""
Nám í endurnýjanlegri orku

Nám í endurnýjanlegri orku er einstakt tækifæri fyrir nemendur í verkfræði, raunvísindum og hagfræði til að sérhæfa sig á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Mikil tækifæri felast í rannsóknum og þróun á endurnýjanlegum orkugjöfum, bæði á Íslandi sem og á heimsvísu, og ljóst að sjálfbær orkunýting mun verða eitt af stóru verkefnunum á þessari öld.

Um námið

Námið er vel til fallið fyrir nemendur sem stefna á starfsferil á sviði jarðhitaverkfræði, vatnsaflsverkfræði, raforkuverkfræði, jarðvísinda, og umhverfis- og auðlindafræði.

Nemendum gefst tækifæri til að vinna verkefni tengd endurnýjanlegri orku með sérfræðingum sem eru fremstir á sínu sviði, t.d. á sviði jarðhita, vatnsafls, raforku, og sjálfbærni.
Nemendur fá m.a. kynningu á þeim endurnýjanlegu orkugjöfum sem eru virkjaðir hér á landi með kennslu og vettvangsferðum með sérfræðingum innan sviðsins í inngangsnámskeiði í endurnýjanlegum orkufræðum.

Einnig fá þeir tækifæri til þess að vinna með fyrirtækjum hérlendis sem eru leiðandi á sviði endurnýjanlegrar orku í þverfaglegu verkefnanámskeiði þar sem nemendur með mismunandi bakgrunn í verkfræði, raunvísindum, orkuhagfræði, umhverfis- og auðlindafræði, vinna saman í hópum.

Námsleiðir með kjörsvið á sviði endurnýjanlegrar orku
Gróðurhús

Kjörsvið: Orkuverkfræði

""

Kjörsvið: Jarðeðlisfræði

Jarðhiti

Kjörsvið: Jarðefnafræði

Solar panels

Kjörsvið: Vistvæn orkuverkfræði 

Orkuver

Kjörsvið: Orka og sjálfbærni: stefnumótun, orkuhagfræði og umhverfi

Virkjun

Kjörsvið: Orkuverkfræði

""

Kjörsvið: Jarðhitaverkfræði

Uppbygging námsins

Námið er 120 ECTS eininga meistaranám sem skiptist í 20 – 30 ECTS skyldunámskeið, tengt hverju kjörsviði, sameiginlegt inngangsnámskeið í endurnýjanlegum orkufræðum og þverfaglegs verkefnis sem bindur saman námið, alls 10 ECTS.

Nemendur gera svo í lokin 30-60 ECTS eininga meistaraverkefni. Utan skyldunámskeiðanna er hægt að velja úr fjölda valnámskeiða innan viðkomandi kjörsviðs og á öðrum kjörsviðum.

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði er mismunandi eftir hverju kjörsviði, nánari upplýsingar er hægt að sjá í kennsluskrá við hvert kjörsvið.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við mssens@hi.is

Að námi loknu

Sérhæfing í endurnýjanlegri orku opnar fyrir fjölbreytt starfstækifæri hjá bæði einkafyrirtækjum og opinberum stofnunum því vaxandi þörf er fyrir sérfræðinga sem geta skipulagt, metið og stýrt flóknum auðlindaverkefnum.

Nemendur með framhaldsmenntun á sviði endurnýjanlegrar orku eru eftirsóttir starfskraftar hjá

  • orkufyrirtækjum
  • iðnfyrirtækjum
  • ráðgjafafyrirtækjum
  • sveitarfélögum
  • ráðuneytum og ríkisstofnunum
Hafðu samband
Verkfræði- og náttúruvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:30
Netföng

Fylgdu okkur á Instagram og  Facebook 

Mynd af Tæknigarði

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil