Fyrir grunnnám í Háskóla Íslands þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru lokaprófi á þriðja hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla.
Í Uglu, undir Tölvuþjónusta → Prentkvóti, sérðu fjölda prentkvótaeininga sem þú átt.
Á Þjónustumiðju Háskóla Íslands getur þú séð hvernig þú færð nýtt lykilorð.
Trans nemendur við Háskóla Íslands geta óskað eftir nafnabreytingu innan skólans til samræmis við kynvitund þeirra áður en lagaleg nafnbreyting hjá Þjóðskrá á sér stað.
Hér er hægt að tilkynna kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi, einelti og annað ofbeldi.
Misjafnt er eftir sviðum og deildum hversu mörg námskeið eru kennd í fjarnámi.
Meginreglan er að tímasókn er frjáls. Þó er oft gerð krafa um tímasókn í námskeiðum þar sem kennslan byggist að hluta á framlagi nemenda, s.s. umræðu- og verkefnatímum.
Meginreglan er sú að heimilt er að þreyta próf í hverju námskeiði tvisvar. Ef þú fellur eða mætir ekki í lokapróf er þér heimilt að taka það aftur næst þegar lokapróf er haldið í viðkomandi námskeiði svo lengi sem það er innan árs frá upphaflegu prófi.
Viljir þú nýta aðgang Háskóla Íslands og Landsbókasafns – Háskólabókasafns að hinum ýmsu gagnasöfnum er hægt að setja upp svokallaða VPN-tengingu sem veitir þér aðgang þegar þú ert utan háskólasvæðisins.
Þú getur óskað eftir afriti af persónuupplýsingum þeim sem Háskóli Íslands geymir um þig með því að leita til Þjónustuborðsins Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 102 Reykjavík og fylla þar út eyðublað. Athugaðu að framvísa þarf persónuskilríkjum þegar beiðni er lögð inn sem og við móttöku gagna.