""
Tungumál kennslu
Franska. Flestar kennslubækur eru á frönsku.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Viltu öðlast þekkingu og skilning á frönsku samfélagi?
  • Hefur þú áhuga á frönskum menningarheimi?
  • Viltu læra um samtímann og sögu Frakklands og frönskumælandi landa?
  • Hefur þú áhuga á að læra frönsku?
  • Viltu taka þátt í fjölbreyttum námskeiðum á þínu áhugasviði?

BA nám frönskum fræðum er þriggja ára nám til 180 eininga.

Þetta nám er einnig hægt að taka sem 120 eininga aðalgrein eða sem 60 eininga aukagrein.  

Nám í frönskum fræðum veitir nemendum góða þekkingu á franskri tungu, bókmenntum, menningu, sögu og þjóðlífi hins frönskumælandi heims.

Meðal viðfangsefna

  • Frönsk málfræði
  • Framburður og lestur
  • Heimur þýðinga
  • Saga Frakklands
  • Franskar bókmenntir og menning
  • Leiklist, smásögur og ævintýri
  • Frönsk málsaga
  • Bókmenntaþýðingar úr frönsku
  • Listasaga og heimspeki

Markmið

Veita nemendum góða þekkingu á franskri tungu og gagnlega innsýn í menningu og þjóðlíf hins frönskumælandi lands.

Námið og kennslan

Nám í frönsku er fjölþætt. Á öllum stigum og í öllum námskeiðum BA-námsins fá nemendur þjálfun í notkun tungumálsins þótt á ólíkan hátt sé.

Á 1. námsári er mikil áhersla lögð á málfræði og talþjálfun en þær hliðar námsins teygja sig einnig inn í kennslu í bókmenntum, menningu og sögu Frakklands. Nemendur kynnast þróun tungumálsins, málvísindum og þýðingum. Loks fá þeir innsýn í menningarfræðilega, sögulega og samfélagslega þætti.

Kennsluhættir eru fjölbreyttir. Nemendur sitja námskeið, taka þátt í málstofum og umræðuhópum og sækja tíma í málveri. Þeir fá þjálfun í akademískum vinnubrögðum, ritun texta, málfræði, bókmenntarýni og fræðikenningum.

Skáldsögur, smásögur, leikrit og ljóð eru lesin og sett í samhengi við hugmyndasögu og samfélagshræringar. Reynt er að bjóða reglulega upp á námskeið í kvikmyndum Frakklands og annarra frönskumælandi landa, leiklist og samfélagsrýni. Gestakennarar frá erlendum háskólum koma inn í kennsluna og halda fyrirlestra á sínu sérsviði.

Nám í frönskum fræðum má tengja öðru námi við Háskóla Íslands og öðrum skólum á fjölmargan hátt. Frönsk fræði má taka sem aukagrein með öllum greinum sem kenndar eru á Hugvísindasviði en einnig með stjórnmálafræði, ferðamálafræði, mannfræði og viðskiptafræði með áherslu á alþjóðasamskipti, svo eitthvað sé nefnt.

Erlend samskipti

Nemendur taka gjarnan hluta námsins við frönsku- og bókmenntafræðideildir í erlendum háskólum. Námsbrautin er í góðu samstarfi við fjölmarga háskóla í Frakklandi, Kanada, Belgíu og víðar. Þar fá nemendur tækifæri til að kynnast ólíkum menningarheimum af eigin raun.

Vegna samninga við erlenda háskóla (Grenoble, Brest, Montpellier, Nice, París (3, 4, 10), Perpignan, Strasbourg, Toulouse, Antilles, Montréal, Brussel o.fl.) er unnt að taka hluta af námi í greininni erlendis í samráði við fasta kennara. Einnig er mögulegt að stunda nám við frönsku- og bókmenntafræðideildir háskóla í öðrum löndum.

Í sumum tilvikum er unnt að fá styrki á vegum Erasmus+. Nemendur sem taka frönsk fræði til 120 eða 180 eininga geta nýtt sér þennan möguleika.

Nemendur þurfa að ljúka námskeiðum fyrsta námsárs til að geta sótt um skiptinám í greininni.

Nemendur velja hvort þeir fara utan í eitt misseri eða tvö. Þeir geta skrifað BA-ritgerð sína erlendis en þá er æskilegt að þeir hafi áður valið efni og leiðbeinanda.

Um frönsku og framhaldið

Franskan er mikilvægt tungumál í alþjóðasamstarfi. Hún er, ásamt ensku og þýsku, vinnumál (langue de travail) hjá Evrópusambandinu og eitt sex opinberra tungumála hjá Sameinuðu þjóðunum.

Nám í frönskum fræðum veitir nemendum góða þekkingu á franskri tungu, bókmenntum, menningu, sögu og þjóðlífi hins frönskumælandi heims.

Eftir BA-próf má læra frönsku til MA-prófs en einnig er hægt að fara í framhaldsnám í öðrum greinum.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla. Nánari upplýsingar er að finna í 15. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Gert er ráð fyrir því að færni nemenda við upphaf BA-náms í frönskum fræðum sé A2 skv. samevrópska tungumálarammanum. Allir nýnemar taka leiðbeinandi próf í fyrstu viku misseris.

Til BA-prófs er krafist minnst 180 eininga og teljast 60 einingar á námsári vera fullt nám.

Nemandi skal ljúka öllum skyldunámskeiðum á 1. og 2. ári, sem og skyldunámskeiðinu KLM101G Latína I á 3. ári. Athugið að framboð á námskeiðum geta verið breytilegt frá ári til árs.

Nemendur skulu ljúka a.m.k. 24 einingum í bókmennta- og menningarnámskeiðum sem í boði eru hverju sinni og eru námskeið sem teljast til bókmennta- og menningarnámskeiða merkt sem Bundið Val á kennsluskrá. Skyldunámskeiðið FRA214G telst til bókmennta- og menningarnámskeiðanna.

Nemendur í Frönskum fræðum 180 ECTS námsleiðinni hafa heimild til að taka að hámarki 20 einingar úr öðrum greinum.

Nemendur skulu ljúka 10 eða 20 eininga BA ritgerð. Nemandi þarf heimild greinarformanns til að ljúka 20 eininga BA ritgerð.

Taki nemandi hluta af námi sínu við erlendan háskóla er hægt að meta þau námskeið sem hluta af námi við HÍ með samþykki greinar.

Hægt er að sækja um undanþágu frá þessum reglum ef góð rök eru fyrir hendi.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Mál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindum (MOM101G, MOM102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum grunnþjálfun í meðferð ritaðs máls og fræðilegum skrifum. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með vikulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og ritstundum. Auk þess heimsækja nemendur Ritver Háskóla Íslands og fá þar ráðgjöf. Í námskeiðinu er fjallað um vinnulag við ritun fræðilegra texta, val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu ritsmíðarinnar, heimildanotkun og frágang. Nemendur fá einnig þjálfun í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað verður meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara og aðstoðarkennara. Námsmat byggist á vikulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni og virkri þátttöku nemenda í tímum, ritstundum og heimsóknum í Ritverið. 

ATHUGIÐ! NÁMSKEIÐIÐ ER KENNT Á ÍSLENSKU OG Í STAÐNÁMI. ÞEIR SEM TAKA NÁMSKEIÐIÐ Á ENSKU OG Í FJARNÁMI EIGA AÐ VERA SKRÁÐIR Í MOM102G.

MOM101G er ætlað nemendum í erlendum tungumálum ÖÐRUM en ensku. Nemendur í ensku og þeir sem ekki eiga íslensku að móðurmáli eiga að vera skráðir í MOM102G.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Námskeiðið er inngangsnámskeið í Mála- og menningardeild. Megin markmið og tilgangur námskeiðsins er kynning á grundvallar hugtökum og sértækum orðaforða á þessu sviði, skoðun á gagnrýnni hugsun til að auka lesskilning akademískra texta, innleyðing gagnlegra námsaðferða og fræðilegra vinnubragða er stuðla að árangursríku háskólanámi, umræður um ritstuld og fræðilegan heiðarleika, mat á fræðilegum kröfum o.s.frv. Nemendur fá hagnýta þjálfun í gagnrýnu mati á fræðilegum textum og gagnrýnni greiningu innihalds þeirra, að þekkja/auðkenna ákveðna orðræðu (munstur) og uppbyggingu ýmissa textategunda, að velja viðeigandi og trúverðugar heimildir og kynningu á greinandi lestri. Að auki fá nemendur að kynnast mikilvægi akademísks læsis til að auka skilning á fræðilegu efni, ritun þess og framsetningu.

Námskeiðið er kennt á ensku og er ætlað nemendum:

  1. Í ensku til BA
  2. Annarra erlendra tungumála en ensku

*Þeir nemendur sem vantar einingar vegna breyts fyrirkomulags Mála og menningar námskeiðana, þar sem MOM102 var áður 5 einingar, þurfa að bæta við sig einstaklingsverkefni (MOM001G, 1 eining) innan MOM102 námskeiðsins.

  • Þetta einstaklingsverkefni er einungis ætlað þeim nemendum sem sátu MOM202G fyrir skólaárið 2024-2025, og eru núna í MOM102G, og því einungis með 9 einingar í Mála og menningar námskeiðunum.
  • Nemendur sem ætla að bæta upp einingafjöldann með 6 eininga námskeiði innan greinar er frjálst að gera það og taka ekki þetta einstaklingsverkefni.

Til að skrá sig í einstaklingsverkefnið þarf að hafa samband við kennara MOM102G.

Frönsk málfræði I (FRA101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið Frönsk málfræði I er skyldunámskeið.

Í þessu námskeiði er farið dýpra í málfræði atriði sem nemendur unnu með í framhaldskóla. Áhersla er lögð á notkun málfræðihugtaka í námi og kennslu þar sem nemendur þurfa að útskýra í orði og dæmum tiltekin málfræðiatriði.

Mikilvægt er að nemendur temji sér sjálfstæð vinnubrögð og komi undirbúnir í tíma.

Kennslan skiptist í fyrirlestra og æfingatíma.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Framburður (FRA104G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur eru þjálfaðir í framburði og læra hljóðritun. Gert er ráð fyrir einum fyrirlestratíma (1x 40 mín.) per viku þar sem farið er yfir grunnhugtök og aðferðir í almennri hljóðfræði og einum og hálfum æfingatíma per viku í málveri

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Franskt samfélag I (FRA106G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði þjálfast nemendur bæði í að skrifa og tala frönsku. Fjallað verður um ýmis málefni í tengslum við ólík héruð og svæði fransks samfélags og frönskumælanda landa.

Notast verður við fjölmiðla og samfélagsmiðla, kvikmyndir og fleira.

Rætt verður um efnið og nemendur fá tækifæri til að þjálfa framsetningu.

Nemendur fá þjálfun í að skrifa stutta og hnitmiðaða texta um ólík efni á frönsku. Þeir fá æfingu í að draga saman efni, endursegja, umorða, færa skrifleg rök fyrir máli sínu og byggja upp texta á skýran hátt. Einnig venjast þeir notkun orðabóka og annarra hjálpargagna.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Þýðingar I (FRA113G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði eru nemendur þjálfaðir í að lesa, skilja og þýða létta og miðlungs þunga texta af frönsku yfir á íslensku. Unnið verður með texta af ýmsum gerðum: blaðagreinar, blogg, hagnýta texta og bókmenntatexta. Einkenni textanna verða rædd og fjallað verður um ólík málsnið og málfræðileg atriði sem geta vafist fyrir þýðendum. Nemendur kynnast notkun orðabóka og annarra hjálpargagna.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Sérverkefni í lestri (FRA110G)
Valnámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lestrarverkefni í frönskum bókmenntum. Nemendur hafi samband við umsjónarkennara.

Kennslutungumál: Franska
Fyrsta ár | Haust
Sérverkefni í framburði (FRA111G)
Valnámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þjálfun í framburði.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Menning: að greina og skilja (MOM201G, MOM202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðslýsing: 

Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari. 

Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menninguÞið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum. Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar  greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.

Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Menning: að greina og skilja (MOM201G, MOM202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari. 

Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menningu. Þið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum.  

Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við  valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.  

Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Franskt samfélag II (FRA201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðslýsing:

Í þessu námskeiði verður fjallað um franskt tungumál í dag og sjónum beint að ólíkum málsniðum. Jafnframt verður fjallað um helstu breytingar sem hafa orðið á frönsku á undanförnum áratugum, einkum hvað varðar kvenkynsmyndir nafnorða sem og kynhlutlaust mál. Í þessu skyni verður stuðst við blaðagreinar og fræðigreinar um þróun og stöðu franskrar tungu.

Æfingar beinast að margvíslegum atriðum sem tengjast málsniði og stíl, orðavali, málfræði, setningagerð og textabyggingu.

Nemendur fá þjálfun í að færa rök fyrir máli sínu, draga saman og gera grein fyrir efni námskeiðs í skriflegum æfingum, fyrirlestrum og umræðuhópum.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Saga Frakklands (FRA203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er lögð áhersla á sögu Frakklands frá forsögulegum tíma til tuttugustu aldar.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Frönsk málfræði II (FRA205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er í neitun, spurningu, einkunnarorð, tilvísunarfornöfn, og viðtengingarhátt.

Nemendur skulu hafa lokið námskeiðinu Frönsk málfræði og ritun á haustmisseri.

Áhersla er lögð á notkun málfræðihugtaka í námi og kennslu þar sem nemendur þurfa að útskýra í orði og dæmum tiltekin málfræðiatriði.

Mikilvægt er að nemendur temji sér sjálfstæð vinnubrögð og komi undirbúnir í tíma.

Kennslan skiptist í fyrirlestra og æfingatíma.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Franskar bókmenntir og menning (FRA214G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er skyldunámskeið í BA-námi í frönskum fræðum og kemur í stað námskeiðsins DET205G Inngangur að bókmenntum. Námskeiðið er nauðsynlegur undanfari annarra bókmenntanámskeiða í greininni við Háskóla Íslands og í skiptinámi við erlenda háskóla.

Nemendur kynnast ólíkum tegundum franskra bókmennta og lesa smásögur, ljóð og brot úr leikritum og skáldsögum frá ýmsum tímabilum. Þeir fá yfirlit yfir strauma og stefnur í bókmenntafræði og franskri bókmenntasögu.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Sérverkefni í lestri (FRA110G)
Valnámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lestrarverkefni í frönskum bókmenntum. Nemendur hafi samband við umsjónarkennara.

Kennslutungumál: Franska
Fyrsta ár | Vor
Sérverkefni í framburði (FRA111G)
Valnámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þjálfun í framburði.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Talfærninámskeið í Frakklandi (FRA438G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur dvelja í tvær vikur við Université de Rennes í Frakklandi og taka þátt í námskeiði í talfærni, þjóðlífi og menningu Frakklands sem er sérsniðið að nemendum frönskudeildar H.Í. Nemendur taka þátt í umræðum um ýmis málefni úr samtímanum og kynnast sögu og menningu landsins. Námskeiðið er alla jafna haldið í 7. og 8. viku vormisseris. Hámarksfjöldi miðast við 18 nemendur og hafa þeir nemendur forgang sem eru skráðir í grunndiplóma og frönsku sem aðalgrein til 120 eða 180 eininga.

Námsmat:
Þátttaka: 50%
Fyrirlestur: 25%
Skriflegt verkefni: 25%

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Tungumál og leiklist (MOM401G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Valnámskeið í leiklist fyrir nemendur í Mála- og menningardeild, á 2. og 3. ári BA-náms, er samstarfsverkefni deildarinnar.

Nemendur vinna með þekkt leikverk á því tungumáli sem þeir eru að læra, en kennslan fer fram á íslensku og nemendur geta nýtt sér íslensku þýðinguna ef vill.

Nemendur velja senur úr verkinu með sviðsetningu í huga.

Þessi hluti skiptist í upphitunaræfingar, slökunaræfingar og ýmis konar framburðaræfingar. Vinna nemenda felst í samvinnu að leita leiða við uppsetningu þeirra sena sem valdar voru í fyrri hlutanum.

Kennarar í þeim tungumálum sem taka þátt aðstoða við framburð og tjáningu í viðkomandi tungumáli.

Kennslan fer fram í fyrirlestrasal Veraldar á miðvikudögum frá kl. 15:00 til 18:00 og er mæting forsenda þess að þetta verkefni nái markmiðum sínum.

Hámarksfjöldi nemenda er 15.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Franskar samtímabókmenntir og kvennabarátta (FRA433M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum þróun skáldsöguformsins frá seinni hluta 20. aldar og í upphafi þeirrar 21. Áherslan verður á sjálfs(ævi)söguleg skrif kvenna þar sem fjallað er um stöðu kvenna eða kynjamismunun í einni eða annarri mynd. Lesin verða verk þar sem greina má áhrif femíniskrar orðræðu og önnur sem hafa rutt brautina hvað varðar ákveðin sjónarhorn eða skilning í réttindabaráttu kvenna, hvort sem það er í Frakklandi eða á öðrum frönskumælandi ríkjum, s.s. Marokkó og Alsír. Skoðuð verða m.a. verk sem eru undir augljósum áhrifum #MeToo hreyfingarinnar eða hafa verið túlkuð sem framlag til hennar. 

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Smásagan í frönskum bókmenntum (FRA434G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Smásagnaritun í Frakklandi náði hápunkti á 19. öld þegar hinn mikli meistari smásögunnar Guy de Maupassant var að störfum og stuttar sögur birtust iðulega á forsíðum dagblaða og tímarita. Ritun smásagna á sér langa sögu í frönskum bókmenntum þótt skilgreining á þessari tegund bókmennta hafi verið breytileg í tímans rás. Sem frásögn af „nýlega skeðum atburði“ kemur smásagan fram í Frakklandi á endurreisnartímanum með Sjödægru eftir Marguerite de Navarre, en sögulega smásagan ryður sér til rúms á 17. öld með Madame de Lafayette og fleirum. Á 18. öld er smásagan síðan notuð á ólíkan hátt af Voltaire, Sade, Germaine de Staël o. fl. og enn eykst fjölbreytnin þegar rithöfundar og skáld 19. aldar spreyta sig á hinu stutta formi, Balzac, Baudelaire, George Sand, Mérimée …

Í námskeiðinu verður þróun smásögunnar rakin í stuttu máli og nokkrir forverar hennar kynntir til leiks. Lögð verður áhersla á texta frá 17. öld til 19. aldar og rýnt í efni þeirra og frásagnarform. Að lokum verður staldrað við stöðu smásögunnar í frönskum bókmenntaheimi nútímans.

Verkin verða lesin í íslenskum eða enskum þýðingum. Kennt verður á íslensku en nemendur sem eru læsir á frönsku geta sótt aukatíma þar sem farið er yfir efni vikunnar á frönsku og fengið lesefni á frönsku.

Meðal höfunda sem fjallað verður um eru Marguerite de Navarre, Charles Sorel, Madame de Lafayette, Sade, Germaine de Staël, Baudelaire, Balzac, George Sand, Mérimée og Maupassant.

Sérverkefni: Þýðingar II (FRA022G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu verkefni fær nemandi tækifæri til að auka færni sína í þýðingum af frönsku á íslensku. Verkefni eru valin í samráði við kennara.

Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Annað ár | Haust
Frönsk málfræði III (FRA305G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður nánar í flóknari málfræðiatriði, þar á meðal tilvísunarfornöfn, samræmingu tíða, óbeina ræðu, viðtengingarhátt, forsetningar og aukasetningar. Athugað verður hvernig þessi málfræðilegu atriði eru meðhöndluð í rituðum heimildum af ýmsum toga eins og blaðagreinum, teiknimyndasögum, leikritum o.s.f.v.

Franskt samfélag III (FRA319G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður sjónum beint að afmörkuðum viðfangsefnum sem snúa að frönsku samfélagi, menningu og sögu, frá nýlendutímanum til dagsins í dag. Stuðst verður við bókmenntaverk, kvikmyndir og fræðigreinar í tengslum við efnið.

Nemendur fá þjálfun í að draga saman efni, færa rök fyrir máli sínu og gera grein fyrir efni námskeiðs í stuttum ritgerðum og fyrirlestrum.

Hinn frönskumælandi heimur – La francophonie (FRA114G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður yfir sögulegar og pólitískar skýringar þess að franska hefur verið/er töluð víða um heim. Fjallað verður um samfélagsleg áhrif þess og viðhorf málnotenda til tungumálsins. Einnig verður fjallað um áskoranir sem felast í því að nota frönsku sem menntunarmál í fjöltyngdum samfélögum. Framtíð tungumálsins og samkeppnin við önnur heimsmál eins og ensku eða arabísku verður einnig skoðuð. Horft verður til eftirtalinna svæða: Belgía, Fílabeinsströndin, Senegal, Malí, Rwanda, Haítí, Marokkó, Alsír, Kanada. 

Samskiptasaga Íslands og Frakklands (FRA116G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Samskiptasaga Íslendinga og Frakka nær langt aftur í aldir og á sér marvíslegar birtingarmyndir. Menningarleg samskipti landanna tveggja eiga rætur á miðöldum þegar franskar bókmenntir voru varðveittar í íslenskum handritum. Franskir sjómenn stunduðu veiðar við Ísland um þriggja alda skeið og nærvera þeirra hafði umtalsverð áhrif á íslenskt samfélag. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á helstu vörður í samskiptum landanna tveggja á sviði menningar, menntunar, viðskipta og stjórnmála í samtímanum. Fjallað verður um ímynd Íslands og Norðursins í Frakklandi en íslenskar bókmenntar njóta mikilla vinsælda meðal franskra lesenda.

Annað ár | Vor

Goncourt-verðlaun franskra bókmennta á Norðurlöndum (FRA607M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu taka nemendur þátt í vali á Goncourt-verðlaunum franskra bókmennta á Norðurlöndum – Le Choix Goncourt des Pays nordiques. Lesnar verða fjórar skáldsögur sem gefnar voru út á árinu 2025 og eru á stuttlista Goncourt-stofnunarinnar sem á ári hverju veita virtustu bókmenntaverðlaun Frakklands. Goncourt-verðlaun franskra bókmennta á Norðurlöndunum verða veitt í annað sinn vorið 2026, í samvinnu Institut français í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð, sem og Alliance française í Reykjavík, franska sendiráðsins á Íslandi og Háskóla Íslands. Nemendum gefst kostur á að eiga samtal við rithöfundana fjóra á fjarfundum. Í lok námskeiðsins velja nemendur þá bók sem þeir tilnefna fyrir Íslands hönd og gera grein fyrir vali sínu á fjarfundi. Allir þátttakendur fá aðgang að skáldsögunum fjórum á rafrænu formi, þeim að kostnaðarlausu.

Franskt leikhús og leikritun (FRA604M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu gefst nemendum kostur á að kynnast nokkrum af höfuðverkum franskra leikbókmennta frá endurreisnartímanum til okkar daga. Farið verður yfir endurkomu harmleiksins í tengslum við stríð og borgaraleg átök og samfélagslega skírskotun gamanleikja í tímans rás. Rýnt verður í strauma og stefnur í leikhúsinu, frá tilraunaleikhúsi endurreisnar, nýklassisma, hugmyndum byltingar í leikhúsi átjándu og nítjándu aldar og framúrstefnuleikhúsi tuttugustu aldar til samsköpunar- og/eða rannsóknarleikritunar dagsins í dag. Áhersla verður lögð á fagurfræði og dramatúrgíu leikrita og fjallað m.a. um sérstöðu ljóðleikja. Heil leikrit eða brot úr verkum verða lesin í íslenskum eða enskum þýðingum eftir Garnier, Corneille, Molière, Racine, Marivaux, Musset, Beaumarchais, Hugo, Dumas, Feydeau, Anouilh, Sartre, Genet, Cixous, Koltès, Mouawad.  

Námskeiðið verður kennt á íslensku en hluti af námsefninu verður á ensku. Fyrir nemendur í frönsku verður boðið upp á vikulegan aukatíma (40 mín.) á frönsku.

Frönsk málsaga (FRA439G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Skoðað verður hvernig franskan þróaðist upp úr latínu eftir fall rómverska veldisins og varð smám saman, í gegnum aldirnar, að tungumálinu sem við þekkjum í dag. Staða tungumálsins á mismunandi tímabilum verður borin saman, á miðöldum, á endurreisnatímabilinu, og á 18. öldinni, svo að dæmi séu nefnd. Einnig verður talað um örlög annarra tungumála eða mállýskna sem voru eða eru enn töluð í Frakklandi. Einnig verður fjallað um núverandi stöðu frönskunnar, þær breytingar sem eru áberandi í málfari Frakka í dag og hvort hægt sé að spá í framtíð hennar.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Samfélag, stjórnmál og menningarlæsi (FRA219G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður yfir samfélagsgerð og stjórnskipulag í Frakklandi. Fjallað verður um helstu kaflaskipti í frönskum stjórnmálum á 20. og 21. öld, með áherslu á samtímann. Í tengslum við stjórnmálasöguna, verða kynntar hefðir í mælskulist og dæmi tekin úr nokkrum lykilræðum stjórnmálamanna og -kvenna á öldinni og þær settar í sögulegt og hugmyndafræðilegt samhengi. Fjallað verður um hugtakið laïcité (aðskilnað ríkis og kirkju) í sögulegu samhengi og í tengslum við fjölmenningu nútímans. Þá verður stiklað á stóru á nokkrum einkennum franskrar menningar og samfélags, fjallað um franskan vinnumarkað, siði, málnotkun og samskiptavenjur í daglegu lífi. Áhersla verður lögð á að nemendur öðlist færni í að taka þátt í umræðum á frönsku og að þeir geti beitt sérhæfðum orðaforða sem nýtist í alþjóðasamstarfi í ræðu og riti. Námsefni samanstendur af bókarköflum, blaðagreinum, fréttapistlum og heimildaþáttum í sjónvarpi og útvarpi auk sértækra orðaforðaæfinga.

Franska á alþjóðavettvangi (FRA217G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Franska er opinbert tungumál og vinnutungumál margra alþjóðlegra stofnana ásamt ensku. Auk þess er franska það tungumál sem mest er notað, á eftir ensku, í utanríkissamstarfi fyrir utan að vera fimmta mest talaða tungumálið í heiminum.  

Í námskeiðinu verður farið yfir ástæður þess að franska náði útbreiðslu sem heimsmál og er notuð í dag í alþjóðastofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar, UNESCO, Rauða krossinn, sem og í Evrópuráðinu og Evrópusambandinu. Jafnframt verður sjónum beint að mál- og menningarstefnu Frakklands og áhrifum hennar á fyrrum franskar nýlendur Frakklands.  

Áhersla verður lögð á að nemendur öðlist færni í að taka þátt í umræðum og rökræðum á frönsku og að þeir geti beitt sérhæfðum orðaforða sem nýtist í alþjóðasamstarfi bæði í ræðu og riti. Unnið verður með blaðagreinar, fréttapistla og frétta-/heimildaþætti (í sjónvarpi, útvarpi, á samfélagsmiðlum). 

Notkun tungumálsins (FRA431G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er lögð áhersla á skapandi skrif. Nemendur fá þjálfun í að skrifa örstutta texta og ljóð af ólíkum toga, á frönsku, og vinna saman að ritun smásögu í anda road movie. Nemendur kynnast ólíkum tegundum af stuttum textum, allt frá skrifum La Bruyère á 17. öld til Nýju skáldsögunnar (Marguerite Duras, Alain Robbe-Grillet), OuLiPo, Raymond Queneau og Georges Perec, ásamt ýmsum fleiri tegundum af stuttum textum. Námskeiðinu lýkur með viðburði í Alliance française. Nemendur vinna undri leiðsögn franska rithöfundarins, Alexandre Labruffe, sem hefur sent frá sér fjórar skáldsögur og hefur sérstakan áhuga á hinu stutta formi innan bókmenntanna.

Kennslutungumál: Franska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust

BA-ritgerð í frönskum fræðum (FRA261L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð í frönskum fræðum. Nemandi velur viðfangsefni og leiðbeinanda í samráði við greinarformann.

Námsmat: 20% kynning á ritgerðinni, 80% efnistök og málnotkun.

BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544 

Kennslutungumál: Franska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Haust
Latína I: Byrjendanámskeið (KLM101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í latínu ætlað byrjendum. Ekki er gert ráð fyrir kunnáttu í latínu við upphaf námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði. Farið er yfir beygingafræði latínunnar svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Stuttir leskaflar og málfræðiæfingar.

Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor

Óháð námsári | Haust
Jane Austen í samtímanum (ABF322G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður rýnt í menningarfræðilega höfundarvirkni Austen og hinn svokallaði Austen-iðnaður í samtímanum kynntur fyrir nemendum. Sérstaklega verður skoðað hvernig skáldsögur Austen eru endurritaðar innan þriggja bókmenntagreina, sem löngum hafa verið tengdar konum, þ.e. í ástarsögum, skvísusögum og sjálfshjálparritum – og svo hvernig gríðarlegar vinsældir greinanna þriggja hafa endurmótað höfundarvirkni skáldkonunnar og ímynd hennar. Einnig verða til umræðu kvikmyndir og sjónvarpsþáttaraðir byggðar á verkum skáldkonunnar og lífi hennar. Leitast verður við að svara spurningum sem hverfast um stöðu kvenna í póstfemínískri neyslumenningu, varpað ljósi á Darcy-æði samtímans auk þess að skoða hlutverk Jane Austen innan frásagnanna sem lífsgúru, leiðbeinanda og kennslukonu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Mál og maður (ENS102G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður gefið yfirlit yfir helstu viðfangsefni málvísinda. Sérstaklega verður fjallað um þær greinar málvísinda sem leggja áherslu á tengslin á milli tungumáls og málnotanda í víðara samhengi: félagsmálvísindi, tilbrigði í máli, máltöku barna og tileinkun erlendra mála, samband tungumáls og heilastarfsemi, söguleg málvísindi, samanburðarmálfræði og samskipti dýra. Megináhersla er á enskt mál en markmiðið er að kynna nemendum í ensku ólík svið málvísinda sem þeir geta kannað nánar á síðari stigum námsins.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Saga Mið-Austurlanda I (MAF101G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir sögu þess svæðis sem telst til Mið-Austurlanda frá fornöld og fram á miðaldir. Fjallað verður um uppgang Egypta, Súmera og annarra þjóða í hinni svokölluðu 'vöggu siðmenningarinnar'. Sérstök áhersla verður lögð á uppgang íslam á 7. öld og það heimsveldi sem múslimar byggðu upp næstu aldir þar á eftir.  Fjallað verður um Múhameð spámann og eftirmenn hans, tilurð Kóransins, kalífat Umayya, kalífat Abbasída og 'gullöld' íslam. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Álfar, femínistar og hryðjuverkamenn: Menning, hópar og valdatengsl í samtímanum (ÞJÓ328G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu skoðum við hvernig þjóðfræðaefni vegnar í vestrænum nútímasamfélögum og rýnum í fjölmiðlaefni, kvikmyndir og internetið, auk þess sem við skoðum munnlega og verklega geymd. Á meðal þess sem við tökum til athugunar eru flökkusagnir og ævintýri, trú og fordómar, leikir og hátíðir, veggjakrot og brandarar, og allra handa siðir og venjur. Markmiðið er að bæta skilning okkar á hversdagslegum undirstöðum nútímamenningar og auka meðvitund okkar um allt það "ómerkilega" sem á ríkan þátt í að móta sjónarhorn okkar á samfélagið og viðhorfið til náungans. Stuðst verður við nýjar og nýlegar rannsóknir í þjóðfræði, menningarfræði og skyldum greinum.

Vinnulag

Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Gagnrýnin hugsun (HSP105G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Listheimspeki (HSP310G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita stutt yfirlit yfir nokkur sígild viðfangsefni í heimspeki listarinnar; að kynna sérstaklega tilteknar spurningar, kenningar og rökfærslur á sviði listheimspeki með lestri valinna texta, bæði sögulegra og samtímalegra; og að þjálfa nemendur í greiningu og umræðu um listheimspekileg efni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Þýðingar (ÍSE502G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangur að þýðingum, þýðingasögu og þýðingafræði. Nemendur kynnast helstu hugtökum og kenningum á sviði þýðinga. Námskeiðið skiptist í tvo þætti: Hinn fræðilegi og sögulegi þáttur námskeiðsins fer fram í formi fyrirlestra og umræðna. Jafnframt leggur kennari fram lesefni sem nemendur kynna sér. Námsmat felst í prófum/ritgerðarverkefnum þar sem skyldulesefni er undirstaðan. Verklegi þátturinn fer fram í hópvinnustofum þar sem nemendur æfa sig í þýðingarýni og þýðingum (bókmenntaþýðingum eða nytjaþýðingum) undir handleiðslu kennara. Námsmat felst í skriflegu verkefni eða verkefnum. Nemendur í íslensku sem öðru máli þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum á 1. og 2. ári.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Myndlist á Vesturlöndum frá 1348–1848 (LIS004G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða meginverk í listasögu Vesturlanda frá frum-endurreisn til fyrri hluta nítjándu aldar tekin til skoðunar. Landfræðilega er sjónum beint að listaverkum frá Ítalíu og Spáni, Frakklandi, Niðurlöndum, Þýskalandi og Englandi. Fjallað verður um helstu aðferðir og skóla, akademíur og birtingarform myndlistar í trúarlegu, pólitísku og samfélagslegu samhengi. Fjallað verður um málaralist, höggmyndalist, byggingarlist, listiðnað og prentmyndir. Leitast verður við að skoða að hvaða leyti listin speglar samfélagið, hvernig myndmál speglar lífssýn og heimsmynd manna á ólíkum tímabilum. Fjallað er um breytilegt inntak tíma og rýmis á hverjum tíma, breytingar á táknrænni mynd líkama, um stöðu og samfélagshlutverk listamann og samspil listar og valdastofnana. Í tengslum við þessi viðfangsefni verða lykilverk hvers tíma tekin til ítarlegrar túlkunar og dreifingarsaga þeirra rædd.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Íslensk bókmenntasaga til 1900 (ÍSL205G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Yfirlit yfir íslenska bókmenntasögu frá öndverðu til loka 19. aldar. Lögð verður áhersla á að setja hræringar og nýjungar í íslenskum bókmenntum í samhengi við alþjóðlega strauma í bókmenntum álfunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Sagnir, ævintýri og sagnamenn: Þjóðsagnafræði (ÞJÓ104G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður þjóðsagnafræði kynnt sem sérstök grein innan þjóðfræðinnar. Fjallað verður um helstu kenningar um uppruna, einkenni og útbreiðslu þjóðsagna, hlutverk þeirra í samfélögum, söfnun, skráningaraðferðir og varðveislu. Meðal fræðimanna sem hér koma við sögu eru Antti Aarne, Inger M. Boberg, Bruno Bettelheim, Linda Dégh, Stith Thompson, Timothy Tangherlini og Alan Dundes. Þá verður gerð grein fyrir helstu flokkum munnmæla og fjallað sérstaklega um formgerð og greiningu þjóðsagna og ævintýra í ljósi helstu kenninga þar um, þ.á m. Algirdas Greimas, Bengts Holbek, Max Lüthis, Axels Olriks og Vladimirs Propps.

Vinnulag
Námið fer einkum fram með lestri nemenda og fyrirlestrum kennara, en einnig með umræðum svo sem kostur er. Hver nemandi heldur auk þess stutta, munnlega framsögn í kennslustund, tekur þátt í umræðuhópi, vinnur verkefni með gerða- eða minnaskrár og skrifar stutta ritgerð um kjörbók.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Saga Mið-Austurlanda II (MAF203G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið tekur upp þráðinn þar sem námskeiðinu Saga-Miðausturlanda I sleppir. Það er þó ekki nauðsynlegur undanfari, hægt er að taka bæði námskeiðin eða annað þeirra. Hér verður farið yfir þróun mála í Mið-Austurlöndum frá ca 1300, uppgang Ottómana og Safavída, og sér í lagi tengsl þeirra við Vesturlönd. Meðal efnis verður nýlendustefna Evrópuríkja í þessum heimshluta og áhrif þeirra á menningu og stjórnmál, uppgangur þjóðernishyggju og tilurð ríkja, og ýmis átök og ágreining sem mótað hefur svæðið allt til dagsins í dag. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Forngrískar bókmenntir (ABF201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita yfirlit yfir bókmenntir Forngrikkja með lestri valinna öndvegisrita af ýmsu tagi allt frá Hómerskviðum til forngrískra skáldsagna frá tímum hins tvítyngda rómverska heimsveldis. Lesnar verða íslenskar þýðingar ef til eru. Námsmat byggir á prófum og ritgerð.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Latína II: Úrval latneskra texta (KLM201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið tekur við af KLM101G Latínu I. Í námskeiðinu verður lesið úrval latneskra texta eftir ýmsa höfunda.

Kennt er á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Heimur Rómverja: Saga og samfélag (KLM216G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið kynnir nemendum menningu, sögu og samfélag Rómverja. Áhersla verður lögð á tímann frá 201 f.o.t. til 180 e.o.t. Fjallað verður um helstu atburði sögunnar, megin stofnanir samfélagsins, samfélagsgerð, fjölskyldu og kynjahlutverk, þrælahald, menntun, menningu, trú afþreyingu og hversdagslíf. Auk stoðrita verða lesnir fornir textar í þýðingu (enskri eða íslenskri) en ekki gert ráð fyrir latínukunnáttu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Kvikmyndasaga (KVI201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Yfirlit yfir sögu kvikmyndalistarinnar frá upphafi hennar undir lok 19. aldar til okkar daga. Áhrifaríkustu stefnur hvers tíma verða skoðaðar og lykilmyndir sýndar. Nemendur kynnast sovéska myndfléttuskólanum (montage), franska impressjónismanum, þýska expressjónismanum, stúdíókerfinu bandaríska, ítalska nýraunsæinu, japanska mínímalismanum, frönsku nýbylgjunni, þýska nýbíóinu, suður-ameríska byltingabíóinu og Hong Kong-hasarmyndinni svo eitthvað sé nefnt, og reynt verður að bera þessar ólíku stefnur saman. Lögð verður áhersla á að skoða fagurfræðilega þróun kvikmyndarinnar sem og samtímaleg áhrif á útlit og inntak hennar. Námsmat byggist á tveimur prófum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Alþjóðleg nútímalistasaga frá 1850-1960 (LIS243G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um þróun myndlistar frá umbrotatímum módernismans á síðustu áratugum 19. aldar, í gegnum helstu framúrstefnuhreyfingar eða -isma 20.aldar fram til ársins 1960. Gerð verður grein fyrir helstu stefnum módernískrar myndlistar, forsendum þeirra, sérkennum og mikilvægi fyrir síðari tíma. Fjallað verður um tengsl listar við pólitík, heimspeki og þjóðfélagsþróun og hugað að róttæku endurmati á fegurðarhugtakinu í listum á 20. öld. Hvernig skila breyttar hugmyndir um tíma og rými sér í listinni? Hvernig raska ofangreindar listastefnur venjubundinni skynjun manna á umhverfinu og raunveruleikanum. Hvað er "innri veruleiki"? Þarf myndlist að vera sýnileg? Hver er munur á myndmáli og tungumáli og annars konar táknmáli? Reynt verður að fella alþjóðlegar sýningar sem hingað koma að námskeiðinu og verða þær sóttar heim í tengslum við það.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Þýðingarýni og þýðingatækni (ÞÝÐ201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er í fyrsta lagi að nemendur læra að rýna í þýðingar sem og greina texta á erlendu máli til að þýða yfir á móðurmálið. Nemendur velja bókmennta- eða nytjatexta í samráði við kennarann og vinna með þá texta.

Í öðru lagi kynnast nemendur þeim hjálpargögnum og tæknilausnum sem notuð eru í þýðingarferlinu. Þannig fá þeir að sama skapi innsýn í starf atvinnuþýðenda á ýmsum sviðum.

Kennsla fer að mestu leyti fram í formi hagnýtra æfinga, umræðna og verkefna undir handleiðslu kennara. 

Einnig flytja nemendur erindi í tíma.

Þýðingarýni og textagreining er skyldunámskeið í Þýðingafræði sem aukagrein á BA stigi. Það er einnig opið öðrum nemendum en góð færni í erlendu tungumáli (samsvarandi 3. ári í grunnnámi) er nauðsynleg undirstaða.

Kennsla fer fram á íslensku. Nemendur þýða úr erlendu máli yfir á móðurmálið. Önnur verkefni eru unnin á íslensku.

Undirstaða í þýðingafræði (10 e) er æskileg en ekki nauðsynleg.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár
  • Haust
  • MOM101G, MOM102G
    Mál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindum
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum grunnþjálfun í meðferð ritaðs máls og fræðilegum skrifum. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með vikulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og ritstundum. Auk þess heimsækja nemendur Ritver Háskóla Íslands og fá þar ráðgjöf. Í námskeiðinu er fjallað um vinnulag við ritun fræðilegra texta, val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu ritsmíðarinnar, heimildanotkun og frágang. Nemendur fá einnig þjálfun í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað verður meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara og aðstoðarkennara. Námsmat byggist á vikulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni og virkri þátttöku nemenda í tímum, ritstundum og heimsóknum í Ritverið. 

    ATHUGIÐ! NÁMSKEIÐIÐ ER KENNT Á ÍSLENSKU OG Í STAÐNÁMI. ÞEIR SEM TAKA NÁMSKEIÐIÐ Á ENSKU OG Í FJARNÁMI EIGA AÐ VERA SKRÁÐIR Í MOM102G.

    MOM101G er ætlað nemendum í erlendum tungumálum ÖÐRUM en ensku. Nemendur í ensku og þeir sem ekki eiga íslensku að móðurmáli eiga að vera skráðir í MOM102G.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MOM101G, MOM102G
    Mál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindum
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangsnámskeið í Mála- og menningardeild. Megin markmið og tilgangur námskeiðsins er kynning á grundvallar hugtökum og sértækum orðaforða á þessu sviði, skoðun á gagnrýnni hugsun til að auka lesskilning akademískra texta, innleyðing gagnlegra námsaðferða og fræðilegra vinnubragða er stuðla að árangursríku háskólanámi, umræður um ritstuld og fræðilegan heiðarleika, mat á fræðilegum kröfum o.s.frv. Nemendur fá hagnýta þjálfun í gagnrýnu mati á fræðilegum textum og gagnrýnni greiningu innihalds þeirra, að þekkja/auðkenna ákveðna orðræðu (munstur) og uppbyggingu ýmissa textategunda, að velja viðeigandi og trúverðugar heimildir og kynningu á greinandi lestri. Að auki fá nemendur að kynnast mikilvægi akademísks læsis til að auka skilning á fræðilegu efni, ritun þess og framsetningu.

    Námskeiðið er kennt á ensku og er ætlað nemendum:

    1. Í ensku til BA
    2. Annarra erlendra tungumála en ensku

    *Þeir nemendur sem vantar einingar vegna breyts fyrirkomulags Mála og menningar námskeiðana, þar sem MOM102 var áður 5 einingar, þurfa að bæta við sig einstaklingsverkefni (MOM001G, 1 eining) innan MOM102 námskeiðsins.

    • Þetta einstaklingsverkefni er einungis ætlað þeim nemendum sem sátu MOM202G fyrir skólaárið 2024-2025, og eru núna í MOM102G, og því einungis með 9 einingar í Mála og menningar námskeiðunum.
    • Nemendur sem ætla að bæta upp einingafjöldann með 6 eininga námskeiði innan greinar er frjálst að gera það og taka ekki þetta einstaklingsverkefni.

    Til að skrá sig í einstaklingsverkefnið þarf að hafa samband við kennara MOM102G.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA101G
    Frönsk málfræði I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið Frönsk málfræði I er skyldunámskeið.

    Í þessu námskeiði er farið dýpra í málfræði atriði sem nemendur unnu með í framhaldskóla. Áhersla er lögð á notkun málfræðihugtaka í námi og kennslu þar sem nemendur þurfa að útskýra í orði og dæmum tiltekin málfræðiatriði.

    Mikilvægt er að nemendur temji sér sjálfstæð vinnubrögð og komi undirbúnir í tíma.

    Kennslan skiptist í fyrirlestra og æfingatíma.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA104G
    Framburður
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur eru þjálfaðir í framburði og læra hljóðritun. Gert er ráð fyrir einum fyrirlestratíma (1x 40 mín.) per viku þar sem farið er yfir grunnhugtök og aðferðir í almennri hljóðfræði og einum og hálfum æfingatíma per viku í málveri

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA106G
    Franskt samfélag I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði þjálfast nemendur bæði í að skrifa og tala frönsku. Fjallað verður um ýmis málefni í tengslum við ólík héruð og svæði fransks samfélags og frönskumælanda landa.

    Notast verður við fjölmiðla og samfélagsmiðla, kvikmyndir og fleira.

    Rætt verður um efnið og nemendur fá tækifæri til að þjálfa framsetningu.

    Nemendur fá þjálfun í að skrifa stutta og hnitmiðaða texta um ólík efni á frönsku. Þeir fá æfingu í að draga saman efni, endursegja, umorða, færa skrifleg rök fyrir máli sínu og byggja upp texta á skýran hátt. Einnig venjast þeir notkun orðabóka og annarra hjálpargagna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA113G
    Þýðingar I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði eru nemendur þjálfaðir í að lesa, skilja og þýða létta og miðlungs þunga texta af frönsku yfir á íslensku. Unnið verður með texta af ýmsum gerðum: blaðagreinar, blogg, hagnýta texta og bókmenntatexta. Einkenni textanna verða rædd og fjallað verður um ólík málsnið og málfræðileg atriði sem geta vafist fyrir þýðendum. Nemendur kynnast notkun orðabóka og annarra hjálpargagna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA110G
    Sérverkefni í lestri
    Valnámskeið
    1
    Valnámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lestrarverkefni í frönskum bókmenntum. Nemendur hafi samband við umsjónarkennara.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA111G
    Sérverkefni í framburði
    Valnámskeið
    1
    Valnámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þjálfun í framburði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • MOM201G, MOM202G
    Menning: að greina og skilja
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðslýsing: 

    Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari. 

    Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menninguÞið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum. Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar  greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.

    Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MOM201G, MOM202G
    Menning: að greina og skilja
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari. 

    Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menningu. Þið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum.  

    Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við  valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.  

    Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA201G
    Franskt samfélag II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðslýsing:

    Í þessu námskeiði verður fjallað um franskt tungumál í dag og sjónum beint að ólíkum málsniðum. Jafnframt verður fjallað um helstu breytingar sem hafa orðið á frönsku á undanförnum áratugum, einkum hvað varðar kvenkynsmyndir nafnorða sem og kynhlutlaust mál. Í þessu skyni verður stuðst við blaðagreinar og fræðigreinar um þróun og stöðu franskrar tungu.

    Æfingar beinast að margvíslegum atriðum sem tengjast málsniði og stíl, orðavali, málfræði, setningagerð og textabyggingu.

    Nemendur fá þjálfun í að færa rök fyrir máli sínu, draga saman og gera grein fyrir efni námskeiðs í skriflegum æfingum, fyrirlestrum og umræðuhópum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA203G
    Saga Frakklands
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á sögu Frakklands frá forsögulegum tíma til tuttugustu aldar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA205G
    Frönsk málfræði II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er í neitun, spurningu, einkunnarorð, tilvísunarfornöfn, og viðtengingarhátt.

    Nemendur skulu hafa lokið námskeiðinu Frönsk málfræði og ritun á haustmisseri.

    Áhersla er lögð á notkun málfræðihugtaka í námi og kennslu þar sem nemendur þurfa að útskýra í orði og dæmum tiltekin málfræðiatriði.

    Mikilvægt er að nemendur temji sér sjálfstæð vinnubrögð og komi undirbúnir í tíma.

    Kennslan skiptist í fyrirlestra og æfingatíma.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA214G
    Franskar bókmenntir og menning
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er skyldunámskeið í BA-námi í frönskum fræðum og kemur í stað námskeiðsins DET205G Inngangur að bókmenntum. Námskeiðið er nauðsynlegur undanfari annarra bókmenntanámskeiða í greininni við Háskóla Íslands og í skiptinámi við erlenda háskóla.

    Nemendur kynnast ólíkum tegundum franskra bókmennta og lesa smásögur, ljóð og brot úr leikritum og skáldsögum frá ýmsum tímabilum. Þeir fá yfirlit yfir strauma og stefnur í bókmenntafræði og franskri bókmenntasögu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA110G
    Sérverkefni í lestri
    Valnámskeið
    1
    Valnámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lestrarverkefni í frönskum bókmenntum. Nemendur hafi samband við umsjónarkennara.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA111G
    Sérverkefni í framburði
    Valnámskeið
    1
    Valnámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þjálfun í framburði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA438G
    Talfærninámskeið í Frakklandi
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur dvelja í tvær vikur við Université de Rennes í Frakklandi og taka þátt í námskeiði í talfærni, þjóðlífi og menningu Frakklands sem er sérsniðið að nemendum frönskudeildar H.Í. Nemendur taka þátt í umræðum um ýmis málefni úr samtímanum og kynnast sögu og menningu landsins. Námskeiðið er alla jafna haldið í 7. og 8. viku vormisseris. Hámarksfjöldi miðast við 18 nemendur og hafa þeir nemendur forgang sem eru skráðir í grunndiplóma og frönsku sem aðalgrein til 120 eða 180 eininga.

    Námsmat:
    Þátttaka: 50%
    Fyrirlestur: 25%
    Skriflegt verkefni: 25%

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • MOM401G
    Tungumál og leiklist
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Valnámskeið í leiklist fyrir nemendur í Mála- og menningardeild, á 2. og 3. ári BA-náms, er samstarfsverkefni deildarinnar.

    Nemendur vinna með þekkt leikverk á því tungumáli sem þeir eru að læra, en kennslan fer fram á íslensku og nemendur geta nýtt sér íslensku þýðinguna ef vill.

    Nemendur velja senur úr verkinu með sviðsetningu í huga.

    Þessi hluti skiptist í upphitunaræfingar, slökunaræfingar og ýmis konar framburðaræfingar. Vinna nemenda felst í samvinnu að leita leiða við uppsetningu þeirra sena sem valdar voru í fyrri hlutanum.

    Kennarar í þeim tungumálum sem taka þátt aðstoða við framburð og tjáningu í viðkomandi tungumáli.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrasal Veraldar á miðvikudögum frá kl. 15:00 til 18:00 og er mæting forsenda þess að þetta verkefni nái markmiðum sínum.

    Hámarksfjöldi nemenda er 15.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • FRA433M
    Franskar samtímabókmenntir og kvennabarátta
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum þróun skáldsöguformsins frá seinni hluta 20. aldar og í upphafi þeirrar 21. Áherslan verður á sjálfs(ævi)söguleg skrif kvenna þar sem fjallað er um stöðu kvenna eða kynjamismunun í einni eða annarri mynd. Lesin verða verk þar sem greina má áhrif femíniskrar orðræðu og önnur sem hafa rutt brautina hvað varðar ákveðin sjónarhorn eða skilning í réttindabaráttu kvenna, hvort sem það er í Frakklandi eða á öðrum frönskumælandi ríkjum, s.s. Marokkó og Alsír. Skoðuð verða m.a. verk sem eru undir augljósum áhrifum #MeToo hreyfingarinnar eða hafa verið túlkuð sem framlag til hennar. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FRA434G
    Smásagan í frönskum bókmenntum
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Smásagnaritun í Frakklandi náði hápunkti á 19. öld þegar hinn mikli meistari smásögunnar Guy de Maupassant var að störfum og stuttar sögur birtust iðulega á forsíðum dagblaða og tímarita. Ritun smásagna á sér langa sögu í frönskum bókmenntum þótt skilgreining á þessari tegund bókmennta hafi verið breytileg í tímans rás. Sem frásögn af „nýlega skeðum atburði“ kemur smásagan fram í Frakklandi á endurreisnartímanum með Sjödægru eftir Marguerite de Navarre, en sögulega smásagan ryður sér til rúms á 17. öld með Madame de Lafayette og fleirum. Á 18. öld er smásagan síðan notuð á ólíkan hátt af Voltaire, Sade, Germaine de Staël o. fl. og enn eykst fjölbreytnin þegar rithöfundar og skáld 19. aldar spreyta sig á hinu stutta formi, Balzac, Baudelaire, George Sand, Mérimée …

    Í námskeiðinu verður þróun smásögunnar rakin í stuttu máli og nokkrir forverar hennar kynntir til leiks. Lögð verður áhersla á texta frá 17. öld til 19. aldar og rýnt í efni þeirra og frásagnarform. Að lokum verður staldrað við stöðu smásögunnar í frönskum bókmenntaheimi nútímans.

    Verkin verða lesin í íslenskum eða enskum þýðingum. Kennt verður á íslensku en nemendur sem eru læsir á frönsku geta sótt aukatíma þar sem farið er yfir efni vikunnar á frönsku og fengið lesefni á frönsku.

    Meðal höfunda sem fjallað verður um eru Marguerite de Navarre, Charles Sorel, Madame de Lafayette, Sade, Germaine de Staël, Baudelaire, Balzac, George Sand, Mérimée og Maupassant.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA022G
    Sérverkefni: Þýðingar II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu verkefni fær nemandi tækifæri til að auka færni sína í þýðingum af frönsku á íslensku. Verkefni eru valin í samráði við kennara.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA305G
    Frönsk málfræði III
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður nánar í flóknari málfræðiatriði, þar á meðal tilvísunarfornöfn, samræmingu tíða, óbeina ræðu, viðtengingarhátt, forsetningar og aukasetningar. Athugað verður hvernig þessi málfræðilegu atriði eru meðhöndluð í rituðum heimildum af ýmsum toga eins og blaðagreinum, teiknimyndasögum, leikritum o.s.f.v.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA319G
    Franskt samfélag III
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður sjónum beint að afmörkuðum viðfangsefnum sem snúa að frönsku samfélagi, menningu og sögu, frá nýlendutímanum til dagsins í dag. Stuðst verður við bókmenntaverk, kvikmyndir og fræðigreinar í tengslum við efnið.

    Nemendur fá þjálfun í að draga saman efni, færa rök fyrir máli sínu og gera grein fyrir efni námskeiðs í stuttum ritgerðum og fyrirlestrum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA114G
    Hinn frönskumælandi heimur – La francophonie
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður yfir sögulegar og pólitískar skýringar þess að franska hefur verið/er töluð víða um heim. Fjallað verður um samfélagsleg áhrif þess og viðhorf málnotenda til tungumálsins. Einnig verður fjallað um áskoranir sem felast í því að nota frönsku sem menntunarmál í fjöltyngdum samfélögum. Framtíð tungumálsins og samkeppnin við önnur heimsmál eins og ensku eða arabísku verður einnig skoðuð. Horft verður til eftirtalinna svæða: Belgía, Fílabeinsströndin, Senegal, Malí, Rwanda, Haítí, Marokkó, Alsír, Kanada. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FRA116G
    Samskiptasaga Íslands og Frakklands
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Samskiptasaga Íslendinga og Frakka nær langt aftur í aldir og á sér marvíslegar birtingarmyndir. Menningarleg samskipti landanna tveggja eiga rætur á miðöldum þegar franskar bókmenntir voru varðveittar í íslenskum handritum. Franskir sjómenn stunduðu veiðar við Ísland um þriggja alda skeið og nærvera þeirra hafði umtalsverð áhrif á íslenskt samfélag. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á helstu vörður í samskiptum landanna tveggja á sviði menningar, menntunar, viðskipta og stjórnmála í samtímanum. Fjallað verður um ímynd Íslands og Norðursins í Frakklandi en íslenskar bókmenntar njóta mikilla vinsælda meðal franskra lesenda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • MOM401G
    Tungumál og leiklist
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Valnámskeið í leiklist fyrir nemendur í Mála- og menningardeild, á 2. og 3. ári BA-náms, er samstarfsverkefni deildarinnar.

    Nemendur vinna með þekkt leikverk á því tungumáli sem þeir eru að læra, en kennslan fer fram á íslensku og nemendur geta nýtt sér íslensku þýðinguna ef vill.

    Nemendur velja senur úr verkinu með sviðsetningu í huga.

    Þessi hluti skiptist í upphitunaræfingar, slökunaræfingar og ýmis konar framburðaræfingar. Vinna nemenda felst í samvinnu að leita leiða við uppsetningu þeirra sena sem valdar voru í fyrri hlutanum.

    Kennarar í þeim tungumálum sem taka þátt aðstoða við framburð og tjáningu í viðkomandi tungumáli.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrasal Veraldar á miðvikudögum frá kl. 15:00 til 18:00 og er mæting forsenda þess að þetta verkefni nái markmiðum sínum.

    Hámarksfjöldi nemenda er 15.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA607M
    Goncourt-verðlaun franskra bókmennta á Norðurlöndum
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu taka nemendur þátt í vali á Goncourt-verðlaunum franskra bókmennta á Norðurlöndum – Le Choix Goncourt des Pays nordiques. Lesnar verða fjórar skáldsögur sem gefnar voru út á árinu 2025 og eru á stuttlista Goncourt-stofnunarinnar sem á ári hverju veita virtustu bókmenntaverðlaun Frakklands. Goncourt-verðlaun franskra bókmennta á Norðurlöndunum verða veitt í annað sinn vorið 2026, í samvinnu Institut français í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð, sem og Alliance française í Reykjavík, franska sendiráðsins á Íslandi og Háskóla Íslands. Nemendum gefst kostur á að eiga samtal við rithöfundana fjóra á fjarfundum. Í lok námskeiðsins velja nemendur þá bók sem þeir tilnefna fyrir Íslands hönd og gera grein fyrir vali sínu á fjarfundi. Allir þátttakendur fá aðgang að skáldsögunum fjórum á rafrænu formi, þeim að kostnaðarlausu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA604M
    Franskt leikhús og leikritun
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu gefst nemendum kostur á að kynnast nokkrum af höfuðverkum franskra leikbókmennta frá endurreisnartímanum til okkar daga. Farið verður yfir endurkomu harmleiksins í tengslum við stríð og borgaraleg átök og samfélagslega skírskotun gamanleikja í tímans rás. Rýnt verður í strauma og stefnur í leikhúsinu, frá tilraunaleikhúsi endurreisnar, nýklassisma, hugmyndum byltingar í leikhúsi átjándu og nítjándu aldar og framúrstefnuleikhúsi tuttugustu aldar til samsköpunar- og/eða rannsóknarleikritunar dagsins í dag. Áhersla verður lögð á fagurfræði og dramatúrgíu leikrita og fjallað m.a. um sérstöðu ljóðleikja. Heil leikrit eða brot úr verkum verða lesin í íslenskum eða enskum þýðingum eftir Garnier, Corneille, Molière, Racine, Marivaux, Musset, Beaumarchais, Hugo, Dumas, Feydeau, Anouilh, Sartre, Genet, Cixous, Koltès, Mouawad.  

    Námskeiðið verður kennt á íslensku en hluti af námsefninu verður á ensku. Fyrir nemendur í frönsku verður boðið upp á vikulegan aukatíma (40 mín.) á frönsku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA439G
    Frönsk málsaga
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Skoðað verður hvernig franskan þróaðist upp úr latínu eftir fall rómverska veldisins og varð smám saman, í gegnum aldirnar, að tungumálinu sem við þekkjum í dag. Staða tungumálsins á mismunandi tímabilum verður borin saman, á miðöldum, á endurreisnatímabilinu, og á 18. öldinni, svo að dæmi séu nefnd. Einnig verður talað um örlög annarra tungumála eða mállýskna sem voru eða eru enn töluð í Frakklandi. Einnig verður fjallað um núverandi stöðu frönskunnar, þær breytingar sem eru áberandi í málfari Frakka í dag og hvort hægt sé að spá í framtíð hennar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA219G
    Samfélag, stjórnmál og menningarlæsi
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður yfir samfélagsgerð og stjórnskipulag í Frakklandi. Fjallað verður um helstu kaflaskipti í frönskum stjórnmálum á 20. og 21. öld, með áherslu á samtímann. Í tengslum við stjórnmálasöguna, verða kynntar hefðir í mælskulist og dæmi tekin úr nokkrum lykilræðum stjórnmálamanna og -kvenna á öldinni og þær settar í sögulegt og hugmyndafræðilegt samhengi. Fjallað verður um hugtakið laïcité (aðskilnað ríkis og kirkju) í sögulegu samhengi og í tengslum við fjölmenningu nútímans. Þá verður stiklað á stóru á nokkrum einkennum franskrar menningar og samfélags, fjallað um franskan vinnumarkað, siði, málnotkun og samskiptavenjur í daglegu lífi. Áhersla verður lögð á að nemendur öðlist færni í að taka þátt í umræðum á frönsku og að þeir geti beitt sérhæfðum orðaforða sem nýtist í alþjóðasamstarfi í ræðu og riti. Námsefni samanstendur af bókarköflum, blaðagreinum, fréttapistlum og heimildaþáttum í sjónvarpi og útvarpi auk sértækra orðaforðaæfinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA217G
    Franska á alþjóðavettvangi
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Franska er opinbert tungumál og vinnutungumál margra alþjóðlegra stofnana ásamt ensku. Auk þess er franska það tungumál sem mest er notað, á eftir ensku, í utanríkissamstarfi fyrir utan að vera fimmta mest talaða tungumálið í heiminum.  

    Í námskeiðinu verður farið yfir ástæður þess að franska náði útbreiðslu sem heimsmál og er notuð í dag í alþjóðastofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar, UNESCO, Rauða krossinn, sem og í Evrópuráðinu og Evrópusambandinu. Jafnframt verður sjónum beint að mál- og menningarstefnu Frakklands og áhrifum hennar á fyrrum franskar nýlendur Frakklands.  

    Áhersla verður lögð á að nemendur öðlist færni í að taka þátt í umræðum og rökræðum á frönsku og að þeir geti beitt sérhæfðum orðaforða sem nýtist í alþjóðasamstarfi bæði í ræðu og riti. Unnið verður með blaðagreinar, fréttapistla og frétta-/heimildaþætti (í sjónvarpi, útvarpi, á samfélagsmiðlum). 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FRA431G
    Notkun tungumálsins

  • FRA261L
    BA-ritgerð í frönskum fræðum
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    BA-ritgerð í frönskum fræðum. Nemandi velur viðfangsefni og leiðbeinanda í samráði við greinarformann.

    Námsmat: 20% kynning á ritgerðinni, 80% efnistök og málnotkun.

    BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

    Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

    Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

    Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544 

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • KLM101G
    Latína I: Byrjendanámskeið
    Skyldunámskeið
    10

  • ABF322G
    Jane Austen í samtímanum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður rýnt í menningarfræðilega höfundarvirkni Austen og hinn svokallaði Austen-iðnaður í samtímanum kynntur fyrir nemendum. Sérstaklega verður skoðað hvernig skáldsögur Austen eru endurritaðar innan þriggja bókmenntagreina, sem löngum hafa verið tengdar konum, þ.e. í ástarsögum, skvísusögum og sjálfshjálparritum – og svo hvernig gríðarlegar vinsældir greinanna þriggja hafa endurmótað höfundarvirkni skáldkonunnar og ímynd hennar. Einnig verða til umræðu kvikmyndir og sjónvarpsþáttaraðir byggðar á verkum skáldkonunnar og lífi hennar. Leitast verður við að svara spurningum sem hverfast um stöðu kvenna í póstfemínískri neyslumenningu, varpað ljósi á Darcy-æði samtímans auk þess að skoða hlutverk Jane Austen innan frásagnanna sem lífsgúru, leiðbeinanda og kennslukonu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS102G
    Mál og maður
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður gefið yfirlit yfir helstu viðfangsefni málvísinda. Sérstaklega verður fjallað um þær greinar málvísinda sem leggja áherslu á tengslin á milli tungumáls og málnotanda í víðara samhengi: félagsmálvísindi, tilbrigði í máli, máltöku barna og tileinkun erlendra mála, samband tungumáls og heilastarfsemi, söguleg málvísindi, samanburðarmálfræði og samskipti dýra. Megináhersla er á enskt mál en markmiðið er að kynna nemendum í ensku ólík svið málvísinda sem þeir geta kannað nánar á síðari stigum námsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF101G
    Saga Mið-Austurlanda I
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir sögu þess svæðis sem telst til Mið-Austurlanda frá fornöld og fram á miðaldir. Fjallað verður um uppgang Egypta, Súmera og annarra þjóða í hinni svokölluðu 'vöggu siðmenningarinnar'. Sérstök áhersla verður lögð á uppgang íslam á 7. öld og það heimsveldi sem múslimar byggðu upp næstu aldir þar á eftir.  Fjallað verður um Múhameð spámann og eftirmenn hans, tilurð Kóransins, kalífat Umayya, kalífat Abbasída og 'gullöld' íslam. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ328G
    Álfar, femínistar og hryðjuverkamenn: Menning, hópar og valdatengsl í samtímanum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu skoðum við hvernig þjóðfræðaefni vegnar í vestrænum nútímasamfélögum og rýnum í fjölmiðlaefni, kvikmyndir og internetið, auk þess sem við skoðum munnlega og verklega geymd. Á meðal þess sem við tökum til athugunar eru flökkusagnir og ævintýri, trú og fordómar, leikir og hátíðir, veggjakrot og brandarar, og allra handa siðir og venjur. Markmiðið er að bæta skilning okkar á hversdagslegum undirstöðum nútímamenningar og auka meðvitund okkar um allt það "ómerkilega" sem á ríkan þátt í að móta sjónarhorn okkar á samfélagið og viðhorfið til náungans. Stuðst verður við nýjar og nýlegar rannsóknir í þjóðfræði, menningarfræði og skyldum greinum.

    Vinnulag

    Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP105G
    Gagnrýnin hugsun
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • HSP310G
    Listheimspeki
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að veita stutt yfirlit yfir nokkur sígild viðfangsefni í heimspeki listarinnar; að kynna sérstaklega tilteknar spurningar, kenningar og rökfærslur á sviði listheimspeki með lestri valinna texta, bæði sögulegra og samtímalegra; og að þjálfa nemendur í greiningu og umræðu um listheimspekileg efni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE502G
    Þýðingar
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að þýðingum, þýðingasögu og þýðingafræði. Nemendur kynnast helstu hugtökum og kenningum á sviði þýðinga. Námskeiðið skiptist í tvo þætti: Hinn fræðilegi og sögulegi þáttur námskeiðsins fer fram í formi fyrirlestra og umræðna. Jafnframt leggur kennari fram lesefni sem nemendur kynna sér. Námsmat felst í prófum/ritgerðarverkefnum þar sem skyldulesefni er undirstaðan. Verklegi þátturinn fer fram í hópvinnustofum þar sem nemendur æfa sig í þýðingarýni og þýðingum (bókmenntaþýðingum eða nytjaþýðingum) undir handleiðslu kennara. Námsmat felst í skriflegu verkefni eða verkefnum. Nemendur í íslensku sem öðru máli þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum á 1. og 2. ári.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LIS004G
    Myndlist á Vesturlöndum frá 1348–1848
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða meginverk í listasögu Vesturlanda frá frum-endurreisn til fyrri hluta nítjándu aldar tekin til skoðunar. Landfræðilega er sjónum beint að listaverkum frá Ítalíu og Spáni, Frakklandi, Niðurlöndum, Þýskalandi og Englandi. Fjallað verður um helstu aðferðir og skóla, akademíur og birtingarform myndlistar í trúarlegu, pólitísku og samfélagslegu samhengi. Fjallað verður um málaralist, höggmyndalist, byggingarlist, listiðnað og prentmyndir. Leitast verður við að skoða að hvaða leyti listin speglar samfélagið, hvernig myndmál speglar lífssýn og heimsmynd manna á ólíkum tímabilum. Fjallað er um breytilegt inntak tíma og rýmis á hverjum tíma, breytingar á táknrænni mynd líkama, um stöðu og samfélagshlutverk listamann og samspil listar og valdastofnana. Í tengslum við þessi viðfangsefni verða lykilverk hvers tíma tekin til ítarlegrar túlkunar og dreifingarsaga þeirra rædd.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ÍSL205G
    Íslensk bókmenntasaga til 1900
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Yfirlit yfir íslenska bókmenntasögu frá öndverðu til loka 19. aldar. Lögð verður áhersla á að setja hræringar og nýjungar í íslenskum bókmenntum í samhengi við alþjóðlega strauma í bókmenntum álfunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ104G
    Sagnir, ævintýri og sagnamenn: Þjóðsagnafræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður þjóðsagnafræði kynnt sem sérstök grein innan þjóðfræðinnar. Fjallað verður um helstu kenningar um uppruna, einkenni og útbreiðslu þjóðsagna, hlutverk þeirra í samfélögum, söfnun, skráningaraðferðir og varðveislu. Meðal fræðimanna sem hér koma við sögu eru Antti Aarne, Inger M. Boberg, Bruno Bettelheim, Linda Dégh, Stith Thompson, Timothy Tangherlini og Alan Dundes. Þá verður gerð grein fyrir helstu flokkum munnmæla og fjallað sérstaklega um formgerð og greiningu þjóðsagna og ævintýra í ljósi helstu kenninga þar um, þ.á m. Algirdas Greimas, Bengts Holbek, Max Lüthis, Axels Olriks og Vladimirs Propps.

    Vinnulag
    Námið fer einkum fram með lestri nemenda og fyrirlestrum kennara, en einnig með umræðum svo sem kostur er. Hver nemandi heldur auk þess stutta, munnlega framsögn í kennslustund, tekur þátt í umræðuhópi, vinnur verkefni með gerða- eða minnaskrár og skrifar stutta ritgerð um kjörbók.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF203G
    Saga Mið-Austurlanda II
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið tekur upp þráðinn þar sem námskeiðinu Saga-Miðausturlanda I sleppir. Það er þó ekki nauðsynlegur undanfari, hægt er að taka bæði námskeiðin eða annað þeirra. Hér verður farið yfir þróun mála í Mið-Austurlöndum frá ca 1300, uppgang Ottómana og Safavída, og sér í lagi tengsl þeirra við Vesturlönd. Meðal efnis verður nýlendustefna Evrópuríkja í þessum heimshluta og áhrif þeirra á menningu og stjórnmál, uppgangur þjóðernishyggju og tilurð ríkja, og ýmis átök og ágreining sem mótað hefur svæðið allt til dagsins í dag. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF201G
    Forngrískar bókmenntir
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að veita yfirlit yfir bókmenntir Forngrikkja með lestri valinna öndvegisrita af ýmsu tagi allt frá Hómerskviðum til forngrískra skáldsagna frá tímum hins tvítyngda rómverska heimsveldis. Lesnar verða íslenskar þýðingar ef til eru. Námsmat byggir á prófum og ritgerð.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM201G
    Latína II: Úrval latneskra texta
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tekur við af KLM101G Latínu I. Í námskeiðinu verður lesið úrval latneskra texta eftir ýmsa höfunda.

    Kennt er á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    KLM216G
    Heimur Rómverja: Saga og samfélag
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið kynnir nemendum menningu, sögu og samfélag Rómverja. Áhersla verður lögð á tímann frá 201 f.o.t. til 180 e.o.t. Fjallað verður um helstu atburði sögunnar, megin stofnanir samfélagsins, samfélagsgerð, fjölskyldu og kynjahlutverk, þrælahald, menntun, menningu, trú afþreyingu og hversdagslíf. Auk stoðrita verða lesnir fornir textar í þýðingu (enskri eða íslenskri) en ekki gert ráð fyrir latínukunnáttu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KVI201G
    Kvikmyndasaga
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Yfirlit yfir sögu kvikmyndalistarinnar frá upphafi hennar undir lok 19. aldar til okkar daga. Áhrifaríkustu stefnur hvers tíma verða skoðaðar og lykilmyndir sýndar. Nemendur kynnast sovéska myndfléttuskólanum (montage), franska impressjónismanum, þýska expressjónismanum, stúdíókerfinu bandaríska, ítalska nýraunsæinu, japanska mínímalismanum, frönsku nýbylgjunni, þýska nýbíóinu, suður-ameríska byltingabíóinu og Hong Kong-hasarmyndinni svo eitthvað sé nefnt, og reynt verður að bera þessar ólíku stefnur saman. Lögð verður áhersla á að skoða fagurfræðilega þróun kvikmyndarinnar sem og samtímaleg áhrif á útlit og inntak hennar. Námsmat byggist á tveimur prófum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LIS243G
    Alþjóðleg nútímalistasaga frá 1850-1960
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um þróun myndlistar frá umbrotatímum módernismans á síðustu áratugum 19. aldar, í gegnum helstu framúrstefnuhreyfingar eða -isma 20.aldar fram til ársins 1960. Gerð verður grein fyrir helstu stefnum módernískrar myndlistar, forsendum þeirra, sérkennum og mikilvægi fyrir síðari tíma. Fjallað verður um tengsl listar við pólitík, heimspeki og þjóðfélagsþróun og hugað að róttæku endurmati á fegurðarhugtakinu í listum á 20. öld. Hvernig skila breyttar hugmyndir um tíma og rými sér í listinni? Hvernig raska ofangreindar listastefnur venjubundinni skynjun manna á umhverfinu og raunveruleikanum. Hvað er "innri veruleiki"? Þarf myndlist að vera sýnileg? Hver er munur á myndmáli og tungumáli og annars konar táknmáli? Reynt verður að fella alþjóðlegar sýningar sem hingað koma að námskeiðinu og verða þær sóttar heim í tengslum við það.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝÐ201G
    Þýðingarýni og þýðingatækni

Annað ár

Þriðja ár

Óháð námsári

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Nám í frönsku getur nýst á margan hátt. Góð tungumálakunnátta opnar leiðir inn í menningu og hugarheim annarra þjóða og í nútímaþjóðfélagi þar sem alþjóðlegt samstarf og margvísleg tengsl við umheiminn fara sífellt vaxandi er góð færni í tungumálum og menningarlæsi afar eftirsóknarverð.

Lönd, önnur en Frakkland, þar sem franska er opinbert tungumál eru til að mynda Belgía, Sviss, Lúxemborg, Québec-fylki í Kanada, Martiník, Gvadelúpeyjar, Franska Gvæjana, Máritanía, Senegal, Kamerún, Réunion, Franska Pólýnesía og Nýja-Kaledóní.

Franskan getur einnig verið lykill að framtíðarstarfi á mörgum sviðum

Dæmi um störf sem fólk með þessa menntun stundar:

  • Fræðastörf
  • Ferðaþjónusta
  • Fjölmiðlar
  • Stjórnmál
  • Kennsla
  • Þýðingar og túlkun
  • Viðskipti
  • Stjórnsýsla

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Félagið samanstendur af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-hóp og Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Önnu Kristínu Ásbjarnardóttir
Að skrá mig í Frönsk fræði í Háskóla Íslands er ein af mínum bestu ákvörðunum í lífinu. Kennarar og starfsfólk HÍ leggja sig fram við að gera námið eins skipulagt og kostur er, sem auðveldar aðgengi og eykur afköst. Ég fór í námið til að öðlast meiri þekkingu á frönsku, en við það bætist svo miklu meira. Auk þess sem að námið kennir manni að takast á við verkefni með skipulögðum, vísindalegum vinnubrögðum, þá stækkar það líka tengslanetið og opnar dyr að nýjum tækifærum.
Ljósmynd af Sumarliða Ingimarssyni
Námið er mjög fjölbreytt og gefur manni ekki aðeins aukna færni í þessu fallega og útbreidda tungumáli, heldur fær maður einnig góða innsýn inn í sögu, menningu, og samfélag Frakklands. V Það sem stendur upp úr eru svo kennararnir sem leggja sig alla fram við að veita nemendum faglega og persónulega ráðgjöf og hjálpa þeim að þróa sína leið í náminu. Þá má ekki gleyma að hægt er að fara í skiptinám á 2. námsári til fjölda borga og bæja í Frakklandi, Belgíu, og víðar!
Ljósmynd af Dorota Julia Kotniewicz
Frönskunámið er svo sérstakt í mínum huga því að annars vegar bjóðast leiðir sem falla vel að áhuga hvers og eins, hvort sem það eru þýðingar, málfræði eða saga, og hins vegar færðu líka hvatningu til að kynna þér viðfangsefni sem þú hafðir ekki pælt í áður. Þó að það sé vissulega áskorun að allt námið fer fram á frönsku tekur ekki langan tíma að venjast því og þú ert farin að hugsa á frönsku í bílnum á leiðinni heim án þess að fatta það. Ég valdi frönsku til BA-prófs vegna þess að ég hef ástriðu fyrir tungumálum og bókmenntum og nú þegar ég er að ljúka öðru árinu sé ég að allir þættir námsins eru samtvinnaðar og styðja við það sem ég hef mestan áhuga á og veita mér dýpri skilning á viðfangsefninu.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil