""
Tungumál kennslu
Íslenska en flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Eitt ár - 30 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á málefnum fatlaðs fólks?
  • Vilt þú efla fræðilega þekkingu og skilning á fötlun?
  • Langar þig í stutt en bæði fræðilegt og hagnýtt nám?
  • Eru mannréttindi þér hugleikin?

Örnám í fötlunarfræði er ætlað þeim sem vilja efla fræðilega þekkingu sína á fötlun og málefnum fatlaðs fólks.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og er sett upp sem hlutanám til eins árs.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 26 - 30 einingar
  • Bundið valnámskeið, 0 - 6 einingar

Kjörsvið

Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:

  • Fötlunarfræði
  • Fötlunarfræði og opinber stjórnsýsla

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur eru á ensku.

Námið er kennt í fjarnámi.

Meginmarkmið

Meðal annars er miðað að því að nemendur:

  • þekki sögu, þróun og fræðileg viðfangsefni fötlunarfræða.
  • þekki helstu kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræðum og geta greint á milli þeirra.
  • geti greint menningarlegar birtingarmyndir fötlunar og helstu áskoranir sem fatlað fólk mætir á lífsleiðinni út frá gagnrýnu sjónarhorni fötlunarfræða.

Annað

Örnámi sem er lokið með fyrstu einkunn veitir aðgang að meistaranámi.

BA-, BS-, B.Ed-gráða eða sambærileg gráða.

Örnám í fötlunarfræði: Ljúka þarf 30 ECTS einingum í skyldunámskeiðum í fötlunarfræði.

Örnám í fötlunarfræði og opinberri stjórnsýslu: Ljúka þarf 32 ECTS einingum: 26 ECTS einingum í skyldu og 6 ECTS einingum í bundnu vali.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Óháð námsári | Haust
Kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræði (FFR102F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpan skilning á þróun hugmynda og kenninga um fötlun og læri að greina áhrif þeirra á stefnumótun, þjónustu og daglegt líf fatlaðs fólks. Námskeiðið byggir á þverfræðilegum og gagnrýnum sjónarhornum og tengir fræðilega umfjöllun við réttindabaráttu og alþjóðlegar skuldbindingar, svo sem samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD). Fjallað verður um félagsleg og menningarleg sjónarhorn, helstu kenningar og nýjustu rannsóknir í fötlunarfræðum. Áhersla verður á virka þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu sem styrkir gagnrýna hugsun og hæfni til að beita fræðunum í rannsóknum og starfsháttum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Lífshlaupið, sjálf og samfélag (FFR302M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Aðstæður og reynsla fatlaðs fólks er miðlæg í umfjöllun námskeiðsins, þar sem áhersla er á lífshlaupið og þau meginsvið sem snerta daglegt líf, svo sem fjölskyldulíf, menntun, atvinnu og búsetu. Rýnt verður í íslenskar og erlendar rannsóknir um líf og aðstæður fatlaðs fólk og þau fjölmörgu öfl sem móta sjálfsmynd og sjálfsskilning fatlaðra barna, ungmenna og fullorðins fólks. Fræðileg umfjöllun námskeiðsins er tengd við lagasetningar, stefnumótun, þjónustu, velferðarkerfi og félagslegar aðstæður fatlaðs fólks. 

Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Fötlun og menning (FFR201M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á stöðu og ímynd fatlaðs fólks í menningu og listum og geti greint birtingarmyndir fötlunar í sögulegu og samtímalegu samhengi. Fjallað verður um ímyndir og hlutverk fatlaðs fólks í dægurmenningu, fjölmiðlum, bókmenntum, listum og almennri orðræðu. Sérstök áhersla verður á (list)menningu fatlaðs fólks og hvernig fötlun er staðsett sem hluti af fjölbreytileika samfélaga. Rýnt verður í ytra og innra aðgengi að menningu og listum og áhrif þess á þátttöku fatlaðs fólks.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Starfsumhverfi og stjórnun sveitarfélaga (OSS119F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sveitarfélögin mynda annan meginstofn íslenskrar stjórnsýslu. Markmið námskeiðsins er að nemendur geri sér grein fyrir starfsumhverfi þeirra og fái innsýn í stjórnun og vinnuferla á þessu mikilvæga stjórnsýslustigi. Í námskeiðinu verður gefið yfirlit yfir stjórnskipulega stöðu og hlutverk sveitarfélaga, lagareglur sem lúta að störfum sveitarstjórna og helstu verkefnum sveitarfélaganna. Fjallað verður um kosti þessi að skipta ríkjum í sveitarfélög, með hliðsjón af kenningum um lýðræði, hagkvæmni og valddreifingu. Farið verður yfir hvað felst í hlutverki sveitarfélaga annars vegar sem lýðræðislegra stjórnvalda og hins vegar sem þjónustuveitenda. Stuttlega verður einnig vikið að samskiptum ríkis og sveitarfélaga, þ. á m. að verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og tekjustofnum sveitarfélaga.

Skipulag og stjórnun stofnana (OSS202F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um helstu kenningar um skipulagsheildi (organizational theory) og atferli innan skipulagsheilda (organizational behavior). Áhersla er á skipulag og stjórnun opinberra stofnana og fyrirtækja. Markmið áfangans er að veita nemendum innsýn í fræðilega umfjöllun um viðfangsefnin ásamt hagnýtingu tiltekinna stjórnunaraðferða.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana (OSS204F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um íslensk stjórnvöld, íslenska stjórnsýslukerfið, reglur sem gilda um samskipti og yfirstjórn innan stjórnsýslukerfisins, um meðferð stjórnsýslumála og upplýsingarétt almennings. Aðalháerslan er á meðferð stjórnsýslumála og þýðingu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 í því sambandi. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári
  • Haust
  • FFR102F
    Kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpan skilning á þróun hugmynda og kenninga um fötlun og læri að greina áhrif þeirra á stefnumótun, þjónustu og daglegt líf fatlaðs fólks. Námskeiðið byggir á þverfræðilegum og gagnrýnum sjónarhornum og tengir fræðilega umfjöllun við réttindabaráttu og alþjóðlegar skuldbindingar, svo sem samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD). Fjallað verður um félagsleg og menningarleg sjónarhorn, helstu kenningar og nýjustu rannsóknir í fötlunarfræðum. Áhersla verður á virka þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu sem styrkir gagnrýna hugsun og hæfni til að beita fræðunum í rannsóknum og starfsháttum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FFR302M
    Lífshlaupið, sjálf og samfélag
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Aðstæður og reynsla fatlaðs fólks er miðlæg í umfjöllun námskeiðsins, þar sem áhersla er á lífshlaupið og þau meginsvið sem snerta daglegt líf, svo sem fjölskyldulíf, menntun, atvinnu og búsetu. Rýnt verður í íslenskar og erlendar rannsóknir um líf og aðstæður fatlaðs fólk og þau fjölmörgu öfl sem móta sjálfsmynd og sjálfsskilning fatlaðra barna, ungmenna og fullorðins fólks. Fræðileg umfjöllun námskeiðsins er tengd við lagasetningar, stefnumótun, þjónustu, velferðarkerfi og félagslegar aðstæður fatlaðs fólks. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • FFR201M
    Fötlun og menning
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á stöðu og ímynd fatlaðs fólks í menningu og listum og geti greint birtingarmyndir fötlunar í sögulegu og samtímalegu samhengi. Fjallað verður um ímyndir og hlutverk fatlaðs fólks í dægurmenningu, fjölmiðlum, bókmenntum, listum og almennri orðræðu. Sérstök áhersla verður á (list)menningu fatlaðs fólks og hvernig fötlun er staðsett sem hluti af fjölbreytileika samfélaga. Rýnt verður í ytra og innra aðgengi að menningu og listum og áhrif þess á þátttöku fatlaðs fólks.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    OSS119F
    Starfsumhverfi og stjórnun sveitarfélaga hide
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sveitarfélögin mynda annan meginstofn íslenskrar stjórnsýslu. Markmið námskeiðsins er að nemendur geri sér grein fyrir starfsumhverfi þeirra og fái innsýn í stjórnun og vinnuferla á þessu mikilvæga stjórnsýslustigi. Í námskeiðinu verður gefið yfirlit yfir stjórnskipulega stöðu og hlutverk sveitarfélaga, lagareglur sem lúta að störfum sveitarstjórna og helstu verkefnum sveitarfélaganna. Fjallað verður um kosti þessi að skipta ríkjum í sveitarfélög, með hliðsjón af kenningum um lýðræði, hagkvæmni og valddreifingu. Farið verður yfir hvað felst í hlutverki sveitarfélaga annars vegar sem lýðræðislegra stjórnvalda og hins vegar sem þjónustuveitenda. Stuttlega verður einnig vikið að samskiptum ríkis og sveitarfélaga, þ. á m. að verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og tekjustofnum sveitarfélaga.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FFR102F
    Kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræði hide
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpan skilning á þróun hugmynda og kenninga um fötlun og læri að greina áhrif þeirra á stefnumótun, þjónustu og daglegt líf fatlaðs fólks. Námskeiðið byggir á þverfræðilegum og gagnrýnum sjónarhornum og tengir fræðilega umfjöllun við réttindabaráttu og alþjóðlegar skuldbindingar, svo sem samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD). Fjallað verður um félagsleg og menningarleg sjónarhorn, helstu kenningar og nýjustu rannsóknir í fötlunarfræðum. Áhersla verður á virka þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu sem styrkir gagnrýna hugsun og hæfni til að beita fræðunum í rannsóknum og starfsháttum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FFR302M
    Lífshlaupið, sjálf og samfélag hide
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Aðstæður og reynsla fatlaðs fólks er miðlæg í umfjöllun námskeiðsins, þar sem áhersla er á lífshlaupið og þau meginsvið sem snerta daglegt líf, svo sem fjölskyldulíf, menntun, atvinnu og búsetu. Rýnt verður í íslenskar og erlendar rannsóknir um líf og aðstæður fatlaðs fólk og þau fjölmörgu öfl sem móta sjálfsmynd og sjálfsskilning fatlaðra barna, ungmenna og fullorðins fólks. Fræðileg umfjöllun námskeiðsins er tengd við lagasetningar, stefnumótun, þjónustu, velferðarkerfi og félagslegar aðstæður fatlaðs fólks. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • OSS202F
    Skipulag og stjórnun stofnana hide
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um helstu kenningar um skipulagsheildi (organizational theory) og atferli innan skipulagsheilda (organizational behavior). Áhersla er á skipulag og stjórnun opinberra stofnana og fyrirtækja. Markmið áfangans er að veita nemendum innsýn í fræðilega umfjöllun um viðfangsefnin ásamt hagnýtingu tiltekinna stjórnunaraðferða.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • OSS204F
    Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um íslensk stjórnvöld, íslenska stjórnsýslukerfið, reglur sem gilda um samskipti og yfirstjórn innan stjórnsýslukerfisins, um meðferð stjórnsýslumála og upplýsingarétt almennings. Aðalháerslan er á meðferð stjórnsýslumála og þýðingu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 í því sambandi. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk sem lokið hefur námi í fötlunarfræði sinnir margvíslegum störfum innan þjónustu- og menntakerfisins, á vettvangi baráttusamtaka fatlaðs fólks og víðar.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Réttindagæsla
  • Verkefnastjórnun
  • Kennslu
  • Aðhlynningu
  • Stjórnun
  • Stefnumótun
  • Rannsóknir

Listinn er ekki tæmandi. 

Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Menntavísindasvið | Kennsluskrifstofa
Virka daga 9:00 - 15:00
Þjónustuborð og samfélagsmiðlar

Á Þjónustuborði Háskólatorgs færðu aðstoð og upplýsingar um þjónustu Háskóla Íslands. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða notað vefspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.

Fylgdu okkur á Instagram, Youtube og Facebook

Mynd af byggingunni Sögu við Hagatorg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil