"""
Tungumál kennslu
Enska
Lengd náms
1 og ½ ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Stefnir þú á að starfa við fornleifauppgröft?
  • Vilt þú verða fær um að skipuleggja og framkvæma fornleifarannsókn?
  • Hefur þú áhuga á úrvinnslu og miðlun fornleifarannsókna?
  • Langar þig í framhaldsnám sem fer að hluta til fram á vettvangi?

Fornleifafræði fæst við að lesa úr, túlka og draga ályktanir um horfin samfélög útfrá brotakenndum heimildum og reynir því oft á rökhyggju og öguð vinnubrögð.

Í hagnýtri fornleifafræði fá nemendur markvissa kennilega og faglega þjálfun í framkvæmd og stjórnun leyfisskyldra fornleifarannsókna með áherslu á aðferðir en líka siðfræði og þjálfun í vísindalegum viðhorfum.

Uppbygging náms 

Námið er 90 einingar og er sett upp sem fullt nám til eins og hálfs árs.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 50 einingar
  • Valnámskeið. 10 einingar
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu 

Námið er að mestu kennt á íslensku, en sum námskeið/námskeiðshlutar eru kennd á ensku. Öll próf eru lögð fyrir á íslensku.

Verkleg kennsla í fer fram á vettvangi fornleifarannsókna og í kennslustundum. Bókleg kennsla fer fram í fyrirlestrum, samræðuformi og málstofum. Tímasókn er mikilvæg en frumskilyrði er að hafa lesið það efni sem fjalla á um hverju sinni.

Meginmarkmið 

Miðað að því að nemendur:

  • verði fær um að skipuleggja, framkvæma og ljúka lítilli til meðalstórri fornleifarannsókn á Íslandi.
  • öðlist traustan skilning og þekkingu á fornleifafræðilegum aðferðum og þeirri tækni sem nýta má við fornleifaskráningu, þar á meðal fjarkönnun, uppgröft og úrvinnslu.
  • geti sýnt fram á víðtækan skilning á hlutverki fornleifafræði í minjavernd, sér í lagi eins og hún er framkvæmd á Íslandi.

Annað

Námið veitir ekki aðgang að doktorsnámi.

BA-próf eða sambærilegt próf í fornleifafræði með fyrstu einkunn (7,25) að lágmarki. 20 vikna starfsreynsla undir leiðsögn við fornleifarannsóknir á vettvangi (fornleifauppgröft að a.m.k. ¾). Þar í teljast þær 10 vikur sem eru hluti af skyldunámi til BA-prófs í fornleifafræði við Háskóla Íslands.

Námið er samtals 90 einingar og samanstendur af sameiginlegum skyldunámskeiðum í fornleifafræði á framhaldsstigi (10 ein.), skyldunámskeiðum (35 ein.), valnámskeiðum (15 ein.) og lokaverkefni (30 ein.). Námið nær yfir þrjú misseri og hefst alla jafna á sumarmisseri með þátttöku í vettvangsnámskeiði námsbrautar í fornleifafræði.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Fornleifaskráning (FOR702F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi gerir sjálfstæða rannsókn á sviði landsháttafornleifafræði sem felur m.a. í sér fornleifaskráningu.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Uppgröftur 1 (FOR703F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi les kenningar og aðferðafræði fornleifauppgraftar og vinnur verkefni þar sem þeirri þekkingu er beit til að leysa raunveruleg vandamál.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fyrsta ár | Haust
Úrvinnsla 1 (FOR704F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi les kenningar og aðferðafræði fornleifafræðilegrar úrvinnslu og vinnur verkefni þar sem þeirri þekkingu er beit til að leysa raunveruleg vandamál.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fyrsta ár | Haust
Hönnun rannsóknarverkefnis (FOR706F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi þróar nákvæma rannsóknaráætlun um tiltekið vettvangsverkefni. Áætlunin getur tengst lokaverkefninu.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fyrsta ár | Haust
Kenningar í hugvísindum (FOR709F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að breikka og dýpka þekkingu nemenda á kenningum í hugvísindum og að veita þeim innsýn í ólík kennileg sjónarmið og aðferðir sem efst eru á baugi í fræðunum. Í námskeiðinu verða kynntar og ræddar valdar kenningar sem hafa sett mark sitt á fræðilega umræðu í hugvísindum síðustu áratugi, samhliða því sem nemendum verður kennt að beita þeim á eigin rannsóknir.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Heimum í samtvinnun: Miðaldir, fólk og náttúra (FOR501M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fyrir marga eru miðaldir (u.þ.b. 1000–1550) í Evrópu þekktar sem „hinar myrku aldir“, tímabil hugmyndalegrar og félagslegrar stöðnunar sem einkenndist einnig af plágum og trúarátökum. Hins vegar sýna fornleifarannsóknir og sögulegar heimildir að ýmsar heimspekilegar og tæknilegar nýjungar urðu til á þessu tímabili, einkum varðandi notkun landslags og hugmyndafræði um náttúruna. Umhverfisviðburðir á borð við hlýskeið miðalda (Medieval Climatic Optimum) og „litla ísöldin“ á 14. öld varð til þess að fólk brást við breyttum aðstæðum. Auk þess, þegar kristni verður ráðandi trú í Vestur-Evrópu, breytist merking náttúrunnar. Til er athyglisvert efni sem sýnir blandaðar nálganir við það að viðhalda og umbreyta landslagi þegar trúarhefðir renna saman. Náttúran var ekki aðeins auðlind fyrir fólk á miðöldum, heldur líka leið til að tjá sjálfsmynd, tilheyra samfélagi, marka kyngervi, stétt og andlega sýn. Í námskeiðinu verður fjallað um fræðilegar leiðir til að skilja tengsl á milli miðaldafólks og náttúru. Kynnt verða dæmi af fólki og samfélögum miðalda sem lifðu í og skilgreindu sig sem hluta af hinu náttúrulega umhverfi. Fjallað verður um kennilegar nálganir á borð við fyrirbærafræði, samtvinnun (entanglement), meira-en-mennska og staðarkennd (sence of place), og þær útskýrðar með dæmum af gripum og fornleifum. Einnig verða aðferðir til að rannsaka tengsl fólks við náttúruna til forna – svo sem vatna- og landmótunarfræði, steingervingafræði, réttarmeinafornleifafræði og fleira –skoðaðar í gegnum lesefni. Námskeiðist á 40 mínútna fyrirlestrim, 10 mínútna hléum og 40 mínútna umræðum um lesefni með fyrirlesara og nemendum. Ein kennslustund mun fara fram í göngu um svæði þar sem sjá má hagnýta og samfélagslega notkun á náttúrunni (t.d. í kirkjugarði).

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Vinnustofa: Yfirstandandi rannsóknir í íslenskri fornleifafræði (FOR712F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið byggir á vikulegum umræðufundum. Fyrir hverja viku velur nemandi tiltekið lesefni sem aðrir nemendur eiga að kynna sér og ræða á komandi fundi. Lesefnið á að tengjast rannsóknum nemandans (í meistaranámi eða doktorsnámi) og munu fundirnir því skapa formlegan vettvang fyrir ítarlega umræðu. Kennarar munu skipta með sér stýra fundum og geta þeir tilnefnt auka lesefni fyrir hverja viku. Með hliðsjón af fjölda skráðra nemenda er áætlað að hver og einn þeirra fái tækifæri til að velja lesefni allt að tvisvar sinnum í námskeiðinu.

Lýsingu á námskeiðsforminu, þ.e. vinnustofu, má finna hér.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Uppgröftur 2 (FOR804F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Nemandi leiðbeinir nemendum í grunnnámi í vettvangsnámskeiðum námsbrautar í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fyrsta ár | Vor
Úrvinnsla 2 (FOR808F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi fær þjálfun í að vinna úr mismunandi vettvangsrannsóknum og skrifa skýrslur.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fyrsta ár | Vor
Miðlun (FOR810F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi fær þjálfun í gerð myndefnis (gripateikningar, kort o.s.fr.v.) og í að nýta sér mismunandi leiðir til að miðla fornleifafræðilegum niðurstöðum.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fyrsta ár | Vor
Vinnustofa: Líkaminn og efnisveruleiki í miðaldafornleifafræði (FOR302M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þessi vinnustofa veitir nemendum fræðilegan grunn til þess að nálgast heimsmynd og upplifun fólks á miðöldum í gegnum efnismenningu. Þátttakendur kynnast hugtakinu efnisveruleika sem fæst við efniseiginleika hluta og áhrif þeirra á skynjun fólks. Á miðöldum einkenndist skilningur á efnisheiminum af sterkri trú á mætti hans; efni var gjarnan álitið lifandi og hlutir voru taldir geta miðlað guðlegri íhlutun og veitt vernd gegn sjúkdómum og hamförum. Auk efnisveruleika fjallar vinnustofan um hugmyndir miðalda um líkamann og skynjun til þess að dýpka skilning nemenda á upplifun fólks á heiminum í kringum sig.

Lýsingu á námskeiðsforminu, þ.e. vinnustofu, má finna hér.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Víkingaaldarfornleifafræði (FOR102F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Yfirlit um sögu víkingaaldar og sögu rannsókna á víkingaöld. Áhersla er lögð á fornleifaheimildir, byggingaleifar og gripi, og hvernig þær hafa verið notaðar til að varpa ljósi á þetta tímabil. Sérstök áhersla er lögð á lýsingu hagkerfa á víkingaöld, álitamál um þjóðerni og uppruna ríkisvalds.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Landshættir og fornleifaskráning (FOR405M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um landshætti og rannsókn þeirra með fornleifafræðilegum aðferðum.  Fjallað er um kennilegar forsendur og aðferðir við greiningu en aðaláhersla lögð á þjálfun aðferða við fornleifaskráningu á vettvangi.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Fornleifafræði eftir 1500 (FOR702M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í nútíma heimi er auðvelt að hugsa um fortíðina sem eitthvað sem er langt í burtu og hversdeginum óviðkomandi – hvort sem það er heimsókn á safn eða jafnvel fornleifafræðinám, sagan virðist alltaf vera aðskilin frá hversdagsleikanum. Hún er áhugamál okkar eða eitthvað sem við skoðum okkur til skemmtunar. Markmið þessa námskeiðs er að skoða samtímann frá sjónarhorni fornleifa- og sagnfræði: á hvaða hátt er líf okkar afleiðing atburða sem gerðust í fortíðinni? Námskeiðið mun sýna hvernig fortíðin lifir í nútímanum – ekki sem sögustaðir eða fornleifafræðibók heldur sem eitthvað sem hefur áhrif á skipulag hversdagsins og efnisveruleikan sem við búum í. Þótt rætur þessa ferla nái aftur til líffræðilegrar þróunar okkar þá má færa sterk rök fyrir því að flestir áhrifavaldarnir sem skapa umhverfi okkar eigi sér upphaf á síðustu 500 árum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Miðaldafornleifafræði (FOR812F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

During the last decades, medieval archaeology has experienced significant growth as a discipline concerned with material culture. Initially, the use of material culture was marginalized to the role of confirming or refuting historical knowledge about this period but today it is understood as having equal historical importance to the archived material. The course is thus intended to improve student’s understanding of Medieval Europe during the period 800–1600 AD through the study of material culture. It deals with general themes in medieval archaeology, such as identity, social status, rural and urban landscapes, religion, life and death, rather than the historical development of the Middle Ages in chronological order. The aim is to give students insight into the different fields of theory and method of medieval archaeology through both material and documentary evidences in accordance with the current state of research. A special emphasis will be put on medieval Iceland, as a part of European culture and society, but even on how medieval archaeologists gather their sources, analyse them and reach conclusions of historical importance.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Sumar
Lokaverkefni (FOR431L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

The Master’s project for 30 credits will include as a core part, a practical project involving fieldwork, archival analysis or lab work which will have been defined through a prior project design. The project design is expected to have a clearly defined question, methodology and work plan. The student is expected to execute the practical work independently. The results of the project are to be written up in a report of no less than 10,000 words and no more than 30,000 words. The report will be written in a clear and accessible manner. The report will be written either in Icelandic or English and will include an abstract in both English and Icelandic.

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Fyrsta ár | Sumar
Vettvangsskóli í fornleifafræði á Hofstöðum (FOR004M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla í námskeiðinu fer fram á vettvangi á Hofstöðum í Mývatnssveit. Nemendur kynnast helstu einkennum íslenskra fornleifa og taka þátt í vettvangsrannsóknum sem geta falið í sér uppmælingu, fjarkönnun, borkjarnakönnun og uppgröft.  Nemendur fá þjálfun í öllum stigum fornleifarannsóknar á vettvangi, frá hönnun rannsóknarverkefnis til úrvinnslu og kynningar fyrir fræðasamfélagi, almenningi og ferðamönnum.  Nemendur kynnast tímasetningaraðferðum, site formation processes og efnismenningu Norður Atlantshafs. Áhersla er lögð á að setja staðbundnar fornleifarannsóknir í fræðilegt samhengi, að nemendur kynnist þeirri umræðu og þeim álitamálum sem uppi eru á sviði fornleifafræði Norður Atlantshafs.  Einnig er lögð áhersla á að nemendur kynnist aðferðafræði minjaverndar og fá innsýn inn í áskoranir og möguleika menningararfs ferðaþjónustu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár
  • Haust
  • FOR702F
    Fornleifaskráning
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi gerir sjálfstæða rannsókn á sviði landsháttafornleifafræði sem felur m.a. í sér fornleifaskráningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR703F
    Uppgröftur 1
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi les kenningar og aðferðafræði fornleifauppgraftar og vinnur verkefni þar sem þeirri þekkingu er beit til að leysa raunveruleg vandamál.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR704F
    Úrvinnsla 1
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi les kenningar og aðferðafræði fornleifafræðilegrar úrvinnslu og vinnur verkefni þar sem þeirri þekkingu er beit til að leysa raunveruleg vandamál.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR706F
    Hönnun rannsóknarverkefnis
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi þróar nákvæma rannsóknaráætlun um tiltekið vettvangsverkefni. Áætlunin getur tengst lokaverkefninu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR709F
    Kenningar í hugvísindum
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að breikka og dýpka þekkingu nemenda á kenningum í hugvísindum og að veita þeim innsýn í ólík kennileg sjónarmið og aðferðir sem efst eru á baugi í fræðunum. Í námskeiðinu verða kynntar og ræddar valdar kenningar sem hafa sett mark sitt á fræðilega umræðu í hugvísindum síðustu áratugi, samhliða því sem nemendum verður kennt að beita þeim á eigin rannsóknir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR501M
    Heimum í samtvinnun: Miðaldir, fólk og náttúra
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fyrir marga eru miðaldir (u.þ.b. 1000–1550) í Evrópu þekktar sem „hinar myrku aldir“, tímabil hugmyndalegrar og félagslegrar stöðnunar sem einkenndist einnig af plágum og trúarátökum. Hins vegar sýna fornleifarannsóknir og sögulegar heimildir að ýmsar heimspekilegar og tæknilegar nýjungar urðu til á þessu tímabili, einkum varðandi notkun landslags og hugmyndafræði um náttúruna. Umhverfisviðburðir á borð við hlýskeið miðalda (Medieval Climatic Optimum) og „litla ísöldin“ á 14. öld varð til þess að fólk brást við breyttum aðstæðum. Auk þess, þegar kristni verður ráðandi trú í Vestur-Evrópu, breytist merking náttúrunnar. Til er athyglisvert efni sem sýnir blandaðar nálganir við það að viðhalda og umbreyta landslagi þegar trúarhefðir renna saman. Náttúran var ekki aðeins auðlind fyrir fólk á miðöldum, heldur líka leið til að tjá sjálfsmynd, tilheyra samfélagi, marka kyngervi, stétt og andlega sýn. Í námskeiðinu verður fjallað um fræðilegar leiðir til að skilja tengsl á milli miðaldafólks og náttúru. Kynnt verða dæmi af fólki og samfélögum miðalda sem lifðu í og skilgreindu sig sem hluta af hinu náttúrulega umhverfi. Fjallað verður um kennilegar nálganir á borð við fyrirbærafræði, samtvinnun (entanglement), meira-en-mennska og staðarkennd (sence of place), og þær útskýrðar með dæmum af gripum og fornleifum. Einnig verða aðferðir til að rannsaka tengsl fólks við náttúruna til forna – svo sem vatna- og landmótunarfræði, steingervingafræði, réttarmeinafornleifafræði og fleira –skoðaðar í gegnum lesefni. Námskeiðist á 40 mínútna fyrirlestrim, 10 mínútna hléum og 40 mínútna umræðum um lesefni með fyrirlesara og nemendum. Ein kennslustund mun fara fram í göngu um svæði þar sem sjá má hagnýta og samfélagslega notkun á náttúrunni (t.d. í kirkjugarði).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR712F
    Vinnustofa: Yfirstandandi rannsóknir í íslenskri fornleifafræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið byggir á vikulegum umræðufundum. Fyrir hverja viku velur nemandi tiltekið lesefni sem aðrir nemendur eiga að kynna sér og ræða á komandi fundi. Lesefnið á að tengjast rannsóknum nemandans (í meistaranámi eða doktorsnámi) og munu fundirnir því skapa formlegan vettvang fyrir ítarlega umræðu. Kennarar munu skipta með sér stýra fundum og geta þeir tilnefnt auka lesefni fyrir hverja viku. Með hliðsjón af fjölda skráðra nemenda er áætlað að hver og einn þeirra fái tækifæri til að velja lesefni allt að tvisvar sinnum í námskeiðinu.

    Lýsingu á námskeiðsforminu, þ.e. vinnustofu, má finna hér.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • FOR804F
    Uppgröftur 2
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Þar af 5 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Nemandi leiðbeinir nemendum í grunnnámi í vettvangsnámskeiðum námsbrautar í fornleifafræði.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR808F
    Úrvinnsla 2
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi fær þjálfun í að vinna úr mismunandi vettvangsrannsóknum og skrifa skýrslur.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR810F
    Miðlun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi fær þjálfun í gerð myndefnis (gripateikningar, kort o.s.fr.v.) og í að nýta sér mismunandi leiðir til að miðla fornleifafræðilegum niðurstöðum.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR302M
    Vinnustofa: Líkaminn og efnisveruleiki í miðaldafornleifafræði
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þessi vinnustofa veitir nemendum fræðilegan grunn til þess að nálgast heimsmynd og upplifun fólks á miðöldum í gegnum efnismenningu. Þátttakendur kynnast hugtakinu efnisveruleika sem fæst við efniseiginleika hluta og áhrif þeirra á skynjun fólks. Á miðöldum einkenndist skilningur á efnisheiminum af sterkri trú á mætti hans; efni var gjarnan álitið lifandi og hlutir voru taldir geta miðlað guðlegri íhlutun og veitt vernd gegn sjúkdómum og hamförum. Auk efnisveruleika fjallar vinnustofan um hugmyndir miðalda um líkamann og skynjun til þess að dýpka skilning nemenda á upplifun fólks á heiminum í kringum sig.

    Lýsingu á námskeiðsforminu, þ.e. vinnustofu, má finna hér.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR102F
    Víkingaaldarfornleifafræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Yfirlit um sögu víkingaaldar og sögu rannsókna á víkingaöld. Áhersla er lögð á fornleifaheimildir, byggingaleifar og gripi, og hvernig þær hafa verið notaðar til að varpa ljósi á þetta tímabil. Sérstök áhersla er lögð á lýsingu hagkerfa á víkingaöld, álitamál um þjóðerni og uppruna ríkisvalds.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR405M
    Landshættir og fornleifaskráning
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um landshætti og rannsókn þeirra með fornleifafræðilegum aðferðum.  Fjallað er um kennilegar forsendur og aðferðir við greiningu en aðaláhersla lögð á þjálfun aðferða við fornleifaskráningu á vettvangi.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR702M
    Fornleifafræði eftir 1500
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í nútíma heimi er auðvelt að hugsa um fortíðina sem eitthvað sem er langt í burtu og hversdeginum óviðkomandi – hvort sem það er heimsókn á safn eða jafnvel fornleifafræðinám, sagan virðist alltaf vera aðskilin frá hversdagsleikanum. Hún er áhugamál okkar eða eitthvað sem við skoðum okkur til skemmtunar. Markmið þessa námskeiðs er að skoða samtímann frá sjónarhorni fornleifa- og sagnfræði: á hvaða hátt er líf okkar afleiðing atburða sem gerðust í fortíðinni? Námskeiðið mun sýna hvernig fortíðin lifir í nútímanum – ekki sem sögustaðir eða fornleifafræðibók heldur sem eitthvað sem hefur áhrif á skipulag hversdagsins og efnisveruleikan sem við búum í. Þótt rætur þessa ferla nái aftur til líffræðilegrar þróunar okkar þá má færa sterk rök fyrir því að flestir áhrifavaldarnir sem skapa umhverfi okkar eigi sér upphaf á síðustu 500 árum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR812F
    Miðaldafornleifafræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    During the last decades, medieval archaeology has experienced significant growth as a discipline concerned with material culture. Initially, the use of material culture was marginalized to the role of confirming or refuting historical knowledge about this period but today it is understood as having equal historical importance to the archived material. The course is thus intended to improve student’s understanding of Medieval Europe during the period 800–1600 AD through the study of material culture. It deals with general themes in medieval archaeology, such as identity, social status, rural and urban landscapes, religion, life and death, rather than the historical development of the Middle Ages in chronological order. The aim is to give students insight into the different fields of theory and method of medieval archaeology through both material and documentary evidences in accordance with the current state of research. A special emphasis will be put on medieval Iceland, as a part of European culture and society, but even on how medieval archaeologists gather their sources, analyse them and reach conclusions of historical importance.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Sumar
  • FOR431L
    Lokaverkefni
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    The Master’s project for 30 credits will include as a core part, a practical project involving fieldwork, archival analysis or lab work which will have been defined through a prior project design. The project design is expected to have a clearly defined question, methodology and work plan. The student is expected to execute the practical work independently. The results of the project are to be written up in a report of no less than 10,000 words and no more than 30,000 words. The report will be written in a clear and accessible manner. The report will be written either in Icelandic or English and will include an abstract in both English and Icelandic.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • FOR004M
    Vettvangsskóli í fornleifafræði á Hofstöðum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennsla í námskeiðinu fer fram á vettvangi á Hofstöðum í Mývatnssveit. Nemendur kynnast helstu einkennum íslenskra fornleifa og taka þátt í vettvangsrannsóknum sem geta falið í sér uppmælingu, fjarkönnun, borkjarnakönnun og uppgröft.  Nemendur fá þjálfun í öllum stigum fornleifarannsóknar á vettvangi, frá hönnun rannsóknarverkefnis til úrvinnslu og kynningar fyrir fræðasamfélagi, almenningi og ferðamönnum.  Nemendur kynnast tímasetningaraðferðum, site formation processes og efnismenningu Norður Atlantshafs. Áhersla er lögð á að setja staðbundnar fornleifarannsóknir í fræðilegt samhengi, að nemendur kynnist þeirri umræðu og þeim álitamálum sem uppi eru á sviði fornleifafræði Norður Atlantshafs.  Einnig er lögð áhersla á að nemendur kynnist aðferðafræði minjaverndar og fá innsýn inn í áskoranir og möguleika menningararfs ferðaþjónustu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Að námi loknu starfar fólk gjarnan við fornleifauppgröft og önnur störf á vettvangi.

KUML er nemendafélag fornleifafræðinema við Háskóla Íslands og sér félagið um viðburði og hagsmunamál félagsmeðlima.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil