrir grunnnemendur og hins vegar fyrir framhaldsnemendur. Nemendur námskeiðsins geta nálgast þær á Canvas þegar kennsla er hafin.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fjórða ár | Haust
Barnahjúkrun I (HJÚ730G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum þekkingu og skilning á grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í barnahjúkrun og grundvallar þekkingu og skilningi á hugtökum sem tengjast helstu barnasjúkdómum. Lögð er áhersla á þarfir og heilbrigði barna; einkenni, viðbrögð, upplifun og skynjun barna á veikindum og sjúkrahúsvist; tjáskipti við börn, tengsl við foreldra og hlutverk hjúkrunar í umönnun barna með ýmis heilbrigðisfrávik. Þátttaka í klínískum verkefnum, starfi og umræðu, ásamt umræðufundum og klínískum vinnusmiðjum veita nemendum tækifæri til að kynnast störfum hjúkrunarfræðinga og samstarfsmanna á barnadeildum og að öðlast grundvallarhæfni og -leikni í helstu aðferðum og inngripum tengdum hjúkrun og tengdri meðferð. Áhersla er lögð á tengingu fræðilegrar þekkingar, klínískrar aðferðafræði og framkvæmd hjúkrunar foreldra og barna með gagnreyndum aðferðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fjórða ár | Haust
Barnahjúkrun II (HJÚ731G)

Bráðahjúkrun I (HJÚ732G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga og hjúkrun slasaðra.

Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum.

Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda.

 Í námskeiðinu er lögð áhersla á hugtökin:

  • Mat (assessment)
  • Eftirlit (surveillance)
  • Fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.

Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC).

Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á:

  • Þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun
  • Fyrstu meðferð/bjargráð
  • Samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum.

Athugið að áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fjórða ár | Haust
Bráðahjúkrun II (HJÚ733G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga, sem og hjúkrun slasaðra. Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum. Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. Í námskeiðinu er áhersla lögð á hugtökin mat (assessment), eftirlit (surveillance) og fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.
  Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC). Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á  þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun, fyrstu meðferð/bjargráð og samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fjórða ár | Haust
Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
 
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

Kennslutungumál: Íslenska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • HJÚ114G
    Félags- og sálfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í félagsfræðihluta: Gerð er grein fyrir hugtökunum heilbrigði, sjúkdómur, veikindi og sjúklingur. Fjallað er um virkni-, álags- og lífsstílsskýringar á heilsuvandamálum. Gerð er grein fyrir tengslum viðhorfa og hegðunar og kynnt fræðileg líkön um þau tengsl. Langvinn heilsuvandamál eru skilgreind og rætt um sálrænar, félagslegar og efnahagslegar afleiðingar þeirra.

    Í sálfræðihluta: Fjallað verður um hvernig skilja má hugarstarf og hegðun einstaklinga og hópa út frá sjónarhorni sálfræðinnar. Kynnt eru mikilvægt hugtök, helstu kenningar og niðurstöður rannsókna. Fjallað verður um sálfræði sem vísindagrein með áherslu á gagnrýna hugsun og fagleg vinnubrögð. Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á mikilvægum undirstöðuatriðum sálfræðinnar og hagnýtum nálgunum innan hennar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ127G
    Hjúkrunarfræði og starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefnum námskeiðsins er skipt í þrjá meginhluta sem hver hefur sína áhersluþætti:

    1. Hjúkrunarstarfið:Fjallað um hvað í því felst að vera hjúkrunarfræðingur. Saga hjúkrunar og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á Íslandi skoðað. Sjónum beint að hlutverki hjúkrunarfræðinga og sérsvið hjúkrunar kynnt.

    2. Hjúkrunarfræðin:Fjallað um grunnkenningar í hjúkrunarfræði og þekkingu sem hjúkrunarstarfið byggir á. Rýnt í samhengið milli skjólstæðings, umhverfis, heilbrigðis og hjúkrunar. Sérstaklega verður fjallað um tengslakenningar, þarfakenningar og umhyggjukenningar. Siðareglum og grunngildum hjúkrunar verða gerð skil og fjallað sérstaklega um gagnrýna hugsun í samhengi við hjúkrunarfræði.

    3. Heildræn hjúkrun í þágu skjólstæðinga, aðstandenda og samfélags: Samskipti í samhengi við hjúkrun verða skoðuð, einnig fjölmenning og inngilding og áhrifin sem þau hafa á störf hjúkrunarfræðinga. Hinsegin heilbrigðisþjónusta verður til umfjöllunar. Sérstaklega verður fjallað um hlutverk hjúkrunarfræðinga í geðvernd auk þess sem ofbeldi og áföll og áhrif þess á heilsu fólks verða gerð skil. Jafnframt verður umfjöllun um með hvaða hætti hjúkrunarfræðingar geta hlúð að eigin heilsu og vellíðan og í kjölfarið tekist á við krefjandi starf í síbreytilegum heimi.

    Meginmarkmið námskeiðsins eru eftirfarandi:

    • að nemendur fái innsýn og þekkingu á hugtökum og kenningum sem móta starfsumhverfi og starfsvettvang hjúkrunarfræðinga.
    • að nemendur öðlist þekkingu á hjúkrun sem fræðigrein og sem starfsgrein með áherslu á gagnrýna hugsun, fagmennsku, starfsþróun, sjálfræði, samvinnu og hlutverk hjúkrunarfræðinga.
    • að nemendur öðlist þekkingu á helstu siðareglum, lögum og reglugerðum sem skapa ramma og móta starf hjúkrunarfræðinga.
    • að nemendur öðlist þekkingu á sögu hjúkrunar á Íslandi.
    • að nemendur öðlist þekkingu á áhrifum heilsu og sjúkdóma á líðan fólks og aðstæður.
    • að nemendur öðlist þekkingu á geðvernd, sem er ein af meginundirstöðum hjúkrunar. Umfjöllun á námskeiðinu mun beinast að hugtökum sem tengjast tilgangi og aðferðum geðverndar og geðræktar, og verður tengd við gagnreyndar aðferðir sem stuðla að farsælli úrvinnslu lífsbreytinga, efla þrautseigju og vellíðan. Sjónum verður sérstaklega beint að daglegum lifnaðarháttum einstaklinga og hópa í nútíma samfélagi.
    • að nemendur öðlist þekkingu á áföllum og ofbeldi með áherslu á afleiðingar áfalla og ofbeldis á heilsu.
    • að nemendur öðlist þekkingu á aðferðum sem geta stuðlað að vellíðan þeirra í námi sem hjúkrunarnemar og í starfi sem hjúkrunarfræðingar.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ130G
    Líkaminn – Bygging og þroskun
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið kennslu í líffæra- og fósturfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í byggingu og þroskun líkamans. Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði fósturfræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Þannig þekki verðandi hjúkrunarfræðingar byggingu og innbyrðis afstöðu þátta stoðkerfisins, vöðva, líffæra og líffærakerfa. Þessi grunnur veitir grundvallarskilning á uppbyggingu líkamans, en gerir nemendum jafnframt kleift að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ131G
    Frumulíffræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Inngangur að frumulíffræði.

    Að loknu námskeiðinu mun nemandinn hafa öðlast þekkingu til að geta lýst og gert í grundvallaratriðum grein  fyrir eftirfarandi þáttum og hugtökum.

    Bygging og þróun heilkjörnunga. Efnafræði frumna og orkubúskapur, gerð og eiginleikar stórsameinda eins og próteina og kjarnsýra. Bygging og hlutverk frumuhluta sem dæmi frumuhimnu, kjarna, hvatbera, frumugrindar, golgíkerfis, leysikorna og oxunarkorna. Grunnatriði í erfðafræði og genastjórnun. Stjórnkerfi og boðleiðir innan frumu og samskipti milli fruma ásamt frumusérhæfingu og krabbameinum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ142G
    Örveru- og sýklafræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna mikilvægi sýkla og smitvarna við umönnun og meðferð sjúklinga og önnur störf á vettvangi hjúkrunar. Lögð er áhersla á fræðilegan undirbúning nemenda til þess að þeir geti hámarkað öryggi sjúklinga og umönnunaraðila við störf sín. Þannig geti þeir tekist á við þekkta og nýja sýkla, spítalasýkingar og útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Mikilvægir orsakavaldar sýkinga og smitsjúkdóma eru kynntir, helstu eiginleikar þeirra, varnir gegn þeim og meðferð.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • HJÚ212G
    Lífeðlisfræði I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið kennslu í lífeðlisfræði er veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í starfsemi mannslíkamans. Þannig öðlist verðandi hjúkrunarfræðingar grundvallarskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og orsökum sjúkdóma og geti betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eigi nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.
    Viðfangsefni: Vöðvar, taugakerfi, stjórn hreyfinga. Inkirtlar og hormónar. Hjarta og æðakerfið. Öndun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • HJÚ214G
    Tölfræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu eru kennd grunnatriði hagnýtrar tölfræði með áherslu á notkun Jamovi tölfræðihugbúnaðarins. Fjallað er um helstu hugtök lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og hvernig tölfræðilegir útreikningar eru framkvæmdir í Jamovi, túlkaðir og kynntir. Meginefni námskeiðsins nær m.a. til breytutegunda og rannsóknarsniða, mælikvarða á miðlægni og dreifingu, myndrænnar framsetningar gagna, stöðlunar, dreifinga, tilgátuprófana (þar á meðal t-prófa og χ²-prófa) og fylgni (þar meðal Pearson’s r og Spearman’s r). Áhersla er lögð á hagnýta færni nemenda í Jamovi og gagnrýna túlkun á tölfræðilegum niðurstöðum í samhengi heilbrigðisvísinda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ224G
    Ónæmis- og meinafræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið kennslu í ónæmisfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallaratriðum í starfsemi ónæmiskerfisins. Þannig öðlist verðandi hjúkrunarfræðingar grundvallarskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og orsökum sjúkdóma og geti betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eigi nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.

    Viðfangsefni: Ónæmiskerfið, líffæri og frumur. Ósérhæfðar varnir, átfrumur, magnakerfið og bólgusvar. Sérhæfðar varnir gegn sýkingum og krabbameini, þroskun og sérhæfing eitilfrumna, og ónæmisminni. Grundvöllur ónæmissvars, sjálfsþols og stjórnunar. Tilurð, greining og meðferð meðfæddra og áunnra ónæmisbilana. Tilurð, greining og meðferð ofnæmis- og sjálfsofnæmissjúkdóma. Ónæmisfræðilegur grundvöllur líffæraflutninga. Sértækar meðferðir byggðar á forsendum ónæmisfræðinnar (bólusetningar, afnæmingar, líftæknilyf).

    Farið er í grundvallaratriði í almennri meinafræði. Fjallað er um frumuáverka, bráða- og króníska bólgu, græðslu, blóðsega og blóðrek, hjarta- og æðasjúkdóma og góðkynja- og illkynja æxlisvöxt.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ225G
    Almenn hjúkrun I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er fjallað um grunn almennrar hjúkrunar og hjúkrunarferlið, allt frá mati á skjólstæðingum, greiningu hjúkrunarviðfangsefna, áætlun, meðferð og framvindu skjólstæðings. Kennd verða grunnhugtök og -viðfangsefni hjúkrunar með áherslu á skjólstæðinga með skerta sjálfsbjargar- og hreyfigetu þar með talið aðhlynningu slíkra skjólstæðinga. Lykilviðfangsefni eru upplýsingasöfnun, sýkingavarnir, þrýstingssáravarnir, áhrif rúmlegu, vinnutækni, næringarástand, útskilnaður, lífsmörk og öryggi við lyfjagjafir. Nemendur læra einnig flóknari viðfangsefni tengd hjúkrun eldra fólks og þeim líkamlegu og sálfélagslegu breytingum sem fylgja öldrun. Sem dæmi er kennt um færni- og heilsumat vegna flutnings á hjúkrunarheimili, mat á heilsufari íbúa á hjúkrunarheimilum og vísbendingar um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum.

    Í færnisetri kynnast og þjálfa nemendur vinnubrögð sín í viðfangsefnum sem fjallað hefur verið um í fræðilegri kennslu. Nemandinn fær þjálfun í notkun kvarða við mat á sjálfsbjargargetu og ástandi skjólstæðinga og kynnist leiðum til að tryggja öryggi þeirra í daglegri umönnun.

    Í tveggja vikna klínísku námi á hjúkrunardeild er lögð áhersla á þjálfun í að veita aðhlynningu og aðra grunnhjúkrun, þar með talið færni við samskipti, mat á ástandi skjólstæðinga, greiningu viðfangsefna, áætlun um meðferð einkenna og framkvæmd viðeigandi hjúkrunar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ243G
    Aðferðafræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum í aðferðafræði sem og þekkingu á algengustu rannsóknaaðferðum sem beitt er í hjúkrunarrannsóknum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HVS202G
    Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • HJÚ309G
    Lífeðlisfræði II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið kennslu í lífeðlisfræði er að veita nemendum almenna og víðtæka þekkingu á grundvallarstarfssemi mannslíkamans. Þannig öðlast verðandi hjúkrunarfræðingar grunnskilning á líffræðilegum forsendum heilbrigðis og forsendum sjúkdóma og geta betur metið ástand og þarfir sjúklinga. Jafnframt eiga nemendur auðveldara með að afla sér viðbótarþekkingar á þessu sviði í framtíðinni. Þannig er staðgóð þekking í þessum greinum nauðsynleg undirstaða fyrir nám í almennum og sérhæfðum hjúkrunargreinum.

    Viðfangsefni: nýrnastarfsemi, bygging og starfsemi meltingarfæra, stjórn efnaskipta, orkujafnvægi, stjórn líkamshita, lífeðlisfræði vaxtar, skynjun, meðvitund, atferli, æxlunarlífeðlisfræði og fósturþroskun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • HJÚ314G
    Samskipti og fræðsla
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er kennt á 2. ári í grunnnámi í hjúkrunarfræði og er í námskeiðinu byggt ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa öðlast í námskeiðum um hjúkrunarfræði og félags- og sálfræði. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að færni nemenda til 1) samskipta sem einkennast af gæðum, 2) að mynda árangursríkt meðferðarsamband, 3) að veita notendum heilbrigðisþjónustunnar fræðslu með gagnreyndum aðferðum og 4) að skilja hvernig ofangreind færni tengist öryggi notenda heilbrigðisþjónustunnar. Á námskeiðinu verður fjallað um samskipti frá ýmsum hliðum og fá nemendur fjölmörg tækifæri til æfinga í kennslustundum og utan þeirra. Þar verður lögð áhersla á að skoða og þjálfa virka hlustun, viðbrögð í erfiðum samskiptum og uppbyggjandi leiðir til samskipta við notendur heilbrigðisþjónustunnar. Fjallað verður um hugtakið virðingu, ábyrgð heilbrigðisstarfsfólks og fagmennsku í tengslum við rétt allra til heilbrigðisþjónustu.

    Á námskeiðinu verður einnig fjallað um tilgang heilbrigðisfræðslu til notenda og tengsl fræðslu við útkomu og árangur meðferðar. Helstu kenningar er tengjast heilbrigðisfræðslu og námi fullorðinna verða kynntar svo og hugtakið heilsulæsi. Farið verður í fræðsluferlið í ljósi mismunandi þarfa notenda og nemendur æfa sig í að skipuleggja og veita fræðslu. Skoðaðar verða mismunandi kennsluaðferðir, kennslumiðlar og hvernig þekking, færni og viðhorf hjúkrunarfræðinga geta haft áhrif á árangur fræðslu til notenda.

    HÆFNIVIÐMIР

    Við lok námskeiðs á nemandi að:

    1. Geta notað uppbyggjandi samskiptaaðferðir í ólíkum aðstæðum
    2. Geta útskýrt meðferðarsambandið og áhrifamátt þess í hjúkrun sjúklinga
    3. Vera fær um að ígrunda áhrif eigin samskiptahátta á myndun meðferðartengsla við sjúklinga
    4. Geta fjallað á gagnrýninn hátt um grunnþætti heilbrigðisfræðslu, svo sem tilgang hennar,
      siðfræði, helstu námskenningar og fræðsluferlið
    5. Geta útbúið og rökstutt kennsluáætlun fyrir sjúkling um afmarkað efni
    6. Geta útskýrt hvernig samskipti og fræðsla hafa áhrif á öryggi innan heilbrigðiskerfisins
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ318G
    Almenn hjúkrun II
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Haldið verður áfram að fjalla um hjúkrunarfræðileg hugtök, auka færni nemenda í flóknari hjúkrunarviðfangsefnum s.s. að vinna við dauðhreinsaðar aðstæður, lyfja-, vökva. Áhersla er lögð á ábyrgð hjúkrunarfræðinga við að meta ástand einstaklinga, skráningu og notkun hjúkrunarferlisins. Einnig verður farið í fræðileg vinnubrögð. Klínískt nám fer fram á sjúkrahúsum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ319G
    Vöxtur og þroski barna og unglinga
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er farið í helstu kenningar um vitsmuna-, siðferðis- og sálfélagslegan þroska yfir æviskeiðið. Lögð er áhersla á heilbrigðan vöxt og þroska barna og unglinga. Farið er í líkamlegar breytingar en jafnframt í vitsmunalegan og sálfélagslegan þroska hjá börnum og unglingum og ýmsar aðferðir til að meta vöxt og þroska þeirrra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ320G
    Heilbrigðismat
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum yfirgripsmikla þekkingu á líkamsmati (physical assessment) og tengdum þáttum. Áhersla er lögð annarsvegar á að nemendur öðlist færni í beitingu á lykilþáttum í líkamsmati og hinsvegar á skilning nemenda á sérhæfðari aðferðum líkamsmats. Megin viðfangsefnið er heildrænt líkamsmat út frá fullorðnum einstaklingum. Samhliða er tæpt á bráðum líkamlegum einkennum hjá sjúklingum í tengslum við líkamsmat, sem og öryggi sjúklinga. Í námskeiðinu verður ennfremur tekið fyrir lykilþættir fyrstuhjálpar, þar sem megin markmið er að undirbúa nemendur að sinna fyrstuhjálp við krefjandi aðstæður og á sjálfstæðan hátt. Í færnistofu er farið yfir aðferðir við framkvæmd á allsherjar líkamsmati og námsefnið sett í klínískt samhengi. Rík áhersla er á að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu, til að mynda líffæra- og lífeðlisfræði. Sjá betur námskeiðslýsingu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • HJÚ409G
    Lyfjafræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lyfjahvarfafræði: Frásog, dreifing, útskilnaður og umbrot lyfja. Gildi lyfjamælinga í blóði. Lyfjaviðtakar. Samband skammta og verkunar. Hjáverkanir lyfja. Öldrunarlyfjafræði. Milliverkun lyfja. Lyfhrifafræði: Lyfjafræði innkirtla. Bólgueyðandi lyf. Lyfjafræði úttaugakerfis. Lyfjafræði miðtaugakerfis. Blóðþrýstingslækkandi lyf. Hjartalyf. Segavarnarlyf. Fitulækkandi lyf. Eitranir í heimahúsum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ410G
    Skurðlækningafræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að nemandi öðlist yfirsýn yfir helstu sjúkdóma og áverka vegna slysa sem fengist er við innan handlækningafræði. Farið verður yfir einkenni, greiningu og meðferð sjúkdóma og slysa, sem skiptist þannig: Almennir hlutar skurðlæknisfræði, sjúkdómar í brjóstholi, sjúkdómar í kviðarholi, brjóstasjúkdómar, skjaldkirtilssjúkdómar og meðferð bruna, sjúkdómar í þvagfærum, sjúkdómar í beinum og liðum og sjúkdómar í heila og mænu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ416G
    Næringarfræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur læri undirstöðuatriði næringarfræðinnar, þ.e. um hugtakið lífsnauðsynlegt, um næringarefni og hlutverk þeirra í líkamanum, hvaðan næringarefnin koma, áhrif þeirra á líkamsstarfsemi og tengsl mataræðis, næringarefna og heilsu. Fjallað verður um næringu á mismunandi æviskeiðum og helstu áherslur varðandi næringu mismunandi sjúklingahópa. Markmiðið er jafnframt að nemendur kynnist samstarfi hjúkrunarfræðinga og næringarfræðinga í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ418G
    Lyflækningafræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að nemandi öðlist yfirsýn yfir helstu sjúkdóma er fengist er við innan lyflækningafræði. Kennd eru grundvallaratriði allra algengustu sjúkdóma eftirtalinna sjúkdómaflokka: hjarta- og æðasjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, öndunarfærasjúkdóma, sjúkdóma í taugakerfi, blóðsjúkdóma, innkirtlasjúkdóma, gigtarsjúkdóma, smitsjúkdóma og krabbameinssjúkdóma. Við lok námskeiðsins á nemandi að geta hagnýtt þekkingu sína á sjúkdómum innan hvers sjúkdómaflokks lyflækninga í starfi og frekara námi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ419G
    Almenn hjúkrun III
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið miðar því auka færni nemenda í greiningu hjúkrunarþarfa og skipuleggja hjúkrunarmeðferð. Áhersla er lögð á ábyrgð hjúkrunarfræðinga við að meta ástand einstaklinga og að veita viðeigandi hjúkrunarmeðferð. Fjallað verður um verki, einkennamat, vökva- og blóðgjafir í æð ásamt vökva-, elektrólýta- og sýrubasa jafnvægi. Farið verður yfir túlkun rannsóknarniðurstaða, töku sýna og meðhöndlun. Haldið verður áfram að kenna öryggi við lyfjavinnu og lyfjaútreikninga ásamt öryggismenningu. Umbætur, gagnreynd þekking ásamt þátttöku sjúklinga, upplýsingatækni og teymisvinna eru leiðarstef í gegnum allt námskeiðið. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • HJÚ523G
    Geðhjúkrun og geðheilbrigði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um ýmsa þætti geðheilbrigðis og helstu geðraskanir meðal fullorðinna og barna, tíðni, greiningu, meðferðarleiðir og hvernig geðrænar áskoranir hafa áhrif á fjölskyldur. Farið verður yfir meginkenningar og hugtök sem geðhjúkrun byggir á sem og mismunandi nálganir í geðheilbrigðisþjónustu. Fjallað er sérstaklega um hlutverk hjúkrunarfræðinga í bráðameðferð og endurhæfingu einstaklinga með geðræn vandamál.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ525G
    Öldrunarhjúkrun
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um breytingar sem verða á einstaklingum með hækkandi aldri og helstu viðfangsefnum öldrunarhjúkrunar. Gerð verður grein fyrir algengum heilsufarseinkennum, sjúkdómum og hjúkrunarmeðferð sem beitt er við þeim. Sérstök áhersla verður á einkenni vitrænnar skerðingar og greiningu hennar svo og hjúkrun sjúklinga með heilabilun og/eða í óráði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ527G
    Hjúkrun langveikra fullorðinna
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur námskeiðisins Hjúkrun langveikra fullorðinna er að efla þekkingu og færni nemenda við að hjúkra fullorðnum einstaklingum með langvinna sjúkdóma bæði í langvinnu og bráðaástandi. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar, trúarlegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans og vinni heildrænt að því að lina þjáningu og efla heilbrigði og þroska sjúklinga sinna. Tengsl hjúkrunarfræðings og sjúklings, eftirlit, viðbrögð við einkennum, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferðar eru lykilatriði

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ528G
    Hjúkrun aðgerðasjúklinga
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem eiga við bráða og langvinna sjúkdóma að stríða, fara í skurðaðgerð og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit (observation), skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða eru lykilatriði. Þá er fjallað öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynda þekkingu og teymisvinnu heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli (post-operative recovery) sjúklings.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ529G
    Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur kynnist hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og því hvernig fjölskylduhjúkrun hefur verið útfærð innan heilbrigðisþjónustunnar.  Hlutverk hjúkrunarfræðinga í fjölskyldustuðningi og viðhorf til sjúkdóma verða rædd.  Farið verður yfir fjölskylduvirkni og fjölskylduhjúkrun í framkvæmd, hvernig hægt er að nota meðferðarspurningar á árangursríkan hátt og hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir virka og þá hvers vegna.  Nemendur fá þjálfun í að beyta hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar í færnibúðum, auk þess sem unnið verður að því að þróa styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður.  Hvatt er til þátttöku ykkar í námskeiðinu.  

    Fyrirkomulag námsins

    Fyrirlestrar:  Verða haldnir í námskeiðinu nánar tiltekið í oktFyrirlestrar verða ekki teknir upp.  Þar sem kennslan í fjölskylduhjúkruninni byggir mikið á hópavinnu sem kemur í kjölfar fyrirlestrana, er virka þátttaka ykkar mikilvæg í tímunum.  Hópavinnan og umræður þar sem nemendum gefst tækifæri til að kafa ofan í námsefnið til að öðlast betri skilning á því er ekki tekin upp Nemendur eru því hvattir til að mæta í fyrirlestrana. 

    Kennslan byggist á því að nemendur mæti undirbúnir í hvern tíma.  Notaðar verða fjölþættar kennsluaðferðir (fyrirlestrar, vinna í hópum og þjálfun í færnibúðum).  Hvatt er til skoðanaskipta og rökræðna á gagnrýninn og uppbyggjandi hátt.  Skyldumæting er í færnibúðirnar (tveir dagar) og í munnlegar samræður með kennurum um fjölskylduverkefnið þeirra í færnibúðunum.  Auk þess er skyldumæting í munnlegar samræður við sérfræðikennara nemenda um verkefni B.  

    Færnibúðir:  Nemendur mæta tvisvar sinnum (þ.e. í tvo daga) í færnibúðir og skila inn einu verkefni (Verkefni A—einstaklingsverkefni (skriflegur hluti verkefnisins) auk þess sem þeir mæta í munnlegar sammræður um verkefnið með sérfræðikennaranum þeirra á síðari degi færnibúðanna (síðari hluti verkefnisins).  Í færnibúðunum vinna þeir einnig að undirbúningi á verkefni C sem tilheyrir námskeiðinu HJÚ632G (en námskeiðin eru tengd saman)

    Verkefni A:  

    Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann).  Verkefnið er unnið undir náinni handleiðslu sérfræðikennara í færnibúðum.  

    Verkefni B:

    Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann).  Verkefnið er einstaklingsverkefni þar sem nemendum er úthlutað fjölskyldu- bíómynd til að vinna með í verkefnaviku.  Tilgangur verkefnisins er að nemendur geti dýpkað þekkingu sína í fjölskylduhjúkrun.   Verkefnið er unnið á þremur dögum um miðjan nóv (sjá stundatöflu).  Munnlegu samræðurnar um verkefni B eru haldnar á síðasta degi verkefnavikunnar (þ.e. á föstudeginum).   

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ530G
    Heilsugæsla samfélagsins
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að fjalla um þá heilbrigðisþjónustu sem hjúkrunarfræðingar sinna innan heilsugæslunnar og í samfélaginu utan heilbrigðisstofnana.  Farið er í hlutverk heilsugæsluhjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæslu í grunn- og framhaldsskólum og móttöku skjólstæðinga í móttöku á heilsugæslustöðvum.  Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um umönnun nýbura, foreldra og ungu fjölskylduna.  Í námskeiðinu kynnast nemendur barneingarferlinu, ýmsum frávikum svo sem áhrifum meðgöngu-og fæðingarreynslu á heilsu móður og barns, aðlögun foreldra að nýjum hlutverkum, þróun tengslamyndunar og þunglyndi mæðra/foreldra eftir fæðingu. Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í því að meta sérþarfir og heilsufarsástand mæðra,nýbura og fjölskyldna eftir fæðingu, bæði með klínískri starfsþjálfun og einnig með gerð lausnaleitarverkefna.  Áhersla verður lögð á að þjálfa nemendur í samskiptum við skjólstæðinga og fyrirbyggjandi og heilbrigðishvetjandi hjúkrun. Einnig verður áhersla lögð á forvarnir og heilsueflingu einstaklinga og hópa í samfélaginu innan og utan heilbrigðisstofnana. Fjallað er um leiðir til að fyrirbyggja heilsufarsvandamál og efla heilsu hópa innan samfélagsins, með hliðsjón af þekkingu um lifnaðarhætti og  kenningar um forvarnir og heilsueflingu, meðal annars með umfjöllun um atvinnu- og umhverfisheilbrigði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • HJÚ617G
    Klínísk geðhjúkrun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur m.a. í að beita þeirri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu Geðhjúkrun og geðheilbrigði. Klíníska þjálfunin fer fram á heilbrigðisstofnunum þar með talið á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, Reykjalundi og Landspítala háskólasjúkrahúsi. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun heilsufarsmats og klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga og aðstandenda á sviði geðhjúkrunar.

    Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í að meta þarfir og heilsufarsástand skjólstæðinga, bæði með klínískri þjálfun og einnig með framkvæmd klínískra verkefna. Auk þess er áhersla lögð á þjálfun nemenda í tengslamyndun og samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur ásamt heilsueflandi umönnun. Nemendur eiga samneyti við sjúklinga, aðstandendur og fagfólk og skoða sérstaklega þátt hjúkrunarfræðinga í meðferð og þverfaglegu samstarfi. Þeir leitast við að tengja fræðilega þekkingu við klínísk viðfangsefni og leita í því samhengi eftir fræðilegu efni og rannsóknarniðurstöðum. Nemendur taka þátt í daglegum viðfangsefnum hjúkrunar og nýta sér námstækifæri sem þeim bjóðast og vinna klínísk námsverkefni með leiðsögn klínískra- og sérfræðikennara.

    Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í að meta þarfir og heilsufarsástand skjólstæðinga sinna, bæði með klínískri þjálfun og einnig með framkvæmd klínískra verkefna. Auk þess er áhersla lögð á þjálfun nemenda í samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra og á fyrirbyggjandi og heilsueflandi umönnun. Nemendum gefst tækifæri til að beita fræðilegri þekkingu við mat og þróun íhlutana fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra undir handleiðslu heilbrigðisstarfsmanna. Þeir eiga samneyti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og fagfólk og skoða sérstaklega þátt hjúkrunarfræðinga í meðferð og þverfaglegu samstarfi. Þeir leitast við að tengja fræðilega þekkingu við klínísku viðfangsefni og leita í því samhengi eftir fræðilegu efni og rannsóknarniðurstöðum. Nemendur taka þátt í daglegum viðfangsefnum hjúkrunar og nýta sér námstækifæri sem þeim bjóðast og vinna klínísk námsverkefni með leiðsögn klínískra- og sérfræðikennara.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ618G
    Klínísk öldrunarhjúkrun
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði kynnist nemandi sértækum þörfum og hjúkrun eldra fólks og þeim breytingum sem verða á einstaklingnum með hækkandi aldri. Áherslan er á að greina hvernig meðferð og mat á eldra fólki þarf að taka tillit til sérstakra þarfa þeirra svo sem bestur árangur náist í meðferð og endurhæfingu. Með því að taka tillit til sér þarfa eldra fólks má tryggja lífsgæði og stytta legutíma. Verkefni og matstæki sem unnið er með geta skarast við önnur námskeið en tilgangurinn er þá að þjálfa nemandann í að nota matstæki sem og að túlka niðurstöðuna með tilliti til öldrunarbreytinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ620G
    Klínísk hjúkrun langveikra fullorðinna
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem eiga við bráða og langvinna sjúkdóma að stríða og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða, öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynd þekking og teymisvinna heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli sjúklings eða að taka á við einkenni og heilsufarsvanda eru lykilatriði í klínískri þjálfun í námskeiðinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ627G
    Klínísk heilsugæsla
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita gagnreyndri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu „Heilsugæsla samfélagsins. Klíniska þjálfunin fer fram á heilbrigðisstofnunum þar með talið á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala háskólasjúkrahúsi. Sérstök áhersla verður lögð á klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga (t.d. nýbura, mæðra/foreldris og skólabarna), fjölskyldna og hópa innan heilsugæslunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ632G
    Klínísk fjölskylduhjúkrun
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita gagnreyndri þekkingu sem þeir öðluðust í fræðilega námskeiðinu HJÚ 529G Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun.  Sérstök áhersla verður lögð á klíníska færni og hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar við hjúkrun einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Nemendur vinna í sameiningu með sérfræðikennara að því að finna skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra til að vinna með í klíníkinni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ633G
    Klínísk hjúkrun aðgerðasjúklinga
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur kennslu í námskeiðinu er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun fullorðinna einstaklinga sem fara í skurðaðgerð og þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar. Lögð er áhersla á að nemendur greini líkamlegar, andlegar, félagslegar og menningarlegar þarfir og samspil þeirra við heilsufarsvanda hins sjúka einstaklings og fjölskyldu hans. Enn fremur, að þeir vinni heildrænt að því að leysa hjúkrunarvandamál og efla heilbrigði og þroska skjólstæðinga sinna. Eftirlit, skipulagning og beiting hjúkrunarmeðferða, öryggi, gæði og umbætur, upplýsingatækni, gagnreynd þekking og teymisvinna heilbrigðisstétta í samhengi við bataferli sjúklings eða að taka á við einkenni og heilsufarsvanda eru lykilatriði í klínískri þjálfun í námskeiðinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ823G
    Valnámskeið í klínískri hjúkrun
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lýsing á námskeiðinu á íslensku:
    Nemendur velja sér sjálfir klínískan vettvang eftir áhugasviði. Klínískur vettvangur er þar sem sjúklingum/einstaklingum er veitt hjúkrun og þar sem nemandi getur aukið klíníska færni sína og þekkingu. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi. Gert er ráð fyrir að nemandi dvelji á vettvangi í eina vinnuviku (40 stundir). Frávik geta verið frá því t.d. ef nemandi fer erlendis.

    Nemandi hefur samband við vettvang og semur munnlega við hjúkrunarfræðing um að fá að koma í klínískt nám sem samsvarar 40 klukkustundum. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi. 

    Nemandi sendir formlega umsókn með starfsferilskrá til umsjónarkennara námskeiðs (á Canvas vef námskeiðsins) og hjúkrunarfræðings á vettvangi. Í umsókn á að koma fram:

      1. Nafn og netfang nemanda.
      2. Nafn og netfang umsjónarkennara.
      3. Hvaða vettvang valdi nemandi og hver hefur umsjón með dvöl hans þar (nafn og netfang hjúkrunarfræðings).
      4. Hvers vegna varð þessi vettvangur fyrir valinu/rök fyrir vali.
      5. Hver eru markmið nemandans með klíníska náminu á þessum stað.
      6. Áhersluatriði sem nemandi mun sérstaklega kynna sér. Hvaða gagnreyndu þekkingu ætlar nemandi að skoða og skrifa um sem tengist þessum vettvangi.

     Umsjónarkennari sendir hjúkrunarfræðingi á vettvangi upplýsingar um námskeiðið.

    Þegar ljóst er hvenær nemandi mun fara á vettvang hefur hann samband við hjúkrunarfræðing á vettvangi. Nemandi staðfestir síðan við umsjónarkennara tímabil klíníska námsins. Mismunandi er eftir stundatöflu hvers nemanda hvenær hann getur farið á vettvang

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • HJÚ711G
    Heimahjúkrun
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um heimilið sem vettvang heilbrigðisþjónustu. Rætt verður um gildi heimilisins fyrir fólk og áhrif tæknivæðingar á heimilismenn. Leitast verður við að skoða samspil umhverfis á heimilum og heilsu og lífsgæða. Samstarf við aðstandendur og aðstæður þeirra verða ræddar með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum. Gerð verður grein fyrir uppbyggingu og skipulagi heilbrigðis- og félagsþjónustu til þeirra sem dvelja heima og þarfnast aðstoðar vegna veikinda eða skerðingar á færni. Í fyrirlestrum og klínísku námi kynnist nemandi störfum í heimahjúkrun sem miða að því að viðhalda og efla vellíðan fólks með langvinn heilsufarsvandamál sem býr á eigin heimili.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ714G
    Hjúkrunarstjórnun
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að auka þekkingu og dýpka skilning nemanda á helstu grunnhugtökum og kenningum í hjúkrunarstjórnun og hvernig hægt er að beita þeim í hjúkrunarstarfi. Lögð er áhersla á að nemendur þekki og geri sér grein fyrir því stjórnunarstarfi sem fram fer í hjúkrun innan heilbrigðisstofnana. Jafnframt að þau þekki grundvallaratriði í rekstri, uppbyggingu og skipulagi stjórnkerfa heilbrigðisstofnana. Fjallað verður sérstaklega um forystuhlutverk hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðiskerfisins og hlutverk þeirra í teymisvinnu. Hermikennsla og klínískt nám í hjúkrunarstjórnun miðar að því að nemendur fái æfingu í að hafa umsjón með, skipuleggja, stjórna og forgangsraða hjúkrunarmeðferð ákveðins hóps sjúklinga ásamt því að tryggja öryggi þeirra og starfsmanna. Nemendur eiga að ljúka klínískum verkefnum og vera virkir þátttakendur í umræðuhópum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ726G
    Heilbrigði og siðfræði
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing
    • Sérstaklega er fjallað um siðferðilegan þátt hjúkrunarfræðinnar og hjúkrunarstarfsins með það að markmiði að búa nemendur undir að greina og takast á við siðferðileg úrlausnarefni í starfi heilbrigðisstétta til dæmis tengt ofbeldi og flóknum aðstæðum í starfi. Tekin verða til athugunar ýmis siðfræðileg úrlausnarefni, sem upp koma í starfi heilbrigðisstétta og forsendur fyrir lausnum á þeim.
    • Afleiðingar ofbeldis og kynbundinna áfalla á heilsu. Birtingarmyndir ofbeldis og kynbundins ofbeldis á mismunandi æviskeiðum. Birtingarmyndir ofbeldis meðal mismunandi samfélagshópa, s.s. ofbeldis í nánum samböndum og fjölskyldum; ofbeldis gagnvart viðkvæmum og jaðarsettum hópum; eineltis; ofbeldis í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Faraldsfræði ofbeldis, úrræði fyrir þolendur og leiðir til forvarna.
    • Erfiða samtalið og áskoranir í samskiptum. Sjálfskaðar og sjálfsvígshætta. Aðferðir til að skima fyrir ofbeldi og veita þolendum stuðning. Hjúkrun eftir ofbeldi
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ727G
    Langveikir og heilbrigðisþjónustan
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað 4. árs BS nemendum í hjúkrunarfræði. Það er fræðilegt (4 ECTS) og klínískt (1 ECTS) og skiptist í tvo þætti:

    Þjónustunotkun og íslensk heilbrigðisþjónusta í alþjóðlegu samhengi.
    Fjallað er um veikindahegðun og þjónustunotkun, skýringar á þjónustunotkun, einkenni þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu, skipulag á og aðgengi að þjónustu, árangur og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu. Umsjón með þessum þætti námskeiðsins hefur Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.

    Meðferð/þjónusta hjúkrunarfræðinga fyrir langveika og fjölskyldur þeirra.
    Fjallað er um hugtök, einkenni og fyrirbæri sem tengjast langveikum og fjölskyldum þeirra og hjúkrunarmeðferðir  sérsniðnar að þörfum langveikra og fjölskyldna þeirra. Einnig er fjallað um siðferðileg álitamál í þjónustu við langveika og fjölskyldur þeirra og úrvinnsla álitamála þjálfuð. Nemendur kynnast starfsemi stofnana sem þjónusta langveika, verða í klínísku námi á göngudeildum fyrir langveika og kynnast starfsemi sjúklingasamtaka.

    Tvær kennsluáætlanir verða í námskeiðinu, annars vegar fyrir grunnnemendur og hins vegar fyrir framhaldsnemendur. Nemendur námskeiðsins geta nálgast þær á Canvas þegar kennsla er hafin.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ730G
    Barnahjúkrun I
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir nemendum þekkingu og skilning á grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í barnahjúkrun og grundvallar þekkingu og skilningi á hugtökum sem tengjast helstu barnasjúkdómum. Lögð er áhersla á þarfir og heilbrigði barna; einkenni, viðbrögð, upplifun og skynjun barna á veikindum og sjúkrahúsvist; tjáskipti við börn, tengsl við foreldra og hlutverk hjúkrunar í umönnun barna með ýmis heilbrigðisfrávik. Þátttaka í klínískum verkefnum, starfi og umræðu, ásamt umræðufundum og klínískum vinnusmiðjum veita nemendum tækifæri til að kynnast störfum hjúkrunarfræðinga og samstarfsmanna á barnadeildum og að öðlast grundvallarhæfni og -leikni í helstu aðferðum og inngripum tengdum hjúkrun og tengdri meðferð. Áhersla er lögð á tengingu fræðilegrar þekkingar, klínískrar aðferðafræði og framkvæmd hjúkrunar foreldra og barna með gagnreyndum aðferðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ731G
    Barnahjúkrun II

  • HJÚ732G
    Bráðahjúkrun I
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga og hjúkrun slasaðra.

    Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum.

    Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda.

     Í námskeiðinu er lögð áhersla á hugtökin:

    • Mat (assessment)
    • Eftirlit (surveillance)
    • Fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.

    Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC).

    Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á:

    • Þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun
    • Fyrstu meðferð/bjargráð
    • Samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum.

    Athugið að áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ733G
    Bráðahjúkrun II
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í hjúkrun bráð- og alvarlega veikra sjúklinga, sem og hjúkrun slasaðra. Í námskeiðinu er fjallað um hjúkrun sjúklinga á bráða- og gjörgæsludeildum. Tekið er fyrir meðal annars hugmyndafræði bráða- og gjörgæsluhjúkrunar, fyrstu meðferð, mat og eftirlit, flutning og móttöku slasaðra/bráðveikra, stuðning við aðstandendur bráð- og alvarlega veikra og helstu þætti í hjúkrun sjúklinga sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. Í námskeiðinu er áhersla lögð á hugtökin mat (assessment), eftirlit (surveillance) og fyrirbygging (prevention) og hugtökin skoðuð í bráðasamhengi.
      Í námskeiðinu er tekin fyrir sérhæfð endurlífgun, byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC). Í verklegum æfingum í hermisetri (herminám) er lögð áhersla á  þjálfun í kerfisbundnu mati/skoðun, fyrstu meðferð/bjargráð og samvinnu/samskipti í bráðaaðstæðum. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í verklegum æfingum sem og að tengja námsefnið við önnur námskeið í náminu með áherslu á bráð- og alvarleg veikindi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HVS501M
    Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum

Annað ár

Þriðja ár

Fjórða ár

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Hjúkrunarfræðingar starfa á fjölbreyttum vettvangi atvinnulífsins og tækifærin til fjölbreyttra starfa eru víðsvegar hjá fyrirtækjum og stofnunum.

Hjúkrunarfræðingar starfa meðal annars við:

  • Sjúkrahús 
  • Heilsugæslu
  • Geðvernd
  • Endurhæfingu
  • Fræðsla og forvarnir
  • Hjálparstarf
  • Stjórnun

Listinn er ekki tæmandi.

BS-nám í hjúkrunarfræði veitir rétt til þess að sækja um starfsleyfi hjúkrunarfræðings auk þess opnar BS-námið leiðir að margs konar framhaldsnámi. Útskrifaðir nemendur Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar eru eftirsóttir starfsmenn um allan heim.

Samkvæmt flokkun Shanghai Rankings (ARWU) raðast hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands í 100. til 150. sæti af öllum hjúkrunarfræðideildum í heiminum. Mikil eftirspurn er hérlendis eftir hjúkrunarfræðingum.

  • Nemendafélagið Curator heldur uppi frábæru félagslífi við Hjúkrunar-og ljósmóðurfræðideild.
  • Markmið Curator er að stuðla að skemmtun, samheldni og góðum anda í deildinni
  • Félagið stendur meðal annars fyrir nýnemadegi, vísindaferðum, óvissuferð o.fl.
  • Fylgjast með Curator á Facebook.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Carolin K. Guðbjartsdóttur
Hjúkrunarfræðinám er gamall draumur og ákvað fara í námið þegar ég sá að það væri komi ný styttri námsleið sem hentaði mér betur en að fara í 4 ára nám. Námið er mjög krefjandi og lærdómsríkt. Gaman að kynnast nýju fólki bæði kennurum og nemendum. Námið er fjölbreytt og skemmtileg blanda af verklegum og bóklegum tímum. Fyrir þá sem eru með háskólagráðu fyrir og langar að breyta um starfsvettvang þá hentar að vera með styttri námstímabil og einnig er þetta minni hópur. Námið er skemmtilegt, fjölbreytt en um leið krefjandi nám fyrir þá sem hafa áhuga á því að vinna sem hjúkrunarfræðingar.
Ljósmynd af Díönu Kristínu Sigmarsdóttur
Ástæðan fyrir því að ég valdi hjúkrunarfræði fyrir fólk með aðra háskólagráðu er að ég hef alltaf haft áhuga á starfi hjúkrunarfræðinga. Ég er búin með iðjuþjálfun og hef unnið mikið í teymi með hjúkrunarfræðingum og finnst starf þeirra spennandi. Mér finnst einnig spennandi að blanda saman þessum tveimur greinum og með því að taka þetta nám aukalega með iðjuþjálfun þá finnst mér það opna ákveðnar leiðir. Mér finnst námið frábært. Mikið efni á stuttum tíma en ég er búin að vera mjög ánægð með þá áfanga sem ég er búin að vera í. Þeir eru spennandi og maður hefur mikinn áhuga að læra það sem er verið að kenna. Þetta nám er spennandi og opnar fyrir marga möguleika í framtíðinni.
Ljósmynd af Gunnhildi Gunnarsdóttur
Ég hafði alltaf hugsað mér að læra hjúkrunarfræði þó að ég hafi nú þegar útskrifast með aðra háskólagráðu. Eftir að fréttir bárust um þessa námsleið þá hvatti það mig enn meira til þess að sækja um. Hjúkrunarfræði er frábrugðin því sem ég hef áður lært í háskólanum. Í hjúkrunarfræði er meira einblítt á verklegu hliðina heldur en í öðrum greinum. Ég hvet alla sem hafa áhuga á að hafa áhrif á heilsu og líf annarra og vilja fjölbreytt nám til þess að sækja um.
Ljósmynd af Rakel Haraldsdóttur
Ég íhugaði það að fara í hjúkrunarfræði beint eftir menntaskóla en ákvað að fara aðra leið. Seinna fór ég að vinna á Landspítalanum og kynntist starfi hjúkrunarfræðinga betur og hugsaði oft með mér að ég hefði átt að læra þetta en fannst 4 ára námið aðeins of langt til að ég gæti skráð mig í það. Ég var svo ekki lengi að hugsa mig um þegar ég sá tækifæri til þess að taka sama námið á fljótari yfirferð. Það hefur komið mér á óvart hvað námið er fjölbreytt, en það endurspeglar auðvitað bara hve fjölbreytt störf hjúkrunarfræðinga eru. Ég er mjög ánægð með að boðið sé uppá þessa leið og vona að þessi valkostur sé kominn til að vera, enda góður hópur með fjölbreyttan bakgrunn sem stundar námið.
Ljósmynd af Þórunni Friðriksdóttur
Það hefur lengi blundað í mér að fara í hjúkrunarfræði og þegar ég heyrði af þessari námsleið vissi ég að hún væri fullkomin fyrir mig. Ég sem þroskaþjálfi sé ótal mörg tækifæri í því að tvinna þessar tvær starfstéttir, sem hafa oft ekki sömu sýn á hlutina, saman. Það eru afar spennandi tímar framundan og ég hlakka til að sjá hvaða dyr þessi námsleið mun opna fyrir mig. Námið er krefjandi en um leið mjög skemmtilegt. Þessi gráða er ótrúlega góð viðbót við hvaða menntun sem er og nánast tryggir starfsöryggi enda er alltaf þörf á góðum hjúkrunarfræðingum. Um leið er starfið svo fjölbreytt að allir ættu að finna sér starfsvettvang við hæfi.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Virka daga 9:00 - 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Eirberg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil