- Viltu verða kennari?
- Hefur þú gaman af tungumálum og menningu?
- Hefur þú áhuga á að auka þekkingu ungs fólks á erlendum tungumálum?
- Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í menntunarfræðum?
- Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
- Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
Námið er fræðilegt og starfstengt 180 eininga grunnnám, ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig kennslu í grunnskólum.
Í náminu er lögð áhersla á að auka þekkingu þína á kennslufræði erlendra tungumála (ensku eða dönsku).
Meðal viðfangsefna
- Tungumálakennsla
- Kennsluaðferðir
- Nútímasamskipti
- Aðferðafræði og menntarannsóknir
- Íslenska
- Stærðfræði
- Læsi og lestrarkennsla
- Þroska- og námssálfræði
- Vettvangsnám
Fyrirkomulag kennslu
Í flestum námskeiðum er hægt að velja annað hvort staðnám eða fjarnám með staðbundnum lotum. Mætingarskylda er í staðlotur og vettvangsnám. Meginregla er að í staðnámi séu vikulegir tímar og í fjarnámi séu staðbundnar lotur tvær á misseri.
Annað
Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum.
Til að hefja nám á þessari námsleið skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla með að lágmarki 20 framhaldsskólaeiningum í íslensku og þar af 10 einingum á 3. hæfniþrepi.
Ef umsækjandi hefur lokið prófi, sambærilegu stúdentsprófi, frá erlendum skóla skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku.
Ljúka þarf 180 einingum til B.Ed.-prófs.
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Óháð misseri
- Ekki kennt á misserinuDanska sem erlent mál
- Daglegt mál og tjáning á dönsku
- Ekki kennt á misserinuKennslufræði grunnskóla

- Íslenska í skólastarfi II
- Fræðileg skrif og gagnrýninn lestur
- Íslenska í skólastarfi I
- Að læra og kenna stærðfræði
- Stærðfræði í kennaranámi
- Inngangur að kennslufræði grunnskóla
Danska sem erlent mál (ÍET201G)
Námskeiðið miðar að því að veita nemendum innsýn í einstakar aðstæður dönskukennslu í íslenskum grunnskólum. Við munum kanna grundvallarhugtök og kenningar sem tengjast máltöku, sem eiga sérstaklega við um kennslu erlendra tungumála. Að auki munum við samræma fræðileg markmið og markmið fyrir dönskukennslu á Íslandi við kenningar um máltöku og kennslufræði erlendra tungumála. Í námskeiðinu verður einnig skoðað hvernig sjónarmið kennara varðandi nám og tungumál birtast í kennslustofum þar sem danska er kennd.
Daglegt mál og tjáning á dönsku (ÍET501G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist þekkingu og skilning á þeim reglum sem lúta að munnlegri tjáningu og færni í að beita töluðu máli rétt og eðlilega við ýmsar aðstæður.
Kennaranemar verða þjálfaðir í að beita málinu við ýmsar aðstæður. Áhersla er lögð á að þjálfa þá í að taka þátt í umræðum, lesa upp, segja frá og segja sögur. Fjallað verður um ýmsa þætti í töluðu máli, svo sem framburð einstakra hljóða, áherslur, ítónun og sérstaklega þau atriði sem Íslendingar eiga erfitt með að ná. Fjallað verður um muninn milli ritmáls og talmáls. Sérstaklega verður fjallað um nemendamiðaða kennslu og nemendur verða þjálfaðir í að útbúa munnleg verkefni handa nemendum. Kennaranemar kynna sér námsefni og ítarefni, bæði í rituðu máli og á vef. Ígrundun er snar þáttur í náminu og liður í að þróa starfskenningu þeirra.
Kennslufræði grunnskóla (KME206G, KME206G)
Námskeiðið miðar að því að kennaranemar öðlist þekkingu og leikni í almennri kennslufræði og hæfni til að kenna grunnskólanemendum.
- Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir í grunnskólum, námsumhverfi og bekkjarstjórnun, og leitað er svara við spurningunni um hvað einkenni árangursríka kennslu.
- Athygli er beint að einkennum aldursstiga grunnskóla, yngsta- mið- og efsta stigi eða unglingastigi, og kynntar leiðir til að örva þroska og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda í skóla án aðgreiningar.
- Fjallað verður um samvinnu og samskipti nemenda, teymisvinnu og teymiskennslu kennara, en einnig tengsl heimila og skóla og þátttöku foreldra í námi barna sinna.
- Kennaranemar fá þjálfun í framsögn og raddvernd, tjáningu og framkomu.
- Með vettvangsnámi fær kennaranemi æfingu í að skipuleggja fjölbreytt nám, útfæra kennsluaðferðir, nýta upplýsingatækni og leggja mat á reynslu sína.

Íslenska í skólastarfi II (ÍET204G)
Í námskeiðinu verður íslenska og fjölbreyttar birtingarmyndir hennar í forgrunni, með sérstaka áherslu á notkun hennar innan skólastofunnar óháð faggrein, en einnig verður horft til þess hvað einkennir mál hverrar faggreinar og orðaforða hennar.
Fjallað verður um mál kennaranema sjálfra og hvernig þeir lærðu það. Einnig verður komið inn á málnotkun kennaranema og hvernig þeir laga sig að aðstæðum, hvort sem er í óformlegu spjalli á samfélagsmiðlum eða í formlegri ritun, og það sett í samhengi við þau málsnið sem kennari þarf að nota þegar hann talar við nemendur við ólíkar aðstæður. Í tengslum við það fá kennaranemar þjálfun í að fjalla um eigin málnotkun og annarra með viðeigandi hugtökum.
Orðaforði málsins og þrískipting hans verður til sérstakrar umfjöllunar, þar sem lagt verður upp úr því að tengja við hugtakanotkun og málfar ólíkra námsgreina grunnskólans og kennslu þeirra, og þá ekki hvað síst með tilliti til ólíkrar getu grunnskólanema í tungumálinu, hvort sem um er að ræða nemendur með íslensku sem fyrsta eða annað mál.
Fræðileg skrif og gagnrýninn lestur (ÍET102G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að búa nemendur í háskólanámi undir lestur og ritun fræðilegra texta og þjálfa þá í gagnrýnum lestri enda er hvort tveggja grundvallaratriði í öllu háskólanámi.
Fjallað verður um ýmsar tegundir fræðilegs efnis og framsetningar á því. Nemendur kynnast helstu einkennum fræðilegra skrifa og læra hvað felst í ritstýrðum og/eða ritrýndum textum. Nemendur öðlast þjálfun í að lesa, greina og meta slíka texta. Rætt verður um sjálfstæð, gagnrýnin og heiðarleg vinnubrögð ásamt því sem fjallað verður um höfundarrétt, ritstuld og falsfréttir.
Nemendur öðlast færni í að vinna efni upp úr fræðilegum texta, svo sem útdrætti, og að flétta saman heimildir við eigin texta. Rætt verður ítarlega um fræðilegar ritgerðir á háskólastigi og nemendur fá þjálfun við gerð slíkra ritgerða. Þá verður fjallað um viðeigandi málnotkun í fræðilegum skrifum og hún þjálfuð.
Fjallað verður sérstaklega um heimildaleit og heimildamat; gæði heimilda og hvernig greina megi vandaðar heimildir frá óvönduðum. Þá fá nemendur þjálfun í heimildaskráningu. Einnig verða nemendur þjálfaðir í að nota heimildir í eigin skrifum og greina milli eigin raddar og heimildarinnar sjálfrar.
Íslenska í skólastarfi I (ÍET103G)
Í námskeiðinu verður fjallað um íslenska menningu og bókmenntir í víðum skilningi og þátt þeirra í almennri málnotkun sem og í málheimi ólíkra faggreina innan skólakerfisins. Einnig verður fjallað um máltöku barna og helstu vörður hennar.
Fengist verður við grundvallarhugtök í bókmenntafræði, orðræðugreiningu og menningarfræði og gefin dæmi um fjölbreyttar leiðir og miðla við kennslu sem stuðla að skilningi og áhuga grunnskólanema á eigin menningu og annarra.
Kennaranemar fá tækifæri til að lesa fagurbókmenntatexta úr fortíð og nútíð og setja í samhengi við eigin reynsluheim og kennslu ólíkra faggreina í framtíðinni.
Fjallað verður um fjölbreytta texta, jafnt fagurbókmenntir sem nytjatexta og afþreyingartexta, með það að markmiði að nemendur geri sér grein fyrir því að tungumálið er það verkfæri sem við notum í öllu okkar daglega lífi og námi þvert á námsgreinar. Í námskeiðinu verður leitast við að búa nemendum í hendur verkfæri til að greina texta í umhverfi sínu á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt.
Kennaranemar fræðast um máltöku barna og eðli mannlegs máls. Fjallað verður um eðlileg frávik í máli barna en einnig gerð grein fyrir algengustu frávikum í málþroska og tengslum málþroska við læsi og lestrarfærni. Athygli verður beint að breytileika í máli barna á grunnskólaaldri, ólíkri íslenskufærni barna í skóla fjölbreytileikans, sem og viðhorfum til íslensku og erlendra tungumála í skólakerfinu.
Í fyrirlestrum kennara og verkefnum kennaranema verður sjónum beint að því hvernig samþætta má ólíkar námsgreinar grunnskólanna. Þannig verður einblínt á þann þátt kennarastarfsins sem felur í sér að kenna ólíkar námsgreinar á íslensku. Nemendum gefst því tækifæri til að ígrunda þátt tungumálsins í ólíkum greinum, t.d. samfélagsfræði, stærðfræði og raungreinum, erlendum tungumálum, og ekki síst í listgreinum, t.a.m. myndmennt og leiklist.
Að læra og kenna stærðfræði (SNU101G)
Á námskeiðinu kynnast kennaranemar meginmarkmiðum náms í stærðfræði í grunnskóla.
- Fjallað er um hvað felst í stærðfræðinámi og hvernig styðja má grunnskólanemendur við stærðfræðinám.
- Nemendur kynnast hvernig fjölbreyttar leiðir í kennslu geta stuðlað að því að skilningur nemenda á stærðfræðilegum hugtökum styrkist.
- Fjallað er um hlutverk stærðfræðikennarans og hæfni sem hann þarf að búa yfir.
- Nemar kynnast beitingu upplýsingatækni við nám og kennslu.
- Lögð er áhersla á að nemar læri að vinna saman að lausn stærðfræðiverkefna og kennslufræðiverkefna.
- Nemar vinna verkefni í hverjum tíma í námskeiðinu.
Stærðfræði í kennaranámi (SNU204G)
Á námskeiðinu styrkja nemar tök sín á völdum þáttum úr stærðfræði, þar á meðal talnafræði og rúmfræði. Jafnframt er fjallað um talnaritun og reikning.
Áhersla er lögð á fjölbreytni og sjálfstæði í leit að lausnum á stærðfræðilegum þrautum. Nemendur kynnist því hvernig fjölbreyttar leiðir í kennslu geta stuðlað að auknum skilningi nemenda á stærðfræðilegum hugtökum.
Inngangur að kennslufræði grunnskóla (KME102G)
Um er að ræða inngangsnámskeið í kennslufræði, ætlað verðandi grunnskólakennurum. Hér eru hugmyndir, aðferðir og hugtök kynnt til sögunnar, sem fá svo ítarlegri umfjöllun og meðferð í síðari kennslufræðinámskeiðum (NK-námskeiðum). Meginmarkmið er að veita nemendum innsýn í kenningar og rannsóknir um nám og kennslu í skóla án aðgreiningar, auk þess að gefa mynd af störfum og starfsumhverfi grunnskólakennara. Áhersla er lögð á tengsl við starfsvettvang og að nemendur tengi viðfangsefni námskeiðsins eigin reynslu og viðhorfum og leggi grunn að eigin starfskenningu. Farið er í 15 klst. vettvangsnám þar sem nemendur kynnast starfi grunnskóla.
Mikilvægar hugmyndir, hugtök og viðfangsefni: Námskenningar, menntarannsóknir, nám-nemandi-námsaðstæður, kennsluhættir og kennsluáætlanir, samskipti og samstarf, kennarinn sem fagmanneskja, starfskenning og starfsuhverfi kennara, lagarammi, reglugerðir og námskrár sem snerta skyldunám.
Vinnulag: Fyrirlestrar, málstofur, skapandi viðfangsefni og margvísleg verkefni unnin einstaklingslega eða í samvinnu við aðra. Tengsl við vettvang.
- Annað ár
- Vor
- Námskrá og námsmat
- Óháð misseri
- Inngangur að enskukennslu
- Enskukennsla fyrir unga byrjendur
- Fjölmenning og tungumálakennsla
- Ekki kennt á misserinuDönsk málnotkun og máltaka nemenda í grunn- og framhaldsskóla
- Menningarmiðlun í dönskukennslu 1
- Náttúruvísindamenntun – Hugmyndir nemenda, verklegt og virk þátttaka
- Að kenna um rafmagn og segulmagn
- Ekki kennt á misserinuNám og náttúruvísindi á 21. öld
- Ekki kennt á misserinuJörðin og lofthjúpurinn
- Samspil lífvera og umhverfis
- Lífeðlisfræði
- Ekki kennt á misserinuHin lifandi náttúra í nærumhverfinu
- Ekki kennt á misserinuAð kenna efna- og varmafræði
- Íslenska sem kennslugrein I
- Íslenska sem kennslugrein II
- Listir I: Leiklist, myndlist, tónlist
- Listir II: Leiklist, myndlist, tónlist
- Inngangur að kennslu samfélagsgreina
- Lífsskoðanir og menntun
- Hönnun sem uppspretta sköpunar
- Kennslufræði handverks og hönnunar í textíl og smíði
- Þættir úr algebru og rúmfræði
- Stærðfræði í grunnskóla
- Tækni, sköpun og miðlun í samskiptum og skólastarfi
- Tækni og nýsköpun í kennslustofu nýrra tíma
- Samþætting og skapandi starf
- Skapandi stærðfræðinám
- Þroska- og námssálarfræði
Námskrá og námsmat (KME402G)
Námskeiðið miðar að því að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og geti beitt þekkingu sinni á því í skólastarfi.
Nemendur kynnast lykilhugtökum námsmats- og námskrárfræða. Fjallað er um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð og þróun skólanámskrár eru gerð skil og þar með einnig við gerð námsáætlana fyrir námshópa, bekki eða einstaka nemendur.
Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og notkun einkunna og vitnisburða). Lögð er áhersla á að nemendur kynnist helstu hugtökum og aðferðum í námsmatsfræðum.
Nemendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms.
Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum, kynningum, umræðum í málstofum og hópverkefnum.
Inngangur að enskukennslu (ÍET202G, ÍET402G)
Farið verður yfir þróun tungumálakennslu undanfarinna áratuga og sjónum einkum beint að þekkingu og skilningi á þeim straumum og stefnum sem nú eru efst á baugi. Fjallað verður um hugtök, kenningar, aðferðir og þá þætti sem stuðla að fagmennsku tungumálakennarans og nemendur öðlast reynslu í að ígrunda eigin afstöðu og hugmyndir. Kynntar verða rannsóknir á tungumálanámi og kennslu og fjallað sérstaklega um nemendamiðaða kennslu.
Námskrá í ensku verður yfirfarin og greind. Kennaranemar fá tækifæri til að skoða og meta kennslu á myndböndum og þjálfast í að ígrunda eigin hugmyndir um kennslu og eigin reynslu af tungumálanámi.
Vinnulag:
Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku og mikið verður lagt upp úr lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu og dæmakennslu.
Enskukennsla fyrir unga byrjendur (ÍET202G, ÍET402G)
Viðfangsefni:
Fjallað verður um markmið, leiðir og aðferðir, einkum þær sem tengjast hlustun, töluðu máli, leikjum, söngvum og leikrænni tjáningu. Einnig verður fjallað um lestur, orðaforða, ritun og námsmat að því marki sem hæfir ungum byrjendum. Lögð verður áhersla á að viðfangsefni barna í tungumálanámi þurfi að vera í samræmi við þroska þeirra. Námskrá og námsefni verður skoðað og nemar fá þjálfun í skipulagningu kennslustunda og þemavinnu. Hugað verður að leiðum til að samþætta enskukennslu öðrum námsgreinum. Hluti þessa námskeiðs fer fram á vettvangi yngri bekkja grunnskólans. Í vettvangsnáminu fá kennaranemar þjálfun í gerð kennsluáætlana og þjálfun í að leggja fyrir verkefni af ýmsum toga sem taka mið af þörfum byrjenda. Ígrundun er snar þáttur í náminu og liður í að þróa starfskenningu kennaranema.
Vinnulag:
Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku og mikið verður lagt upp úr lestri og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu og dæmakennslu.
Fjölmenning og tungumálakennsla (ÍET404G)
Fjallað verður um kennsluaðferðir í tungumálakennslu og fjölmenningarlega kennslu sem tekur mið af fjölbreyttum nemendahópi, mismunandi þörfum nemenda og bakgrunni. Kennslan verður byggð á fyrirlestrum, umræðum, verkefnavinnu og kynningum nemenda á verkefnum sínum.
Meginmarkmið fjölmenningarfræðslu eru að:
- hlúa að mannréttindum, stuðla að félagslegu réttlæti og styðja við jafnrétti í menntun
- viðurkenna gildi menningarlegrar fjölbreytni og nota hana sem tæki til að styðja við nám
- efla virðingu fyrir menningarmun (málfræðilegum, þjóðernislegum, andlegum, kyni og kynhneigð, félagshagfræðilegum o.s.frv.) og efla skilning á mismunandi lífsvali og lífsreynslu.
Hluti þessa námskeiðs fer fram á vettvangi grunnskólans. Í vettvangsnáminu fá nemar þjálfun í gerð kennsluáætlana og að leggja fyrir verkefni af ýmsum toga sem taka mið af mismunandi bakgrunni og þörfum nemenda.
Dönsk málnotkun og máltaka nemenda í grunn- og framhaldsskóla (ÍET303G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist skilning á eðli og uppbygging danska málkerfisins og kunni skil á hvernig nemendur í grunnskóla tileinka sér dönsku sem erlent tungumál. Markmið námskeiðsins er einnig að kennaranemar skilji setningarfræði í dönsku og hvernig málfræðileg greining er samofin allri athugun á máli og málnotkun nemenda, bæði töluðu og rituðu.
Fjallað verður um danska málkerfið, málfræðihugtök, málsnið og einkenni ritað máls. Einnig verður fjallað um hvernig nemendur tileinka sér erlent tungumál (acquisition). Kennaranemum eru kynntar rannsóknir um hvernig danska málkerfið er kennt sem erlent og annað mál. Athugað verður hvaða villur Íslendingum hættir til að gera í dönsku ritmáli. Athugunar gerðar á ritunarverkefnum grunn- og framhaldskólanemenda. Lesnir eru einnig fræðilegir textar um danskt mál og málnotkun og fjallað verður áfram um danska málkerfið, málfræðihugtök, málsnið og áhersla er lögð á danska setningarfræði. Farið er í þætti sem einkenna danskt talmál og þætti sem valda Íslendingum erfiðleikum og skoðað er hvernig danskt talmál er kennt í skólakerfinu. Lesnir eru fræðilegir textar um danskt mál og málnotkun og kennslu erlendra tungumála. Áhersla lögð á að skilgreina millimál nemenda (da: intersprog) og hvaða þýðing það hefur fyrir dönskukennsluna.
Vettvangnám er hluti af þessu námskeiði (2e).
Menningarmiðlun í dönskukennslu 1 (ÍET401G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist þekkingu á og innsýn í danskt þjóðlíf og menningu. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á kenningum um þjóð- og fjölmenningu. Námskeiðið fjallar um fjölmargar hliðar á dönsku samfélagi og danskri menningu eins og það birtist í fjölmiðlum, bókmenntum, dægurmenningu og í daglegu lífi fólks. Umfjöllunin miðar við að kennaranemar verði færir um að miðla danskri menningu í kennslu og virkja nemendur í verkefnavinnu.
Náttúruvísindamenntun – Hugmyndir nemenda, verklegt og virk þátttaka (SNU208G, SNU012G)
Á námskeiðinu er fjallað um grunnþætti kennslufræði náttúruvísinda í grunnskóla með áherslu á verklega kennslu, athuganir og tilraunir, notkun upplýsingatækni og fjölbreyttar leiðir til að efla skilning og áhuga nemenda. Nemendur kynnast hugmyndum um hversdagshugmyndir, mishugmyndir og hugtakanám í náttúruvísindum á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi. Skoðaðar eru leiðir til að skipuleggja kennsla í ljós námsáskorana sem hversdagsleg reynsla nemenda og málheimur valda.
Fjallað er um notkun sýndartilrauna, skapandi miðlunar og stafrænnar tækni í kennslu, sem og um ávinning og áskoranir tengdar útikennslu og útinámi. Vettvangsnám er samþætt námskeiðinu og nemendur nýta hluta námsins (2 Ve) í grunnskóla, þar sem þeir tengja fræðilegt inntak námskeiðsins við skipulagningu, framkvæmd og ígrundun kennslu í náttúruvísindum. Áhersla er lögð á virka þátttöku, verklega vinnu og ígrundun sem grunn að áframhaldandi námi í náttúruvísindakennslu.
Að kenna um rafmagn og segulmagn (SNU208G, SNU012G)
Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um rafmagn og segulmagn. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Rafmagn, rafhleðslur, rafkrafta, stöðurafmagn, rafstrauma, segulmagn, segulkraftar, víxlverkun rafmagns og segulmagns, og framleiðsla og nýting rafmagns.
Nám og náttúruvísindi á 21. öld (SNU009G, SNU209G)
Rædd verða valin viðfangsefni varðandi náttúruvísindamenntun og þróun hennar á 21. öld. Fjallað verður um gildi náttúruvísindamenntunar og mismunandi markmið náttúruvísindanáms. Fjallað verður um eðli náttúruvísindalegrar þekkingar, aðferðir náttúruvísinda og leiðir til að efla skilning grunnskólanema á eðli náttúruvísinda. Rýnt verður í stöðu náttúruvísindamenntunar á Íslandi og skoðaðir styrkleikar og veikleika þeirrar menntunar samkvæmt niðurstöðum íslenskra rannsókna og alþjóðlegra mælikvarða. Í því ljósi verður rætt um hvaða áskorunum við stöndum helst frammi fyrir og hvaða leiðir gætu reynst vænlegar til úrbóta. Skoðaðar verða bæði nýjungar í skólastarfi og þekktar leiðir sem reynsla er komin á. Einnig verður skoðuð nýsköpun í náttúruvísindum á Íslandi og hagnýting náttúruvísindanna.
Fjallað verður um:
- Eðli vísindalegrar þekkingar og vísindaleg heimspeki
- Stefnumótun og námskrárgerð í tengslum við 21. aldar hæfni
- Hvernig náttúruvísindi nýtast í nýsköpun?
- Hvers vegna náttúruvísindanám er mikilvægt og hvaða starfsmöguleikar tengjast náttúruvísindum? Hagnýting náttúruvísinda.
- Námskrár náttúruvísindamenntunar
Jörðin og lofthjúpurinn (SNU009G, SNU209G)
Á námskeiðinu er fjallað um innri gerð jarðar, jarðskorpuhreyfingar og áhrif innrænna (eldvirkni) og útrænna afla (veðurfar og vatn) á mótun landsins, bergtegundir, eldgos og jarðskjálfta. Stöðu jarðarinnar í sólkerfinu, árstíðaskipti, dægraskipti og grundvallar orkuferli jarðar. Fjallað um veður og loftslag. Kynntar verða hugmyndir að kennslu jarðfræðilegra viðfangsefna og rannsóknir sem þeim tengjast. Þá verður sjónum meðal annars beint að möguleikum sem felast í útinámi með skoðun á jarðfræðilegum fyrirbærum.
Samspil lífvera og umhverfis (SNU004G, SNU203G)
Á námskeiðinu er fjallað um grunnhugtök og meginþætti vistfræðinnar með áherslu á samspil lífvera og umhverfis. Nemendur kynnast eðli og gerð vistkerfa, þar á meðal flæði orku, hringrásum efna, stöðugleika og framvindu vistkerfa. Fjallað er um samfélög lífvera, tengsl þeirra sín á milli og við umhverfi sitt, auk stofnabreytinga og líffræðilegs fjölbreytileika.
Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi líffjölbreytileika og sjálfbærrar þróunar, sem og á áhrif mannlegra athafna á náttúru og umhverfi. Tekin eru fyrir dæmi um íslensk vistkerfi, einkenni þeirra, sérstöðu og vistfræðilegt gildi, ásamt helstu umhverfisáskorunum á Íslandi og á heimsvísu.
Námskeiðið leggur áherslu á hvernig nálgast megi vistfræðileg viðfangsefni í kennslu unglinga á grunnskólastigi. Rýnt er í mikilvægi rannsóknarmiðaðs náms, skapandi náms og útináms til að efla skilning nemenda á vistfræðilegum hugtökum og tengja þau við daglegt líf og samfélagslega ábyrgð. Nemendur fá reynslu af að skipuleggja útikennslu og umhverfismennt þar sem náttúrutúlkun, tengsl lífvera og áhrif mannsins á náttúru eru í forgrunni.
Lífeðlisfræði (SNU004G, SNU203G)
Á námskeiðinu verður fjallað um gerð fruma og skiptingu, um vefi, líffæri og starfsemi þeirra. Þá verður fjallað um heilbrigðisuppeldi og varnir, ábyrgð og skilning einstaklingsins á eigin líkama. Áhersla verður lögð á að kynna fjölbreyttar leiðir sem nota má í kennslu um viðfangsefnin.
Hin lifandi náttúra í nærumhverfinu (SNU017G, SNU105G)
Á námskeiðinu verður sérstök áhersla á hina lifandi íslensku náttúru sem kemur fyrir í daglegum reynsluheimi nemenda. Í því samhengi verður lögð sérstök áhersla á staðbundið nám (place-based education). Sjónum verður beint að möguleikum í verklegum viðfangsefnum í útinámi barna og ungmenna í nærumhverfi skóla, en viðfangsefnin einnig tengd við athafnir innan skólastofu. Ýmsar leiðir til að rannsaka hina lifandi náttúru verða kynntar, svo sem skoðun og greining á plöntum sem og aðferðir við að safna smádýrum og greiningar á lífverum æfðar. Nemendur fá einnig reynslu af að skipuleggja útikennslu. Þá verður nemendum kynnt tækifæri sem notkun upplýsingatækni veitir til að efla áhuga og forvitni um náttúruna. Verklag mun taka mið af því að nemendur kynnist fjölbreyttum kennsluaðferðum sem reynst hafa árangursríkar í náttúrufræðikennslu. Námskrá og námsefni grunnskóla sem tengist viðfangsefni námskeiðsins verður einnig skoðað.
Á dagskrá verða plöntur, fuglar, smádýr, ferskvatns- og fjörulífverur með áherslu á búsvæði þeirra og aðlögun að umhverfi sínu.
Að kenna efna- og varmafræði (SNU017G, SNU105G)
Fjallað verður um hugtök og kenningar á sviði efnafræði og varmafræði sem kennd eru í grunnskólum og leiðir til að kenna þessa þætti til skilnings með mikla áherslu á verklegar tilraunir og athuganir. Þá verður nemendum kynnt tækifæri sem notkun upplýsingatækni veitir til að efla áhuga og forvitni um náttúruna. Á námskeiðinu verður fjallað um uppbyggingu efna, efnabreytingar, frumeindakenninguna og lotukerfið, varmaorku og hitastig, varmaflutninga, nýting varmaorku og orkuferli sem tengjast efnabreytingum.
Íslenska sem kennslugrein I (ÍET104G, ÍET205G)
Í námskeiðinu verður lagður grunnur að fræðilegri þekkingu verðandi íslenskukennara á íslenskum bókmenntum til undirbúnings kennslu þeirra í grunnskóla. Lögð verður áhersla á að efla nemendur sem sjálfstæða lesendur bókmennta af fjölbreyttu tagi. Einnig verður fengist við talað mál, hlustun, áhorf, lestur og ritun á fræðilegum grundvelli og með hagnýtum verkefnum. Í námskeiðinu er fjallað um virka hlustun og virkt áhorf og nemendur þjálfaður í að miðla þekkingu sinni í töluðu máli og til að nýta fjölbreytta miðla til að efla þessa þætti hjá sjálfum sér.
Fjallað verður um samtímabókmenntir fyrir börn og fullorðna sem og frásagnir í öðrum miðlum svo sem í leikhúsi og kvikmyndum. Unnið verður með almennar greiningaraðferðir og læsi þjálfað til skilnings og túlkunar. Lögð verður áhersla á hvernig textar geta skapað umræðu um siðferðileg hugtök og álitamál. Jafnframt verða bókmenntatextar lesnir með það fyrir augum að nemendur njóti þeirra og deili lestrarreynslu sinni með öðrum.
Kennaranemar fást við að greina talmál frá ritmáli á fræðilegan hátt og þjálfast í að vinna með ólíkar gerðir talaðs máls og texta á mismunandi textasviðum.
Íslenska sem kennslugrein II (ÍET104G, ÍET205G)
Í námskeiðinu verður lögð áhersla á hagnýtingu fræðilegrar þekkingar kennaranema í íslensku. Nemendur verða þjálfaðir í fjölbreyttum leiðum og aðferðum við íslenskukennslu sem eiga að stuðla að auknum skilningi og áhuga á viðfangsefnum í íslensku. Einnig verður fjallað um skipulag og undirbúning kennslu sem og námsmats.
Fjallað verður um þá þætti í íslenskukennslu sem snúa að málfræði og ritun. Einnig verður fjallað um grunnþætti menntunar og hvernig kennaranemar geta fléttað þá inn í íslenskukennslu sína. Áhersla verður lögð á þjálfun í að vinna með hæfniviðmið og matsviðmið fyrir íslensku og stuðla að stígandi í kennslu í meginþáttum kennslugreinarinnar.
Kennaranemar fá æfingu í að nálgast viðfangsefni sín í íslenskukennslu á gagnrýninn hátt og að hagnýta sér rannsóknir og fræðileg skrif. Þeir hljóta einnig reynslu af því að vinna á gagnrýninn hátt með fyrirliggjandi kennsluefni og bera saman við núgildandi aðalnámskrá í því augnamiði að þróa eigin kennslu og kennsluhætti. Jafnframt verður til umfjöllunar samþætting íslensku við aðrar faggreinar.
Fjallað verður um hvernig kennarar geti skipulagt kennslu út frá forsendum fjölbreytts nemendahóps þannig að grunnskólanemar fái tækifæri til að nálgast viðfangsefni í íslensku út frá eigin reynslu og áhugasviðum.
Í námskeiðinu eru vettvangseiningar og nemendur fara á vettvang í grunnskóla. Viðfangsefni námskeiðsins verða sömuleiðis tengd við vettvang. Í vettvangsvikum fylgjast kennaranemar með kennslu á vettvangi, ígrunda hana og meta í samræmi við umfjöllunarefni námskeiðsins.
Listir I: Leiklist, myndlist, tónlist (LVG105G, LVG207G)
Viðfangsefni: Nemendur kynnast þýðingu lista í námi barna og unglinga. Umfjöllun um leiklist, tónlist og myndlist í skólastarfi. Verkleg viðfangsefni eru þróuð út frá hugmyndum nemenda.
Vinnulag: Fjölbreyttar smiðjur sem byggja á mismunandi kveikjum og margvíslegri úrvinnslu.
Listir II: Leiklist, myndlist, tónlist (LVG105G, LVG207G)
Viðfangsefni: Nemendur halda áfram að kynnast þýðingu lista í námi barna og unglinga. Umfjöllun um leiklist, tónlist og myndlist í skólastarfi á vettvangi. Fjallað verður um samþættingu listgreinanna og hvernig hægt er að vinna með myndir, hljóð, texta og sviðsetningu í skólastarfi
Vinnulag: Fjölbreyttar smiðjur sem byggja á mismunandi kveikjum og margvíslegri úrvinnslu.
Inngangur að kennslu samfélagsgreina (SFG101G, SFG201G)
Viðfangsefni: Námskeiðið er inngangur að kennslu samfélagsgreina með áherslu á þjálfun í rökræðum, gagnrýna hugsun og hæfni í að skoða mismunandi sjónarhorn. Á námskeiðinu vinna nemendur með forhugmyndir sínar og taka ígrundaða afstöðu til viðfangsefnanna og samtímis er veitt innsýn í ýmis viðfangsefni sem fjallað er um í samfélagsgreinum (sbr. aðalnámskrá).
Vinnulag: Umræður og verkefnavinna fara fram í kennslustundum á miðvikudögum í rauntíma á Zoom. Auk þessa verða rökræðutímar í hverri viku. Nemendum er skipt í hópa og mæta með sínum hópi allt misserið. Skyldumæting er í rökræðutímana (80%). Hægt verður að velja á milli rökræðutíma á staðnum í Sögu eða í rauntíma á Zoom. Hvorki miðvikudagstímar né rökræðutímar verða teknir upp.
Lífsskoðanir og menntun (SFG101G, SFG201G)
Viðfangsefni: Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á helstu þáttum sem móta lífsskoðanir fólks og verði betur í stakk búnir til að kenna samfélagsgreinar í nemendahópum þar sem lífsskoðanir geta verið fjölbreytilegar. Í námskeiðinu er vaxandi áhersla innan menntavísinda á lífsskoðunarhugtakið tekin til umfjöllunar og lífsskoðunarhugtakið rætt og greint frá ýmsum sjónarhornum og ýmsir uppistöðuþættir þess teknir til umfjöllunar. Í námskeiðsinu verður unnið með meginþætti lífsskoðana sem birtast meðal annars í spurningum um siðferði, trú, samfélagssýn og stjórnarfar, fjölskyldur og persónulegt nærumhverfi fólks, og hvernig réttindi og skyldur móta framtíðarsýn einstaklinga.
Vinnulag: Námskeiðinu er skipt í tveggja til þriggja vikna lotur þar sem fengist er við eitt þema í hverri lotu. Fyrirlestrar verða á neti og lesefni verður aðgengilegt á Canvas í skjölum eða á nettenglum. Lokapróf gildir 40%, en verkefni og önnur verkefni 60%. Athugið að hluti námskeiðsins er vettvangsnám (2 vettvangseiningar) sem er skilyrði fyrir að ljúka námskeiðinu.
Hönnun sem uppspretta sköpunar (LVG104G, LVG206G)
Námskeiðið er kynning á kennslu og gildi uppeldismiðaðra hönnunar- og handverksgreina: Hönnun og smíði, Textíll og hönnun og Heilsuefling og heimilisfræði. Verkefnahugmyndir eru lagaðar að ólíkum faggreinum námskeiðsins. Áhersla er lögð á þekkingar- og færniþætti frá hugmynd að fullvinnslu í öllum verkþáttum námskeiðsins. Nemendur vinna viðfangsefni sem henta vel í skólastarfi og skrá vinnuferli í ljósmyndum, teikningum og í textaformi.
Kennslufræði handverks og hönnunar í textíl og smíði (LVG104G, LVG206G)
Markmiðið er að undirbúa kennaranema fyrir vettvangsnám í hönnunar- og handverksgreinum með áherslu á kennslufræðilega þætti. Í verkefnavali taka nemendur mið af grunnþáttum menntunar og hæfniviðmiðum faggreinanna í Aðalnámskrá grunnskóla. Í úrvinnslu verkefna er lögð er áhersla á skapandi og fagleg vinnubrögð. Nemendur fá þjálfun í gerð kennsluáætlana, kynnast fjölbreyttum kennsluaðferðum og bera saman ólíkar námsmatsleiðir í faggrein. Nemar halda leiðarbók og skrifa greinargerð um vettvangshluta námsins; áhorf, aðstoð við kennslu, framkvæmd kennsluverkefna og eigin kennslu. Nemar skila ferilmöppu og kynna afrakstur af vettvangsnámi.
Þættir úr algebru og rúmfræði (SNU102G, SNU207G)
Viðfangsefni eru valin atriði úr sígildri rúmfræði, hnitarúmfræði og algebru ásamt kynningu á hugbúnaði sem nýtist við rúmfræði- og algebrunám og kennslu.
Fjallað verður um grunnatriði Evklíðskrar rúmfræði; hugtök, frumforsendur og setningar um samsíða línur, marghyrninga og hringi. Fengist er við einfaldar teikningar með hringfara og reglustiku. Einnig verður farið í atriði úr hnitarúmfræði, t.d. jöfnu hrings og kynntar lausnaraðferðir fyrir línulegar jöfnur og jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur, tölugildisjöfnur og ójöfnur.
Kennt verður á hugbúnaðinn GeoGebru og hann nýttur við myndræna túlkun, tilgátusmíð og teikningar.
Stærðfræði í grunnskóla (SNU102G, SNU207G)
Í námskeiðinu eru kynntar leiðir til þess að byggja upp rökrétta samfellu í stærðfræðinámi þar sem meginhugmyndir greinarinnar og tengsl þeirra innbyrðis verða sífellt skýrari og víðtækari. Fjallað er um markmið stærðfræðikennslu í grunnskóla, námsefni grunnskólans, stærðfræðilega hæfni og stærðfræðileg samskipti. Áhersla er lögð á aðgengi og jafnræði í stærðfræðinámi og á kennsluhætti sem taka mið af fjölbreyttum forsendum, reynslu og tungumálabakgrunni nemenda. Í námskeiðinu greina nemar námsefni, verkefni og lausnir grunnskólanema og æfa sig að kenna og greina kennslu í hópi jafningja. Nemendur eiga á grundvelli reynslu sinnar á vettvangi að ígrunda kennslu sína, val á viðfangsefnum, hlutverk kennarans og samskipti við nemendur og samskipti milli nemenda. Áhersla er lögð á kennsluhætti sem byggja á rannsóknum á stærðfræðinámi og -kennslu.
Tækni, sköpun og miðlun í samskiptum og skólastarfi (SNU104G, SNU206G)
Hvernig má lýsa greinasviðinu upplýsinga- og tæknimennt og við hvað er átt þegar rætt er um nýsköpunarmennt eða nýsköpun í skólastarfi? Til hvers er vísað þegar rætt er um upplýsinga- og þekkingarsamfélag, upplýsinga- og tæknilæsi, stafræna efnisgerð og margmiðlun, miðlalæsi eða fjölhátta læsi, stafræn samskipti og námssamfélög, stafræna borgaravitund og þátttöku í lýðræðissamfélagi, tækni og forritun við hæfi barna og unglinga, hönnunarhugsun og frumkvöðlamennt, leik að hugmyndum, lausnaleit og samvinnu um sköpun?
Hvenær kom stafrænn búnaður fyrst inn í íslenska grunnskóla, hver hefur þróunin verið síðan og hvert stefnir? Hvaða hindranir og hvaða tækifæri fylgja tæknivæðingu í samskiptum og skólastarfi? Hver er líka saga nýsköpunarmenntar í grunnskólum og hvernig tengist hún hugmyndum um nýja tíma, samvinnu og lausnamiðuð vinnubrögð? Hverjir eru þættir upplýsingatækni, nýsköpunar og stafrænnar miðlunar í stefnumótun og námskrá og hvernig er háttað tengslum þeirra við önnur námssvið, lykilhæfni og grunnþætti menntunar?
Við skoðum á þessu inngangsnámskeiði framangreind viðfangsefni í innlendu og alþjóðlegu samhengi um leið og nemar fá tækifæri til að fást við hagnýt og skapandi verkefni, prófa tæknilega möguleika og stafræn verkfæri sem bjóða upp á áhugaverð tækifæri í námi og kennslu. Nemar efla færni sína á þessu sviði og horfa til hagnýtra möguleika á vettvangi og þeirra tækifæra sem felast í nýrri tækni til hugmyndavinnu, samskipta og starfsþróunar. Áhersla er lögð á myndun öflugs námssamfélags sem tekur virkan þátt á námskeiðinu, tekst á við áskoranir og deilir hugmyndum og reynslu í líflegum menntabúðum og með stafrænni miðlun á neti.
Tækni og nýsköpun í kennslustofu nýrra tíma (SNU104G, SNU206G)
Á námskeiðinu beinum við sjónum að því hvernig nýta má stafræna tækni, sveigjanlegt námsumhverfi og eflandi kennslufræði til að ýta undir atbeina nemenda og sköpunarkraft. Fjallað er um nýsköpunarmennt og þá kennslufræði sem henni tengist, áherslu á atbeina og framtak nemenda og kennara, samvinnu og teymiskennslu, innsæi og sköpun, gagnrýna nálgun og ígrunduð vinnubrögð í hvetjandi umhverfi. Dregið er fram hvernig tæknin sem verkfæri og viðfang geta leitt fram og stutt skólastarf þar sem áhrif nemenda, framlag og sýn fá að njóta sín. Við beinum sjónum að umhverfi náms og kennslu á neti og fæti, nýjum skólabyggingum, skólalóðum, vettvangsferðum og útikennslu, opnum og sveigjanlegum kennslurýmum í sögulegu ljósi, húsbúnaði og húsakynnum náms og kennslu, alltaf með þátt tækninnar og tækifæri henni tengd í huga. Sérstakri athygli verður beint að þætti list- og verkgreina þegar kemur að nýsköpun og samþættingu námsgreina um skapandi verkefni en einnig stöðu og hlutverki bókasafna, upplýsingavera og smiðjuvinnu í skóla- og frístundastarfi á nýjum tímum. Í vettvangsnáminu er lagt kapp á að nemar kynni sér þessa þætti sem best, gaumgæfi umhverfi náms og kennslu frá öllum hliðum, velti fyrir sér athafnakostum og þróunarmöguleikum tengdum stafrænni tækni og stafrænu námsumhverfi í samspili við önnur gögn og verkfæri en einnig húsbúnað, húsakynni og ytra umhverfi skóla. Lögð er rík áhersla á að nemar deili hugmyndum sínum og kynnum af skólastarfi með félögum sínum á námskeiðinu með ýmsu móti.
Samþætting og skapandi starf (GKY102G, GKY601G)
Á námskeiðinu er megináhersla á samþættingu námsgreina með því að nota Söguaðferðina (Storyline) sem meginþráð í náminu. Valin eru viðfangsefni tengd náttúru og samfélagi og unnið með þau á fjölbreyttan og skapandi hátt. Áhersla verður á að nemendur skynji námið sem heild. Hugað verður að námsmati og hvernig námsmatsaðferðir henta.
Lögð verður áhersla á ólíka reynslu og forsendur nemenda, út frá einstaklingmiðuðu námi og menntun fyrir alla í fjölmenningarsamfélagi þar sem gagnrýnin og skapandi hugsun er sem rauður þráður í gegnum námið.
Skapandi stærðfræðinám (GKY102G, GKY601G)
Á námskeiðinu kynnast kennaranemar hve skapandi stærðfræði er sem fræðigrein og hvernig ýta má undir leiðir til þess að byggja upp skapandi stærðfræðinám. Fjallað er um uppbyggingu stærðfræðihugmynda ungra barna, lausnaleit þeirra, námsmat og aðra þætti stærðfræðináms. Kennaranemar vinna verklega og taka þátt í umræðum um stærðfræðinám. Þeir ígrunda eigið stærðfræðinám og nýta vettvangsnám til þess að æfa það sem þeir læra á námskeiðinu og ígrunda eigin kennslu.
Sérstaklega verður hugað að því að kennaranemi styrki tök sín á inntaksþáttum og vinnubrögðum stærðfræðinnar til þess að hafa forsendur til að geta greint nám nemenda sinna. Sjónum verður beint að skilningi á helstu inntaksþáttum í stærðfræðinámi á yngsta stigi. Einnig verður fjallað um þátt tungumáls og röksemdafærslu í stærðfræðinámi.
Leiðir við kennslu og uppbygging námsumhverfis fá gott rými. Skoðað verður hvernig nálgast má viðfangsefni með rannsóknum, hlutbundinni vinnu, rafrænni leit, umræðum og uppsprettum úr daglegu lífi og umhverfi nemenda. Námsefni og námsgögn í stærðfræði verða greind og fjallað um náms- og kennsluumhverfi sem mætir ólíkum þörfum barna við stærðfræðinám. Hugað verður sérstaklega að stafrænum námsgögnum fyrir börn og leiðum til að meta slíkt efni. Fjallað verður um námsmat í stærðfræði og hvernig kennari getur nýtt sér mat á skilningi og færni nemenda til að byggja á við skipulag kennslu.
Kennaranemar kynnast fræðasviðinu stærðfræðimenntum og leiðum til að fylgjast með rannsóknum og þróun kennsluhátta til að þeir geti sótt sér hugmyndir og hvatningu til að þróa markvisst stærðfræðikennslu sína.
Vinnulag
Haldnir verða fyrirlestrar og nemendur taka þátt í umræðum og verklegri vinnu. Nemendur lesa sér til um rannsóknir og glíma sjálfir við stærðfræðileg viðfangsefni ásamt því að skipuleggja kennslu og kenna eftir skipulagi sínu.
Vettvangshluti námskeiðsins (4Ve) fer fram í samstarfsskólum Menntavísindasviðs og samsvarar tveimur vikum á vettvangi, 6 tíma á dag.
Nemar halda dagbók um nám sitt og ígrundun á því frá upphafi námskeiðs og byggja á henni við skrif lokaverkefnis námskeiðsins.
Þroska- og námssálarfræði (KME301G)
Tilgangur þessa námskeiðs er að nemendur öðlist heildarsýn á þroska barna frá fæðingu og fram á unglingsár.
Inntak/viðfangsefni:
Fjallað verður um þær breytingar sem verða á þroska barna á mismunandi sviðum og aldursskeiðum og helstu kenningar sem notaðar hafa verið til að varpa ljósi á þessar breytingar. Fjallað verður um vitsmunaþroska, tilfinningaþroska og þróun tilfinningalegra tengsla, félagsþroska, þróun sjálfsmyndar og siðferðisvitundar. Námskenningum og vistfræðilegum kenningum (ecological approach) verður einnig gerð skil. Rætt verður um orsakir og eðli einstaklingsmunar, samfellu í þroska og sveigjanleika þroskaferlisins. Tengsl náms og þroska, áhugahvöt og áhrif uppeldis, menningar og félagslegra aðstæðna á þroska barna verða einnig til umfjöllunar. Áhersla verður lögð á gildi þroskasálfræðinnar í uppeldis- og skólastarfi.
Vinnulag:
Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðu/verkefnatímum. Í umræðu/verkefnatímum fá nemendur þjálfun í að ræða námsefnið á gagnrýninn hátt.
- Þriðja ár
- Vor
- Lokaverkefni
- Óháð misseri
- Fjölmenning og tungumálakennsla
- Danska: Tunga, tjáning, menning
- Ekki kennt á misserinuDönsk málnotkun og máltaka nemenda í grunn- og framhaldsskóla
- Tölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumála
- Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi
- Aðferðafræði og menntarannsóknir
Lokaverkefni (ÍET601L)
Undir lok grunnnámsins vinna nemendur B.Ed.-verkefni sem skal vera á sviði aðalsérhæfingar og hafa gildi á sviði faggreinakennslu, sjá nánar í handbók.
Nemendur skrá óskir um efni og leiðbeinanda í form á Canvas vef. Umsjónarmenn námsleiða vinna úr óskunum og úthluta nemendum leiðbeinanda. Nemendur vinna sjálfstætt að lokaverkefni sínu með ráðgjöf frá leiðsögukennara.
Lokaverkefni vinna nemendur einir eða tveir saman. Nánari leiðbeiningar um tilhögun,vinnulag og frágang við lokaverkefni er að finna á vef lokaverkefna í grunnnámi í Uglu undir Fræðasvið - Menntavísindasvið - Fyrir nemendur.
Fjölmenning og tungumálakennsla (ÍET404G)
Fjallað verður um kennsluaðferðir í tungumálakennslu og fjölmenningarlega kennslu sem tekur mið af fjölbreyttum nemendahópi, mismunandi þörfum nemenda og bakgrunni. Kennslan verður byggð á fyrirlestrum, umræðum, verkefnavinnu og kynningum nemenda á verkefnum sínum.
Meginmarkmið fjölmenningarfræðslu eru að:
- hlúa að mannréttindum, stuðla að félagslegu réttlæti og styðja við jafnrétti í menntun
- viðurkenna gildi menningarlegrar fjölbreytni og nota hana sem tæki til að styðja við nám
- efla virðingu fyrir menningarmun (málfræðilegum, þjóðernislegum, andlegum, kyni og kynhneigð, félagshagfræðilegum o.s.frv.) og efla skilning á mismunandi lífsvali og lífsreynslu.
Hluti þessa námskeiðs fer fram á vettvangi grunnskólans. Í vettvangsnáminu fá nemar þjálfun í gerð kennsluáætlana og að leggja fyrir verkefni af ýmsum toga sem taka mið af mismunandi bakgrunni og þörfum nemenda.
Danska: Tunga, tjáning, menning (DAN112G)
Markmiðið er að nemendur öðlist aukna alhliða samskiptahæfni á dönsku sem tekur til allra færniþátta; hlusta, lesa, tala, skrifa (fimmti færniþátturinn er „að samtala“). Í námskeiðinu verður unnið með danska menningu, hefðir og siði í víðu samhengi. Áhersla verður lögð á markvissa vinnu með þemabundinn orðaforða, auk þess sem nemendur þjálfast í notkun hvers konar hjálpargagna á sviði veforðabóka og leiðréttingaforrita. Efniviður námskeiðsins verður sóttur í alla hugsanlega miðla; dagblöð, tímarit, smásögur, söngtextar, útvarps- og sjónvarpsefni og kvikmyndir.
Dönsk málnotkun og máltaka nemenda í grunn- og framhaldsskóla (ÍET303G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist skilning á eðli og uppbygging danska málkerfisins og kunni skil á hvernig nemendur í grunnskóla tileinka sér dönsku sem erlent tungumál. Markmið námskeiðsins er einnig að kennaranemar skilji setningarfræði í dönsku og hvernig málfræðileg greining er samofin allri athugun á máli og málnotkun nemenda, bæði töluðu og rituðu.
Fjallað verður um danska málkerfið, málfræðihugtök, málsnið og einkenni ritað máls. Einnig verður fjallað um hvernig nemendur tileinka sér erlent tungumál (acquisition). Kennaranemum eru kynntar rannsóknir um hvernig danska málkerfið er kennt sem erlent og annað mál. Athugað verður hvaða villur Íslendingum hættir til að gera í dönsku ritmáli. Athugunar gerðar á ritunarverkefnum grunn- og framhaldskólanemenda. Lesnir eru einnig fræðilegir textar um danskt mál og málnotkun og fjallað verður áfram um danska málkerfið, málfræðihugtök, málsnið og áhersla er lögð á danska setningarfræði. Farið er í þætti sem einkenna danskt talmál og þætti sem valda Íslendingum erfiðleikum og skoðað er hvernig danskt talmál er kennt í skólakerfinu. Lesnir eru fræðilegir textar um danskt mál og málnotkun og kennslu erlendra tungumála. Áhersla lögð á að skilgreina millimál nemenda (da: intersprog) og hvaða þýðing það hefur fyrir dönskukennsluna.
Vettvangnám er hluti af þessu námskeiði (2e).
Tölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumála (ÍET201M)
Meginmarkmið námskeiðsins er að
- veita þátttakendum yfirsýn yfir og skilning á helstu kenningum og rannsóknum um tölvutengt tungumálanám.
- þátttakendur öðlist þekkingu og kunni skil á helstu kenningum og rannsóknum um rafræn læsi (digital literacies) og tungumálnam.
- þátttakendur fái tækifæri til að tengja saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu af tölvu og upplýsingartækni í tungumálakennslu.
Viðfangsefni:
Á námskeiðinu verður fjallað um áhríf upplýsingartækni á uppeldi, menntun og skólastarf. Lögð er áhersla á að fjalla um tölvustutt tungumála nám (CALL - Computer Assisted Language Learning) og áhríf og þróun þess síðastliðin 30 ár. Einnig verður fjallað um kenningar og rannsóknir er varðar notkun upplýsingartækni í tungumálanámi í skólastofunni í grunn- og framhaldsskóla. Ýmis forrit verða kynnt og skoðað hvernig má nýta þau til að þjálfa mismunandi þættir tungumálsins.
Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Nemendur fá margvísleg verkefni til úrlausnar og skila úrlausnum ýmist munnlega eða skriflega. Einnig munu þátttakendur vinna einir eða í hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Efnið gætu tengst nýtingu tölvu og veraldarvefsins i tungumálakennslu, rannsóknar- og þróunarstörfum, fjarkennslu erlendra tungumála, gerð rafræns námsefnis til notkunar í tungumálakennslu, vendinám, notkun spjaldtölvur í tungumálanámi o.fl. Nemendur vinna og skila rafræn ferilsmöppu.
Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
Aðferðafræði og menntarannsóknir (KME501G)
Viðfangsefni námskeiðsins fela í sér tvennt. Annars vegar er um að ræða þjálfun í rannsóknaraðferðum, meðferð gagna og úrvinnslu þeirra og hins vegar læsi á menntarannsóknir, sem aðrir hafa framkvæmt og niðurstöður þeirra. Í öllum þáttum námskeiðsins er lögð áhersla á þekkingu og skilning á helstu hugtökum og hugmyndum úr aðferðafræði menntarannsókna. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þessi hugtök í lesefninu og beiti þeim í verkefnum er tengjast megindlegum, eigindlegum og blönduðum aðferðum, einnig aðferðum við starfendarannsóknir.
- Óháð misseri
- Ekki kennt á misserinuÍET201GDanska sem erlent málSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Námskeiðið miðar að því að veita nemendum innsýn í einstakar aðstæður dönskukennslu í íslenskum grunnskólum. Við munum kanna grundvallarhugtök og kenningar sem tengjast máltöku, sem eiga sérstaklega við um kennslu erlendra tungumála. Að auki munum við samræma fræðileg markmið og markmið fyrir dönskukennslu á Íslandi við kenningar um máltöku og kennslufræði erlendra tungumála. Í námskeiðinu verður einnig skoðað hvernig sjónarmið kennara varðandi nám og tungumál birtast í kennslustofum þar sem danska er kennd.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET501GDaglegt mál og tjáning á dönskuSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist þekkingu og skilning á þeim reglum sem lúta að munnlegri tjáningu og færni í að beita töluðu máli rétt og eðlilega við ýmsar aðstæður.
Kennaranemar verða þjálfaðir í að beita málinu við ýmsar aðstæður. Áhersla er lögð á að þjálfa þá í að taka þátt í umræðum, lesa upp, segja frá og segja sögur. Fjallað verður um ýmsa þætti í töluðu máli, svo sem framburð einstakra hljóða, áherslur, ítónun og sérstaklega þau atriði sem Íslendingar eiga erfitt með að ná. Fjallað verður um muninn milli ritmáls og talmáls. Sérstaklega verður fjallað um nemendamiðaða kennslu og nemendur verða þjálfaðir í að útbúa munnleg verkefni handa nemendum. Kennaranemar kynna sér námsefni og ítarefni, bæði í rituðu máli og á vef. Ígrundun er snar þáttur í náminu og liður í að þróa starfskenningu þeirra.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuKME206G, KME206GKennslufræði grunnskólaSkyldunámskeið10/10Skyldunámskeið á námsleiðinni10/10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNámskeiðið miðar að því að kennaranemar öðlist þekkingu og leikni í almennri kennslufræði og hæfni til að kenna grunnskólanemendum.
- Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir í grunnskólum, námsumhverfi og bekkjarstjórnun, og leitað er svara við spurningunni um hvað einkenni árangursríka kennslu.
- Athygli er beint að einkennum aldursstiga grunnskóla, yngsta- mið- og efsta stigi eða unglingastigi, og kynntar leiðir til að örva þroska og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda í skóla án aðgreiningar.
- Fjallað verður um samvinnu og samskipti nemenda, teymisvinnu og teymiskennslu kennara, en einnig tengsl heimila og skóla og þátttöku foreldra í námi barna sinna.
- Kennaranemar fá þjálfun í framsögn og raddvernd, tjáningu og framkomu.
- Með vettvangsnámi fær kennaranemi æfingu í að skipuleggja fjölbreytt nám, útfæra kennsluaðferðir, nýta upplýsingatækni og leggja mat á reynslu sína.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME206G, KME206GKennslufræði grunnskólaSkyldunámskeið10/10Skyldunámskeið á námsleiðinni10/10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNámskeiðið miðar að því að kennaranemar öðlist þekkingu og leikni í almennri kennslufræði og hæfni til að kenna grunnskólanemendum.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður íslenska og fjölbreyttar birtingarmyndir hennar í forgrunni, með sérstaka áherslu á notkun hennar innan skólastofunnar óháð faggrein, en einnig verður horft til þess hvað einkennir mál hverrar faggreinar og orðaforða hennar.
Fjallað verður um mál kennaranema sjálfra og hvernig þeir lærðu það. Einnig verður komið inn á málnotkun kennaranema og hvernig þeir laga sig að aðstæðum, hvort sem er í óformlegu spjalli á samfélagsmiðlum eða í formlegri ritun, og það sett í samhengi við þau málsnið sem kennari þarf að nota þegar hann talar við nemendur við ólíkar aðstæður. Í tengslum við það fá kennaranemar þjálfun í að fjalla um eigin málnotkun og annarra með viðeigandi hugtökum.
Orðaforði málsins og þrískipting hans verður til sérstakrar umfjöllunar, þar sem lagt verður upp úr því að tengja við hugtakanotkun og málfar ólíkra námsgreina grunnskólans og kennslu þeirra, og þá ekki hvað síst með tilliti til ólíkrar getu grunnskólanema í tungumálinu, hvort sem um er að ræða nemendur með íslensku sem fyrsta eða annað mál.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET102GFræðileg skrif og gagnrýninn lesturSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að búa nemendur í háskólanámi undir lestur og ritun fræðilegra texta og þjálfa þá í gagnrýnum lestri enda er hvort tveggja grundvallaratriði í öllu háskólanámi.
Fjallað verður um ýmsar tegundir fræðilegs efnis og framsetningar á því. Nemendur kynnast helstu einkennum fræðilegra skrifa og læra hvað felst í ritstýrðum og/eða ritrýndum textum. Nemendur öðlast þjálfun í að lesa, greina og meta slíka texta. Rætt verður um sjálfstæð, gagnrýnin og heiðarleg vinnubrögð ásamt því sem fjallað verður um höfundarrétt, ritstuld og falsfréttir.
Nemendur öðlast færni í að vinna efni upp úr fræðilegum texta, svo sem útdrætti, og að flétta saman heimildir við eigin texta. Rætt verður ítarlega um fræðilegar ritgerðir á háskólastigi og nemendur fá þjálfun við gerð slíkra ritgerða. Þá verður fjallað um viðeigandi málnotkun í fræðilegum skrifum og hún þjálfuð.
Fjallað verður sérstaklega um heimildaleit og heimildamat; gæði heimilda og hvernig greina megi vandaðar heimildir frá óvönduðum. Þá fá nemendur þjálfun í heimildaskráningu. Einnig verða nemendur þjálfaðir í að nota heimildir í eigin skrifum og greina milli eigin raddar og heimildarinnar sjálfrar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um íslenska menningu og bókmenntir í víðum skilningi og þátt þeirra í almennri málnotkun sem og í málheimi ólíkra faggreina innan skólakerfisins. Einnig verður fjallað um máltöku barna og helstu vörður hennar.
Fengist verður við grundvallarhugtök í bókmenntafræði, orðræðugreiningu og menningarfræði og gefin dæmi um fjölbreyttar leiðir og miðla við kennslu sem stuðla að skilningi og áhuga grunnskólanema á eigin menningu og annarra.
Kennaranemar fá tækifæri til að lesa fagurbókmenntatexta úr fortíð og nútíð og setja í samhengi við eigin reynsluheim og kennslu ólíkra faggreina í framtíðinni.
Fjallað verður um fjölbreytta texta, jafnt fagurbókmenntir sem nytjatexta og afþreyingartexta, með það að markmiði að nemendur geri sér grein fyrir því að tungumálið er það verkfæri sem við notum í öllu okkar daglega lífi og námi þvert á námsgreinar. Í námskeiðinu verður leitast við að búa nemendum í hendur verkfæri til að greina texta í umhverfi sínu á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt.
Kennaranemar fræðast um máltöku barna og eðli mannlegs máls. Fjallað verður um eðlileg frávik í máli barna en einnig gerð grein fyrir algengustu frávikum í málþroska og tengslum málþroska við læsi og lestrarfærni. Athygli verður beint að breytileika í máli barna á grunnskólaaldri, ólíkri íslenskufærni barna í skóla fjölbreytileikans, sem og viðhorfum til íslensku og erlendra tungumála í skólakerfinu.
Í fyrirlestrum kennara og verkefnum kennaranema verður sjónum beint að því hvernig samþætta má ólíkar námsgreinar grunnskólanna. Þannig verður einblínt á þann þátt kennarastarfsins sem felur í sér að kenna ólíkar námsgreinar á íslensku. Nemendum gefst því tækifæri til að ígrunda þátt tungumálsins í ólíkum greinum, t.d. samfélagsfræði, stærðfræði og raungreinum, erlendum tungumálum, og ekki síst í listgreinum, t.a.m. myndmennt og leiklist.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu kynnast kennaranemar meginmarkmiðum náms í stærðfræði í grunnskóla.
- Fjallað er um hvað felst í stærðfræðinámi og hvernig styðja má grunnskólanemendur við stærðfræðinám.
- Nemendur kynnast hvernig fjölbreyttar leiðir í kennslu geta stuðlað að því að skilningur nemenda á stærðfræðilegum hugtökum styrkist.
- Fjallað er um hlutverk stærðfræðikennarans og hæfni sem hann þarf að búa yfir.
- Nemar kynnast beitingu upplýsingatækni við nám og kennslu.
- Lögð er áhersla á að nemar læri að vinna saman að lausn stærðfræðiverkefna og kennslufræðiverkefna.
- Nemar vinna verkefni í hverjum tíma í námskeiðinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu styrkja nemar tök sín á völdum þáttum úr stærðfræði, þar á meðal talnafræði og rúmfræði. Jafnframt er fjallað um talnaritun og reikning.
Áhersla er lögð á fjölbreytni og sjálfstæði í leit að lausnum á stærðfræðilegum þrautum. Nemendur kynnist því hvernig fjölbreyttar leiðir í kennslu geta stuðlað að auknum skilningi nemenda á stærðfræðilegum hugtökum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðKME102GInngangur að kennslufræði grunnskólaSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSÞar af 1 vettvangseiningarNámskeiðslýsingUm er að ræða inngangsnámskeið í kennslufræði, ætlað verðandi grunnskólakennurum. Hér eru hugmyndir, aðferðir og hugtök kynnt til sögunnar, sem fá svo ítarlegri umfjöllun og meðferð í síðari kennslufræðinámskeiðum (NK-námskeiðum). Meginmarkmið er að veita nemendum innsýn í kenningar og rannsóknir um nám og kennslu í skóla án aðgreiningar, auk þess að gefa mynd af störfum og starfsumhverfi grunnskólakennara. Áhersla er lögð á tengsl við starfsvettvang og að nemendur tengi viðfangsefni námskeiðsins eigin reynslu og viðhorfum og leggi grunn að eigin starfskenningu. Farið er í 15 klst. vettvangsnám þar sem nemendur kynnast starfi grunnskóla.
Mikilvægar hugmyndir, hugtök og viðfangsefni: Námskenningar, menntarannsóknir, nám-nemandi-námsaðstæður, kennsluhættir og kennsluáætlanir, samskipti og samstarf, kennarinn sem fagmanneskja, starfskenning og starfsuhverfi kennara, lagarammi, reglugerðir og námskrár sem snerta skyldunám.
Vinnulag: Fyrirlestrar, málstofur, skapandi viðfangsefni og margvísleg verkefni unnin einstaklingslega eða í samvinnu við aðra. Tengsl við vettvang.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
- Námskeiðslýsing
Námskeiðið miðar að því að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og geti beitt þekkingu sinni á því í skólastarfi.
Nemendur kynnast lykilhugtökum námsmats- og námskrárfræða. Fjallað er um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð og þróun skólanámskrár eru gerð skil og þar með einnig við gerð námsáætlana fyrir námshópa, bekki eða einstaka nemendur.
Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og notkun einkunna og vitnisburða). Lögð er áhersla á að nemendur kynnist helstu hugtökum og aðferðum í námsmatsfræðum.
Nemendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms.
Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum, kynningum, umræðum í málstofum og hópverkefnum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Óháð misseri
ÍET202G, ÍET402GInngangur að enskukennsluBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFarið verður yfir þróun tungumálakennslu undanfarinna áratuga og sjónum einkum beint að þekkingu og skilningi á þeim straumum og stefnum sem nú eru efst á baugi. Fjallað verður um hugtök, kenningar, aðferðir og þá þætti sem stuðla að fagmennsku tungumálakennarans og nemendur öðlast reynslu í að ígrunda eigin afstöðu og hugmyndir. Kynntar verða rannsóknir á tungumálanámi og kennslu og fjallað sérstaklega um nemendamiðaða kennslu.
Námskrá í ensku verður yfirfarin og greind. Kennaranemar fá tækifæri til að skoða og meta kennslu á myndböndum og þjálfast í að ígrunda eigin hugmyndir um kennslu og eigin reynslu af tungumálanámi.
Vinnulag:
Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku og mikið verður lagt upp úr lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu og dæmakennslu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET202G, ÍET402GEnskukennsla fyrir unga byrjendurBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni:
Fjallað verður um markmið, leiðir og aðferðir, einkum þær sem tengjast hlustun, töluðu máli, leikjum, söngvum og leikrænni tjáningu. Einnig verður fjallað um lestur, orðaforða, ritun og námsmat að því marki sem hæfir ungum byrjendum. Lögð verður áhersla á að viðfangsefni barna í tungumálanámi þurfi að vera í samræmi við þroska þeirra. Námskrá og námsefni verður skoðað og nemar fá þjálfun í skipulagningu kennslustunda og þemavinnu. Hugað verður að leiðum til að samþætta enskukennslu öðrum námsgreinum. Hluti þessa námskeiðs fer fram á vettvangi yngri bekkja grunnskólans. Í vettvangsnáminu fá kennaranemar þjálfun í gerð kennsluáætlana og þjálfun í að leggja fyrir verkefni af ýmsum toga sem taka mið af þörfum byrjenda. Ígrundun er snar þáttur í náminu og liður í að þróa starfskenningu kennaranema.
Vinnulag:
Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku og mikið verður lagt upp úr lestri og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu og dæmakennslu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET404GFjölmenning og tungumálakennslaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingFjallað verður um kennsluaðferðir í tungumálakennslu og fjölmenningarlega kennslu sem tekur mið af fjölbreyttum nemendahópi, mismunandi þörfum nemenda og bakgrunni. Kennslan verður byggð á fyrirlestrum, umræðum, verkefnavinnu og kynningum nemenda á verkefnum sínum.
Meginmarkmið fjölmenningarfræðslu eru að:
- hlúa að mannréttindum, stuðla að félagslegu réttlæti og styðja við jafnrétti í menntun
- viðurkenna gildi menningarlegrar fjölbreytni og nota hana sem tæki til að styðja við nám
- efla virðingu fyrir menningarmun (málfræðilegum, þjóðernislegum, andlegum, kyni og kynhneigð, félagshagfræðilegum o.s.frv.) og efla skilning á mismunandi lífsvali og lífsreynslu.
Hluti þessa námskeiðs fer fram á vettvangi grunnskólans. Í vettvangsnáminu fá nemar þjálfun í gerð kennsluáætlana og að leggja fyrir verkefni af ýmsum toga sem taka mið af mismunandi bakgrunni og þörfum nemenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuÍET303GDönsk málnotkun og máltaka nemenda í grunn- og framhaldsskólaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist skilning á eðli og uppbygging danska málkerfisins og kunni skil á hvernig nemendur í grunnskóla tileinka sér dönsku sem erlent tungumál. Markmið námskeiðsins er einnig að kennaranemar skilji setningarfræði í dönsku og hvernig málfræðileg greining er samofin allri athugun á máli og málnotkun nemenda, bæði töluðu og rituðu.
Fjallað verður um danska málkerfið, málfræðihugtök, málsnið og einkenni ritað máls. Einnig verður fjallað um hvernig nemendur tileinka sér erlent tungumál (acquisition). Kennaranemum eru kynntar rannsóknir um hvernig danska málkerfið er kennt sem erlent og annað mál. Athugað verður hvaða villur Íslendingum hættir til að gera í dönsku ritmáli. Athugunar gerðar á ritunarverkefnum grunn- og framhaldskólanemenda. Lesnir eru einnig fræðilegir textar um danskt mál og málnotkun og fjallað verður áfram um danska málkerfið, málfræðihugtök, málsnið og áhersla er lögð á danska setningarfræði. Farið er í þætti sem einkenna danskt talmál og þætti sem valda Íslendingum erfiðleikum og skoðað er hvernig danskt talmál er kennt í skólakerfinu. Lesnir eru fræðilegir textar um danskt mál og málnotkun og kennslu erlendra tungumála. Áhersla lögð á að skilgreina millimál nemenda (da: intersprog) og hvaða þýðing það hefur fyrir dönskukennsluna.
Vettvangnám er hluti af þessu námskeiði (2e).
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET401GMenningarmiðlun í dönskukennslu 1Skyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist þekkingu á og innsýn í danskt þjóðlíf og menningu. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á kenningum um þjóð- og fjölmenningu. Námskeiðið fjallar um fjölmargar hliðar á dönsku samfélagi og danskri menningu eins og það birtist í fjölmiðlum, bókmenntum, dægurmenningu og í daglegu lífi fólks. Umfjöllunin miðar við að kennaranemar verði færir um að miðla danskri menningu í kennslu og virkja nemendur í verkefnavinnu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSNU208G, SNU012GNáttúruvísindamenntun – Hugmyndir nemenda, verklegt og virk þátttakaBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu er fjallað um grunnþætti kennslufræði náttúruvísinda í grunnskóla með áherslu á verklega kennslu, athuganir og tilraunir, notkun upplýsingatækni og fjölbreyttar leiðir til að efla skilning og áhuga nemenda. Nemendur kynnast hugmyndum um hversdagshugmyndir, mishugmyndir og hugtakanám í náttúruvísindum á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi. Skoðaðar eru leiðir til að skipuleggja kennsla í ljós námsáskorana sem hversdagsleg reynsla nemenda og málheimur valda.
Fjallað er um notkun sýndartilrauna, skapandi miðlunar og stafrænnar tækni í kennslu, sem og um ávinning og áskoranir tengdar útikennslu og útinámi. Vettvangsnám er samþætt námskeiðinu og nemendur nýta hluta námsins (2 Ve) í grunnskóla, þar sem þeir tengja fræðilegt inntak námskeiðsins við skipulagningu, framkvæmd og ígrundun kennslu í náttúruvísindum. Áhersla er lögð á virka þátttöku, verklega vinnu og ígrundun sem grunn að áframhaldandi námi í náttúruvísindakennslu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSNU208G, SNU012GAð kenna um rafmagn og segulmagnBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um rafmagn og segulmagn. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Rafmagn, rafhleðslur, rafkrafta, stöðurafmagn, rafstrauma, segulmagn, segulkraftar, víxlverkun rafmagns og segulmagns, og framleiðsla og nýting rafmagns.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuSNU009G, SNU209GNám og náttúruvísindi á 21. öldBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingRædd verða valin viðfangsefni varðandi náttúruvísindamenntun og þróun hennar á 21. öld. Fjallað verður um gildi náttúruvísindamenntunar og mismunandi markmið náttúruvísindanáms. Fjallað verður um eðli náttúruvísindalegrar þekkingar, aðferðir náttúruvísinda og leiðir til að efla skilning grunnskólanema á eðli náttúruvísinda. Rýnt verður í stöðu náttúruvísindamenntunar á Íslandi og skoðaðir styrkleikar og veikleika þeirrar menntunar samkvæmt niðurstöðum íslenskra rannsókna og alþjóðlegra mælikvarða. Í því ljósi verður rætt um hvaða áskorunum við stöndum helst frammi fyrir og hvaða leiðir gætu reynst vænlegar til úrbóta. Skoðaðar verða bæði nýjungar í skólastarfi og þekktar leiðir sem reynsla er komin á. Einnig verður skoðuð nýsköpun í náttúruvísindum á Íslandi og hagnýting náttúruvísindanna.
Fjallað verður um:
- Eðli vísindalegrar þekkingar og vísindaleg heimspeki
- Stefnumótun og námskrárgerð í tengslum við 21. aldar hæfni
- Hvernig náttúruvísindi nýtast í nýsköpun?
- Hvers vegna náttúruvísindanám er mikilvægt og hvaða starfsmöguleikar tengjast náttúruvísindum? Hagnýting náttúruvísinda.
- Námskrár náttúruvísindamenntunar
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSNU009G, SNU209GJörðin og lofthjúpurinnBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu er fjallað um innri gerð jarðar, jarðskorpuhreyfingar og áhrif innrænna (eldvirkni) og útrænna afla (veðurfar og vatn) á mótun landsins, bergtegundir, eldgos og jarðskjálfta. Stöðu jarðarinnar í sólkerfinu, árstíðaskipti, dægraskipti og grundvallar orkuferli jarðar. Fjallað um veður og loftslag. Kynntar verða hugmyndir að kennslu jarðfræðilegra viðfangsefna og rannsóknir sem þeim tengjast. Þá verður sjónum meðal annars beint að möguleikum sem felast í útinámi með skoðun á jarðfræðilegum fyrirbærum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSNU004G, SNU203GSamspil lífvera og umhverfisBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu er fjallað um grunnhugtök og meginþætti vistfræðinnar með áherslu á samspil lífvera og umhverfis. Nemendur kynnast eðli og gerð vistkerfa, þar á meðal flæði orku, hringrásum efna, stöðugleika og framvindu vistkerfa. Fjallað er um samfélög lífvera, tengsl þeirra sín á milli og við umhverfi sitt, auk stofnabreytinga og líffræðilegs fjölbreytileika.
Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi líffjölbreytileika og sjálfbærrar þróunar, sem og á áhrif mannlegra athafna á náttúru og umhverfi. Tekin eru fyrir dæmi um íslensk vistkerfi, einkenni þeirra, sérstöðu og vistfræðilegt gildi, ásamt helstu umhverfisáskorunum á Íslandi og á heimsvísu.
Námskeiðið leggur áherslu á hvernig nálgast megi vistfræðileg viðfangsefni í kennslu unglinga á grunnskólastigi. Rýnt er í mikilvægi rannsóknarmiðaðs náms, skapandi náms og útináms til að efla skilning nemenda á vistfræðilegum hugtökum og tengja þau við daglegt líf og samfélagslega ábyrgð. Nemendur fá reynslu af að skipuleggja útikennslu og umhverfismennt þar sem náttúrutúlkun, tengsl lífvera og áhrif mannsins á náttúru eru í forgrunni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu verður fjallað um gerð fruma og skiptingu, um vefi, líffæri og starfsemi þeirra. Þá verður fjallað um heilbrigðisuppeldi og varnir, ábyrgð og skilning einstaklingsins á eigin líkama. Áhersla verður lögð á að kynna fjölbreyttar leiðir sem nota má í kennslu um viðfangsefnin.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSNU017G, SNU105GHin lifandi náttúra í nærumhverfinuBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu verður sérstök áhersla á hina lifandi íslensku náttúru sem kemur fyrir í daglegum reynsluheimi nemenda. Í því samhengi verður lögð sérstök áhersla á staðbundið nám (place-based education). Sjónum verður beint að möguleikum í verklegum viðfangsefnum í útinámi barna og ungmenna í nærumhverfi skóla, en viðfangsefnin einnig tengd við athafnir innan skólastofu. Ýmsar leiðir til að rannsaka hina lifandi náttúru verða kynntar, svo sem skoðun og greining á plöntum sem og aðferðir við að safna smádýrum og greiningar á lífverum æfðar. Nemendur fá einnig reynslu af að skipuleggja útikennslu. Þá verður nemendum kynnt tækifæri sem notkun upplýsingatækni veitir til að efla áhuga og forvitni um náttúruna. Verklag mun taka mið af því að nemendur kynnist fjölbreyttum kennsluaðferðum sem reynst hafa árangursríkar í náttúrufræðikennslu. Námskrá og námsefni grunnskóla sem tengist viðfangsefni námskeiðsins verður einnig skoðað.
Á dagskrá verða plöntur, fuglar, smádýr, ferskvatns- og fjörulífverur með áherslu á búsvæði þeirra og aðlögun að umhverfi sínu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSNU017G, SNU105GAð kenna efna- og varmafræðiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um hugtök og kenningar á sviði efnafræði og varmafræði sem kennd eru í grunnskólum og leiðir til að kenna þessa þætti til skilnings með mikla áherslu á verklegar tilraunir og athuganir. Þá verður nemendum kynnt tækifæri sem notkun upplýsingatækni veitir til að efla áhuga og forvitni um náttúruna. Á námskeiðinu verður fjallað um uppbyggingu efna, efnabreytingar, frumeindakenninguna og lotukerfið, varmaorku og hitastig, varmaflutninga, nýting varmaorku og orkuferli sem tengjast efnabreytingum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET104G, ÍET205GÍslenska sem kennslugrein IBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður lagður grunnur að fræðilegri þekkingu verðandi íslenskukennara á íslenskum bókmenntum til undirbúnings kennslu þeirra í grunnskóla. Lögð verður áhersla á að efla nemendur sem sjálfstæða lesendur bókmennta af fjölbreyttu tagi. Einnig verður fengist við talað mál, hlustun, áhorf, lestur og ritun á fræðilegum grundvelli og með hagnýtum verkefnum. Í námskeiðinu er fjallað um virka hlustun og virkt áhorf og nemendur þjálfaður í að miðla þekkingu sinni í töluðu máli og til að nýta fjölbreytta miðla til að efla þessa þætti hjá sjálfum sér.
Fjallað verður um samtímabókmenntir fyrir börn og fullorðna sem og frásagnir í öðrum miðlum svo sem í leikhúsi og kvikmyndum. Unnið verður með almennar greiningaraðferðir og læsi þjálfað til skilnings og túlkunar. Lögð verður áhersla á hvernig textar geta skapað umræðu um siðferðileg hugtök og álitamál. Jafnframt verða bókmenntatextar lesnir með það fyrir augum að nemendur njóti þeirra og deili lestrarreynslu sinni með öðrum.
Kennaranemar fást við að greina talmál frá ritmáli á fræðilegan hátt og þjálfast í að vinna með ólíkar gerðir talaðs máls og texta á mismunandi textasviðum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET104G, ÍET205GÍslenska sem kennslugrein IIBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður lögð áhersla á hagnýtingu fræðilegrar þekkingar kennaranema í íslensku. Nemendur verða þjálfaðir í fjölbreyttum leiðum og aðferðum við íslenskukennslu sem eiga að stuðla að auknum skilningi og áhuga á viðfangsefnum í íslensku. Einnig verður fjallað um skipulag og undirbúning kennslu sem og námsmats.
Fjallað verður um þá þætti í íslenskukennslu sem snúa að málfræði og ritun. Einnig verður fjallað um grunnþætti menntunar og hvernig kennaranemar geta fléttað þá inn í íslenskukennslu sína. Áhersla verður lögð á þjálfun í að vinna með hæfniviðmið og matsviðmið fyrir íslensku og stuðla að stígandi í kennslu í meginþáttum kennslugreinarinnar.
Kennaranemar fá æfingu í að nálgast viðfangsefni sín í íslenskukennslu á gagnrýninn hátt og að hagnýta sér rannsóknir og fræðileg skrif. Þeir hljóta einnig reynslu af því að vinna á gagnrýninn hátt með fyrirliggjandi kennsluefni og bera saman við núgildandi aðalnámskrá í því augnamiði að þróa eigin kennslu og kennsluhætti. Jafnframt verður til umfjöllunar samþætting íslensku við aðrar faggreinar.
Fjallað verður um hvernig kennarar geti skipulagt kennslu út frá forsendum fjölbreytts nemendahóps þannig að grunnskólanemar fái tækifæri til að nálgast viðfangsefni í íslensku út frá eigin reynslu og áhugasviðum.
Í námskeiðinu eru vettvangseiningar og nemendur fara á vettvang í grunnskóla. Viðfangsefni námskeiðsins verða sömuleiðis tengd við vettvang. Í vettvangsvikum fylgjast kennaranemar með kennslu á vettvangi, ígrunda hana og meta í samræmi við umfjöllunarefni námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLVG105G, LVG207GListir I: Leiklist, myndlist, tónlistBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Nemendur kynnast þýðingu lista í námi barna og unglinga. Umfjöllun um leiklist, tónlist og myndlist í skólastarfi. Verkleg viðfangsefni eru þróuð út frá hugmyndum nemenda.
Vinnulag: Fjölbreyttar smiðjur sem byggja á mismunandi kveikjum og margvíslegri úrvinnslu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLVG105G, LVG207GListir II: Leiklist, myndlist, tónlistBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Nemendur halda áfram að kynnast þýðingu lista í námi barna og unglinga. Umfjöllun um leiklist, tónlist og myndlist í skólastarfi á vettvangi. Fjallað verður um samþættingu listgreinanna og hvernig hægt er að vinna með myndir, hljóð, texta og sviðsetningu í skólastarfi

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG101G, SFG201GInngangur að kennslu samfélagsgreinaBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Námskeiðið er inngangur að kennslu samfélagsgreina með áherslu á þjálfun í rökræðum, gagnrýna hugsun og hæfni í að skoða mismunandi sjónarhorn. Á námskeiðinu vinna nemendur með forhugmyndir sínar og taka ígrundaða afstöðu til viðfangsefnanna og samtímis er veitt innsýn í ýmis viðfangsefni sem fjallað er um í samfélagsgreinum (sbr. aðalnámskrá).
Vinnulag: Umræður og verkefnavinna fara fram í kennslustundum á miðvikudögum í rauntíma á Zoom. Auk þessa verða rökræðutímar í hverri viku. Nemendum er skipt í hópa og mæta með sínum hópi allt misserið. Skyldumæting er í rökræðutímana (80%). Hægt verður að velja á milli rökræðutíma á staðnum í Sögu eða í rauntíma á Zoom. Hvorki miðvikudagstímar né rökræðutímar verða teknir upp.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG101G, SFG201GLífsskoðanir og menntunBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á helstu þáttum sem móta lífsskoðanir fólks og verði betur í stakk búnir til að kenna samfélagsgreinar í nemendahópum þar sem lífsskoðanir geta verið fjölbreytilegar. Í námskeiðinu er vaxandi áhersla innan menntavísinda á lífsskoðunarhugtakið tekin til umfjöllunar og lífsskoðunarhugtakið rætt og greint frá ýmsum sjónarhornum og ýmsir uppistöðuþættir þess teknir til umfjöllunar. Í námskeiðsinu verður unnið með meginþætti lífsskoðana sem birtast meðal annars í spurningum um siðferði, trú, samfélagssýn og stjórnarfar, fjölskyldur og persónulegt nærumhverfi fólks, og hvernig réttindi og skyldur móta framtíðarsýn einstaklinga.
Vinnulag: Námskeiðinu er skipt í tveggja til þriggja vikna lotur þar sem fengist er við eitt þema í hverri lotu. Fyrirlestrar verða á neti og lesefni verður aðgengilegt á Canvas í skjölum eða á nettenglum. Lokapróf gildir 40%, en verkefni og önnur verkefni 60%. Athugið að hluti námskeiðsins er vettvangsnám (2 vettvangseiningar) sem er skilyrði fyrir að ljúka námskeiðinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLVG104G, LVG206GHönnun sem uppspretta sköpunarBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er kynning á kennslu og gildi uppeldismiðaðra hönnunar- og handverksgreina: Hönnun og smíði, Textíll og hönnun og Heilsuefling og heimilisfræði. Verkefnahugmyndir eru lagaðar að ólíkum faggreinum námskeiðsins. Áhersla er lögð á þekkingar- og færniþætti frá hugmynd að fullvinnslu í öllum verkþáttum námskeiðsins. Nemendur vinna viðfangsefni sem henta vel í skólastarfi og skrá vinnuferli í ljósmyndum, teikningum og í textaformi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLVG104G, LVG206GKennslufræði handverks og hönnunar í textíl og smíðiBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið er að undirbúa kennaranema fyrir vettvangsnám í hönnunar- og handverksgreinum með áherslu á kennslufræðilega þætti. Í verkefnavali taka nemendur mið af grunnþáttum menntunar og hæfniviðmiðum faggreinanna í Aðalnámskrá grunnskóla. Í úrvinnslu verkefna er lögð er áhersla á skapandi og fagleg vinnubrögð. Nemendur fá þjálfun í gerð kennsluáætlana, kynnast fjölbreyttum kennsluaðferðum og bera saman ólíkar námsmatsleiðir í faggrein. Nemar halda leiðarbók og skrifa greinargerð um vettvangshluta námsins; áhorf, aðstoð við kennslu, framkvæmd kennsluverkefna og eigin kennslu. Nemar skila ferilmöppu og kynna afrakstur af vettvangsnámi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSNU102G, SNU207GÞættir úr algebru og rúmfræðiBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni eru valin atriði úr sígildri rúmfræði, hnitarúmfræði og algebru ásamt kynningu á hugbúnaði sem nýtist við rúmfræði- og algebrunám og kennslu.
Fjallað verður um grunnatriði Evklíðskrar rúmfræði; hugtök, frumforsendur og setningar um samsíða línur, marghyrninga og hringi. Fengist er við einfaldar teikningar með hringfara og reglustiku. Einnig verður farið í atriði úr hnitarúmfræði, t.d. jöfnu hrings og kynntar lausnaraðferðir fyrir línulegar jöfnur og jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur, tölugildisjöfnur og ójöfnur.
Kennt verður á hugbúnaðinn GeoGebru og hann nýttur við myndræna túlkun, tilgátusmíð og teikningar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSNU102G, SNU207GStærðfræði í grunnskólaBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu eru kynntar leiðir til þess að byggja upp rökrétta samfellu í stærðfræðinámi þar sem meginhugmyndir greinarinnar og tengsl þeirra innbyrðis verða sífellt skýrari og víðtækari. Fjallað er um markmið stærðfræðikennslu í grunnskóla, námsefni grunnskólans, stærðfræðilega hæfni og stærðfræðileg samskipti. Áhersla er lögð á aðgengi og jafnræði í stærðfræðinámi og á kennsluhætti sem taka mið af fjölbreyttum forsendum, reynslu og tungumálabakgrunni nemenda. Í námskeiðinu greina nemar námsefni, verkefni og lausnir grunnskólanema og æfa sig að kenna og greina kennslu í hópi jafningja. Nemendur eiga á grundvelli reynslu sinnar á vettvangi að ígrunda kennslu sína, val á viðfangsefnum, hlutverk kennarans og samskipti við nemendur og samskipti milli nemenda. Áhersla er lögð á kennsluhætti sem byggja á rannsóknum á stærðfræðinámi og -kennslu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSNU104G, SNU206GTækni, sköpun og miðlun í samskiptum og skólastarfiBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingHvernig má lýsa greinasviðinu upplýsinga- og tæknimennt og við hvað er átt þegar rætt er um nýsköpunarmennt eða nýsköpun í skólastarfi? Til hvers er vísað þegar rætt er um upplýsinga- og þekkingarsamfélag, upplýsinga- og tæknilæsi, stafræna efnisgerð og margmiðlun, miðlalæsi eða fjölhátta læsi, stafræn samskipti og námssamfélög, stafræna borgaravitund og þátttöku í lýðræðissamfélagi, tækni og forritun við hæfi barna og unglinga, hönnunarhugsun og frumkvöðlamennt, leik að hugmyndum, lausnaleit og samvinnu um sköpun?
Hvenær kom stafrænn búnaður fyrst inn í íslenska grunnskóla, hver hefur þróunin verið síðan og hvert stefnir? Hvaða hindranir og hvaða tækifæri fylgja tæknivæðingu í samskiptum og skólastarfi? Hver er líka saga nýsköpunarmenntar í grunnskólum og hvernig tengist hún hugmyndum um nýja tíma, samvinnu og lausnamiðuð vinnubrögð? Hverjir eru þættir upplýsingatækni, nýsköpunar og stafrænnar miðlunar í stefnumótun og námskrá og hvernig er háttað tengslum þeirra við önnur námssvið, lykilhæfni og grunnþætti menntunar?
Við skoðum á þessu inngangsnámskeiði framangreind viðfangsefni í innlendu og alþjóðlegu samhengi um leið og nemar fá tækifæri til að fást við hagnýt og skapandi verkefni, prófa tæknilega möguleika og stafræn verkfæri sem bjóða upp á áhugaverð tækifæri í námi og kennslu. Nemar efla færni sína á þessu sviði og horfa til hagnýtra möguleika á vettvangi og þeirra tækifæra sem felast í nýrri tækni til hugmyndavinnu, samskipta og starfsþróunar. Áhersla er lögð á myndun öflugs námssamfélags sem tekur virkan þátt á námskeiðinu, tekst á við áskoranir og deilir hugmyndum og reynslu í líflegum menntabúðum og með stafrænni miðlun á neti.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSNU104G, SNU206GTækni og nýsköpun í kennslustofu nýrra tímaBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu beinum við sjónum að því hvernig nýta má stafræna tækni, sveigjanlegt námsumhverfi og eflandi kennslufræði til að ýta undir atbeina nemenda og sköpunarkraft. Fjallað er um nýsköpunarmennt og þá kennslufræði sem henni tengist, áherslu á atbeina og framtak nemenda og kennara, samvinnu og teymiskennslu, innsæi og sköpun, gagnrýna nálgun og ígrunduð vinnubrögð í hvetjandi umhverfi. Dregið er fram hvernig tæknin sem verkfæri og viðfang geta leitt fram og stutt skólastarf þar sem áhrif nemenda, framlag og sýn fá að njóta sín. Við beinum sjónum að umhverfi náms og kennslu á neti og fæti, nýjum skólabyggingum, skólalóðum, vettvangsferðum og útikennslu, opnum og sveigjanlegum kennslurýmum í sögulegu ljósi, húsbúnaði og húsakynnum náms og kennslu, alltaf með þátt tækninnar og tækifæri henni tengd í huga. Sérstakri athygli verður beint að þætti list- og verkgreina þegar kemur að nýsköpun og samþættingu námsgreina um skapandi verkefni en einnig stöðu og hlutverki bókasafna, upplýsingavera og smiðjuvinnu í skóla- og frístundastarfi á nýjum tímum. Í vettvangsnáminu er lagt kapp á að nemar kynni sér þessa þætti sem best, gaumgæfi umhverfi náms og kennslu frá öllum hliðum, velti fyrir sér athafnakostum og þróunarmöguleikum tengdum stafrænni tækni og stafrænu námsumhverfi í samspili við önnur gögn og verkfæri en einnig húsbúnað, húsakynni og ytra umhverfi skóla. Lögð er rík áhersla á að nemar deili hugmyndum sínum og kynnum af skólastarfi með félögum sínum á námskeiðinu með ýmsu móti.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuGKY102G, GKY601GSamþætting og skapandi starfBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu er megináhersla á samþættingu námsgreina með því að nota Söguaðferðina (Storyline) sem meginþráð í náminu. Valin eru viðfangsefni tengd náttúru og samfélagi og unnið með þau á fjölbreyttan og skapandi hátt. Áhersla verður á að nemendur skynji námið sem heild. Hugað verður að námsmati og hvernig námsmatsaðferðir henta.
Lögð verður áhersla á ólíka reynslu og forsendur nemenda, út frá einstaklingmiðuðu námi og menntun fyrir alla í fjölmenningarsamfélagi þar sem gagnrýnin og skapandi hugsun er sem rauður þráður í gegnum námið.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuGKY102G, GKY601GSkapandi stærðfræðinámBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu kynnast kennaranemar hve skapandi stærðfræði er sem fræðigrein og hvernig ýta má undir leiðir til þess að byggja upp skapandi stærðfræðinám. Fjallað er um uppbyggingu stærðfræðihugmynda ungra barna, lausnaleit þeirra, námsmat og aðra þætti stærðfræðináms. Kennaranemar vinna verklega og taka þátt í umræðum um stærðfræðinám. Þeir ígrunda eigið stærðfræðinám og nýta vettvangsnám til þess að æfa það sem þeir læra á námskeiðinu og ígrunda eigin kennslu.
Sérstaklega verður hugað að því að kennaranemi styrki tök sín á inntaksþáttum og vinnubrögðum stærðfræðinnar til þess að hafa forsendur til að geta greint nám nemenda sinna. Sjónum verður beint að skilningi á helstu inntaksþáttum í stærðfræðinámi á yngsta stigi. Einnig verður fjallað um þátt tungumáls og röksemdafærslu í stærðfræðinámi.
Leiðir við kennslu og uppbygging námsumhverfis fá gott rými. Skoðað verður hvernig nálgast má viðfangsefni með rannsóknum, hlutbundinni vinnu, rafrænni leit, umræðum og uppsprettum úr daglegu lífi og umhverfi nemenda. Námsefni og námsgögn í stærðfræði verða greind og fjallað um náms- og kennsluumhverfi sem mætir ólíkum þörfum barna við stærðfræðinám. Hugað verður sérstaklega að stafrænum námsgögnum fyrir börn og leiðum til að meta slíkt efni. Fjallað verður um námsmat í stærðfræði og hvernig kennari getur nýtt sér mat á skilningi og færni nemenda til að byggja á við skipulag kennslu.
Kennaranemar kynnast fræðasviðinu stærðfræðimenntum og leiðum til að fylgjast með rannsóknum og þróun kennsluhátta til að þeir geti sótt sér hugmyndir og hvatningu til að þróa markvisst stærðfræðikennslu sína.
Vinnulag
Haldnir verða fyrirlestrar og nemendur taka þátt í umræðum og verklegri vinnu. Nemendur lesa sér til um rannsóknir og glíma sjálfir við stærðfræðileg viðfangsefni ásamt því að skipuleggja kennslu og kenna eftir skipulagi sínu.
Vettvangshluti námskeiðsins (4Ve) fer fram í samstarfsskólum Menntavísindasviðs og samsvarar tveimur vikum á vettvangi, 6 tíma á dag.Nemar halda dagbók um nám sitt og ígrundun á því frá upphafi námskeiðs og byggja á henni við skrif lokaverkefnis námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingTilgangur þessa námskeiðs er að nemendur öðlist heildarsýn á þroska barna frá fæðingu og fram á unglingsár.
Inntak/viðfangsefni:
Fjallað verður um þær breytingar sem verða á þroska barna á mismunandi sviðum og aldursskeiðum og helstu kenningar sem notaðar hafa verið til að varpa ljósi á þessar breytingar. Fjallað verður um vitsmunaþroska, tilfinningaþroska og þróun tilfinningalegra tengsla, félagsþroska, þróun sjálfsmyndar og siðferðisvitundar. Námskenningum og vistfræðilegum kenningum (ecological approach) verður einnig gerð skil. Rætt verður um orsakir og eðli einstaklingsmunar, samfellu í þroska og sveigjanleika þroskaferlisins. Tengsl náms og þroska, áhugahvöt og áhrif uppeldis, menningar og félagslegra aðstæðna á þroska barna verða einnig til umfjöllunar. Áhersla verður lögð á gildi þroskasálfræðinnar í uppeldis- og skólastarfi.Vinnulag:
Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðu/verkefnatímum. Í umræðu/verkefnatímum fá nemendur þjálfun í að ræða námsefnið á gagnrýninn hátt.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
- Námskeiðslýsing
Undir lok grunnnámsins vinna nemendur B.Ed.-verkefni sem skal vera á sviði aðalsérhæfingar og hafa gildi á sviði faggreinakennslu, sjá nánar í handbók.
Nemendur skrá óskir um efni og leiðbeinanda í form á Canvas vef. Umsjónarmenn námsleiða vinna úr óskunum og úthluta nemendum leiðbeinanda. Nemendur vinna sjálfstætt að lokaverkefni sínu með ráðgjöf frá leiðsögukennara.
Lokaverkefni vinna nemendur einir eða tveir saman. Nánari leiðbeiningar um tilhögun,vinnulag og frágang við lokaverkefni er að finna á vef lokaverkefna í grunnnámi í Uglu undir Fræðasvið - Menntavísindasvið - Fyrir nemendur.
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar- Óháð misseri
ÍET404GFjölmenning og tungumálakennslaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingFjallað verður um kennsluaðferðir í tungumálakennslu og fjölmenningarlega kennslu sem tekur mið af fjölbreyttum nemendahópi, mismunandi þörfum nemenda og bakgrunni. Kennslan verður byggð á fyrirlestrum, umræðum, verkefnavinnu og kynningum nemenda á verkefnum sínum.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðDAN112GDanska: Tunga, tjáning, menningSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið er að nemendur öðlist aukna alhliða samskiptahæfni á dönsku sem tekur til allra færniþátta; hlusta, lesa, tala, skrifa (fimmti færniþátturinn er „að samtala“). Í námskeiðinu verður unnið með danska menningu, hefðir og siði í víðu samhengi. Áhersla verður lögð á markvissa vinnu með þemabundinn orðaforða, auk þess sem nemendur þjálfast í notkun hvers konar hjálpargagna á sviði veforðabóka og leiðréttingaforrita. Efniviður námskeiðsins verður sóttur í alla hugsanlega miðla; dagblöð, tímarit, smásögur, söngtextar, útvarps- og sjónvarpsefni og kvikmyndir.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuÍET303GDönsk málnotkun og máltaka nemenda í grunn- og framhaldsskólaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að kennaranemar öðlist skilning á eðli og uppbygging danska málkerfisins og kunni skil á hvernig nemendur í grunnskóla tileinka sér dönsku sem erlent tungumál. Markmið námskeiðsins er einnig að kennaranemar skilji setningarfræði í dönsku og hvernig málfræðileg greining er samofin allri athugun á máli og málnotkun nemenda, bæði töluðu og rituðu.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET201MTölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumálaValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að
- veita þátttakendum yfirsýn yfir og skilning á helstu kenningum og rannsóknum um tölvutengt tungumálanám.
- þátttakendur öðlist þekkingu og kunni skil á helstu kenningum og rannsóknum um rafræn læsi (digital literacies) og tungumálnam.
- þátttakendur fái tækifæri til að tengja saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu af tölvu og upplýsingartækni í tungumálakennslu.
Viðfangsefni:
Á námskeiðinu verður fjallað um áhríf upplýsingartækni á uppeldi, menntun og skólastarf. Lögð er áhersla á að fjalla um tölvustutt tungumála nám (CALL - Computer Assisted Language Learning) og áhríf og þróun þess síðastliðin 30 ár. Einnig verður fjallað um kenningar og rannsóknir er varðar notkun upplýsingartækni í tungumálanámi í skólastofunni í grunn- og framhaldsskóla. Ýmis forrit verða kynnt og skoðað hvernig má nýta þau til að þjálfa mismunandi þættir tungumálsins.Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Nemendur fá margvísleg verkefni til úrlausnar og skila úrlausnum ýmist munnlega eða skriflega. Einnig munu þátttakendur vinna einir eða í hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Efnið gætu tengst nýtingu tölvu og veraldarvefsins i tungumálakennslu, rannsóknar- og þróunarstörfum, fjarkennslu erlendra tungumála, gerð rafræns námsefnis til notkunar í tungumálakennslu, vendinám, notkun spjaldtölvur í tungumálanámi o.fl. Nemendur vinna og skila rafræn ferilsmöppu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFAG101MJafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfiSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME501GAðferðafræði og menntarannsóknirSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðsins fela í sér tvennt. Annars vegar er um að ræða þjálfun í rannsóknaraðferðum, meðferð gagna og úrvinnslu þeirra og hins vegar læsi á menntarannsóknir, sem aðrir hafa framkvæmt og niðurstöður þeirra. Í öllum þáttum námskeiðsins er lögð áhersla á þekkingu og skilning á helstu hugtökum og hugmyndum úr aðferðafræði menntarannsókna. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þessi hugtök í lesefninu og beiti þeim í verkefnum er tengjast megindlegum, eigindlegum og blönduðum aðferðum, einnig aðferðum við starfendarannsóknir.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuAnnað ár- Óháð misseri

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÞriðja ár- Óháð misseri