Umhverfisstefna í rekstri er samin í samræmi við lög um loftslagsmál þar sem ríkisstofnunum er skylt að setja sér loftslagsstefnu ásamt skilgreindum markmiðum og aðgerðum.
Umhverfisstefna í rekstri var samþykkt af Háskólaráði 8. desember 2022.
Umhverfisstefna í rekstri er samin í samræmi við lög um loftslagsmál þar sem ríkisstofnunum er skylt að setja sér loftslagsstefnu ásamt skilgreindum markmiðum og aðgerðum.
Umhverfisstefna í rekstri var samþykkt af Háskólaráði 8. desember 2022.
Háskóli Íslands er í fararbroddi íslenskra háskóla og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísinda- og fræðasamfélagi ásamt íslensku samfélagi og atvinnulífi. Hlutverk Háskólans er þríþætt, rannsóknir, nám og kennsla og virk þátttaka, og snerta umhverfismál alla þættina.
Umhverfisstefnan tekur mið af stefnu Háskólans á hverjum tíma, setur frekari áherslur í málaflokknum er varðar rekstur skólans og skilgreining markmiða þeim tengd. Við gerð hennar er verklagsreglu um stefnumótun og innleiðingu stefnu fylgt.
Háskóli Íslands hefur markað sér þá stefnu að vera háskóli í fremstu röð og leiðandi á sviði sjálfbærni í krafti kennslu, rannsókna og þekkingarsköpunar. Framtíðarsýnin er að vera í forystu í sjálfbærri starfsemi og kolefnishlutlaus stofnun. Uppbygging háskólasvæðisins ýti undir heilsusamlegt starfsumhverfi, vistvænar samgöngur og stuðli að jöfnu aðgengi og samheldnu og sjálfbæru þekkingarsamfélagi.
Það er stefna Háskóla Íslands að lágmarka umhverfisáhrif frá starfseminni, vernda umhverfið, koma í veg fyrir mengun og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Stefna þessa er sett í samræmi við lög um loftslagsmál (70/2012, 5.gr.) og fylgir lögum, reglugerðum og öðrum kröfum í umhverfismálum í rekstri auk þess að ganga lengra þegar við á með stöðugar umbætur að leiðarljósi. Til þess að tryggja að stefnan verði að veruleika verður stjórnunarkerfi umhverfis ISO 14001 innleitt fyrir allan rekstur skólans. Stefnan er aðgengileg á ytri og innri vef skólans.
Háskólaráð og rektor setja skólanum umhverfisstefnu í rekstri.
Framkvæmdastjóri miðlægrar stjórnsýslu setur umhverfismarkmið í rekstri og aðgerðaáætlun í samræmi við gildandi stefnu skólans.
Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs gerir tillögu að umhverfismarkmiðum í rekstri, leggur fram drög að aðgerðaáætlun og ber ábyrg á að markmiðunum sé fylgt.
Stjórnendur bera ábyrgð á að stefnunni sé fylgt og stuðla að því að umhverfismarkmiðum sé náð.
Stefnan gildir fyrir allan rekstur hjá Háskóla Íslands og nær til starfsfólks og nemenda.
Fylgst er markvisst með árangri starfseminnar í umhverfismálum í rekstri og mælanleg umhverfismarkmið eru sett fram ásamt aðgerðaáætlun, sjá nánar VLR-0928 Framkvæmd umhverfismarkmiða í rekstri og aðgerðaáætlun. Þessi markmið og aðgerðir eiga við um starfsfólk og nemendur með áherslu á eftirfarandi þætti:
Árangur miða við umhverfismarkmið er vaktað yfir árið, tekið saman árlega í Grænu bókhaldi og birt í umhverfisskýrslu Háskóla Íslands.
Eftirfylgni með árangri í umhverfismálum með tilliti til markmiða og stefnu fer fram samkvæmd framkvæmd umhverfismarkmiða í rekstri og aðgerðaáætlun og er kynnt á rýni stjórnenda.
Umhverfisstefna í rekstri setur áherslur í málaflokknum er varðar rekstur skólans og eru markmið, þeim tengd, skilgreind og aðgerðaráætlun um hvernig á að ná þeim markmiðum sett fram. Markmiðin gilda fyrri allan rekstur hjá Háskóla Íslands og ná til starfsfólks og nemenda.
Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs lætur endurskoða markmið og aðgerðir að minnsta kosti árlega. Rekjanleiki og þróun markmiða fyrri ára er tryggð og aðgengilegt í gæðahandbók skólans.
Yfirmarkmið: Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030 m.v. 2018
Markmið:
Markmið:
Markmið:
Markmið:
Markmið:
Markmið:
Markmið:
Markmið:
Haustið 2015 undirritaði rektor Háskóla Íslands sameiginlega yfirlýsingu FESTU og Reykjavíkurborgar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með markvissum aðgerðum. Háskóli Íslands hefur sett sér það markmið að ná samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda um 33% – 46% miðað við venjubundna þróun (BAU) árið 2030. Til þess að ná þessu heildarmarkmiði í samdrætti ætlar háskólinn að vinna að eftirfarandi skammtíma- og langtímamarkmiðum:
Að fjölga gangandi og hjólandi vegfarendum sem búa í 1 – 5 km fjarlægð frá skólanum með því að:
Að auka notkun á vistvænum bifreiðum með því að:
Að kolefnisjafna flugferðir starfsmanna (erlendis sem og innanlands) með því að:
Að draga úr notkun einnota borðbúnaðar og plastíláta með því að:
Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna notkunar á pappír með því að:
Að draga úr sorpmyndun og auka endurvinnslu með því að:
Að auka notkun á vistvænum bifreiðum með því:
Að draga úr notkun einnota borðbúnaðar/plastíláta/umbúða með því að:
Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna notkunar á pappír:
Háskóli Íslands mun árlega viðhalda losunarbókaldi sínu og annað hvert ár gera samgöngukönnun til að fylgjast með þróun og tryggja árangur.