- Hefur þú lokið BS/BA/BEd gráðu?
- Ert þú hjúkrunarfræðingur og hyggist leggja stund á MS nám í ljósmóðurfræði til starfsréttinda?
- Ertu hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi en með erlent próf sem ekki telst sambærilegt íslensku BS prófi og hyggist fara í framhaldsnám?
Forkröfunám fyrir umsókn í ljósmóðurfræði til starfsréttinda
Fyrir þau sem lokið hafa BS prófi í hjúkrunarfræði og hafa íslenskt hjúkrunarleyfi.
Námið samanstendur af eftirfarandi tveimur námskeiðum, samtals 12 ECTS einingum.
- Konur, heilsa og samfélag
- Kynheilbrigði
Forkrafa fyrir hjúkrunarfræðinga með íslenskt hjúkrunarleyfi og erlent próf sem ekki telst sambærilegt íslensku BS prófi.
Forkröfuleið A
Á við þau sem eru með hjúkrunarleyfi á Íslandi og hafa lokið hjúkrunarnámi sem jafngildir þriggja ára námi við íslenskan háskóla (180 ECTS). Námið samanstendur af sex námskeiðum, samtals 30 ECTS einingum. Við val á námskeiðum var tekið mið af reynslu af því hvað helst vantar í nám erlendra hjúkrunarfræðinga. Það sem vantar er að öllu jöfnu rannsóknatengt nám og ýmislegt sem lýtur að íslensku heilbrigðisumhverfi. Námskeiðin á kjörsviðinu eru talin endurspegla vel þá vöntun.
Forkröfuleið B
Á við þau sem eru með hjúkrunarleyfi á Íslandi og hafa lokið hjúkrunarnámi sem samsvarar tveggja ára námi við íslenska háskóla (120 ECTS). Námið samanstendur af 9 námskeiðum, samtals 45 ECTS einingum. Við val á námskeiðum var tekið mið af reynslu af því hvað helst vantar í nám erlendra hjúkrunarfræðinga. Það sem vantar er að öllu jöfnu rannsóknatengt nám og ýmislegt sem lýtur að íslensku heilbrigðisumhverfi. Námskeiðin á kjörsviðinu eru talin endurspegla vel þá vöntun.
Athugið að þessi námsleið er ætluð:
- Hjúkrunarfræðingum sem hyggjast sækja um nám í ljósmóðurfræði til starfsréttinda, MS og þurfa áður að ljúka forkröfunámskeiðunum HJÚ823M Kynheilbrigði og HJÚ827M Konur, heilsa og samfélag, samtals 12 einingar.
- Hjúkrunarfræðingum með íslenskt hjúkrunarleyfi sem eru með erlent próf í hjúkrunarfræði sem ekki telst sambærilegt íslensku BS prófi og hyggjast fara í framhaldsnám.
Umsækjandi í forkröfunámskeið fyrir umsókn í ljósmóðurfræði til starfsréttinda, MS þarf að hafa lokið BS prófi í hjúkrunarfræði og hafa íslenskt hjúkrunarleyfi. Sé umsækjandi með BS próf frá öðrum háskóla en Háskóla Íslands, þarf að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini stimplað og á pappír. Samanburðarmat miðað við íslenska háskóla fer fram hjá Matskrifstofu HÍ.
Umsækjandi í forkröfuleið A fyrir hjúkrunarfræðinga (30e) þarf að hafa lokið prófi í hjúkrunarfræði sem telst samsvarandi þriggja ára námi við íslenskan háskóla (180 ECTS) og starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi. Jafnframt þarf umsækjandi að búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu. Öll kennsla fer fram á íslensku. Umsækjandi með próf frá erlendum skóla þarf að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini stimplað og á pappír. Samanburðarmat miðað við íslenska háskóla fer fram hjá Matskrifstofu HÍ.
Umsækjandi í forkröfuleið B fyrir hjúkrunarfræðinga (45e) þarf að hafa lokið prófi í hjúkrunarfræði sem telst samsvarandi tveggja ára námi við íslenskan háskóla (120 ECTS) og starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi. Jafnframt þarf umsækjandi að búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu. Öll kennsla fer fram á íslensku. Umsækjandi með próf frá erlendum skóla þarf að skila inn staðfestu afriti af prófskírteini stimplað og á pappír. Samanburðarmat miðað við íslenska háskóla fer fram hjá Matskrifstofu HÍ.
Forkrafa fyrir ljósmóðurfræði (12e):
Gerð er krafa um BS gráðu í hjúkrunarfræði og starfsleyfi á Íslandi. Áætlaður námstími er eitt misseri.
Forkröfuleið A (30e):
Gerð er krafa um lágmarks meðaleinkunn 6,5 úr forkröfunámi leið A til að komast inn í framhaldsnám á meistarastigi. Áætlað er að námstími í forkröfuleið A sé eitt ár.
Forkröfuleið B (45e):
Gerð er krafa um lágmarks meðaleinkunn 6,5 úr forkröfunámi leið B til að komast inn í framhaldsnám á meistarastigi. Áætlað er að námstími í forkröfuleið B sé eitt ár.
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Haust
- Heimahjúkrun
- Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun
- Langveikir og heilbrigðisþjónustan
- Vor
- Tölfræði
- Aðferðafræði
- Lokaverkefni
Heimahjúkrun (HJÚ711G)
Í námskeiðinu verður fjallað um heimilið sem vettvang heilbrigðisþjónustu. Rætt verður um gildi heimilisins fyrir fólk og áhrif tæknivæðingar á heimilismenn. Leitast verður við að skoða samspil umhverfis á heimilum og heilsu og lífsgæða. Samstarf við aðstandendur og aðstæður þeirra verða ræddar með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum. Gerð verður grein fyrir uppbyggingu og skipulagi heilbrigðis- og félagsþjónustu til þeirra sem dvelja heima og þarfnast aðstoðar vegna veikinda eða skerðingar á færni. Í fyrirlestrum og klínísku námi kynnist nemandi störfum í heimahjúkrun sem miða að því að viðhalda og efla vellíðan fólks með langvinn heilsufarsvandamál sem býr á eigin heimili.
Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun (HJÚ529G)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur kynnist hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og því hvernig fjölskylduhjúkrun hefur verið útfærð innan heilbrigðisþjónustunnar. Hlutverk hjúkrunarfræðinga í fjölskyldustuðningi og viðhorf til sjúkdóma verða rædd. Farið verður yfir fjölskylduvirkni og fjölskylduhjúkrun í framkvæmd, hvernig hægt er að nota meðferðarspurningar á árangursríkan hátt og hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir virka og þá hvers vegna. Nemendur fá þjálfun í að beyta hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar í færnibúðum, auk þess sem unnið verður að því að þróa styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður. Hvatt er til þátttöku ykkar í námskeiðinu.
Fyrirkomulag námsins
Fyrirlestrar: Verða haldnir í námskeiðinu nánar tiltekið í okt. Fyrirlestrar verða ekki teknir upp. Þar sem kennslan í fjölskylduhjúkruninni byggir mikið á hópavinnu sem kemur í kjölfar fyrirlestrana, er virka þátttaka ykkar mikilvæg í tímunum. Hópavinnan og umræður þar sem nemendum gefst tækifæri til að kafa ofan í námsefnið til að öðlast betri skilning á því er ekki tekin upp. Nemendur eru því hvattir til að mæta í fyrirlestrana.
Kennslan byggist á því að nemendur mæti undirbúnir í hvern tíma. Notaðar verða fjölþættar kennsluaðferðir (fyrirlestrar, vinna í hópum og þjálfun í færnibúðum). Hvatt er til skoðanaskipta og rökræðna á gagnrýninn og uppbyggjandi hátt. Skyldumæting er í færnibúðirnar (tveir dagar) og í munnlegar samræður með kennurum um fjölskylduverkefnið þeirra í færnibúðunum. Auk þess er skyldumæting í munnlegar samræður við sérfræðikennara nemenda um verkefni B.
Færnibúðir: Nemendur mæta tvisvar sinnum (þ.e. í tvo daga) í færnibúðir og skila inn einu verkefni (Verkefni A—einstaklingsverkefni (skriflegur hluti verkefnisins) auk þess sem þeir mæta í munnlegar sammræður um verkefnið með sérfræðikennaranum þeirra á síðari degi færnibúðanna (síðari hluti verkefnisins). Í færnibúðunum vinna þeir einnig að undirbúningi á verkefni C sem tilheyrir námskeiðinu HJÚ632G (en námskeiðin eru tengd saman)
Verkefni A:
Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann). Verkefnið er unnið undir náinni handleiðslu sérfræðikennara í færnibúðum.
Verkefni B:
Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann). Verkefnið er einstaklingsverkefni þar sem nemendum er úthlutað fjölskyldu- bíómynd til að vinna með í verkefnaviku. Tilgangur verkefnisins er að nemendur geti dýpkað þekkingu sína í fjölskylduhjúkrun. Verkefnið er unnið á þremur dögum um miðjan nóv (sjá stundatöflu). Munnlegu samræðurnar um verkefni B eru haldnar á síðasta degi verkefnavikunnar (þ.e. á föstudeginum).
Langveikir og heilbrigðisþjónustan (HJÚ727G)
Námskeiðið er ætlað 4. árs BS nemendum í hjúkrunarfræði. Það er fræðilegt (4 ECTS) og klínískt (1 ECTS) og skiptist í tvo þætti:
Þjónustunotkun og íslensk heilbrigðisþjónusta í alþjóðlegu samhengi.
Fjallað er um veikindahegðun og þjónustunotkun, skýringar á þjónustunotkun, einkenni þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu, skipulag á og aðgengi að þjónustu, árangur og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu. Umsjón með þessum þætti námskeiðsins hefur Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.
Meðferð/þjónusta hjúkrunarfræðinga fyrir langveika og fjölskyldur þeirra.
Fjallað er um hugtök, einkenni og fyrirbæri sem tengjast langveikum og fjölskyldum þeirra og hjúkrunarmeðferðir sérsniðnar að þörfum langveikra og fjölskyldna þeirra. Einnig er fjallað um siðferðileg álitamál í þjónustu við langveika og fjölskyldur þeirra og úrvinnsla álitamála þjálfuð. Nemendur kynnast starfsemi stofnana sem þjónusta langveika, verða í klínísku námi á göngudeildum fyrir langveika og kynnast starfsemi sjúklingasamtaka.
Tvær kennsluáætlanir verða í námskeiðinu, annars vegar fyrir grunnnemendur og hins vegar fyrir framhaldsnemendur. Nemendur námskeiðsins geta nálgast þær á Canvas þegar kennsla er hafin.
Tölfræði (HJÚ214G)
Í námskeiðinu eru kennd grunnatriði hagnýtrar tölfræði með áherslu á notkun Jamovi tölfræðihugbúnaðarins. Fjallað er um helstu hugtök lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og hvernig tölfræðilegir útreikningar eru framkvæmdir í Jamovi, túlkaðir og kynntir. Meginefni námskeiðsins nær m.a. til breytutegunda og rannsóknarsniða, mælikvarða á miðlægni og dreifingu, myndrænnar framsetningar gagna, stöðlunar, dreifinga, tilgátuprófana (þar á meðal t-prófa og χ²-prófa) og fylgni (þar meðal Pearson’s r og Spearman’s r). Áhersla er lögð á hagnýta færni nemenda í Jamovi og gagnrýna túlkun á tölfræðilegum niðurstöðum í samhengi heilbrigðisvísinda.
Aðferðafræði (HJÚ243G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum í aðferðafræði sem og þekkingu á algengustu rannsóknaaðferðum sem beitt er í hjúkrunarrannsóknum.
Lokaverkefni (HJÚ818L)
Lokaverkefni í hjúkrunarfræði er 10 eininga námskeið sem undirbýr nemendur fyrir að beita fræðilegum vinnubrögðum og aðferðafræðilegri þekkingu í þeim tilgangi að setja fram nýja þekkingu með hagnýtt gildi. Nemendur vinna verkefni að jafnaði 3-4 saman undir leiðsögn bæði fastráðinna kennara við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild og hjúkrunarfræðinga á klínískum vettvangi með a.m.k. meistarapróf. Verkefnin verða byggð á fræðilegum heimildum og tengjast klínískri vinnu hjúkrunarfræðinga.
- Haust
- Námskeiðslýsing
Í námskeiðinu verður fjallað um heimilið sem vettvang heilbrigðisþjónustu. Rætt verður um gildi heimilisins fyrir fólk og áhrif tæknivæðingar á heimilismenn. Leitast verður við að skoða samspil umhverfis á heimilum og heilsu og lífsgæða. Samstarf við aðstandendur og aðstæður þeirra verða ræddar með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum. Gerð verður grein fyrir uppbyggingu og skipulagi heilbrigðis- og félagsþjónustu til þeirra sem dvelja heima og þarfnast aðstoðar vegna veikinda eða skerðingar á færni. Í fyrirlestrum og klínísku námi kynnist nemandi störfum í heimahjúkrun sem miða að því að viðhalda og efla vellíðan fólks með langvinn heilsufarsvandamál sem býr á eigin heimili.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuHJÚ529GKlínísk færni í fjölskylduhjúkrunSkyldunámskeið3Skyldunámskeið á námsleiðinni3 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur kynnist hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og því hvernig fjölskylduhjúkrun hefur verið útfærð innan heilbrigðisþjónustunnar. Hlutverk hjúkrunarfræðinga í fjölskyldustuðningi og viðhorf til sjúkdóma verða rædd. Farið verður yfir fjölskylduvirkni og fjölskylduhjúkrun í framkvæmd, hvernig hægt er að nota meðferðarspurningar á árangursríkan hátt og hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir virka og þá hvers vegna. Nemendur fá þjálfun í að beyta hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar í færnibúðum, auk þess sem unnið verður að því að þróa styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður. Hvatt er til þátttöku ykkar í námskeiðinu.
Fyrirkomulag námsins
Fyrirlestrar: Verða haldnir í námskeiðinu nánar tiltekið í okt. Fyrirlestrar verða ekki teknir upp. Þar sem kennslan í fjölskylduhjúkruninni byggir mikið á hópavinnu sem kemur í kjölfar fyrirlestrana, er virka þátttaka ykkar mikilvæg í tímunum. Hópavinnan og umræður þar sem nemendum gefst tækifæri til að kafa ofan í námsefnið til að öðlast betri skilning á því er ekki tekin upp. Nemendur eru því hvattir til að mæta í fyrirlestrana.
Kennslan byggist á því að nemendur mæti undirbúnir í hvern tíma. Notaðar verða fjölþættar kennsluaðferðir (fyrirlestrar, vinna í hópum og þjálfun í færnibúðum). Hvatt er til skoðanaskipta og rökræðna á gagnrýninn og uppbyggjandi hátt. Skyldumæting er í færnibúðirnar (tveir dagar) og í munnlegar samræður með kennurum um fjölskylduverkefnið þeirra í færnibúðunum. Auk þess er skyldumæting í munnlegar samræður við sérfræðikennara nemenda um verkefni B.
Færnibúðir: Nemendur mæta tvisvar sinnum (þ.e. í tvo daga) í færnibúðir og skila inn einu verkefni (Verkefni A—einstaklingsverkefni (skriflegur hluti verkefnisins) auk þess sem þeir mæta í munnlegar sammræður um verkefnið með sérfræðikennaranum þeirra á síðari degi færnibúðanna (síðari hluti verkefnisins). Í færnibúðunum vinna þeir einnig að undirbúningi á verkefni C sem tilheyrir námskeiðinu HJÚ632G (en námskeiðin eru tengd saman)
Verkefni A:
Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann). Verkefnið er unnið undir náinni handleiðslu sérfræðikennara í færnibúðum.
Verkefni B:
Einstaklingsverkefni sem byggir á a) fyrri hluta (skriflegum hluta verkefnisins) og b) síðari hluta (munnlegum samræðum við sérfræðikennarann). Verkefnið er einstaklingsverkefni þar sem nemendum er úthlutað fjölskyldu- bíómynd til að vinna með í verkefnaviku. Tilgangur verkefnisins er að nemendur geti dýpkað þekkingu sína í fjölskylduhjúkrun. Verkefnið er unnið á þremur dögum um miðjan nóv (sjá stundatöflu). Munnlegu samræðurnar um verkefni B eru haldnar á síðasta degi verkefnavikunnar (þ.e. á föstudeginum).
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHJÚ727GLangveikir og heilbrigðisþjónustanSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er ætlað 4. árs BS nemendum í hjúkrunarfræði. Það er fræðilegt (4 ECTS) og klínískt (1 ECTS) og skiptist í tvo þætti:
Þjónustunotkun og íslensk heilbrigðisþjónusta í alþjóðlegu samhengi.
Fjallað er um veikindahegðun og þjónustunotkun, skýringar á þjónustunotkun, einkenni þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu, skipulag á og aðgengi að þjónustu, árangur og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu. Umsjón með þessum þætti námskeiðsins hefur Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.Meðferð/þjónusta hjúkrunarfræðinga fyrir langveika og fjölskyldur þeirra.
Fjallað er um hugtök, einkenni og fyrirbæri sem tengjast langveikum og fjölskyldum þeirra og hjúkrunarmeðferðir sérsniðnar að þörfum langveikra og fjölskyldna þeirra. Einnig er fjallað um siðferðileg álitamál í þjónustu við langveika og fjölskyldur þeirra og úrvinnsla álitamála þjálfuð. Nemendur kynnast starfsemi stofnana sem þjónusta langveika, verða í klínísku námi á göngudeildum fyrir langveika og kynnast starfsemi sjúklingasamtaka.Tvær kennsluáætlanir verða í námskeiðinu, annars vegar fyrir grunnnemendur og hins vegar fyrir framhaldsnemendur. Nemendur námskeiðsins geta nálgast þær á Canvas þegar kennsla er hafin.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
NámskeiðslýsingÍ námskeiðinu eru kennd grunnatriði hagnýtrar tölfræði með áherslu á notkun Jamovi tölfræðihugbúnaðarins. Fjallað er um helstu hugtök lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og hvernig tölfræðilegir útreikningar eru framkvæmdir í Jamovi, túlkaðir og kynntir. Meginefni námskeiðsins nær m.a. til breytutegunda og rannsóknarsniða, mælikvarða á miðlægni og dreifingu, myndrænnar framsetningar gagna, stöðlunar, dreifinga, tilgátuprófana (þar á meðal t-prófa og χ²-prófa) og fylgni (þar meðal Pearson’s r og Spearman’s r). Áhersla er lögð á hagnýta færni nemenda í Jamovi og gagnrýna túlkun á tölfræðilegum niðurstöðum í samhengi heilbrigðisvísinda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum í aðferðafræði sem og þekkingu á algengustu rannsóknaaðferðum sem beitt er í hjúkrunarrannsóknum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingLokaverkefni í hjúkrunarfræði er 10 eininga námskeið sem undirbýr nemendur fyrir að beita fræðilegum vinnubrögðum og aðferðafræðilegri þekkingu í þeim tilgangi að setja fram nýja þekkingu með hagnýtt gildi. Nemendur vinna verkefni að jafnaði 3-4 saman undir leiðsögn bæði fastráðinna kennara við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild og hjúkrunarfræðinga á klínískum vettvangi með a.m.k. meistarapróf. Verkefnin verða byggð á fræðilegum heimildum og tengjast klínískri vinnu hjúkrunarfræðinga.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar