Nemandi á bókasafni
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt ár - 40 einingar
Námsform
Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á skipulagi gagna?
  • Langar þig að læra aðferðir til að bæta skjalavörslu og skjalastjórn?
  • Viltu eiga möguleika fjarnámi?
  • Viltu fara í stutt og hnitmiðað nám?

Í örnámi í hagnýtri skjalfræði er farið yfir klassískar og nýjar aðferðir við stýringu gagna allt frá því þau verða til og þar til þeim er komið fyrir til varanlegrar geymslu eða eytt. 

Þá er farið yfir aðgengi að opinberum upplýsingum. Lögð er áhersla á gildi og notkun gagna sem heimilda til rannsókna. 

Námið er sniðið að öllum sem hafa lokið hafa bakkalárprófi, óháð námsleið. 

Fyrirkomulag náms

Námið er 40 einingar og er sett upp sem hlutanám til eins árs.

Námið skipist í:

  • Skyldunámskeið og valnámskeið í bundnu og frjálsu vali.
  • Ljúka þarf að lágmarki einu námskeiði úr bundnu vali. 
  • Nemendur geta aðeins valið 4 einingar í hagnýtu verkefni. 

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku.

Námið er kennt í lotum og í fjarnámi eins og kostur er, það gefur fólki í atvinnulífinu meiri möguleika að geta sótt námið.

Meginmarkmið

Að námi loknu skulu nemendur meðal annars:

  • þekkja til allra helstu þátta opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar
  • hefa skilning á rafrænni skjalavörslu
  • geta byggt upp verkferla við nútíma skjalavörslu og skjalastjórn

Annað 

Hægt er að sækja um að fá einingar sem lokið er í örnámi í hagnýtri skjalfræði metnar inn í meistaranám í sagnfræði. Örnámi lýkur með vottorði um að námi sé lokið.

  • MA nám í sagnfræði

BA-, B.Ed.- eða BS-próf eða sambærilegt próf.

Ljúka þarf 40 einingum og námsframboð miðar við að náminu sé lokið á einu ári. Námsleiðin samanstendur af þremur skyldunámskeiðum og valnámskeiðum. Skyldunámskeið eru (samtals 26 ein.): Opinber skjalavarsla og skjalastjórn í fortíð og nútíð (10 ein.), Rannsóknir og heimildaleit í skjalasöfnum (10 ein.) og Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana (6 ein.). Valnámskeið skiptast í bundið val og val. Ljúka þarf að lágmarki einu námskeiði úr bundnu vali. Nemendur geta aðeins valið 4 ein. í hagnýtu verkefni.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Rafræn skjalavarsla (SAG207F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur munu fá innsýn inn í rafræna skjalavörslu og kynnast hvaða reglur gilda um rafræna skjalavörslu. Farið verður yfir feril frá myndun rafræns skjals og þar til það endar í varanlegri varðveislu á opinberu skjalasafni. Þá öðlast nemendur skilning á uppbyggingu rafrænna kerfa, samband málaskrár og málasafns, mikilvægi skjalavistunaráætlunar og málalykils í því samhengi. Þá verður farið yfir hvaða kröfur eru gerðar til skráningar og vistunar í skjalavörslukerfum og skoðuð kerfi sem notuð eru. Farið verður yfir nauðsynleg lýsigögn og hvað hugað þarf að við tilkynningu rafrænna kerfa til opinbers skjalasafns. Fjallað verður um ýmis gagnasöfn og  skoðað hvernig aðgengi verður að rafrænum skjölum í framtíðinni

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Einkaskjalasöfn - varðveisla og notkun þeirra til rannsókna (SAG103F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um einkaskjalasöfn, varðveislu þeirra og hvernig þau nýtast sem heimildir um sögu liðinna tíma. Skoðað verður hvaða hlutverk skjalavörslustofnanir hafa í varðveislu einkaskjalasafna og söfnun þeirra, hvernig og hvar einkaskjalasöfn eru varðveitt á Íslandi, m.a. í samanburði við önnur lönd. Jafnframt verður fjallað um hvernig einkaskjalasöfn hafa verið notuð sem heimildir og aðgengi að þeim.  Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku. Fyrirlestrar verða haldnir og auk þeirra er gert ráð fyrir að nemendur leysi verkefni í hópvinnu og sjálfstætt. Gert er ráð fyrir heimsóknum til vörslustofnana sem varðveita einkaskjalasöfn.  

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Hagnýtt verkefni í skjalfræði (SAG104F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er æfing í sjálfstæðum vinnubrögðum við þann þátt skjalavörslu og skjalastjórnar sem nemandi velur sér. Nemendur velja sér verkefni í samráði við kennara. Verkefnið á að vera hagnýtt og getur til dæmis falið í sér skráningu og frágang á opinberu skjalasafni eða einkaskjalasafni ásamt greinargerð, hvers konar vinna við skjalasafn stofnunar eða hjá einkaaðila með greinargerð um þá vinnu t.d. gerð málalykils, skjalavistunaráætlunar eða við tilkynningu á rafrænu gagnasafni.  

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Óháð námsári | Haust
Opinber skjalavarsla og skjalastjórn í fortíð og nútíð (SAG103M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er farið yfir hlutverk opinberra skjalasafna og skjalavörslu og skjalastjórn í fortíð og nútíð. Farið verður yfir upprunaregluna og þýðingu hennar fyrir sagnfræðirannsóknir og ágrip af stjórnsýslusögu. Þá verður fjallað um lagaumhverfi opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi og eftirlitshlutverk opinberra skjalasafna. Farið verður yfir skilgreiningu á afhendingarskyldum aðilum og skyldum þeirra samkvæmt lögum. Jafnframt verður fjallað um þróun skjalavörslu og skjalastjórnar á 20. og 21. öld og skjalasöfn og skráning þeirra skoðuð. Þá verður fjallað um uppbyggingu nútíma skjalasafna með tilliti til reglna sem um þau gilda. Helstu verkefni skjalastjóra verða skoðuð. Gestakennarar eru m.a. sérfræðingar í Þjóðskjalasafni Íslands og munu þeir fara yfir helstu verkþætti í skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Starfsnám (SAG208F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er hugsað sem tækifæri fyrir nemendur til að fá innsýn í starf skjalavarða og skjalastjóra og að nemendur kynnist helstu vinnubrögðum við skjalavörslu og skjalstjórn. Nemendur sem óska eftir því að fara í starfsþjálfun hafa samband við umsjónarmann námsleiðarinnar um möguleika á starfsnámi. Nemandi getur sótt um að fara í starfsnám í Þjóðskjalasafni Íslands eða lagt til aðra stofnun. Í umsókn um starfsnámið skal gerð grein fyrir viðkomandi stofnun/aðila þar sem starfsnám er í boði, hvert markmiðið er með starfsnáminu og hvernig það á að fara fram. Þegar samkomulag hefur verið gert um starfsnámið verður gerður um það sérstakur samningur þar sem gerð er grein fyrir viðfangsefninu. Tímafjöldi skal vera í samræmi við kröfur um vinnuframlag vegna 5e námskeiðs (125-150 klst). Nemandi skilar dagbók til kennara meðan starfsnámið stendur og skýrslu  (3000 orð ca að lengd) að verki loknu um hverjar voru helstu áskoranir og hver var helsti ávinningur af starfsnáminu. Staðfesting frá viðkomandi stofnun um þátttöku nemandans skal fylgja skýrslunni og skal móttökuaðili senda kennara stutta umsögn um framlag nemandans og hvort og hvernig markmið starfsnámsins hafi náðst með hliðsjón af samningi þar um og lýsingu á verkefninu.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Hagnýtt verkefni í skjalfræði (SAG104F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er æfing í sjálfstæðum vinnubrögðum við þann þátt skjalavörslu og skjalastjórnar sem nemandi velur sér. Nemendur velja sér verkefni í samráði við kennara. Verkefnið á að vera hagnýtt og getur til dæmis falið í sér skráningu og frágang á opinberu skjalasafni eða einkaskjalasafni ásamt greinargerð, hvers konar vinna við skjalasafn stofnunar eða hjá einkaaðila með greinargerð um þá vinnu t.d. gerð málalykils, skjalavistunaráætlunar eða við tilkynningu á rafrænu gagnasafni.  

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Óháð námsári | Vor
Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana (OSS204F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um íslensk stjórnvöld, íslenska stjórnsýslukerfið, reglur sem gilda um samskipti og yfirstjórn innan stjórnsýslukerfisins, um meðferð stjórnsýslumála og upplýsingarétt almennings. Aðalháerslan er á meðferð stjórnsýslumála og þýðingu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 í því sambandi. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Rannsóknir og heimildaleit í skjalasöfnum (SAG206M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur læra og þjálfast í aðferðum skjalfræðilegra rannsókna, heimildaleit í skjalasöfnum og að meta heimildagildi skjala. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem tengjast námsefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári
  • Haust
  • SAG207F
    Rafræn skjalavarsla
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur munu fá innsýn inn í rafræna skjalavörslu og kynnast hvaða reglur gilda um rafræna skjalavörslu. Farið verður yfir feril frá myndun rafræns skjals og þar til það endar í varanlegri varðveislu á opinberu skjalasafni. Þá öðlast nemendur skilning á uppbyggingu rafrænna kerfa, samband málaskrár og málasafns, mikilvægi skjalavistunaráætlunar og málalykils í því samhengi. Þá verður farið yfir hvaða kröfur eru gerðar til skráningar og vistunar í skjalavörslukerfum og skoðuð kerfi sem notuð eru. Farið verður yfir nauðsynleg lýsigögn og hvað hugað þarf að við tilkynningu rafrænna kerfa til opinbers skjalasafns. Fjallað verður um ýmis gagnasöfn og  skoðað hvernig aðgengi verður að rafrænum skjölum í framtíðinni

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SAG103F
    Einkaskjalasöfn - varðveisla og notkun þeirra til rannsókna
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um einkaskjalasöfn, varðveislu þeirra og hvernig þau nýtast sem heimildir um sögu liðinna tíma. Skoðað verður hvaða hlutverk skjalavörslustofnanir hafa í varðveislu einkaskjalasafna og söfnun þeirra, hvernig og hvar einkaskjalasöfn eru varðveitt á Íslandi, m.a. í samanburði við önnur lönd. Jafnframt verður fjallað um hvernig einkaskjalasöfn hafa verið notuð sem heimildir og aðgengi að þeim.  Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku. Fyrirlestrar verða haldnir og auk þeirra er gert ráð fyrir að nemendur leysi verkefni í hópvinnu og sjálfstætt. Gert er ráð fyrir heimsóknum til vörslustofnana sem varðveita einkaskjalasöfn.  

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SAG104F
    Hagnýtt verkefni í skjalfræði
    Bundið valnámskeið
    4
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er æfing í sjálfstæðum vinnubrögðum við þann þátt skjalavörslu og skjalastjórnar sem nemandi velur sér. Nemendur velja sér verkefni í samráði við kennara. Verkefnið á að vera hagnýtt og getur til dæmis falið í sér skráningu og frágang á opinberu skjalasafni eða einkaskjalasafni ásamt greinargerð, hvers konar vinna við skjalasafn stofnunar eða hjá einkaaðila með greinargerð um þá vinnu t.d. gerð málalykils, skjalavistunaráætlunar eða við tilkynningu á rafrænu gagnasafni.  

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG103M
    Opinber skjalavarsla og skjalastjórn í fortíð og nútíð
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er farið yfir hlutverk opinberra skjalasafna og skjalavörslu og skjalastjórn í fortíð og nútíð. Farið verður yfir upprunaregluna og þýðingu hennar fyrir sagnfræðirannsóknir og ágrip af stjórnsýslusögu. Þá verður fjallað um lagaumhverfi opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi og eftirlitshlutverk opinberra skjalasafna. Farið verður yfir skilgreiningu á afhendingarskyldum aðilum og skyldum þeirra samkvæmt lögum. Jafnframt verður fjallað um þróun skjalavörslu og skjalastjórnar á 20. og 21. öld og skjalasöfn og skráning þeirra skoðuð. Þá verður fjallað um uppbyggingu nútíma skjalasafna með tilliti til reglna sem um þau gilda. Helstu verkefni skjalastjóra verða skoðuð. Gestakennarar eru m.a. sérfræðingar í Þjóðskjalasafni Íslands og munu þeir fara yfir helstu verkþætti í skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • SAG208F
    Starfsnám
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er hugsað sem tækifæri fyrir nemendur til að fá innsýn í starf skjalavarða og skjalastjóra og að nemendur kynnist helstu vinnubrögðum við skjalavörslu og skjalstjórn. Nemendur sem óska eftir því að fara í starfsþjálfun hafa samband við umsjónarmann námsleiðarinnar um möguleika á starfsnámi. Nemandi getur sótt um að fara í starfsnám í Þjóðskjalasafni Íslands eða lagt til aðra stofnun. Í umsókn um starfsnámið skal gerð grein fyrir viðkomandi stofnun/aðila þar sem starfsnám er í boði, hvert markmiðið er með starfsnáminu og hvernig það á að fara fram. Þegar samkomulag hefur verið gert um starfsnámið verður gerður um það sérstakur samningur þar sem gerð er grein fyrir viðfangsefninu. Tímafjöldi skal vera í samræmi við kröfur um vinnuframlag vegna 5e námskeiðs (125-150 klst). Nemandi skilar dagbók til kennara meðan starfsnámið stendur og skýrslu  (3000 orð ca að lengd) að verki loknu um hverjar voru helstu áskoranir og hver var helsti ávinningur af starfsnáminu. Staðfesting frá viðkomandi stofnun um þátttöku nemandans skal fylgja skýrslunni og skal móttökuaðili senda kennara stutta umsögn um framlag nemandans og hvort og hvernig markmið starfsnámsins hafi náðst með hliðsjón af samningi þar um og lýsingu á verkefninu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG104F
    Hagnýtt verkefni í skjalfræði
    Bundið valnámskeið
    4
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er æfing í sjálfstæðum vinnubrögðum við þann þátt skjalavörslu og skjalastjórnar sem nemandi velur sér. Nemendur velja sér verkefni í samráði við kennara. Verkefnið á að vera hagnýtt og getur til dæmis falið í sér skráningu og frágang á opinberu skjalasafni eða einkaskjalasafni ásamt greinargerð, hvers konar vinna við skjalasafn stofnunar eða hjá einkaaðila með greinargerð um þá vinnu t.d. gerð málalykils, skjalavistunaráætlunar eða við tilkynningu á rafrænu gagnasafni.  

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • OSS204F
    Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um íslensk stjórnvöld, íslenska stjórnsýslukerfið, reglur sem gilda um samskipti og yfirstjórn innan stjórnsýslukerfisins, um meðferð stjórnsýslumála og upplýsingarétt almennings. Aðalháerslan er á meðferð stjórnsýslumála og þýðingu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 í því sambandi. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG206M
    Rannsóknir og heimildaleit í skjalasöfnum
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur læra og þjálfast í aðferðum skjalfræðilegra rannsókna, heimildaleit í skjalasöfnum og að meta heimildagildi skjala. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem tengjast námsefni.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Námið er hagnýtt fyrir alla sem starfa við skjalavörslu eða skjalastjórn. Vettvangur skjalavörslu eru fjölbreyttir hjá opinberum aðilum, einskaapilum ásamt samtökum og félögum.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Skjalavörslu og skjalastjórn
  • Rannsóknir
  • Opinbera stjórnsýslu

Listinn er ekki tæmandi.

Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur geta valið nemendafélag eftir námsáherslu.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil