- Ert þú með kennsluréttindi?
- Vilt þú kynnast nýrri nálgun í skólastarfi?
- Hefur þú áhuga á að efla og þróa þig í starfi?
- Sækist þú eftir aukinni fagþekkingu?
Í faggreinakennslu til viðbótardiplómu er lögð á að nemendur fái tækifæri til að efla fagmennsku sína og þróa sig í starfi, meðal annars með því að kynnast nýjum hugmyndum og rannsóknum um faggreinamenntun. Með aukinni fagþekkingu styrkjast kennarar og geta unnið þróunarstarf í kennslu í faggrein sinni.
Uppbygging náms
Námið er 60 einingar og er sett upp sem fullt nám í eitt ár en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.
Námið skiptist í:
- 25 einingar af völdu kjörsviði í faggrein
- 35 einingar í frjálsu vali
Kjörsvið
Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:
- Átak í dönskukennslu
- Enska
- Hönnun og smíði
- Sjónlistir: Myndmennt
- Íslenska
- Íslenska sem annað mál
- Leiklist
- Textílmennt
- Tónmennt
- Samfélagsgreinar
- Stærðfræði
- Náttúrugreinar
- Upplýsingatækni og miðlun
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku.
Námskeið eru ýmist kennd í fjar- eða staðnámi og er nemendum því bent á að kynna sér kennslufyrirkomulag hvers námskeiðs vel. Sjá skilgreiningar á mismunandi námsformi.
Meginarkmið
Meginmarkmið námsleiðarinnar er að kennarar dýpki skilning sinn, þekkingu og færni í fagi sínu og kennslufræði þess.
Annað
Mögulegt er að sækja um nám til meistaraprófs við HÍ að loknu námi til viðbótardiplómu með fyrstu einkunn.
Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum. Hér má sjá Tungumálaramma Evrópuráðsins.
Við inntöku í nám á meistarastigi gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu (B.Ed.) með fyrstu einkunn (7,25). Námsleiðin er ætluð kennurum með leyfisbréf sem óska eftir að bæta við sérhæfingu sína í faggrein og kennslufræði faggreinar.
Ljúka þarf 60 einingum til lokaprófs á meistarastigi.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
- Leyfisbréf
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Óháð misseri
- Kennsluaðferðir leiklistar við tungumálakennslu og bekkjarstjórnun
- Ekki kennt á misserinuNámsmat í tungumálanámi
- Tölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumála
Kennsluaðferðir leiklistar við tungumálakennslu og bekkjarstjórnun (ÍET204F)
Meginreglur tungumálakennslu, sérstaklega þegar þeim er beitt ásamt heildrænni og tjáskiptamiðað nálgun gagnvart tungumálanámi, fara vel saman við sameiginleg markmið bekkjarstjórnunar. Bekkjarstjórnun er alhliða hugtak sem vísar til margvíslegra aðgerða sem kennarar grípa til í skipulagningu gagnvart nemendum, efni, rými og tíma til að ná námsmarkmiðum sínum. Tengslamyndun, samskipti, þátttökuaðferðir og uppbygging skilvirks námsumhverfis eru allt þættir í bekkjarstjórnun (Stanzione & Mackenzie, bls. 4-5) og tungumálakennslu. Nýting leiklistartækni til að ná samræmdum markmiðum tungumálakennslu og bekkjarstjórnunar gerir það mögulegt að þróa hagnýta kunnáttu og þekkingu sem kemur bæði kennurum og nemendum til góða. Meðal röksemda fyrir því að beita leiklistaraðferðum til að bæta tungumálanám og bekkjarstjórnun eru eftirfarandi:
- Það er tilvalin leið til að hvetja nemendur til tjáningar sem nýtist í daglegu lífi.
- Það gerir tungumálanám virka hvatningarupplifun.
- Það hjálpar nemendum að auka það sjálfstraust sitt og sjálfsálit sem þarf til að beita tungumálinu án umhugsunar og í samvinnu við aðra.
- Það gerir tungumálanám eftirminnilegt með beinni þátttöku.
- Það örvar vitsmuni, ímyndunarafl og sköpunargáfu nemenda.
- Það ýtir undir getu nemenda til að finna til samkenndar með öðrum og tjá sig betur (Alvarado, 2017).
Námsmat í tungumálanámi (ÍET001F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist
- þekkingu og skilning á nýjum námsmatskenningum og aðferðum í túngumálanámi.
- leikni í að skipuleggja þróunarverkefni og móta námsmatsáætlarnir.
Viðfangsefni:
Fjallað verður um ýmis lykilatriði í námsmati og prófagerð, hæfniþrep Aðalnámskrá og nýjar stefnur og strauma. Hefðbundið námsmatsaðferðir og stöðluð próf verða skoðaðir með gagnrýnum augum. Einnig verður fjallað um nýjar leiðir í námsmat, t.d. leiðsagnamat, heildrænt mat (authentic assessment), sjálfsmat, jafningjamat og mat byggt á náms- eða ferilsmöppum (portfolio).
Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Mikið verður lagt upp úr lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu, verkefnum sem lýkur með kynningu og málstofum. Lögð verður áhersla á að þátttakendur þróa eigin kennsluhætti og matsaðferðir.
Tölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumála (ÍET201M)
Meginmarkmið námskeiðsins er að
- veita þátttakendum yfirsýn yfir og skilning á helstu kenningum og rannsóknum um tölvutengt tungumálanám.
- þátttakendur öðlist þekkingu og kunni skil á helstu kenningum og rannsóknum um rafræn læsi (digital literacies) og tungumálnam.
- þátttakendur fái tækifæri til að tengja saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu af tölvu og upplýsingartækni í tungumálakennslu.
Viðfangsefni:
Á námskeiðinu verður fjallað um áhríf upplýsingartækni á uppeldi, menntun og skólastarf. Lögð er áhersla á að fjalla um tölvustutt tungumála nám (CALL - Computer Assisted Language Learning) og áhríf og þróun þess síðastliðin 30 ár. Einnig verður fjallað um kenningar og rannsóknir er varðar notkun upplýsingartækni í tungumálanámi í skólastofunni í grunn- og framhaldsskóla. Ýmis forrit verða kynnt og skoðað hvernig má nýta þau til að þjálfa mismunandi þættir tungumálsins.
Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Nemendur fá margvísleg verkefni til úrlausnar og skila úrlausnum ýmist munnlega eða skriflega. Einnig munu þátttakendur vinna einir eða í hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Efnið gætu tengst nýtingu tölvu og veraldarvefsins i tungumálakennslu, rannsóknar- og þróunarstörfum, fjarkennslu erlendra tungumála, gerð rafræns námsefnis til notkunar í tungumálakennslu, vendinám, notkun spjaldtölvur í tungumálanámi o.fl. Nemendur vinna og skila rafræn ferilsmöppu.
- Óháð námsári
- Óháð misseri
- Ekki kennt á misserinuStraumar og stefnur í enskukennslu
- Inngangur að enskukennslu
- Bandarísk menningarsaga
- Ensk málsaga
- Rannsóknir á tileinkun og kennslu erlendra mála
- Félagsfræði og heimspeki menntunar
- Læsi í faggreinum
- Samskipti foreldra og barna
- Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga
- Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir
- Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum
- Ekki kennt á misserinuHinsegin menntunarfræði
- Inngangur að foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf
- Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi
- Kennsla í margbreytilegum nemendahópi
- Fjármálalæsi og nýsköpun
- Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda
- Fjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað nám
- Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun
- Fjarnám og kennsla
Straumar og stefnur í enskukennslu (ÍET304G)
Nemendur kynnast mikilvægum kenningum sem liggja að baki máltileinkunn og tungumálanámi og kennslu, sérstaklega að því er varðar færniþættina fjóra (hlustun, talað mál, lestur og ritun). Lykilhugtök þ. m. t tungumálatileinkunn, nemendasjálfstæði og námsmat verða greind og ígrunduð og nemendur íhuga hvernig beita á þessari þekkingu í eigin kennslu.
Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Mikið verður lagt upp úr þátttöku og lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni með umræðum og nemendastýrðum málstofum. Námskeiðinu lýkur með rannsóknarverkefnum.
Inngangur að enskukennslu (ÍET202G)
Farið verður yfir þróun tungumálakennslu undanfarinna áratuga og sjónum einkum beint að þekkingu og skilningi á þeim straumum og stefnum sem nú eru efst á baugi. Fjallað verður um hugtök, kenningar, aðferðir og þá þætti sem stuðla að fagmennsku tungumálakennarans og nemendur öðlast reynslu í að ígrunda eigin afstöðu og hugmyndir. Kynntar verða rannsóknir á tungumálanámi og kennslu og fjallað sérstaklega um nemendamiðaða kennslu.
Námskrá í ensku verður yfirfarin og greind. Kennaranemar fá tækifæri til að skoða og meta kennslu á myndböndum og þjálfast í að ígrunda eigin hugmyndir um kennslu og eigin reynslu af tungumálanámi.
Vinnulag:
Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku og mikið verður lagt upp úr lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu og dæmakennslu.
Bandarísk menningarsaga (ENS204G)
- Markmið þessa námskeiðs er að taka til athugunar merkustu tímamótin í sögu Bandaríkjanna, allt frá því að innflytjendur tóku að streyma þangað og fram til okkar tíma.
- Sérstök áhersla verður lögð á borgarastyrjöldina og uppbyggingartímann sem fylgdi í kjölfarið, auk þess sem fæst yfirsýn á 20. og 21. öldina.
- Jafnframt verður lögð áhersla á reynsluheim jaðarhópa (frumbyggja, og bandaríkjamenn af afrískum, suður/miðamerískum, og asískum uppruna, hinsegin hópa, ásamt réttindi kvenna) í sögu BNA, frá upphafi til okkar daga.
Ensk málsaga (ENS201G)
Yfirlit yfir sögu og þróun enskrar tungu.
Rannsóknir á tileinkun og kennslu erlendra mála (ENS235F)
Í námskeiðinu verða kynntar helstu rannsóknir á máltöku og kennslu annars máls og erlendra mála. Fjallað verður um eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir sem notaðar eru við könnun á máltöku og kennsluaðferðum. Nemendur fá innsýn í raunveruleg dæmi og takast sjálfir á við rannsóknir á þessu sviði.
Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)
Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Læsi í faggreinum (ÍET214F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
Samskipti foreldra og barna (FFU201F)
Fjallað verður um rannsóknir og kenningar um samskipti foreldra og barna. Skoðuð verður þýðing þessara kenninga fyrir samband og samskipti foreldra og barna og þroska þeirra. Umfjöllunin á að geta nýst í faglegri vinnu með foreldrum.
Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)
Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.
Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir (MVS009F)
Markmið
Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.
Inntak / viðfangsefni
- Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
- Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
- Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
- Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
- Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (MAL102F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Hinsegin menntunarfræði (SFG004M)
Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum í hinsegin menntunarfræðum. Enn fremur að þeir fái góða innsýn inn í fræðaheim hinsegin fræða. Áhersla verður lögð að að nemar tileinki sér gagnrýna sýn á uppeldi og menntun og að þeir verði meðvitaður um veruleika hinsegin ungmenna.
Viðfangsefni: Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynhneigð, kynvitund, samtvinnun, karlmennska, kvenleiki, kynhlutverk, kynjatvíhyggja, gagnkynhneigðarhyggja og síshyggja. Fjallað verður um megininntak hinsegin menntunarfræða og hvernig nálgun þeirra getur varpað ljósi á menntun, uppeldi, tómstunda- og félagsstarf og samfélag. Nálgunin verður í anda hinsegin fræða og félagslegrar mótunarhyggju sem verða notuð til að útskýra ólíkar hugmyndir um kynhneigð, kynvitund og hinsegin kynverund. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi, hérlendis og erlendis, og hvernig það viðheldur margs konar mismunun og ýtir jafnvel undir stofnanabundna gagnkynhneigðarhyggju og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við kynhneigð, kynvitund, skólakerfi, kennslu og námsbækur. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum í að búa til hinseginvænt andrúmsloft í barna- og ungmennahópi, að flétta hinsegin veruleika inn í starf sitt og bregðast við neikvæðum viðhorfum í garð hisneginleika.
Inngangur að foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf (FFU101M)
Viðfangsefni
Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist helstu kenningum og rannsóknum um uppeldi barna og undirbúi sig undir að geta frætt foreldra um þær aðferðir sem best hafa reynst. Fjallað verður um efnið á breiðum grunni, þannig að nemar fái sem víðasta sýn á uppeldishlutverkið og aðferðir til að sinna því sem best.
Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem staðbundið. Kennsla fer fram í samræðum og gagnvirkum fyrirlestrum. Námið er auk þess byggt upp á lestri, hópvinnu, kynningum og skriflegum verkefnum.
Fyrirkomulag kennslu miðar við að nemendur geti stundað námið óháð búsetu. Þá er fjarfundabúnaður notaður í rauntíma fyrir nemendur sem búsettir eru fjarri höfuðborgarsvæðinu.
Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
Kennsla í margbreytilegum nemendahópi (KME115F)
Markmið námskeiðsins er að starfandi kennarar og kennaranemar eflist í að nýta eigin auðlindir í vinnu með margbreytilegum nemendahópum. Byggt er á kennslufræði menntunar fyrir alla (inclusive pedagogy) og kennslufræði nýsköpunarmenntar þar sem lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu og að nýta auðlindir nemenda.
Viðfangsefni
Námskeiðið byggir á hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar. Fjallað verður um mismunandi vinnubrögð og kynntir kennsluhættir og kennsluaðferðir sem hafa reynst vel í fjölbreyttum nemendahópum. Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir nýsköpunarmenntar, samvirks náms, altæka hönnun náms, fjölmenningarlega kennslu og listrænar og skapandi aðferðir. Fjallað verður um samstarf við foreldra og aðrar starfsstéttir er starfa við eða tengjast skólastarfi. Þátttakendur skilgreina og þróa eigin starfskenningu.
Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem blandað nám, bæði fjarnám og staðnám. Kennslan fer fram bæði í staðlotum og staðtímum milli staðlota og á netinu. Námskeiðinu er skipt upp í fjórar námslotur (tímabil) sem eru skipulagðar út frá ákveðnum þemum. Þau tengjast öll kennslu í margbreytilegum nemendahópi og eru: hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunarmenntar, fagmennska og forysta í kennslu margbreytilegra nemendahópa, kennsluhættir í margbreytilegum nemendahópum og samstarf í skóla fyrir alla. Hver námslota stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Kennsla og nám verður í formi fyrirlestra, umræðna í tímum og á Canvas, stuttra verkefna í tímum og á Canvas og verkefna með formlegum skilum. Námskeiðið byggir á sjálfstæðri vinnu, ábyrgð og þátttöku nemenda.
Gert er ráð fyrir 80% þátttöku í virkni á námskeiðinu (þátttaka og skil verkefna).
Fjármálalæsi og nýsköpun (SNU012M)
Í námskeiðinu er fjallað um fjármálalæsi, nýsköpun og viðskiptatengd viðfangsefni með hliðsjón af kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á fjármálum einstaklinga og samfélags, ásamt grundvallarhugmyndum um rekstur, neyslu og viðskipti. Nemendur kynnast helstu hugtökum eins og tekjum og útgjöldum, sparnaði, lánum, sköttum, ábyrgri neyslu, jafnrétti í efnahagsmálum og sjálfbærni í fjármálum. Fjallað er um hvernig þessir þættir tengjast daglegu lífi, samfélagslegri ábyrgð og borgaravitund og hvernig kennarar geta miðlað viðfangsefninu á aðgengilegan, skapandi og sjónrænan hátt. Áhersla er á að tengja fjármálalæsi og nýsköpun við hæfniviðmið í upplýsinga- og tæknimennt, stærðfræði og samfélagsgreinum og efla gagnrýna hugsun gagnvart fjölmiðlum og neyslumenningu. Lögð er áhersla á vinnu með töflureikna og myndræna framsetningu gagna, auk þjálfunar í að lesa og túlka slíkar framsetningar á gagnrýninn hátt. Einnig er unnið með stafræna miðlun, ábyrga nethegðun og skapandi notkun upplýsingatækni í kennslu. Kennslan byggir á umræðum, dæmum og verkefnavinnu þar sem nemendur þróa hugmyndir um hvernig tengja má fjármál og viðskipti við skólastarf.
Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda (ÍET206F)
Fjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Fjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað nám (KME205F)
Markmið
Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þátttakendur efli þekkingu sína á fjölbreyttum kennsluháttum og hæfni sína í að fjalla um þá með fræðilega viðurkenndum hætti.
Viðfangsefni
Á námskeiðinu verður fjallað um kennsluaðferðahugtakið og dæmi kynnt um fræðilega flokkun kennsluaðferða. Rannsóknum á kennsluaðferðum verða gerð sérstök skil, einkum innlendum rannsóknum. Þá verður fjallað um kennsluhætti og kennsluaðferðir sem tengjast hugmyndum um nemendamiðað og lýðræðislegt skólastarf (m.a. opinn skóla, sveigjanlega kennsluhætti, samvinnunám, samkennslu, lausnaleitarnám, heildstæð viðfangsefni, þemanám, samkomulagsnám og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni). Efni námskeiðsins verður tengt þróun fjölbreyttra kennsluhátta hér á landi, og erlendis, og áhersla lögð á að þátttakendur ígrundi eigin reynslu af kennslu. Þátttakendum gefst tækifæri til að kynna sér einstaka kennsluhætti og kennsluaðferðir til nokkurrar hlítar og fjalla um það með fræðilegum hætti.
Vinnulag
Byggt er á fyrirlestrum, kynningum, málstofum, umræðum, sjálfstæðri vinnu, hópverkefnum, lestri og upplýsingaleit. Lögð er áhersla á að þátttakendur ígrundi eigið starf og greini, túlki og meti reynslu sína og tengi hana við fræði og rannsóknir. Þáttakendur ræða lesefni námskeiðsins og tengja það kennslustundum og eigin reynslu með aðstoð lestrardagbókar og annarra verkefna. Auk þess vinna nemendur lokaverkefni sem er hópverkefni.
Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun (SNU007F)
Í námskeiðinu er fjallað um:
- áhrif upplýsingatækni á menntun og skólastarf
- námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi
- hugtök, kenningar og rannsóknir sem tengjast notkun upplýsingatækni í námi og kennslu
- innleiðingu tölva og upplýsingatækni í skólastarf
- kennsluhætti, símenntun kennara, hugbúnað og stafrænt námsefni
- stafræna hæfni nemenda og kennara og læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni
- hlutdeild upplýsingatækni í lífi fólks innan og utan skóla
Vinnulag:
Lestur og umræða um námskrá og stefnu, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þeir miðla hugmyndum sínum og reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leggja sitt af mörkum við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.
Fjarnám og kennsla (SNU008F)
Á námskeiðinu verða hugtökin fjarnám- og fjarkennsla og tengd hugtök s.s. blandað nám, dreifnám og netnám skoðuð og skilgreind. Skoðaðar verða hugmyndir og kenningar sem tengjast sviðinu og hvernig þær hafa þróast frá áherslu á sjálfstætt nám (independent study) á tímum bréfaskóla til áherslu á samskipti og uppbyggingu sameiginlegrar þekkingar á tímum netvæðingar og alþjóðahyggju. Fjallað verður um erlendar og innlendar rannsóknir á fjarnámi og -kennslu. Athygli er beint að stöðu fjarnáms á mismunandi skólastigum, fjarnemum og þörfum þeirra, kennsluháttum með nýtingu mismunandi miðla og hönnun fjarnámsáfanga m.t.t. alþjóðlegra viðmiða og gæðastaðla.
Vinnulag
Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitarnám) og annað stærra einstaklingsverkefni.
- Óháð misseri
- ÍET204FKennsluaðferðir leiklistar við tungumálakennslu og bekkjarstjórnunBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Meginreglur tungumálakennslu, sérstaklega þegar þeim er beitt ásamt heildrænni og tjáskiptamiðað nálgun gagnvart tungumálanámi, fara vel saman við sameiginleg markmið bekkjarstjórnunar. Bekkjarstjórnun er alhliða hugtak sem vísar til margvíslegra aðgerða sem kennarar grípa til í skipulagningu gagnvart nemendum, efni, rými og tíma til að ná námsmarkmiðum sínum. Tengslamyndun, samskipti, þátttökuaðferðir og uppbygging skilvirks námsumhverfis eru allt þættir í bekkjarstjórnun (Stanzione & Mackenzie, bls. 4-5) og tungumálakennslu. Nýting leiklistartækni til að ná samræmdum markmiðum tungumálakennslu og bekkjarstjórnunar gerir það mögulegt að þróa hagnýta kunnáttu og þekkingu sem kemur bæði kennurum og nemendum til góða. Meðal röksemda fyrir því að beita leiklistaraðferðum til að bæta tungumálanám og bekkjarstjórnun eru eftirfarandi:
- Það er tilvalin leið til að hvetja nemendur til tjáningar sem nýtist í daglegu lífi.
- Það gerir tungumálanám virka hvatningarupplifun.
- Það hjálpar nemendum að auka það sjálfstraust sitt og sjálfsálit sem þarf til að beita tungumálinu án umhugsunar og í samvinnu við aðra.
- Það gerir tungumálanám eftirminnilegt með beinni þátttöku.
- Það örvar vitsmuni, ímyndunarafl og sköpunargáfu nemenda.
- Það ýtir undir getu nemenda til að finna til samkenndar með öðrum og tjá sig betur (Alvarado, 2017).
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuÍET001FNámsmat í tungumálanámiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist
- þekkingu og skilning á nýjum námsmatskenningum og aðferðum í túngumálanámi.
- leikni í að skipuleggja þróunarverkefni og móta námsmatsáætlarnir.
Viðfangsefni:
Fjallað verður um ýmis lykilatriði í námsmati og prófagerð, hæfniþrep Aðalnámskrá og nýjar stefnur og strauma. Hefðbundið námsmatsaðferðir og stöðluð próf verða skoðaðir með gagnrýnum augum. Einnig verður fjallað um nýjar leiðir í námsmat, t.d. leiðsagnamat, heildrænt mat (authentic assessment), sjálfsmat, jafningjamat og mat byggt á náms- eða ferilsmöppum (portfolio).Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Mikið verður lagt upp úr lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu, verkefnum sem lýkur með kynningu og málstofum. Lögð verður áhersla á að þátttakendur þróa eigin kennsluhætti og matsaðferðir.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET201MTölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumálaBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að
- veita þátttakendum yfirsýn yfir og skilning á helstu kenningum og rannsóknum um tölvutengt tungumálanám.
- þátttakendur öðlist þekkingu og kunni skil á helstu kenningum og rannsóknum um rafræn læsi (digital literacies) og tungumálnam.
- þátttakendur fái tækifæri til að tengja saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu af tölvu og upplýsingartækni í tungumálakennslu.
Viðfangsefni:
Á námskeiðinu verður fjallað um áhríf upplýsingartækni á uppeldi, menntun og skólastarf. Lögð er áhersla á að fjalla um tölvustutt tungumála nám (CALL - Computer Assisted Language Learning) og áhríf og þróun þess síðastliðin 30 ár. Einnig verður fjallað um kenningar og rannsóknir er varðar notkun upplýsingartækni í tungumálanámi í skólastofunni í grunn- og framhaldsskóla. Ýmis forrit verða kynnt og skoðað hvernig má nýta þau til að þjálfa mismunandi þættir tungumálsins.Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Nemendur fá margvísleg verkefni til úrlausnar og skila úrlausnum ýmist munnlega eða skriflega. Einnig munu þátttakendur vinna einir eða í hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Efnið gætu tengst nýtingu tölvu og veraldarvefsins i tungumálakennslu, rannsóknar- og þróunarstörfum, fjarkennslu erlendra tungumála, gerð rafræns námsefnis til notkunar í tungumálakennslu, vendinám, notkun spjaldtölvur í tungumálanámi o.fl. Nemendur vinna og skila rafræn ferilsmöppu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
- Ekki kennt á misserinuÍET304GStraumar og stefnur í enskukennsluValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Nemendur kynnast mikilvægum kenningum sem liggja að baki máltileinkunn og tungumálanámi og kennslu, sérstaklega að því er varðar færniþættina fjóra (hlustun, talað mál, lestur og ritun). Lykilhugtök þ. m. t tungumálatileinkunn, nemendasjálfstæði og námsmat verða greind og ígrunduð og nemendur íhuga hvernig beita á þessari þekkingu í eigin kennslu.
Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Mikið verður lagt upp úr þátttöku og lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni með umræðum og nemendastýrðum málstofum. Námskeiðinu lýkur með rannsóknarverkefnum.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFarið verður yfir þróun tungumálakennslu undanfarinna áratuga og sjónum einkum beint að þekkingu og skilningi á þeim straumum og stefnum sem nú eru efst á baugi. Fjallað verður um hugtök, kenningar, aðferðir og þá þætti sem stuðla að fagmennsku tungumálakennarans og nemendur öðlast reynslu í að ígrunda eigin afstöðu og hugmyndir. Kynntar verða rannsóknir á tungumálanámi og kennslu og fjallað sérstaklega um nemendamiðaða kennslu.
Námskrá í ensku verður yfirfarin og greind. Kennaranemar fá tækifæri til að skoða og meta kennslu á myndböndum og þjálfast í að ígrunda eigin hugmyndir um kennslu og eigin reynslu af tungumálanámi.
Vinnulag:
Vinna í námskeiðinu krefst virkrar þátttöku og mikið verður lagt upp úr lestri nemenda og úrvinnslu úr lesefni, umræðum, hópa- og einstaklingsvinnu og dæmakennslu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsing- Markmið þessa námskeiðs er að taka til athugunar merkustu tímamótin í sögu Bandaríkjanna, allt frá því að innflytjendur tóku að streyma þangað og fram til okkar tíma.
- Sérstök áhersla verður lögð á borgarastyrjöldina og uppbyggingartímann sem fylgdi í kjölfarið, auk þess sem fæst yfirsýn á 20. og 21. öldina.
- Jafnframt verður lögð áhersla á reynsluheim jaðarhópa (frumbyggja, og bandaríkjamenn af afrískum, suður/miðamerískum, og asískum uppruna, hinsegin hópa, ásamt réttindi kvenna) í sögu BNA, frá upphafi til okkar daga.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNetnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingYfirlit yfir sögu og þróun enskrar tungu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNetnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðENS235FRannsóknir á tileinkun og kennslu erlendra málaValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verða kynntar helstu rannsóknir á máltöku og kennslu annars máls og erlendra mála. Fjallað verður um eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir sem notaðar eru við könnun á máltöku og kennsluaðferðum. Nemendur fá innsýn í raunveruleg dæmi og takast sjálfir á við rannsóknir á þessu sviði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNetnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingViðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar
Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingFjallað verður um rannsóknir og kenningar um samskipti foreldra og barna. Skoðuð verður þýðing þessara kenninga fyrir samband og samskipti foreldra og barna og þroska þeirra. Umfjöllunin á að geta nýst í faglegri vinnu með foreldrum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFAG201FMenntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytingaValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMVS009FKenningar um nám: Hagnýting og rannsóknirValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið
Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.Inntak / viðfangsefni
- Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
- Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
- Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
- Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
- Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSFG004MHinsegin menntunarfræðiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum í hinsegin menntunarfræðum. Enn fremur að þeir fái góða innsýn inn í fræðaheim hinsegin fræða. Áhersla verður lögð að að nemar tileinki sér gagnrýna sýn á uppeldi og menntun og að þeir verði meðvitaður um veruleika hinsegin ungmenna.
Viðfangsefni: Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynhneigð, kynvitund, samtvinnun, karlmennska, kvenleiki, kynhlutverk, kynjatvíhyggja, gagnkynhneigðarhyggja og síshyggja. Fjallað verður um megininntak hinsegin menntunarfræða og hvernig nálgun þeirra getur varpað ljósi á menntun, uppeldi, tómstunda- og félagsstarf og samfélag. Nálgunin verður í anda hinsegin fræða og félagslegrar mótunarhyggju sem verða notuð til að útskýra ólíkar hugmyndir um kynhneigð, kynvitund og hinsegin kynverund. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi, hérlendis og erlendis, og hvernig það viðheldur margs konar mismunun og ýtir jafnvel undir stofnanabundna gagnkynhneigðarhyggju og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við kynhneigð, kynvitund, skólakerfi, kennslu og námsbækur. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum í að búa til hinseginvænt andrúmsloft í barna- og ungmennahópi, að flétta hinsegin veruleika inn í starf sitt og bregðast við neikvæðum viðhorfum í garð hisneginleika.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFFU101MInngangur að foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöfValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni
Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist helstu kenningum og rannsóknum um uppeldi barna og undirbúi sig undir að geta frætt foreldra um þær aðferðir sem best hafa reynst. Fjallað verður um efnið á breiðum grunni, þannig að nemar fái sem víðasta sýn á uppeldishlutverkið og aðferðir til að sinna því sem best.Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem staðbundið. Kennsla fer fram í samræðum og gagnvirkum fyrirlestrum. Námið er auk þess byggt upp á lestri, hópvinnu, kynningum og skriflegum verkefnum.
Fyrirkomulag kennslu miðar við að nemendur geti stundað námið óháð búsetu. Þá er fjarfundabúnaður notaður í rauntíma fyrir nemendur sem búsettir eru fjarri höfuðborgarsvæðinu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFAG101MJafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfiValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME115FKennsla í margbreytilegum nemendahópiValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að starfandi kennarar og kennaranemar eflist í að nýta eigin auðlindir í vinnu með margbreytilegum nemendahópum. Byggt er á kennslufræði menntunar fyrir alla (inclusive pedagogy) og kennslufræði nýsköpunarmenntar þar sem lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu og að nýta auðlindir nemenda.
Viðfangsefni
Námskeiðið byggir á hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar. Fjallað verður um mismunandi vinnubrögð og kynntir kennsluhættir og kennsluaðferðir sem hafa reynst vel í fjölbreyttum nemendahópum. Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir nýsköpunarmenntar, samvirks náms, altæka hönnun náms, fjölmenningarlega kennslu og listrænar og skapandi aðferðir. Fjallað verður um samstarf við foreldra og aðrar starfsstéttir er starfa við eða tengjast skólastarfi. Þátttakendur skilgreina og þróa eigin starfskenningu.Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem blandað nám, bæði fjarnám og staðnám. Kennslan fer fram bæði í staðlotum og staðtímum milli staðlota og á netinu. Námskeiðinu er skipt upp í fjórar námslotur (tímabil) sem eru skipulagðar út frá ákveðnum þemum. Þau tengjast öll kennslu í margbreytilegum nemendahópi og eru: hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunarmenntar, fagmennska og forysta í kennslu margbreytilegra nemendahópa, kennsluhættir í margbreytilegum nemendahópum og samstarf í skóla fyrir alla. Hver námslota stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Kennsla og nám verður í formi fyrirlestra, umræðna í tímum og á Canvas, stuttra verkefna í tímum og á Canvas og verkefna með formlegum skilum. Námskeiðið byggir á sjálfstæðri vinnu, ábyrgð og þátttöku nemenda.Gert er ráð fyrir 80% þátttöku í virkni á námskeiðinu (þátttaka og skil verkefna).
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um fjármálalæsi, nýsköpun og viðskiptatengd viðfangsefni með hliðsjón af kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á fjármálum einstaklinga og samfélags, ásamt grundvallarhugmyndum um rekstur, neyslu og viðskipti. Nemendur kynnast helstu hugtökum eins og tekjum og útgjöldum, sparnaði, lánum, sköttum, ábyrgri neyslu, jafnrétti í efnahagsmálum og sjálfbærni í fjármálum. Fjallað er um hvernig þessir þættir tengjast daglegu lífi, samfélagslegri ábyrgð og borgaravitund og hvernig kennarar geta miðlað viðfangsefninu á aðgengilegan, skapandi og sjónrænan hátt. Áhersla er á að tengja fjármálalæsi og nýsköpun við hæfniviðmið í upplýsinga- og tæknimennt, stærðfræði og samfélagsgreinum og efla gagnrýna hugsun gagnvart fjölmiðlum og neyslumenningu. Lögð er áhersla á vinnu með töflureikna og myndræna framsetningu gagna, auk þjálfunar í að lesa og túlka slíkar framsetningar á gagnrýninn hátt. Einnig er unnið með stafræna miðlun, ábyrga nethegðun og skapandi notkun upplýsingatækni í kennslu. Kennslan byggir á umræðum, dæmum og verkefnavinnu þar sem nemendur þróa hugmyndir um hvernig tengja má fjármál og viðskipti við skólastarf.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÍET206FÍslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemendaValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.
Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.
Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKME205FFjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað námValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið
Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þátttakendur efli þekkingu sína á fjölbreyttum kennsluháttum og hæfni sína í að fjalla um þá með fræðilega viðurkenndum hætti.Viðfangsefni
Á námskeiðinu verður fjallað um kennsluaðferðahugtakið og dæmi kynnt um fræðilega flokkun kennsluaðferða. Rannsóknum á kennsluaðferðum verða gerð sérstök skil, einkum innlendum rannsóknum. Þá verður fjallað um kennsluhætti og kennsluaðferðir sem tengjast hugmyndum um nemendamiðað og lýðræðislegt skólastarf (m.a. opinn skóla, sveigjanlega kennsluhætti, samvinnunám, samkennslu, lausnaleitarnám, heildstæð viðfangsefni, þemanám, samkomulagsnám og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni). Efni námskeiðsins verður tengt þróun fjölbreyttra kennsluhátta hér á landi, og erlendis, og áhersla lögð á að þátttakendur ígrundi eigin reynslu af kennslu. Þátttakendum gefst tækifæri til að kynna sér einstaka kennsluhætti og kennsluaðferðir til nokkurrar hlítar og fjalla um það með fræðilegum hætti.Vinnulag
Byggt er á fyrirlestrum, kynningum, málstofum, umræðum, sjálfstæðri vinnu, hópverkefnum, lestri og upplýsingaleit. Lögð er áhersla á að þátttakendur ígrundi eigið starf og greini, túlki og meti reynslu sína og tengi hana við fræði og rannsóknir. Þáttakendur ræða lesefni námskeiðsins og tengja það kennslustundum og eigin reynslu með aðstoð lestrardagbókar og annarra verkefna. Auk þess vinna nemendur lokaverkefni sem er hópverkefni.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSNU007FUpplýsingatækni í menntun og skólaþróunValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um:
- áhrif upplýsingatækni á menntun og skólastarf
- námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi
- hugtök, kenningar og rannsóknir sem tengjast notkun upplýsingatækni í námi og kennslu
- innleiðingu tölva og upplýsingatækni í skólastarf
- kennsluhætti, símenntun kennara, hugbúnað og stafrænt námsefni
- stafræna hæfni nemenda og kennara og læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni
- hlutdeild upplýsingatækni í lífi fólks innan og utan skóla
Vinnulag:
Lestur og umræða um námskrá og stefnu, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þeir miðla hugmyndum sínum og reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leggja sitt af mörkum við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu verða hugtökin fjarnám- og fjarkennsla og tengd hugtök s.s. blandað nám, dreifnám og netnám skoðuð og skilgreind. Skoðaðar verða hugmyndir og kenningar sem tengjast sviðinu og hvernig þær hafa þróast frá áherslu á sjálfstætt nám (independent study) á tímum bréfaskóla til áherslu á samskipti og uppbyggingu sameiginlegrar þekkingar á tímum netvæðingar og alþjóðahyggju. Fjallað verður um erlendar og innlendar rannsóknir á fjarnámi og -kennslu. Athygli er beint að stöðu fjarnáms á mismunandi skólastigum, fjarnemum og þörfum þeirra, kennsluháttum með nýtingu mismunandi miðla og hönnun fjarnámsáfanga m.t.t. alþjóðlegra viðmiða og gæðastaðla.
Vinnulag
Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitarnám) og annað stærra einstaklingsverkefni.Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÓháð námsári- Óháð misseri

Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitarnám) og annað stærra einstaklingsverkefni.Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið