Nemandi á bókasafni
Tungumál kennslu
Enska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Þarftu að nota ensku í þínu námi en vantar betri grunn?
  • Viltu ná góðum tökum á ensku í þinni námsgrein?
  • Finnst þér gaman að læra tungumál?
  • Viltu styrkja kunnáttu þína í ensku?

Akademísk enska er 60 eininga hagnýt námsleið til diplómaprófs á BA-stigi sem er ætluð háskólanemendum sem vilja styrkja færni sína í að nota ensku í háskólanámi í öðrum námsgreinum.

Sérstök áhersla er lögð á að undirbúa nemendur til þess að takast á við nám þar sem enska er helsta kennslumálið eða námsefni er aðallega á ensku.

Einnig er hægt að taka eitt eða fleiri námskeið samhliða öðru námi við Háskóla Íslands. Mat inn í námsleiðir er háð samþykki viðkomandi deildar/sviðs.

Námsleiðin er kennd á ensku.

Nemendur sem hefja nám í akademískri ensku verða að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla í samræmi við reglur Háskóla Íslands.

Helstu áherslur í náminu 

  • Tal
  • Hlustun
  • Ritun
  • Orðaforði

Stúdentspróf eða sambærilegt próf.

Færni í tungumálinu þarf að vera á B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
TOEFL 4.5, IELTS 6.5.

TOEFL próf tekinn fyrir 21. janúar 2026 þurfa að vera með TOEFL 79.

ATH. Þann 4. desember 2025 samþykkti háskólaráð að háskólaárið 2026-2027 myndi fjöldi nýrra nemenda í akademíska ensku utan EES takmarkast við 50. Ríkisborgarar Sviss, Grænlands og Færeyja eru þó undanþegnir takmörkuninni.

Allir nemendur skulu uppfylla lágmarksinntökuskilyrði um enskukunnáttu, sem samsvarar lágmarkseinkunn 4.5 úr TOEFL og/eða 6.5 úr IELTS og/eða 58 úr PTE. Ef umsækjendur sem uppfylla þetta viðmið eru fleiri en 50 verða þeir 50 með hæstu einkunn í tungumálakunnáttu í ensku í teknir inn.

Til þess að ljúka diplómanámi í akademískri ensku þarf nemandi að ljúka öllum námskeiðunum sem tilgreind eru á námsleiðinni.

Stúdentar í Akademískri ensku geta ekki sótt námskeið í BA námsleiðum í ensku nema með sérstöku leyfi greinarformanns.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Samskipti: Tal og hlustun (ENS131G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðins er að þróa og bæta hlustun og skilning á formlegri enskri fræðilegri orðræðu. Nemendur átta sig á málfræðilega viðeigandi málnotkun þar með orðaforða og framburði. Námskeiðið miðar að því að auka getu nemenda til að taka þátt í háskólastarfi þ.a.m. skilja fyrirlestra og taka þátt í fræðilegri umræðu á viðeigandi hátt. Nemendur hlusta á fyrirlestra, vinna glósur og minnispunkta, bregðast við fyrirlestrum og nota akademíska orðræðu til að taka þátt í og leiða umræður og flytja stuttar fræðilegar kynningar í tíma.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Akademísk enska: Ritun I (ENS132G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði þjálfa nemendur með sér meðvitund um námsaðferðir og þjálfa grunnatriði ritunar s.s. mismunandi setningagerðir, áhersluatriði, skýrar efnisgreinar og stuttar greinargerðir. Nemendur þjálfa enska akademíska textavitund með því að greina stutta námsbókatexta, tímaritsgreinar og skýrslur. Nemendur þjálfa færni í fræðilegri ritun, auka nákvæmi í málnotkun og orðavali og notkun heimilda. Nemendur skrifa stutta greinargerð sem byggð er á frumheimildum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Læsi og orðaforði I (ENS133G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður leitast við að efla skilning nemenda á mismunandi gerðum texta í ólíkum fræðigreinum og þjálfa notkun viðeigandi námsaðferða við lestur fræðilegra texta. Nemendur vinna með þekkta almenna akademíska orðalista til að stækka og dýpka orðaforða, bæði hugtök tengd ákveðnum fræðigreinum en ekki síst almennan orðaforða og orðræðu sem er grundvöllur túlkunar og skilnings á akademískum textum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Lærdómsaðferðir í akademísku námi á ensku (ENS135G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er undirbúningsnámskeið í námsleiðinni Akademísk Enska. Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í náms og vinnuaðferðir í akademísku ensku umhverfi. Nemendur læra að setja sér skammtíma og langtíma markmið í tungumálanámi og nota aðferðir til að fylgjast með og meta eigin markmið. Einnig verður farið í sjálfsmat og hvernig hægt sé að styrkja veikleika sína til að auka sjálfstæði nemenda í máltileinkun.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Rannsóknaraðferðir I: aðföng og aðferðir (ENS136G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í vinnuaðferðir í akademísku ensku umhverfi og þjálfa þá í faglegum vinnubrögðum eins og heimildaleit og annari gagnaöflun.Farið verður yfir rannsóknaraðferðir innan Hugvísinda sem og rýnt djúpt í efni eins og ritstuld og gagnrýna hugsun. Nemendur gera verkefni sem snúa að notkun heimilda, gagnaöflun, akademísk ensk ritun og annað sem viðkemur efni námsleiðarinnar

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Framsaga og rökræður (ENS212G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þjálfa færni í akademísku tungutaki og orðræðu með tilliti til flæðis og þátttöku i mismunandi námstengdum málaðstæðum.  Málnotkun felur í sér þjálfun í framburði, málfræði og orðaforða við hæfi.  Fjallað er nánar um skipulag og framsetningu upplýsinga m.a. í PP kynningu. Þjálfun í samskiptafærni felur í sér skilning og tjáningu í kennslustund m.a. að spyrja og svara á formlegu máli,  á fundum, kynningum og öðrum málaðstæðum tengdum háskólastarfi.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Ritun II (ENS213G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að þjálfa akademíska ritun, sérstaklega textaflæði. Ritunarferlið er brotið niður í skref og ritun í hverju skrefi ferlisins þjálfuð markmvisst m.a. með því að nota viðeigandi  námsaðferðir (e. strategies) til að auka flæði á hverju stigi fyrir sig. Nemendur verða meðvitaðir um þær aðferðir sem þeir nota nú þegar og bæta við nýjum.  Þar sem góð ritun krefst þjálfunar, fá nemendur mörg tækifæri til að skipleggja ritun, semja stutta og langa texta og endurskrifa. Nemendur kynnast eðli mismunandi fræðilegra textagerða og hugmyndinni um samfélög málnotenda (e. communities of practice) þar sem hvert samfélag hefur sinn eigin málstíl og hefðir.  Nemendur skrifa heimildaritgerð byggða á mati á verkum annarra, gera grein fyrir þeim og sínum eigin skoðunum. Lokamarkmiðið er að nemendur styrki eigin „rödd“ í fræðilegum skrifum. Námskeiðið hentar líka framhaldsnemum sem eru að skrifa lokaritgerðir á ensku. 

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Læsi og orðaforði II (ENS214G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Eins og í ENS133G er leitast við að efla meðvitund nemenda um mismunandi tegundir texta í ólíkum fræðigreinum og þjálfa notkun þeirra á viðeigandi námsaðferðum við lestur fræðilegra texta. Þetta námskeið er einstaklingsmiðað. Í fyrstu verður lögð áhersla á að efla meðvitund um gerð almennra texta í 1) hug- og félagsvísindum, 2) náttúruvísindum og verkfræði og 3) viðskipta- og lögfræði. Námskeiðið er að hluta byggt á sjálfstæðri vinnu með aðstoð kennara þar sem nemendur lesa, greina  og skrifa um texta á sínu fræðasviði með aðstoð leiðbeinanda.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Viðskipta-, ferðamála- og lagaenska (ENS216G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

English for Business, Tourism and Law is an interdisciplinary course aimed at increasing students’ vocabulary in the areas of business, tourism and law.

The course is academic in that students will analyse academic tests such as research reports, textbook chapters, and academic articles in the fields of business, tourism, and law. The course is also practical in that students will complete language tasks that are linked to the industry, such as:

  • Reading and understanding the language of various types of contracts 
  • Reading and understanding the structure and content of annual reports and other company reports
  • Analysing the language of tourism products and services 
  • Knowing how to interpret and use surveys and statistics published by official bodies 
Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Rannsóknaraðferðir II: Rannsóknarverkefni (ENS217G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði munu nemendur vinna að rannsóknarverkefni í framhaldi af ENS136G Rannsóknaraðferðir I, þar sem unnið er með rannsóknarspurningar í tengslum við fræðilegar kynningar og skrif. Í námskeiðinu munu nemendur halda kynningu og skrifa ritgerð tengda innihaldi námsleiðarinnar.

Nemendur sitja 2x40 mínútna tíma í hverri viku og mæta eftir þörfum í 1x40 mínútna tíma með kennara í gegnum fjarbúnað.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár
  • Haust
  • ENS131G
    Samskipti: Tal og hlustun
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðins er að þróa og bæta hlustun og skilning á formlegri enskri fræðilegri orðræðu. Nemendur átta sig á málfræðilega viðeigandi málnotkun þar með orðaforða og framburði. Námskeiðið miðar að því að auka getu nemenda til að taka þátt í háskólastarfi þ.a.m. skilja fyrirlestra og taka þátt í fræðilegri umræðu á viðeigandi hátt. Nemendur hlusta á fyrirlestra, vinna glósur og minnispunkta, bregðast við fyrirlestrum og nota akademíska orðræðu til að taka þátt í og leiða umræður og flytja stuttar fræðilegar kynningar í tíma.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS132G
    Akademísk enska: Ritun I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði þjálfa nemendur með sér meðvitund um námsaðferðir og þjálfa grunnatriði ritunar s.s. mismunandi setningagerðir, áhersluatriði, skýrar efnisgreinar og stuttar greinargerðir. Nemendur þjálfa enska akademíska textavitund með því að greina stutta námsbókatexta, tímaritsgreinar og skýrslur. Nemendur þjálfa færni í fræðilegri ritun, auka nákvæmi í málnotkun og orðavali og notkun heimilda. Nemendur skrifa stutta greinargerð sem byggð er á frumheimildum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS133G
    Læsi og orðaforði I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður leitast við að efla skilning nemenda á mismunandi gerðum texta í ólíkum fræðigreinum og þjálfa notkun viðeigandi námsaðferða við lestur fræðilegra texta. Nemendur vinna með þekkta almenna akademíska orðalista til að stækka og dýpka orðaforða, bæði hugtök tengd ákveðnum fræðigreinum en ekki síst almennan orðaforða og orðræðu sem er grundvöllur túlkunar og skilnings á akademískum textum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS135G
    Lærdómsaðferðir í akademísku námi á ensku
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er undirbúningsnámskeið í námsleiðinni Akademísk Enska. Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í náms og vinnuaðferðir í akademísku ensku umhverfi. Nemendur læra að setja sér skammtíma og langtíma markmið í tungumálanámi og nota aðferðir til að fylgjast með og meta eigin markmið. Einnig verður farið í sjálfsmat og hvernig hægt sé að styrkja veikleika sína til að auka sjálfstæði nemenda í máltileinkun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS136G
    Rannsóknaraðferðir I: aðföng og aðferðir
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í vinnuaðferðir í akademísku ensku umhverfi og þjálfa þá í faglegum vinnubrögðum eins og heimildaleit og annari gagnaöflun.Farið verður yfir rannsóknaraðferðir innan Hugvísinda sem og rýnt djúpt í efni eins og ritstuld og gagnrýna hugsun. Nemendur gera verkefni sem snúa að notkun heimilda, gagnaöflun, akademísk ensk ritun og annað sem viðkemur efni námsleiðarinnar

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ENS212G
    Framsaga og rökræður
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þjálfa færni í akademísku tungutaki og orðræðu með tilliti til flæðis og þátttöku i mismunandi námstengdum málaðstæðum.  Málnotkun felur í sér þjálfun í framburði, málfræði og orðaforða við hæfi.  Fjallað er nánar um skipulag og framsetningu upplýsinga m.a. í PP kynningu. Þjálfun í samskiptafærni felur í sér skilning og tjáningu í kennslustund m.a. að spyrja og svara á formlegu máli,  á fundum, kynningum og öðrum málaðstæðum tengdum háskólastarfi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS213G
    Ritun II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að þjálfa akademíska ritun, sérstaklega textaflæði. Ritunarferlið er brotið niður í skref og ritun í hverju skrefi ferlisins þjálfuð markmvisst m.a. með því að nota viðeigandi  námsaðferðir (e. strategies) til að auka flæði á hverju stigi fyrir sig. Nemendur verða meðvitaðir um þær aðferðir sem þeir nota nú þegar og bæta við nýjum.  Þar sem góð ritun krefst þjálfunar, fá nemendur mörg tækifæri til að skipleggja ritun, semja stutta og langa texta og endurskrifa. Nemendur kynnast eðli mismunandi fræðilegra textagerða og hugmyndinni um samfélög málnotenda (e. communities of practice) þar sem hvert samfélag hefur sinn eigin málstíl og hefðir.  Nemendur skrifa heimildaritgerð byggða á mati á verkum annarra, gera grein fyrir þeim og sínum eigin skoðunum. Lokamarkmiðið er að nemendur styrki eigin „rödd“ í fræðilegum skrifum. Námskeiðið hentar líka framhaldsnemum sem eru að skrifa lokaritgerðir á ensku. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS214G
    Læsi og orðaforði II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Eins og í ENS133G er leitast við að efla meðvitund nemenda um mismunandi tegundir texta í ólíkum fræðigreinum og þjálfa notkun þeirra á viðeigandi námsaðferðum við lestur fræðilegra texta. Þetta námskeið er einstaklingsmiðað. Í fyrstu verður lögð áhersla á að efla meðvitund um gerð almennra texta í 1) hug- og félagsvísindum, 2) náttúruvísindum og verkfræði og 3) viðskipta- og lögfræði. Námskeiðið er að hluta byggt á sjálfstæðri vinnu með aðstoð kennara þar sem nemendur lesa, greina  og skrifa um texta á sínu fræðasviði með aðstoð leiðbeinanda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS216G
    Viðskipta-, ferðamála- og lagaenska
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    English for Business, Tourism and Law is an interdisciplinary course aimed at increasing students’ vocabulary in the areas of business, tourism and law.

    The course is academic in that students will analyse academic tests such as research reports, textbook chapters, and academic articles in the fields of business, tourism, and law. The course is also practical in that students will complete language tasks that are linked to the industry, such as:

    • Reading and understanding the language of various types of contracts 
    • Reading and understanding the structure and content of annual reports and other company reports
    • Analysing the language of tourism products and services 
    • Knowing how to interpret and use surveys and statistics published by official bodies 
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS217G
    Rannsóknaraðferðir II: Rannsóknarverkefni
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði munu nemendur vinna að rannsóknarverkefni í framhaldi af ENS136G Rannsóknaraðferðir I, þar sem unnið er með rannsóknarspurningar í tengslum við fræðilegar kynningar og skrif. Í námskeiðinu munu nemendur halda kynningu og skrifa ritgerð tengda innihaldi námsleiðarinnar.

    Nemendur sitja 2x40 mínútna tíma í hverri viku og mæta eftir þörfum í 1x40 mínútna tíma með kennara í gegnum fjarbúnað.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Með góðan grunn í ensku ofan á þína aðalnámsgrein styrkir þú möguleika þína í starfi. 

Ekki er hægt að taka dæmi um starfsvettvang annan en að almennt gagnast það fólki að hafa gott vald á ensku í starfi. Góð akademísk enskukunnátta getur auðveldað þér að fylgjast með framþróun og rannsóknum á þínu fræðasviði. 

Nemendafélag enskunema heitir Alfreð.

Alfreð stuðlar að virku félagslífi og talar máli félagsmanna.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Lara Dawn Michelsen
Þar sem ég hef mikinn áhuga á að auka færni mína í ritun á ensku og dýpka þekkingu mína á bókmenntum virtist enskunámið við Háskóla Íslands fullkomið fyrir mig – og það hefur verið raunin. Ég hef kynnst miklu úrvali merkra bókmenntaverka í bókmenntanámskeiðunum, lært að greina þau með gagnrýnum hætti og að átta mig á hvað einkennir merkar bókmenntir. Það sem hefur hrifið mig mest við námið er að ég hef kynnst fólki sem hefur sömu ástríðu fyrir bókmenntum og ég og að eyða heilu tímunum í að ræða um bókmenntaverk og fara djúpt í greiningu á þeim.
Ljósmynd af Samuel Hogarth
Ég ákvað að læra um verk merkra rithöfunda til að verða betri rithöfundur sjálfur. Eftir því sem ég hef verið lengur við nám í HÍ hef ég jafnframt uppgötvað að mikil skáldverk fela í sér mikilvæga lærdóma; um stöðu okkar sem tegundar, hvers vegna við enduðum þar sem við erum og hvers vegna hegðun okkar er eins og hún er. Ég hef verið mjög ánægður með þá breidd bókmenntagreiningar sem er boðið upp á í BA-náminu í ensku og mér hafa fundist öll námskeiðin bæði skemmtileg og hagnýt. Ef þér finnst gaman að lesa og skrifa eða vilt einfaldlega læra meira um sjálfa þig og vestræna menningu frá sjónarhorni málvísinda og bókmennta þá er þetta rétta námið fyrir þig.
Ljósmynd af Samuel Patrick O´Donnell
Ég valdi ensku sem aðalfag til að skilja hvernig og af hverju bækur eru skrifaðar og til að auka ritfærni mína. Ég hef svo sannarlega náð dýpri skilning á textum og samhengi þeirra hérna í Háskólanum en ég hef líka áttað mig að það er útilokað að skrifa fullkominn texta – lokapunktur ritunar er háður skilafrestinum en ekki kröfu um fullkomnun. Kennararnir búa yfir mikill þekkingu og eru mjög hjálplegir við að benda á ítarefni og að beina nemendum í rétta átt, sem er mjög gott. Það hefur líka verið auðvelt að komast í námshópa með öðrum nemendum. Samnemendur mínir eru mjög næs og hlýir og mér finnst ég algjörlega eiga heima hérna.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil