""
Tungumál kennslu
Íslenska, flestar kennslubækur á ensku
Lengd náms
Þrjú ár - 90 einingar
Námsform
Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Viltu vinna með eina mikilvægustu auðlind Íslands? 
  • Heillar fiskeldi þig? 
  • Viltu menntun sem nýtist beint í störfum innan greinarinnar? 
  • Langar þig að starfa í ört vaxandi atvinnugrein með mikla framtíðarmöguleika? 

Diplómanám í fiskeldisfræðum hefur það markmið að mennta nemendur í fiskeldi og skyldum greinum á háskólastigi. Nemendur öðlast bæði fræðilega og verklega þekkingu ásamt því sem stór fyrirtæki í greininni á Íslandi eru heimsótt. Nemendur öðlast einnig innsýn í lög og reglugerðir innan geirans. Námið sem er á háskólastigi hentar bæði þeim sem hafa áhuga á fiskeldi ásamt þeim sem þegar hafa starfsreynslu í greininni.

Námið samanstendur af 10 stuttum námskeiðum (2-4 vikur hvert) sem innihalda fyrirlestra og umræður á netinu, og tveggja til þriggja daga staðlotu í hverju námskeiði. Skyldumæting er í staðloturnar sem innihalda verklegar æfingar ýmist í í Hólaskóla eða í heimsóknum til fyrirtækja.

Námskeiðin 10 eru kennd hvert á eftir öðru, án þess að þau skarist hvort við annað.

Þegar nemendur hafa lokið öllum námskeiðum fara nemendur í 12 vikna verknám í greininni þar sem þeir beita þeirri þekkingu og hæfni sem þeir hafa öðlast í náminu. Verknámið fer venjulega fram að sumri og er í samfelldar 12 vikur.

Þeir nemendur sem þegar starfa í greininni eru hvattir til að taka verknám á annarri starfsstöð en þeirri sem þeir starfa á. Gera skal ráð fyrir auka kostnaði vegna heimsóknar kennara á verknámsstað nemenda.

Umsækjandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða lokið öðrum undirbúningi (sbr. lög nr. 63/2006), sem háskólaráð telur jafngildan. Umsóknum nemenda, sem ekki hafa lokið stúdentsprófi, skal vísað til kennslunefndar til umsagnar. Nemendur annarra háskóla geta einnig tekið hluta af námi sínu við Háskóla Íslands á Hólum enda sé kveðið á um það í sérstökum samningum milli stofnana.

Nemendur skulu ljúka diplómaprófi innan þriggja ára frá fyrstu innritun.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Haust
Verknám (VER2028120)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
28 einingar, ETCS
Þar af 28 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Verknámið er hluti diplómanáms og vinnur hver nemandi í tólf vikur í fiskeldisstöð. Nemandinn á að skila eðlilegu dagsverki og skal hann taka þátt í öllum algengum störfum sem unnin eru á viðkomandi eldisstöð. Jafnframt því skal nemandi vinna að umbótaverkefni að eigin vali hjá fyrirtækinu í samráði við stöðvarstjóra og umsjónarmanns verknáms og háskolans kennari. Nemandinn hafi aðgang að tölulegum upplýsingum sem tengjast framleiðslunni, svo sem gögn yfir vatn, vatnsgæði og vatnsmeðhöndlun, fóður og fóðrun, vöxt og vaxtarferla, auk kostnaðartengdra þátta (sem umsjónarmaður er viljugur að láta í té).

Verklag: Nemandanum skal gefinn kostur á að vinna sjálfstætt að störfum eftir því sem starfsreynsla og geta hans leyfir. 

Auk ofangreindra starfa er nemandanum ætlað að greina þætti sem betur gætu farið í rekstri, vinnulagi og skipulagi eldisstöðvarinnar og beita þekkingu sinni til að gera tillögur að endurbótum/breytingum sem mætti nýta til hagræðingar og framfara fyrir eldisstöðina. Nemendur geta haft hugmyndafræði SVÓT-greininga til hliðsjónar við þessa vinnu og greina þannig styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri fiskeldisstöðvarinnar.
Verkefnið þarf að vera hluti af skýrslu í lok verknáms.

Verknámið er hluti af diplómagráðu, en er ekki metið  til BS-náms.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Klak og hrogn (KOH1306190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemandinn öðlist skilning á æxlunarfræði fiska, og hvernig þekking á henni  nýtist í fiskeldi, m.t.t. kynþroska, hrygningar, umhirðu hrogna og eldis fiska, hvort sem um ferskvatns- eða sjávareldi er að ræða. Áhersla er á þroskalíffræði laxfiska. 

Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Í fyrstu tveimur vikunum eru fyrirlestrar, kannanir og umræður tengdar þeim. Staðbundna lotan er yfirleitt í annari viku. Í henni takast nemendur við fjölbreytt verkefni, t.d. söfnun kynfrumna fiska og skoðun á aðferðum við kynbætur fiska. Einnig skoða nemendur fyrstu stig í þroska fiska og reikna út nytsamleg dæmi.

Í þriðju og loka viku námskeiðsns er lögð sérstök áhersla á æxlunarlíffræði mikilvægra eldistegunda bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Einnig munum við ræða kynbætur í fiskeldi.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Seiði og frumfóðrun (SOF1406120)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum fræðilegan og tæknilegan bakgrunn við eldi og meðhöndlun fisklirfa og smáseiða nokkura tegunda fiska í fersku og söltu vatni. Námskeiðið kennt í 3 vikur. Miðlun námsefnisins fer einkum fram í fyrirlestrum , þar sem dregin eru upp mikilvægustu efnisatriði. Gert er ráð fyrir verklegum æfingum/sýnikennslu þar sem nemendur kynna sér frumfóðrun laxfiska og sjávarfiska. Nemendur kynna sér ræktun á lifandi fóðri fyrir smáfiska. Skilaverkefni um efni námskeiðsins. Umræður.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Fiskur og vatn (FOV1206200)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verður uppfært.

Í námskeiðinu verður fjallað um eldisumhverfi og áhrif eldisumhverfisinins á fiska. Leitast verður við að tengja vatnsfræði og líffræði fisksins. Farið verður yfir byggingareiningar lífs, frumeindir og sameindir, frumur, flutningu um frumuhimnur, uppbyggingu fisks, útlit og líffæraskipan. Fjallað um hreyfingu fiska, flotstjórn og hegðun, öndun fiska og súrefnisupptöku. Flutningur á súrefni og koldíoxíði og útskilnað á koldíoxíði og ammóníaki. Einnig verður fjallað um vatnsbúskap fiska og seltuþol. Farið verður yfir frumeindir og sameindir, helstu eðliseiginleika vatns og áhrif þeirra á vöxt og þrif fiska. Farið verður yfir uppleyst efni í vatni, seltu, lofttegundir, sýrustig og eðlisþyngd vatns, og einfalda útreikninga þar að lútandi vatnsgæði og helstu þætti sem ráða vatnsgæðum í fiskeldi. Sérstök áhersla verður lögð á súrefni, koldíoxíð og ammóníak. Kynntar verða helstu aðferðir við að stýra vatnsgæðum í fiskeldi. Samhliða umfjöllun um vatnsgæði verður fjallað um áhrif vatnsgæða á fiska. Farið verður yfir öndun, súrefnisupptöku og útskilnað á koldíoxíði og nitursamböndum. Einnig verður fjallað um áhrif umhverfis á vatns og seltubúskap fiska. Í tengslum við vatnsþörf í fiskeldi verður fjallað um vatnstöku, hönnun einfaldra vatnslagna, val á dælum og stjórnun hita og seltu í eldisvatni. Námskeiðið verður kennt á þremur vikum. Fyrsta vikan verður kennd í fjarnámi. Þá verða lagðir fram á vefsvæði námskeiðsins flestir fyrirlestrar auk þess sem nemendur leysa heimaverkefni. Önnur vikan verður staðbundin lota á Hólum með verklegum æfingum, umræðutímum og verkefnavinnu. Síðasta vikan verður kennd í fjarnámi þar sem seinust fyrirlestrarnir verða lagðir fyrir og nemendur skila heimaverkefnum.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að fiskeldisfræðum (INF1006180)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu má skipta í tvo megin hluta, Nýnemadaga/aðferðafræði og almennan fiskeldishluta (1) Á nýnemadögum verður starfsemi og stoðþjónusta skólans kynnt. Þar mæta nemendur m.a. í almenna fyrirlestra með öðrum nýnemum um starfsemi háskóla, gagnrýna hugsun og siðferði. Í aðferðafræði verður farið yfir námstækni, öflun heimilda og gæði þeirra og notkun, og uppsetningu og frágang á rituðum texta. Stuðst verður við APA kerfið sem verður haft til viðmiðunar við verkefnaskil í þessum áfanga sem og öðrum áföngum námsins. (2) Staða fiskeldis - Farið verður yfir þær tegundir sem eru í eldi hérlendis, magntölur, verðmæti, framleiðsluaðferðir og sett í samhengi við framleiðslu í öðrum löndum og framleiðslu annara matvæla. Fjallað verður um helstu fiskeldisframleiðsluþjóðir heims og þær tegundir sem eru ráðandi í eldi. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Ein staðarlota er í upphafi námskeiðs þar sem nemar mæta á nýnemadaga, læra um aðferðafræði og fara í vettvangsferð í fiskeldisstöðvar á Norðurlandi, þar sem nemendur kynna sér starfsemi þeirra undir handleiðslu kennara. Í ferðinni verður mest áhersla lögð á framleiðsluhætti, framleiðslutölur, markaði fyrir afurðir, uppbyggingu eldiskerfa, eldisaðferðir og eldisferla. Að öðru leyti, samanstendur námið af fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu sem felur í sér stór og smá verkefni sem nemendur leysa einir sér eða í hópum.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Undirstaða rannsókna lífvera í fiskeldi (URL1108200)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grunnþekkingu og skilning á ólífrænni og lífrænni efnafræði, auk grunndvallaratriðum líffræði og stærðfræði sem tengist fiskeldi. Í námskeiðinu er farið yfir grunn ólífrænnar efnafræði, frá atómum, efnatengjum og efnahvörfum. Rætt er um lífrænnar- og lífefnafræði, m.a.  um mikilvægar sameindir fyrir lífverur (t.d. sykrur, prótein og fitusýrur) og efnahvörf sem mikilvægt er að nemendur skilji í tengslum við fiskeldi. Farið yfir frumulíffræði og hvernig frumur vinna saman til að mynda vefi og lífverur. Grunnlíffræði og bygging lífvera kynnt fyrir nemendum. Flokkunarfræði þeirra lífvera sem mikilvægar eru fyrir fiskeldi verður rætt, frá veirum til dýra. Í verklegri staðarlotu námskeiðsins fá nemendur þjálfun í grunnútreikningum og notkun á töflureikni (Excel).

Námskeiðið stendur í fjórar vikur, þar sem fyrstu tvær vikurnar byggjast að mestu á fyrirlestrum og smærri nemendaverkefnum. Í þriðju vikunni er þriggja daga staðbundin lota, þar sem nemendur vinna áfram með útreikinga, flytja fyrirlestra, taka þátt í umræðum. Í lokaviku námskeiðsins vinna nemendur að mestu í að skila verkefnum og þreyta lokapróf.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Sjúkdómar og hreinlæti (SOH1604200)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í upphafi námskeiðs er farið yfir helstu hugtök tengt sjúkdómafræði.
Stutt kynning er um fiskeldi á heimsvísu ásamt sögulegum dæmum um sjúkdóma sem höfðu miklar afleiðingar.
Farið er yfir ýmsar aðferðir sem notaðar eru gegn fisksjúkdómum í fiskeldisstöðvum. Að lokum er farið yfir helstu bakteríusjúkdóma sem þekktir eru, sem og sjúkdóma sem stafa af veirum, sveppum og sníkjudýrum í fiskeldi.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Slátrun og vinnsla (SOV1506200)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um mismunandi aðferðir sem notaðar eru til að rækta, slátra og vinna eldisfisk og þá þætti sem geta haft áhrif á gæði afurðar. Þá verður fjallað um aðferðir við mat á ferskleika fisks. Síðan verður farið yfir mismunandi aðferðir  til að varðveita afurðir og hækka virði þeirra (frysting, söltun, þurrkun, reykingar). Einnig er farið yfir mikilvægi hreinlætis og örverur í mat. Þá verður farið stutt yfir vottun og þær merkingar afurðar sem benda á lífrænt fiskeldi. Að lokum er fjallað um áhættumat og áhættustjórnun samkvæmt HACCP (Hazard Analysis and Critical Control Point) í tengslum við framleiðslu fiskeldis og öryggis matvæla.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Umhverfismál fiskeldis (UMF1706190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Almennt markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grunnþekkingu og skilning á helstu umhverfismálum er tengjast fiskeldi á heimsvísu og á Íslandi, sem og á helstu lögum og reglum er tengjast þessum málum hérlendis. Fjallað er um helstu umhverfisvandamál í lagareldi og tengsl lagareldis við hina villtu náttúru. Fluttur er almennur inngangur um umhverfisfræði og því álagi á náttúrulegar auðlindir sem maðurinn veldur. Rætt er um mengunarefni í eldisvatni, aðferðir notaðar við hreinsun slíkra efna og áhrif mengunnar á náttúruleg vistkerfi og ólíka viðtaka. Fjallað er um röskun búsvæða í tengslum við fiskeldi, áhrif fiskeldis á nýtingu náttúrulegra stofna, samkeppni eldisfiska við villta fiska og erfðablöndun þeirra á milli. Þá er fjallað um tilraunir til fjöleldis og lífrænt fiskeldi. Kynntar eru helstu stofnanir sem koma að leyfisveitingum í tengslum við fiskeldi og gefin yfirsýn á stöðu umhverfismála í fiskeldi hérlendis. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Fyrsti hluti námskeiðsins felst í fyrirlestrum og vinnu heimaverkefna. Í annarri viku er staðarlota, þar sem nemendur gera verklega æfingu, undirbúa og halda pallborðsumræðu byggðan á vísindagrein og taka þátt í umræðum. Í þriðju viku námskeiðsins eru verkefnaskil og lokapróf.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Áframeldi (ÁFR1808120)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum mikilvægi líffræðilegra og tæknilegra atriða við eldi á fiski frá seiðastigi að matfiskstærð. Í námskeiðinu verður fjallað um eldi á laxfiskum og helstu sjávarfiskum sem virðist álitlegt að ala á Íslandi. Umfjöllun um mikilvæga þætti sem hafa áhrif á framleiðslu og rekstur. Kennt í 4 vikur Kennslan byggist einkum upp af fyrirlestrum og sýnidæmum. Nemendur vinna framleiðsluáætlanir og vaxtarúrteikninga. Gera áætlanir um fóðurþörf, fóðurkostnað og aðra kostnaðartengda þætti sem tengjast fiskinum og rekstri fiskeldisstöðvar eftir því sem við á. Útreikningar á vatnsþörf- flutningi vatns inn og út úr eldisrými, strumsetning í keri, viðhald vatnsgæða og rýmisþörf

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Eldisbúnaður (EBÚ1906180)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Megin inntak námskeiðsins fjallar um hvernig útbúa má og viðhalda góðum eldisaðstæðum fyrir eldi tegunda, einkum við eldi á landi.

Í námskeiðinu verður fjallað ýmsa þætti sem tengjast hönnun fiskeldisstöðva og rekstri þeirra, hvernig hafa má áhrif á nýtingu og hámarka afköst og virkni. Fjallað verður sérstaklega um vatnsöflun, vatnsflutning og vatnsnýtingu bæði í gegnumrennslis- og endurnýtingarkerfum. Hönnun eldisbúnaðar og lögmál sem gilda um virkni hans. Nemendur fá yfirsýn yfir samsetningu, virkni og rekstur endurnýtingarkerfa í fiskeldi og þjálfun í mælingum og stjórnun vatnsgæða.

Byggt verður ofan á þekkingu úr námskeiðunum Fiskur og vatn, frumfóðrun og seiðaeldi og áframeldi en kafað dýpra í námsefnið.

Markmið námskeiðsins er að nemandinn fái innsýn í starfsemi og notkun ýmiskonar tæknibúnaðar sem notaður er í fiskeldi. Kennd verður uppsetning og viðhald lagnakerfa í fiskeldisstöðvum. Fjallað er um virkni og notkun á ýmsum búnaði sem tengist viðhaldi á vatnsgæðum og eftirliti með þeim.

Námskeiðið stendur yfir í 4 vikur. Kennsla er í formi fyrirlestra, verkefna og verklegra æfinga. Í fjórðu viku námskeiðsins mæta nemdur í staðbundna lotu og þar fá nemendur að æfa sig í stýring endurnýtingakerfa og mælingum á vatnsgæðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Verknám (VER2028120)
Valnámskeið á námsleiðinni
28 einingar, ETCS
Þar af 28 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Verknámið er hluti diplómanáms og vinnur hver nemandi í tólf vikur í fiskeldisstöð. Nemandinn á að skila eðlilegu dagsverki og skal hann taka þátt í öllum algengum störfum sem unnin eru á viðkomandi eldisstöð. Jafnframt því skal nemandi vinna að umbótaverkefni að eigin vali hjá fyrirtækinu í samráði við stöðvarstjóra og umsjónarmanns verknáms og háskolans kennari. Nemandinn hafi aðgang að tölulegum upplýsingum sem tengjast framleiðslunni, svo sem gögn yfir vatn, vatnsgæði og vatnsmeðhöndlun, fóður og fóðrun, vöxt og vaxtarferla, auk kostnaðartengdra þátta (sem umsjónarmaður er viljugur að láta í té).

Verklag: Nemandanum skal gefinn kostur á að vinna sjálfstætt að störfum eftir því sem starfsreynsla og geta hans leyfir. 

Auk ofangreindra starfa er nemandanum ætlað að greina þætti sem betur gætu farið í rekstri, vinnulagi og skipulagi eldisstöðvarinnar og beita þekkingu sinni til að gera tillögur að endurbótum/breytingum sem mætti nýta til hagræðingar og framfara fyrir eldisstöðina. Nemendur geta haft hugmyndafræði SVÓT-greininga til hliðsjónar við þessa vinnu og greina þannig styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri fiskeldisstöðvarinnar.
Verkefnið þarf að vera hluti af skýrslu í lok verknáms.

Verknámið er hluti af diplómagráðu, en er ekki metið  til BS-náms.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Sumar

Fyrsta ár
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    VER2028120
    Verknám
    Skyldunámskeið
    28

  • KOH1306190
    Klak og hrogn
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemandinn öðlist skilning á æxlunarfræði fiska, og hvernig þekking á henni  nýtist í fiskeldi, m.t.t. kynþroska, hrygningar, umhirðu hrogna og eldis fiska, hvort sem um ferskvatns- eða sjávareldi er að ræða. Áhersla er á þroskalíffræði laxfiska. 

    Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Í fyrstu tveimur vikunum eru fyrirlestrar, kannanir og umræður tengdar þeim. Staðbundna lotan er yfirleitt í annari viku. Í henni takast nemendur við fjölbreytt verkefni, t.d. söfnun kynfrumna fiska og skoðun á aðferðum við kynbætur fiska. Einnig skoða nemendur fyrstu stig í þroska fiska og reikna út nytsamleg dæmi.

    Í þriðju og loka viku námskeiðsns er lögð sérstök áhersla á æxlunarlíffræði mikilvægra eldistegunda bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Einnig munum við ræða kynbætur í fiskeldi.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SOF1406120
    Seiði og frumfóðrun
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum fræðilegan og tæknilegan bakgrunn við eldi og meðhöndlun fisklirfa og smáseiða nokkura tegunda fiska í fersku og söltu vatni. Námskeiðið kennt í 3 vikur. Miðlun námsefnisins fer einkum fram í fyrirlestrum , þar sem dregin eru upp mikilvægustu efnisatriði. Gert er ráð fyrir verklegum æfingum/sýnikennslu þar sem nemendur kynna sér frumfóðrun laxfiska og sjávarfiska. Nemendur kynna sér ræktun á lifandi fóðri fyrir smáfiska. Skilaverkefni um efni námskeiðsins. Umræður.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOV1206200
    Fiskur og vatn
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verður uppfært.

    Í námskeiðinu verður fjallað um eldisumhverfi og áhrif eldisumhverfisinins á fiska. Leitast verður við að tengja vatnsfræði og líffræði fisksins. Farið verður yfir byggingareiningar lífs, frumeindir og sameindir, frumur, flutningu um frumuhimnur, uppbyggingu fisks, útlit og líffæraskipan. Fjallað um hreyfingu fiska, flotstjórn og hegðun, öndun fiska og súrefnisupptöku. Flutningur á súrefni og koldíoxíði og útskilnað á koldíoxíði og ammóníaki. Einnig verður fjallað um vatnsbúskap fiska og seltuþol. Farið verður yfir frumeindir og sameindir, helstu eðliseiginleika vatns og áhrif þeirra á vöxt og þrif fiska. Farið verður yfir uppleyst efni í vatni, seltu, lofttegundir, sýrustig og eðlisþyngd vatns, og einfalda útreikninga þar að lútandi vatnsgæði og helstu þætti sem ráða vatnsgæðum í fiskeldi. Sérstök áhersla verður lögð á súrefni, koldíoxíð og ammóníak. Kynntar verða helstu aðferðir við að stýra vatnsgæðum í fiskeldi. Samhliða umfjöllun um vatnsgæði verður fjallað um áhrif vatnsgæða á fiska. Farið verður yfir öndun, súrefnisupptöku og útskilnað á koldíoxíði og nitursamböndum. Einnig verður fjallað um áhrif umhverfis á vatns og seltubúskap fiska. Í tengslum við vatnsþörf í fiskeldi verður fjallað um vatnstöku, hönnun einfaldra vatnslagna, val á dælum og stjórnun hita og seltu í eldisvatni. Námskeiðið verður kennt á þremur vikum. Fyrsta vikan verður kennd í fjarnámi. Þá verða lagðir fram á vefsvæði námskeiðsins flestir fyrirlestrar auk þess sem nemendur leysa heimaverkefni. Önnur vikan verður staðbundin lota á Hólum með verklegum æfingum, umræðutímum og verkefnavinnu. Síðasta vikan verður kennd í fjarnámi þar sem seinust fyrirlestrarnir verða lagðir fyrir og nemendur skila heimaverkefnum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • INF1006180
    Inngangur að fiskeldisfræðum
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu má skipta í tvo megin hluta, Nýnemadaga/aðferðafræði og almennan fiskeldishluta (1) Á nýnemadögum verður starfsemi og stoðþjónusta skólans kynnt. Þar mæta nemendur m.a. í almenna fyrirlestra með öðrum nýnemum um starfsemi háskóla, gagnrýna hugsun og siðferði. Í aðferðafræði verður farið yfir námstækni, öflun heimilda og gæði þeirra og notkun, og uppsetningu og frágang á rituðum texta. Stuðst verður við APA kerfið sem verður haft til viðmiðunar við verkefnaskil í þessum áfanga sem og öðrum áföngum námsins. (2) Staða fiskeldis - Farið verður yfir þær tegundir sem eru í eldi hérlendis, magntölur, verðmæti, framleiðsluaðferðir og sett í samhengi við framleiðslu í öðrum löndum og framleiðslu annara matvæla. Fjallað verður um helstu fiskeldisframleiðsluþjóðir heims og þær tegundir sem eru ráðandi í eldi. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Ein staðarlota er í upphafi námskeiðs þar sem nemar mæta á nýnemadaga, læra um aðferðafræði og fara í vettvangsferð í fiskeldisstöðvar á Norðurlandi, þar sem nemendur kynna sér starfsemi þeirra undir handleiðslu kennara. Í ferðinni verður mest áhersla lögð á framleiðsluhætti, framleiðslutölur, markaði fyrir afurðir, uppbyggingu eldiskerfa, eldisaðferðir og eldisferla. Að öðru leyti, samanstendur námið af fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu sem felur í sér stór og smá verkefni sem nemendur leysa einir sér eða í hópum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • URL1108200
    Undirstaða rannsókna lífvera í fiskeldi
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grunnþekkingu og skilning á ólífrænni og lífrænni efnafræði, auk grunndvallaratriðum líffræði og stærðfræði sem tengist fiskeldi. Í námskeiðinu er farið yfir grunn ólífrænnar efnafræði, frá atómum, efnatengjum og efnahvörfum. Rætt er um lífrænnar- og lífefnafræði, m.a.  um mikilvægar sameindir fyrir lífverur (t.d. sykrur, prótein og fitusýrur) og efnahvörf sem mikilvægt er að nemendur skilji í tengslum við fiskeldi. Farið yfir frumulíffræði og hvernig frumur vinna saman til að mynda vefi og lífverur. Grunnlíffræði og bygging lífvera kynnt fyrir nemendum. Flokkunarfræði þeirra lífvera sem mikilvægar eru fyrir fiskeldi verður rætt, frá veirum til dýra. Í verklegri staðarlotu námskeiðsins fá nemendur þjálfun í grunnútreikningum og notkun á töflureikni (Excel).

    Námskeiðið stendur í fjórar vikur, þar sem fyrstu tvær vikurnar byggjast að mestu á fyrirlestrum og smærri nemendaverkefnum. Í þriðju vikunni er þriggja daga staðbundin lota, þar sem nemendur vinna áfram með útreikinga, flytja fyrirlestra, taka þátt í umræðum. Í lokaviku námskeiðsins vinna nemendur að mestu í að skila verkefnum og þreyta lokapróf.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • SOH1604200
    Sjúkdómar og hreinlæti
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í upphafi námskeiðs er farið yfir helstu hugtök tengt sjúkdómafræði.
    Stutt kynning er um fiskeldi á heimsvísu ásamt sögulegum dæmum um sjúkdóma sem höfðu miklar afleiðingar.
    Farið er yfir ýmsar aðferðir sem notaðar eru gegn fisksjúkdómum í fiskeldisstöðvum. Að lokum er farið yfir helstu bakteríusjúkdóma sem þekktir eru, sem og sjúkdóma sem stafa af veirum, sveppum og sníkjudýrum í fiskeldi.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SOV1506200
    Slátrun og vinnsla
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um mismunandi aðferðir sem notaðar eru til að rækta, slátra og vinna eldisfisk og þá þætti sem geta haft áhrif á gæði afurðar. Þá verður fjallað um aðferðir við mat á ferskleika fisks. Síðan verður farið yfir mismunandi aðferðir  til að varðveita afurðir og hækka virði þeirra (frysting, söltun, þurrkun, reykingar). Einnig er farið yfir mikilvægi hreinlætis og örverur í mat. Þá verður farið stutt yfir vottun og þær merkingar afurðar sem benda á lífrænt fiskeldi. Að lokum er fjallað um áhættumat og áhættustjórnun samkvæmt HACCP (Hazard Analysis and Critical Control Point) í tengslum við framleiðslu fiskeldis og öryggis matvæla.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • UMF1706190
    Umhverfismál fiskeldis
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Almennt markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grunnþekkingu og skilning á helstu umhverfismálum er tengjast fiskeldi á heimsvísu og á Íslandi, sem og á helstu lögum og reglum er tengjast þessum málum hérlendis. Fjallað er um helstu umhverfisvandamál í lagareldi og tengsl lagareldis við hina villtu náttúru. Fluttur er almennur inngangur um umhverfisfræði og því álagi á náttúrulegar auðlindir sem maðurinn veldur. Rætt er um mengunarefni í eldisvatni, aðferðir notaðar við hreinsun slíkra efna og áhrif mengunnar á náttúruleg vistkerfi og ólíka viðtaka. Fjallað er um röskun búsvæða í tengslum við fiskeldi, áhrif fiskeldis á nýtingu náttúrulegra stofna, samkeppni eldisfiska við villta fiska og erfðablöndun þeirra á milli. Þá er fjallað um tilraunir til fjöleldis og lífrænt fiskeldi. Kynntar eru helstu stofnanir sem koma að leyfisveitingum í tengslum við fiskeldi og gefin yfirsýn á stöðu umhverfismála í fiskeldi hérlendis. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Fyrsti hluti námskeiðsins felst í fyrirlestrum og vinnu heimaverkefna. Í annarri viku er staðarlota, þar sem nemendur gera verklega æfingu, undirbúa og halda pallborðsumræðu byggðan á vísindagrein og taka þátt í umræðum. Í þriðju viku námskeiðsins eru verkefnaskil og lokapróf.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÁFR1808120
    Áframeldi
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum mikilvægi líffræðilegra og tæknilegra atriða við eldi á fiski frá seiðastigi að matfiskstærð. Í námskeiðinu verður fjallað um eldi á laxfiskum og helstu sjávarfiskum sem virðist álitlegt að ala á Íslandi. Umfjöllun um mikilvæga þætti sem hafa áhrif á framleiðslu og rekstur. Kennt í 4 vikur Kennslan byggist einkum upp af fyrirlestrum og sýnidæmum. Nemendur vinna framleiðsluáætlanir og vaxtarúrteikninga. Gera áætlanir um fóðurþörf, fóðurkostnað og aðra kostnaðartengda þætti sem tengjast fiskinum og rekstri fiskeldisstöðvar eftir því sem við á. Útreikningar á vatnsþörf- flutningi vatns inn og út úr eldisrými, strumsetning í keri, viðhald vatnsgæða og rýmisþörf

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EBÚ1906180
    Eldisbúnaður
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Megin inntak námskeiðsins fjallar um hvernig útbúa má og viðhalda góðum eldisaðstæðum fyrir eldi tegunda, einkum við eldi á landi.

    Í námskeiðinu verður fjallað ýmsa þætti sem tengjast hönnun fiskeldisstöðva og rekstri þeirra, hvernig hafa má áhrif á nýtingu og hámarka afköst og virkni. Fjallað verður sérstaklega um vatnsöflun, vatnsflutning og vatnsnýtingu bæði í gegnumrennslis- og endurnýtingarkerfum. Hönnun eldisbúnaðar og lögmál sem gilda um virkni hans. Nemendur fá yfirsýn yfir samsetningu, virkni og rekstur endurnýtingarkerfa í fiskeldi og þjálfun í mælingum og stjórnun vatnsgæða.

    Byggt verður ofan á þekkingu úr námskeiðunum Fiskur og vatn, frumfóðrun og seiðaeldi og áframeldi en kafað dýpra í námsefnið.

    Markmið námskeiðsins er að nemandinn fái innsýn í starfsemi og notkun ýmiskonar tæknibúnaðar sem notaður er í fiskeldi. Kennd verður uppsetning og viðhald lagnakerfa í fiskeldisstöðvum. Fjallað er um virkni og notkun á ýmsum búnaði sem tengist viðhaldi á vatnsgæðum og eftirliti með þeim.

    Námskeiðið stendur yfir í 4 vikur. Kennsla er í formi fyrirlestra, verkefna og verklegra æfinga. Í fjórðu viku námskeiðsins mæta nemdur í staðbundna lotu og þar fá nemendur að æfa sig í stýring endurnýtingakerfa og mælingum á vatnsgæðum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • VER2028120
    Verknám
    Valnámskeið
    28
    Valnámskeið á námsleiðinni
    28 einingar, ETCS
    Þar af 28 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Verknámið er hluti diplómanáms og vinnur hver nemandi í tólf vikur í fiskeldisstöð. Nemandinn á að skila eðlilegu dagsverki og skal hann taka þátt í öllum algengum störfum sem unnin eru á viðkomandi eldisstöð. Jafnframt því skal nemandi vinna að umbótaverkefni að eigin vali hjá fyrirtækinu í samráði við stöðvarstjóra og umsjónarmanns verknáms og háskolans kennari. Nemandinn hafi aðgang að tölulegum upplýsingum sem tengjast framleiðslunni, svo sem gögn yfir vatn, vatnsgæði og vatnsmeðhöndlun, fóður og fóðrun, vöxt og vaxtarferla, auk kostnaðartengdra þátta (sem umsjónarmaður er viljugur að láta í té).

    Verklag: Nemandanum skal gefinn kostur á að vinna sjálfstætt að störfum eftir því sem starfsreynsla og geta hans leyfir. 

    Auk ofangreindra starfa er nemandanum ætlað að greina þætti sem betur gætu farið í rekstri, vinnulagi og skipulagi eldisstöðvarinnar og beita þekkingu sinni til að gera tillögur að endurbótum/breytingum sem mætti nýta til hagræðingar og framfara fyrir eldisstöðina. Nemendur geta haft hugmyndafræði SVÓT-greininga til hliðsjónar við þessa vinnu og greina þannig styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri fiskeldisstöðvarinnar.
    Verkefnið þarf að vera hluti af skýrslu í lok verknáms.

    Verknámið er hluti af diplómagráðu, en er ekki metið  til BS-náms.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Sumar

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Að námi loknu gætur þú meðal annars starfað á sviði:

  • landeldis
  • sjókvíaeldis
  • þörunga- og þararæktunar
  • skeldýraræktunar
  • öðrum greinum tengdum lagareldi

Listinn er ekki tæmandi

Lögð er áhersla á að nemendur við HÍH efli tengslanet sitt með því að hittast í staðlotum og finni eigin leiðir til að efla félagslíf deildarinnar. Hluti af félagslífi er að kynnast í staðlotum og skipuleggja viðburði tengt náminu.

Skólaárið 2026-2027 verður nýtt til að skilgreina og skipuleggja félagslíf stúdenta við HÍH meðal annars með því að stofna nemendafélög og skilgreina aðkomu stúdenta HÍH að Stúdentaráði. Nemendur HÍH munu fá stúdentakort og afslætti í samræmi við aðra stúdenta í háskólasamstæðunni.

Nemendur Háskóla Íslands eru dugleg að hittast á stúdentakjallaranum og eru nemendur HÍH hvött til að hittast þar ef tækifæri er til.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Háskóli Íslands á Hólum
Hólar í Hjaltadal
Mán. - fim. 10-12 og 12:30 - 14 og fös. 10-12
Nemenda og kennsluþjónusta

Þjónustuborð er staðsett í aðalbyggingu skólans á Hólum en nemendur geta einnig nýtt sér þjónustuborð HÍ á Háskólatorgi.

Fylgdu HÍ á Hólum á:
FacebookYoutubeInstagram, TikTok

Hólar í Hjaltadal - Aðalbygging

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil