Litríkir stólar fyrir framan Háskóla Íslands
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Viltu hjálpa fólki með hegðunarfrávik?
  • Hefur þú áhuga á að efla einstaklinga?
  • Finnst þér gaman að vinna með nám og hegðun?
  • Viltu bæta við þig stuttu námi á meistarastigi?
  • Viltu sjá árangur starfs þíns raungerast?

Í viðbótardiplómanámi í hagnýtri atferlisgreiningu eru kenndar lausnamiðaðar og árangursríkar aðferðir sem stuðla að bættri hegðun, líðan og námsframvindu hjá fjölbreyttum hópi. Nemendur læra markvissar og áhrifaríkar leiðir til að mæla og meta, fyrirbyggja og leysa ýmiskonar vanda sem tengist námi, hegðun og aðlögun. 

Námið er þverfræðilegt og skipulagt í samstarfi Sálfræðideildar og Deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda. Námið er ætlað nemendum sem eru með grunnháskólagráðu í sálfræði eða á sviði menntunar-, uppeldis- eða kennslufræði.

Megináhersla er lögð á að veita nemendum hagnýta þekkingu og starfsþjálfun sem býr þau undir störf með fjölbreyttum hópum og einstaklingum, þar á meðal börnum með:

  • hegðunarerfiðleika
  • námserfiðleika
  • einhverfu og/eða þroskafrávik

Uppbygging náms

Námið er til 60 einingar og er skipulagt sem full nám í eitt ár.

Námið skiptist í

  • Skyldunámskeið, 35 einingar
  • Bundið val, 10 einingar
  • Starfsþjálfun, 15 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku og er aðeins kennt í staðnámi.

Kennsla í náminu er verkleg og bókleg.

Skilgreindur hluti námsins getur farið fram að sumri að loknum prófum á öðru námsmisseri.

Meginmarkmið

Markmiðið er að mennta fagfólk með sérþekkingu og færni til að beita atferlisgreiningu á árangursríkan hátt í starfi. Að námi loknu munu nemendur meðal annars hafa góða þekkingu á hugmyndafræði og aðferðum atferlisgreiningar til að starfa bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra fagaðila.

Annað

Nemendur sem lokið hafa viðbótarnámi í hagnýtri atferlisgreiningu geta bætt við sig öðru námsári og lokið meistaraprófi í sömu grein.

Skilyrði til inngöngu í nám til 60 eininga viðbótarprófs á meistarastigi í hagnýtri atferlisgreiningu er að hafa lokið bakkalárgráðu á sviði sálfræði eða á sviði menntunar-, uppeldis- eða kennslufræði. Umsóknir nemenda með annars konar grunngráður verða skoðaðar með tilliti til starfssviðs og reynslu viðkomandi.

Fjöldatakmörkun er í námið og miðað er við að árlega fái alla jafna samtals 20 nemendur inngöngu í 60 eininga nám til lokaprófs á meistarastigi og meistaranám í hagnýtri atferlisgreiningu. Við mat á hæfni umsækjenda er byggt á eftirtöldum viðmiðum: Persónulegri greinargerð um forsendur og áhugasvið, starfsreynslu, umsögn frá yfirmanni á stofnun á sviði mennta-, félags- eða heilbrigðisþjónustu, einkunnum í háskólanámi, reynslu af rannsóknum og ritstörfum, annarri menntun og persónulegum viðtölum þegar þurfa þykir.

Nám til 60 eininga lokaprófs á meistarastigi í hagnýtri atferlisgreiningu er þverfræðilegt á milli Heilbrigðisvísindasviðs og Menntavísindasviðs. Námið er 60 einingar að lokinni bakkalárgráðu. Námskeið skulu svara til 45 eininga og starfsþjálfun til 15 eininga.

Miðað er við að nemendur séu í fullu námi og í eitt ár (tvö misseri). Unnt er að sækja um leyfi námsstjórnar til að ljúka námi á lengri tíma en tveimur misserum. Til að útskrifast með lokapróf á meistarastigi, 60e í hagnýtri atferlisgreiningu þarf vegin meðaleinkunn nemenda í námskeiðum þar sem einkunn er gefin að vera 7,0 eða hærri.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Sakavottorð

Eyðublað fyrir greinargerð með umsókn

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Einhverfa og þroskafrávik: Snemmtæk kennsla, stuðningur og ráðgjöf (ATF101F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á gagnreyndum og áhrifaríkum leiðum til að skilja, kenna og styðja við börn með röskun á einhverfurófinu og/eða þroskafrávik. Fjallað verður um áskoranir sem þessi hópur getur glímt við varðandi nám, hegðun eða félagsleg samskipti og ýmis álitamál tengd kennslu þeirra og stuðningi. Kynntar verða ýmsar matsaðferðir til að kortleggja af nákvæmni stöðu hvers einstaklings á mismunandi sviðum og hvernig slíkt mat er góður grundvöllur fyrir raunhæfa og skýra einstaklingsnámskrá. Fjallað verður um val á viðeigandi skammtíma- og langtímamarkmiðum með hliðsjón af niðurstöðum mats og óskum fjölskyldu. Gefin verða dæmi um kennslu- og/eða stuðningsáætlanir og veittar ráðleggingar um gerð einstaklingsmiðaðra áætlana.

Sérstök áhersla verður á umfjöllun um gagnreyndar aðferðir til að mæta margbreytilegum þörfum, hvort sem varðar nám, hegðun, tjáningu, samskipti eða daglegar athafnir. Þeirra á meðal eru heildstæð atferlisþjálfun, afmarkaðar kennsluæfingar, virknimat, boðskiptaþjálfun, náttúruleg kennsla og hreinlætisþjálfun. Fjallað verður um mikilvægi eftirfylgdar og hvernig hægt er að styðja við árangursríka framkvæmd kennslu/stuðnings og meta áhrif á færni, hegðun og/eða líðan barna. Samhliða allri umfjöllun verða ræddar leiðir til að stuðla að farsælu samstarfi allra hlutaðeigandi aðila með hagsmuni, styrkleika og velferð hvers einstaklings að leiðarljósi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Hagnýt atferlisgreining í skólastarfi og uppeldi (ATF102F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginviðfangsefni námskeiðsins snýr að grundvallarþáttum atferlisgreiningar og hagnýtingu hennar, meðal annars í skólastarfi og uppeldi. Fjallað verður um grunnlögmál hegðunar, hvernig þau birtast í samskiptum og hagnýtingu þeirra á sviði uppeldis og menntunar. Undirstöðuhugtök og megin aðferðir í hagnýtri atferlisgreiningu verða skilgreindar og ræddar með áherslu á hvernig hægt er nýta þessa nálgun til að bæta hegðun sem er félagslega mikilvæg. Gefin verða fjölbreytt dæmi um hagnýtingu atferlisgreiningar í uppeldi og skólastarfi. Námsefnið er kennt með fyrirlestrum, hagnýtum verkefnum og hópavinnu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Gagnreyndar aðferðir í kennslu og námi A (SÁL143F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um kennslu og námsörðugleika barna og unglinga, eðli þeirra, uppruna, mælitæki og greiningaraðferðir. Raunprófaðar kennsluaðferðir sem byggja á námslögmálin verða kynntar með áherslu á rannsóknir í hagnýtri atferlisgreiningu. Hugtakið raunprófuð kennsla verður kryfjað og viðmið kennd.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 1 (ATF103F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Hegðunar- og námsfræði (SÁL244F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Atferlisgreining sem byggir á róttækri atferlishyggju B. F. Skinners er megininntak námskeiðsins . Kynnt verða grundvallaratriði virkra og klassískra vensla og önnur lögmál um hegðun og nám. Lítillega er fjallað um hvernig niðurstöður grunnrannsókna nýtast við kennslu, þjálfun og meðferð. Áhersla er lögð á grundvallarhugtök atferlisgreiningar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir (MVS009F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið
Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.   

Inntak / viðfangsefni

  • Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
  • Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
  • Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
  • Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
  • Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Hegðunar- og bekkjarstjórnun (ATF201F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að undirbúa nemendur til að fyrirbyggja, meta og draga úr hegðunarvanda með aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar. Fjallað verður um krefjandi hegðun barna og unglinga og áhrifaþætti hennar. Kynntar verða gagnreyndar og jákvæðar leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi með stuðningi við jákvæða hegðun á einstaklingsgrundvelli, með áhættuhópum og á samræmdan hátt í bekknum eða skólanum öllum. Nemendur kynnast aðferðum við bekkjar- eða hópastjórnun og æfa framkvæmd virknimats og stuðningsáætlunar til að draga úr langvarandi hegðunarvanda. Fjallað verður um leiðir við ráðgjöf og handleiðslu í ofangreindum aðferðum. Í námskeiðinu öllu er lögð áhersla á mikilvægi jákvæðra samskipta og uppbyggilegs samstarfs við börn, foreldra, kennara og aðra fagaðila.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Siðareglur í hagnýtri atferlisgreiningu (SÁL245F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er farið yfir siðareglur í starfi á sviði hagnýtrar atferlisgreiningar og mikilvægi faglegra vinnubragða. Áhersla er á ábyrga starfshætti, ábyrgð fagaðila gagnvart skjólstæðingum, faginu, samstarfsfólki og viðeigandi vinnubrögð. Fjallað verður um áhrif hlutdrægni hjá fagfólki og farið yfir algengar skekkjur sem geta haft áhrif á mat fagmanna. Einnig er fjallað um hvað einkennir góð og fagleg samskipti og samstarf, annarsvegar á milli fagaðila og hins vegar við aðstandendur. Samband laga og siðareglna verður athugað. Mikilvægi góðrar teymisvinnu og einkenni þess verða rædd. Námskeiðið uppfyllir kröfur sem ýmsir vottunaraðilar gera til þeirra sem starfa í atferlisgreiningu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 2 (ATF202F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 3 (ATF203F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • ATF101F
    Einhverfa og þroskafrávik: Snemmtæk kennsla, stuðningur og ráðgjöf
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á gagnreyndum og áhrifaríkum leiðum til að skilja, kenna og styðja við börn með röskun á einhverfurófinu og/eða þroskafrávik. Fjallað verður um áskoranir sem þessi hópur getur glímt við varðandi nám, hegðun eða félagsleg samskipti og ýmis álitamál tengd kennslu þeirra og stuðningi. Kynntar verða ýmsar matsaðferðir til að kortleggja af nákvæmni stöðu hvers einstaklings á mismunandi sviðum og hvernig slíkt mat er góður grundvöllur fyrir raunhæfa og skýra einstaklingsnámskrá. Fjallað verður um val á viðeigandi skammtíma- og langtímamarkmiðum með hliðsjón af niðurstöðum mats og óskum fjölskyldu. Gefin verða dæmi um kennslu- og/eða stuðningsáætlanir og veittar ráðleggingar um gerð einstaklingsmiðaðra áætlana.

    Sérstök áhersla verður á umfjöllun um gagnreyndar aðferðir til að mæta margbreytilegum þörfum, hvort sem varðar nám, hegðun, tjáningu, samskipti eða daglegar athafnir. Þeirra á meðal eru heildstæð atferlisþjálfun, afmarkaðar kennsluæfingar, virknimat, boðskiptaþjálfun, náttúruleg kennsla og hreinlætisþjálfun. Fjallað verður um mikilvægi eftirfylgdar og hvernig hægt er að styðja við árangursríka framkvæmd kennslu/stuðnings og meta áhrif á færni, hegðun og/eða líðan barna. Samhliða allri umfjöllun verða ræddar leiðir til að stuðla að farsælu samstarfi allra hlutaðeigandi aðila með hagsmuni, styrkleika og velferð hvers einstaklings að leiðarljósi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ATF102F
    Hagnýt atferlisgreining í skólastarfi og uppeldi
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefni námskeiðsins snýr að grundvallarþáttum atferlisgreiningar og hagnýtingu hennar, meðal annars í skólastarfi og uppeldi. Fjallað verður um grunnlögmál hegðunar, hvernig þau birtast í samskiptum og hagnýtingu þeirra á sviði uppeldis og menntunar. Undirstöðuhugtök og megin aðferðir í hagnýtri atferlisgreiningu verða skilgreindar og ræddar með áherslu á hvernig hægt er nýta þessa nálgun til að bæta hegðun sem er félagslega mikilvæg. Gefin verða fjölbreytt dæmi um hagnýtingu atferlisgreiningar í uppeldi og skólastarfi. Námsefnið er kennt með fyrirlestrum, hagnýtum verkefnum og hópavinnu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SÁL143F
    Gagnreyndar aðferðir í kennslu og námi A
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um kennslu og námsörðugleika barna og unglinga, eðli þeirra, uppruna, mælitæki og greiningaraðferðir. Raunprófaðar kennsluaðferðir sem byggja á námslögmálin verða kynntar með áherslu á rannsóknir í hagnýtri atferlisgreiningu. Hugtakið raunprófuð kennsla verður kryfjað og viðmið kennd.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ATF103F
    Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 1
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Þar af 5 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • SÁL244F
    Hegðunar- og námsfræði
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Atferlisgreining sem byggir á róttækri atferlishyggju B. F. Skinners er megininntak námskeiðsins . Kynnt verða grundvallaratriði virkra og klassískra vensla og önnur lögmál um hegðun og nám. Lítillega er fjallað um hvernig niðurstöður grunnrannsókna nýtast við kennslu, þjálfun og meðferð. Áhersla er lögð á grundvallarhugtök atferlisgreiningar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • MVS009F
    Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið
    Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.   

    Inntak / viðfangsefni

    • Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
    • Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
    • Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
    • Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
    • Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ATF201F
    Hegðunar- og bekkjarstjórnun
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að undirbúa nemendur til að fyrirbyggja, meta og draga úr hegðunarvanda með aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar. Fjallað verður um krefjandi hegðun barna og unglinga og áhrifaþætti hennar. Kynntar verða gagnreyndar og jákvæðar leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi með stuðningi við jákvæða hegðun á einstaklingsgrundvelli, með áhættuhópum og á samræmdan hátt í bekknum eða skólanum öllum. Nemendur kynnast aðferðum við bekkjar- eða hópastjórnun og æfa framkvæmd virknimats og stuðningsáætlunar til að draga úr langvarandi hegðunarvanda. Fjallað verður um leiðir við ráðgjöf og handleiðslu í ofangreindum aðferðum. Í námskeiðinu öllu er lögð áhersla á mikilvægi jákvæðra samskipta og uppbyggilegs samstarfs við börn, foreldra, kennara og aðra fagaðila.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SÁL245F
    Siðareglur í hagnýtri atferlisgreiningu
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er farið yfir siðareglur í starfi á sviði hagnýtrar atferlisgreiningar og mikilvægi faglegra vinnubragða. Áhersla er á ábyrga starfshætti, ábyrgð fagaðila gagnvart skjólstæðingum, faginu, samstarfsfólki og viðeigandi vinnubrögð. Fjallað verður um áhrif hlutdrægni hjá fagfólki og farið yfir algengar skekkjur sem geta haft áhrif á mat fagmanna. Einnig er fjallað um hvað einkennir góð og fagleg samskipti og samstarf, annarsvegar á milli fagaðila og hins vegar við aðstandendur. Samband laga og siðareglna verður athugað. Mikilvægi góðrar teymisvinnu og einkenni þess verða rædd. Námskeiðið uppfyllir kröfur sem ýmsir vottunaraðilar gera til þeirra sem starfa í atferlisgreiningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ATF202F
    Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 2
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Þar af 5 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ATF203F
    Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 3

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Nám í hagnýtri atferlisgreiningu býður upp á fjölbreytta starfsmöguleika að námi loknu. Fagfólk með þekkingu á faginu getur beitt henni á margvíslegum vettvangi. Þekking í hagnýtri atferlisgreiningu nýtist alls staðar þar sem unnið er með fólki.  

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Kennslu
  • Sérkennslu
  • Ráðgjöf
  • Stjórnun
  • Stefnumótun
  • Greiningar

Listinn er ekki tæmandi. 

Námsleiðin er þverfagleg og skarast því tvö nemendafélög við hana.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Mynd af Kristínu Dóru Magnúsdóttur
Námið er tilvalið fyrir alla sem vilja gefa af sér. Hagnýt atferlisgreining hefur opnað allskyns dyr fyrir mig og ég finn hvað þessi þekking er eftirsótt á mínu starfssviði. Það er svo gefandi að geta stuðlað að framförum hjá fólki sem maður er að vinna með og mikill heiður að fá að hafa jákvæð áhrif á komandi kynslóðir.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Menntavísindasvið | Kennsluskrifstofa
Virka daga 9:00 - 15:00
Þjónustuborð og samfélagsmiðlar

Á Þjónustuborði Háskólatorgs færðu aðstoð og upplýsingar um þjónustu Háskóla Íslands. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða notað vefspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.

Fylgdu okkur á Instagram, Youtube og Facebook

Mynd af byggingunni Sögu við Hagatorg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil